Fara í efni

Dómstólaleit

Leit í dómum íslenskra dómstóla

Leita í öllum dómstólum...

Niðurstöður

122 dómar fundust

Lykilorð: Gallar

Héraðsdómur Reykjavíkur birt 17. febrúar 2026

E-679/2023

Karólína Þórðardóttir og Hringur Pjetursson (Gísli Guðni Hall lögmaður) gegn Hannesi Ríkarðssyni (Sveinbjörn Claessen lögmaður)

Stefnendur keyptu fasteign af stefnda. Eignin reyndist haldin leyndum göllum, sem metnir voru í yfirmatsgerð að umfangi sem nam 15,6% af kaupverði eignarinnar. Stefnendur héldu eftir lokagreiðslu kaupverðsins og höfða málið aðallega til ógildingar eða riftunar kaupsamningsins en til vara til skaðabóta frá stefnda eða afsláttar af kaupverði vegna gallanna. Ekki var fallist á kröfur stefnenda um ógildingu eða riftun kaupanna, en stefnda var gert að greiða stefnendum þá fjárhæð sem samkvæmt yfirmati þótti hæfileg til úrbóta á göllunum ásamt dráttarvöxtum, en að frádregnum gagnkröfum stefnda um eftirstöðvar kaupverðs og kostnað sem stefndi hafði haft af eigninni eftir umsaminn afhendingardag hennar.

Héraðsdómur Suðurlands birt 3. október 2025

E-557/2024

Fundur fasteignafélag ehf (Reynir Þór Garðarsson lögmaður) gegn Landsbankanum hf (Stefán Geir Þórisson lögmaður)

Stefndi var sýknaður af skaðabótakröfu stefnanda þar sem ekki var fallist á að hann ætii rétt til skaðabóta eða afsláttar samkvæmt ákvæðum fasteignakaupalaga vegna ágalla þeirra sem á fasteigninni voru vegna ákvæða 1. mgr. 29. gr. laganna þótt þeir myndu að líkindum teljast gallar í skilningi laganna.

Héraðsdómur Norðurlands eystra birt 16. maí 2025

E-136/2024

Stefanía Guðlaug Steinsdóttir og Sólveig Helgadóttir (Friðrik Smárason lögmaður) gegn Þorleifi Gestssyni (Sveinbjörg Birna Sveinbjörnsdóttir lögmaður)

Mál kaupenda á hendur seljanda vegna galla í fasteign. Fallist var á kröfu kaupenda um riftun kaupsamnings og einnig á hluta kröfu þeirra um greiðslu skaðabóta.

Héraðsdómur Reykjaness birt 17. janúar 2025

E-925/2024

Svandís Alexía Sveinsdóttir Hafsteinn Einar Ágústsson (Björgvin Helgi Fjeldsted Ásbjörnsson lögmaður) gegn Katrínu Vilhelmínu Tómasdóttur (Hildur Ýr Viðarsdóttir lögmaður)

Fallist var á hluta kröfu stefnenda um afslátt af kaupverði vegna galla sem rekja mátti til raka sem í ljós kom um tveimur árum eftir afhendingu fasteignarinnar. Mat meirihluti dómsins það svo að stefnendur hefðu með matsgerð löggilts fasteignasala sýnt fram á vermætisrýrnun fasteignarinnar.

Héraðsdómur Reykjavíkur birt 16. desember 2024

E-3023/2022

Dánarbú Magnúsar Jónssonar, Daníel Ágúst Þórisson og Austur 3 ehf (Hallmundur Albertsson lögmaður) gegn Gamma ehf (Einar Brynjarsson lögmaður)

Stefnendur kröfðu stefnda um greiðslu eftirstöðva kaupverðs vegna kaupa á hlutum í félagi sem átti tvær fasteignir. Stefndi bar fyrir sig að hann ætti gagnkröfur til skuldajafnaðar vegna meintra galla á annarri fasteigninni. Lagt var til grundvallar að lög nr. 40/2002 um fasteignakaup ættu við um viðskipti aðila. Dómurinn komst að þeirri niðurstöðu að ágallar á eigninni rýrðu ekki verðmæti hennar svo nokkru varðaði í skilningi 18. gr. laganna. Þá var ekki fallist á aðrar málsástæður sem stefndi byggði á. Því var fallist á dómkröfur stefnenda.

