Héraðsdómur Reykjavíkur
Dómur 20. apríl 2026.
Mál nr. E-2357/2025:
Marcin Piotr Chorzempa
(Eiríkur Gunnsteinsson lögmaður)
gegn
Sjóvá-Almennum tryggingum hf
(Heiður Heimisdóttir lögmaður)
Lykilorð
Bifreiðir. Skaðabætur. Skaðabótaskylda. Sönnun. Sönnunarbyrði.
Útdráttur
Bifreið stefnanda, einstaklings, skemmdist í árekstri þar sem stefndi, tryggingafélag, bar greiðsluábyrgð á tjóninu. Stefnandi krafðist þess að stefndi greiddi honum bætur skv. mati réttingaverkstæðis sem stefndi hafði leitað til til þess að fá fjártjón stefnanda metið. Stefndi hafði lækkað fjárhæð bóta sem stefnandi hafði, þó með fyrirvara um hærri fjárkröfu, tekið við sem samkomulagsgreiðslu. Talið var að stefndi hefði ekki fært sönnur á það með hlutlausum gögnum að lækkun á bótagreiðslu væri sanngjörn og eðlileg. Því var talið að stefndi hefði ekki sýnt fram á að með þeirri fjárhæð sem hann hafði greitt stefnanda í samkomulagsbætur hefði stefndi bætt tjón á bifreið stefnanda að fullu. Því var fallist á kröfu stefnanda.
Þetta mál, sem var tekið til dóms 11. mars 2026, höfðar Marcin Piotr Chorzempa, kt. […], […], með stefnu birtri 23. apríl 2025 á hendur Sjóvá-Almennum tryggingum hf., kt. 650909-1270, Kringlunni 5, Reykjavík.
Stefnandi krefst þess að Sjóvá-Almennar tryggingar hf. verði dæmdur til þess að greiða stefnanda 876.180 kr., með vöxtum samkvæmt 8. gr. laga nr. 38/2001 um vexti og verðtryggingu frá 3. mars 2021 til 19. júní 2021, en með dráttarvöxtum samkvæmt 1. mgr. 6. gr. sömu laga frá þeim degi til greiðsludags.
Stefnandi krefst málskostnaðar úr hendi stefnda, eins og málið væri eigi gjafsóknarmál, auk virðisaukaskatts á málflutningsþóknun.
Stefndi krefst aðallega sýknu af öllum kröfum stefnanda. Jafnframt krefst stefndi málskostnaðar úr hendi stefnanda.
Stefndi krefst þess til vara að kröfur stefnanda verði lækkaðar verulega og að málskostnaður verði felldur niður.
Málsatvik
Stefnandi á bifreiðina […] af Tesla-gerð, […], árgerð 2015. Hann höfðar þetta mál til þess að sækja bætur fyrir tjón sem varð á bifreiðinni 3. mars 2021, þegar annarri bifreið var ekið í veg fyrir hana. Bifreiðin varð við þennan árekstur óökuhæf og því tók stefnandi hana úr umferð.
Þetta var þó ekki fyrsta tjónið sem varð á bifreiðinni. Samkvæmt gögnum málsins var fyrsta tjónið 6. nóvember 2019. Þá ók stefnandi frá Tjarnarvöllum í Hafnarfirði inn í hringtorgið Haukatorg. Vörubifreiðinni […] var ekið inn í hringtorgið frá Ásbraut og rakst farmur sem hékk aftur af vörubílspallinum í bifreið stefnanda. Að sögn stefnda varð þá tjón á hægra framhorni hennar, framstuðara, frambretti, framljósi og grilli. Tjónvaldur í þeim árekstri var tryggður hjá TM tryggingum hf. og bætti TM tjónið úr ábyrgðartryggingu tjónvalds með því að greiða stefnanda samkomulagsbætur. Tjónamat fór fram til þess að meta umfang tjónsins og var það að sögn stefnda haft til hliðsjónar við útreikning bótafjárhæðar. Ekki var gert við bifreiðina á vegum tryggingafélagsins.
Stefnandi lenti í öðrum árekstri á Tesla-bifreið sinni 28. ágúst 2020. Hann var þá á hringtorgi í Skeifunni í Reykjavík er ökumaður á bifreiðinni […] ók inn í vinstri hlið bifreiðar stefnanda. Svo virðist sem bifreiðin hafi skemmst á vinstra framhorni/- hurð við atvikið. Bifreið tjónvalds var tryggð hjá Verði tryggingum hf. Daginn eftir, 29. ágúst 2020, lenti ökutæki stefnanda, […], í þriðja árekstrinum, þar sem ákoma var hægra megin á ökutækið, n.tt. hægra framhorn. Tjón mun þó aðallega hafa orðið á felgu. Það tjón var einnig bótaskylt hjá Verði tryggingum.
Tveimur dögum síðar, 1. september 2020, lenti bifreið stefnanda í árekstri á hringtorgi á gatnamótum Suðurgötu og Hringbrautar í Reykjavík. Þá var bifreið með skráningarnúmerið […] ekið í hlið bifreiðar stefnanda er hann ók út úr hringtorginu. Bifreiðin […] var tryggð hjá Vátryggingafélagi Íslands hf. Að sögn stefnda varð, við þetta atvik, tjón á hægra framhorni bifreiðar stefnanda, ákomur á frambretti, stuðara, grilli, ljósi, vélarhlíf (húddi) og við framhurð hægra megin.
Bifreið stefnanda lenti loks 3. mars 2021 í árekstri á gatnamótum Njálsgötu og Rauðarárstígs og eru skemmdir sem þá urðu á bifreiðinni tilefni þessa máls. Þá var bifreið með skráningarnúmerið […] ekið í veg fyrir bifreið stefnanda. Hún var tryggð hjá stefnda Sjóvá. Bifreið stefnanda varð óökuhæf í kjölfar árekstursins og var flutt í geymsluhúsnæði dráttarbílaþjónustunnar Króks.
