Leita í öllum dómstólum...
Niðurstöður
4 dómar fundust
Lykilorð: Sjóslys
Sunnudaginn 10. september 2023 varð nær árekstur milli gámaflutningaskipsins VERA D og farþegaskipsins ARCTIC ROSE á Engeyjarsundi og hlaust umtalsvert tjón þegar gámaskipið tók niðri á grynningum við Akureyjarrif. Eigandi gámaskipsins og erlent vátryggingafélag höfðuðu skaðabótamál á hendur eiganda farþegaskipsins og kröfðust skaðabóta úr hans hendi. Fjölskipaður héraðsdómur féllst á að eigandi farþegaskipsins væri skaðabótaskyldur og dæmdi hann til að bæta stefnendum 1/5 hluta tjóns.
Ágreiningur um frádrátt frá bótum vegna varanlegrar örorku.
Hið stefnda tryggingarfélag var sýknað þar sem að stefnanda tókst ekki að færa sönnur á að tjón hennar vegna slyss um borð í ferju á vegum vátryggingartaka, þegar hún féll á milli þilfara þegar slinkur kom á ferjuna, væri að rekja til saknæmrar háttsemi skipstjórnarmanns eða þá vanbúnaðar um borð í ferjunni.
Viðurkennd var bótaskylda varastefnda, útgerðarmanns, vegna líkamstjóns sem stefnandi hlaut í sjóslysi, þó þannig að stefnandi bar tjón sitt sjálfur að 1/3 hluta. Vátryggingafélag sem stefnt var aðallega var sýknað af dómkröfum stefnanda.