Héraðsdómur Suðurlands birt 8. nóvember 2024

E-645/2023

Ólöf Kolbrún Sigurðardóttir (Þórir Helgi Sigvaldason lögmaður) gegn Jóni Maríasi Arasyni (Sigurbjörn Ársæll Þorbergsson lögmaður)

Aðila greindi á um hvort fasteign sem stefnandi keypti af stefnda væri haldinn göllum. Í málinu gerði stefnandi kröfu um greiðslu rúmlega 25 milljóna króna skaðabóta vegna meintra galla á fasteigninni auk útgáfu afsals sér til handa. Var stefndi dæmdur til að greiða stefnanda tæpar fimmtán milljónir auk vaxta og málskostnaðar, auk þess sem honum var skylt að gefa út afsal fyrir hinni umdeildu fasteign. Þá var ekki fallist á frávísunarkröfu stefnda í málinu.

Héraðsdómur Reykjaness birt 27. mars 2024

E-940/2021

Lilja Karen Þrastardóttir og Tómas Þór Jacobsen (Ólafur Kjartansson lögmaður) gegn Jóni Vilhelm Pálssyni (Friðleifur Egill Guðmundsson lögmaður)
Lykilorð: Fasteignakaup. Gallar.

Stefndi var sýknaður af kröfu um skaðabætur vegna meintra galla í fasteign. Var talið að stefndi hefði ekki sýnt af sér saknæma háttsemi við sölu á fasteign sinni. Stefndi var hins vegar látinn bera kostnað við endurbætur á því sem hann hafði lýst yfir að væri ný- eða nýlega viðgert í húsinu.

Héraðsdómur Reykjavíkur birt 14. febrúar 2024

E-5934/2021

Þórður Daníel Ólafsson (Þórður Heimir Sveinsson lögmaður) gegn Einari Birni Jónssyni og Helenu Vattar Baldursdóttur (Axel Kári Vignisson lögmaður)

Kaupendur einbýlishúss héldu eftir greiðslum á hluta af kaupverði hússins eftir afhendingu þess þar sem þau töldu að eignin væri gölluð. Í þessu máli, sem seljandinn höfðaði til innheimtu vangoldis kaupverðs, öfluðu kaupendur matsgerða um meinta galla og kostnað við úrbætur og kröfðust þess að sá kostnaður yrði dreginn frá skuldinni og að seljandinn greiddi þeim það sem umfram væri. Dómurinn taldi seljanda bera ábyrgð á sumum af þeim göllum sem metnir höfðu verið og var kostnaði við úrbætur á þeim skuldajafnað upp í kröfu hans um greiðslu kaupverðs, en kaupendum gert að greiða það sem eftir stóð af skuldinni.

Héraðsdómur Norðurlands eystra birt 14. júlí 2023

E-177/2022

Þórir Jón Ásmundsson og Margrét Hjaltadóttir (Sigmundur Guðmundsson lögmaður) gegn Margréti Árnadóttur og Sigurði Hjaltasyni (Sunna Axelsdóttir lögmaður)
Lykilorð: Fasteignakaup. Gagnsök. Gallar.

Aðalstefnendur höfðuðu mál til heimtu eftirstöðva kaupverðs fasteignar. Gagnstefnendur kröfðust sýknu og bóta eða afsláttar úr hendi aðalstefnenda vegna galla á fasteigninni. Ekki þótti sýnt að aðalstefnendur hefði sýnt af sér saknæma háttsemi og ekki heldur að umfang gallans hafi rýrt verðmætið svo nokkru varðaði í skilningi 18. gr. laga um fasteignakaup. Krafa aðalstefnenda var því tekin til greina.

Héraðsdómur Reykjaness birt 14. júní 2023

E-431/2023

Bartlomiej Piotr Ambroz og Katarzyna Piotrowska (Eva Hauksdóttir lögmaður) gegn South Properties ehf., Reykjanesbæ (Unnar Steinn Bjarndal lögmaður), R.Sól slf. og Vátryggingafélagi Íslands hf. (Guðmundur Ómar Hafsteinsson lögmaður)

Sprangkrafa. Stefnendur kröfðu alla stefndu um greiðslu skaðabóta vegna meints galla í fasteign er þau keyptu á árinu 2017. Byggðu þau á því að þáverandi byggingafulltrúi Reykjanesbæjar hefði brotið lög vegna lokaúttektar hússins og með því hafi byggingin verið seld gölluð. Þá var byggt á að seinni byggingaraðilinn hafi ekki fylgt reglum um lokaúttektir og gefið vísvitandi rangar upplýsingar um byggingastig hússins. Einnig var byggt á því að fasteignasalan hefði gegn betri vitund gefið vísvitandi upp villandi upplýsingar um byggingarstig eignarinnar í söluyfirliti í öll þau skipti er eignin hafði verið seld. Voru öll stefndu sýknuð af kröfum stefnenda.