Við skoðun tjónamatsmanna stefnda Sjóvár á bifreið stefnanda í Króki kom í ljós að fleiri tjón voru á bifreiðinni heldur en það sem varð við árekstur bifreiðarinnar […]. Að sögn stefnda var sjáanlegt tjón m.a. á afturstuðara, vinstra fram- og afturhorni, framstuðara auk tjóns á hægra framhorni. Til þess að afmarka tjónið sem bifreiðin varð fyrir af völdum bifreiðar […], 3. mars 2021, aflaði stefndi Sjóvá upplýsinga frá öðrum tryggingafélögum um tjónasögu bifreiðar stefnanda. Þá kom í ljós að tjón voru skráð á bifreiðina hjá tryggingafélögunum TM, Verði og VÍS. Þau höfðu öll viðurkennt bótaskyldu úr ábyrgðartryggingum bifreiða sem tryggðar voru hjá þeim. Stefndi Sjóvá fékk sendar myndir frá TM vegna tjóns sem varð 6. nóvember 2019. Að sögn stefnda sjást á þeim skemmdir á hægra frambretti, ljósi og vélarhlíf (húddi), auk stuðara og grilli bifreiðarinnar. Festingar fyrir vélarhlífina (húddið) hafi einnig skekkst.
Í framhaldi af þessu aflaði stefndi Sjóvá tjónamats frá bíla- og réttingaverkstæðinu AutoCenter ehf. Matsmenn á vegum AutoCenter fóru í Krók til þess að meta tjón á bifreiðinni. Að sögn stefnda vissu matsmennirnir ekki að eldri tjón á hægra framhorni væru skráð á bifreiðina hjá fleiri en einu tryggingafélagi. Mat AutoCenter á viðgerðinni nam 1.558.706 kr. m/vsk. og tók m.a. til verðs á nýjum varahlutum og pörtum. Í kjölfarið bauð stefndi Sjóvá stefnanda samkomulagsbætur að fjárhæð 591.511 kr. með hliðsjón af umfangi skemmda sem tengdust umræddu tjóni en því boði tók stefnandi ekki.
Þáverandi lögmanni stefnanda barst 9. mars 2021 tölvuskeyti frá starfsmanni stefnda þar sem segir: Við getum látið gera við bílinn en eigandi verður að samþykkja að greiða kostnað sem tilheyrir ekki tjóninu. AutoCenter hefur ekki áhuga á að gera við bílinn vegna eldri mála við eiganda, hvert á að senda hann í viðgerð. 1. Við buðum samkomulagsbætur vegna tjóns á […], upphæð 591.511 kr. (fyrsta mynd í viðhengi) skemmd á húddi, ljósi og framstuðara (hlutir hafa verið skemmdir áður) 2. Ástæðan fyrir því að við getum ekki látið gera við tjónið að fullu er sú að mörg önnur tjón eru á bílnum sem eigandi hefur fengið bætur [fyrir] og ekki látið gera við skemmdirnar. (næstu fjórar myndir í viðhengi frá TM) framstuðari, frambretti, framljósið, grillið 3. Síðan eru myndir frá VÍS þar sem frambretti er ónýtt, framstuðari, grill og ljós eru skemmd, mynd hér fyrir neðan: 4. Vörður er með tjón á hægra framhorni (er ekki með myndir af því) 5. Framhornið vinstra er skemmt og framstuðari utanfrá fastur við bílinn, vinstra ljósið er brotið Þann 27. apríl 2021 aflaði stefnandi tjónamats fyrir heildartjóni á bifreiðinni frá réttingaverkstæðinu Bílneti ehf. og nam matið 1.827.529 kr. m/vsk. Stefnandi sendi tryggingafélögunum Verði, VÍS og stefnda Sjóvá kröfubréf 19. maí 2021, vegna tjóna sem urðu á bifreiðinni […] 28. ágúst og 1. september 2020 og 3. mars 2021. Þáverandi lögmaður stefnanda kvaðst hafa sundurliðað matið af mikilli nákvæmni og skipt kostnaðinum á milli tryggingafélaganna. Kröfu samkvæmt mati Bílnets og kostnaðarskiptingu lögmannsins hafnaði stefndi Sjóvá, í tölvuskeyti 31. maí 2021, með vísan til fyrri tjóna sem stefnandi hefði að einhverju leyti fengið greidd frá öðrum tryggingafélögum. Stefnandi tók þó 11. júní 2021 við samkomulagsbótum frá stefnda að fjárhæð 591.511 kr. með fyrirvara um frekari kröfur.
Stefnandi skaut kröfu sinni á hendur tryggingafélögunum þremur, þ.e. VÍS, Verði og stefnda Sjóvá, til úrskurðarnefndar í vátryggingamálum 21. júlí 2021. Fyrir nefndinni vísaði stefndi Sjóvá til þess að stefnandi hefði lent í árekstri 6. nóvember 2019 sem TM bæri bótaábyrgð á. Myndir sem TM hefði sent Sjóvá sýndu að þá hefði orðið tjón á vinstra frambretti, ljósi og vélarhlíf (húddi), svo og stuðara og grilli. Festingar fyrir vélarhlíf (húdd) hafi einnig skekkst. Sjóvá áréttaði að samkvæmt þessu hefðu verið ýmsar skemmdir á bifreiðinni fyrir á sömu stöðum en viðurkenndi að meira tjón hefði hlotist í árekstrinum 3. mars 2021 enda hefði bifreiðin þá orðið óökuhæf. Stefndi færði síðan rök fyrir því hvers vegna hann teldi að stefnandi ætti ekki rétt á allri þeirri fjárhæð sem AutoCenter hafði reiknað út að viðgerð hefði kostað. Til lækkunar kæmi að vinnuliður væri lækkaður um 30% þar eð stefnandi myndi gera við sjálfur í stað þess að viðgerð færi fram á viðurkenndu verkstæði, verð þeirra varahluta sem hefðu skemmst við áreksturinn 3. mars 2021 væri lækkað um 50% af því að þeir hefðu verið skemmdir fyrir og í þriðja lagi væri virðisaukaskatti haldið utan við bæturnar vegna þess að stefnandi hefði ekki stofnað til neinnar skyldu til að greiða virðisaukaskatt, hvorki af varahlutum né vinnu.
