Lögreglustjórinn á Vesturlandi (Guðfinnur Stefánsson aðstoðarsaksóknari) gegn
X
Ákærði sakfelldur fyrir hótun. Dæmdur til að sæta fangelsi í 30 daga skilorðbundið til tveggja ára.
Lögreglustjórinn á Norðurlandi vestra (
Sigurður Hólmar Kristjánsson lögreglustjóri)
gegn
X og Y (
Pétur Kristinsson lögmaður)
Ákærða X banaði hundi af nærliggjandi bæ þegar hann hljóp í átt að æðarvarpi í eigu ákærðu. Við það verk notaði hún byssu í eigu ákærða Y, en gildistími skotvopnaleyfa þeirra beggja var þá útrunninn. Vegna þessa voru ákærðu X gefin að sök eignarspjöll og vopnalagabrot og þess krafist að skotvopnið yrði gert upptækt. Talið var sannað að ákærða hefði skotið hundinn í þeim eina tilgangi að verja æðarvarpið gegn yfirvofandi tjóni sem hundurinn hefði getað valdið og að ekki hefði verið kostur á að beita öðrum og vægari úrræðum í því skyni. Jafnframt var talið sannað að eigendur varpsins hefðu áður verið búnir að brýna fyrir eigendum hundsins að gæta hans sérstaklega á varptímanum og að ákærða X hefði reynt að reka hundinn frá varpinu áður en hún greip til þess örþrifaráðs að skjóta hann. Enn fremur var talið sannað að þeir hagsmunir sem ákærðu verndaði með verkinu hefðu verið miklum mun meiri en þeir hagsmunir sem hún fórnaði með því að aflífa hundinn. Því var talið að uppfyllt væru skilyrði neyðarréttar, samkvæmt 13. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940, og ákærðu voru sýknuð af kröfum ákæruvaldsins.
Ákæruvaldið (
Sigurður Ólafsson aðstoðarsaksóknari)
gegn
Einari Erni Ásdísarsyni (
Snorri Steinn Vidal lögmaður)
Ákærði var fundinn sekur um hegningar- og umferðarlagabrot og honum gert að sæta fangelsi í 60 daga, en fullnustu refsingarinnar var frestað skilorðsbundið til tveggja ára. Ákærða var jafnframt gert að greiða sekt og hann dæmdur til greiðslu þess sakarkostnaðar er af málinu leiddi. Ekki þóttu efni til að gera ákærða frekari sviptingu ökuréttar.
Ákærðu voru báðir sakfelldir fyrir rán og annar þeirra að auki fyrir að aka bifreið undir áhrifum sviptur ökurétti, vörslur fíkniefna og vopnalagabrot. Ákæru vegna peningaþvættis vísað frá dómi.
Ákærði sakfelldur fyrir hótanir í garð tveggja einstaklinga, líkamsárás sem varðar við 1. mgr. 217. gr. almennra hegningarlaga, aðra líkamsárás sem varðar við 1. mgr. 218. gr. sömu laga og vopnalagabrot. Dæmdur til greiðslu miskabóta.
Héraðssaksóknari (
Sigurður Ólafsson aðstoðarsaksóknari)
gegn
Hilmari Skúlasyni D Ó M U R Mál þetta, sem dómtekið var 26. júní 2025, höfðaði héraðssaksóknari með (
Snorri Sturluson lögmaður)
Karlmaður sakfelldur fyrir brot gegn 4. mgr. 220. gr. almennra hegningarlaga, umferðarlögum og lögreglulögum með því að hafa í tvö skipti ekið ógætilega, undir áhrifum áfengis- og fíkniefna. Dæmd fangelsisrefsing og ökuréttindasvipting.
Ákærða sakfelld fyrir að hafa haft fé af fyrrum eiginmanni sínum með misneytingu. Sakfellt fyrir hluta þess tíma sem miðað var við í ákæru.
Ákæruvaldið (
Eyþór Þorbergsson aðstoðarsaksóknari)
gegn
X (
Friðrik Smárason lögmaður)
Ákærði sakfelldur fyrir endurtekin og alvarleg brot í nánu sambandi skv. 218. gr. b hegningarlaga.
Lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu (
Kamilla Kjerúlf aðstoðarsaksóknari)
gegn
Neculai-Marius Mandache (
Leó Daðason lögmaður)
Ákærði sakfelldur fyrir þjófnað og fíkniefnalagabrot. Dæmdur í 45 daga fangelsi.
Ákæruvaldið (
Eyþór Þorbergsson aðstoðarsaksóknari)
gegn
X (
Friðrik Smárason lögmaður)
Ákærði sakfelldur fyrir líkamsárás á fyrrum sambýliskonu og að hafa í tvígang ekið án þess að hafa endurnýjað ökuréttindi sín.
Lögreglustjórinn á Suðurlandi (Ólafur Hallgrímsson fulltrúi) gegn
Ragnari Kristjáni Skúlasyni (enginn)
Ákærði var fundinn sekur um ítrekaðan akstur undir áhrifum fíkniefna, akstur sviptur ökurétti sem og skjalabrot. Var honum gert að sæta fangelsi í 30 daga jafnframt sekt. Þá var ákærði sviptur ökurétti ævilangt og hann dæmdur til greiðslu sakarkostnaðar.
Lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu (
Gunnhildur Anna Alfonsdóttir aðstoðarsaksóknari)
gegn
Svani Birki Tryggvasyni (
Jón Bjarni Kristjánsson lögmaður)
Ákærði sakfelldur fyrir brot á hegningarlögum og umferðarlögum. Dæmdur í 5 mánaða fangelsi og ævilöng svipting ökuréttar áréttuð. Um var að ræða rof á skilorði fyrri dóms og varð það dæmt upp.
Ákærði sakfelldur fyrir líkamsárás og stórfelldar ærumeiðingar gegn fyrrverandi maka.
Ákærðu sakfelldir fyrir líkamsárás.
Ákærða sýknuð af ákæru um sérstaklega hættulega líkamsárás, brot í nánu sambandi og brot gegn barnaverndarlögum.
Lögreglustjórinn á Suðurlandi (
Ólafur Hallgrímsson fulltrúi)
gegn
Jóni Gunnþórssyni (
Gísli M. Auðbergsson lögmaður)
Ákærði var fundinn sekur um ýmis hegningarlagabrot, fíkniefnalagabrot og umferðarlagabrot, þ.m.t. ítrekaðan akstur undir áhrifum fíkniefna og akstur sviptur ökurétti. Var honum dæmdur hegningarauki við eldri dóm og gert að sæta að fangelsi í níu mánuði, jafnframt sekt. Þá var áréttuð ævilöng svipting ökuréttar ákærða og honum gert að greiða brotaþolum skaðabætur.
Ákæruvaldið (
Fríða Thoroddsen aðstoðarsaksóknari)
gegn
X (
Hlynur Jónsson lögmaður)
Ákærði var dæmdur í fangelsi í níu mánuði fyrir ýmis brot gegn fyrrverandi sambýliskonu sinni. Með hliðsjón af takmörkuðum sakaferli ákærða og skýlausri játningu hans var refsingin skilorðsbundin til tveggja ára. Ákærða var einnig gert að greiða brotaþola miskabætur.
Lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu (
Kristmundur Stefán Einarsson aðstoðarsaksóknari)
gegn
Einari Birni Ingvasyni (
Stefán Karl Kristjánsson lögmaður)
Ákærði sakfelldur fyrir þjófnað og dæmdur í 30 daga fangelsi.
Ákæruvaldið (Eyþór Þorbergsson aðstoðarsaksóknari) gegn
X
Ákærða sakfelld fyrir brot gegn 1. mgr. 228. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940.
E var sakfelldur fyrir sérstaklega hættulega líkamsárás, umferðarlagabrot og fíkniefnalagabrot, auk nytjastuldar ökutækis og þjófnað í félagi við H. H var sakfelld fyrir tvær líkamsárásir, nytjastuld ökutækis, mörg þjófnaðarbrot og umferðarlagabrot, auk þess að hafa í félagi við E gerst sek um þjófnað og nytjastuld. E var dæmdur í fangelsi í 10 mánuði en H dæmd í fangelsi í 14 mánuði auk greiðslu miskabóta.
Ákæruvaldið (Eyþór Þorbergsson aðstoðarsaksóknari) gegn
Adolf Braga Hermannssyni
Ákærði sakfelldur fyrir brot gegn 1. mgr. 233. gr. a almennra hegningarlaga nr. 19/1940.