Héraðsdómur Reykjavíkur birt 31. mars 2023

E-3639/2022

Eva Sólveig Þórðardóttir og Tómas Þorbjörn Ómarsson (Davíð Örn Guðnason lögmaður) gegn Sjóvá-Almennum tryggingum hf., ÆBS ehf. (Kristín Edwald lögmaður), Ægi Breiðfjörð Sigurgeirssyni Guðmundi Stefáni Þorvaldssyni (Sigurbjörn Ársæll Þorbergsson lögmaður) og Lilju Dögg Gunnarsdóttur (Haukur Halldórsson lögmaður)

Ágreiningur hvort um varði að ræða galla í fasteign í skilningi laga nr. 40/2002 um fasteignakaup, að því er varðar geymsluskúr og bílskúr sem innréttaður var sem íbúð, svo og hvort stefnendur hafi orðið fyrir tjóni af þessum sökum og hvert það tjón hafi verið. Ekki fallist á að upplýsingagjöf hafi verið röng eða villandi og voru seljendur, fasteignasali og tryggingafélag sýknuð af kröfum kaupenda.

Héraðsdómur Reykjavíkur birt 3. janúar 2023

E-5418/2021

A og B (Hildur Ýr Viðarsdóttir lögmaður) gegn C og D, (Eiríkur Gunnsteinsson lögmaður) og gagnsök
Lykilorð: Fasteignakaup. Gallar.

Fallist á skaðabótaskyldu seljenda fasteignar gagnvart kaupendum þar sem þak hússins reyndist vera gallað meðal annars vegna vinnubragða manna sem seljendur höfðu fengið til að lagfæra kvist á þakinu. Þá voru seljendur einnig dæmdir til að greiða skaðabætur vegna leka með gluggum hússins og vegna ágalla á frárennslislögnum frá gestasalerni auk ófullnægjandi viðgerðar vegna múrskemmda. Bætur voru dæmdar í samræmi við niðurstöðu dómkvadds matsmanns en kröfum um bætur í samræmi við reikninga verktaka sem lagfærði þakið var á hinn bóginn vísað frá dómi vegna vanreifunar þar sem ekki lá fyrir að þeir endurspegluðu einvörðungu tjón kaupendanna. Þá var ekki var fallist á skaðabótaskyldu seljenda vegna fjármagnskostnaðar sem kaupendur gerðu kröfu um þar sem endurfjármögnun verðtryggðs láns hefði tafðist um tíu mánuði.

Héraðsdómur Suðurlands birt 14. nóvember 2022

E-32/2022

Rakel Ýr Gunnlaugsdóttir og Ryan Christopher Maskell (Sævar Þór Jónsson lögmaður) gegn Súsönnu Björk Torfadóttur og Ásmundi Þóri Ólafssyni (Heiðar Ásberg Atlason lögmaður)
Lykilorð: Fasteignakaup. Gallar.

Stefndu voru dæmd til að greiða stefnendum tæpar sex milljónir króna í skaðabætur vegna galla á húsi er stefnendur keyptu af stefndu árið 2019. Fallist var á með stefnendum að gallar hefðu verið á fasteignin sem rekja mætti til drenlagnar, raka í gólfplötu, frágangi glugga og myglu. Ekki var fallist á með stefnendum að óeinangruð og óþétt útidyrahurð og hrörlegt ástand geymslu á lóðinni teldist til galla á eigninni í skilningi fasteignakauparéttar.