Úrskurðarnefndin vísaði málinu frá með úrskurði, dags. 5. október 2021, þar sem fram kom að nefndin fjallaði ekki um ágreining um bótafjárhæðir nema með sérstöku samþykki allra málsaðila, sem ekki lá fyrir í málinu. Stefnandi fékk gjafsóknarleyfi 1. september 2022 til þess að höfða mál á hendur VÍS, Verði og Sjóvá vegna þriggja tjóna sem urðu á bifreið hans 28. ágúst og 1. september 2020 og 3. mars 2021.
Frá 1. september 2022 virðist lítið, ef nokkuð, hafa gerst í málinu fyrr en nýr lögmaður höfðaði í lok ágúst 2024 fyrir hönd stefnanda mál á hendur stefnda Sjóvá, VÍS og Verði fyrir Héraðsdómi Reykjavíkur sem fékk númerið E-4875/2024. Við þingfestingu þess, 12. september 2024, féll stefnandi með bókun frá stefnukröfum sínum á hendur VÍS enda hafði það félag greitt honum bætur. Hann hélt til streitu kröfum á hendur Verði og stefnda Sjóvá. Því máli var vísað frá dómi með úrskurði 19. desember 2024 þar eð skilyrði samlagsaðildar samkvæmt 19. gr. laga nr. 91/1991 voru að mati dómsins ekki uppfyllt.
Stefnandi höfðaði þetta mál með stefnu birtri 23. apríl 2025 og mun stefna Verði tryggingum hf. í öðru máli. Stefndi lagði greinargerð fram á dómþingi 16. september 2025.
Málsástæður og lagarök stefnanda
Stefnandi byggir á því að hann eigi rétt til fullra bóta úr lögboðinni ábyrgðartryggingu bifreiðar nr. […] hjá stefnda Sjóvá. Fjárkrafa á hendur stefnda byggist á tjónamati sem stefndi aflaði hjá réttingaverkstæðinu AutoCenter ehf. Niðurstaða þess hafi verið að viðgerð á því tjóni sem varð á bifreiðinni vegna árekstursins næmi 1.558.706. kr.
Málsaðilar deili ekki um bótaábyrgð stefnda, enda hafi hann þegar greitt hluta tjónsins. Ágreiningurinn varði takmörk ábyrgðar að teknu tilliti til eldri tjóna og samkomulagsbóta vegna þeirra auk sundurgreiningar á tjóni vegna annarra árekstra sem stefnandi hefði lent í nokkrum mánuðum fyrir áreksturinn 3. mars 2021.
Krafa stefnanda gegn Sjóvá-Almennum tryggingum hf. byggist á því að ökumaður bifreiðarinnar […] hafi ekið henni á bifreiðina […] við Rauðarárstíg í Reykjavík 3. mars 2021 og hafi bifreið stefnanda verið óökuhæf í kjölfarið og mikið tjón orðið á henni, einkum á hægra bretti, framenda og hægri hlið. Stefnandi hafi verið í fullum rétti og beri stefndi því bótaábyrgð á tjóni stefnanda. Stefndi hafi þegar greitt hluta bóta sem stefnandi tók við með fyrirvara um hærri bætur vegna árekstursins. Ágreiningur varði nær eingöngu fjárhæð bótagreiðslna.
Stefnandi byggi á því að stefndi Sjóvá hafi aflað eigin tjónamats frá AutoCenter ehf. í kjölfar árekstursins. Það mat verði að leggja til grundvallar við greiðslu bóta enda hafi matið takmarkast við tjón sem varð í árekstrinum 3. mars 2021. Samkvæmt því mati nemi fjárhæð tjónsins 1.558.706 kr. og telji stefnandi að í því felist full sönnun um tjón hans vegna umrædds atviks enda stafi það í raun frá stefnda sem hafi látið meta tjón degi eftir áreksturinn. Stefnandi leggi sérstaka áhersla á að eldri tjón hafi verið mjög smávægileg miðað við það tjón sem varð í þessum árekstri enda ljóst að bifreiðin varð óökuhæf eftir áreksturinn og hafi stefnandi ekki haft efni á að láta gera við hana. Bifreiðin hafi því ekki verið í umferð síðan.
Í greinargerð til úrskurðarnefndar í vátryggingamálum hafi stefndi hins vegar haldið því fram að lækka bæri bætur til stefnanda, m.a. af eftirfarandi ástæðum:
Tímagjald: Sjóvá telji að lækka beri bætur sem byggjast á tímagjaldi um 30%. Stefnandi áttar sig ekki á því hvers vegna lækka eigi tjónamat af þessari ástæðu enda hljóti bætur að miða við raunkostnað.
Varahlutir: Sjóvá staðfesti að meira tjón hafi orðið við áreksturinn 3. mars 2021 og telji stefnandi því að sjónarmið um að hlutir bifreiðarinnar […] hafi verið tjónaðir fyrir eigi ekki við nema að mjög takmörkuðu leyti sem stefnandi hafi tekið tillit til. Ekki liggi fyrir hversu mikið umræddir hlutir voru tjónaðir en það breyti því ekki að meira tjón varð við áreksturinn sem stefnda Sjóvá beri að bæta stefnanda. Stefnandi hafi á fyrri stigum gert heiðarlega tilraun til að draga tjón í eldri slysum frá en Sjóvá virðist ætla að ganga lengra með þeim hætti að stefnandi fái tjón sitt ekki bætt. Ekki verði við það unað að stefndi telji sig einungis eiga að greiða 50% af öllum varahlutum óháð því hvert umfang eldra tjóns var, auk þess sem ekkert liggi fyrir um á hvaða forsendum eldra tjón var greitt og hvernig það hafi áhrif á greiðsluskyldu stefnda.
