Fara í efni

Dómstólaleit

Leit í dómum íslenskra dómstóla

Héraðsdómur Reykjavíkur

Mál nr. E-1671/2018:

Friðrik Þór Steinþórsson

(Jónas Þór Jónasson lögmaður)

gegn

Verði tryggingum hf.

I.

Dómkröfur

o.fl.:

(Eva Bryndís Helgadóttir lögmaður)

Dráttarvextir. Kjarasamningur. Lífeyrisréttur. Lífeyrissjóður. Matsgerð. Örorka. Örorkubætur. Örorkumat. Sjómenn. Sjóslys. Skaðabætur. Vátrygging. Vátryggingarsamningur. Vinnuslys.

Ágreiningur um frádrátt frá bótum vegna varanlegrar örorku.

Dómkröfur o.fl.:

Mál þetta var höfðað 23. maí 2018 og dómtekið 28. febrúar 2019. Stefnandi er Friðrik Þór Steinþórsson, [...], [...]. Stefndi er Vörður tryggingar hf., Borgartúni 25, Reykjavík.

Stefnandi krefst þess að stefndi verði dæmdur til að greiða honum 28.866.081 krónu með 4,5% vöxtum samkvæmt 16. gr. skaðabótalaga nr. 50/1993 frá 12. febrúar 2016 til 2. janúar 2017, en með dráttarvöxtum samkvæmt 1. mgr. 6. gr. laga nr. 38/2001 um vexti og verðtryggingu af 17.180.256 krónum en 4,5% vöxtum af 11.685.825 krónum frá þeim degi til 16. mars 2018, en með dráttarvöxtum af 28.866.081 krónu frá þeim degi til greiðsludags. Þá er krafist málskostnaðar að skaðlausu að mati dómsins, í samræmi við þá hagsmuni sem í húfi eru og vinnu málflytjanda, og að tekið verði tillit til virðisaukaskatts á málflutningsþóknun.

Stefndi krefst sýknu af öllum kröfum stefnanda og að stefnandi verði dæmdur til greiðslu málskostnaðar, en til vara að kröfur stefnanda verði lækkaðar verulega og málskostnaður verði látinn niður falla.

II.

Málsatvik:

Stefnandi, sem er fæddur árið 1973, slasaðist 17. mars 2014 þegar hann var við störf á fiskiskipinu [...], sem hafði auðkennið [...] í skipaskrá. Heimahöfn skipsins var í Vestmannaeyjum. Stefnandi varð óvinnufær eftir slysið og leitaði sér læknis aðstoðar og sjúkraþjálfunar til að ná bata. Stefnandi hafði starfað mestalla sína starfsævi fram að slysinu við sjómennsku á fiskiskipum, sem háseti, matsveinn og vélarvörður, og hafði lokið hluta af námi í vélstjórn.

Stefnandi var tryggður hjá stefnda samkvæmt kjarasamningsbundinni slysa tryggingu sjómanna, sbr. 172. gr. siglingalaga nr. 34/1985, en bætur samkvæmt slysatryggingunni eru ákvarðaðar á grundvelli laga nr. 50/1993 með síðari breyt ingum.

Stefnandi naut á slysdegi réttinda hjá Lífeyrissjóði Vestmannaeyja o.fl. sam kvæmt lögum nr. 129/1997 um skyldutryggingu lífeyrisréttinda og starfsemi lífeyris sjóða, sbr. síðari breytingar.

Með matsgerð Kristins Tómassonar læknis, dagsettri 21. apríl 2016, til Lífeyris sjóðs Vestmannaeyja, var lagt mat á orkutap. Samkvæmt því mati var örorka stefn anda til fyrri starfa talin vera 100% frá slysdegi til 30. apríl 2017 og var meðal annars tekið fram að stefnandi myndi ekki stunda sjómennsku framvegis.

Með sameiginlegri matsbeiðni aðila, dagsettri 4. nóvember 2015, var óskað eftir því að Björn Pétur Sigurðsson læknir og Rúrik Vatnarsson lögmaður mætu tímabundnar og varanlegar afleiðingar slyssins á grundvelli laga nr. 50/1993.

Í matsgerð Björns Péturs og Rúriks, dagsettri 25. nóvember 2016, greinir meðal annars að tímabil tímabundins atvinnutjóns samkvæmt 2. gr. laga nr. 50/1993 hafi verið metið og það talið eiga við frá slysdegi til 12. febrúar 2016, þegar stöðug leikatímapunkti var náð. Tímabil þjáninga samkvæmt 3. gr. sömu laga hafi verið metið og það talið eiga við í jafnlangan tíma. Varanlegur miski samkvæmt 4. gr. lag anna var hæfilega metinn 18 stig. Þá var varanleg örorka samkvæmt 5. gr. laga nr. 50/1993 metin 40%.

Með bréfi til stefnda 2. desember 2016 krafðist stefnandi uppgjörs bóta fyrir tímabundnar og varanlegar afleiðingar slyssins, sbr. fyrrgreinda matsgerð Björns Péturs og Rúriks frá 25. nóvember sama ár. Af því tilefni óskaði stefndi eftir útreikningi tryggingastærðfræðings á eingreiðsluverðmæti bótagreiðslna frá lífeyris sjóðum til stefnanda vegna slyssins, sbr. 4. mgr. 5. gr. laga nr. 50/1993 með síðari breytingum.

Samkvæmt   útreikningum   tryggingastærðfræðingsins,   dagsettum   9.   febrúar 2017, var eingreiðsluverðmæti bótagreiðslna frá lífeyrissjóðum frá fyrrgreindu tíma marki stöðugleikatímapunkts til 67 ára aldurs stefnanda metið 20.101.601 króna miðað við 50% örorku og 37.281.858 krónur miðað við 100% örorku.

Stefnandi leitaði til Hjartar Kristjánssonar, læknis við Heilbrigðisstofnun Suður lands í Vestmannaeyjum. Í vottorði læknisins til Lífeyrissjóðs Vestmannaeyja, dag settu 8. mars 2017, greindi meðal annars að stefnandi teldist vinnufær til almennra starfa frá og með dagsetningu vottorðsins en hann væri hins vegar óvinnufær til að starfa á sjó og til erfiðisvinnu.

