Fara í efni

Dómstólaleit

Leit í dómum íslenskra dómstóla

Leita í öllum dómstólum...

Niðurstöður

7 dómar fundust

Lykilorð: Viðurlagaákvörðun

Héraðsdómur Reykjavíkur birt 29. september 2023

E-2646/2022

A (Þórir Örn Árnason lögmaður) gegn íslenska ríkinu (Jónas Birgir Jónasson lögmaður)

Stefnandi var dæmd í átta ára óskilorðsbundið fangelsi í ársbyrjun 2016. Með ákvörðun Útlendingastofnunar var stefnanda vísað úr landi og gert að sæta endurkomubanni. Stefnandi kærði þá ákvörðun til kærunefndar áfrýjunarmála sem felldi ákvörðun Útlendingastofnunar úr gildi. Útlendingastofnun tók ákvörðun að nýju um brottvísun og endurkomubann. Stefnanda var veitt heimild til að afplána hluta refsingarinnar undir rafrænu eftirliti að liðnum helmingi refsitímans, sem fól í sér undantekningu frá þeirri meginreglu að reynslulausn sé ekki veitt fyrr en tveir þriðju hlutar refsitímans séu liðnir. Kærunefnd felldi síðari ákvörðun Útlendingastofnunar einnig úr gildi. Í framhaldi af því afturkallaði Fangelsismálastofnun heimild til afplánunar undir rafrænu eftirliti þar sem hún hafi byggst á ákvörðun Útlendingastofnunar um að stefnanda yrði vísað úr landi. Stefnandi mótmælti þeirri afturköllun og krafðist þessa að viðurkenndur yrði rétturinn hennar til skaðabóta vegna þessa. Skaðabótakröfunni var hafnað m.a. með vísan til þess að ákvörðun um að veita stefnanda heimild til þess að afplána hluta refsingarinnar undir rafrænu eftirliti að liðnum helmingi af refsitíma byggðist á þeirri lagalegu forsendu sem fram kemur í 2. málslið 3. mgr. 80. gr. laga nr. 15/2016, að fyrir lægi ákvörðun Útlendingastofnunar um brottvísun stefnanda úr landi að lokinn afplánun.

Landsréttur birt 26. júní 2020

384/2019

Ákæruvaldið (Marín Ólafsdóttir saksóknari) gegn Olgu Sadenko (Stefán Karl Kristjánsson lögmaður, Jónína Guðmundsdóttir lögmaður, 3. prófmál)
Málaflokkur: Umferðarlagabrot

Með dómi héraðsdóms var O sakfelld fyrir brot gegn lögum um ávana- og fíkniefni nr. 65/1974, með því að hafa flutt hingað til lands 0,20 grömm af marijúana, og fyrir umferðarlagabrot, með því að hafa í þrjú skipti ekið bifreið svipt ökurétti og í tvö skipti jafnframt undir áhrifum ávana- og fíkniefna. O játaði sök og var farið með málið samkvæmt 164. gr. laga nr. 88/2008 um meðferð sakamála. Var því eingöngu deilt um ákvörðun viðurlaga fyrir Landsrétti. Við meðferð málsins fyrir Landsrétti var þess krafist af hálfu ákæruvaldsins að O yrði sýknuð af því að hafa brotið gegn lögum um ávana- og fíkniefni þar sem sök hennar hefði verið fyrnd og var hún þegar á grundvelli kröfugerðar ákæruvaldsins sýknuð af þeim sakargiftum. Eftir uppkvaðningu hins áfrýjaða dóms höfðu tekið gildi ný umferðarlög nr. 77/2019 og með hliðsjón af 1. mgr. 2. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940 dæmdi Landsréttur eftir þeim. Í dóminum kom fram að samkvæmt nýjum umferðarlögum teldist nú ökumaður aðeins undir áhrifum ávana- og fíkniefna eða lyfja og óhæfur til að stjórna ökutæki örugglega ef ávana- eða fíkniefni eða lyf fyndust í blóði hans. Með vísan til þess að samkvæmt einum ákærulið hefði umferðarlagabrot ákærðu eingöngu verið staðreynt með mælingu efna í þvagi var hún sýknuð af ákæru fyrir að hafa ekið undir áhrifum ávana- og fíkniefna í umrætt sinn. Að öðru leyti staðfesti Landsréttur niðurstöðu héraðsdóms um sakfellingu O. Við ákvörðun refsingar var litið til sakaferils O og þess að brot hennar voru öll hegningarauki við eldri dóm, sbr. 78. gr. almennra hegningarlaga. Samkvæmt því og með hliðsjón af 77. gr. sömu laga og áralangrar dómvenju var refsing hennar ákveðin fangelsi í 30 daga auk þess sem henni var gert að greiða sekt til ríkissjóðs innan fjögurra vikna frá birtingu dómsins en sæta ella fangelsi í 14 daga. Þá var staðfest niðurstaða héraðsdóms um ævilanga sviptingu ökuréttar O og upptöku fíkniefna.

