Fara í efni

Dómstólaleit

Leit í dómum íslenskra dómstóla

Héraðsdómur Reykjaness

Mál nr. S-1826/2021:

Ákæruvaldið

(Sigurður Ólafsson aðstoðarsaksóknari)

gegn

Adrian Prieto Rodriguez

(Þorgils Þorgilsson lögmaður)

Fangelsi. Hættubrot. Játningarmál. Skilorð. Svipting ökuréttar.

Ákærði sakfelldur fyrir hegningar-, umferðar- og lögreglulagabrot.

Dómur

Mál þetta, sem dómtekið var 10. febrúar 2022, höfðaði héraðssaksóknari með ákæru 9. september 2021 á hendur ákærða, Adrian Prieto Rodriguez, kt. 000000-0000, [...]; „fyrir hegningar-, umferðar- og lögreglulagabrot, með því að hafa aðfaranótt laugardagsins 6. júní 2020 í Reykjavík ekið bifreiðinni [...] sviptur ökurétti, án nægjanlegrar tillitssemi og varúðar og án þess að gefa stefnumerki eða hlýða fyrirmælum lögreglu um að stöðva bifreiðina frá bifreiðastæði Aktu-Taktu og áleiðis vestur Skúlagötu, suður Frakkastíg og gegn einstefnu áleiðis austur Lindargötu, þar sem hann ók gegn akstursstefnu annarrar bifreiðar sem þurfti að stöðva til að forða árekstri, og áfram áleiðis suður Vitastíg, austur Bergþórugötu og suður Barónsstíg, gegn rauðu ljósi á gatnamótum Barónsstígur/Eiríksgata og með allt að 100 km hraða á klst., þar sem leyfður hámarkhraði var 30 km á klst., að gatamótum Barónsstígur/Laufásvegur þar sem lögregla missti sjónar á honum, en með akstri sínum raskaði ákærði umferðaröryggi í alfaraleið.

Telst þetta varða við 1. mgr. 168. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940, 1. mgr. 4. gr., 1. mgr. 7. gr., 3. mgr. 7. gr., 6. mgr. 7. gr., 2. mgr., sbr. 3. mgr., 33. gr., 5. mgr., sbr. 1. mgr., 37. gr. og 1. mgr. 58. gr., allt sbr. 94. gr. og 95. gr. umferðarlaga nr. 77/2019 og 19. gr., sbr. 44. gr., lögreglulaga nr. 90/1996 Þess er krafist að ákærði verði dæmdur til refsingar, greiðslu alls sakarkostnaðar og til að sæta sviptingu ökuréttar samkvæmt 99. gr. umferðarlaga nr. 77/2019.“

Ákærði krefst þess í málinu að honum verði gerð sú vægasta refsing sem lög leyfa. Þá krefst verjandi ákærða hæfilegrar þóknunar sér til handa vegna verjandastarfans.

Farið var með mál þetta samkvæmt 164. gr. laga nr. 88/2008 um meðferð sakamála og var það tekið til dóms án frekari sönnunarfærslu er sækjanda og verjanda ákærða hafði verið gefinn kostur á að tjá sig um lagaatriði máls og ákvörðun viðurlaga.

Ákærði mætti við þingfestingu málsins 10. febrúar sl. og játaði brot sín án undandráttar. Játning hans fær stoð í framlögðum gögnum. Samkvæmt því þykir sannað að ákærði hafi gerst sekur um þá háttsemi sem honum er gefin að sök í ákæru og þar er réttilega heimfærð til refsiákvæða.

Ákærði er fæddur í apríl 1984. Samkvæmt sakavottorði ákærða gekkst hann undir tvær sektargerðir hjá lögreglu 2. mars 2020 fyrir brot gegn 1. sbr. 3. mgr. 49. gr. umferðarlaga og 1. sbr. 2. mgr. 45. gr. og 1. mgr. 71. gr. eldri umferðarlaga og var honum gert að greiða samtals 290.000 króna sekt og að sæta sviptingu ökuréttar í alls 13 mánuði frá 2. mars 2020 að telja.

Ákærða til málsbóta horfir skýlaus játning hans bæði á rannsóknarstigi málsins og fyrir dómi. Fyrir dómi var af hálfu ákærða lýst [...] í umrætt sinn. Á hinn bóginn er óhjákvæmilegt að horfa til þess að ákærði ók, sviptur ökurétti, án nægjanlegrar tillitssemi og varúðar, meðal annars um íbúðargötur og að ákærði sinnti ekki fyrirmælum lögreglu um að stöðva bifreiðina. Samkvæmt þessu og að atvikum máls að öðru leyti virtum þykir refsing ákærða, sbr. 1., 3., 5. og 6. tölulið 1. mgr. 70. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940, réttilega ákveðin fangelsi í tvo mánuði. Eftir atvikum þykir mega fresta fullnustu refsingarinnar og skal hún falla niður að liðnum tveimur árum frá birtingu dóms þessa að telja, haldi ákærði almennt skilorð 57. gr. almennra hegningarlaga. Ákærði verður sviptur ökurétti í 6 mánuði frá birtingu dómsins að telja. Loks verður ákærða gert að greiða þóknun skipaðs verjanda síns, Þorgils Þorgilssonar lögmanns, 111.600 krónur að virðisaukaskatti meðtöldum. Annan sakarkostnað leiddi ekki af rannsókn málsins.

Dóm þennan kveður upp Erna Björt Árnadóttir aðstoðarmaður dómara.

Dómsorð:

Ákærði Adrian Prieto Rodriguez, sæti fangelsi í tvo mánuði. Fullnustu refsingarinnar skal frestað og niður skal hún falla að liðnum tveimur árum frá birtingu dóms þessa að telja, haldi ákærði almennt skilorð 57. gr. laga nr. 19/1940.

Ákærði er sviptur ökurétti í 6 mánuði frá birtingu dómsins að telja.

Ákærði greiði 111.600 króna þóknun skipaðs verjanda síns, Þorgils Þorgilssonar lögmanns að meðtöldum virðisaukaskatti.

Erna Björt Árnadóttir

Heimildaskrá

Lagaskrá

Lög nr. 19/1940 Almenn hegningarlög 57. gr.1. mgr. 70. gr.1. mgr. 168. gr.
Lög nr. 90/1996 Lögreglulög 19. gr.44. gr.
Lög nr. 88/2008 Lög um meðferð sakamála 164. gr.
Lög nr. 77/2019 Umferðarlög 1. mgr. 4. gr.1. mgr. 7. gr.3. mgr. 7. gr.6. mgr. 7. gr.33. gr.37. gr.2. mgr. 45. gr.3. mgr. 49. gr.1. mgr. 58. gr.1. mgr. 71. gr.94. gr.95. gr.99. gr.