Virðisaukaskattur: Stefnandi telji þau sjónarmið Sjóvár að ekki beri að greiða virðisaukaskatt, hvorki af vinnu né varahlutum, ekki standast skoðun. Fari viðgerð ekki fram lækki söluverð bifreiðarinnar um þann kostnað sem raunverulega falli til við viðgerðina og sé virðisaukaskattur þar ekki undanskilinn. Stefnandi sé einstaklingur sem sé ekki virðisaukaskattsskyldur. Bifreiðin sé þess eðlis að yfirgnæfandi líkur séu á að hún verði seld einstaklingi sem sé ekki virðisaukaskattsskyldur. Áhrif tjóns á söluverð geti því aldrei verið metið án virðisaukaskatts.
Með öðrum orðum telji stefnandi að ekki séu forsendur til þess að lækka bætur hans af þeim ástæðum sem stefndi tíundaði í umræddri greinargerð til úrskurðarnefndarinnar. Því krefjist stefnandi fullra bóta miðað við umrætt mat AutoCenter. Stefnandi telji jafnframt að í mati AutoCenter sé tekið tillit til eldri tjóna þar sem stefndi hafi aflað matsins í þeim tilgangi að tjón vegna árekstursins yrði metið til fjár og þá hafi legið fyrir það tjón sem orðið hafði á bifreiðinni í fyrri árekstrum. Það sé með öllu óviðunandi fyrir stefnanda að einungis sé bættur rúmur þriðjungur þess tjóns sem sýnt hafi verið fram á með mati sem stefndi aflaði. Þá liggi ekki fyrir sundurliðað yfirlit vegna þeirrar greiðslu sem stefndi greiddi.
Í þessu sambandi byggi stefnandi einnig á því að höfnun stefnda á bótaábyrgð eða frekari greiðsluskyldu verði að byggjast á málsástæðum sem komi fram við höfnun. Ekki sé heimilt að tefla fram frekari málsástæðum á síðari stigum, sbr. ákvæði 94. gr. laga nr. 30/2004 og annarra sambærilegra ákvæða laganna.
Þá sé ljóst að mun meira tjón hafi orðið þar sem bifreiðin hafi orðið óökuhæf í kjölfar árekstursins. Því geti stefndi ekki komið sér undan greiðsluskyldu vegna svo mikils tjóns á þeim grundvelli að þegar hafi verið dæld eða rispa á bifreiðinni óháð því hvort greiddar hafi verið samkomulagsbætur á fyrri stigum. Í kröfugerð stefnanda hafi jafnframt verið tekið tillit til þess þar eð dregin hafi verið frá greiðsla frá VÍS vegna tjóns sem varð á hægri hlið bifreiðarinnar 1. september 2020. Þetta mál sé hugsanlega fordæmisgefandi um ábyrgð tryggingafélaga þegar árekstrar verði með skömmu millibili eða þegar ekki hafi verið ráðist í viðgerð þótt bætur hafi verið greiddar.
Krafa stefnanda á hendur stefnda Sjóvá byggist á umræddu tjónamati Auto- Center ehf. að fjárhæð 1.558.706 kr. með virðisaukaskatti að frádreginni greiðslu frá stefnda að fjárhæð 591.511 kr. og greiðslu frá VÍS að fjárhæð 91.015 kr. sem VÍS greiddi fyrir þingfestingu stefnu 12. september 2024. Með því hafi verið tekið tillit til tjóns sem varð á bifreiðinni á hægri hlið hennar í árekstri 1. september 2020 sem VÍS bar bótaábyrgð á. Stefnandi vísar til tjónamatsins um nánari sundurliðun. Stefnufjárhæð nemi því samtals 876.180 kr. Telji stefndi Sjóvá að fjárhæðin sé ekki rétt beri honum að sýna fram á hvaða fjárhæð sé réttari enda liggi fyrir sönnun um fjárhæð tjónsins með mati AutoCenter sem stefndi aflaði sjálfur og hefur ekki vefengt.
Stefnandi krefst vaxta af skaðabótakröfum frá 3. mars 2021 og þar til mánuður var liðinn frá því hann sendi stefnda kröfubréf, dags. 19. maí 2021. Vísað er til 4., 5. og 8. gr. laga um ökutækjatryggingar nr. 30/2019 þessu til stuðnings.
Málsástæður og lagarök stefnda
Aðalkrafa um sýknu Stefndi Sjóvá hafnar og mótmælir öllum málsástæðum stefnanda og telur að með þegar greiddum bótum hafi stefnandi fengið tjón sitt bætt að fullu. Samkvæmt almennum reglum skaðabótaréttar sé það tjónþola að sýna fram á hvert sé raunverulegt fjártjón hans. Tjónþoli eigi rétt á að fá tjón sitt bætt en skaðabætur miði að því að gera tjónþola eins settan fjárhagslega og hefði hann ekki orðið fyrir tjóni.
Óumdeilt sé að áður en bifreið stefnanda lenti í árekstri við bifreiðina […], 3. mars 2021, hafi bifreiðin verið með tjón á hægra frambretti, stuðara, grilli, ljósi og vélarhlíf (húddi). Þeir hlutar sem skemmdust við áreksturinn 3. mars 2021 hafi því verið tjónaðir fyrir. Stefndi byggi á því að það samræmist ekki grundvallarreglum skaðabótaréttar að stefnandi fengi nýja parta eða varahluti greidda úr ábyrgðartryggingu […] hjá stefnda, enda ljóst að eldra tjón var á bifreiðinni sem sé ekki á ábyrgð ökumanns […] og þar af leiðandi ekki stefnda að bæta. Ætti stefndi að bæta það yrði stefnandi mun betur settur en hann var fyrir tjónsatburðinn. Ljóst sé að hluta af því tjóni, sem var fyrir á bifreið stefnanda, hafi hann þá þegar fengið bættan frá TM og hluti tjónsins hafi einnig verið bótaskyldur hjá VÍS og Verði.
Stefnandi segi að tekið sé tillit til þess í kröfugerð hans að bifreiðin hafi áður orðið fyrir tjóni, þ.e. með því að draga frá greiðslu frá VÍS vegna tjónsins frá 1. september 2020. Ekkert sé hins vegar minnst á þær skemmdir á hægra framhorni bifreiðarinnar sem hafi verið bótaskyldar hjá TM og Verði.