Héraðsdómur Reykjaness birt 9. nóvember 2022

E-470/2022

Jóhannes Reynisson, Ásdís Runólfsdóttir og Sólveig Þóra Jóhannesdóttir (Einar Gautur Steingrímsson lögmaður) gegn Reykjanesbæ (Elías Kristjánsson lögmaður), Jóhanni Kristjáni Arnarsyni og Berglindi Kristjánsdóttur (Þórir Skarphéðinsson lögmaður), Kristvinu Magnúsdóttur og Guðmundi Pétri Meekosha (Sigurgeir Valsson lögmaður) og og Ingibjarti Jóhannessyni (Ólafur Rúnar Ólafsson lögmaður)

Stefnendur kröfðust bóta úr hendi stefndu vegna galla á fasteign sem þau festu kaup á árið 2016. Beindu þau kröfum sínum að R vegna vanrækslu við eftirlit með framkvæmdum við byggingu fasteignarinnar á grundvelli skipulags- og byggingarlaga nr. 73/1997, I sem byggingarstjóra og G og K sem seljendum fasteignarinnar á grundvelli laga nr. 40/2002 um fasteignakaup. Loks beindu þau kröfu að J og B sem fyrri eigendum og húsbyggjendum eignarinnar. Í dómi héraðsdóms voru stefndu R, G, K, J og B dæmd óskipt til greiðslu bóta vegna alls tjóns stefnenda að undanskildu tjóni vegna afnotamissis. Var matsgerð dómkvadds matsmanns lögð til grundvallar við mat á viðgerðarkostnaði. I var hins vegar sýknaður, m.a. vegna fyrningar krafna á hendur honum.

Héraðsdómur Reykjaness birt 5. október 2022

E-1524/2021

Guðbjörg H. Pálsdóttir og Hjörtur Berg Stormsson (Stefán Bjarni Gunnlaugsson lögmaður) gegn Ernu Óladóttur og Guðfinnu Þórdísi Gunnarsdóttur (Sævar Þór Jónsson lögmaður)

Stefndu gert að greiða stefnendum eftirstöðvar kaupverðs fasteignar, sem voru 2.100.000 krónur, þó þannig að stefndu ættu rétt á afslætti sem næmi 688.613 krónur.

Héraðsdómur Reykjavíkur birt 23. júní 2022

E-5284/2021

Hulda Jóhannsdóttir og Ólafur Már Símonarson (Jón Auðunn Jónsson lögmaður) gegn Jónasi P. Aðalsteinssyni (Sigrún Ísleifsdóttir lögmaður)

Stefndi var sýknaður af kröfu stefnenda um skaðabætur eða afslátt vegna galla á fasteign sem þau keyptu af honum. Að mati dómsins var fasteignin haldin göllum við afhendingu hennar en sýkna var byggð á því að stefnendur hefðu glatað rétti sínum til að senda tilkynningu til stefnda um gallana þegar fimm ár voru liðin frá afhendingu. Hefði stefndi enda hvorki tekist á hendur sérstaka ábyrgð né hefði hann sýnt af sér stórkostlegt gáleysi eða framferði hans strítt með öðrum hætti gegn heiðarleika og góðri trú. Þá var krafa stefnenda talin fyrnd þegar málið var höfðað.

Héraðsdómur Reykjaness birt 22. júní 2022

E-3080/2020

Einar Valgeirsson og Unnur Magnea Magnadóttir (Arnar Ingi Ingvarsson lögmaður) gegn Skúla Þórarinssyni, Svövu Björnsdóttur, Skúli Þórarinsson og Svava Björnsdóttir (Jón Þór Ólason lögmaður)
Lykilorð: Fasteignakaup. Gallar.

Seljendur fasteignar kröfðust greiðslu á eftirstöðvum kaupverðs fasteignar. Kaupendur héldu eftir lokagreiðslu vegna meints galla í fasteigninni sem seljendur hefðu átt að upplýsa þau um. Var talið ósannað að seljendur hafi vitað um galla í þaki og ástands þaks en þau höfðu bent á að þakkantur væri orðinn lélegur. Húsið var byggt um 1980. Þá máttu kaupendur sjá við skoðun hússins galla sem þau báru fyrir sig. Voru seljendur sýknaðir af skaðabótakröfum kaupenda og kaupendur dæmdir til að greiða seljendum eftirstöðvar kaupverðsins gegn útgáfu afsals.

