Fara í efni

Dómstólaleit

Leit í dómum íslenskra dómstóla

Héraðsdómur Suðurlands

Mál nr. S-206/2013:

Ákæruvaldið

(Ólafur Helgi Kjartansson lögreglustjóri)

gegn

Artur Marek

Szczodrowski

svofelldur

d ó m u r :

(sjálfur)

Eignaspjöll. Fangelsi. Fangelsi og sekt. Fésekt. Hegningarauki. Játningarmál. Sekt dæmd og fangelsi sem vararefsing. Skaðabætur. Skilorð. Skilorðsbundið fangelsi og sekt. Skilorðsbundnir dómar. Þjófnaður. Tilraun. Umferðarlagabrot.

Ákærði sakfelldur fyrir eignaspjöll, tilraun til kálþjófnaðar og akstur sviptur ökurétti. Þá var ákærði dæmdur til greiðslu skaðabóta. Fallið var frá kröfum á hendur meðákærðu undir meðferð málsins.

Mál þetta, sem þingfest var 16. maí sl. og dómtekið þann sama dag, er höfðað með ákæru útgefinni af lögreglustjóranum á Selfossi, þann 3. apríl 2013, á hendur Artur Marek Szczodrowski, kt. [...], og [A], kt. [...], [...]. Við þingfestingu málsins féll ákæruvaldið frá öllum kröfum gegn ákærðu [A], og varðar mál þetta því aðeins þátt ákærða Artur Marek, en hann er ákærður, „fyrir eignaspjöll, tilraun til þjófnaðar og umferðarlagabrot [...] með því að hafa aðfaranótt þriðjudagsins 14. ágúst 2012 valdið skemmdum á kálgarði í landi Bryðjuholts í Hrunamannahreppi, [...] með því að aka bifreiðinni MV-469 sviptur ökurétti inn í kálgarðinn þar sem bifreiðin festist og ákærð[i] [...] reynd[i] síðan að losa bifreiðina með spóli og raski og fyrir að hafa umrætt sinn reynt að stela u.þ.b. 400 kg af hvítkáli sem safnað hafði verið í haug fyrir aftan bifreiðina en ákærð[i] skild[i] eftir í kálgarðinum þar sem bifreið [...] festist, svo sem að framan greinir.

Teljast brota ákærð[a] varða við 1.m gr. 257. gr. og 244. gr., sbr. 1. mgr. 20. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940 og að auki við 1. mgr. 48. gr. umferðarlaga nr. 50, 1987, sbr. 1. mgr. 100. gr. sömu laga [...]. [...] Þess er krafist að ákærð[i] verði dæmd[ur] til refsingar og til greiðslu alls sakarkostnaðar.“

Þá er í ákæru tilgreind svohljóðandi einkaréttarkrafa: „Einkaréttarkrafa:

Í málinu gerir [B], kt. [...], kröfu f.h. [C] ehf. kt. [...] um að ákærðu verði með dómi gert að greiða skaðabætur að fjárhæð kr. 80.000,- auk dráttarvaxta samkvæmt 1. mgr. 6. gr. laga nr. 38/2001 um vexti og verðtryggingu frá 28. ágúst 2012 til greiðsludags.“

Ákærði mætti við þingfestingu máls þessa og lýsti því yfir að hann óskaði ekki eftir skipun verjanda. Ákærði viðurkenndi skýlaust að hafa gerst sekur um þá háttsemi sem honum er gefin að sök í ákæru. Þá samþykkti ákærði framkomna einkaréttarkröfu.

Með vísan til skýlausrar játningar ákærða og þar sem dómari taldi ekki ástæðu til að draga í efa að játning hans væri sannleikanum samkvæm var farið með málið í samræmi við ákvæði 1. mgr. 164. gr. laga nr. 88/2008 um meðferð sakamála, eftir að sækjanda og ákærða sjálfum hafði verið gefinn kostur á að tjá sig um lagaatriði og ákvörðun viðurlaga.

