Fara í efni

Dómstólaleit

Leit í dómum íslenskra dómstóla

Landsréttur

Mál nr. 159/2026:

A

(Björgvin Halldór Björnsson lögmaður)

gegn

barnaverndarþjónustu B

(Torfi Ragnar Sigurðsson lögmaður)

Kærumál. Barnavernd. Vistun barns. Gjafsókn.

Staðfestur var úrskurður héraðsdóms þar sem ráðstöfun um vistun barns A utan heimilis var framlengd um 12 mánuði.

Úrskurður Landsréttar

Landsréttardómararnir Hervör Þorvaldsdóttir, Kristinn Halldórsson og Ragnheiður Harðardóttir kveða upp úrskurð í máli þessu.

Málsmeðferð og dómkröfur aðila

  1. Sóknaraðili skaut málinu til Landsréttar með kæru 24. febrúar 2026. Greinargerð varnaraðila barst réttinum 16. mars sama ár. Kærður er úrskurður Héraðsdóms Suðurlands 16. febrúar 2026 í málinu nr. U-[…]/2026 þar sem vistun sonar sóknaraðila, C, utan heimilis samkvæmt úrskurði umdæmisráðs D 18. september 2025 var framlengd um tólf mánuði eða til og með 17. janúar 2027. Kæruheimild er í 1. mgr. 64. gr. barnaverndarlaga nr. 80/2002.
  2. Sóknaraðili krefst þess að hinn kærði úrskurður verði felldur úr gildi og jafnframt að „felldur verði úr gildi úrskurður umdæmisráðs D dags. 11. desember 2025 um heimild [varnaraðila] til að gera kröfu fyrir dómi um að vistun [sonar sóknaraðila] standi í allt að 12 mánuði til viðbótar“. Til vara er þess krafist að vistuninni verði markaður skemmri tími. Þá krefst sóknaraðili málskostnaðar fyrir Landsrétti eins og mál þetta væri eigi gjafsóknarmál.
  3. Varnaraðili krefst staðfestingar hins kærða úrskurðar.
  4. Varnaraðili hefur lagt ný gögn fyrir Landsrétt. Um er að ræða gögn er varða meðferð málsins hjá varnaraðila eftir að málflutningur fór fram fyrir héraðsdómi. Meðal gagnanna er kæra sóknaraðila á úrskurði umdæmisráðs D til úrskurðarnefndar velferðarmála ásamt rökstuðningi sóknaraðila og greinargerð varnaraðila vegna kærunnar frá 24. og 27. febrúar 2026, dagálar varnaraðila frá 7. janúar til 10. mars 2026, meðferðarfundir barnaverndar frá 9. janúar til 30. janúar 2026, áætlun um meðferð máls samkvæmt 33. gr. barnaverndarlaga og beiðni um fósturheimili 3. mars 2026, tölvupóstsamskipti er lúta meðal annars að beiðni um fósturheimili, umgengni við móður og samskipti við leikskóla og vistforeldra, skýrsla um umgengni móður undir eftirliti 12. mars 2026 og staðfesting barnaverndarþjónustu á umsjá barns frá 12. mars til 17. júní 2026.

Niðurstaða

  1. Með vísan til forsendna hins kærða úrskurðar verður hann staðfestur eins og í úrskurðarorði greinir.
  2. Kærumálskostnaður verður ekki úrskurðaður. Gjafsóknarkostnaður sóknaraðila í héraði og fyrir Landsrétti verður ákveðinn í einu lagi svo sem í úrskurðarorði greinir en þóknun lögmanns hans er þar tilgreind án virðisaukaskatts í samræmi við dómvenju. Við ákvörðun þóknunar lögmannsins hefur verið litið til þess að sambærilegt mál vegna annars barns sóknaraðila er rekið milli sömu aðila samhliða þessu máli.

Úrskurðarorð:

Ráðstöfun sú sem ákveðin var með úrskurði umdæmisráðs D 18. september 2025 um vistun C utan heimilis er framlengd um 12 mánuði eða til og með 17. janúar 2027.

Ákvæði hins kærða úrskurðar um málskostnað er staðfest.

Kærumálskostnaður fellur niður.

Gjafsóknarkostnaður sóknaraðila, A, í héraði og fyrir Landsrétti greiðist úr ríkissjóði, þar með talin þóknun lögmanns hans, Björgvins Halldórs Björnssonar, 1.400.000 krónur.

Úrskurður Héraðsdóms Suðurlands 16. febrúar 2026

I.

Mál þetta barst dóminum 15. janúar 2026 og var þingfest 22. sama mánaðar. Sóknaraðili er Barnaverndarþjónusta B, kt. […], með aðsetur að […], en varnaraðili er A, kt. […], með ótilgreint lögheimili […].

Sóknaraðili krefst þess að ráðstöfun sú sem ákveðin var samkvæmt b-lið 1. mgr. 27. gr. barnaverndarlaga nr. 80/2002 með úrskurði umdæmisráðs D þann 18. september 2025 og staðfestur var með úrskurði Héraðsdóms Suðurlands þann 7. nóvember 2025 í máli U-[…]/2025 um vistun C, kt. […], utan heimilis, verði framlengd um 12 mánuði eða til og með 17. janúar 2027, með vísan til 1. mgr. 28. gr., sbr. 1. mgr. 27. gr. barnaverndarlaga nr. 80/2002.

Varnaraðili krefst þess aðallega að kröfu sóknaraðila um vistun sonar hans, C, utan heimilis verði hafnað og honum verði falin umsjá sonar síns nú þegar. Til vara krefst varnaraðili þess að vistun C utan heimilis verði markaður mun skemmri tími en sóknaraðili fer fram á.

Varnaraðili krefst málskostnaðar fyrir héraðsdómi eins og málið væri eigi gjafsóknarmál en varnaraðili nýtur gjafsóknar í málinu.

Málið var tekið til úrskurðar að lokinni aðalmeðferð þann 9. febrúar 2025. Þann sama dag áður en aðalmeðferð fór fram ræddi dómari við barnið C að viðstöddum talsmanni hans.

II.

Í greinargerð sóknaraðila kemur fram að varnaraðili fari með forsjá sonar síns, C sem er […] ára, ásamt móður barnanna E, kt. […], en þau eiga einnig saman F sem er […] ára og fara sameiginlega með forsjá hennar. Hafi varnaraðili flutt með börnin á […] í júní […] og búi í leiguhúsnæði ásamt unnustu og […] syni hennar. Áður hafi varnaraðili búið með börnunum á […]. Fram er komið að varnaraðili er með framheilaskaða eftir […] sem hann lenti í þegar hann var […] ára gamall. Drengurinn C hefur verið vistaður utan heimilis varnaraðila frá 3. september 2025.

Um vistun C og systur hans hefur verið fjallað í úrskurði dómsins frá 7. nóvember 2025 í málinu nr. U- […]/2025 sem staðfestur var með úrskurði Landsréttar þann 5. desember sama ár í málinu nr. 774/2025. Sakarefni málsins varðar það hvort lagaskilyrði séu til áframhaldandi vistunar C samkvæmt kröfu sóknaraðila en í framangreindum úrskurði eru atvik rakin. Um atvik málsins og vinnslu þess hjá sóknaraðila er ekki ágreiningur í meginatriðum þótt varnaraðili hafi uppi sérstök mótmæli sem getið verður síðar.

Eins og fram kemur í nefndum úrskurði dómsins var mál vegna C og systur hans til vinnslu hjá barnaverndarþjónustu G en þá var fjölskyldan búsett á […]. Kemur fram að vinnsla barnaverndarmáls þar hafi verið í vinnslu a.m.k. frá því í apríl 2023 en stuðningur á heimilinu muni hafa verið um lengri tíma á grundvelli félagsþjónustu vegna veikinda móður. Var drengurinn á þessum tíma í vistun utan heimilis varnaraðila frá 13. febrúar 2024 og fram í janúar 2025, fyrst með samþykki varnaraðila en haustið 2024 mun varnaraðili ekki hafa verið til samvinnu um frekari vistun drengsins utan heimilis. Kom því til vistunar utan heimilis með úrskurði umdæmisráðs H í 4 mánuði frá 8. október 2024. Liggja fyrir upplýsingar um að í janúar 2025 hafi drengurinn verið lagaður að heimili föður að nýju og meðferðaráætlun þá endurnýjuð með varnaraðila. Þótti tímabært að láta reyna á að drengurinn færi á ný í umsjá varnaraðila með öflugum stuðningi frá barnavernd.

Sóknaraðili getur um að meðal stuðningsúrræða í meðferðaráætlun frá því í janúar 2025 hafi verið stuðningur frá I en það úrræði hafi ekki skilað árangri þar sem varnaraðili hafi ekki tileinkað sér leiðbeiningar og ráðgjöf þrátt fyrir mikla viðveru þroskaþjálfa á heimilinu. Liggur fyrir skýrsla frá I um að þeir þroskaþjálfar sem sinnt hefðu ráðgjöf á heimili telji óvíst að varnaraðili væri fær um að tileinka sér jákvæðar, leiðbeinandi og styðjandi uppeldisaðferðir sem væru viðeigandi á hverju því þroskastigi sem drengurinn hafi verið á. Í apríl 2024, eftir að drengurinn hafi fyrst verið vistaður utan heimilis, komi fram í upplýsingum frá leikskóla að hann sé eins og annað barn. Áður hafi honum liðið áberandi illa, verið órór, ekki haft í sér eirð og ekki virst getað hlustað þegar talað hafi verið við hann. Eftir vistun utan heimilis hafi hann verið rólegri og glaðari, nánast hættur að missa þvag og hægðir í buxur, átt auðveldara með einbeitingu og átt betri samskipti við aðra. Samkvæmt upplýsingum frá leikskólanum kom einnig fram að varnaraðili sé hömlulaus í samskiptum við starfsfólk með óviðeigandi samskipti við drenginn og geri óraunhæfar kröfur til hans þrátt fyrir leiðbeiningar starfsfólks. Í greinargerð sálfræðings hjá skóla- og velferðarþjónustu G frá 24. september 2024 komi fram að sálfræðingurinn hafi athugað drenginn. Í skýrslunni komi fram að það sé mikið áhyggjuefni að hann hafi sýnt tímabundna afturför í þroska og hegðun eftir umgengni við foreldra á meðan hann hafi verið fósturvistaður á vegum skóla- og velferðarþjónustu G. Það bendi til að aðstæður drengsins í heimsóknum hafi ekki verið góðar og valdið honum ótta. Í upplýsingum frá leikskólanum J, þar sem C var áður en hann flutti á […], kom fram að leikskólinn hafi merkt mikla afturför hjá honum eftir að hann hafi farið aftur í umsjá varnaraðila í janúar 2025, hegðun drengsins hafi breyst verulega til hins verra, hann hafi farið að stama meira og missa þvag og hægðir í buxur.