Héraðsdómur Reykjaness birt 29. apríl 2022

E-3365/2020

Málið nr. E-3365/2020 Snorri ehf (Jóhannes Albert Sævarsson lögmaður) gegn X (Guðmundur Ágústsson lögmaður)

Stefnandi byggði raðhús í Hafnarfirði og fól fasteignasölu að selja eignirnar á byggingarstigi. Stefndi var meðal kaupenda. Afhending eignarinnar dróst í um 18 mánuði og gerðu aðilar með sér samkomulag um greiðslu tafabóta. Haustið 2020 átti stefndi enn ógreiddar 9.000.000 krónur af umsömdu kaupsamningsverði en vildi að til frádráttar kæmu 5.400.000 króna tafabætur. Þá bar stefndi fyrir sig ýmsa galla á smíði og frágangi húss og lóðar. Fór svo að stefnandi höfðaði mál til heimtu ógreidds kaupverðs. Stefndi tók til varna og krafðist sýknu á grundvelli skuldajafnaðar enda ætti hann mun hærri kröfu á hendur stefnanda en sem næmi ógreiddum 9.000.000 króna eftirstöðvum kaupverðs. Fjölskipaður héraðsdómur féllst á sjónarmið stefnda, m.a. á grundvelli matsgerðar dómkvadds sérfræðings, og sýknaði stefnda af öllum dómkröfum stefnanda. Jafnframt var stefnandi dæmdur til að greiða stefnda 3.000.000 krónur í málskostnað.

Héraðsdómur Suðurlands birt 25. apríl 2022

E-496/2021

Jón H Jónsson Helga Ósk Ólafsdóttir (Þuríður Kristín Halldórsdóttir lögmaður) gegn Magnúsi Engilbert Lárussyni Eddu Björk Magnúsdóttur (Sverrir Sigurjónsson lögmaður)

Vísað var frá dómi framhaldsgagnstefnu með vísan til þess að hún væri of seint fram komin. Var það metið framhaldsgagnstefnendum til vanrækslu að hafa ekki gert kröfur sínar í tæka tíð enda liðu rétt rúm tvö ár frá því að framhaldsgagnstefnendur fengu eignina afhenta þar til þau höfðuðu framhaldsgagnsökina og um eitt og hálft ár frá höfðun aðalsakar til höfðunar framhaldsgagnsakar.

Héraðsdómur Reykjavíkur birt 5. apríl 2022

E-803/2021

A (Hildur Ýr Viðarsdóttir lögmaður) gegn B, C (Hjörleifur Kvaran lögmaður) og D (Kristín Edwald lögmaður)
Lykilorð: Fasteignakaup. Gallar.

Stefnandi hafði keypt íbúð í fjöleignarhúsi árið 2017 af móður stefndu sem féll síðar frá. Stefndu var stefnt sem erfingjum hennar. Fjöleignarhúsið reyndist haldið þeim galla að álklæðing utan á húsinu var talin ónýt svo stefnandi þurfti að greiða umtalsverðan kostnað sem hlaust af því að klæða þurfti húsið með nýrri klæðingu. Stefndu voru dæmd til að greiða stefnanda skaðabætur þar sem í ljós kom eftir kaupin að þessum galla hafði verið slegið föstum með dómi Hæstaréttar á árinu 2007 og húsfélagi íbúa í húsinu dæmdar skaðabætur sem tóku mið af hluta kostnaðar við að skipta um klæðninguna. Í stað þess að nýta dæmdar bætur til að skipta um klæðningu var ákveðið á vettvangi húsfélagsins að hagnýta einungis hluta bótanna til ýmissa endurbóta og viðhalds á húsinu en greiða nærri 40% fjárhæðarinnar hlutfallslega til íbúðareigenda í fjöleignarhúsinu þeim til frjálsrar ráðstöfunar.

Héraðsdómur Reykjavíkur birt 5. apríl 2022

E-1093/2021

A (Páll Kristjánsson lögmaður) gegn B, C, D og E (Hjörleifur Kvaran lögmaður)
Lykilorð: Fasteignakaup. Gallar.