Með matsgerð Kristins Tómassonar, læknis, dagsettri 23. mars 2017, til Líf eyrissjóðs Vestmannaeyja, þar sem vísað var til fyrrgreinds læknisvottorðs, var orkutap stefnanda endurmetið. Í þeirri matsgerð var lagt til grundvallar að örorka stefnanda til fyrri sjómannsstarfa og erfiðisstarfa væri 100% og að hún væri varan leg frá 17. mars 2014 að telja. Örorka til annarra almennra starfa væri hins vegar minni en 40%.

Að   þessu   virtu   miðaði   lífeyrissjóðurinn   við   að   örorkulífeyrisgreiðslur   frá sjóðnum til stefnda féllu niður frá þeim tíma, sbr. grein 12.1 í samþykktum lífeyris sjóðsins um lágmarksréttindi og fleira.

Bótatilboð stefnda var sent til lögmanns stefnanda með tölvuskeyti 6. apríl 2017. Tilboðið var sett fram með fyrirvara, og þá sérstaklega varðandi eingreiðslu verðmæti   örorkulífeyris   frá   lífeyrissjóðnum   samkvæmt   4.   mgr.   5.   gr.   laga   nr. 50/1993.   Í   því   tilboði   var   miðað   við   að   stefnandi   fengi   50%   áframhaldandi örorkumat hjá lífeyrissjóðnum. Að sögn stefnda gerði hann þetta í sáttatilgangi enda hefði legið fyrir að stefnandi væri metinn til 100% tímabundinnar örorku hjá lífeyrissjóðnum   á   stöðugleikatímapunkti   12.   febrúar   2016   og   að   útreikningur tryggingastærðfræðingsins hefði tekið mið af því. Vísað var til hins sameiginlega örorkumats um langan starfsferil stefnanda á sjó og að hann hefði tjáð sig um það á matsfundi að hann ætti erfitt með að sjá atvinnumöguleika sína á öðrum sviðum. Þá benti stefndi á að fram kæmi í örorkumatinu að einkenni stefnanda í kjölfar slyssins myndu há honum að einhverju marki við léttari störf þrátt fyrir að þau reyndu ekki jafn mikið á líkamlega burði. Að því virtu teldi stefndi að allar líkur væru á því að stefnandi yrði metinn hið minnsta til 50% lágmarksörorku hjá lífeyrissjóðnum og að hann myndi í framtíðinni þiggja greiðslur þaðan. Kæmi hins vegar annað í ljós, til dæmis að stefnandi yrði áfram að fullu óvinnufær, þá áskildi stefndi sér allan rétt til að endurskoða frádráttinn til hækkunar.

Lögmaður stefnanda óskaði eftir því við stefnda 7. apríl 2017 að félagið uppfærði bótatilboð sitt miðað við fyrrgreindar niðurstöður lífeyrissjóðsins 23. mars sama ár um að örorkulífeyrisgreiðslur féllu niður. Með svari stefnda 25. apríl 2017 var beiðninni hafnað en fyrra bótatilboð áréttað. Í svarinu var lagt til grund vallar að miða ætti við stöðu tjónþola á stöðugleikatímapunkti þegar kæmi til frádráttar á grundvelli 4. mgr. 5. gr. laga nr. 50/1993 vegna eingreiðsluverðmætis örorkulífeyris frá lífeyrissjóði. Með þessu væri miðað við sama tímamark og ætti við um varanlega örorku. Hið sama ætti við þótt fyrir lægi að frekari greiðslur myndu ekki berast að svo stöddu. Önnur niðurstaða væri í andstöðu við markmið laga nr. 50/1993 um endanlegt uppgjör og var vísað til nánar tilgreindra dóma Hæstaréttar Íslands. Þessu til viðbótar var tekið fram að stefndi teldi að það væri stefnanda   í   hag   að   í   bótauppgjöri   yrði   ekki   miðað   við   100%   greiðslur   úr lífeyrissjóði til framtíðar, eins og hugsanlega væri rétt að gera, og stefndi myndi gera fyrirvara um í uppgjöri aðila. Þá ítrekaði stefndi fyrra bótatilboð sitt en taldi rétt að ágreiningur um hvort frádráttur vegna eingreiðsluverðmætis örorkulífeyris væri réttmætur mynda fara fyrir dómstóla svo skýrt fordæmi fengist fyrir því hvort síðari breyting á bótarétti tjónþola hjá lífeyrissjóði gæti breytt forsendum uppgjörs.

Aðilar náðu ekki saman um framangreindan ágreining. Fullnaðaruppgjör sam kvæmt lögum nr. 50/1993 fór fram 4. maí 2017 á grundvelli hinnar sameiginlegu matsgerðar Björns Péturs og Rúriks, dagsettrar 25. nóvember 2016. Uppgjörið var með fyrirvara næðist ekki samkomulag um bætur. Í bótauppgjörinu var meðal annars lagt til grundvallar að frádráttur yrði frá bótum stefnanda fyrir varanlega örorku miðað við að hann fengi 50% örorkulífeyrisgreiðslur frá apríl 2017 og þar til hann næði 67 ára aldri. Nánar tiltekið nam frádrag stefnda frá bótum stefnanda vegna örorkulífeyrisgreiðslna samtals 20.101.601 krónu, þar af 2.921.345 krónum vegna slíkra greiðslna sem stefnandi fékk frá stöðugleikatímapunkti til og með mars 2017, sem ekki var ágreiningur um. Því til viðbótar var hins vegar miðað við að hann sætti frádragi að fjárhæð 17.180.256 krónur vegna tímabilsins frá apríl 2017 til 67 ára aldurs stefnanda. Stefnandi tók á móti bótagreiðslu stefnda með nokkrum fyrirvörum af hans hálfu sem skráðir voru á fylgiskjali með kvittun um fullnaðaruppgjör. Fyrirvararnir voru meðal annars um lögmæti fyrrgreinds frá dráttar vegna greiðslna frá lífeyrissjóði frá apríl 2017 til 67 ára aldurs og einnig um hugsanlegan rétt hans til frekari bóta yrði varanleg örorka eða miski síðar metinn hærri en samkvæmt fyrrgreindri matsgerð.