Í greinargerð Varðar til úrskurðarnefndar vegna tjóns á bifreið stefnanda komi fram að stefnandi hafi látið verkstæði senda eins skýrslu á tvö tryggingafélög vegna tjóns farþegamegin, á hægra framhorni, og að hann hafi gert tilraun til þess að fá sama tjónið greitt tvisvar, en að hann hafi svo síðar tekið fram í samskiptum við félagið að einungis felgan hafi skemmst í tjóninu sem var bótaskylt hjá Verði ásamt því að hinn hluti tjónsins hafi þegar fengist bættur frá TM.
Stefnandi hafi sjálfur fengið tjónamat fyrir heildartjóni á bifreiðinni hjá Bílneti sem nam 1.827.529 kr. með virðisaukaskatti sem stefndi hafnaði.
Í fyrri stefnu stefnanda á hendur stefnda Sjóvá svo og VÍS og Verði hafi kröfur á hendur VÍS og Verði byggst á tjónamati Bílnets, eins og áður segi. Krafan á hendur Verði hafi numið 172.640 kr. og krafan á hendur VÍS 91.015 kr. Krafan á hendur stefnda var 876.180 kr. en hún hafi byggst á tjónamati frá AutoCenter. Fyrri lögmaður stefnanda hafi sagst hafa sundurliðað matið frá Bílneti og skipt kostnaðinum á milli tryggingafélaganna.
Samkvæmt kröfubréfi stefnanda til Varðar, dags. 19. maí 2021, hafi verið ákoma á bifreiðina […] á tveimur hliðum bifreiðarinnar sem var bótaskyld hjá Verði. Ákoman farþegamegin var nuddákoma sem náði frá hurðinni fram að hjóli og inn að frambretti. Af þeim sökum hafi verið krafist þess hluta í varahlutakostnaði, vinnustundum og málningu, sem taki til þess hluta tjónsins sem hafi orðið á þeim stað á bifreiðinni.
Af framangreindri sundurliðun að dæma, og miðað við hversu miklu hærri fjárhæðar stefnandi krefjist úr hendi stefnda en úr hendi hinna félaganna, liggi ljóst fyrir að krafa stefnanda byggist á því að þeir partar sem stefnda beri að bæta hafi verið í lagi fyrir tjónsatburðinn og því ekki hluti af kröfunum á hin félögin. Eins og áður segi hafi stefndi fengið tjónamat frá bíla- og réttingaverkstæðinu AutoCenter sem nam 1.558.706 kr. með virðisaukaskatti. Matsmenn á vegum Auto- Center hafi ekki vitað að eldri tjón væru hægra megin á bifreiðinni. Stefndi mótmæli því alfarið að matið hafi takmarkast við það tjón sem varð í árekstrinum 3. mars 2021. Stefndi mótmæli því einnig að fyrri tjón hafi verið mjög smávægileg, eins og stefnandi haldi fram, þótt tjónið 3. mars 2021 hafi gert bifreiðina óökuhæfa.
Mat AutoCenter hafi m.a. tekið til verðs á nýjum varahlutum og pörtum vegna heildartjóns hægra megin á bifreiðinni. Stefndi hafi nú þegar greitt samkomulagsbætur að fjárhæð 591.511 kr. en sú fjárhæð hafi verið reiknuð út frá tjónamati AutoCenter ehf. Stefndi byggi á því að með greiðslu þeirra samkomulagsbóta sem hafi þegar verið greiddar hafi félagið bætt fjárhagslegt tjón stefnanda. Við útreikning samkomulagsbóta hafi stefndi litið til þriggja þátta, þ.e. tímagjalds/taxta, varahluta og virðisaukaskatts.
Við útreikning samkomulagsbóta hafi stefndi lækkað tímagjald fyrir hvern vinnutíma og miðist það fyrst og fremst við það að þegar einstaklingar geri sjálfir við, eða geri ekki við bifreiðar sínar, nýti þeir ekki þjónustu viðurkenndra verkstæða sem þurfi að halda uppi rekstri, sérhæfðu starfsfólki, aðstöðu, tækjum o.fl. sem sé óhjákvæmilega reiknað inn í tímakaup verkstæðanna. Tímagjald í þessu tilviki hafi því verið reiknað u.þ.b. 30% lægra en það tímagjald sem sé greitt verkstæðunum.
Vegna varahluta sé almennt miðað við endurgjald fyrir nýja varahluti við greiðslu á samkomulagsbótum. Í þessu máli sé ljóst að aukið tjón hafi orðið af völdum bifreiðarinnar […] og hafi bifreið stefnanda orðið óökuhæf í kjölfarið. Stefndi, tryggingafélagið, hafi því talið sanngirnissjónarmið leiða til þess að stefndi samþykkti að bæta hálfvirði á þeim varahlutum sem urðu fyrir tjóni af völdum bifreiðarinnar […]. Varahlutaverð samkvæmt tjónamati hafi því verið lækkað um u.þ.b. 50%.
Þegar viðgerð fari fram eða kostnaður við viðgerð sé áætlaður sé reiknaður út virðisaukaskattur af heildarkostnaði, þ.e. bæði vinnu og varahlutum. Þegar stefndi, tryggingafélagið, greiði hins vegar út samkomulagsbætur sé ljóst að hvorki hafi farið fram viðgerð né varahlutir verið keyptir. Því hafi ekki orðið til kostnaður eða vinna sem beri virðisauka. Þegar greiðsla samkomulagsbóta fari fram reiknist bætur þar af leiðandi út frá viðgerðarmati, án virðisaukaskatts.
Jafnframt liggi fyrir að stefnandi hafi ekki látið gera við þær skemmdir sem áður hafi orðið á bifreiðinni, þar á meðal á hægra framhorni hennar. Fari viðgerð hins vegar ekki fram og tjón sé einungis metið sem verðrýrnun á markaðsvirði bifreiðarinnar nemi tjónið skerðingu á söluverði á almennum markaði notaðra ökutækja. Slíkt markaðsverð sé án virðisaukaskatts, enda leggist virðisaukaskattur ekki á viðskipti milli einstaklinga. Stefndi byggi þannig á því að yrði reiknuð verðrýrnun með virðisaukaskatti fæli það í sér að tjónþoli fengi hærri bætur en nemi raunverulegu tjóni, sem væri andstætt grundvallarreglu skaðabótaréttar um að bæta aðeins það tjón sem í raun falli til. Með þessum rökum hafni stefndi því að áhrif tjóns á söluverð geti aldrei verið metið án virðisaukaskatts, eins og stefnandi haldi fram.
