Fara í efni

Dómstólaleit

Leit í dómum íslenskra dómstóla

Leita í öllum dómstólum...

Niðurstöður

3 dómar fundust

Lykilorð: Rannsóknaraðgerðir

Héraðsdómur Reykjavíkur birt 12. júlí 2022

S-4574/2021

Ákæruvaldið (Kristín Ingileifsdóttir saksóknari) gegn X (Inga Lillý Brynjólfsdóttir lögmaður), Y (Vilhjálmur Hans Vilhjálmsson lögmaður), Z (Arnar Heimir Lárusson lögmaður), Þ (Arnar Kormákur Friðriksson lögmaður), Æ (Ómar Örn Bjarnþórsson lögmaður), Ö (Sveinn Andri Sveinsson lögmaður) og og XX (Þyrí Halla Steingrímsdóttir lögmaður)
Málaflokkur: Fíkniefnamál

Sakfellt fyrir stórfellt fíkniefnalagabrot sem laut að vörslum og framleiðslu fíkniefna í sölu- og dreifingarskyni. Einnig sakfellt og sýknað að hluta af ákæru um peningaþvætti. Frávísunarkröfum hafnað. Fíkniefni og búnaður til framleiðslu fíkniefna gerður upptækur. Fjármunir voru að hluta gerðir upptækir en að hluta var upptökukröfum hafnað. Sakarkostnaður var að hluta felldur á ákærðu og hluta á ríkissjóð.

Héraðsdómur Reykjavíkur birt 2. júní 2022

E-4024/2021

A (Ólafur Valur Guðjónsson lögmaður) gegn íslenska ríkinu (Ásta Sóllilja Sigurbjörnsdóttir lögmaður)

Fallist var á að stefnandi ætti rétt til miskabóta úr hendi íslenska ríkisins vegna umfangsmikilla rannsóknaraðgerða og þvingunarráðstafana á hlutlægum bótagrundvelli, en ekki var fallist á sök sem bótagrundvöll í málinu. Þá var stefnandi ekki talinn hafa sýnt fram á orsakatengsl milli aðgerða lögreglu og fjártjóns vegna atvinnumissis og var skaðabótakröfu hans því hafnað. Fallist var á að stefnandi ætti rétt til miskabóta úr hendi íslenska ríkisins vegna umfangsmikilla rannsóknaraðgerða og þvingunarráðstafana á hlutlægum bótagrundvelli, en ekki var fallist á sök sem bótagrundvöll í málinu. Þá var stefnandi ekki talinn hafa sýnt fram á orsakatengsl milli aðgerða lögreglu og fjártjóns vegna atvinnumissis og var skaðabótakröfu hans því hafnað.

Héraðsdómur Reykjavíkur birt 20. október 2020

E-1081/2020

Kristján Viðar Júlíusson (Arnar Þór Stefánsson lögmaður) gegn íslenska ríkinu (Andri Árnason lögmaður)

Stefndi er sýknaður af öllum kröfum stefnanda þar sem stefnandi á ekki lögvarinn rétt til skaðabóta vegna atvika þeirra er áttu sér stað á tímabilinu 23. desember 1975 og þar til reynslulausn hans lauk.