Lögreglustjórinn á Austurlandi (Fríða Thoroddsen lögreglustjóri) gegn
X
Sakfellt fyrir brot á lögum um velferð dýra nr. 55/2013
A og B höfðuðu mál gegn Í til heimtu skaða- og miskabóta vegna tjóns sem þeir töldu sig hafa orðið fyrir vegna ákvarðana M um að svipta þá vörslum alls sauðfjár sem þeir héldu á jörðinni X. Í dómi Landsréttar kom fram að aðgerðir M hefðu átt sér langan aðdraganda. Könnun hefði endurtekið farið fram á aðstæðum og aðbúnaði sauðfjár á jörðinni. Í framhaldi af þeim athugunum hefði frestur ítrekað verið veittur til að uppfylla kröfur M, sem átt hefðu sér stoð í lögum nr. 55/2013 um velferð dýra og reglugerðar nr. 60/2000. Samkvæmt því var staðfest niðurstaða héraðsdóms um að M hefði við undirbúning og töku ákvörðunar um að svipta A og B vörslum á sauðfénu hvorki brotið gegn rannsóknarreglu né meðalhófsreglu stjórnsýslulaga nr. 50/1993, sbr. 10. og 12. gr. laganna. Þá hefði andmælareglu jafnframt verið fylgt, sbr. 13. gr. sömu laga. Landsréttur vísaði einnig til þess að það neyðarúrræði sem M hefði gripið til í kjölfarið með slátrun sauðfjárins væri ekki eingöngu neyðarúrræði með tilliti til umráðamanns dýra heldur skyldi við ákvörðun um hvort því skyldi beita einnig líta til velferðar dýranna. Í því sambandi vísaði rétturinn til þess sem fram kæmi í gögnum er stöfuðu frá búfjáreftirlitsmönnum um bágborið ástand á fé áfrýjenda. Þá var enn fremur vísað til þess að vigtarseðlar hefðu borið með sér að ástand margra gripa hefði verið bágborið og talsvert verið um vanmetafé sem ætla mætti að hefði að mestu leyti mátt rekja til lélegrar fóðrunar, brynningar og slæms aðbúnaðar. Samkvæmt þessu en að öðru leyti með vísan til forsendna héraðsdóms var dómurinn staðfestur um sýknu Í af kröfum A og B.
Lögreglustjórinn á Austurlandi (Helgi Jensson aðstoðarsaksóknari) gegn
A I
Sakfellt fyrir eignaspjöll og húsbrot en einnig fyrir brot á dýraverndunarlögum.
Ákærði kveikti í dýri, bar hnífa og amfetamín og tók fartölvu og fleira ófrjálsri hendi. Dæmt 8 mána fangelsi skilorðsbundið og ákærði sviptur rétti til dýrahalds
Ákærði sakfelldur fyrir brot gegn lögum um dýravernd nr. 15/1994 og dæmdur til greiðslu sektar.
Karlmaður sýknaður af ákæru fyrir brot gegn lögum um dýravernd.
Tveir bændur ákærðir fyrir brot á lögum og reglugerðum á sviði dýraverndar og búfjárhalds, annar þeirra B, fyrir hlutdeild í tilteknum brotum hins, A. Ákærðu bæði sakfelld af hluta sakargifta en sýknuð af öðrum. A dæmt 30 daga skilorðsbundið fangelsi en B til greiðslu 50.000 króna sektar.
Karlmaður sakfelldur fyrir brot gegn lögum um dýravernd og reglugerð settri með stoð í þeim lögum.
Ákæruvaldið (
Björn Hrafnkelsson fulltrúi)
gegn
Guðmundi Víði Magnússyni (
Ingi Tryggvason hdl)
Ákærði sakfelldur fyrir brot gegn lögum um dýravernd.
Ákæruvaldið (
Ólafur Helgi Kjartansson sýslumaður)
gegn
Óla Pétri Gunnarssyni (
Óskar Sigurðsson hrl)
Ákærði sakfelldur fyrir illa meðferð á hrossum auk brots á reglugerð um heyflutninga.
Ákæruvaldið (Jónína Guðmundsdóttir ftr) gegn
Ormari Þorgrímssyni (enginn)
Ákærði sakfelldur fyrir brot á dýraverndunarlögum og lögum um búfjárhald og gert að greiða sektir.
Dæmdur í sekt fyrir brot gegn lögum um dýravernd.
Lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu (
Laufey Kristjánsdóttir ftr)
gegn
MÞ (
Ólafur Kjartansson hdl)
Því mótmælt að dómkvaddur yrði matsmaður til að meta hvort athafnir matsþola væru til þess fallnar að fara illa með hest, hrekkja hann, eða meiða. Í úrskurði var talið að matið væri ekki þýðingarlaust, að mælikvarði dýraverndarlaga væri ekki of almennur til þess að leggja mat á það hvort ákvæði þeirra hefðu verið brotin, að matið væri til þess fallið að upplýsa málið og að með dómkvaðningu matsmannsins væri ekki brotið gegn reglunni um hraða málsmeðferð.
Ákæruvaldið (Laufey Kristjánsdóttir fulltrúi) gegn
Pétri Þór Birgissyni
Karlmaður sektaður fyrir að skilja tvo kisa eftir í óvissu um framtíð sína á Hólmsheiði í Reykjavík.
X, sem setti upp gasbyssu í hólmi á Breiðafirði, til að fæla burt ungerni og svartbak, var sýknaður af broti gegn lögum um vernd, friðun og veiðar á villtum fuglum og villtum spendýrum, þar sem ekki var talið nægilega sannað að í hólminum hefði verið hreiðurstæði arnar í skilningi laganna.
Ákæruvaldið (
Ólafur Helgi Kjartansson)
gegn
Óla Pétri Gunnarssyni (
Helgi Jóhannsson hrl)
Ó sakfelldur fyrir illa meðferð á hrossum og dæmdur til að greiða 700.000.- krónur í sekt auk sakarkostnað.
Ákæruvaldið (Hjördís Stefánsdóttir fulltrúi) gegn
Guðmundi Frey Ævarssyni
Ákærði sakfelldur fyrir brot gegn lögum um dýravernd og dæmdur til greiðslu sektar.
Ákæruvaldið (Einar Laxness fulltrúi) gegn
Guðrúnu Stefánsdóttur
Kona dæmd til greiðslu 80.000 króna sektar í ríkissjóð fyrir brot á lögum um dýravernd, með því að hafa vanrækt aðbúnað, umhirðu og fóðrun 13 katta í hennar eigu. Við ákvörðun refsingar var litið til þess að um fyrsta brot ákærðu var að ræða.
Karlmaður sýknaður eignarspjöllum og af boti gegn dýraverndarlögum.
Fjórir kettir fundust í íbúð ákærðu, lokaðir inni á salerni, vanærðir og óhreinir. Ákærða játaði að hafa hvorki gefið þeim að éta né drekka svo dögum skipti og ekki skipt um sand í kassa þeirra svo dögum skipti.