Fara í efni

Dómstólaleit

Leit í dómum íslenskra dómstóla

Leita í öllum dómstólum...

Niðurstöður

30 dómar fundust

Lykilorð: Búfjárrækt

Héraðsdómur Reykjavíkur birt 24. nóvember 2023

E-2217/2022

Ómar Antonsson og Ómar Ingi Ómarsson (Auðun Helgason lögmaður) gegn íslenska ríkinu og Landhelgisgæslu Íslands (Eiríkur Áki Eggertsson lögmaður) og og Verkís hf. (Gunnar Sturluson lögmaður)

Stefndu voru sýknaðir af dómkröfum stefnenda þar sem ekki þótti vera nægilega sannað í málinu að dauði eins hross og veikindi fjögurra annarrra hrossa í eigu stefnenda hefðu orðið af þeim ástæðum er stefnendur byggðu á í málinu og töldu vera á ábyrgð stefndu.

Héraðsdómur Norðurlands eystra birt 16. mars 2021

S-212/2020

Ákæruvaldið (Eyþór Þorbergsson aðstoðarsaksóknari) gegn X (Stefán Ólafsson lögmaður)
Lykilorð: Búfé. Búfjárrækt.
Málaflokkur: Umferðarlagabrot

Ákærði sýknaður af kæru um brot á lögum og samþykkt um búfjárhald.

Héraðsdómur Reykjavíkur birt 14. janúar 2020

S-129/2019

Lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu (Sigurður Pétur Ólafsson aðstoðarsaksóknari) gegn X (Einar Hugi Bjarnason lögmaður)
Málaflokkur: Ofbeldisbrot

Sýknað af ákæru um ofbeldi í nánu sambandi, eða líkamsárás, og broti gegn barnaverndarlögum. Einkaréttarkröfu vísað frá dómi.

Héraðsdómur Reykjavíkur birt 27. september 2019

S-3621/2019

Lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu (Kristín Jónsdóttir aðstoðarsaksóknari) gegn Birgi Brynjarssyni (Páll Bergþórsson lögmaður)
Málaflokkur: Auðgunarbrot

Ákærða ekki gerð refsing með vísan til 16. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940.

Héraðsdómur Austurlands birt 26. október 2012

S-77/2011

Ákæruvaldið (Júlíus Kr. Magnússon hdl) gegn Stefaníu Ingu Lárusdóttur (Gísli M. Auðbergsson hdl) og Friðriki B. Friðrikssyni (Hilmar Gunnlaugsson hrl)
Málaflokkur: Umferðarlagabrot

Tveir bændur ákærðir fyrir brot á lögum og reglugerðum á sviði dýraverndar og búfjárhalds, annar þeirra B, fyrir hlutdeild í tilteknum brotum hins, A. Ákærðu bæði sakfelld af hluta sakargifta en sýknuð af öðrum. A dæmt 30 daga skilorðsbundið fangelsi en B til greiðslu 50.000 króna sektar.

Héraðsdómur Reykjavíkur birt 23. maí 2012

S-142/2012

Ákæruvaldið (Stefanía G. Sæmundsdóttir settur saksóknari) gegn Mark Gunnari Roberts (Bjarni Hauksson hrl)
Lykilorð: Búfjárrækt. Rán. Sakhæfi.
Málaflokkur: Auðgunarbrot

Ákærði dæmdur i 3 ára og 6 mánaða fangelsi fyrir ránsbrot. Ekki var fallist á kröfu um sýknu vegna skorts á sakhæfi. Skilorðsdómur dæmdur upp.

Héraðsdómur Reykjavíkur birt 29. desember 2011

E-4977/2007

A (Þyrí Halla Steingrímsdóttir hdl) gegn íslenska ríkinu (Óskar Thorarensen hrl)

Stefnandi krafðist viðurkenningar á skaðabótaskyldu íslenska ríkisins vegna ætlaðra mistaka við meðhöndlun blæðingar í kjölfar fæðingar sonar síns. Vegna blæðingarinnar hlaut stefnandi heilsutjón. Ekki var talið, miðað við aðstæður, að heilbrigðisstarfsfólk hefði sýnt af sér háttsemi við meðferðina, sem varðaði skaðabótaskyldu stefnda, og var íslenska ríkið sýknað af kröfum stefnanda.

