Fara í efni

Dómstólaleit

Leit í dómum íslenskra dómstóla

Héraðsdómur Vestfjarða

Mál nr. S-12/2026:

Lögreglustjórinn á Vestfjörðum

(Kristján Óskar Ásvaldsson saksóknarfulltrúi)

gegn

Oliviu Ragnheiði Zieba

(Vilhjálmur Hans Vilhjálmsson lögmaður)

Umboðssvik.

Ákærða sakfelld fyrir umboðssvik og dæmd til þriggja mánaða fangelsisvistar en fullnustu refsingar frestað skilorðsbundið. Ákærðu gert að greiða brotaþola skaðabætur og málskostnað.

Dómur

Mál þetta, sem var dómtekið 6. maí sl., var höfðað með ákæru lögreglustjórans á Vestfjörðum 24. febrúar sl. á hendur Oliviu Ragnheiði Zieba, kt. […], […]: „fyrir misneytingu, með því að hafa sem starfsmaður á hjúkrunar- og dvalarheimilinu Barmahlíð, Reykhólum, þegið debetkort, […], í eigu og af A, kt. […], vistmanns á Barmahlíð, og nýtt sér að hann væri með vitræna skerðingu, vangetu til þess að átta sig á fjármálum og að hann væri ákærðu háður um þjónustu, til þess að nota debetkortið í eigin þágu í 48 skipti með úttektum úr hraðbanka og greiðslu fyrir vörur og þjónustu á tímabilinu 7. júní til 25. júlí 2023 og þannig tekið af bankareikningi nr. […] í Landsbankanum hf. fyrir samtals 1.231.766 krónur.

Til vara fyrir umboðssvik, í samræmi við framangreint, með því að hafa misnotað aðstöðu sína sem starfsmaður á hjúkrunar- og dvalarheimilinu Barmahlíð og notað debetkortið í eigin þágu í 48 skipti.“

Í ákæru er yfirlit um færslurnar sem um ræðir, samtals 1.231.766 krónur:

Nr. Dags. Skýring greiðslu Móttakandi Upphæð
1 25.7.2023 Úttekt með debetkorti Lyfja Hofn -11.410
2 25.7.2023 Úttekt með debetkorti Vinbudin Hofn -7.896
3 25.7.2023 Úttekt með debetkorti HUSGAGNAVAL -7.990
4 25.7.2023 Úttekt með debetkorti Z-Bistro -7.470
5 25.7.2023 Úttekt með debetkorti Sundlaug Hornafjardar -2.300
6 24.7.2023 Úttekt með debetkorti OLIS HELLU -9.934
7 24.7.2023 Úttekt með debetkorti KR Vik -18.931
8 24.7.2023 Úttekt með debetkorti N1 Kirkjubaejarklaustur -1.290
9 24.7.2023 Úttekt með debetkorti BC Pizza -6.920
10 24.7.2023 Úttekt með debetkorti Icewear Vik i Myrdal -12.456
11 24.7.2023 Úttekt með debetkorti Netto Borgarnesi -15.449
12 24.7.2023 Úttekt með debetkorti N1 Artunshofdi -710
13 24.7.2023 Úttekt með debetkorti Hagkaup Spongin -8.528
14 24.7.2023 Úttekt í hraðbanka Arion ATM 036074 -30.295
15 24.7.2023 Úttekt með debetkorti Bruarsport ehf. -24.370
16 21.7.2023 Úttekt með debetkorti Krambudin Holmavik -1.277
17 21.7.2023 Úttekt með debetkorti Ikea -8.340
18 21.7.2023 Úttekt með debetkorti Extraloppan -22.000
19 21.7.2023 Úttekt með debetkorti N1 Haholt -6.320
20 21.7.2023 Úttekt með debetkorti Olis Borgarnesi -948
21 21.7.2023 Úttekt með debetkorti Ikea -175
22 21.7.2023 Úttekt með debetkorti KFC Haholt -3.106
23 19.7.2023 Úttekt með debetkorti Krambudin Holmavik -1.336
24 17.7.2023 Úttekt með debetkorti AERO FOOD -3.272
25 17.7.2023 Úttekt með debetkorti SUNGLASS HUT -166.286
26 17.7.2023 Úttekt með debetkorti N1 Artunshofdi -2.291
27 17.7.2023 Úttekt með debetkorti PORTO DFS WALKTHROUG -38.341
28 17.7.2023 Úttekt með debetkorti PORTO DFS WALKTHROUG -8.382
29 17.7.2023 Úttekt með debetkorti Foot Locker-Artigos Desp -34.375
30 17.7.2023 Úttekt með debetkorti Foot Locker-Artigos Desp -15.092
31 17.7.2023 Úttekt með debetkorti SPORT ZONE -13.519
12.7.2023 Gjald vegna hraðbankaúttektar -852
32 12.7.2023 Úttekt í hraðbanka RUA DO LOUREIRO 104 -85.185
33 12.7.2023 Úttekt með debetkorti MARQUES SOARES SA -45.743
11.7.2023 Gjald vegna hraðbankaúttektar -832
34 11.7.2023 Úttekt með debetkorti SUNGLASS HUT -36.465
35 11.7.2023 Úttekt með debetkorti MAIS OPTICA SUCURSAL EM P -66.814
36 11.7.2023 Úttekt í hraðbanka Loja Santa Catarina 524 -83.182
37 11.7.2023 Úttekt með debetkorti PERFUMES E COMPANHIA -67.823
38 10.7.2023 Úttekt með debetkorti PURO PORTO HOTEL -34.846
39 5.7.2023 Úttekt í hraðbanka Arion ATM 033974 -110.580
40 27.6.2023 Úttekt í hraðbanka Arion ATM 036074 -30.295
41 27.6.2023 Úttekt í hraðbanka Arion ATM 036074 -50.295
42 26.6.2023 Úttekt í hraðbanka Arion ATM 031292 -50.295
43 26.6.2023 Úttekt í hraðbanka Arion ATM 031292 -50.295
44 12.6.2023 Úttekt með debetkorti Wolt -7.195
45 12.6.2023 Úttekt með debetkorti Wolt -9.658
46 12.6.2023 Úttekt með debetkorti Wolt -6.928
47 12.6.2023 Úttekt með debetkorti WWW.ZOLOICELAND.IS -474
48 7.6.2023 Úttekt með debetkorti Harsnyrtistofa Heidu -3.000