Í   framhaldi   af   bótauppgjörinu   óskaði   stefnandi   eftir   mati   dómkvaddra matsmanna á afleiðingum slyssins með tilliti til varanlegs miska og varanlegrar örorku, sbr. 4. og 5. gr. laga nr. 50/1993 með síðari breytingum. Í matsgerð dómkvaddra   matsmanna,   Ágústs   Kárasonar   bæklunarlæknis   og   Sigurðar   B. Halldórssonar lögmanns, dagsettri 12. febrúar 2018, voru niðurstöður matsgerðar Björns Péturs og Rúriks um varanlegan miska og stöðugleikatímapunkt stefnanda óbreyttar. Varanleg örorka hans var hins vegar metin 50% og þar með hækkuð um 10% frá því sem var í hinni fyrri matsgerð. Með tölvuskeyti til stefnda 16. sama mánaðar krafðist lögmaður stefnanda greiðslu á frekari skaðabótum til stefnanda að fjárhæð 11.685.825 krónur, auk vaxta og kostnaðar, á þeim grundvelli að varanleg örorka væri 10% hærri en miðað hefði verið við í fyrrgreindu bótauppgjöri. Þá var áréttað að hluti bóta fyrir varanlega örorku samkvæmt fyrri matsgerð væri enn ógreiddur. Viðbótarkröfunni var hafnað með tölvuskeyti stefnda 20. mars sama ár. Í því skeyti var áréttað að félagið teldi rétt að miða frádrátt samkvæmt 4. mgr. 5. gr. laga nr. 50/1993 við stöðu tjónþola á stöðugleikatímapunkti. Vísað var til þess að stefn andi hefði verið algjörlega óvinnufær frá slysdegi og ekki verið á vinnumarkaði frá þeim degi. Við fyrra uppgjör hefði félagið ákveðið að miða einungis við 50% greiðslur frá lífeyrissjóði til frambúðar í stað 100%, sem félagið hefði áskilið sér að endurskoða   ef   stefnandi   yrði   áfram   óvinnufær.   Þá   var   vísað   til   niðurstöðu dómkvaddra matsmanna þar sem fram kæmi að stefnandi hefði ekki stundað neina launaða vinnu eftir slysið og að hann hefði upplýst að öll störf sem tengdust menntun hans væru líkamlega krefjandi. Dómkvaddir matsmenn hefðu því hækkað varanlega örorku hans úr 40% í 50%. Teldi stefndi því að að miða ætti frádrátt við 100% greiðslur úr lífeyrissjóði til 67 ára aldurs enda hefði félagið áskilið sér rétt til að endurskoða frádrátt á síðari stigum. Þá taldi stefndi, miðað við þessar forsendur, að félagið væri búið að ofgreiða stefnanda 5.494.432 krónur og að þessu virtu hafnaði félagið frekari bótagreiðslum vegna slyssins.

III.

Helstu málsástæður og lagarök stefnanda:

Stefnandi gerir í málinu kröfu á hendur stefnda um greiðslu eftirstöðva bóta fyrir varanlega örorku úr slysatryggingu sjómanna vegna afleiðinga sjóvinnuslyss 17.   mars   2014.   Stefnandi   tekur   fram   að   í   málinu   sé   hvorki   ágreiningur   um bótaskyldu stefnda né niðurstöðu matsgerðar dómkvaddra matsmanna um 50% varanlega örorku vegna afleiðinga slyssins. Þá sé heldur ekki deilt um útreikning á bótum til hans fyrir varanlega örorku. Ágreiningurinn taki hins vegar til þess hvort heimild sé fyrir frádragi samkvæmt 4. mgr. 5. gr. laga nr. 50/1993 frá bótum stefnanda fyrir varanlega örorku. Nánar tiltekið snýst ágreiningurinn um það hvort slík heimild sé fyrir hendi eftir mars 2017 með tilliti til endurmats Lífeyrissjóðs Vestmannaeyja á örorku stefnanda til almennra starfa sem leitt hafi til þess að stefnandi átti ekki lengur rétt á örorkulífeyrisgreiðslum frá sjóðnum samkvæmt sam þykktum hans.

Stefnandi tekur fram að við uppgjör bóta samkvæmt fyrri matsgerð hafi stefnda verið heimilt að draga fjárhæð frá bótum stefnanda fyrir varanlega örorku sem nemi 40% af reiknuðu eingreiðsluverðmæti örorkulífeyrissjóðsgreiðslna stefnanda frá stöðugleikatímapunkti fram í mars 2017. Frá þeim tíma hafi þær greiðslur hins vegar fallið niður. Frekara frádrag eftir þann tíma hafi því verið óheimilt þar sem stefnandi njóti ekki lengur fyrrgreinds örorkulífeyrisréttar. Að mati stefnanda hljóti það að vera forsenda fyrir slíku frádragi að hann eigi rétt til slíkra greiðslna. Að því virtu   eigi   viðbótarfrádrag   stefnda   ekki   rétt   á   sér   og   afstaða   hans   til   þess   sé fjarstæðukennd og standist ekki skoðun. Þá hafi dómar sem stefndi vísi til ekki fordæmisgildi þar sem málsatvik séu ósambærileg.

