Fara í efni

Dómstólaleit

Leit í dómum íslenskra dómstóla

Héraðsdómur Reykjavíkur

Mál nr. E-650/2018:

Vegagerðin

(Reynir Karlsson lögmaður)

gegn

Tryggingamiðstöðinni hf

(Hjörleifur Kvaran lögmaður)

Bifreiðir. Skaðabætur. Vátrygging.

Vörubifreið sem ekið var af réttindalausum ökumanni á miklum hraða valt í Ártúnsbrekku og dreifðist möl yfir götuna. Kröfur stefnanda um bætur vegna hreinsun vegarins var hafnað þar sem hlutaverk stefnanda samkvæmt lögum væri að halda vegum greiðfærum og lagaheimild skorti til að innheimta kostnað við hreinsun vega.

Mál þetta er höfðað með birtingu stefnu þann 27. febrúar 2018 og dómtekið 22. nóvember 2018. Stefnandi er Vegagerðin, Borgatúni 5–7, Reykjavík og stefndi Tryggingamiðstöðin hf., Síðumúla 24, Reykjavík.

Stefnandi   krefst   þess   að   viðurkennd   verði   skaðabótaskylda   stefnda   úr ökutækjatryggingu einkahlutafélagsins Karínu kt. 560604-3190 vegna óhapps sem varð þegar vörubifreið þess, KY-779 með festivagninum JV-B72 valt í Ártúnsbrekku   í   Reykjavík   25.   júlí   2015,   með   þeim   afleiðingum   að   möl   sem vörubifreiðin   flutti   dreifðist   um   stóran   hluta   vegarins   og   leiddi   til   tjóns   fyrir stefnanda   vegna   kostnaðar   við   hreinsun   á   veginum.   Þá   krefst   stefnandi málskostnaðar. Stefndi krefst sýknu af kröfum stefnanda auk málskostnaðar.

I.

Þann 20. júlí 2015 valt vörubifreiðin KY-779 með festivagninum JV-B72 í Ártúnsbrekku í Reykjavík. Vörubifreiðin var að flytja möl, sem hafði verið mokað upp á festivagninn. Við bílveltuna dreifðist möl um stóran hluta vegarins og varð að loka aðliggjandi götum vegna þessa. Samkvæmt lögregluskýrslu var bifreiðinni miðað við ökuritaskífu hennar, ekið á nálægt 100 kílómetra hraða þegar hún valt. Við   bílveltuna   voru   gerðar   ráðstafanir   til   þess   að   fjarlægja   bifreiðina   og festivagninn af vettvangi. Unnu stefnandi og verktakar sem voru kallaðir til að hreinsun götunnar. Kostnaður stefnanda vegna þessa var 354.077 krónur. Stefnandi sendi   stefnda   reikning   vegna   þessa.   Stefndi   hafnaði   greiðsluskyldu   með   bréfi dagsettu   28.   október   2015.   Stefnandi   skaut   málinu   til   úrskurðarnefndar   í vátryggingarmálum. Með úrskurði nefndarinnar þann 17. október 2016 var því hafnað   að   stefnandi   ætti   rétt   til   greiðslu   skaðabóta   úr   lögboðinn   vátryggingu eiganda vörubifreiðarinnar hjá stefnda. Í úrskurðinum er vísað til þess að það sé lögbundið   hlutverk   stefnanda   að   annast   þjónustu   og   viðhald   vega   og   engin lagaheimild sé til sérstakrar gjaldtöku vegna kostnaður við hreinsun vega óháð því hvernig til hans sé stofnað.

Ágreiningur stefnanda og stefnda snýst um hvor eigi að bera kostnað af hreinsun vegarins.

II.

Helstu málsástæður stefnanda

Stefnandi byggir á því að í veghaldi samkvæmt 1. mgr. 13. gr. vegalaga nr. 80/2007 felist forræði yfir vegi og vegsvæði, þ.m.t. þjónusta og viðhald vega, sbr. 5. tl. 1. mgr. 3. gr. sömu laga. Í því felist hins vegar ekki að stefnandi geti ekki átt einkaréttarlegar kröfur vegna tjóns sem þriðji aðili veldur á vegum. Þvert á móti leiði þetta hlutverk hans til þess að hann geti sótt skaðabætur til þriðja aðila, enda séu bótaskilyrði að öðru leyti uppfyllt. Fráleitt sé að að undanþiggja íslenska ríkið eða stofnanir þess rétti til að sækja bætur við slíkar aðstæður.