Eins og rakið er í fyrri úrskurði dómsins vann K, sálfræðingur, mat á forsjárhæfni foreldra barna þeirra þegar málið var til meðferðar hjá barnaverndarþjónustu G. Í mati hennar var dregið í efa að varnaraðili búi yfir þeirri færni að skilja þarfir barnanna á ólíkum þroskastigum þeirra og hafi getu til að mæta mismunandi þörfum þeirra. Kemur fram að fólk sem hafi orðið fyrir heilaskaða sé viðkvæmara fyrir álagi en aðrir og þekkt sé að það sýni af sér dómgreindarskort, hömluleysi, hvatvísi, skapofsa eða ofbeldishneigð og að það hafi bæði skerta athygli og innsæi. Matsmaður telji alla þessa þætti þekkta hjá varnaraðila ef litið sé til gagna sem matsmaður hafi fengið aðgang að, viðtala við varnaraðila og við þá aðila sem þekkja varnaraðila. Í matinu er einnig getið um niðurstöður CAPI prófs sem bendi til þess að varnaraðili sé líklegur til þess að beita börn sín ofbeldi auk þess sem varnaraðili hafi sagt matsmanni sjálfur að hann væri að vinna í því að hafa stjórn á sér þegar hann annaðist börnin. Hefur sóknaraðili vakið athygli á svörum matsmanns við spurningu nr. 9 um hvort ætla megi að daglegri umönnun og uppeldi eða samskipti forsjáraðila og barna verði alvarlega ábótavant með hliðsjón af aldri og þroska barnanna, fari börnin á ný í umsjá forsjáraðila. Segir í matinu um þetta: „Að mati matsmanns er vandi foreldra það alvarlegur, flókinn og langvarandi að hvorugu þeirra er treystandi til þess að tryggja öryggi og vellíðan F og C. Farið þau á ný í umsjá þeirra er hætt við að börnin hljóti varanlegan skaða af.“

Málefni C kom til vinnslu hjá sóknaraðila í kjölfar tilkynningar frá leikskóla drengsins sem barst þann 1. september 2025. Kemur þar fram að atvik hafi komið upp í leikskólanum 29. ágúst það ár. Drengurinn hafi verið í miklu ójafnvægi og sagt frá því að varnaraðili væri vondur við hann. Hafi drengurinn bent í því sambandi á tiltekna líkamsparta og sagt síðan að hann vildi vera hjá starfsfólkinu í leikskólanum. Í tilkynningunni kemur einnig fram að drengurinn sé almennt í tilfinningalegu ójafnvægi, hann beiti bæði önnur börn og kennara ofbeldi við minnsta mótlæti. Þá segir að barnið stami mikið og að á fyrri leikskóla hafi stamið verið tengt við vanlíðan hans. Starfsfólk leikskóla hefði orðið vart við í eitt skipti að varnaraðili hefði sótt barnið í bifreið án þess að viðeigandi öryggisbúnaður hafi verið í henni. Önnur tilkynning barst sóknaraðila 2. september 2025 frá leikskóla drengsins en þar kemur fram að hann hafi orðið reiður og í kjölfarið sagt að hann vildi vera í leikskólanum allan daginn. Þann sama dag hafi kennari séð marblett á drengnum neðarlega á baki og aðspurður hafi drengurinn sagt að varnaraðili væri alltaf að meiða hann en systir hans þá sagt: „hættu, hættu, láttu hann vera“. Svo hafi drengurinn sagt að systir hans elski sig en að varnaraðili hlusti ekki á hana. Drengurinn hafi einnig lýst því hvernig varnaraðili hafi meitt hann á höfði þegar hann héldi mjög fast um það og ýtti honum með andlitið ofan í dýnu. Í greinargerð sóknaraðila kemur fram að í kjölfar tilkynninganna hafi könnun hafist tafarlaust í barnaverndarmáli drengsins. Hafi starfsmenn sóknaraðila rætt við hann í tvígang í leikskóla þar sem hann hafi staðfest andlegt og líkamlegt ofbeldi varnaraðila í sinn garð eins og fram hafi komið í tilkynningum leikskólans. Í greinargerð sinni í málinu hefur varnaraðili neitað alfarið að hann hafi beitt drenginn andlegu eða líkamlegu ofbeldi og kannist ekki við lýsingar eða frásagnir sonar síns.

Þann 3. september 2025 var af hálfu sóknaraðila leitað eftir samþykki varnaraðila fyrir vistun beggja barnanna utan heimilis til þess að tryggja öryggi þeirra á meðan frekari vinnsla barnaverndarmálanna færi fram. Varnaraðili hafnaði því alfarið að hafa beitt börnin ofbeldi en viðurkenndi að honum þætti þau oft erfið. Af hálfu sóknaraðila var ekki talið forsvaranlegt að börnin færu á ný í umsjá varnaraðila og var því ákveðið að grípa til neyðarráðstöfunar, sbr. 31. gr. barnaverndarlaga nr. 80/2002 og vista börnin utan heimilis föður. Móðir barnanna samþykkti vistun barnanna, fyrst munnlega, og svo með undirritun yfirlýsinga en sóknaraðili telur hana ekki vera í aðstöðu til þess að taka við umsjá barnanna.

Upplýsingar bárust frá leikskóla drengsins þann 5. september 2025 þar sem lýst er yfir miklum áhyggjum af drengnum og líðan hans en hann byrjaði í leikskólanum 18. ágúst það ár. Drengurinn lendi oft í árekstrum í samskiptum, sýni öðrum börnum ógnandi hegðun og beiti ofbeldi. Þá eru lýsingar á óviðeigandi hegðun og samskiptum varnaraðila við starfsfólk leikskólans.

Skýrsla talsmanns C frá 16. september 2025 liggur fyrir þar sem fram kemur að drengurinn hafi upplýst talsmann um að honum líði ekki vel á heimili varnaraðila þar sem varnaraðili sé vondur við sig og að hann vilji vera áfram á vistunarheimili. Drengurinn vilji þó hitta varnaraðila og sakni systur sinnar. Erfitt hafi verið að fá hann til að tjá sig mikið.

Getur sóknaraðili þess að í úrskurði umdæmsiráðs frá 18. september 2025 hafi stúlkan greint frá því samkvæmt skýrslu talsmanns hennar frá 15. september að varnaraðili hafi slegið C einu sinni. Stúlkan hafi lýst áhyggjum af bróður sínum og sagt að hann myndi alltaf vilja fara aftur til varnaraðila þótt honum liði ekki vel þar og finnist hún þurfa að passa bróður sinn.

Mál barnanna var lagt fyrir umdæmisráð D þann 17. september 2025 þar sem sóknaraðili lagði fram tillögu um að umdæmisráð úrskurðaði um vistun beggja barnanna utan heimilis í fjóra mánuði á grundvelli 27. gr. barnaverndarlaga. Umdæmisráð féllst á tillögu sóknaraðila með úrskurði 18. september 2025. Könnunum lauk í barnaverndarmálunum hjá sóknaraðila þann 18. september 2025 þar sem staðfest var þörf á stuðningsúrræðum.

Varnaraðili skaut úrskurði Umdæmisráðs D frá 18. september 2025 til dóms og var kröfum varnaraðila um að fella hann úr gildi hafnað sem fyrr segir með úrskurði Héraðsdóms Suðurlands þann 7. nóvember 2025 í máli nr. U-[…]/2025. Varnaraðili kærði úrskurð héraðsdóms til Landsréttar sem með úrskurði þann 5. desember 2025 í mállinu nr. 774/2025 staðfesti úrskurð héraðsdóms.

Í greinargerð varnaraðila er því haldið til haga að vægari úrræði hefðu átt að koma til greina áður en gripið hafi verið til vistunar. Hafi varnaraðili lýst sig reiðubúinn til samvinnu við barnavernd og til að gera það sem starfsfólk sóknaraðila telji nauðsynlegt að undanskildu því að samþykkja vistun utan heimilis og hleypa starfsfólki sóknaraðila inn á heimili sitt.

Sóknaraðili greinir frá því að eftir að úrskurður umdæmisráðs D var kveðinn upp hafi vinnsla málsins haldið áfram. Þann 25. september 2025 kom varnaraðili á fund sóknaraðila. Varnaraðili hafnaði því að hann hafi beitt börnin ofbeldi og setti hann sig á alfarið á móti því að móðir fengi að hitta drenginn. Kemur fram að varnaraðila var boðið að undirrita meðferðaráætlanir í málum drengsins þar sem gert var ráð fyrir ýmsum stuðningsúrræðum. Varnaraðili samþykkti ekki meðferðaráætlunina og lýsti því yfir að hann væri ekki reiðubúinn til þess að þiggja stuðningsúrræði inni á heimili sínu. Þá hafi hann sagst ekki nenna í uppeldisráðgjöf.

Markmið áætlunar kveður sóknaraðili hafa verið að tryggja öryggi og vellíðan barns og að barn byggi við stöðugleika. Meðal annars með því að styðja forsjáraðila til þess að sýna vilja til þess að tileinka sér uppbyggilegar uppeldisaðferðir þar sem að forsjáraðili þurfi stuðning og leiðsögn til að bregðast við hegðun barns með viðeigandi hætti og leiðbeiningar um samskipti við barn svo þau séu jákvæð og að barn sé hvorki beitt líkamlegu né tilfinningalegu ofbeldi. Allt með það að markmiði að barn snúi aftur á heimili. Einnig að koma á umgengni við forsjáraðila. Helstu stuðningsúrræði og aðgerðir til að ná þeim markmiðum hafi verið stuðningsviðtöl við föður af hálfu ráðgjafa barnaverndar. Umgengni við forsjáraðila undir eftirliti barnaverndar, sértæk ráðgjöf á heimili, viðeigandi samtalsmeðferðir fyrir föður, viðtöl í Barnahúsi fyrir barn, óboðað eftirlit með heimili komi barn til með að dvelja á heimili forsjáraðila, samstarf við þau kerfi sem koma að barninu og samþætting þjónustu í þágu farsældar barna. Kemur fram að varnaraðili hafi alfarið hafnað áætlun um meðferð máls.

Í viðtali samþykkti varnaraðili umgengnissamning þar sem kveðið var á um umgengnistíma varnaraðila við drenginn frá 25. september 2025 til 25. október 2025. Varnaraðili hitti drenginn undir eftirliti þann 9. okóber og 23. október og mun umgengnin hafa gengið vel en samskipti við þau sem eftirliti sinntu einkennst af reiði varnaraðila í þeirra garð.

Sóknaraðili greinir frá því að haft hafi verið samband við varnaraðila þann 3. nóvember 2025 og honum boðin þátttaka á uppeldisnámskeið á vegum skólaþjónustu B sem hafi átt að hefjast 4. nóvember. Varnaraðili hafi sagt fyrirvarann stuttan og óskað eftir því að fá að fara á námskeið sem haldið yrði á nýju ári. Fram hafi komið að sóknaraðili myndi skrá hann á námskeiðið. Sama dag hafi aftur verið reynt að hafa samband við varnaraðila en án árangurs. Reynt hafi verið að hringja í varnaraðila í þrígang 11. nóvember til að boða hann í umgengni við drenginn fimmtudaginn 13. nóvember en án árangurs. Hafi sóknaraðili sent varnaraðila tölvupóst þann 18. nóvember 2025 og óskað eftir viðtali við hann þann 20. nóvember til að ræða framhald umgengni og næstu skref í máli drengsins þar sem ekki hafi verið í gildi umgengnisamningur. Reynt hafi verið að hringja í varnaraðila 19. nóvember til að staðfesta viðtalstíma þann 20. nóvember en varnaraðili hafi ekki svarað erindi sóknaraðila.

Þann 20. nóvember hafi vistforeldri greint frá því að varnaraðili hafi haft samband og komið með marga poka af fatnaði fyrir bæði börnin. Varnaraðili hafi þá tjáð vistforeldrinu að hann hafi tæmt herbergi barnanna og farið með allt dót barnanna á heimili foreldra varnaraðila. Einnig hafi komið fram að varnaraðili ætlaði sér ekki að mæta í umgengni.

Þann 11. nóvember 2025 bárust sóknaraðila upplýsingar frá Heilbrigðisstofnun L dags. 11. september 2025. Fram kemur í bókun læknis að varnaraðili hafi við komu á heilsugæslu þann 10. ágúst 2025 sagst vera opinn fyrir því að fara til sálfræðings. Jafnframt lýsti varnaraðili mikilli bugun á heimilinu, og sagðist hann ekki treysta sjálfum sér og að hann óttist að missa stjórn á sér og að hann eigi erfitt með að halda höndum að sér. Hann elski börnin sín en hann sé að missa vitið og þurfi hjálp.

Sóknaraðili greinir frá að þann 21. nóvember 2025 hafi borist upplýsingar frá lögreglu um rannsókn í máli barnanna beggja vegna heimilisofbeldis af hendi föður. Þann 12. september sama ár hafi börnin gefið skýrslu fyrir dómi í barnahúsi. Drengurinn hafi greint svo frá í Barnahúsi að varnaraðili hafi rassskellt hann og honum orðið illt. Þá hafi drengurinn sýnt með handahreyfingum að varnaraðili hafi ýtt aftan á höfuð drengsins og sagt að það hafi verið vont. Er drengurinn hafi verið spurður hvernig honum liði vegna þess atviks hafi hann sagt að þetta væri vont og að hann væri hræddur. Spurður um hvort varnaraðili hefði gert svona áður hafi drengurinn svarað því játandi og nefnt nafn systur sinnar. Hafi hann sagt hana hafa grátið og drengurinn þá tekið í hárið á sér.