Stefnandi hafði keypt íbúð í fjöleignarhúsi árið 2017 af móður stefndu sem féll síðar frá. Stefndu var stefnt sem erfingjum hennar. Fjöleignarhúsið reyndist haldið þeim galla að álklæðing utan á húsinu var talin ónýt svo stefnandi þurfti að greiða umtalsverðan kostnað sem hlaust af því að klæða þurfti húsið með nýrri klæðingu. Stefndu voru dæmd til að greiða stefnanda skaðabætur þar sem í ljós kom eftir kaupin að þessum galla hafði verið slegið föstum með dómi Hæstaréttar á árinu 2007 og húsfélagi íbúa í húsinu dæmdar skaðabætur sem tóku mið af hluta kostnaðar við að skipta um klæðninguna. Í stað þess að nýta dæmdar bætur til að skipta um klæðningu var ákveðið á vettvangi húsfélagsins að hagnýta einungis hluta bótanna til ýmissa endurbóta og viðhalds á húsinu en greiða nærri 40% fjárhæðarinnar hlutfallslega til íbúðareigenda í fjöleignarhúsinu þeim til frjálsrar ráðstöfunar.

Héraðsdómur Norðurlands eystra birt 28. febrúar 2022

E-414/2020

H-Fasteignir ehf (Ólafur Rúnar Ólafsson lögmaður) gegn Mælifellshnjúki ehf (Gunnar Ingi Jóhannsson lögmaður)

Stefndi dæmdur til að greiða stefnanda eftirstöðvar kaupverðs fasteignar gegn útgáfu afsals. Eignin var ekki talin haldin galla svo stefnda var ekki rétt að halda eftir síðustu greiðslunni.

Héraðsdómur Norðurlands eystra birt 12. nóvember 2021

E-263/2021

Unnsteinn Rúnar Kárason og Jóhanna María Agnarsdóttir (Árni Pálsson lögmaður) gegn Grettistaki - verktaka ehf (Ómar R. Valdimarsson lögmaður)

Fallist á kröfur kaupenda um að seljandi gæfi út afsal gegn greiðslu eftirstöðva kaupverðs að frádreginni lækkun vegna galla, sem staðfestir voru með matsgerð. Af hálfu stefnda var ekki skilað greinargerð í málinu innan tilskilins frests.

Héraðsdómur Reykjaness birt 10. nóvember 2021

E-3366/2020

Ari Leifur Jóhannsson og Elsa Rut Sigurðardóttir (Harpa Hörn Helgadóttir lögmaður) gegn Sigríði Rut Jónsdóttur (Þorbjörg Inga Jónsdóttir lögmaður)

Stefnendur/seljendur fasteignar kröfðu stefndu/kaupanda um eftirstöðvar kaupverðs, sem haldið hafði verið eftir. Sannað þótti að stefnendur hefði ekki upplýst stefndu um að engir fagaðilar hefðu komið að nýlegum breytingum á eigninni, sem reyndust að hluta til gallaðar. Var fallist á gagnkröfu stefndu til skuldajöfnunar, sem studd var matsgerð, og stefnda sýknuð, og stefnendum gert að gefa út afsal til stefndu.

Héraðsdómur Suðurlands birt 4. október 2021

E-785/2020

Matthildur Ernudóttir og Sigurjón Ólafsson (Sigurgeir Valsson lögmaður) gegn Fasteignafélaginu Kletti ehf (Þórir Helgi Sigvaldason lögmaður)

Staðfest var riftun stefnenda á kaupsamningi aðila um fasteign og stefnda gert að endurgreiða stefnendum umsamið kaupverð auk vaxta og dráttarvaxta. Þá var stefndi og dæmdur til að greiða stefnendum skaðabætur auk dráttarvaxta, sem og málskostnað.

Héraðsdómur Reykjaness birt 5. júlí 2021

E-3237/2020

Landsbankinn hf (Stefán Geir Þórisson lögmaður) gegn ÞórsHvammi ehf (Skúli Bjarnason lögmaður)
Lykilorð: Fasteignakaup. Gagnsök. Gallar.

Aðalstefnandi stefndi aðalstefnda til greiðslu á hluta kaupverðs fyrir fasteign sem aðalstefndi keypti af aðalstefnanda. Aðalstefndi gagnstefndi í málinu og krafðist sjálfstæðs dóms vegna fjölda galla á fasteigninni og byggði kröfu sína á matsgerð dómkvadds matsmanns. Var öllum kröfum gagnstefnanda hafnað og aðallega byggt á því að skorað hafi verið á hann að skoða eignina með sérfræðingum þar sem eignin í fyrsta lagi hafði verið byggð árið 1931 og í öðru lagi hafði aðalstefnandi eignast eignina á uppboði og hafði ekki búið í henni og gat því ekki borið um ástand hennar. Þá var sérstaklega tekið fram í söluyfirlitum að ekki væri vitað um ástand raf-, vatns- og frárennslislagna né þaks. Var gagnstefndi sýknaður af öllum kröfum gagnstefnanda og aðalstefnda gert að greiða eftirstöðvar kaupverðsins.