Stefnandi vísar til þess að réttur til að sækja skaðbætur til þeirra sem valdi tjóni á vegum sé óháður því hvort heimild sé í lögum til sérstakrar gjaldtöku. Krafa stefnanda   sé   ekki   slík   krafa,   heldur   skaðabótakrafa   sem   hafi   stofnast   vegna notkunar á skráningarskyldu ökutæki. Eigandi ökutækisins sem ber ábyrgð á því, sbr. 1. mgr. 90. gr umferðarlaga nr. 50/1987, sbr. 1. mgr. 88. gr. laganna, hafi keypt lögbundna ábyrgðartryggingu hjá stefnda í samræmi við a-lið 1. mgr. 91. gr sömu laga.

Stefnandi vísar til þess að skilmálar ökutryggingarinnar, sbr. grein 2.1 taki til sérhverrar   skaðabótakröfu   samkvæmt   umferðarlögum   sem   hljótist   af   notkun ökutækisins, þ.m.t. tjóns sem stefnandi varð fyrir vegna hreinsunar á veginum sem er bein afleiðing af notkun ökutækisins í skilningi 88. gr. umferðarlaga nr. 50/1987, enda bifreiðin í eðlilegri notkun sem vörubifreið þegar óhappið varð.

Stefnandi vísar til þess að hraði vörubifreiðarinnar hafi verið nálægt 100 km á klukkustund þegar slysið varð og því hafi verið um stórkostlegt gáleysi að ræða hjá ökumanni hennar, sem ekki hafi haft réttindi til að aka bifreið af þessari stærð. Háttsemi   hans   hafi   því   verið   saknæm   og   ólögmæt   og   bótaskilyrði   almennu skaðabóta-reglunnar   uppfyllt,   enda   tjón   stefnanda   sennileg   afleiðing   þessarar háttsemi.

Stefnandi telur að möl á vegi sem raski öryggi umferðar og rekja megi til venjulegrar notkunar ökutækis falli undir 2. mgr. 47. gr. vegalaga sem heimili stefnanda að fjarlægja óviðkomandi hluti af vegi eða vegasvæði á kostnað eiganda.

III.

Helstu málsástæður stefnda

Stefndi byggir á því að sá sem höfðar mál til viðurkenningar skaðabótaskyldu verði að leiða nægar líkur að því að hann hafi orðið fyrir tjóni, í hverju tjón hans felst og hver tengsl þess séu við atvik málsins.

Stefndi byggir sýknukröfu sína á því að þau lagaákvæði sem stefnandi vísar til, þ.e. 88. gr. og 90. gr. umferðarlaga nr 50/1987, eigi ekki við um það tilvik sem krafist er að verði viðurkennt sem bótaskylt. Stefnandi vísar til skrifa fræðimanna þar sem með orðinu tjón, í skilningi laganna, sé átt við tjón á mönnum eða munum. Þetta hafi komið skýrt fram í eldri lögum og í greinargerð með núverandi lögum sé sérstaklega tekið fram að ekki hafi staðið til að víkka gildissvið laganna þannig að orðið taki einnig til tjóns sem hvorki má rekja til líkamsmeiðsla né skemmda á munum.

Stefndi byggir sýknukröfu sína jafnframt á því að stefnandi sé opinber aðili sem sé ekki heimilt að taka gjald fyrir veitta þjónustu nema lög heimili það sérstaklega. Stefnandi hafi lögbundna tekjustofna og megi nefna sem dæmi 2. mgr. 23. gr. laga um olíugjald og kílómetragjald nr. 87/2004, en skattur sem þar er sérstaklega lagður á eldsneyti rennur til stefnanda.

Stefndi vísar til þess að veghald þjóðvega er eitt helsta verkefni stefnanda samkvæmt vegalögum nr. 80/2007. Í lögunum er veghald þjóðvega skilgreint sem forræði   yfir   vegi   og   vegsvæði,   þ.m.t.   vegagerð,   þjónusta   og   viðhald   vega.   Í vegalögum   sé   hvergi   að   finna   heimild   til   sérstakrar   gjaldtöku   fyrir   að   sinna lögbundnu hlutverki við veghald eða sækja greiðslur til þriðja aðila, þó að ítarlega sé fjallað um hlutverk stefnanda sem veghaldara í IV. kafla vegalaga. Í 46. gr. laganna sé kveðið á um að veghaldari beri ábyrgð á því að vegir sem opnir eru almenningi til frjálsrar umferðar uppfylli kröfur sem gerðar eru með tilliti til öryggis umferðar, ástands vega, merkinga og annarra þátta sem kveðið er á um í lögunum.

