Lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu (
Kári Ólafsson aðstoðarsaksóknari)
gegn
Heiðari Lár Halldórssyni (
Leifur Runólfsson lögmaður)
Ákærði var sakfelldur fyrir gripdeild, skjalafals, tilraun til skjalafals, og umferðarlagabrot. Var honum gert að sæta 3 mánaða fangelsi, skilorðsbundið til tveggja ára ásamt því að vera sviptur ökurétti í 5 ár.
S voru gefin að sök þjófnaðar-, gripdeildar- og umferðarlagabrot. S játaði háttsemina í héraði og var honum meðal annars gert að sæta fangelsi í fimm mánuði en fyrir Landsrétti var einungis til endurskoðunar ákvæði um fangelsisrefsingu S. Rakið var í dómi Landsréttar að S hafi í ákæru meðal annars verið ákærður fyrir þjófnað í verslun í apríl 2023. Háttsemin hafi verið heimfærð til gripdeildar í hinum áfrýjaða dómi en hvorki S né ákæruvaldið gert athugasemdir við heimfærsluna. Í samræmi við þetta hafi S verið sakfelldur í héraði fyrir fjögur gripdeildarbrot og tvö þjófnaðarbrot auk umferðarlagabrotsins. Við ákvörðun refsingar var í dómi Landsréttar litið til þess sem rakið var í héraðsdómi, S til refsiþyngingar, að þau auðgunarbrot sem hann var sakfelldur fyrir voru framin innan ítrekunartíma þjófnaðarbrots sem S hlaut dóm fyrir 1. apríl 2022. Einnig var horft til þess að S hafi játað brot sín skýlaust, honum til refsimildunar. Enn fremur var fallist á að ekki væru efni til að skilorðsbinda refsingu S en með þeim brotum sem hann var ákærður fyrir hafi S rofið skilorð. Með framangreindum athugasemdum en að öðru leyti með vísan til forsendna hins áfrýjaða dóms var hann staðfestur.
Málið nr. S-2534/2025 Ákæruvaldið (Elíon Hrafnsdóttir aðstoðarsaksóknari) gegn
Ali Naser A. Sedegh (enginn)
Ákærði var sakfelldur fyrir þjófnaðarbrot og gripdeild og dæmdur í 30 daga skilorðsbundið fangelsi.
Lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu (Sonja Wiium saksóknarfulltrúi) gegn
Ousmane Hawa Camara
Ákærði var sakfelldur fyrir þjófnað, gripdeild, brot gegn lögreglulögum, lögreglusamþykkt, lögum um ávana- og fíkniefni og vopnalögum og dæmdur í 90 daga skilorðsbundið fangelsi og gert að sæta upptöku á fíkniefnum og hníf.
Lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu (
Kamilla Kjerúlf aðstoðarsaksóknari)
gegn
Jóhanni Elvari Sveinbjörnssyni (
Stefán Karl Kristjánsson lögmaður)
Ákærði var sakfelldur fyrir gripdeildarbrot og gert að sæta fangelsi í 60 daga.
Lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu (
Kamilla Kjerúlf aðstoðarsaksóknari)
gegn
Alexander Kjartansson (
Snorri Sturluson lögmaður)
Ákærði var sakfelldur fyrir skjalabrot, gripdeild og þjófnað. Var honum gert að sæta fangelsi í 30 daga skilorðsbundið til tveggja ára.
Ákæruvaldið (
Gunnhildur Anna Alfonsdóttir aðstoðarsaksóknari)
gegn
Jóni Gunnþórssyni (
Gísli M. Auðbergsson lögmaður)
Ákærði sakfelldur fyrir ýmis brot gegn hegningarlögum og sérrefsilögum samkvæmt þremur ákærum. Hann játaði brot sín skýlaust.
Lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu (
Sonja Wiium saksóknarfulltrúi)
gegn
Aleksas Kartanas (
Leó Daðason lögmaður)
Ákærði, sem játaði sök, var dæmdur til að sæta fangelsi í tólf mánuði, fyrir ýmis brot gegn almennum hegningarlögum, umferðarlögum og lögum um ávana- og fíkniefni, auk greiðslu bóta.
Lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu (Einar Laxness aðstoðarsaksóknari) gegn
Mindaugas Kulevicius
Ákærði sakfelldur fyrir líkamsárás og gripdeild og dæmdur í tveggja mánaða skilorðsbundið fangelsi og til greiðslu bóta.
Ákærðu sakfelldir fyrir líkamsárás og gripdeild í sameiningu, og annar þeirra að auki fyrir tvær aðrar líkamsárásir, þjófnað, barnaverndarlagabrot og umferðarlagabrot.
Ákæruvaldið (
Júlí Karlsson aðstoðarsaksóknari)
gegn
Erlingi Einarssyni (
Snorri Sturluson lögmaður)
Ákærði sakfelldur m.a. sakfelldur fyrir ítrekuð auðgunarbrot og brot gegn lögum um ávana- og fíkniefni. Hann játaði brot sín skýlaust.
Lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu (
Gunnhildur Anna Alfonsdóttir aðstoðarsaksóknari)
gegn
Svani Birki Tryggvasyni (
Jón Bjarni Kristjánsson lögmaður)
Ákærði sakfelldur fyrir brot á hegningarlögum og umferðarlögum. Dæmdur í 5 mánaða fangelsi og ævilöng svipting ökuréttar áréttuð. Um var að ræða rof á skilorði fyrri dóms og varð það dæmt upp.
Lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu (
Gunnhildur Anna Alfonsdóttir aðstoðarsaksóknari)
gegn
Þorbergi Bergmanni Halldórssyni (
Guðmundur St. Ragnarsson lögmaður)
Ákærði var sakfelldur fyrir þjófnaði, gripdeildir, eignaspjöll og brot gegn lögreglu- og vopnalögum.
Ákærði var sakfelldur fyrir fíkniefnalagabrot, gripdeild og umferðarlagabrot en sýknaður af ákæru fyrir brot í nánu sambandi þar sem brotið var talið eiga undir 217. gr. almennra hegningaralaga og vera fyrnt af þeim sökum.
Lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu (
Baldvin Einarsson aðstoðarsaksóknari)
gegn
Guðjóni Bergi Jakobssyni (
Bjarni Hólmar Einarsson lögmaður)
Ákærði var sakfelldur fyrir fjölmörg brot gegn almennum hegningarlögum, umferðarlögum og fíkniefnalögum.
Lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu (Pétur Fannar Gíslason saksóknarfulltrúi) gegn
Andra Lúkasi Lárussyni
Ákærði var sakfelldur fyrir fjársvik og gripdeild. Hegningarauki. Skilorðsrof. Dæmdur í 3 mánaða fangelsi.
Ákærða sakfelld fyrir ýmis brot, m.a. brot gegn valdstjórninni, líkamsárás, auðgunarbrot og umferðarlagabrot. Hún játaði brot sín skýlaust og viðurkenndi bótaskyldu.
Lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu (
Pétur Fannar Gíslason saksóknarfulltrúi)
gegn
X (
Stefán Karl Kristjánsson lögmaður)
Ákærði var sakfelldur fyrir ýmis hegningar- og sérrefsilagabrot, en refsing var ekki talin bera árangur sbr. 16. gr. almennra hegningarlaga og ákærða var gert að sæta vistun á viðeigandi stofnun.
Lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu (
Gunnhildur Anna Alfonsdóttir aðstoðarsaksóknari)
gegn
Bjarne Klemenz Vesterdal (
Bjarni Hólmar Einarsson lögmaður)
Ákærði var sakfelldur fyrir þjófnaði, gripdeild og fíkniefnalagabrot.