Ákærði sakfelldur fyrir vörslur fíkniefna í söluskyni og peningaþvætti.
Ákæruvaldið (
Eyþór Þorbergsson aðstoðarsaksóknari)
gegn
Katrínu Ingibjörgu Guðjónsdóttur (
Ingi Freyr Ágústsson lögmaður)
Ákærða sakfelld fyrir líkamsmeiðingar af gáleysi.
Ákæruvaldið (Eyþór Þorbergsson aðstoðarsaksóknari) gegn
Ægi Daða Árnasyni
Ákærði sakfelldur fyrir líkamsárás.
Ákæruvaldið (Eyþór Þorbergsson aðstoðarsaksóknari) gegn
David Jozef Burzynski (umsáturseinelti)
Ákærði sakfelldur fyrir umsáturseinelti og brot á nálgunarbanni.
Ákærðu var gerð fangelsisrefsing fyrir innflutning á kókaíni.
Lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu (Pétur Fannar Gíslason saksóknarfulltrúi) gegn
Andra Lúkasi Lárussyni
Ákærði var sakfelldur fyrir fjársvik og gripdeild. Hegningarauki. Skilorðsrof. Dæmdur í 3 mánaða fangelsi.
Lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu (
Kristmundur Stefán Einarsson aðstoðarsaksóknari)
gegn
Wojciech Bartosz Gwózdz (
Ólafur Valur Guðjónsson lögmaður)
Ákærði var sakfelldur fyrir þjófnaðarbrot og gert að sæta fangelsi í 30 daga.
Lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu (Kristmundur Stefán Einarsson aðstoðarsaksóknari) gegn
Árna Sigurði Karlssyni
Ákærði var sakfelldur fyrir þjófnaðarbrot. Var honum dæmdur hegningarauki og gert að sæta fangelsi í 15 daga.
Lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu (
Kamilla Kjerúlf saksóknarfulltrúi)
gegn
Marius Raducan (
Karólína Finnbjörnsdóttir lögmaður)
Ákærði var sakfelldur fyrir þjófnað og umferðarlagabrot og dæmdur í 5 mánaða fangelsi, skilorðsbundið í 2 ár og hann sviptur ökurétti ævilangt.
Ákærða var gerð skilorðsbundin fangelsisrefsing, sekt og hann sviptur ökuréttindum vegna umferðar- og hegningarlagabrots.
Skipstjóri og 2. stýrimaður á flutningaskipi voru sakfelldir fyrir að stofna lífi skipstjóra strandveiðibáts í hættu og láta fyrir farast að koma honum til hjálpar í kjölfar áreksturs milli skipanna úti fyrir Garðskaga aðfaranótt 16. maí 2024. Skipstjórinn var jafnframt sakfelldur fyrir að vera undir áhrifum áfengis og ávana- og fíkniefna er árekstur varð. Ákærðu játuðu greiðlega sök og var m.a. litið til þess þegar þeim var gerð refsing. Hlaut skipstjórinn 12 mánaða skilorðsbundinn fangelsisdóm og stýrimaðurinn 8 mánaða skilorðsbundinn dóm. Jafnframt var skipstjórinn sviptur skipstjórnarréttindum og rétti til að gegna stýrimannsstöðu í 3 mánuði.
Ákæruvaldið (Elín Hrafnsdóttir aðstoðarsaksóknari) gegn
Tomas Montrimas
Ákærða var gerð fangelsisrefsing fyrir þjófnaðarbrot og eignarspjöll. Honum var jafnframt gert að greiða einkaréttarkröfur.
Lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu (
Pétur Fannar Gíslason saksóknarfulltrúi)
gegn
Helga Kristóferssyni (
Stefán Karl Kristjánsson lögmaður)
Ákærði var sakfelldur fyrir hegningarlagabrot og gert að sæta 30 daga fangelsi.
Ákærði sakfelldur fyrir kynferðisbrot með því að hafa aflað sér og haft í sínum vörslum efni sem sýndi börn á kynferðislegan og klámfenginn hátt, auk brots gegn vopnalögum. Dæmdur í fimmtán mánaða fangelsi skilorðsbundið til þriggja ára og til upptöku á haldlögðum munum.