Telst háttsemin varða við 253. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940 en til vara við 249. gr. sömu laga.

Þess er krafist að ákærða verði dæmd til refsingar og til greiðslu alls sakarkostnaðar.

Í málinu gerir Unnsteinn Örn Elvarsson lögmaður, fyrir hönd brotaþola, A, sem sviptur hefur verið fjárræði, þá kröfu að ákærðu verði gert að greiða brotaþola skaðabætur að fjárhæð 1.199.766 krónur auk vaxta skv. 8. gr. laga nr. 38/2001 frá 1. nóvember 2023 til þess dags er mánuður er liðinn frá birtingu kröfunnar en með dráttarvöxtum skv. 1. mgr. 6. gr., sbr. 9. gr., sömu laga frá þeim degi til greiðsludags.

Þá gerir brotaþoli kröfu um málskostnað úr hendi ákærðu sér að skaðlausu.

Farið var með mál þetta samkvæmt 164. gr. laga nr. 88/2008 um meðferð sakamála og var það tekið til dóms án frekari sönnunarfærslu eftir að sækjanda, verjanda ákærðu og lögmanni einkaréttarkröfuhafa hafði verið gefinn kostur á að tjá sig um lagaatriði, ákvörðun refsingar og atriði er varða einkaréttarkröfu.

Ákærða hefur skýlaust játað brot sitt og er með játningu hennar, sem fær stoð í gögnum málsins, sannað að ákærða er sek um þá háttsemi sem henni er gefin að sök. Hvað heimfærslu til refsiákvæða áhrærir hefur dómurinn í huga að í 253. gr. almennra hegningarlaga er lýst tvíhliða broti þar sem gerandi hefur misbeitt tiltekinni yfirburðaaðstöðu eða misnotað trúnað annars manns til þess að hafa óhæfileg og ólögmæt áhrif á gerðir viðsemjanda síns eða annars aðila sem hann á skipti við (sjá t.d. Jónatan Þórmundsson: Umboðssvik. Tímarit Lögréttu, 2. tbl. 2007, bls. 177-178). Eins og hér stendur á verður háttsemi ákærðu, virt heildstætt, hins vegar fyrst og fremst talin lúta að því að ákærða hafi einhliða misnotað sér aðstöðu sína og trúnað til þess að afla sér fjárvinnings á kostnað brotaþola. Verður háttsemi ákærðu því heimfærð til 249. gr. almennra hegningarlaga líkt og ákæruvaldið miðar við til vara.