IV.

Niðurstaða

Samkvæmt 1. mgr. 88. gr. umferðarlaga nr. 50/1987 ber þeim sem ábyrgð ber á skráningarskyldu   vélknúnu   ökutæki   að   bæta   tjón   sem   hlýst   af   notkun   þess. Samkvæmt 1.mgr. 90. gr er það eigandi ökutækis sem ber ábyrgðina. Skráður eigandi bifreiðarinnar keypti ábyrgðartryggingu hjá stefnda í samræmi við 1. mgr. 91. gr. og 93. gr. laga nr. 50/1987. Enginn ágreiningur er um að kröfunni sé því réttilega beint að stefnda.

Samkvæmt 12. gr. vegalaga nr. 80/2007 ber stefnandi sem veghaldari ábyrgð á veghaldi vegar. Við veghaldið skal gæta umferðaröryggis og að umferð eigi greiða og góða leið um vegi. Með veghaldi er átt við forræði yfir vegi og vegsvæði, þ.m.t. vegagerð, þjónustu og viðhald vega, samanber 5. tl. 3. gr. vegalaga nr. 80/2007. Samkvæmt 15. gr. vegalaga hefur veghaldari eftirlit með því að veghaldi allra vega sem ætlaðir eru almenningi til frjálsrar umferðar og kostaðir eru af fé ríkisins sé sinnt í samræmi við ákvæði laganna og ber honum að hlutast til um úrbætur ef út af bregður. Samkvæmt 46. gr. vegalaga skulu vegir sem opnir eru almenningi uppfylla kröfur sem gerðar eru með tilliti til öryggis umferðar, ástands vega og annarra þátta sem veghaldari ber ábyrgð á. Skyldur stefnanda samkvæmt vegalögum eru því ótvíræðar.

Í vegalögum er ekki að finna heimild til gjaldtöku til handa stefnanda fyrir að sinna lögbundnu hlutverki sínu sem veghaldari, að öðru leyti en því að veghaldara er samkvæmt 47. gr. vegalaga nr. 80/2007 heimilt að fjarlægja á kostnað eiganda óviðkomandi hluti eða muni sem skildir hafa verið eftir á eða við vegsvæði og geta valdið hættu á slysum. Ekki verður fallist á að undir ákvæðið heyri afleiðingar slyss sem leiðir til þess að brak eða munir sem nauðsynlegt er að fjarlægja falla á vegsvæði. Slys eru óhjákvæmilegur fylgifiskur umferðar og geta leitt til þess að nauðsynlegt  verði   að   hreinsa   vegsvæðið   til  að   tryggja  greiðfæra  umferð.   Það hlutverk er í höndum stefnanda sem þarf að standa straum af þeim kostnaði. Afleiðingar slysa geta óhjákvæmilega leitt til útgjalda ýmissa stofnana ríkisins sem reknar eru fyrir almannafé á grundvelli lögbundinna tekjustofna. Þessar stofnanir geta ekki framvísað þeim kostnaði sem fellur til af þessum ástæðum til þriðja aðila án lagaheimildar. Sá kostnaður sem stefnandi varð fyrir við hreinsun vegarins eftir að vörubifreiðin fór á hliðina er því þáttur í lögbundnu hlutverki stefnanda við veghald eins og það er ákveðið í vegalögum. Þetta lögbundna hlutverk og skortur á skýrri lagaheimild til gjaldtöku leiðir til þess að ekki er unnt að fallast á að kostnaður við hreinsun á möl eftir að bifreiðin valt á hliðina falli undir tjón í skilningi 1. mgr. 88. gr. laga nr. 50/1987.

Með   hliðsjón   af   framangreindu   verður   því   að   hafna   kröfu   stefnanda   um viðurkenningu á skaðabótaskyldu stefnda úr ökutækjatryggingu vegna kostnaðar við hreinsun á veginum Eftir atvikum þykir rétt að málskostnaður falli niður. Af hálfu stefnanda flutti málið Reynir Karlsson lögmaður. Af hálfu stefnda flutti málið Hjörleifur Kvaran lögmaður. Helgi Sigurðsson, héraðsdómari kvað upp dóm þennan.

D ó m s o r ð:

Stefndi, Tryggingamiðstöðin hf., er sýknaður af kröfum stefnanda. Málskostnaður fellur niður.

Helgi Sigurðsson (sign.)