Ákærði sakfelldur fyrir líkamsárás.
Ákæruvaldið (
Eyþór Þorbergsson aðstoðarsaksóknari)
gegn
Erni Leó Hlynssyni (
Bjarni Hauksson lögmaður)
Talið var sannað með framlagningu matsgerðar og öðrum gögnum að ákærði hafi ekið bifreið sinni á að minnsta kosti 142 km/klst í aðdraganda umferðarslyss. Var því hafnað að sök væri fyrnd, en talið rétt að skilorðstími yrði styttri vegna dráttar á rannsókn málsins. Var ákærði dæmdur til 30 daga skilorðsbundinnar fangelsisvistar, auk þess sem hann var sviptur ökuréttindum.
Lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu (
Kamilla Kjerúlf saksóknarfulltrúi)
gegn
Brynjari Þór Jakobssyni (
Þórður Már Jónsson lögmaður)
Ákærði sakfelldur og dæmdur til skilorðsbundinnar refsingar fyrir að hafa brotið gegn 233. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940 með því að hafa sent skilaboð er innihéldu hótanir.
Héraðssaksóknari (
Halldór Rósmundur Guðjónsson aðstoðarsaksóknari)
gegn
Thomas De Farrier (
Magnús Jónsson lögmaður)
Ákærði var fundinn sekur um hegningar- umferðar- og lögreglulagabrot auk fíkniefnalagabrots. Var honum gert að sæta fangelsi í 90 daga jafnframt sekt. Þá var ákærði sviptur ökurétti ævilangt og gert að sæta upptöku fíkniefna.
Ekki þótti sannað að ákærði hefði ráðist að fyrrverandi sambýliskonu sinni og slegið hana með parketlista. Var ákærði því sýknaður af þeirri háttsemi sem honum er gefin að sök.
Ákærða var gerð fanelsisrefsing fyrir innflutning fíkniefna.
Ákæruvaldið (
Ásmundur Jónsson aðstoðarsaksóknari)
gegn
Hender Rafael Salas Rovira (
Elías Kristjánsson lögmaður)
Ákærða var gerð fangelsisrefsing fyrir innflutning á kókaíni
Ákæruvaldið (Ásmundur Jónsson aðstoðarsaksóknari) gegn
Steingrími Kára Kristjánssyni
Ákærða var gerð skilorðsbundin fangelsisrefsing fyrir misnotkun skjals
Ákærða var gerð fangelsisrefsing sem var að hluta skilorðsbundin fyrir að hafa staðið að innflutningi á 9.900 g af maríhúana
Lögreglustjórinn á Austurlandi (Fríða Thoroddsen lögreglustjóri) gegn
X
Sakfellt fyrir brot á lögum um velferð dýra nr. 55/2013
Lögreglustjórinn á Norðurlandi eystra (
Eyþór Þorbergsson aðstoðarsaksóknari)
gegn
Stefán Ragnarsson (
Sigurður Freyr Sigurðsson lögmaður)
Ákærði sakfelldur fyrir vörslur barnaníðsefnis og dæmdur til eins árs fangelsisvistar, skilorðsbundinnar til þriggja ára, auk þess að sæta upptöku á efninu.
Lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu (
Agnes Ýr Stefánsdóttir saksóknarfulltrúi)
gegn
Sigurjóni Þórissyni (
Snorri Sturluson lögmaður)
Ákærði var sakfelldur fyrir hegningarlaga- og umferðarlagabrot og honum gert að sæta fangelsi í 90 daga og hann sviptur ökurétti ævilangt.
Lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu (Pétur Fannar Gíslason saksóknarfulltrúi) gegn
Daníel Arnari Guðjónssyni
Ákærði var sakfelldur fyrir hegningarlaga- og fíkniefnalagabrot og gert að sæta fangelsi í 60 daga og gert að sæta upptöku á haldlögðum fíkniefnum.
Ákæruvaldið (Eyþór Þorbergsson aðstoðarsaksóknari) gegn
Ísól Björk Einarsdóttur
Ákærða sakfelld fyrir eignaspjöll.
Ákæruvaldið (Eyþór Þorbergsson aðstoðarsaksóknari) gegn
Svala Bergmann Hjaltadóttir
Ákærða sakfelld fyrir þjófnað.