Stefnandi vísar til þess að við uppgjör bóta samkvæmt matsgerð, dagsettri 25. nóvember 2016, hafi stefndi að ósekju haldið eftir 17.180.256 krónum þar sem hann hafi talið að heimilt væri að draga frá bótum stefnanda fjárhæð sem næmi 40% af reiknuðu eingreiðsluverðmæti miðað við 50% örorkulífeyrisgreiðslur til stefnanda,   vegna   tímabilsins   frá   apríl   2017   uns   stefnandi   næði   67   ára   aldri. Niðurstaða dómkvaddra matsmanna hefði svo leitt til viðbótarbótaréttar stefnanda að   fjárhæð   11.685.825   krónur   vegna   hækkunar   á   varanlegri   örorku.   Eftir   að stefnandi hafi krafið stefnda um þá fjárhæð hafi stefndi breytt afstöðu sinni til frádrags og talið sér heimilt að miða við 100% örorkulífeyrisgreiðslur í stað 50% áður. Stefndi hafi því talið sér heimilt að draga 34.360.512 krónur frá bótum stefnanda fyrir varanlega örorku, vegna tímabilsins frá apríl 2017 til 67 ára aldurs hans. Að því virtu hefði stefndi hafnað kröfu stefnanda um greiðslu viðbótarbóta og lagt til grundvallar að hann hefði ofgreitt honum bætur fyrir varanlega örorku að fjárhæð 5.494.432 krónur.

Stefnandi byggir á því að augljóst sé að viðbótarfrádrag stefnda sé óheimilt samkvæmt lögum nr. 50/1993, einkum miðað við gagnályktun frá 4. mgr. 5. gr. laganna. Þá telur stefnandi að afstaða stefnda fái ekki samrýmst reglum kröfuréttar, meðal annars um óréttmæta auðgun, né heldur skilmálum gildandi vátryggingar. Telur stefnandi að engin stoð sé fyrir þeirri lögskýringu stefnda að fái tjónþoli greiddan tímabundinn örorkulífeyri frá lífeyrissjóði á stöðugleikatímapunkti þá leiði það til þess að heimilt sé að miða við að áframhald verði á lífeyrisgreiðslum til 67 ára aldurs, og jafnvel þó að það liggi fyrir að svo sé ekki í raun og veru. Hug lægt mat stefnda geti ekki ráðið því hversu háa fjárhæð honum sé heimilt að draga frá lögmætum bótakröfum stefnanda. Þessu til viðbótar byggir stefnandi á því, fallist dómstólar á það að viðbótarfrádragið sé heimilt, að stefndi sé engu að síður bundinn af bótauppgjöri sínu 4. maí 2017, enda hafi hann ekki gert fyrirvara í uppgjörinu um að frádragið skyldi vera hærra.

Stefnandi tekur fram að samkvæmt framangreindu sé höfuðstóll bótakröfu hans í máli þessu 28.866.081 króna og beri krafan 4,5% vexti frá stöðugleikatímapunkti 12. febrúar 2016, en dráttarvexti af 17.180.256 krónum frá 2. janúar 2017, þegar mánuður var liðinn frá því að bótakrafa var gerð á grundvelli fyrra matsins, og af 28.866.081 krónu frá 16. mars 2018, þegar mánuður var liðinn frá því að stefnda var send bótakrafa á grundvelli matsgerðar dómkvaddra matsmanna.

Um málskostnaðarkröfu vísar stefnandi til XXI. kafla laga nr. 91/1991 um með ferð einkamála. Í því sambandi tekur hann fram að sérstaklega eigi að líta til 131. gr. þeirra laga þar sem hann telji að varnir stefnda séu fráleitar. Þá vísar stefnandi til laga nr. 50/1988 um virðisaukaskatt varðandi málflutningsþóknun. Um lagarök að öðru leyti vísar stefnandi til ákvæða laga nr. 50/1993 með síðari breytingum, auk skilmála slysatryggingar sjómanna hjá stefndu. Einnig vísar stefnandi til laga nr. 30/2004 um vátryggingarsamninga og dómafordæma Hæstaréttar Íslands án frekari tilgreiningar.   Þessu   til   viðbótar,   að   því   er   varðar   vexti   og   dráttarvexti,   vísar stefnandi til laga nr. 38/2001 og laga nr. 50/1993.

Helstu málsástæður og lagarök stefnda:

Stefndi tekur fram að ágreiningur aðila afmarkist við það hvort heimilt sé að draga frá greiðslu vegna varanlegrar örorku stefnanda áætlaðar örorkulífeyrisgreiðslur frá lífeyrissjóðum, sbr. 4. mgr. 5. gr. laga nr. 50/1993. Stefndi reisir sýknukröfu á því að stefnandi hafi fengið að fullu greitt tjón vegna varanlegrar örorku í umræddu slysi.

Nánar tiltekið varðandi sýknukröfu vísar stefndi til þess að samkvæmt 1. mgr. 5.   gr.   laga   nr.   50/1993   skuli   greiða   skaðabætur   fyrir   varanlega   örorku,   valdi líkamstjón, þegar heilsufar tjónþola er orðið stöðugt, varanlegri skerðingu á getu til að afla vinnutekna. Um sé að ræða bætur sem greiddar séu fyrir líkindatjón fram í tímann.   Við   tímamark   á   mati   tjónsins   sé   tekið   mið   af   ástandi   tjónþola   á stöðugleikatímapunkti en þá sé heilbrigðisástand tjónþola orðið stöðugt að mati matsmanna sem leggi mat á varanlegar afleiðingar slyss. Í tilfelli stefnanda hafi stöðugleikatímapunktur verið ákveðinn 12. febrúar 2016 samkvæmt niðurstöðu matsgerðar Björns Péturs Sigurðssonar læknis og Rúriks Vatnarssonar lögmanns, dagsettri 25. nóvember sama ár. Þá sé ekki ágreiningur hjá aðilum um tímamark stöðugleikatímapunktsins.   Mat   á   varanlegum   afleiðingum   slyss   miðist   við stöðuleikatímapunkt, þegar fyrir liggi samkvæmt læknisfræðilegu mati að ekki verði að vænta frekari bata á heilsufari tjónþola í kjölfar slyss. Þann 12. febrúar 2016 hafi því ekki verið að vænta frekari bata á heilsu stefnanda og læknisfræðilegt mat og bótauppgjör hafi því samkvæmt lögum nr. 50/1993 átt að taka mið af stöðu stefnanda á þeim degi.