Héraðsdómur Reykjavíkur birt 20. desember 2010

E-13504/2009

Sparnaður ehf (Haukur Örn Birgisson hdl) gegn Arion banka hf (Gunnhildur Sveinsdóttir hdl)

Stefnandi krafðist viðurkenningar á skaðabótaskyldu stefnda vegna tjóns sem stefnandi taldi sig hafa orðið fyrir vegna þess að stefndi neitaði að millifæra af reikningum viðskiptamanna inn á höfuðstól lána sem þeir höfðu hjá stefnda. Sýknað

Héraðsdómur Norðurlands eystra birt 12. apríl 2010

S-102/2010

Ákæruvaldið (Eyþór Þorbergsson fulltrúi) gegn X
Lykilorð: Búfjárrækt. Útivist.
Málaflokkur: Umferðarlagabrot

Dæmd sekt fyrir brot gegn lögum um búfjárhald.

Héraðsdómur Reykjavíkur birt 16. desember 2009

E-5118/2009

Pétur Steingrímsson, Björn Óskar Birgisson, Helga Arnberg, Gestsdóttir, Sigurveig, Sigtryggsdóttir, Guðjón Hjörleifsson, Haraldur Böðvarsson, & Co ehf, Karla ehf, Albert Sveinsson, Theódóra Gunnarsdóttir, GTG fjárfestingar ehf, Valgerður Bjarnadóttir, Magnús Jóhann, Magnússon, Anna Björg, Björgvinsdóttir, Aron Baldursson, Axel Ketilsson og Axel Axelsson Living Trust (Jóhann Haukur Hafstein hdl) gegn Landsvaka hf. (Stefán Geir Þórisson hrl) og Landsbanka Íslands hf. (Hlynur Jónsson hdl)

Stefnendur kröfðust aðallega greiðslu skaðabóta en til vara viðurkenningar á rétti til skaðabóta vegna rýrnunar á eignarhlutum sínum í peningamarkaðssjóðnum Peningabréf Landsbanka Íslands. Sýknað af aðalkröfum en fallist að hluta á varakröfur.

Héraðsdómur Reykjavíkur birt 6. nóvember 2009

E-6162/2009

Ólafur Stefán Sigurðsson (Lára Valgerður Júlíusdóttir hrl) gegn BYR sparisjóði (Stefán Bjarni Gunnlaugsson hrl)

Stefnandi krafðist leiðréttingar á áunninni eftirlaunaprósentu og endurgreiðslu á ofreiknuðum frádrætti á desemberuppbót. Voru kröfur hans teknar til greina að mestu leyti.

Héraðsdómur Reykjavíkur birt 26. september 2008

E-4393/2008

Daniela Schmitz (Christiane L. Bahner hdl) gegn Landsvirkjun (Þórður Bogason hrl) og Íslenska ríkinu (Skarphéðinn Þórisson hrl)

Stefnandi krafðist viðurkenningar á því aðallega að vatnsréttindi íslenska ríkisins að Þjórsá í landi Skálmholtshrauns séu niður fallin fyrir vanlýsingu samkvæmt ákvæðum laga nr. 113/1952 um lausn ítaka af jörðum. Til vara krafðist stefnandi viðurkenningar á því að hafa eignast að nýju vatnsrétindi Skálmholtshrauns fyrir hefð. Til þrautavara var krafist viðurkenningar á því að vatnsréttindi íslenska ríkisins væru niður fallin fyrir vangeymslu og tómklæti en til þrautavara að vatnsréttindi íslenska ríkisins heimili stefndu ekki tilteknar aðgerðir sem settar eru fram í 13 liðum. Stefndu voru sýknaðir af aðalkröfu, varakröfu og þrautavarakröfu stefnanda en þrautaþrautavarakröfu stefnanda var vísað frá dómi.