Ákæruvaldið (
Kamilla Kjerúlf saksóknarfulltrúi)
gegn
Janis Kocins (
Bjarni Aðalgeirsson lögmaður)
Ákærði dæmdur fyrir þjófnað og gripdeild.
Ákærðu sakfelldir fyrir nokkur brot, ýmist framin saman eða í sitthvoru lagi, þar með talið rán.
Lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu (
Kamilla Kjerúlf saksóknarfulltrúi)
gegn
Agnari Kristni Hermannssyni (
Bjarni Hauksson lögmaður)
Ákærði var sakfelldur fyrir gripdeild, umferðarlagabrot og fíkniefnalagabrot og gert að sæta fangelsi í 16 mánuði og ævilöng svipting ökuréttar áréttuð.
Ákæruvaldið (Kamilla Kjerúlf saksóknarfulltrúi) gegn
Guðmundi Inga Guðmundssyni
Sakfellt fyrir auðgunar- og fíkniefnabrot.
Lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu (
Kamilla Kjerúlf aðstoðarsaksóknari)
gegn
Sigursteini Braga Eddusyni (
Stefán Karl Kristjánsson lögmaður)
Ákærði sakfelldur fyrir fjölda brota, m.a. þjófnað, gripdeild og eignaspjöll.
Ákæruvaldið (
Íris Þóra Júlíusdóttir saksóknarfulltrúi)
gegn
Brynju Mist Snorradóttur (
Leifur Runólfsson lögmaður)
Ákærða sakfelld fyrir fjársvik, gripdeild, fíkniefnaakstur, akstur svipt ökurétti og vopnalagabrot. Úðavopn gert upptækt.
Ákæruvaldið (
Benedikt Smári Skúlason saksóknarfulltrúi)
gegn
Gunnari Frey Kristinssyni (
Ingi Freyr Ágústsson lögmaður)
Sakfellt fyrir rán, þjófnað, gripdeild og vopnalagabrot.
Lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu (
Kamilla Kjerúlf saksóknarfulltrúi)
gegn
Pétri Inga Halldórssyni (
Sveinn Andri Sveinsson lögmaður)
Ákærði var sakfelldur fyrir brot gegn umferðar- og hegningarlögum. Var ákærða gert að sæta fangelsi í 5 mánuði.
Lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu (
Silja Rán Arnarsdóttir aðstoðarsaksóknari)
gegn
Andra Lúkasi Lárussyni (
Steinbergur Finnbogason lögmaður)
Ákærði sakfelldur fyrir fjársvik og gripdeild. Dæmdur í 2 mánaða fangelsi, skilorðsbundið til tveggja ára.
Ákærði sakfelldur fyrir umferðarlagabrot, nytjastuld, rangar sakargiftir, þjófnað, gripdeild og fjársvik.
Lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu (
Einar Laxness aðstoðarsaksóknari)
gegn
Daníel Inga Wium Eyjólfssyni (
Stefán Karl Kristjánsson lögmaður)
Ákærði sakfelldur fyrir gripdeildarbrot. Um var að ræða hegningarauka við eldri dóma og var ákærða ekki gerð frekari refsing.
Lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu (
Gunnhildur Anna Alfonsdóttir saksóknarfulltrúi)
gegn
Kristófer Breka Berglindarsyni (
Steinbergur Finnbogason lögmaður)
Ákærði sakfelldur fyrir umferðar- og fíkniefnalagabrot, nytjastuld, fjársvik, gripdeild og þjófnað og gert að sæta fangelsi í 5 mánuði, skilorðsbundið í 2 ár. Þá var ákærði sviptur ökurétti í 4 ár og 6 mánuði.
Lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu (
Lína Ágústsdóttir aðstoðarsaksóknari)
gegn
Svani Herbertssyni (
Guðmundur St. Ragnarsson lögmaður)
Ákærði var sakfelldur fyrir þjófnaði, gripdeild, fjársvik og líkamsárás.
Lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu (
Elín Hrafnsdóttir aðstoðarsaksóknari)
gegn
Óðni Frey Valgeirssyni (
Þorgils Þorgilsson lögmaður)
Ákærði sakfelldur fyrir hegningar- og fíkniefnalagabrot og gert að sæta fangelsi í 6 mánuði. Gæsluvarðhald sem ákærði hafði sætt var látið dragast frá refsingunni. Þá var ákærða gert að greiða einkaréttarkröfu sem var gerð í málinu. Þá voru gerð upptæk fíkniefni til ríkissjóðs.
Sakfellt og sýknað af ákæru vegna ráns.
Lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu (Kristmundur Stefán Einarsson aðstoðarsaksóknari) gegn
Hauki Erni Aðalsteinssyni
Ákærði sakfelldur fyrir gripdeild.
Lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu (Kristín Einarsdóttir aðstoðarsaksóknari) gegn
Guðmundi Helga Birgissyni
Ákærði sakfelldur fyrir gripdeild og umferðarlagabrot.
Ákæruvaldið (
Finnur Þór Vilhjálmsson saksóknari)
gegn
Rosio Bertu Calvi Lozano (
Sigurður G. Guðjónsson lögmaður)
Sakfellt fyrir umboðssvik en sýknað af ákæru varðandi meintan fjárdrátt/umboðssvik, misneytingu og gripdeild. Sakartæming gagnvart peningaþvætti. Skilorðsbundin refsing, fjármunir gerðir upptækir og fallist á skaðabótakröfur. Sakarkostnaður að hluta felldur á ríkissjóð.
Lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu (
Árni Bergur Sigurðsson aðstoðarsaksóknari)
gegn
Agnari Davíð Stefánssyni (
Davor Purusic lögmaður)
Ákærði sakfelldur fyrir þjófnað og gripdeild og gert að sæta fangelsi í fjóra mánuði.
Lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu (Árni Bergur Sigurðsson aðstoðarsaksóknari) gegn
Jóni Hilmari Ómarssyni
Ákærði sakfelldur fyrir umferðar-, fíkniefna- og hegningarlagabrot.
Ákæruvaldið (
Eyþór Þorbergsson aðstoðarsaksóknari)
gegn
Sindra Páli Róbertssyni (
Gísli M. Auðbergsson lögmaður)
Ákærði dæmdur í fjögurra mánaða fangelsi fyrir gripdeild, fjársvik og vörslur fíkniefna.
Lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu (
Elín Hrafnsdóttir aðstoðarsaksóknari)
gegn
Benedikt Má Ingibjargarsyni (
Þorgils Þorgilsson lögmaður)
Ákærði sakfelldur fyrir umferðar-, hegningar- og vopnalagabrot.
Lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu (Árni Bergur Sigurðsson aðstoðarsaksóknari) gegn
Wojciech Narcyz Muszynski
Ákærði sakfelldur fyrir vopna-, fíkniefna- og hegningarlagabrot og gert að sæta fangelsi í 6 mánuði, skilorðsbundið til 2 ára. Fíkniefni og vopn gerð upptæk. Þá var ákærða gert að greiða hluta af þeim einkaréttarkröfum sem voru gerðar í málinu en einni kröfu var vísað frá dómi.
X var sakfelldur fyrir brot gegn valdstjórninni, gripdeild og umferðar- og lögreglulagabrot. X bar því við að fella bæri niður refsingu með vísan til 1. mgr. 16. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940 þar sem refsing yrði ekki talin bera árangur. Í dómi Landsréttar voru ekki talin uppfyllt skilyrði til þess að refsing X yrði látin niður falla á grundvelli þessa ákvæðis. Við ákvörðun refsingar var aftur á móti litið til 75. gr. almennra hegningarlaga vegna geðræns ástands X á verknaðarstundu. Við ákvörðun refsingar var einnig skírskotað til álits matsmanns um að refsing yrði X mjög þungbær vegna veikinda hans og þarfar hans fyrir viðeigandi læknismeðferð og meðhöndlun á sjúkrahúsi. Af þeim sökum var refsing hans ákveðin fangelsi í fjóra mánuði en fullnustu hennar frestað skilorðsbundið í tvö ár. Auk þess skyldi hann sæta sérstöku eftirliti og umsjón á skilorðstímanum samkvæmt 1. tölulið 3. mgr. 57. gr. almennra hegningarlaga. Loks var hann sviptur ökurétti ævilangt.
Lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu (
Lína Ágústsdóttir aðstoðarsaksóknari)
gegn
Axel Frey Kárasyni (
Ómar R. Valdimarsson lögmaður)
Ákærði dæmdur fyrir hegningar- og umferðarlagabrot. Með brotum sínum rauf ákærði skilyrði reynslulausnar og var honum gert að sæta fangelsi í 10 mánuði. Þá var ákærði sviptur ökurétti í 3 ár.
Lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu (
Haukur Gunnarsson aðstoðarsaksóknari)
gegn
Hrefnu Rán Hannesdóttur (
Stefán Karl Kristjánsson lögmaður)
Ákærða sakfelld fyrir fíkniefna- og hegningarlagabrot en með brotunum rauf ákærða skilyrði reynslulausnar og var ákærðu gert að sæta fangelsi í 15 mánuði. Þá voru gerð upptæk fíkniefni og haldlagðir munir til ríkissjóðs.
Lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu (
Elín Hrafnsdóttir aðstoðarsaksóknari)
gegn
Erlingi Einarssyni (
Sigurður Freyr Sigurðsson lögmaður)
Ákærði sakfelldur fyrir umferðarlaga, fíkniefnalaga- og hegningarlagabrot, þ. á m. ítrekaðan þjófnað, og gert að sæta fangelsi í 21 mánuði. Gæsluvarðhald sem ákærði hafði sætt var látið dragast frá refsingunni. Þá var ákærða gert að greiða aðra af þeim einkaréttarkröfum sem voru gerðar í málinu en hinni var vísað frá dómi. Þá voru gerð upptæk fíkniefni til ríkissjóðs. Áréttuð ævilöng ökuréttarsvipting ákærða.
Lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu (
Lína Ágústsdóttir aðstoðarsaksóknari)
gegn
Sigurði Ingólfssyni, Wojciech Narcyz Muszynski og Rakel Patriciu Heimisdóttur (
Snorri Sturluson lögmaður)
Ákærðu sakfelld fyrir hegningarlagabrot, gripdeild og þjófnaðarbrot, og gert að sæta fangelsi í 30 daga, skilorðsbundið.
Lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu (
Lína Ágústsdóttir aðstoðarsaksóknari)
gegn
X (
Snorri Sturluson lögmaður)
Ákærði sakfelldur fyrir gripdeild en ekki gerð sérstök refsing í málinu.
D var sakfelldur í héraði fyrir fíkniefna- og vopnalagabrot, þjófnaði, hótanir, brot gegn lögreglulögum, gripdeild og eignaspjöll. Eldri skilorðsdómur var tekinn upp og D gerð refsing í einu lagi auk þess sem honum var dæmdur hegningarauki. Var refsing D ákveðin fangelsi í átta mánuði en þar af var fullnustu fimm mánaða af refsivist hans frestað skilorðsbundið í tvö ár. Þá voru nánar tilgreindir munir gerðir upptækir og D dæmdur til greiðslu skaðabóta. D áfrýjaði héraðsdómi í því skyni að fá refsinguna mildaða og bundna skilorði að öllu leyti. Með dómi Landsréttar var hinn áfrýjaði dómur staðfestur.
Lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu (
Sonja H. Berndsen aðstoðarsaksóknari)
gegn
Sigursteini Pétri Steinarssyni (
Stefán Karl Kristjánsson lögmaður)
Ákærði var dæmdur í 17 mánaða fangelsi fyrir ýmis hegnignar- og sérrefsilagabrot.