Á stöðugleikatímapunkti, 12. febrúar 2016, hafi stefnandi verið metinn til 100% örorku til fyrri starfa af matslækni á vegum Lífeyrissjóðs Vestmannaeyja. Samkvæmt mati Kristins Tómassonar læknis sé orkutap stefnanda til fyrri starfa 100% frá slysdegi 17. mars 2014 til 30. apríl 2017. Fyrir liggi, og sé í reynd óumdeilt,   að   stefnandi   hafi   á   stöðugleikatímapunkti   átt   rétt   á   mánaðarlegum greiðslum úr lífeyrissjóði vegna slyssins. Þegar að bótauppgjöri hafi komið hafi því bæði verið eðlilegt og það samrýmst ákvæðum skaðabótalaga að þær greiðslur yrðu færðar   til   eingreiðsluverðmætis   svo   unnt   væri   að   draga   þær   fjárhæðir   frá skaðabótakröfu. Niðurstaða tryggingastærðfræðings sé óumdeild og stefnandi hafi ekki bent á neina annmarka á þeim útreikningum sem ættu að leiða til þess að ekki væri unnt að leggja útreikningana til grundvallar bótauppgjöri vegna slyssins.

Stefndi tekur fram að hann byggi á því að frádrátt vegna lífeyrisgreiðslna sam kvæmt 4. mgr. 5. gr. laga nr. 50/1993 eigi að miða við það tímamark þegar heilsa stefnanda hafi verið orðin stöðug, sem sé sama tímamark og gildi um 1. mgr. 5. gr. laganna. Óumdeilt sé að stöðugleikatímapunktur stefnanda hafi samkvæmt mati verið miðaður við 12. febrúar 2016. Stefnda hafi því borið að miða frádrátt vegna greiðslna frá lífeyrissjóði við það tímamark sem samkvæmt markmiði laga nr. 50/1993 ætti að vera endanlegt. Ekkert í lögum nr. 50/1993 bendi til þess að miða eigi frádrátt samkvæmt ákvæðinu við annað tímamark en mælt sé fyrir um í 1. mgr. 5. gr. laganna. Stefndi tekur fram að ef túlkun og málatilbúnaður stefnanda yrði ofan á þá myndi það leiða til mikillar réttaróvissu enda sé þá sá möguleiki fyrir hendi   að   bótauppgjör   verði   aldrei   endanlegt   þar   sem   bæði   tjónþolar   og vátryggingafélög gætu, þegar þannig stæði á, breytt forsendum uppgjörsins eftir á vegna þess að greiðslur frá lífeyrissjóði og almannatryggingum hefðu breyst til ýmist lækkunar eða hækkunar. Stefndi telur að sú tilhögun geti ekki gengið þegar litið sé til eðlis skaðabótauppgjörs og markmiða með lögum nr. 50/1993.

Stefndi vísar til þess að samkvæmt dómafordæmum Hæstaréttar beri að miða framtíðarfrádrátt vegna greiðslna af félagslegum toga við stöðugleikatímapunkt. Eins og með varanlega örorku byggist frádráttur samkvæmt fyrrnefndri 4. mgr. 5. gr. laga nr. 50/1993 á líkindamati og reglurnar séu hlutlægar á þann veg að samkvæmt þeim sé farið á sama hátt með alla tjónþola sem eins hátti til um. Eðli máls samkvæmt séu greiðslur úr lífeyrissjóði háðar óvissu að því leyti að örorka sé metin á nýjan leik á nokkurra mánaða fresti. Þannig hátti til með stefnanda. Óvíst sé hver verði niðurstaða matslæknis þegar núgildandi örorkumat hafi runnið sitt skeið á enda. Niðurstaða matsgerðar dómkvaddra matsmanna um 50% varanlega örorku stefnanda bendi til þess að stefnandi muni þiggja greiðslur frá lífeyrissjóði í framtíðinni þótt núgildandi mat á orkutapi leggi til grundvallar að stefnandi sé með meira en 50% vinnugetu til almennra starfa. Í þessari aðstöðu komi í reynd skýrt fram nauðsyn þess að frádráttur frá varanlegri örorku miðist við stöðugleikatímapunkt hverju sinni og niðurstöðu matsmanna um varanlega örorku. Annað myndi að mati stefnda leiða til réttaróvissu og ómöguleika við að ljúka bótauppgjöri endanlega.

Þá byggir stefndi á því að niðurstaða dómkvaddra matsmanna styðji ekki þau sjónarmið stefnanda að hann muni aldrei framar þiggja greiðslur úr lífeyrissjóði vegna slyssins. Stefndi telur að stefnandi geti ekki fullyrt þetta með fullri vissu. Skjóti það í reynd skökku við að stefnandi telji heilsufar sitt slíkt að hann hafi meira en 50% vinnugetu til almennra starfa í ljósi þess sem fram komi í niðurstöðu dómkvaddra matsmanna og gögn málsins staðreyni. Þannig greini í niðurstöðu þeirra um varanlega örorku stefnanda: Ljóst er að afleiðingar slyssins hafa haft umtalsverð áhrif á starfsgetu matsbeiðanda og hefur hann ekki stundað nein launuð störf eftir slysið. Matsmenn telja ennfremur mjög ólíklegt þegar horft er til eðli áverka, gagna málsins, viðtals við matsbeiðanda á matsfundi og skoðun að hann muni eiga afturkvæmt í sjómannsstörf. Ennfremur er starfsgeta hans til líkamlega krefjandi starfa í landi umtalsvert skert. Hann ætti þó að geta unnið við léttari almenn störf í landi, t.d. störf sem tengjast sjávarútvegi.

Stefndi tekur fram að hann telji að stefnandi geti ekki bæði haldið og sleppt. Lýsingar stefnanda á afleiðingum slyssins á matsfundi hjá dómkvöddum matsmönn um, sem séu hluti forsendna fyrir niðurstöðu þeirra um varanlega örorka stefnanda, séu í engu samhengi við það sem stefnandi hafi lýst fyrir matslækni lífeyrissjóðs þegar hann gekkst undir mat á orkutapi. Í ljósi þess að stefnandi hafi nú fullyrt að vinnugeta hans sé umtalsvert meiri en á matsfundi hjá dómkvöddum matsmönnum sé í reynd full ástæða til þess að íhuga hvort endurmeta þurfi varanlega örorku stefnanda til lækkunar.