Til viðbótar þeim 591.511 kr. sem stefndi hafi greitt stefnanda hafi hann greitt fyrir flutning á bifreiðinni, 43 geymsludaga hjá Króki og fyrir bílaleigubíl í 17 daga.
Stefndi byggi jafnframt á því að tilvísun stefnanda til 94. gr. laga nr. 30/2004 um vátryggingarsamninga og „annarra sambærilegra ákvæða laganna“ sé órökstudd með öllu og vanreifuð. Tilvísuninni sé því mótmælt enda hafi stefndi óskað eftir mati á tjóni bifreiðarinnar strax daginn eftir að tjónið 3. mars 2021 var tilkynnt til félagsins. Nokkrum dögum síðar, 9. mars 2021, hafi stefnanda verið boðin viðgerð á bifreiðinni eða samkomulagsbætur að fjárhæð 591.511 kr. á þeim grundvelli að stefndi væri ekki reiðubúinn að greiða kostnað sem tilheyrði ekki tjóninu. Höfnun stefnanda hafi ávallt byggst á framangreindu.
Að öllu framangreindu virtu telji stefndi ljóst að félagið hafi bætt stefnanda það fjárhagslega tjón sem hann hafi hlotið af völdum bifreiðarinnar […] og að sanngirni hafi verið gætt við útreikning bótafjárhæða og greiðslu annars kostnaðar við málið. Því beri að sýkna stefnda af öllum kröfum stefnanda.
Varakrafa um lækkun Verði ekki fallist á framangreint krefjist stefndi verulegrar lækkunar á kröfum stefnanda. Ljóst sé að fyrri skemmdir hafi verið á bifreiðinni sem voru bótaskyldar hjá TM, Verði og VÍS, áður en að áreksturinn varð 3. mars 2021. Ekki hafi verið tekið tillit til þess tjóns sem varð á bifreiðinni á hægra framhorni og á framstuðara, frambretti, framljósi og grilli 6. nóvember 2019 í dómkröfu stefnanda en fyrir liggi að stefnandi hafi fengið greiddar samkomulagsbætur frá TM vegna þess tjóns. Um nánari rökstuðning er vísað til rökstuðnings fyrir aðalkröfu eftir því sem við á.
Þessu til viðbótar vísar stefndi til þess að dómkrafa stefnanda sé vanreifuð. Stefnandi víki ekkert að sundurliðun fjárhæðarinnar heldur láti nægja að vísa til tjónamats AutoCenter. Með hliðsjón af dómaframkvæmd kunni þessi framsetning stefnanda að teljast vanreifun sem leiði til frávísunar án kröfu.
Þá mótmæli stefndi kröfu stefnanda um dráttarvexti. Tjónið hafi orðið 3. mars 2021 en 9. mars 2021 hafi stefndi verið búinn að reikna út og verið reiðubúinn að greiða stefnanda 591.511 kr. vegna tjónsins. Dráttur málsins stafi fyrst og fremst af ósætti um bótafjárhæð, drætti af hálfu stefnanda og ósættis hans við önnur tryggingafélög.
Niðurstaða
Stefnandi á bifreið sem hefur orðið fyrir tjóni í nokkrum árekstrum. Í öllum tilvikum hefur hann verið í rétti, eins og sagt er, og bera tryggingafélögin TM tryggingar hf., Vátryggingafélag Íslands og Vörður tryggingar hf. ábyrgð á þeim skemmdum sem urðu á bifreiðinni fram að því tjóni sem er hér til umfjöllunar. Síðasti áreksturinn varð 3. mars 2021. Við þann árekstur varð bifreiðin óökuhæf. Bifreið tjónvalds var tryggð hjá stefnda Sjóvá.
Stefndi krefst þess ekki að málinu sé vísað frá dómi en hann telur fjárkröfu stefnanda svo vanreifaða að dómari ætti að íhuga að vísa málinu frá af sjálfsdáðum (ex officio). Dóminum sýnist jafnt á komið með málsaðilum í þessum efnum. Stefnandi telur sig eiga rétt á heildarfjárhæð mats AutoCenter, 1.558.706 kr. og er virðisaukaskattur meðtalinn, þó að teknu tilliti til þeirra greiðslna sem hann hefur þegar fengið, annars vegar frá VÍS og hins vegar frá stefnda.
Til stuðnings kröfu sinni um sýknu af fjárkröfu stefnanda vísar stefndi til þess að hann hafi að fullu gert upp við stefnanda með því að greiða honum 591.511 kr. Stefndi lýsir því þó ekki að neinu leyti hvaða hluti þessarar fjárhæðar sé verð varahluta og hvað sé vinnuliður, né heldur hvað annað sé dregið frá, til þess að sanna með sundurliðun að þetta sé sanngjörn og lögmæt bótagreiðsla og með henni hafi stefnandi fengið fullar bætur fyrir tjón sitt. Það upplýstist ekki fyrr en við munnlegan málflutning hvernig fjárhæð samkomulagsbóta væri saman sett þegar lögmaður stefnda benti á hvar í gögnum málsins ætti að finna sundurliðun hennar.
Stefnandi byggir á því að stefndi sé bundinn af fyrirmælum 94. gr. laga nr. 30/2004 um vátryggingarsamninga og annarra sambærilegra ákvæða laganna þess efnis að ekki sé heimilt, á síðari stigum, að tefla fram frekari málsástæðum. Varnir sem hafi ekki verið haldið fram í upphafi komist ekki að síðar. Í því efni vísar stefnandi einkum til þeirra varna sem stefndi byggði á fyrir úrskurðarnefnd í vátryggingamálum svo og dóms Hæstaréttar í máli nr. 37/2021, frá 9. febrúar 2022.