Héraðsdómur Reykjaness birt 29. júní 2021

E-886/2020

Sigþór Ingi Sigþórsson og Vigdís Ester S. Halldórsdóttir (Magnús Guðlaugsson lögmaður) gegn Rafni Einarssyni (Haukur Örn Birgisson lögmaður)

Stefnda gert að greiða stefnendum 5.077.212 krónur vegna galla í nýbyggingu. Fallist var á að stefnendum hefðu átt rétt til skuldajöfnunar og ættu rétt á útgáfu afsals fyrir eigninni.

Héraðsdómur Reykjavíkur birt 19. apríl 2021

E-1546/2019

A og B (Ólafur Kjartansson lögmaður) gegn C (Steinbergur Finnbogason lögmaður)

Seljanda fasteignar gert að greiða skaðabætur þar sem breytingar á fasteigninni voru án byggingarleyfa og byggingarfulltrúi hafði krafist þess að eignin yrði færð í upprunalegt horf sem seljandinn upplýsti kaupendur ekki um.

Héraðsdómur Reykjaness birt 15. apríl 2021

E-480/2020

Ásta María Guðmundsdóttir (Ágúst Ólafsson lögmaður) gegn Orra Frey Gíslasyni, Gísla Hafsteini Gunnlaugssyni, DN ehf, Hauki Halldórssyni, Magnúsi Guðlaugssyni, til réttargæslu og Verði tryggingum hf (Jón Þór Ólason lögmaður)

Stefnandi krafðist bóta úr hendi stefndu vegna galla á fasteign sem hún hafði keypt af stefndu G og O. Taldi hún gallana fólgna í því að stefndu hefði vanrækt upplýsingaskyldu sína við kaupin og látið hjá líða að upplýsa hana með fullnægjandi hætti um fyrirhugaðar framkvæmdir á hinni keyptu eign. Í dómi héraðsdóms var því hafnað að skort hefði á fullnægjandi upplýsingar af hálfu stefndu og tekið fram að þær upplýsingar, sem fram hefði komið í tengslum við tilboðsgerð og gerð kaupsamnings, hefðu gefið stefnanda tilefni til þess að afla nánari upplýsinga um fyrirhugaðar framkvæmdir. Voru stefndu því sýknaðir af kröfum stefnanda.

Héraðsdómur Reykjaness birt 9. febrúar 2021

E-1857/2019

Dropasteinn ehf (Jón Egilsson lögmaður) gegn Herði Vilhjálmi Sigmarssyni (Þórhallur H. Þorvaldsson lögmaður)
Lykilorð: Fasteignakaup. Gallar.

Aðalstefnandi krafðist greiðslu eftirstöðva kaupverðs samkvæmt kaupsamningi um fasteign úr hendi gagnstefnanda. Í dómi héraðsdóms var krafa aðalstefnanda tekin til greina en kröfu gagnstefnanda vegna galla á hinni seldu eign skuldajafnað við kröfu aðalstefnanda.

Héraðsdómur Reykjaness birt 3. febrúar 2021

E-1668/2020

Húsfélagið Vesturgötu 18, húsfélagið Vesturgötu 20, Alda Sigurðardóttir, Ásgrímur Skarphéðinsson, Dröfn Hreiðarsdóttir, Einar Þór Daníelsson, Ingvar Guðmundsson, Svava Mathiesen, Ólafur Þór Ágústsson, Sigþór Sigmarsson, Sólrún Smáradóttir, Steinunn Jónsdóttir, Þröstur Erlingsson, Ævar Geirdal og Súsanna Guðbjörg Antonsdóttir (Stefán Árni Auðólfsson lögmaður) gegn Jóhanni Guðna Hlöðverssyni og Vátryggingafélagi Íslands til réttargæslu (Eiríkur Guðlaugsson lögmaður)

Stefnendur höfðuð mál á hendur byggingarstjóra og vátryggingafélagi vegna meintra galla í fasteign. Málinu var vísað frá dómi vegna vanreifunar.

Hleð fleiri dómum…