Þessu   til   viðbótar   byggir   stefndi   á   því   að   honum   hafi   verið   heimilt,  við útreikning bóta til handa stefnanda í kjölfar niðurstöðu dómkvaddra matsmanna, að draga   frá   greiðslunni   eingreiðsluverðmæti   örorkulífeyrisgreiðslna   samkvæmt nýjum   útreikningum   og   endurskoða   fyrri   frádrátt.   Leiði   það   af   meginreglu skaðabótaréttar að stefnandi eigi ekki rétt á hærri bótum en svari raunverulegu tjóni hans, auk þeirrar meginreglu kröfuréttar að sá sem hafi ofgreitt fé eigi rétt til endurgreiðslu   þess   sem   ofgreitt   sé.   Í   þessu   sambandi   beri   að   ítreka   að   nýir útreikningar hafi farið fram vegna þess að stefnandi hafi samkvæmt niðurstöðu dómkvaddra matsmanna orðið fyrir meira tjóni en talið var við fyrra uppgjör, enda hafi varanleg örorka hans hækkað úr 40% í 50% með nýrri niðurstöðu. Hækkun á varanlegri örorku stefnanda samkvæmt niðurstöðu dómkvaddra matsmanna renni stoðum undir þau sjónarmið stefnda að allar líkur standi til þess að stefnandi muni fá greiðslur úr lífeyrissjóði vegna slyssins í framtíðinni. Stefndi byggir þar með á því að honum hafi verið heimilt að draga áætlaðar greiðslur úr lífeyrissjóði frá bótum eins og staða stefnanda var á stöðugleikatímapunkti. Ef túlkun stefnanda yrði ofar myndi það í reynd leiða til þess að hann fengi hærri bætur en svari raunverulegu tjóni hans, sem gengi í berhögg við þá meginreglu skaðabótaréttar að tjónþoli eigi einungis að fá rauntjón bætt.

Varðandi varakröfu um lækkun á stefnukröfu tekur stefndi fram að hann byggi á því að miða eigi frádrátt vegna eingreiðsluverðmætis greiðslna úr lífeyrissjóði við 50% mat á orkutapi. Í því sambandi vísar stefndi til fyrri umfjöllunar varðandi aðal kröfu stefnda að breyttu breytanda. Samkvæmt niðurstöðu tryggingastærðfræðings nemi   sá   frádráttur   20.101.601   krónu   sem   draga   eigi   frá   kröfu   stefnanda   á stöðugleikatímapunkti 12. febrúar 2016.

Þá tekur stefndi fram að verði fallist á kröfur stefnanda að hluta eða í heild þá sé því jafnframt mótmælt að krafa stefnanda eigi að bera dráttarvexti frá 2. janúar 2017, eins og krafist sé. Samkvæmt 9. gr. laga nr. 38/2001 beri skaðabótakröfur dráttarvexti að liðnum mánuði frá þeim degi er kröfuhafi lagði sannanlega fram upplýsingar sem þörf var á til að meta tjónsatvik og fjárhæð bóta. Útreikningur tryggingastærðfræðings hafi fyrst legið fyrir 9. febrúar 2017. Þá fyrst hafi stefndi haft möguleika á að reikna út fjárhæð bótatilboðs til stefnanda. Að mati stefnda séu engar forsendur til að miða við fyrra tímamark en þegar mánuður var liðinn frá því að útreikningurinn lá fyrir. Að því virtu eigi upphafstími dráttarvaxta að miðast við 9. mars 2017.

Um lagarök að öðru leyti vísar stefndi til fyrrgreindra laga auk meginreglna skaðabótaréttar. Þá tekur stefndi fram að krafa um málskostnað styðjist við 130. gr. laga nr. 91/1991 en jafnframt sé krafist álags á málskostnað sem nemi virðisauka skatti þar sem hann reki ekki virðisaukaskattsskylda starfsemi.

IV.

Niðurstöður:

Meðal markmiðs og hlutverks skaðabótareglna er að veita þeim sem verður fyrir tjóni fjárhagslega uppreisn. Hann á að verða eins settur fjárhagslega og ef tjónið hefði ekki orðið. Sömu meginreglur eiga við á sviði vátryggingaréttar. Markmið með bótum fyrir varanlega örorku er að bæta tjónþola tap á atvinnu tekjum sem hann mun að líkindum verða fyrir í framtíðinni vegna afleiðinga líkams tjóns og er um að ræða framtíðarspá. Með þessu er leitast við að vernda hagsmuni tjónþola sem felast í aflahæfi hans, það er getu hans til að afla atvinnutekna í fram tíðinni.   Skerðing   á   þessari   getu,   sem   að   líkindum   hefur   í   för   með   sér   lægri atvinnutekjur í framtíðinni, á að leiða til þess að mismunurinn bætist. Samkvæmt 1. mgr. 5. gr. laga nr. 50/1993 miðast mat á varanlegri örorku við það tímamark þegar heilsufar tjónþola er orðið stöðugt. Er í því sambandi miðað við batahvörf eða svo kallaðan stöðugleikatímapunkt en það viðmið er fyrst og fremst reist á læknisfræði legu mati á því hvenær ekki megi vænta frekari bata eða hvenær heilsufar tjónþola er orðið stöðugt. Samkvæmt 4. málsl. 4. mgr. 5. gr. sömu laga skal draga frá skaðabótakröfu vegna varanlegrar örorku 40% af reiknuðu eingreiðsluverðmæti örorkulífeyris frá lífeyrissjóði og skal við útreikninginn miðað við 4,5% árs ávöxtun. Tilgangurinn með frádráttarreglunni er að girða fyrir að tjónþoli auðgist á tjóninu vegna félagslegra greiðslna frá þriðja aðila samhliða bótagreiðslu.