Í greinargerð sinni til úrskurðarnefndarinnar byggði stefndi á því að hann hefði lækkað þá fjárhæð sem hafi komið út úr mati AutoCenter samkvæmt Cabas-kerfinu vegna þriggja atriða; þ.e. vinnuliður sé lækkaður um 30%, varahlutir um 50% og tjónþoli fái ekki greiddan virðisaukaskatt, hvorki af vinnu né varahlutum. Hann benti einnig á fyrri árekstra sem hefðu valdið tjóni á bifreiðinni. Dóminum sýnist því vera samhljómur með málsástæðum sem stefndi byggði á í greinargerð til úrskurðarnefndarinnar og greinargerðar hans í þessu dómsmáli.
Stefnandi mótmælir öllum frádráttarliðum sem stefndi byggði á þá fjárhæð sem hann bauð stefnanda í samkomulagsbætur.
Hvorki í greinargerð sinni til úrskurðarnefndarinnar né greinargerð sinni til dómsins í þessu máli tekur stefndi fram að við frádráttinn byrji hann á því að taka út úr lista AutoCenter nokkra varahluti sem hann bætir alls ekki. Þegar bornir eru saman varahlutalistar samkvæmt mati AutoCenter og samkvæmt því skjali sem stefndi byggir á hefur stefndi tekið út úr varahlutalistanum: H frambretti H Brettishlíf framan fremri hluti -3.2016 Dæmi Spoiler framstuðara 2.7.2015-3.2016 Loftstýring stuðarabyrði AWD-3.2016 Loftinntak stuðarabyrði Autopilot -3.2016 Grill parkassist Driving Assistant -3.2016 Grillrammi -3.2016 Listi Grilli -3.2016 Merki Grilli -3.2016 Frambretti H, Ryðvörn við skipti Húdd, Ryðvörn við skipti Á þessum frádrætti hefur stefndi enga skriflega skýringu gefið en við munnlegan málflutning kom fram að þetta væru varahlutir sem hefðu verið alveg tjónaðir, væntanlega í merkingunni ónýtir, fyrir tjónstilvikið 3. mars 2021. Stefndi ætti því ekki rétt á að fá þá bætta úr tryggingu bifreiðar […] hjá stefnda, auk þess sem þeir hefðu þegar verið bættir með samkomulagsbótum annað hvort frá TM eða VÍS.
Ekki verður séð að nein ótvíræð sönnunargögn liggi fyrir um hvað nákvæmlega skemmdist í þessum tveimur tilvikum. Fyrir liggur að 6. nóvember 2019 varð tjón við það að álprófíll sem lafði út af vörubílspalli skrapaði bíl stefnanda. Bótaskylda fyrir því tjóni hvíldi á TM. Meðal gagna málsins er tölvupóstur frá bílatjónum TM, dags. 8. mars 2021, ásamt skýrslu frá Akstri og öryggi, dags. 6. nóvember 2019. Í skýrslunni eru tvær nærmyndir af rispum á bílnum og ein af númeraplötunni þar sem hún liggur á götunni, allar dags. 6. nóvember 2019. Ekki verður séð hvenær eða af hvaða tilefni tekinn var tugur ódagsettra ljósmynda sem eru festar við sama skjal. Meðal gagna málsins er einnig ein blaðsíða með afar smáum ljósmyndum sem eiga að sýna það tjón sem varð við árekstur 1. september 2020 og VÍS ber greiðsluábyrgð á.
Með því að taka áður talda varahluti úr varahlutalistanum fækkar vinnueiningum við varahluti og ryðvörn, sem AutoCenter tilgreinir, úr 1587 einingum í 1315 einingar. Að sama skapi fækkar einingum við málun úr 923 í 878.
Samanburðartaflan, aftar í textanum, sýnir að taxti við vinnu við yfirbyggingu og ryðvörn lækkar úr 140 kr. í 100 kr. og taxti fyrir málun lækkar úr 160 kr. í 110 kr. Bætur sem stefndi er reiðubúinn að greiða fyrir varahluti eru meira en helmingi lægri en skv. mati (308.832 kr./797.847 kr.) enda var varahlutum fækkað eins og áður segir.
AutoCenter Sjóvá Tími Taxti Upphæð Tími Taxti Upphæð Yfirbyggingarvinna, Af/Á 1581 140 221.340 1315 100 131.500
| Varahlutir | 797.847 | 308.832 |
| Annað efni | 1.227 | 1.227 |
| Efni af lager | 13.280 | 7.890 |
| Málunarvinna | 923 160 147.680 878 | 110 96.580 |
| Málningarefni | 70.056 | 45.482 |
| Ryðvörn | 6 140 840 | |
| Akstur | 4.750 | |
| Samanlagt án vsk. | 1.257.021 | 591.511 |
| VSK 24% af höfuðstól | 301.685 | 141.963 |
| Samtals m. vsk. | 1.558.706 | 733.474 |
Til viðbótar því að lækka vinnulið (taxta samkvæmt Cabas-kerfi) um 30% og verð varahluta um 50% greiðir stefndi tjónþolum ekki neinn virðisaukaskatt, þegar hann greiðir þeim samkomulagsbætur vegna tjóna á bifreiðum.
Við munnlegan málflutning kom fram að legði tjónþoli fram kvittun fyrir kaupum á varahlut sem virðisaukaskattur hefði verið greiddur af myndi stefndi endurgreiða tjónþola virðisaukaskattinn, þótt hann hefði áður tekið við samkomulagsbótum. Ekki kom þó fram hvort virðisaukaskattur yrði þá greiddur af fullu verði varahlutarins eða einungis hálfvirði hans.
Eins og áður segir aflaði stefndi sjálfur mats AutoCenter á tjóni á bifreiðinni. Hann byggir á því að starfsmenn AutoCenter hafi ekki vitað af fyrra tjóni á svipuðum stað á bifreiðinni. Ekki verður séð að fyrir liggi sönnun um þessa fullyrðingu.