Gerður var umgengnissamningur við móður vegna beggja barnanna fyrri tímabilið 6. nóvember til 20. nóvember 2025 og kveður sóknaraðili umgengni hafa gengið vel. Gerður var umgengnissamningur þann 20. nóvember 2025 við móður vegna beggja barnanna fyrri tímabilið 20. nóvember til 15. janúar 2026. Í málinu liggur fyrir samþykki móður stúlkunnar þann 20. nóvember 2025 fyrir vistun stúlkunnar og bróður hennar utan heimilis fyrir tímabilið 17. janúar 2026 til 17. janúar 2027 en áður hafi móðirin samþykkt vistun utan heimilis til 17. janúar 2026.

Samkvæmt upplýsingum frá núverandi leikskóla drengsins frá 28. nóvember 2025 er líðan drengsins frá því að hann var vistaður utan heimilis varnaraðila sögð góð, hann eigi almennt í góðum samskiptum við börn og kennara. Stam sé enn þá til staðar en mun minna en við upphaf leikskólagöngu. Drengurinn hafi mætt vel og er hegðun almennt góð í leikskólanum, hann sé glaðlyndur, alltaf kátur og er með hópnum allan tímann. Hann sé orðinn fullur þátttakandi í leikskólastarfi. Aðbúnaður barns sé viðunandi, hann sæki í jákvæð samskipti, bæði við börn og fullorðna. Engin samskipti séu við foreldra en góð samskipti við vistforeldra. Á leikskóla hafi ekki verið merki um breytingar á líðan drengs í kjölfar umgengni.

Fyrir liggur að talsmaður drengsins ræddi við hann þann 28. nóvember 2025 í […] B. Fram kemur að honum líði vel og hann vilji vera áfram á vistheimili. Drengurinn vilji hitta móður sína og föður sinn, en verði barnalegur í röddinni og segist sakna pabba. Hafi hann greint frá því að hann vilji eiga heima hjá mömmu, ömmu sinni og talið svo upp aðra í fjölskyldunni, pabba og systur sína.

Á meðferðarfundi sóknaraðila þann 5. desember 2025 hafi í ljósi fyrirliggjandi upplýsinga verið bókað að brýnir hagsmunir drengsins krefðust áframhaldandi vistunar hans til allt að tólf mánaða. Var samþykkt að vísa málum drengsins til umdæmisráðs D til frekari umfjöllunar og úrskurðar.

Á fundi umdæmisráðs þann 11. desember 2025 var mál drengsins tekið fyrir og gerði lögmaður varnaraðila grein fyrir afstöðu hans. Starfsmenn sóknaraðila hafi farið yfir forsendur fyrir tillögu málsins. Með úrskurði umdæmisráðs D, sem undirritaður var 14. desember 2025, féllst umdæmisráðið á tillögu sóknaraðila um að drengurinn yrði áfram vistaður utan heimilis varnaraðila og var sóknaraðila veitt heimild til að krefjast áframhaldandi vistunar hans í allt að 12 mánuði til viðbótar.

Fram kemur í úrskurði umdæmisráðs að á tímabili núverandi vistunar drengsins utan heimilis varnaraðila verði ekki séð að varnaraðili hafi bætt stöðu sína svo máli skipti. Samvinna hans við sóknaraðila hafi verið lítil og frumkvæði hans til að leita sér stuðnings einnig lítið sem ekkert. Forsjárgeta varnaraðila sé því verulega skert og þau uppeldisskilyrði sem hann hafi boðið drengnum upp á hafi ekki verið góð og lítið batnað á vistunartímabilinu. Þá hafi drengurinn lýst yfir eindregnum vilja sínum til að dvelja áfram á vistheimili og að vilji hans sé ótvíræður og að rétt sé að taka réttmætt tillit til afstöðu hans. Það sé mat umdæmisráðs miðað við gögn málsins að það séu brýnir hagsmunir drengsins að vera vistaður utan heimilis varnaraðila. Tryggja þurfi öryggi hans og velferð og allan vafa beri að túlka drengnum í vil með hliðsjón af hagsmunum hans. Fram kemur einnig að ljóst sé að varnaraðili eigi langa vegferð fyrir höndum til að teljast öruggur uppalandi drengsins. Hann þurfi að sækja sér aðstoð og jafnframt að vera í fullnægjandi samvinnu við sóknaraðila um að byggja upp forsjárhæfni sína og nýta nauðsynlegan stuðning við umönnun. Þá komi fram upplýsingar hjá eftirlitsaðila sóknaraðila að umgengni varnaraðila við drenginn um að ekki sé ástæða til að ætla að forsjárhæfni varnaraðila hafi breyst frá því vinnsla máls hófst.

Sóknaraðili kveður varnaraðila síðast mætt í umgengni við drenginn þann 23. október 2025. Sóknaraðili hafi ítrekað reynt að ná í varnaraðila síðan 3. nóvember 2025 til þess að ræða frekari umgengni varnaraðila, með tölvupóstum og símtölum, en varnaraðili hafi ekki svarað sóknaraðila. Í tölvupósti lögmanns varnaraðila frá 27. nóvember 2025 komi fram að varnaraðili sé ekki tilbúinn að samþykkja umgengni nema hún fari fram án eftirlits. Einnig hafi komið fram að varnaraðili hafi ekki verið tilbúin að samþykkja áframhaldandi vistun og lögmaður hans talið ósennilegt að varnaraðili myndi þiggja boð um viðtal að svo stöddu. Liggja þessi svör lögmannsins fyrir í málinu.

Sóknaraðili hafnaði beiðni varnaraðila um umgengni án eftirlits og kveðst sóknaraðili hafa leiðbeint varnaraðila um að unnt væri að leggja fram beiðni um að umdæmisráð D tæki málið til umfjöllunar og úrskurði um umgengni. Þann 13. janúar síðastliðinn lagði sóknaraðili greinargerð fyrir umdæmisráð D þar sem fram kom að sóknaraðili teldi að ástæða væri til að ætla að hagsmunum drengsins væri stefnt í hættu færi hún í umgengni við varnaraðila án eftirlits. Sóknaraðili fór fram á að umdæmisráð D kvæði upp úrskurð um umgengni drengsins við varnaraðila. Með úrskurði umdæmisráðs 16. janúar síðastliðinn var kveðið á um að börn varnaraðila skyldu eiga umgengni við hann í allt að eina og hálfa klukkustund í senn undir eftirliti í húsnæði á vegum barnaverndar B á meðan börnin væru vistuð utan heimilis. Er í úrskurðinum getið þeirra réttarheimilda sem stuðst var við og reifuð þau matsatriði sem 74. gr. barnaverndarlaga ráðgera í ljósi þess að börnin væru vistuð utan heimilis. Varnaraðili ætti langa vegferð fyrir höndum til að teljast öruggur uppalandi barnanna, þyrfti að sækja sér aðstoð og vera til fullnægjandi samvinnu við barnavernd til að byggja upp forsjárhæfni sína og nýta nauðsynlegan stuðning við umönnun. Það hefði þrátt fyrir tilraunir barnaverndar ekki gengið. Þá var tekið tillit til vilja barnanna til að hitta föður sinn eins og ráða mætti að skýrslum talsmanns þeirra. Umgengnir hefðu gengið vel en ekki yrði horft fram hjá því að afskipti hefði þurft að hafa af hegðun varnaraðila. Voru sjónarmið varnaraðila reifuð og á grundvelli gagna máls og hagsmuna barnanna talið að þeim væri til hagsbóta að umgengni yrði í samræmi við tillögur barnaverndar.

III.

Krafa sóknaraðila um framlengingu á tímabundinni vistun drengsins, C, utan heimilis í 12 mánuði er gerð með vísan til 1. mgr. 28. gr. barnaverndarlaga nr. 80/2002 enda hafi umdæmisráð veitt heimild til málshöfðunarinnar með úrskurði þann 11. desember 2025. Drengurinn hafi verið vistaður utan heimilis varnaraðila frá 3. september 2025 þegar hann var vistaður með neyðaraðgerð með vísan til 31. gr. barnaverndarlaga þar sem ekki náðist samvinna við varnaraðila um vistun drengsins utan heimilis sem svo leiddi til þess að vistunin var framlengd með úrskurði umdæmisráðs D þann 17. september 2025 í allt að fjóra mánuði.

Kröfugerð sinni til stuðnings vísar sóknaraðili til úrskurðar umdæmisráðs frá 11. desember 2025 og greinargerðar sóknaraðila sem lögð hafi verið fyrir umdæmisráð. Tekur sóknaraðili sérstaklega undir það mat umdæmisráðs D sem fram komi í niðurstöðu þess að ljóst sé að varnaraðili eigi langa vegferð fyrir höndum til að teljast öruggur uppalandi drengsins. Hann þurfi að sækja sér aðstoð og jafnframt að vera í fullnægjandi samvinnu við sóknaraðila um að byggja upp forsjárhæfni sína og nýta nauðsynlegan stuðning við umönnun. Einnig að fram hafi komið upplýsingar hjá eftirlitsaðila sóknaraðila vegna umgengni varnaraðila við drenginn að ekki sé ástæða til að ætla að forsjárhæfni varnaraðila hafi breyst frá því vinnsla máls hófst. Þá vísar sóknaraðili til málavaxtalýsingar að framan og þess sem fram komi í úrskurði dómsins í máli nr. U-[…]/2025 frá 7. nóvember 2025 í greinargerðum sóknaraðila, úrskurði umdæmisráðs H dags. 8. október 2024 auk þess sem fram komi í greinargerð barnaverndarþjónustu G í máli C.

Kröfu um framlengingu á vistun drengsins utan heimilis byggi sóknaraðili á því að brýnir hagsmunir hans mæli með því að vistunin haldi áfram enda hafi samvinna við varnaraðila verið lítil sem engin á vistunartímabilinu og varnaraðili ekki viljað nýta sér þau umfangsmiklu stuðningsúrræði sem honum hafi verið boðin. Enginn árangur hafi náðst með stuðningsúrræðum sóknaraðila vegna skorts á samvinnu varnaraðila og því sé það mat sóknaraðila að ekki sé forsvaranlegt sé að drengurinn fari á ný í umsjá varnaraðila. Vandi varnaraðila sé alvarlegur og djúpstæður og megi því búast við að nokkurn tíma taki að vinna að því að aðstæður varnaraðila, hvað varðar forsjárhæfni, verði viðunandi. Í ljósi þess sé gerð krafa um vistun drengsins utan heimilis í 12 mánuði í samræmi við 2. og 4. gr. barnaverndarlaga.

Sóknaraðili hafnar því alfarið sem haldið sé fram í greinargerð varnaraðila fyrir umdæmisráði að kröfugerð sóknaraðila sé ekki í samræmi við rannsóknarreglu stjórnsýslulaga og tekur undir þau sjónarmið sem fram komi í úrskurði umdæmisráðs að ekkert hafi komið fram um að rannsókn málsins sé ábótavant. Sóknaraðili telur könnun og vinnsla málsins hafa verið unna í samræmi við ákvæði barnaverndarlaga. Í ljósi þess að lítil sem engin samvinna hafi náðst við varnaraðila um að þiggja stuðningsúrræði sem honum hafi verið boðin og að samþykkja áframhaldandi vistun barnanna utan heimilis hafi það verið mat sóknaraðila að ekki væri unnt að grípa til vægari úrræða en að fara fram á áframhaldandi vistunar drengsins utan heimilis samkvæmt 28. gr. barnaverndarlaga í ljósi þeirra brýnu hagsmuna hans og réttinda sem felist í að búa við öryggi í daglegu lífi og þroskavænleg uppeldisskilyrði, sbr. 1. gr. barnalaga nr. 76/2003. Rannsóknareglan geri kröfu um rannsókn sem er fullnægjandi grundvöllur ákvörðunar stjórnvalds. Mál teljist nægjanlega rannsakað þegar þeirra upplýsinga hefur verið aflað sem nauðsynlegar séu til þess að hægt sé að taka efnislega rétta ákvörðun í því. Kröfur til rannsóknar í hverju máli ráðist af lagagrundvelli málsins og einstaklingsbundnum aðstæðum aðila þess, þar með talið þeim málsástæðum sem foreldrar beri fyrir sig. Við slíka rannsókn verði að hafa í huga 1. málslið 2. mgr. 41. gr. barnaverndarlaga, þar sem komi fram að könnun barnaverndarmáls skuli ekki vera umfangsmeiri en nauðsyn krefji og henni skuli hraðað svo sem kostur er.