Í máli þessu er ekki ágreiningur um bótaskyldu, tímamark stöðugleikatímapunkts, tölulegar forsendur við útreikninga eða varanlega örorku stefnanda samkvæmt niðurstöðu dómkvaddra matsmanna. Ágreiningurinn tekur til þess hvort frádráttur samkvæmt 4. málsl. 4. mgr. 5. gr. laga nr. 50/1993 eigi rétt á sér vegna tjóns stefnanda, eins og áður greinir. Í því ákvæði er ekki kveðið á um að miða skuli við stöðu tjónþola hjá lífeyrissjóði á stöðugleikatímapunkti andstætt því sem kveðið er á um í 1. mgr. sömu lagagreinar um mat á bótum fyrir varanlega örorku. Stefndi byggir á því að rökrétt sé að miða við sama tímamark og það fái samrýmst dómafordæmum Hæstaréttar Íslands í málum nr. 520/2002, 119/2005, 706/2009, 45/2012, 544/2012, 20/2013 og 598/2017. Í þeim dómum hefur meðal annars verið lagt til grundvallar að miða beri framtíðarfrádrátt, sbr. 4. mgr. 5. gr. laga nr. 50/1993, vegna greiðslna af félagslegum toga, við þann tíma þegar tjónþoli gat ekki vænst frekari bata og ætla út frá því hvernig mál þróist í framtíðinni sam kvæmt meðaltalslíkindareglu. Þá byggir stefndi á því að frádrátturinn eigi enn fremur rétt á sér eins og mál stefnanda hafi þróast miðað við mat á varanlegri örorku hans og þá fyrirvara sem lágu til grundvallar bótauppgjöri þeirra.

Fyrrgreindir dómar Hæstaréttar eiga það sammerkt í framangreindu tilliti að þar var verið að fjalla um greiðslur af félagslegum toga, einkum frá almannatryggingum, sem áttu sér stað á stöðugleikatímapunkti og talsverðar líkur stóðu til að myndu halda áfram í óbreyttri mynd um ókominn tíma. Í máli þessu háttar hins vegar svo til að stefnandi naut tímabundins örorkulífeyris frá Lífeyris sjóði Vestmannaeyja o.fl. eftir umrætt slys fram í mars 2017 miðað við 100% örorku til fyrra sjómannsstarfs samkvæmt örorkumati trúnaðarlæknis sjóðsins 21. apríl 2016, sbr. eldra örorkumat sama læknis 8. mars 2015. Samkvæmt grein 12.4 í samþykktum lífeyrissjóðsins var fyrrgreindum örorkulífeyri frá upphafi ætlað að vera tímabundinn til allt að þriggja ára og miðast við vanhæfni stefnanda til að gegna   fyrra   starfi   og   tók   örorkumatið   mið   af   því.   Eftir   það   tímamark   átti örorkulífeyririnn samkvæmt fyrrgreindri grein í samþykktum lífeyrissjóðsins að sæta gagngerðri endurskoðun á grundvelli nýs mats trúnaðarlæknis sjóðsins á orku tapi og miðast við vanhæfni stefnanda til að gegna almennum störfum o.fl. Lá þannig skýrt fyrir frá upphafi, samkvæmt samþykktum lífeyrissjóðsins, að 100% ör orku stefnanda, sem í hans tilviki miðaðist við sjómannsstarf, var ekki ætlað að vera viðmið hjá sjóðnum um ókominn tíma með tilliti til áframhaldandi réttar stefn anda til örorkulífeyris. Þá liggur jafnframt fyrir að réttarstaða stefnanda hjá sjóðn um til framtíðar litið var endurmetin 23. mars 2017 til samræmis við áskilnað sam kvæmt grein 12.4 í samþykktum lífeyrissjóðsins. Niðurstaða þess mats var sú að ör orkan var metin 40% til almennra starfa og leiddi það til þess að hann naut ekki lengur réttar til örorkulífeyris hjá lífeyrissjóðnum, sbr. grein 12.1 í samþykktum sjóðsins. Endurmetin réttarstaða stefnanda hjá lífeyrissjóðnum lá þannig fyrir áður en bótauppgjör gagnvart stefnda fór fram 4. maí 2017. Var því ekki um að ræða ófyrirsjáanlega breytingu eftirá í tengslum við bótauppgjörið sem var til þess fallin að ganga gegn meginmarkmiði laga nr. 50/1993 um endanlegt uppgjör skaðabóta. Hefur   ekki   þýðingu   í   þessu   sambandi   þótt   stefndi   hafi   ekki   haft   aðkomu   að endurskoðun örorkumatsins hjá lífeyrissjóðnum eða öflun gagna sem lágu því til grundvallar. Ekkert í samþykktum sjóðsins, sbr. lög nr. 129/1997, né heldur í lögum nr. 50/1993, gerði ráð fyrir aðkomu stefnda að því mati. Að framangreindu virtu getur fyrrgreind staða stefnanda hjá lífeyrissjóðnum á tímamarki stöðugleikatíma punkts ekki gefið raunhæfa mynd af því hvernig mál hans myndi þróast í fram tíðinni hjá sjóðnum samkvæmt meðaltalslíkindareglu, eins og atvikum er hér hátt að. Þessu til viðbótar er ágreiningslaust að stefnandi hefur ekki fengið greiddan örorkulífeyri frá lífeyrissjóðnum eftir mars 2017. Þá er ekkert í gögnum málsins sem bendir til þess að slík áform séu uppi eða líkleg í lögskiptum stefnanda og sjóðsins. Stefndi hefur ekki fært fram haldbær rök fyrir hinu gagnstæða. Niðurstaða dómkvaddra matsmanna, dagsett 12. febrúar 2018, um hærra örorkustig stefnanda o.fl., sem stefndi hefur ekki hlutast til um að fá hnekkt með yfirmati, breytir ekki myndinni af stöðu stefnanda í framangreindu tilliti. Stefnandi hefur langa samfellda sögu á vinnumarkaði fyrir umrætt slys samkvæmt upplýsingum úr matsgerðum. Samkvæmt gögnum úr staðgreiðsluskrá ríkisskattstjóra liggur fyrir að stefnandi var á vinnumarkaði árið 2018, eftir að niðurstaða dómkvaddra matsmanna lá fyrir. Við aðalmeðferð var upplýst af lögmanni stefnanda að þar var um að ræða starf við hafnarvörslu hjá Vestmannaeyjahöfn. Því til viðbótar var upplýst af lögmanninum að stefnandi hefði nýlega tekið við starfi yfirmanns hjá endurvinnslufyrirtækinu Kubbi í Vestmannaeyjum sem starfrækir sorphirðu og endurvinnslu í því sveitar félagi. Af þessu verður ráðið að afstaða og athafnir stefnanda, sem birtast með framangreindum hætti, standi til þess að vera með fulla þátttöku á vinnumarkaði til framtíðar litið sem taki til líkamlega léttari almennra starfa í landi. Að mati dómsins samrýmist þetta nægjanlega forsendum um ætlaða möguleika stefnanda til þátttöku á   vinnumarkaði   til   framtíðar   litið,   sem   greinir   í   örorkumati   trúnaðarlæknis lífeyrissjóðsins 23. mars 2017 og örorkumati hinna dómkvöddu matsmanna 12. febrúar   2018. Að   mati   dómsins   er   málatilbúnaður   stefnda   ekki   í   nægjanlegu samræmi við 4. mgr. 5. gr. laga nr. 50/1993 né heldur fyrrgreindar meginreglur skaðabóta- og vátryggingaréttar um fullar bætur til tjónþola fyrir tjón, eins og hér stendur á. Að öllu framangreindu virtu verður ekki fallist á með stefnda að til greina komi að miða frádrag frá bótum til stefnanda vegna varanlegrar örorku við 40% hlutfall af reiknuðu eingreiðsluverðmæti örorkulífeyris frá Lífeyrissjóði Vestmanna eyja o.fl. á stöðugleikatímapunkti miðað við 100% örorku né heldur miðað við 50% mat á orkutapi. Verður því hvorki fallist á aðalné varakröfu stefnda. Að þessu virtu verður fallist á dómkröfu stefnanda eins og hún er sett fram í stefnu um að stefnda verði gert að greiða honum 28.866.081 krónu.