Ákærða krefst vægustu refsingar sem lög leyfa og að refsing verði skilorðsbundin að fullu. Þá viðurkennir ákærða bótaskyldu. Loks krefst ákærða málskostnaðar að mati dómsins og að skipuðum verjanda hennar verði ákvörðuð hæfileg þóknun.

Ákærða er fædd árið […] og hefur sakaferill hennar ekki áhrif á ákvörðun refsingar í máli þessu. Við þá ákvörðun er jafnframt litið til skýlausrar játningar ákærðu og viðurkenningar á bótaskyldu gagnvart brotaþola. Með vísan til framangreinds, sakarefnisins og dómvenju og 2., 6. og 7. töluliðar 1. mgr. 70. gr. almennra hegningarlaga þykir refsing ákærðu hæfilega ákveðin þriggja mánaða fangelsi. Rétt þykir að mæla fyrir um að fullnustu refsingarinnar verði frestað og fellur hún niður að liðnum tveimur árum frá uppkvaðningu dómsins að telja haldi ákærða almennt skilorð 57. gr. almennra hegningarlaga.

Ákærða hefur í málinu verið sakfelld fyrir brot gegn 249. gr. almennra hegningarlaga sem lýtur að umboðssvikum. Með brotinu hefur ákærða skapað sér bótaábyrgð gagnvart brotaþola og hefur hún gengist við því fyrir dómi. Með háttseminni, sem var bæði saknæm og ólögmæt, hefur ákærða valdið brotaþola fjártjóni og eru skilyrði um orsakasamhengi og sennilega afleiðingu uppfyllt. Brotaþoli á því rétt á skaðabótum úr hendi ákærðu á grundvelli sakarreglunnar og 172. gr. laga nr. 88/2008. Miðast krafan við þá fjármuni sem ákærða notaði í eigin þágu af debetkorti brotaþola og hefur fjárhæð hennar ekki verið mótmælt af hálfu ákærðu. Krafan var kynnt ákærðu við birtingu ákæru 24. febrúar sl. Með hliðsjón af því og 9. gr. laga nr. 38/2001 miðast upphafstími dráttarvaxta við 24. mars sl. Brotaþoli á jafnframt tilkall til málskostnaðar úr hendi ákærðu vegna kröfunnar, sbr. 3. mgr. 176. gr. laga nr. 88/2008, en sá kostnaður þykir hæfilega ákveðinn 350.000 krónur með hliðsjón af efni og umfangi málsins.

Með vísan til 1. mgr. 235. gr. laga nr. 88/2008 ber að dæma ákærðu til greiðslu alls sakarkostnaðar en til hans telst þóknun skipaðs verjanda hennar, Vilhjálms H. Vilhjálmssonar lögmanns. Telst þóknunin hæfilega ákveðin, m.a. með hliðsjón af reglum dómstólasýslunnar nr. 1/2026, 248.000 krónur að meðtöldum virðisaukaskatti. Ekki verður séð að annan sakarkostnað hafi leitt af meðferð málsins fyrir dómi.

Af hálfu ákæruvaldsins fór með málið Kristján Óskar Ásvaldsson saksóknarfulltrúi.

Oddur Þorri Viðarsson héraðsdómari kveður upp dóm þennan.

Dómsorð:

Ákærða, Olivia Ragnheiður Zieba, sæti fangelsi í þrjá mánuði en fresta skal fullnustu refsingarinnar og falli hún niður að liðnum tveimur árum frá uppsögu dóms þessa að telja, haldi ákærða almennt skilorð 57. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940.

Ákærða greiði brotaþola, A, 1.199.766 krónur auk vaxta samkvæmt 8. gr. laga nr. 38/2001 um vexti og verðtryggingu frá 1. nóvember 2023 til 24. mars 2026 en með dráttarvöxtum samkvæmt 1. mgr. 6. gr. sömu laga frá þeim degi til greiðsludags. Þá greiði ákærða brotaþola 350.000 krónur í málskostnað.

Ákærða greiði þóknun skipaðs verjanda síns, Vilhjálms H. Vilhjálmssonar lögmanns, 248.000 krónur.

Oddur Þorri Viðarsson

Heimildaskrá

Lagaskrá

Lög nr. 19/1940 Almenn hegningarlög 57. gr.1. mgr. 70. gr.249. gr.253. gr.
Lög nr. 38/2001 Lög um vexti og verðtryggingu 1. mgr. 6. gr.8. gr.9. gr.
Lög nr. 88/2008 Lög um meðferð sakamála 164. gr.172. gr.3. mgr. 176. gr.1. mgr. 235. gr.