Sóknaraðili telur vistun barnanna utan heimilis vera í samræmi við meginreglur barnaverndarstarfs sem tilgreindar eru í 4. gr. barnaverndarlaga þar sem mælt sé fyrir um að í barnaverndarstarfi skuli beita þeim ráðstöfunum sem ætla megi að séu barni fyrir bestu og að hagsmunir barna skuli ávallt hafði í fyrirrúmi í starfsemi barnaverndaryfirvalda. Þá telur sóknaraðili að vinnsla barnaverndarmálanna og vistun barnanna utan heimilis sé í samræmi við meðalhófsreglu og aðrar málsmeðferðarreglur barnaverndarlaga og stjórnsýslulaga. Sóknaraðili bendir í því sambandi á að hjá barnaverndarþjónustu G hafi barnaverndarmálin verið lengi til vinnslu og ýmis stuðningsúrræði verið reynd án viðunandi árangurs. Er það mat sóknaraðila að upplýsingar og gögn frá barnaverndarþjónustu G hafi mikla þýðingu í máli þessu enda veiti þau mikilvægar upplýsingar um að stuðningsþörf varnaraðila til þess að geta sinnt uppeldishlutverki sínu gagnvart drengnum er veruleg og að þau stuðningsúrræði sem hafa verið veitt hafi ekki skilað viðunandi árangri. Sóknaraðili vísar sérstaklega til þeirra gagna og upplýsinga sem liggja fyrir frá leikskóla drengsins eftir að hann var aðlagaður á heimili varnaraðila í janúar 2025 eftir að hafa verið í tæpt eitt ár í vistun utan heimilis.

Kröfugerð sína telur sóknaraðili vera í samræmi við meðalhófsreglu enda að mati sóknaraðila sú vægasta sem hægt sé að grípa til þannig að hagsmunir drengsins verði tryggðir á meðan áfram sé unnið að bættum aðstæðum varnaraðila. Kröfugerðin sé í samræmi við brýna hagsmuni drengsins og í samræmi við álit þeirra sérfræðinga sem að málinu hafa komið en þá er sérstaklega vísað til niðurstöðu forsjárhæfnismats og sérfræðinga sem áður hafi unnið með varnaraðila að bættri forsjárhæfni hans við vinnslu málsins hjá barnavernd G. Að mati sóknaraðila hafi enginn árangur náðst með stuðningsúrræðum á vistunartíma drengsins enda samvinna föður verið lítil sem engin og því ekki forsvaranlegt að drengurinn fari á ný í umsjá varnaraðila.

Kröfugerð sóknaraðila sem miði að áframhaldandi tímabundinni vistun drengsins utan heimilis til 12 mánaða sé í samræmi við hagsmuni drengsins og skyldur stjórnvalda gagnvart honum samkvæmt samningi Sameinuðu þjóðanna um réttindi barnsins, sbr. lög nr. 19/2013. Í 2. og 6. gr. samningsins sé kveðið á um að aðildarríki hans skuli í hvívetna virða réttindi barna og tryggja eftir fremsta megni að börn megi lifa og þroskast. Í 1. mgr. 3. gr. samningsins komi fram að það sem sé barni fyrir bestu skuli ávallt hafa forgang þegar félagsmálastofnanir á vegum hins opinbera eða einkaaðilar, dómstólar, stjórnvöld eða löggjafarstofnanir geri ráðstafanir er varði börn. Dómstólar hafi í úrlausnum sínum ítrekað beitt þeirri lögskýringu þegar reynir á framangreind ákvæði að þótt mikilvægt sé að varðveita tengsl barna við forsjáraðila og nánustu vandamenn þá verði þeir hagsmunir að víkja fyrir brýnum hagsmunum barnsins sjálfs ef þetta tvennt fari ekki saman.

Sóknaraðili telur mikilvægt að við úrlausn máls þessa verði litið til þess rúma tíma og þess stuðnings sem veittur var við vinnslu máls drengsins hjá Barnaverndarþjónustu G og áður en til vistunarinnar kom og skorti á samstarfvilja varnaraðila við sóknaraðila á vistunartíma drengsins. Þá telur sóknaraðili að við úrlausn málsins beri einnig að líta til þess umfangsmikla stuðnings sem þegar var búið að veita eftir að drengurinn var fyrst vistaður utan heimilis og þeirri staðreynd að viðunandi árangur hafi ekki náðst varðandi aðstæður og forsjárhæfni varnaraðila á þeim mánuðum sem núverandi vistun hafi varað og frá þeim tíma að mál drengsins hafi byrjað hjá Barnaverndarþjónustu G. Að mati sóknaraðila verði að virða réttindi drengsins sem um ræði til þess að búa við viðunandi aðstæður og umönnun í daglegu lífi sbr. fyrrgreind ákvæði samnings Sameinuðu þjóðanna um réttindi barnsins og ákvæði barnalaga enda sé ekki forsvaranlegt að drengurinn verði færður í umsjá varnaraðila á þessu tímamarki. Sóknaraðili telur einsýnt að engin vægari úrræði en áframhaldandi tímabundin vistun utan heimilis séu tæk til þess að tryggja öryggi drengsins á meðan látið verði reyna á hvort varnaraðili fáist til þess að þiggja stuðningsúrræði og hvort hann hafi getu til þess að tileinka sér viðunandi uppeldisaðferðir. Sóknaraðili byggir jafnframt á því að réttindi drengsins felist í því að búa við öryggi og stöðugleika í daglegu lífi. Það sé því mat sóknaraðila að hagsmunir varnaraðila verði að víkja fyrir brýnum hagsmunum drengsins við úrlausn máls þessa fyrir dómstólum.

Sóknaraðili telur nauðsynlegt að áframhaldandi vistun drengsins utan heimilis standi í allt að 12 mánuði til viðbótar. Krafa sóknaraðila sé í samræmi við hagsmuni drengsins enda mikilvægt að tryggja þroskavænleg uppeldisskilyrði og tryggja honum öruggt umhverfi á meðan unnið verði með varnaraðila að bættri forsjárhæfni. Sóknaraðili telur þar vega þyngst stöðugur framburður drengsins við vinnslu málsins sem og niðurstöður forsjárshæfnismats K sálfræðings frá 21. ágúst 2024. Mat K eftir ítarlega könnun hafi verið að vandi varnaraðila væri það alvarlegur, flókinn og langvarandi að honum væri ekki treystandi til að tryggja öryggi og vellíðan drengsins. Jafnframt hafi hún talið að ef drengurinn færi í umsjá varnaraðila á ný væri hætt við að hann hlyti varanlega skaða af. Fram hafi komið í framburði K fyrir dómi að þau próf sem lögð hafi verið fyrir varnaraðila hafi haft mikil áhrif á niðurstöðu mats hennar og gætu haft þýðingu áfram þrátt fyrir að matið væri bundið við hið fyrra barnaverndarmál hjá Barnavernd G. Einnig hafi það verið mat sérfræðinga frá I sem sinnt hafi ráðgjöf á heimili varnaraðila fyrir Barnavernd G að óvíst sé að varnaraðili sé fær um að tileinka sér jákvæðar, leiðbeinandi og styðjandi uppeldisaðferðir sem séu viðeigandi á hverju því þroskastigi sem drengurinn sé á.

Fram kom í úrskurði héraðsdóms það mat að ekki væri rétt að hrófla við vistun barnanna um sinn, enda mætti ætla í ljósi forsögu málsins og fyrri afskipta barnaverndaryfirvalda að nokkurn tíma þyrfti til að veita varnaraðila stuðning og til þess að kanna hvort honum væri kleift að taka við börnunum að nýju. Sérstaklega sé vikið að því í niðurstöðunni að það sé mat dómsins að það hafi verið rétt metið hjá sóknaraðila að vægari úrræði hafi ólíklega eða ekki getað komið að gagni við vinnslu málsins meðal annars vegna þess að varnaraðila skorti innsæi í vanda sinn sem uppalanda og þess að hann hafi hafnað viðeigandi stuðningsúrræðum.

Líkt og fram kemur í úrskurði dómsins liggi fyrir umtalsvert magn gagna í málinu, meðal annars frá talsmanni drengsins, leikskóla og upplýsingar og gögn frá barnaverndarþjónustu G, sem staðfest hafi verið fyrir dómi, og veiti þau, að mati sóknaraðila, mikilvægar upplýsingar um að stuðningsþörf varnaraðila til þess að geta sinnt uppeldishlutverki sínu gagnvart drengnum sé veruleg og að þau stuðningsúrræði sem hafi verið veitt hafi ekki skilað viðunandi árangri. Sóknaraðili telur skort varnaraðila um samvinnu við vinnslu málsins og stöðuga frásögn drengsins sýna fram á að varnaraðili eigi við mikinn vanda að stríða.

Þá komi fram í úrskurði héraðsdóms það mat að engin vægari úrræði hafi verið tæk til þess að vinna bug á aðstæðum barnanna og tryggja öryggi þeirra á meðan reynt væri að styðja við varnaraðila í því augnamiði að kanna hvort honum sé kleift að taka við börnunum á ný. Í viðtali þann 25. september 2025 þar sem farið hafi verið yfir meðferðaráætlanirnar með varnaraðila og lögmanni hans hafi varnaraðili alfarið hafnað stuðningsúrræðum og lýst því yfir að hann væri ekki reiðubúinn til þess að þiggja neinn stuðning inni á heimili sínu. Varnaraðili hafi hafnað umgengni undir eftirliti og sagt að hann sé reiðubúinn að mæta í umgengni fari hún fram án eftirlits. Að mati sóknaraðila sé ljóst að varnaraðila skorti innsæi í vanda sinn sem uppalanda og vegna skorts á vilja til samvinnu um stuðningsúrræði muni það taka langan tíma að mati sóknaraðila að styðja við varnaraðila til að bæta forsjárshæfni hans og kanna hvort að stuðningsúrræði hafi skilað viðunandi árangri.

Sóknaraðili bendir sérstaklega á ákvæði 2. mgr. 63. gr. a barnaverndarlaga þar sem komi fram að barni skuli gefinn kostur á að tjá sig um mál í samræmi við aldur og þroska en drengnum hafi verið skipaður talsmaður áður en niðurstaða umdæmisráðs hafi legið fyrir. Það sé ljóst að drengurinn vilji dvelja áfram hjá vistforeldrum og þar líði honum vel. Vistunin virðist alls ekki íþyngjandi ráðstöfun fyrir drenginn í ljósi mjög trúverðugs framburðar hans hjá talsmanni auk upplýsinga frá leikskóla drengsins um aðstæður hans eftir að vistun utan heimilis hafi lokið í janúar 2025. Sé það að mati sóknaraðila sérstaklega mikilvægt að viðhalda þeim stöðugleika í lífi hans sem hafi náðst frá því að vistun hafi byrjað í byrjun september síðastliðnum þar sem hann upplifi sig í öruggum aðstæðum.

Þá leggur sóknaraðili áherslu á, að þrátt fyrir ungan aldur drengsins að tillit verði tekið til skoðana, upplifunar og afstöðu hans við vinnslu málsins, sbr. 3. mgr. 4. gr. barnaverndarlaga og sérstaklega í ljósi þess að afstaða hans virðist vera byggð á þeim rökum að honum líði ekki vel í umsjá varnaraðila vegna framkomu hans gagnvart honum og harkalegum uppeldisaðferðum. Drengurinn virðist aðlagast vel á því heimili þar sem hann sé vistaður og tengist vistunaraðila ágætlega. Það yrði drengnum án efa afar þungbært að þurfa að snúa aftur á heimili varnaraðila á þessum tímapunkti.

Með vísan til fyrirliggjandi gagna og að framangreindu virtu telur sóknaraðili ljóst að brýnir hagsmunir drengsins standi til þess að hann verði áfram vistaður utan heimilis svo hægt sé að tryggja velferð hans á meðan frekari vinnsla málsins fari fram og reynt verði að fá varnaraðila til samstarfs um að bæta forsjárshæfni sína. Sóknaraðili byggir á að öll skilyrði til vistunar drengsins séu fyrir hendi og vistunin sé í samræmi við meginreglur barnaverndarlaga sem og ákvæði er varði réttindi barna. Sóknaraðili byggir jafnframt á því að tryggja verði stöðugleika í daglegu lífi barnsins í öruggum aðstæðum á meðan látið verði reyna á hvort varnaraðili muni þiggja stuðningsúrræði og, ef til þess komi, hvort stuðningsúrræðin skili þeim árangri sem nauðsynlegt sé að ná til að tryggja drengnum viðunandi uppeldisaðstæður í umsjá varnaraðila. Sóknaraðili telur því að brýnt sé að fallist verði á kröfu um að drengurinn verði áfram vistaður utan heimilis í allt að 12 mánuði skv. 28. gr. barnaverndarlaga.