Hæstiréttur birt 28. apríl 2008

179/2008

Sýslumaðurinn í Vestmannaeyjum (enginn) gegn Axel Jóhanni Helgasyni (Jón Hauksson hdl)
Málaflokkur: Umferðarlagabrot

Með 8. gr. laga nr. 69/2007 sem tók gildi 27. apríl 2007 var 106. gr. a. bætt við umferðarlög nr. 50/1987, og kveður greinin á um heimild til að beita akstursbanni gegn byrjanda sem nýtur ökuréttar á grundvelli bráðabirgðaskírteinis, en með slíku banni töldust ökuréttindi viðkomandi afturkölluð. A hafði við gildistöku nefndra laga hlotið þrjá punkta í ökuferilsskrá sína, en hlaut þann fjórða 29. ágúst 2007. Í tilefni af þessu beitti L framangreindri heimild, en A bar þá ákvörðun undir héraðsdóm. Talið var að í nefndri lagabreytingu hafi falist þynging ítrekunaráhrifa fyrri brota A og að skilyrði og áhrif ítrekunar samkvæmt nefndu lagaákvæði hafi verið skýr og efni þess bæði aðgengilegt og fyrirsjáanlegt þannig að A hefði átt að geta séð fyrir hverjar afleiðingar umferðarlagabrot hans 29. ágúst 2007 hefði að lögum fyrir hann. Var því ekki fallist á með A að með fyrrgreindri ákvörðun hefði refsiheimild verið beitt með afturvirkum hætti og var kröfu hans um að ákvörðunin yrði felld úr gildi því hafnað.

Hæstiréttur birt 9. janúar 2003

552/2002

Ákæruvaldið (Bragi Steinarsson vararíkissaksóknari) gegn Guðna Elíassyni (enginn)
Málaflokkur: Umferðarlagabrot

Ríkissaksóknari kærði viðurlagaákvörðun sem G gekkst undir 23. október 2002 til Hæstaréttar. Í rökstuðningi fyrir kærunni vísaði hann til þess að við meðferð málsins hafi sækjanda og héraðsdómara ekki verið kunnugt um að G hafi gengist undir viðurlög 17. október 2002 hjá sýslumanninum á Selfossi, enda hafi vitneskja um það ekki fengist fyrr en með tilkynningu til sakaskrár í nóvember sama árs. Málinu var vísað frá Hæstarétti þar sem þriggja sólarhringa kærufrestur var löngu liðinn, en vitneskja ríkissaksóknara um ákvörðun viðurlaga G hafi legið fyrir í beinu framhaldi af tilkynningu um hina kærðu ákvörðun til sakaskrár í lok október 2002.

Hæstiréttur birt 2. september 2002

311/2002

Ákæruvaldið (Bogi Nilsson ríkissaksóknari) gegn Guðmundi Sveinbirni Brynjólfssyni (enginn)
Málaflokkur: Umferðarlagabrot

Ákæruvaldið kærði til Hæstaréttar viðurlagaákvörðun héraðsdómara í máli þess gegn G. Hæstiréttur vísaði málinu frá þar sem kæran barst að liðnum þriggja sólarhringa kærufresti.

Hæstiréttur birt 25. mars 1999

493/1998

Ákæruvaldið (Ragnheiður Harðardóttir saksóknari) gegn Einari Sigurjónssyni og Halldóri Lárusi Péturssyni (Brynjar Níelsson hrl)
Málaflokkur: Auðgunarbrot

E og H voru sakfelldir fyrir hegningarlagabrot. H fyrir fjárdrátt með því að hafa slegið eign sinni á vinnupall sem hann og annar maður höfðu haft í vörslum sínum. E fyrir húsbrot, líkamsárás og brot gegn 1. mgr. 220. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940, með því að hafa ruðst heimildarlaust inn í íbúð EJ ásamt tveimur öðrum mönnum, veita honum margskonar áverka og skilja hann eftir bjargarlausan í íbúðinni. Staðfest var niðurstaða héraðsdóms um sakfellingu og refsingu H. Þá var ákvörðun refsingar E staðfest en hann hafði ekki áfrýjað málinu um annað en viðurlög.