Héraðsdómur Reykjavíkur birt 5. júní 2008

E-6574/2006

Víkurver ehf (Einar Gautur Steingrímsson hrl) gegn Gildi -lífeyrissjóði (Gestur Jónsson hrl) og Landssambandi smábátaeigenda (Ástráður Haraldsson hrl)

Ákvæði 6. og 8. gr. laga nr. 24/1986 um skiptaverðmæti og greiðslumiðlun innan sjávarútvegsins voru ekki talin brjóta í bága við ákvæði stjórnarskrár. Stefndu voru sýknaðir af kröfum stefnanda í málinu.

Héraðsdómur Reykjavíkur birt 11. júlí 2007

E-5190/2007

Wichuda Buddeekham (Ásdís J. Rafnar hrl) gegn ríkissjóði Íslands (Skarphéðinn Þórisson hrl)

Stefnandi krafðist viðurkenningar á greiðsluskyldu ríkissjóðs á bótum sér til handa vegna líkamsárásar sem hún varð fyrir 2. febrúar 2001. Stefndi var sýknaður þar sem ekki voru uppfyllt skilyrði 6. gr. laga nr. 69/1995.

Héraðsdómur Reykjavíkur birt 11. janúar 2007

E-183/2007

Steinagerði ehf (Sigrún Helga Jóhannsdóttir hdl) gegn Icelandic Group hf (Ólafur Ari Jónsson hdl)

Stefnandi krafðist viðurkenningar á skaðabótaskyldu stefnda fyrir að hafa ranglega afmáð nafn sitt úr hlutaskrá stefnda. Stefnandi var ekki talinn hafa sýnt fram á að hann ætti hlut í stefnda og var stefndi því sýknaður.

Héraðsdómur Reykjavíkur birt 16. apríl 2008

E-6975/2007

SagaZ ehf (Guðrún Hólmsteinsdóttir hdl) gegn Náttúrufræðistofnun Íslands (Sigurmar Kristján Albertsson hrl)

Aðilar gerðu með sér samning um birtingu auglýsinga stefnda í tímariti sem stefnandi gefur út. Deildu aðilar um hvort samið hafi verið um birtingu einnar auglýsingar eða fimm. Voru dómkröfur stefnanda teknar til greina.

Héraðsdómur Reykjavíkur birt 13. apríl 2007

E-3903/2006

Hópbílaleigan ehf (Jóhannes Karl Sveinsson hrl) gegn íslenska ríkinu (Óskar Thorarensen hrl)

Í máli þessu var viðurkenndur réttur stefnanda til skaðabóta úr hendi stefnda vegna missis hagnaðar sem stefnandi hefði notið ef ekki hefði komið til ákvörðunar Vegagerðar ríkisins að hafna tilboðum stefnanda í sérleyfisakstur og skólaakstur á Suðurlandi og Suðurnesjum.

Héraðsdómur Norðurlands eystra birt 11. nóvember 2005

E-537/2005

Brynjar Aðalsteinn Sigurðsson (Benedikt Ólafsson hrl) gegn Lífeyrissjóði Norðurlands (Árni Pálsson hrl)

Deilt er um hvort greiða eigi dráttarvexti á uppgjöri kröfu vegna örorkubóta, hvort vaxtakrafan sé að hluta til fyrnd svo og hvort verðbætur á kröfuðstól valdi því að kröfuhafi missi rétt til dráttarvaxta.

Héraðsdómur Suðurlands birt 14. mars 2007

E-533/2006

Kristín Sjöfn Ómarsdóttir gegn Lífeyrissjóði Vestmannaeyja

Lífeyrissjóður greiddi barnalífeyri til sjóðfélaga sem úrskurðaður hafði verið örorkulífeyrir þrátt fyrir að reglur sjóðsins kvæðu á um að barnalífeyrir skyldi greiddur framfæranda barns. Sjóðfélaginn annaðist ekki framfærslu stefnanda og var talið að sjóðurinn hefði valdið stefnanda tjóni með því að ganga ekki úr skugga um hver væri raunverulegur framfærandi stefnanda.