Um lagarök vísar sóknaraðili til barnaverndarlaga nr. 80/2002, barnalaga nr. 76/2003, almennra óskráðra reglna stjórnsýsluréttar, stjórnsýslulaga nr. 37/1993 og laga nr. 91/1991 um meðferð einkamála eftir því sem við eigi. Jafnframt vísar sóknaraðili til Samnings Sameinuðu þjóðanna um réttindi barnsins, sbr. lög nr. 18/1992 og nr. 19/2013, einkum 3., 9., 12., 18. og 19. gr. samningsins.

IV.

Varnaraðili telur ljóst að kröfum sóknaraðila um framlengingu á vistun C utan heimilis beri að hafna þar sem grundvöllur fyrir áframhaldandi inngripi barnaverndar sé ekki fyrir hendi. Samkvæmt 1. mgr. 28. gr. barnaverndarlaga nr. 80/2002 sé heimilit að framlengja vistun ef barnaverndarnefnd telji það nauðsynlegt og önnur úrræði samkvæmt 24. og 25. gr. laganna hafi ekki skilað árangri eða séu ófullnægjandi.

Í þessu tilviki hafi sóknaraðili ekki sýnt fram á þá brýnu nauðsyn sem krafist sé til framlengingar vistunar. Fullyrðingar um takmarkaðan samstarfsvilja varnaraðila eða vanhæfni hans til að sinna uppeldis- og umönnunarskyldum sé málatilbúnaður sem varnaraðili mótmæli. Þvert á móti hafi varnaraðili lýst sig reiðubúinn til samvinnu við barnavernd og til að gera það sem starfsfólk sóknaraðila telji nauðsynlegt að undanskildu samþykki á vistun utan heimilis og aðgangi barnaverndar að heimili sínu.

Af framangreindu leiði að skilyrði framlengingar vistunar séu ekki fyrir hendi og því beri að hafna kröfum sóknaraðila.

Við úrlausn mála sem varða börn skuli ávallt hafa að leiðarljósi það sem barni sé fyrir bestu. Samkvæmt 1. mgr. 3. gr. samnings Sameinuðu þjóðanna um réttindi barnsins, sbr. lög nr. 19/2013, skuli það sem barni sé fyrir bestu ávallt hafa forgang þegar félagsmálastofnanir og dómstólar geri ráðstafanir sem varði börn. Einnig skuli hagsmunir barna ávallt hafðir í fyrirrúmi samkvæmt 1. mgr. 4. gr. barnaverndarlaga. Það sé meginregla í íslenskum barnarétti að það sé barni fyrir bestu að alast upp hjá foreldrum sínum. Markmið barnaverndarlaga sé einnig að styrkja uppeldishlutverk fjölskyldunnar. Telur varnaraðili það alveg skýrt að það sé syni hans fyrir bestu að vera heima hjá sér enda sé vel séð um hann, honum sýnd umhyggja, ást og alúð. Hafi varnaraðili verið sá eini sem verið hafi til staðar fyrir C en móðir hafi átt við erfiðleika að stríða.

Varnaraðili mótmælir harðlega ásökunum um ofbeldi og vanrækslu gagnvart C. Harðneitar varnaraðili að hafa beitt hann andlegu eða líkamlegu ofbeldi. Kannast hann alls ekki við frásagnir sonar síns og hvað þá dóttur sinnar. Kannast varnaraðili ekki við að hafa beitt börn sín ofbeldi, hvorki andlegu né líkamlegu né lagt á þau hendur með nokkrum hætti.

Samkvæmt stjórnsýslurétti og 1. mgr. 41. gr. barnaverndarlaga beri barnaverndarþjónustu að sjá til þess að mál sé nægjanlega upplýst áður en ákvörðun sé tekin í því. Mál teljist nægjanlega rannsakað þegar þeirra upplýsinga hafi verið aflað sem nauðsynlegar séu til að hægt sé að taka efnislega rétta ákvörðun.

Þrátt fyrir erfiðleika í samskiptum og að varnaraðili hafi afþakkað tillögur barnaverndar um stuðningsúrræði beri að hafa í huga að markmið barnaverndarlaga sé að styrkja uppeldishlutverk fjölskyldunnar. Varnaraðili hafi sýnt áhuga á að taka þátt í uppeldisnámskeiðum þótt stuttur fyrirvari hafi verið gefinn. Hann hafi óskað eftir að fá að fara á námskeið sem haldið yrði á nýju ári og verið lofað að hann yrði skráður á slíkt námskeið. Þetta sýni vilja til úrbóta og samstarfs þótt umgengni við drenginn hafi ekki gengið eftir þar sem varnaraðili vilji ekki vera í umgengni undir eftirliti.

Krafa barnaverndarþjónustu um framlengingu vistunar um allt að 12 mánuði sé afar íþyngjandi ráðstöfun. Samkvæmt 7. mgr. 4. gr. barnaverndarlaga og 12. gr. stjórnsýslulaga nr. 37/1993 beri að beita vægustu ráðstöfunum til að ná þeim markmiðum sem að er stefnt. Ráðstöfunin verði að vera til þess fallin að ná því markmiði sem að sé stefnt, vægasta úrræði sé beitt og úrræðinu auk þess beitt í hófi. Telur varnaraðili að gengið sé lengra en þörf krefji og því brotið gegn meðalhófsreglunni. Telur hann að vægari úrræði samkvæmt 24. gr. og 26. gr. barnaverndarlaga eigi alveg eftir að reyna hvað hann varði.

Um lagarök vísar varnaraðili til áðurnefndra laga, en einnig barnalaga nr. 76/2003 og óskráðra reglna stjórnsýsluréttar og laga nr. 91/1991 um meðferð einkamála eftir því sem við eigi. Vísar varnaraðili sem fyrr til Samnings Sameinuðu þjóðanna um réttindi barnsins, sbr. lög nr. 19/2013, einkum 3., 9., 12., 18 og 19. gr. samningsins. Þá er sérstaklega vísað til meginreglunnar um það sem barni sé fyrir bestu sem feli í sér að börn eigi rétt á að alast upp hjá foreldrum sínum eftir því sem aðstæður leyfi.

Með vísan til framangreindra málsástæðna og lagaraka telur varnaraðili að ekki séu fullnægjandi rök eða sannanir sem réttlæti áframhaldandi vistun C utan heimilis, sérstaklega ekki í þann langa tíma sem barnaverndarþjónustan fari fram á. Varnaraðili hafi ávallt mótmælt ásökunum um ofbeldi og vanrækslu. Þess sé því krafist að hafnað verði kröfu sóknaraðila um framlengingu vistunar og að C verði skilað til varnaraðila eða að vistunartími verði styttur verulega.

V.

Varnaraðili gaf skýrslu fyrir dómi. Þá gáfu skýrslu M, talsmaður C, N, O og P, starfsmenn sóknaraðila. Einnig gáfu skýrslu Q, leikskólastjóri og K, sálfræðingur.

Varnaraðili kvaðst aðspurður búa í íbúð á […] en unnusta hans og sonur hennar hefðu þar einnig dvöl. Þar hefði hann búið frá í […] á síðasta ári. Aðstæður þar væru þar í lagi eða hann gæti stækkað við sig fengi hann börnin. Hann ynni sem […], nú í verkefnum á […]. Varnaraðili taldi að brotið hefði verið á sér með vistun barnanna. Áður en börnin hefðu verið tekin hefði hann reynt að finna lausn varðandi dóttur sína um að hún gæti verið hjá foreldrum varnaraðila og þar í skóla. Fjallaði varnaraðili um að hann hefði þurft að skamma börn sín en ekki beitt þau ofbeldi og hafnaði þeim ásökunum. Hann hefði sinnt þeim og gert margt fyrir þau. Spurður um hvort hann vildi fá börn sín aftur kvaðst varnaraðili eiga erfitt með að svara enda brotinn og fyndist sem hann þekkti þau varla. Hann ætlaði ekki nokkurn tíma að vinna með barnavernd eða félagsþjónustu því að starfsmenn þar hefðu sagt að vitað væri að hann hefði ekki lamið börnin en notað það samt gegn sér til að taka þau. Spurður um umgengni hefði hann ekki fengið að hitta börnin en það hefði móðir þeirra fengið og amma þeirra. Kvaðst varnaraðili ekki koma til greina að hann fengi að hitta börnin undir eftirliti, enda ætlaði hann ekki að vinna með þessum starfsmönnum sóknaraðila. Engin þörf væri á eftirliti ef hann hitti börnin. Um hvort hann myndi treysta sér til að sjá um uppeldi barnanna kvað varnaraðili hafa sinnt því þegar þau hafi verið hjá sér. Um ástæður þess að varnaraðil vildi ekki vinna með starfsmönnum barnaverndarinnar kvað varnaraðili það vera vegna hegðunar þeirra og framkomu eins og hann hefði lýst. Hann hefði unnið með barnaverndinni í R og starfsmenn þar hefðu verið búnir að loka málinu með því varnaraðili stæði sig. Spurður um hvort varnaraðili teldi sig þurfa aðstoð með uppeldi C var að skilja að hann teldi svo og nefndi atriði eins og hvernig hann hefði staðið sig, t.d. vegna aðstoðar við drenginn vegna hugsanlegra vandamála hans. Spurður um nótu í tilkynningu frá Heilbrigðisstofnun L til barnaverndar frá 15. ágúst 2025 kvað varnaraðili ekki rétt eftir honum haft þar, varnaraðili hafi aldrei sagt að hann óttaðist að lemja soninn. Spurður um stuðning frá barnavernd í G kvað varnaraðili það ekki hafa verið mikinn stuðningur en þroskaþjálfar frá I hefðu komið í þrjár vikur og setið nokkrar stundir að kvöldi þann tíma. Það hefði ekki verið stuðningur heldur til að meta sig. Honum hefði verið sýndar einhverjar leiðir en ekki þótt það þægilegt. Um að barnaverndarþjónustan hefði boðið honum að skrifa undir meðferðaráætlun með ýmsum stuðningsúrræðum kvaðst varnaraðili hafa hafnað því þar sem hann hefði ekki áhuga á að unnusta hans og sonur hennar fengi fólk yfir sig eða að þeim yrði blandað í þetta. Hann væri með konu sér til stuðnings. Um umgengni við C sem fram hefði farið undir eftirliti kvað varnaraðili drenginn hafa komið til sín og knúsað og ekki liðið illa. Umgengni hafi gengið vel þótt aðstæður væru óþægilegar. Kvaðst varnaraðili ekki vilja eða sætta sig við frekari umgengni undir eftirliti. Nánar spurður um af hverju hann héldi að upplýsingar um ofbeldi hefðu komið frá drengnum kvaðst varnaraðili ekki vita en gæti getið sér til um að áverkar hefðu verið af eðlilegum ástæðum við þrif. Um öskur eða blótsyrði gæti það hafa gerst þótt hann myndi ekki að hann hefði æst sig. Hann hefði af tilteknu tilefni skammað hann. Um hvort hann hefði tæmt herbergi sonarins kvaðst hann ekki hafa tæmt það en tekið dót til að drengurinn fengi eftir að hann hafi verið vistaður. Það hafi verið föt sem um hafi verið beðið.

M talsmaður C staðfesti skýrslur sínar sem fyrir liggja í málinu en hún er þroskaþjálfi og félagsráðgjafi. Kvað M að erfitt væri að fá svör frá drengnum um vilja hans en honum liði vel og vildi vera hjá vistforeldrum. Hann gæti þó ekki nefnt tímasetningar. Sama hefði komið fram fyrir aðalmeðferð málsins en hann vildi þó hitta foreldra sína sem hann saknaði. Hann vildi búa hjá mömmu sinni en líka nefnt ömmu eða hjá mömmu og pabba. M nefndi að framfarir hefðu orðið hjá drengnum, sérstaklega varðandi málþroska. Nú myndaði hann setningar sem hann hafi ekki gert fyrst þegar talsmaður hafi hitt hann. Vitnið staðfesti að drengurinn hefði sagt föður hafa verið vondan við sig eins og tekið væri fram í fyrri skýrslunni. Þessar lýsingar hefðu ekki verið nákvæmari. Kvað M telja hann hafa verið trúverðugan og staðfesti að upplýsingar um hegðun föður hefðu einnig komið frá systur drengsins þar sem hann hefði hækkað rödd og ýtt við drengnum. Hann elskaði báða foreldra sína og systur.