Um málavexti vísast til ákæruskjals. Sannað er að ákærði hefur gerst sekur um þá háttsemi sem honum er gefin að sök í ákæru og þar þykir rétt færð til refsiákvæða. Ákærði hefur með háttsemi sinni unnið sér til refsingar.

Samkvæmt framlögðu sakavottorði hefur ákærði þrívegis áður sætt refsingum, í öll skiptin fyrir umferðarlagabrot, þar af tvívegis fyrir akstur sviptur ökurétti. Þannig var ákærða þann 18. október 2012 gerð vegna aksturs sviptur ökurétti, og aftur þann 9. mars 2013. Brot þau sem ákærði er nú sakfelldur fyrir eru framin fyrir undirritun beggja framangreindra sektargerða, og hafa þær því ekki áhrif til ítrekunar. Þá verður refsing ákærða ákveðin að teknu tilliti til 78. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940.

Refsing ákærða er hæfilega ákveðin fangelsi í 30 daga. Að virtum atvikum máls, að teknu tilliti til skýlausrar játningar ákærða og þess að hann hefur ekki áður verið fundinn sekur um auðgunarbrot, þykir rétt að fresta fullnustu refsingarinnar og skal hún falla niður að liðnum tveimur árum haldi ákærði almennt skilorð 57. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940, með áorðnum breytingum. Ákærði skal jafnframt greiða 30.000 kr. í sekt til ríkissjóðs, innan fjögurra vikna frá birtingu dóms þessa, en sæta ella fangelsi í 4 daga.

Engan sakarkostnað leiddi af máli þessu.

Í gögnum málsins er að finna skjal með yfirskriftinni „Bótakrafa“. Í skjali þessu er hvorki lýsing á málsástæðum né lagarökum bótakrefjanda. Að mati dómsins uppfyllir áðurnefnt kröfuskjal bótakrefjanda ekki skilyrði 2. mgr. 173. gr. laga nr. 88/2008, um greinargerð kröfuhafa, sér í lagi e. og f. liði ákvæðisins. Ákærði hefur þó samþykkt framkomna bótakröfu, og er því að mati dómsins unnt að leggja dóm á hana, þrátt fyrir framangreinda annmarka á málatilbúnaði bótakrefjanda. Þá athugast að krafa bótakrefjanda um dráttarvexti af fjárkröfu sinni er ekki í samræmi við ákvæði 9. gr. laga nr. 38/2001 um vexti og verðtryggingu, hvað varðar upphafstíma dráttarvaxta. Að framansögðu virtu er fallist á einkaréttarkröfu [B] f.h. [C] ehf., eins og greinir í dómsorði.

Sólveig Ingadóttir, löglærður aðstoðarmaður dómara, kveður upp dóm þennan.

D ó m s o r ð :

Ákærði, Artur Marek Szczodrowski, sæti fangelsi í 30 daga, en fresta skal fullnustu refsingarinnar og skal hún falla niður að liðnum tveimur árum haldi ákærði almennt skilorð 57. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940, með áorðnum breytingum.

Ákærði greiði jafnframt, 30.000 krónur í sekt til ríkissjóðs innan fjögurra vikna frá birtingu dóms þessa en sæti ella fangelsi í 4 daga.

Ákærði greiði [B], kt. [...], f.h. [C] ehf., kt. [...], skaðabætur að fjárhæð 80.000 kr., auk dráttarvaxta skv. 1. mgr. 6. gr. laga nr. 38/2001 um vexti og verðtryggingu, frá 28. september 2012 til greiðsludags.

Sólveig Ingadóttir.

Heimildaskrá

Lagaskrá

Lög nr. 19/1940 Almenn hegningarlög 1. mgr. 20. gr.57. gr.78. gr.244. gr.257. gr.
Lög nr. 50/1987 Umferðarlög 1. mgr. 48. gr.1. mgr. 100. gr.
Lög nr. 38/2001 Lög um vexti og verðtryggingu 1. mgr. 6. gr.9. gr.
Lög nr. 88/2008 Lög um meðferð sakamála 1. mgr. 164. gr.2. mgr. 173. gr.