Fara í efni

Dómstólaleit

Leit í dómum íslenskra dómstóla

Héraðsdómur Vesturlands

Mál nr. S-10/2026:

Lögreglustjórinn á Vesturlandi

(Guðfinnur Stefánsson aðstoðarsaksóknari)

gegn

Friðriki Marvin Björnssyni

(Sveinn Andri Sveinsson lögmaður)

Akstur undir áhrifum ávana- og fíkniefna. Skilorðsrof. Umferðarlagabrot.

Ákærði sakfelldur fyrir að aka undir áhrifum ávana- og fíkniefna í þriðja sinn innan ítrekunartíma í skilningi 71. gr. almennra hegningarlaga, sem og fyrir akstur án gildra ökuréttinda og hraðakstur. Með brotum sínum rauf ákærði skilorð og var skilorðsdómur því dæmdur upp og ákærða ákvörðuð refsing í einu lagi. Ákærða gert að sæta fangelsi í 6 mánuði og sviptur ökurétti ævilangt.

Dómur

  1. Mál þetta höfðaði lögreglustjórinn á Vesturlandi með ákæru 14. janúar 2026 á hendur ákærða, Friðriki Marvin Björnssyni, kt. ..., ..., .... Málið var dómtekið 19. maí 2026.
  2. Í ákæruskjali segir að málið sé höfðað gegn ákærða: „I. fyrir umferðarlagabrot með því að hafa, síðdegis föstudaginn 5. september 2025, ekið bifreiðinni SV-092 án gildra ökuréttinda um Vesturlandsveg, við Hafnarskóg í Hvalfjarðarsveit.

    Telst háttsemi þessi varða við 1. mgr. 58. gr., sbr. 1. mgr. 95. gr. umferðarlaga nr. 77/2019.

    M: 313-2025-018965

II.

fyrir umferðarlagabrot með því að hafa, að kvöldi föstudagsins 29. ágúst 2025, ekið bifreiðinni NO-322 án gildra ökuréttinda og óhæfur til að stjórna henni örugglega vegna áhrifa ávana- og fíkniefna (í blóðsýni mældist amfetamín 38 ng/ml, kókaín 145 ng/ml og tetrahýdrókannabínól 14 ng/ml) um Borgarbraut við Hrafnaklett í Borgarnesi á 67 km hraða á klukkustund, að teknu tilliti til vikmarka, þar sem leyfður hámarkshraði var 50 km/klst.

Telst háttsemi þessi varða við 37. gr., 1., sbr. 2. mgr. 50. gr. og 1. mgr. 58. gr., sbr. 1. mgr. 95. gr. umferðarlaga nr. 77/2019. M: 313-2025-018225

Þess er krafist að ákærði verði dæmdur til refsingar, til greiðslu alls sakarkostnaðar og til að sæta sviptingu ökuréttar skv. 99. gr. og 101. gr. laga nr. 77/2019.“