Sá sem vill ekki greiða fullt verð fyrir tjón samkvæmt mati þess sem hann hefur þó sjálfur leitað til, til þess að fá verðmetið tjón sem hann ber ábyrgð á, getur ekki varpað því á tjónþola að sanna að sú fjárhæð sem greiðandinn telur að draga beri frá því mati sé ósanngjörn. Stefndi vill styðjast við mat AutoCenter sem viðmiðs fyrir heildartjón sem hefur orðið á þeim stað á bifreið stefnanda sem stefndi ber greiðsluábyrgð á. Stefndi vill hins vegar ekki greiða fyrir suma liði í því mati, svo sem tiltekna varahluti og alls ekki neinn virðisaukaskatt, hvorki af vinnu né varahlutum, þótt stefndi sé einstaklingur og því ekki virðisaukaskattsskyldur. Stefndi vill einnig sjálfur ákveða hversu mikið eigi að lækka verðmæti varahluta sem skemmdust í tjóni sem hann ber greiðsluábyrgð á sem og hversu mikið eigi að lækka kostnað af vinnu við að gera við þetta tjón, vegna þess að hann gefur sér að sá sem þiggur samkomulagsbætur ætli ekki að leita til viðurkennds verkstæðis, heldur gera við tjónið sjálfur.
Telji sá sem ber greiðsluábyrgð á tjóni sem þessu að uppfyllt séu einhver skilyrði til að lækka þá fjárhæð sem talin er sýna fullt tjón verður hann að byggja þá lækkun á þeim sönnunargögnum sem telja má að hafi sönnunargildi og honum er fært að koma að, svo sem matsgerð óvilhalls dómkvadds matsmanns með sérþekkingu á þessu fagsviði en ekki sínu eigin mati á því hversu mikil lækkun sé sanngjörn.
Verður að telja að stefndi hafi ekki fært sönnur á að sú fjárhæð sem hann hefur dregið frá fullum bótum samkvæmt mati AutoCenter ehf. sé að mati óvilhallra fagmanna á þessu sviði sanngjarn og eðlilegur frádráttur. Ekki liggur fyrir sönnun þess að þeir varahlutir sem stefndi ákvað að bæta ekki hafi verið ónýtir fyrir tjónið 3. mars 2021. Ekki liggur heldur fyrir að það sé sanngjarnt að mati óvilhallra fagmanna að lækka verð varahluta, að teknu tilliti til aldurs bifreiðarinnar og fyrri tjóna, um 50%. Ætti að leggja til grundvallar að sá tjónþoli, sem lætur tryggingafélag ekki gera við skemmdir á bíl sínum, hyggist gera við hann sjálfur, liggur ekki heldur fyrir að sanngjarnt sé að greiða þeim tjónþola 30% lægri taxta en þann sem tryggingafélagið greiðir viðurkenndu verkstæði. Stefndi hefur því ekki heldur sýnt fram á að sú fjárhæð sem stefnandi tók við með fyrirvara sé sanngjörn og eðlileg og samsvari fullum bótum fyrir tjón hans, en því hefur stefnandi mótmælt. Stefndi verður að bera hallann af þeim sönnunarskorti. Þar eð dómurinn hefur ekkert annað viðmið til þess að byggja á en mat AutoCenter ehf. verður það mat lagt til grundvallar niðurstöðu málsins.
Stefnandi hefur þegar dregið frá mati AutoCenter greiðslur sem hann hefur fengið frá öðru tryggingafélagi og þann hluta samkomulagsbóta sem hann tók við úr hendi stefnda 11. júní 2021 og þannig lækkað kröfu sína á hendur stefnda. Því verður fallist á fjárkröfu hans eins og hún er sett fram.
Í greinargerð mótmælir stefndi vaxtakröfu stefnanda. Ekki verður séð að þar sé byggt á því að vextir sem fallið hafi á kröfuna meira en fjórum árum áður en stefna var birt 23. apríl 2025 séu fallnir niður fyrir fyrningu en til þess var vísað við málflutning.
Fallist er á að fjárkrafa stefnanda beri skaðabótavexti samkvæmt 8. gr. laga nr. 38/2001 frá tjónsdegi, 3. mars 2021. Hins vegar hafa orðið verulegar tafir á málinu sem stefndi ber aðeins lítillega ábyrgð á. Vegna þessara tafa þykir mega beita 2. málslið 9. gr. laga nr. 38/2001 þannig að krafa stefnanda beri dráttarvexti frá dómsuppsögu.
Með bréfi dómsmálaráðuneytisins, dags. 1. september 2022, var stefnanda veitt gjafsókn til þess að höfða þetta mál. Að teknu tilliti til umfangs málsins og reglna dómstólasýslunnar nr. 1/2026 þykir málflutningsþóknun lögmanns stefnanda, Eiríks Gunnsteinssonar, hæfilega ákveðin 700.000 kr. Þóknunin greiðist úr ríkissjóði og er, í samræmi við dómvenju, ákveðin án tillits til virðisaukaskatts.
Þar eð fallist hefur verið á kröfu stefnanda ber stefnda með vísan til 1. mgr. 130. gr. laga nr. 91/1991 að greiða stefnanda málskostnað, sem þykir að sama skapi hæfilega ákveðinn 700.000 kr. og rennur sú fjárhæð í ríkissjóð. Ingiríður Lúðvíksdóttir héraðsdómari kveður upp þennan dóm.
D Ó M S O R Ð
Stefndi, Sjóvá-Almennar tryggingar hf., greiði stefnanda, Marcin Piotr Chorzempa, 876.180 krónur, með vöxtum samkvæmt 8. gr. laga nr. 38/2001, um vexti og verðtryggingu, frá 3. mars 2021 til 20. apríl 2026, en með dráttarvöxtum samkvæmt 1. mgr. 6. gr. laga nr. 38/2001, um vexti og verðtryggingu frá þeim degi til greiðsludags.
Gjafsóknarkostnaður stefnanda greiðist úr ríkissjóði, þar með talin málflutningsþóknun lögmanns hans, Eiríks Gunnsteinssonar, 700.000 krónur. Stefndi greiði 700.0000 krónur í málskostnað til ríkissjóðs.
Ingiríður Lúðvíksdóttir -----------------------------