Fara í efni

Dómstólaleit

Leit í dómum íslenskra dómstóla

Leita í öllum dómstólum...

Niðurstöður

4 dómar fundust

Lykilorð: Þvingunarráðstafanir

Héraðsdómur Reykjavíkur birt 22. desember 2022

E-2343/2022

A (Ómar R. Valdimarsson lögmaður) gegn íslenska ríkinu (Erna Hjaltested lögmaður)
Málaflokkur: Umferðarlagabrot

Stefnandi gerði kröfu á hendur stefnda íslenska ríkinu um miskabætur eftir að fellt var niður mál á hendur stefnanda fyrir akstur án ökuréttinda þar sem stefnandi þótti geta sýnt fram á það eftir á að hann hefði haft í gildi ökuréttindi frá Bandaríkjunum þegar afskipti lögreglu af honum áttu sér stað. Var fallist á með stefnda að afskipti lögreglu féllu ekki undir aðgerðir samkvæmt IX.XIV. kafla laga nr. 88/2008 sem stefnandi byggði á, né heldur að sýnt væri fram á miska, sbr. b-lið 1. mgr. 26. gr. skaðabótalaga nr. 50/1993. Var stefndi því sýknaður af dómkröfum stefnanda í málinu.

Héraðsdómur Reykjavíkur birt 12. október 2022

E-264/2022

A (Bjarni Þór Sigurbjörnsson lögmaður) gegn íslenska ríkinu (Ólafur Helgi Árnason lögmaður)

Stefnandi hafði sætt vissum þvingunaraðgerðum af lögreglu árið 2018. Í málinu fór hún fram á miskabætur úr hendi stefnda af þessum sökum. Stefnandi var sjálf talin hafa stuðlað að þeim aðgerðum sem hún sætti. Var stefndi sýknaður af kröfum stefnanda.

Héraðsdómur Reykjavíkur birt 2. júní 2022

E-4024/2021

A (Ólafur Valur Guðjónsson lögmaður) gegn íslenska ríkinu (Ásta Sóllilja Sigurbjörnsdóttir lögmaður)

Fallist var á að stefnandi ætti rétt til miskabóta úr hendi íslenska ríkisins vegna umfangsmikilla rannsóknaraðgerða og þvingunarráðstafana á hlutlægum bótagrundvelli, en ekki var fallist á sök sem bótagrundvöll í málinu. Þá var stefnandi ekki talinn hafa sýnt fram á orsakatengsl milli aðgerða lögreglu og fjártjóns vegna atvinnumissis og var skaðabótakröfu hans því hafnað. Fallist var á að stefnandi ætti rétt til miskabóta úr hendi íslenska ríkisins vegna umfangsmikilla rannsóknaraðgerða og þvingunarráðstafana á hlutlægum bótagrundvelli, en ekki var fallist á sök sem bótagrundvöll í málinu. Þá var stefnandi ekki talinn hafa sýnt fram á orsakatengsl milli aðgerða lögreglu og fjártjóns vegna atvinnumissis og var skaðabótakröfu hans því hafnað.