Fara í efni

Dómstólaleit

Leit í dómum íslenskra dómstóla

Héraðsdómur Reykjavíkur

Mál nr. S-661/2026:

Lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu

(Eva Lind Ingadóttir saksóknarfulltrúi)

gegn

Degi Sóloni Valgerðarsyni

(Þuríður B. Sigurjónsdóttir lögmaður)

Játning. Líkamsárás. Upptaka. Vopnalagabrot.

Ákærði var sakfelldur fyrir líkamsárás og vopnalagabrot.

Dómur

Mál þetta, sem dómtekið var 5. maí sl., er höfðað með ákæru, útgefinni af lögreglustjóranum á höfuðborgarsvæðinu 3. febrúar 2026, á hendur Degi Sóloni Valgerðarsyni, kennitala [....], [....] í Reykjavík, fyrir líkamsárás og vopnalagabrot með því að hafa, aðfaranótt miðvikudagsins 27. mars 2024, í anddyri að [....] í Reykjavík, veist með ofbeldi að A, kt. [....], með því að hafa ýtt brotaþola og ógnað honum með hníf, nánar tiltekið með því að taka upp hníf og sveifla honum, með þeim afleiðingum að brotaþoli hlaut opið sár á fingri eða um 5 cm langan skurð lófalagt og skaða á nögl. Telst þessi háttsemi ákærða varða við 1. mgr. 217. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940 og 1. mgr. 30. gr., sbr. 1. mgr. 36. gr., vopnalaga nr. 16/1998.

Þess er krafist að ákærði verði dæmdur til refsingar og til greiðslu alls sakarkostnaðar. Einnig er krafist upptöku á hníf, gulum og svörtum af gerðinni Dewalt (munanúmer [....]) samkvæmt 1. mgr. 37. gr. laga nr. 16/1998.

Verjandi ákærða krefst vægustu refsingar sem lög leyfa sem ákveðin verði í formi sektar, en til vara í formi fangelsisvistar sem verði bundin sex mánaða skilorði. Þá krefst hún hæfilegrar þóknunar sér til handa.

Farið var með mál þetta samkvæmt 164. gr. laga nr. 88/2008 um meðferð sakamála og var það tekið til dóms án frekari sönnunarfærslu þegar sækjanda og verjanda ákærða hafði verið gefinn kostur á að tjá sig um lagaatriði og ákvörðun viðurlaga.

Ákærði hefur skýlaust játað brot sín. Sannað er með játningu ákærða og öðrum gögnum málsins að hann er sekur um þá háttsemi sem honum er gefin að sök og eru brot hans rétt heimfærð til refsiákvæða í ákæru.

Ákærði er fæddur í [....]. Samkvæmt sakavottorði, dags. 29. janúar 2026, hefur hann þrisvar sinnum gengist undir lögreglustjórasekt vegna umferðar- og fíkniefnalagabrota, nú síðast 8. maí 2025. Þá var ákæru yfir honum frestað skilorðsbundið í maí 2019 vegna brots gegn 252. gr. almennra hegningarlaga og þann [....] 2020 var hann með dómi Héraðsdóms Reykjaness dæmdur í 30 daga fangelsi, skilorðsbundið í tvö ár, vegna brota gegn 217. og 244. gr. almennra hegningarlaga, fíkniefnalögum og vopnalögum. Dómurinn er ekki meðal málsgagna og þar sem ekki liggur fyrir hvort ákærði hafði náð 18 ára aldri þegar hann framdi brotin sem þar um ræðir verður litið svo á að ekki sé um ítrekunaráhrif að ræða. Brot þau sem ákærði er nú sakfelldur fyrir voru framin áður en ákærði gekkst undir lögreglustjórasekt í janúar og maí 2025 og verður ákærða því dæmdur hegningarauki, sbr. 78. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940. Undir meðferð málsins játaði ákærði brot sín skýlaust. Horfir það honum til málsbóta, sbr. 8. tölulið 1. mgr. 70. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940. Með hliðsjón af sakarefni þessa máls og 77. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940 sem og að öllu framangreindu virtu þykir refsing ákærða hæfilega ákveðin fangelsi í 30 daga en fullnustu refsingarinnar er frestað og falli hún niður að liðnum tveimur árum frá uppkvaðningu dóms þessa haldi ákærði almennt skilorð 57. gr. laga nr. 19/1940, sbr. 4. gr. laga nr. 22/1955.

Með vísan til lagaákvæða í ákæru er gerður upptækur gulur og svartur hnífur af gerðinni Dewalt sem hald var lagt á við rannsókn málsins.

Ákærði greiði málsvarnarþóknun skipaðs verjanda síns, Þuríðar B. Sigurjónsdóttur lögmanns, 414.279 krónur, að meðtöldum virðisaukaskatti, og 44.104 krónur í annan sakarkostnað. Af hálfu ákæruvaldsins flutti málið Eva Lind Ingadóttir saksóknarfulltrúi. Barbara Björnsdóttir héraðsdómari kveður upp dóm þennan.

D Ó M S O R Ð:

Ákærði, Dagur Sólon Valgerðarson, sæti fangelsi í 30 daga en fullnustu refsingarinnar er frestað og falli hún niður að liðnum tveimur árum frá uppkvaðningu dóms þessa haldi ákærði almennt skilorð 57. gr. laga nr. 19/1940, sbr. 4. gr. laga nr. 22/1955. Ákærði sæti upptöku á gulum og svörtum hníf af gerðinni Dewalt. Ákærði greiði málsvarnarþóknun skipaðs verjanda síns, Þuríðar B. Sigurjónsdóttur lögmanns, 414.279 krónur, og 44.104 krónur í annan sakarkostnað.

Barbara Björnsdóttir

Heimildaskrá

Lagaskrá

Lög nr. 19/1940 Almenn hegningarlög 57. gr.1. mgr. 70. gr.77. gr.78. gr.217. gr.1. mgr. 217. gr.244. gr.252. gr.
Lög nr. 22/1955 4. gr.
Lög nr. 16/1998 Vopnalög 1. mgr. 30. gr.1. mgr. 36. gr.1. mgr. 37. gr.
Lög nr. 88/2008 Lög um meðferð sakamála 164. gr.