N, félagsráðgjafi, fjölskylduráðgjafi og teymisstjóri barnaverndar hjá sóknaraðila. Staðfesti hún greinargerðir þær sem hún hefði unnið að. Rakti N vinnslu málsins eftir að tilkynning kom til sóknaraðila og að komið hefði til neyðarvistunar þar sem varnaraðili hefði ekki samþykkt vistun. Greindi vitnið frá upplýsingaöflun og að við lok könnunar hefði verið lögð til áætlun um meðferð máls fyrir varnaraðila og með viðeigandi stuðningsúrræðum. Varnaraðili hefði hafnað þeim. Lögð hefði verið til umgengni undir eftirliti og varnaraðili ritað undir einn umgengnissamning. Hann hefði hitt drenginn tvisvar undir eftirliti en frá 3. nóvember hefði ekki náðst samband við varnaraðila. Í síðasta viðtalinu hefði vitnið boðið varnaraðila að sækja uppeldisnámskeið sem hann hefði samþykkt að sækja í mars næstkomandi. Annars hefðu samskipti farið fram í gegnum lögmann varnaraðila en varnaraðili hefði hafnað fundi með starfsmönnum sóknaraðila. Umgengnin við C hefði gengið vel, drengurinn fagnað og varnaraðili mætt honum vel. Um ástæður þess að varnaraðili hefði hafnað að gera annan samning um umgengni kvað vitnið vera að hann hafnaði að hún yrði undir eftirliti þótt hann sæktist eftir að fá að hitta börnin án eftirlits. Varnaraðili hefði hafnað að fara eftir nýgengnum úrskurði Umdæmisráðs um umgengni undir eftirliti. Meðferðaráætlun eftir að drengurinn hafi verið vistaður í fjóra mánuði hafi varnaraðili hafnað og samtal um það ekki náðst þrátt fyrir ítrekaðar tilraunir vitnisins og annarra starfsmanna. Hann hafi talað um að samþykkja öll stuðningsúrræði nema íhlutun inn á hans heimili, t.d. námskeið eins og það sem hann hefði verið skráður á. Spurð um hvort það væri mat N að eitthvað gæti komið í staðinn fyrir stuðning inn á heimili kvað hún það engan veginn vera og það byggi hún á sinni faglegu reynslu. Vitnið sæi fyrir sér áframhaldandi vinnslu málsins ef fallist yrði á vistun utan heimilis þannig að einlægur vilji væri að ná samstarfi við varnaraðila og sérstaklega varðandi umgengni við börn sín. Líka að ná samstarfi við föður um úrræði sem til þess væru fallin að auka forsjárhæfni hans og stuðla að farsælli aðlögun barnanna í hans umsjá. Ástæða fyrir kröfu um 12 mánaða vistun væri að það væru breytingar á C á þeim tíma sem liðinn væri þegar en ekki hefði náðst samstarf við varnaraðila um stuðningsúrræði. Fyrirliggjandi gögn beri með sér að úrræði sem reynd hafi verið hafi ekki skilað árangri. Þess vegna væri þessi tími nauðsynlegur en stuðningsúrræði þyrftu að vera til lengri tíma og að árangur sæist. Óraunhæft væri að vistun yrði skemmri, en ef varnaraðili yrði til samstarfs þannig að árangri skilaði yrði vistun ekki lengur en þörf krefði. Spurð um stuðningsúrræði sem til greina kæmu kvað N það fyrst og fremst vera stuðning í aðstæðum sem varnaraðili þyrfti, þ.e. þegar varnaraðili væri með börnin í sinni umsjá. Þar af leiðandi væri hægt að aðlaga umgengni á heimili þannig að hún þyrfti ekki að fara fram hjá sóknaraðila. Það væri til staðar tilsjónaraðili en líka kæmu til utanaðkomandi aðstoð. Um ástæður þess að umgengni þyrfti að vera undir eftirliti kvað vitnið þær vera eins og fram kæmi í skrifum til Umdæmisráðs, en vandi sá sem varnaraðili glími við væri alvarlegur, flókinn og langvarandi. Þá hefði varnaraðili takmarkaða innsýn í þroska og stöðu barnsins, sem einnig hefði greint frá ofbeldi varnaraðila. Ekki væru því forsendur til að hafa umgengni án eftirlits að svo stöddu. Vitnið kvaðst aðspurt meta það svo að brýn nauðsyn vegna hagsmuna barnanna væri að þau væru vistuð utan heimilis áfram vegna öryggis, stöðugleika og mikil breyting hefði orðið á líðan og hegðun eftir vistun. Vitnið var spurt um hvort það hefði sagt við varnaraðila að hann væri ekki að beita börnin ofbeldi og svaraði neitandi. Varnaraðili hefði hins vegar vísað til fyrrum ráðgjafa málsins hjá G, en þetta hafi sá ráðgjafi sagt. Þá var vitnið spurt um hvað hefði verið horft til úr gögnum við vinnslu málsins hjá barnavernd G og nefndi vitnið forsjárhæfnismat sem væri nýlegt og bæri með sér miklar áhyggjur af veru barnanna í umsjá varnaraðila. Barnið hefði verið vistað utan heimilis og breyting væri á líðan þegar barnið færi aftur í umsjá varnaraðila til hins verra. Þá nefndi vitnið skýrslu I um að varnaraðili hefði takmarkaða innsýn í stöðu barnanna og að áhyggjur væru af því hvort hann gæti tileinkað sér tillögur ráðgjafanna. Stuðningur þyrfti að ná ákveðinni festu og horfa yrði til stuðnings til lengri tíma.

O, félagsráðgjafi hjá barnavernd fór einnig yfir vinnslu málsins og sinni aðkomu. Nefndi vitnið hvenær tilkynning hefði komið til barnaverndar og könnunarviðtöl af því tilefni. Vitnið hefði verið viðstödd þegar C hafi komið til viðtals 3. september 2025 þar sem hann hafi staðfest efni tilkynningarinnar sem hafi verið líkamlegt ofbeldi af hálfu varnaraðila og barnið greint frá í leikskóla. Vitnið hafi telji frásögnina trúverðuga. Þá hafi verið tekin ákvörðun um að boða varnaraðila inn og bjóða vistun utan heimilis í tvær vikur sem hann hafi ekki samþykkt. Þá hafi verið gripið til neyðarráðstöfunar. Vitnið hafi ekki verið viðstödd umgengni með drengnum en vitnið og P hafi fengið málið til meðferðar. Varnaraðili hafi verið boðaður aftur í viðtal ásamt lögmanni og teymisstjóra þar sem lögð hafi verið fyrir áætlun með stuðningsúrræðum og umgengnissamningi fyrir varnaraðila. Hann hafi hafnað alfarið áætlun um meðferð máls en samþykkt umgengnissamning þar. Síðan hafi ekki náðst samvinna við varnaraðila frá í byrjun nóvember. Hjá drengnum hafi gengið mjög vel eftir að hann hafi verið vistaður utan heimilis en hann hafi farið á heimili á vegum sóknaraðila. Miklar framfarir hafi orðið. Leikskólinn hafi greint frá í september að hann hafi verið órólegur, reiður og ekki getað stjórnað skapi sínu. Breytingar hafi síðan orðið og hann náð að tengjast félagslega, stam minnkað, pissuslys hætt. Þetta sé sama og gerst hafi í ferlinu eftir vistun samkvæmt upplýsingum frá barnavernd G og afturför þegar hann hafi aftur farið í vistun varnaraðila. Spurð um úrræði sóknaraðila sem varnaraðili hafi hafnað nefndi vitnið að sett hafi verið inn stuðningsviðtöl við varnaraðila, umgengni undir eftirliti barnaverndar, sértæk ráðgjöf á heimili, viðeigandi samtalsmeðferðir fyrir varnaraðila, viðtöl í Barnahúsi fyrir barn, óboðið eftirlit með heimili ef dvöl verði þar, samstarf við kerfi og samþætting. Varnaraðili hafi hafnað öllum úrræðum þar og skráð það á skjalið. Hann hafi hafnað allri samvinnu við sóknaraðila. Núna í vinnslu málsins frá nóvember hafi komið upplýsingar um að varnaraðili hafi skilað á þeirra heimili öllu dóti auk fata þar sem börnin myndu ekki búa hjá honum lengur. Börnin hafi óskað eftir að fá að hitta varnaraðila í umgengni en hann hafnað því.

P ráðgjafi hjá sóknaraðila greindi frá aðkomu sinni að máli varnaraðila. Nefndi vitnið að borin hefði verið undir hann áætlun sem hún reifaði en varnaraðili hefði hafnað og ekki samþykkt að komið væri inn á heimili sitt. Rætt hafi verið hvort hann vildi einhvern stuðning og uppeldisráðgjöf en hann hafi þar samþykkt umgengnissamning. Tvisvar hefði verið komið á umgengni í október við C hjá sóknaraðila og þær gengið vel. Drengurinn hafi verið glaður að sjá varnaraðila og hann sinnt vel leik með drengnum. Síðan hafi verið reynt að ná í varnaraðila til að leggja fyrir nýjan umgengnissamning og til að eiga samtöl um stuðningsúrræði og annað. Síðast hafi náðst í hann í síma 3. nóvember og honum boðin þátttaka í uppeldisnámskeiði sem hann hafi samþykkt og fara eigi fram í mars næstkomandi. Síðan hafi samskiptin verið í gegnum lögmann varnaraðila en skýrt komið fram að varnaraðili vildi ekki vera í umgengni undir eftirliti. Úrskurðað hafi verið þar um af Umdæmisráði, en staðfest hafi verið af lögmanni varnaraðila að hann ætli ekki að lúta þeim úrskurði. Spurt um hvort vitnið teldi trúverðuga lýsingu barnanna á ofbeldi svaraði það játandi. Spurð um hvort komið hefðu fram ástæður þess af hverju varnaraðili vildi ekki umgengni undir eftirliti kvað vitnið varnaraðila telja það óþarft. Um lok umgengninnar kvað vitnið verða reiðan og lýsa því þrátt fyrir leiðbeiningar um að það væri ekki staður og stund fyrir slíka umræðu. Um C kvað vitnið að samkvæmt gögnum úr eldri vinnslu væru upplýsingar frá leikskólanum á […] um óróleika í hegðun, erfiðleika í félagslegum samskiptum og sjálfsstjórn. Pissuslys hafi verið dagleg. Breyting hafi orðið á líðan eftir hann hafi farið í vistun í febrúar 2024, þessi slys hafi hætt, meiri ró og jákvæð tengsl mynduð við önnur börn. Er hann hafi flutt til föður síns í janúar 2025 hafi honum virst liða vel í fyrstu en slysin komið upp aftur, hann órólegur og erfiður í samskiptum. Upplýsingar hafi síðan komið frá leikskólanum á […] í byrjun september um að hann reiðist við minnsta mótlæti og bregðist illa við, bíti, slái og kasti hlutum, stami mikið og félagsleg samskipti erfið. Aftur hafi komið upplýsingar frá leikskólanum í byrjun nóvember þar sem líðan sé lýst sem góðir, samskipti við börn og kennara góð, minna stam, glaðlyndur og kátur.

Q leikskólastjóri leikskólans S á […] staðfesti tilkynningar sem frá leikskólanum hefðu komið og efni þeirra. Einnig staðfesti vitnið gögn um upplýsingar frá leikskólanum. C hafi byrjað í leikskólanum 18. ágúst 2025 og fyrstu tilkynningar hafi verið í lok þess mánaðar þar sem hann hafi greint frá ofbeldi. Hann hafi aftur greint frá ofbeldi og það tilkynnt. Ofbeldi hafi drengurinn lýst frá varnaraðila í eyru starfsmanns leikskólans en í seinna tilvikinu hafi sést marblettur á baki og hann lýst hvernig varnaraðili hefði haldið sér niðri og systir hans beðið um að hætta. Vitnið bar um að hvernig staða drengsins í leikskóla á […] hafi verið kunn þegar hann hafi komið fyrst í leikskólann t.d. um stam sem hafi minnkað í vistun en aukist aftur við dvöl hjá varnaraðila. Kvað vitnið þetta stam hafa verið mikið þegar hann hafi byrjað í leikskóla og hann varla getað myndað orð sökum þessa. Þetta hafi minnkað eftir að hann hafi farið í fóstur og geti hann nú myndað heilar setningar. Könnun þeirra á málþroska hafi sýnt góðan orðaforða ólíkt því sem hafi verið. Vitnið kvað samvinnu leikskólans við varnaraðila hafa verið sérstaka og nefndi nokkra erfiðleika í samskiptum við varnaraðila við fyrstu heimsóknir í leikskólann og aðlögun.