Í   máli   þessu   er   einnig   uppi   ágreiningur   um   upphafstíma   dráttarvaxta samkvæmt 9. gr. laga nr. 38/2001, að því er varðar 2. janúar 2017. Stefndi mót mælir því tímamarki og byggir á því að hann hafi fyrst haft möguleika á því að reikna út fjárhæð bótatilboðs til stefnanda þegar útreikningar trygginga stærðfræðings lágu fyrir 9. febrúar 2017. Eigi því að miða upphafstíma dráttarvaxta við mánuð eftir þann tíma. Við úrlausn á þessu atriði er til þess að líta að í greinargerð stefnda samkvæmt 2. mgr. 99. gr. laga nr. 91/1991 er tekið fram að hann hafi óskað eftir útreikningi tryggingastærðfræðingsins 9. febrúar 2017. Ekkert í málsgögnum liggur fyrir um aðra dagsetningu í því sambandi. Að því virtu liggur fyrir að beiðninni var fyrst beint til tryggingastærðfræðingsins rúmum tveimur mánuðum frá því að stefnandi sendi bótakröfu til stefnda 2. desember 2016. Er það óvenjulega seint í almennu tilliti. Þá liggur fyrir að hin sameiginlega matsgerð Björns Péturs og Rúriks lá fyrir í lok nóvember sama ár. Samkvæmt dagsetningum á gögnum virðast útreikningar tryggingastærðfræðingsins hins vegar hafa legið fyrir sama dag og kallað var eftir þeim. Að framangreindu virtu verður ekki fallist á með stefnda að unnt sé að miða upphafstíma við 9. febrúar 2017. Þykir rétt að fallast á með stefnanda að miða við 2. janúar sama ár, sem er mánuður eftir að bóta kröfu var fyrst beint að stefnda og hann gat brugðist við, sbr. 1. málsl. 1. mgr. 9. gr. laga nr. 38/2001. Verður því fallist á vaxta- og dráttarvaxtakröfu stefnanda eins og hún er sett fram og nánar greinir í dómsorði.

Með vísan til 129. og 1. mgr. 130. gr. laga nr. 91/1991 verður stefnda gert að greiða stefnanda málskostnað, annars vegar þóknun vegna vinnu lögmanns hans, sem telst hæfilega ákveðin 1.300.000 krónur að teknu tilliti til virðisaukaskatts, og hins   vegar   vegna   útlagðs   kostnaðar   stefnanda   í   tengslum   við   gagnaöflun   frá dómkvöddum matsmönnum, 908.600 krónur, samtals 2.208.600 krónur.

Af hálfu stefnanda flutti mál þetta Jónas Þór Jónasson lögmaður. Af hálfu stefnda flutti málið Eva B. Helgadóttir lögmaður. Daði Kristjánsson héraðsdómari kveður upp dóm þennan.

D Ó M S O R Ð:

Stefndi, Vörður tryggingar hf., greiði stefnanda, Friðriki Þór Steindórssyni, 28.866.081 krónu með 4,5% vöxtum samkvæmt 16. gr. skaðabótalaga nr. 50/1993 frá 12. febrúar 2016 til 2. janúar 2017, en með dráttarvöxtum samkvæmt 1. mgr. 6. gr. laga nr. 38/2001 um vexti og verðtryggingu af 17.180.256 krónum en 4,5% vöxtum   af   11.685.825   krónum   frá   þeim   degi   til   16.   mars   2018,   en   með dráttarvöxtum af 28.866.081 krónu frá þeim degi til greiðsludags. Stefndi greiði stefnanda 2.208.600 krónur í málskostnað.

Daði Kristjánsson

Heimildaskrá

Dómaskrá