  1. Við fyrirtöku málsins 19. maí sl. sótti ákærði þing og játaði sök samkvæmt ákæru. Í ljósi framangreinds voru skilyrði til að fara með málið samkvæmt 164. gr. laga nr. 88/2008 um meðferð sakamála og málið tekið til dóms án frekari sönnunarfærslu eftir að sækjanda og verjanda ákærða hafði verið gefinn kostur á að tjá sig um lagaatriði og ákvörðun refsingar.
  2. Ákæruvaldið gerir sömu dómkröfur og greinir í ákæru. Verjandi ákærða krefst fyrir hönd ákærða vægustu refsingar sem lög leyfa ásamt málsvarnarþóknunar sér til handa.
  3. Ákærði hefur skýlaust játað brot sín. Sannað er með játningu ákærða og öðrum gögnum málsins að ákærði er sekur um þá háttsemi sem honum er gefin að sök og eru brot hans rétt heimfærð til refsiákvæða í ákæru.
  4. Ákærði er fæddur 1990. Samkvæmt framlögðu sakavottorði dagsett 14. janúar 2026 nær sakaferill ákærða aftur til ársins 2008. Það sem kemur til skoðunar nú er að ákærði gekkst undir sektarrefsingu með lögreglustjórasátt 18. mars 2021 fyrir að aka í annað sinn undir áhrifum ávana- og fíkniefna, innan ítrekunartíma í skilningi 71. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940. Um leið var ákærði sviptur ökurétti í 3 ár frá sama degi að telja. Þá var ákærði með dómi Héraðsdóms Reykjavíkur þann 14. ágúst 2024 dæmdur í 5 mánaða fangelsi skilorðsbundið til tveggja ára, fyrir brot gegn lögum um ávana- og fíkniefni nr. 65/1974.
  5. Fastmótuð dómvenja er fyrir því að ákveðin umferðarlagabrot af sömu tegund hafi ítrekunaráhrif með stoð í 5. tl. 1. mgr. 70. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940 þannig að viðurlög þyngist frá einni viðurlagaákvörðun til annarrar til að tryggja varnaðaráhrif þeirra. Er í því sambandi tekið mið af skilyrðum 71. gr. almennra hegningarlaga fyrir ítrekunaráhrifum brota. Um þessi sjónarmið vísast meðal annars til dóma Landsréttar í málum nr. 832/2019, 3/2020 og 233/2024, sbr. til hliðsjónar dóm Hæstaréttar 8. maí 2008 í máli nr. 644/2007.
  6. Við ákvörðun refsingar verður því með vísan til framangreinds og sakaferils ákærða litið svo á að ákærði sé nú í þriðja sinn eftir að hann varð fullra 18 ára, sbr. 1. mgr. 71. gr. almennra hegningarlaga, og innan ítrekunartíma, fundinn sekur um að aka undir áhrifum ávana- og fíkniefna.
  7. Með brotum sínum sem ákærði er nú sakfelldur fyrir telst ákærði hafa rofið skilorð dómsins frá 14. ágúst 2024. Verður skilorðsdómurinn því tekinn upp og ákærða dæmd refsing í einu lagi, sbr. 60. og 77. gr. almennra hegningarlaga. Með hliðsjón af framangreindu, sakarefni málsins, sakaferils ákærða og dómvenju þykir refsing ákærða hæfilega ákveðin fangelsi í 6 mánuði. Með vísan til sakaferils ákærða og dómvenju þykja ekki efni til að skilorðsbinda refsinguna.
  8. Með vísan til lagaákvæða í ákæru og dómaframkvæmdar er ákærði sviptur ökurétti ævilangt frá birtingu dóms þessa að telja.
  9. Í samræmi við niðurstöðu málsins og 1. mgr. 235. gr. laga um meðferð sakamála nr. 88/2008 verður ákærði dæmdur til að greiða allan sakarkostnað málsins. Til sakarkostnaðar telst málsvarnarþóknun Sveins Andra Sveinssonar lögmanns, skipaðs verjanda ákærða, sem þykir með vísan til viðmiðunarreglna Dómstólasýslunnar nr. 1/2026 hæfilega ákveðinn 176.700 krónur að meðtöldum virðisaukaskatti. Þá verður ákærða gert að greiða 240.134 krónur í annan sakarkostnað sem er til kominn vegna blóðsýnatöku úr ákærða og rannsókna á þeim blóðsýnum.
  10. Af hálfu ákæruvaldsins flutti málið Guðfinnur Stefánsson aðstoðarsaksóknari.
  11. Dóminn kveður upp Snorri Örn Clausen aðstoðarmaður dómara.

Dómsorð:

Ákærði, Friðrik Marvin Björnsson, sæti fangelsi í 6 mánuði. Ákærði er sviptur ökurétti ævilangt frá birtingu dóms þessa að telja. Ákærði greiði verjanda sínum, Sveini Andra Sveinssyni lögmanni, 176.700 krónur í málsvarnarþóknun að meðtöldum virðisaukaskatti og 240.134 krónur í annan sakarkostnað.

Snorri Örn Clausen Dómsorðið er lesið í réttinum í heyranda hljóði að dómfellda, verjanda hans og fulltrúa ákæruvaldsins fjarstöddum. Dómfelldi er ekki viðstaddur dómsuppsögu og verður lögreglu falið að birta honum dóminn verði birting hans árangurslaus í stafrænu pósthólfi í miðlægri þjónustugátt stjórnvalda.

Dómþingi slitið Snorri Örn Clausen

Heimildaskrá

Lagaskrá

Lög nr. 19/1940 Almenn hegningarlög 60. gr.1. mgr. 70. gr.71. gr.1. mgr. 71. gr.77. gr.
Lög nr. 65/1974 Lög um ávana- og fíkniefni
Lög nr. 88/2008 Lög um meðferð sakamála 164. gr.1. mgr. 235. gr.
Lög nr. 77/2019 Umferðarlög 37. gr.2. mgr. 50. gr.1. mgr. 58. gr.1. mgr. 95. gr.99. gr.101. gr.