K sálfræðingur gaf skýrslu fyrir dómi þar sem hún staðfesti matsgerð sína um forsjárhæfni varnaraðila og barnsmóður hans frá 21. ágúst 2024 sem unnin hafi verið fyrir barnaverndarþjónustu G. Staðfesti hún efni matsgerðarinnar og kannaðist við fyrri framburð sinn fyrir dóminum vegna sömu matsgerðar. K reifaði helstu niðurstöður matsgerðarinnar um að varnaraðili væri með mikla, langvarandi veikleika og það alvarlega að hann væri ófær um að sýna stöðugleika í foreldrahlutverki. Lögð hefðu verið fyrir nokkur próf, meðal annars greindarpróf sem sýndi slæma útkomu og jaðraði við greindarskerðingu. Önnur sálfræðileg próf hefðu heldur ekki komið vel út. K kvað framheilaskaðann vera langvarandi og fólk sem yrði fyrir slíkum skaða glímdi við flókna og alvarlegan vanda sem gerbreytti lífi þess og ylli hömluleysi, hvatvísi og slöku innsæi. Einkennin væru að einbeiting og minni væri skert, dómgreindarskortur og skapofsi, jafnvel þannig að borið gæti á ofbeldishneigð. Tilslökunum í vinnu þyrfti við og stuðning frá samfélagi og ástvinum til frambúðar. Þessar lýsingar ættu við um varnaraðila. Um niðurstöðu prófa um að líklegt væri að varnaraðili beitti börn sín ofbeldi kvað vitnið þetta rekja til sérstaks prófs sem sýnt hefði þessa niðurstöðu og persónuleikaprófi. Aðspurt kvað vitnið varnaraðila alls ekki færan um að hafa börn í sinni umsjá. Það gæti tvímælalaust valdið börnunum skaða að fara aftur í hans umsjá þótt ljóst væri að varnaraðili vildi þeim vel og væri orkumikill. Varnaraðili hefði ekki gert sér grein fyrir því hve illa börnunum hefði liðið og að margt hefði verið að hans uppeldisaðferðum. Um hvort unnt væri að bæta forsjárhæfni varnaraðila svo vel væri kvað vitnið svo ekki vera. Þetta væri varanlegur heilaskaði en það væri hægt að hjálpa honum að takast á við daglegt líf. Nefndi vitnið dæmi um hversu erfitt hefði verið að leiðbeina honum. K kvaðst telja matsgerð sína eiga jafn vel við í dag og þegar hún var gerð og niðurstaða hennar ætti við um varnaraðila einan og sér þótt hún fjallaði um foreldrana báða. K kvaðst ekki hafa komið að málinu eftir að hún skilaði matsgerðinni og ekki þekkja til haga varnaraðila nú.

VI.

Í málinu gerir sóknaraðili kröfu um að ráðstöfun sú sem staðfest var með dómi héraðsdóms 7. nóvember 2025 og um vistun C utan heimilis verði framlengd um 12 mánuði eða til og með 17. janúar 2027 með vísan til 1. mgr. 28. gr., sbr. 1. mgr. 27. gr. barnaverndarlaga nr. 80/2002, en úrskurður dómsins var staðfestur með úrskurði Landsréttar þann þann 5. desember 2025 í málinu nr. 774/2025.

Í 1. mgr. 27. gr. barnaverndarlaga nr. 80/2002 kemur fram að með sömu skilyrðum og fram koma í 26. gr. laganna og ef brýnir hagsmunir barns mæla með því geti barnaverndarþjónusta farið fram á það við umdæmisráð barnaverndar að ráðið úrskurði gegn vilja foreldra og/eða barns sem náð hefur 15 ára aldri að kveðið verði á um töku barns af heimili í allt að fjóra mánuði og um nauðsynlegar ráðstafanir, svo sem ráðstöfun þess í fóstur eða vistun á heimili eða stofnun eða leita annarra úrræða samkvæmt XIII. og XIV. kafla laganna til að tryggja öryggi þess eða til að unnt sé að gera viðeigandi rannsókn á barninu og veita því nauðsynlega meðferð og aðhlynningu. Þau skilyrði sem vísað er til í 26. gr. laganna eru að úrræði samkvæmt 24. og 25. gr. laganna hafi ekki skilað árangri að mati barnaverndarþjónustu eða barnaverndarþjónusta hefur eftir atvikum komist að þeirri niðurstöðu að þau séu ófullnægjandi. Eru úrræði samkvæmt 24. og 25. gr. laganna vægari og sem öll eiga það sammerkt að vera með samþykki foreldra. Þá er kveðið á um í 28. gr. laganna að ef barnaverndarþjónusta telur nauðsynlegt að ráðstöfun samkvæmt a- og b-lið 27. gr. standi lengur en þar sé kveðið á um skuli hún að fengnum úrskurði umdæmisráðs barnaverndar gera kröfu um það fyrir héraðsdómi. Er heimilt með úrskurði dómara að vista barn í allt að tólf mánuði í senn frá og með þeim degi sem úrskurður er kveðinn upp.

Í nefndum úrskurði dómsins frá 7. nóvember síðastliðnum er rakin vinnsla sóknaraðila á máli því sem leiddi til vistunar C eftir að tilkynning barst barnaverndinni 29. ágúst 2025 frá S, leikskóla drengsins. Varðaði tilkynningin líkamlegt ofbeldi af hendi sóknaraðila í garð drengsins. Barst önnur tilkynning um grun um líkamlegt ofbeldi sóknaraðila í garð drengsins 1. september sama ár. Fram kom að í tilkynningu leikskólans frá 29. ágúst 2025 hafi verið lýst hvar drengurinn hafi sagt sóknaraðila vera vondan við sig og að drengurinn hafi lýst því með því að benda á rass og höfuð. Þá hafi verið veitt athygli er varnaraðili hafi komið að sækja drenginn að æskilegur öryggisbúnaður hafi ekki verið í bifreið sóknaraðila fyrir barnið miðað við aldur þess. Hafi einnig verið greint frá vanlíðan barnsins, tilfinningalegu ójafnvægi og stami sem starfsmenn leikskólans tengdu við vanlíðan þess. Í seinni tilkynningunni frá 1. september 2025 hafi aftur verið greint frá að drengurinn hefði lýst hvar varnaraðili hefði meitt hann eftir að kennari hefði séð marblett neðarlega á baki. Hafi drengurinn einnig lýst hvar sóknaraðili hefði meitt hann með því að halda höfði drengsins fast og ýtt ofan í dýnuna. Hefðu starfsmenn sóknaraðila staðfest þessar tilkynningar og að þeir hefðu sannreynt þær í viðtölum við drenginn og systur hans. Þá hefði leikskólastjóri S staðfest tilkynningarnar. Starfsmenn sóknaraðila hefðu átt viðtöl við börnin sitt í hvoru lagi án vitundar foreldra þeirra og talið eftir samtöl við drenginn að hann staðfesti tilefni tilkynninganna og að stúlkan hefði staðfest líkamlegt ofbeldi gagnvart honum. Hefði hún einnig staðfest harkalegt atferli varnaraðila í sinn garð. Starfsmenn sóknaraðila og leikskólastjórinn hafa staðfest gögn og frásagnir sem að þessu lúta nú fyrir dómi.

Í úrskurði dómsins, sem staðfestur var með úrskurði Landsréttar, var komist að þeirri niðurstöðu að rétt hefði verið á grundvelli 21. gr. barnaverndarlaga að hefja könnun málsins eftir að fyrrgreindar tilkynningar hefðu borist. Þá var einnig fallist á að í ljósi afstöðu varnaraðila og skorts á samvinnu hafi verið rétt að beita úrræðum 31. gr. laganna um vistun barna varnaraðila til bráðabirgða svo sem gert var 3. september 2025. Er í niðurstöðu úrskurðarins rakin vinnsla málsins vegna barna varnaraðila og forsögu þess hjá barnavernd G en mat K, sálfræðings, á forsjárhæfni varnaraðila og móður barnanna frá 21. ágúst 2024 var meðal þeirra gagna sem sóknaraðili lagði til grundvallar kröfu um vistun þeirra. Fram kom í úrskurði dómsins að mat hennar eftir ítarlega könnun að vandi foreldra barnanna væri það alvarlegur, flókinn og langvarandi að hvorugu þeirra væri treystandi til að tryggja öryggi og vellíðan barnanna tveggja. Færi þau á ný í umsjá foreldranna væri hætt við að börnin hlytu varanlegan skaða af. Staðfesti K mat sitt fyrir dómi eins og fyrr segir en í framburði hennar kom fram að próf þau sem lögð hefðu verið fyrir sóknaraðila og ráðið hefðu miklu um niðurstöðuna gætu haft þýðingu áfram þótt matið væri bundið við hið fyrra mál. Hefur K staðfest mat sitt að nýju máli þessu.

Í úrskurði dómsins var lagt til grundvallar að nægjanlega væri fram komið að börnin tvö hefðu lýst ofbeldi af hálfu föður, andlegu og líkamlegu, þannig að ástæða hefði verið til að grípa til viðeigandi úrræða samkvæmt barnaverndarlögum þannig að öryggi þeirra og velferð yrði tryggð. Þótt frásagnir þeirra yrðu ekki sannreyndar til hlítar miðað við sönnunarkröfur samkvæmt lögum nr. 88/2008 um meðferð sakamála yrði að skýra allan vafa um gildi þeirra börnunum og velferð þeirra í hag, sbr. 1. gr., 2. gr. og 4. gr. barnaverndarlaga og meginreglur þeirra laga að öðru leyti.

Úrskurður dómsins sem staðfestur var með úrskurði Landsréttar fól í sér endanlega efnislega úrlausn um það sakarefni sem þar var lagt fyrir. Hefur úrskurðurinn því sönnunargildi um þau málsatvik sem þar greinir nema hið gagnstæða sannist, sbr. 4. mgr. 116. gr. laga nr. 91/1991 um meðferð einkamála. Þrátt fyrir mótmæli varnaraðila um að hann hafi sýnt þá hegðun gagnvart börnunum sem áður er vikið að hefur ekki verið hnekkt því mati dómsins að vafi þar að lútandi yrði skýrður börnum hans í hag og með réttu leitt til þess að sóknaraðili greip til úrræða um að vista börnin utan heimilis.

Gildir það sama um fyrra mat dómsins um að varnaraðila hafi skort færi til að veita börnum sínum viðunandi og heilbrigð uppeldisskilyrði þrátt fyrir ítrekuð afskipti barnaverndaryfirvalda og að ráðið hafi ógnandi hegðun og uppeldisaðferðir sem ætla mætti að byggi á harðræði í orði og verki.

Í úrskurði dómsins var einnig talið nægjanlega upplýst að varnaraðili hefði hafnað nauðsynlegri samvinnu við sóknaraðila í upphafi könnunar. Þá hefði hann hafnað faglegum stuðningi inn á heimili sitt sagst geta talað við einhvern utan þess. Þá hafi varnaraðili hafnað meðferðaráætlunum sem lagðar hafi verið fyrir eftir að börn hans hafi verið vistuð utan heimilis. Eins og fram kemur í gögnum málsins og framburði starfsmanna sóknaraðila hefur engin samvinna náðst við varnaraðila og raunar ekki náðst samband við hann frá 3. nóvember 2025, en lögmaður hefur upplýst starfsmenn sóknaraðila um afstöðu varnaraðila. Hafði varnaraðili þó samþykkt að sækja uppeldisnámskeið sem haldið verði í mars á þessu ári. Afstaða hans um að hafna þeirri meðferðaráætlun sem lögð var fyrir og gilda átti fram í janúar 2026 hafnaði varnaraðili með áritun sinni þess efnis. Samkvæmt framburði varnaraðila fyrir dómi og gögnum máslins hefur hann neitað að sæta því að umgengni við C fari fram undir eftirliti eða að starfsmenn sóknaraðila komi inn á heimili varnaraðila.

Varnaraðili hefur byggt á því að meðalhófsreglu hafi ekki verið gætt. Áður hefur það orðið niðurstaða dómsins að vinna með sóknaraðila á grundvelli 24. og 25. gr. barnaverndarlaga og boð um viðeigandi stuðningsúrræði hefðu ólíklega eða ekki skilað árangri þannig að hagsmunir barnanna og velferð þeirra yrði tryggð. Varnaraðila skorti innsæi í vanda sinn sem uppalanda og hafi hafnað viðeigandi stuðningsúrræðum. Eins og málið horfir við nú hefur sóknaraðili ekki náð samvinnu við varnaraðila og hefur hann hafnað henni, einkum á þeim grundvelli að honum hugnist ekki að umgengni fari fram undir eftirliti og kæri sig ekki um að starfsmenn sóknaraðila eða ráðgjafar á vegum sóknaraðila sæki sig heim. Samkvæmt framansögðu var umgengni undir eftirliti, tilsjón með heimili og þau úrræði sem varnaraðila stóð til boða en hafnaði í samræmi við ákvæði laganna. Liggur einnig fyrir tölvubréf lögmanns varnaraðila þar sem komið er á framfæri afstöðu varnaraðila um að hann muni ekki hlíta úrskurði umdæmisráðs D um umgengni undir eftirliti.

Í 24. gr. barnaverndarlaga er mælt fyrir um úrræði sem barnaverndarþjónusta skuli ákveða í áætlun samkvæmt 23. gr. laganna tiltekna aðstoð með samþykki foreldra og í samráði við barn. Þá er mælt fyrir um úrræði utan heimilis með samþykki foreldra í 25. gr. laganna. Í 24. gr. er gert ráð fyrir að aðstoð felist meðal annars í að leiðbeina foreldrum um uppeldi og aðbúnað barns og að útvega barni eða fjölskyldu tilsjónarmann, persónulegan ráðgjafa eða stuðningsfjölskyldu og aðstoða foreldra við að leita sér meðferðar vegna veikinda, áfengis- eða vímuefnaneyslu eða annarra persónulegra vandamála. Er einnig mælt fyrir um að barnaverndarþjónusta geti með samþykki foreldra og án sérstaks úrskurðar beitt öðrum úrræðum sem kveðið er á um í 26. gr. Ef úrræði samkvæmt 24. gr. beinist að heimili þar sem barn búi nægir samþykki þess foreldris eða foreldra sem barn býr hjá eftir ákvæðum barnalaga. Beinist úrræði að heimili foreldra eða annarra þar sem barn nýtur umgengi þurfi samþykki lögheimilisforeldris og þess sem njóti umgengninnar. Fjallað er um úrræði utan heimilis með samþykki foreldra og barns í 25. gr. Hafi úrræði samkvæmt 24. eða 25. gr. ekki skilað árangri að mati barnaverndarþjónustu eða hún hefur eftir atvikum komist að þeirri niðurstöðu að þau séu ófullnægjandi er unnt á grundvelli 26. gr. að fara fram á það við umdæmisráð barnaverndar að ráðið úrskurði gegn vilja foreldra að kveðið verði á um eftirlit með heimili, gefin verði fyrirmæli um tiltekinn aðbúnað og umönnun barns, láta tilteknum aðilum sem vinni með barni eftir ákvæðum laganna í té upplýsingar um líðan barns eða meðferð máls og fleira. Um umgengni barns við foreldra sína meðan það er í fóstri er mælt fyrir um í 74. gr. barnalaga. Á barn rétt til umgengni við foreldra sína við þær aðstæður nema hún sé bersýnilega andstæð hagsmunum og þörfum barnsins og ósamrýmanleg þeim markmiðum sem að er stefnt með ráðstöfun þess í fóstur. Felst þannig í ákvæðinu að réttur til umgengni er ekki fortakslaus við þessar aðstæður og getur sætt takmörkunum. Var það í samræmi við greind ákvæði að gættum ákvæðum 2. gr. og 1. og 7. mgr. 4. gr. barnaverndarlaga að leggja til umgengni þannig að eftirlit yrði með henni.

Starfsmenn sóknaraðila sem um mál varnaraðila og barna hans fjölluðu búa yfir sérfræðiþekkingu og reynslu. Hefur ekki verið hnekkt því mati sóknaraðila eins og meðal annars kemur fram í framburði N, félagsráðgjafa og teymisstjóra, að umgengni undir eftirliti og tilsjón með heimili varnaraðila í aðstæðum með börnunum hafi verið nauðsynleg og að önnur úrræði ein og sér hefðu ekki komið að gagni. Verður af framburðum fyrir dómi og gögnum máls ráðið að varnaraðili þarf leiðbeiningar um umgengni svo unnt sé að vinna áfram könnun á því hvort honum sé kleift að sinna uppeldishlutverki sínu. Verður því lagt til grundvallar að stuðningsúrræði þau sem varnaraðili hefur hafnað hafi verið nauðsynleg og réttmæt og að ekki sé barninu fyrir bestu að það fari í bráð í umsjá varnaraðila. Við svo búið verður ekki talið að vægari úrræði en vistun utan heimilis geti komið að gagni. Af þessum ástæðum og með hliðsjón af því sem liggur fyrir um vangetu varnaraðila til að sinna uppeldi barna sinna verður ekki fallist á að brotin hafi verið meðalhófsregla 12. gr. stjórnsýslulaga eða ákvæði 7. mgr. 4. gr. barnaverndarlaga. Eins og málið lá fyrir varnaraðila og umdæmisráði er ljóst að önnur úrræði en áframhaldandi vistun barnanna eru ekki raunhæf þannig að árangurs megi vænta.

Sem fyrr segir hefur engin samvinna sem að gagni kemur náðst við varnaraðila frá 3. nóvember 2025 utan þess að hann mun hafa fallist á að sækja uppeldisnámskeið. Þegar metið er hvort málið hafi verið nægjanlega upplýst í samræmi við 10. gr. stjórnsýslulaga nr. 37/1993 og 41. gr. barnaverndarlaga verður að horfa til málatvika í heild allt frá því að sóknaraðili tók mál barnanna til meðferðar í september 2025 og einnig með hliðsjón af þeim gögnum og upplýsingum sem sóknaraðila bárust frá barnaverndarþjónustu G. Hefur því verið slegið föstu með úrskurði dómsins að rannsókn málsins hafi verið fullnægjandi til að taka hafi mátt ákvörðun um vistun barna varnaraðila í fjóra mánuði eða til 17. janúar 2026. Meðferð málsins af hálfu sóknaraðila meðan á vistun barna varnaraðila hefur staðið hefur einkum falist í því að kalla eftir samvinnu við hann, koma á umgengni undir eftirliti og leggja fyrir meðferðaráætlanir. Sem fyrr segir hefur varnaraðili hafnað þeirri samvinnu sem nauðsynleg er talin. Við svo búið og í ljósi þess sem fyrir liggur um vangetu varnaraðila til að tryggja börnunum uppeldisaðstæður, þannig að öryggi þeirra og velferð sé tryggð, verður að leggja til grundvallar að málið hafi verið nægjanlega upplýst þannig að nauðsynlegt væri að gera kröfu um áframhaldandi vistun barnanna utan heimilis.

Í málinu liggja fyrir skýrslur talsmanns C sem staðfestar voru fyrir dómi en auk þess átti dómari samtal við drenginn. Líður drengnum vel hjá vistforeldrum þótt hann óski eftir að búa hjá varnaraðila og móður en erfitt var að fá fram skýra afstöðu drengsins. Í málinu telst þannig nægjanlega upplýst að C líður vel þar sem hann er vistaður utan heimilis og hefur hann tekið framförum eins og meðal annars hefur komið fram hjá talsmanni hans og upplýsingum frá leikskólastjóra í bréfi, dags. 28. nóvember 2025. Þá hefur leikskólastjóri borið fyrir dómi að framfarir drengsins séu verulegar. Á það við um bæði börn varnaraðila að forsaga málsins bendi til þess að aftur falli geti fallið í sama farið verði varnaraðila falin umsjá barnanna að nýju. Fara saman hagsmunir drengsins og líðan hans í áframhaldandi vistun utan heimilis, sbr. 2. mgr. 4. gr. barnaverndarlaga.

Það er því niðurstaða dómsins að áframhaldandi vistun C utan heimilis sé nauðsynleg vegna brýnna hagsmuna hans og í samræmi við 28. gr., sbr. 27. gr. barnaverndarlaga.

Sóknaraðili hefur gert kröfu til vara um að vistun barnanna utan heimilis verði markaður skemmri tími en krafist er. Samkvæmt forsjárhæfnismati því sem fyrr er greint frá er vandi varnaraðila sem uppalanda mjög alvarlegur og langvarandi og hann ekki að svo komnu fær um að tryggja börnunum uppeldisaðstæður, þannig að öryggi þeirra og velferð sé tryggð. Andstaða hans við að nýta lögmæt úrræði sóknaraðila virðist einnig standa því í vegi að kanna megi á raunhæfan hátt hvort unnt sé að veita honum viðeigandi aðstoð með hagsmuni hans og barnanna að leiðarljósi. Standa engin rök til þess að hrófla við högum C nú. Verður því ekki talið að kröfugerð sóknaraðila um áframhaldandi vistun C utan heimilis fram á næsta ár sé úr hófi en undir sóknaraðila á að meta aðstæður og hvort sá tími geti orðið styttri ef viðunandi árangur næst.

Samkvæmt öllu framansögðu er fallist á kröfu sóknaraðila eins og í úrskurðarorði greinir.

Sóknaraðili hefur ekki krafist málskostnaðar. Varnaraðili nýtur gjafsóknar og greiðist gjafsóknarkostnaður eins og í úrskurðarorði greinir, þar á meðal þóknun lögmanns hans, Björgvins Halldórs Björnssonar, sem hæfilega er ákveðin í samræmi við tímaskráningu hans 1.024.860 krónur að teknu tilliti til virðisaukaskatts. Útlagður kostnaður verður ekki tiltekinn sérstaklega í úrskurðarorði. Varnaraðili hefur einnig krafist málskostnaðar í samræmi við gjafsóknarleyfi en rétt er að hann falli niður.

Einar Karl Hallvarðsson héraðsdómari kveður upp úrskurð þennan.

Úrskurðarorð:

Ráðstöfun sú sem ákveðin var með úrskurði umdæmisráðs D þann 18. september 2025 um vistun C, kt. […], utan heimilis er framlengd um 12 mánuði eða til og með 17. janúar 2027. Hafnað er varakröfu varnaraðila um að vistun C verði markaður skemmri tími.

Málskostnaður fellur niður.

Allur gjafsóknarkostnaður greiðist úr ríkissjóði, þar sem talin málflutningsþóknun lögmanns varnaraðila, Björgvins Halldórs Björnssonar að fjárhæð 1.024.860 krónur.

Heimildaskrá

Lagaskrá

Lög nr. 91/1991 Lög um meðferð einkamála 4. mgr. 116. gr.
Lög nr. 18/1992 Lög um að leggja niður Lífeyrissjóð ljósmæðra 18. gr.19. gr.
Lög nr. 37/1993 Stjórnsýslulög 10. gr.12. gr.
Lög nr. 80/2002 Barnaverndarlög 1. gr.2. gr.4. gr.1. mgr. 4. gr.2. mgr. 4. gr.3. mgr. 4. gr.7. mgr. 4. gr.21. gr.23. gr.24. gr.25. gr.26. gr.27. gr.1. mgr. 27. gr.28. gr.1. mgr. 28. gr.31. gr.33. gr.41. gr.1. mgr. 41. gr.2. mgr. 41. gr.2. mgr. 63. gr. a1. mgr. 64. gr.74. gr.
Lög nr. 76/2003 Barnalög 1. gr.74. gr.
Lög nr. 88/2008 Lög um meðferð sakamála
Lög nr. 19/2013 Lög um samning Sameinuðu þjóðanna um réttindi barnsins 2. gr.1. mgr. 3. gr.6. gr.19. gr.

Dómaskrá