Fara í efni

Dómstólaleit

Leit í dómum íslenskra dómstóla

Héraðsdómur Reykjaness

Mál nr. S-1106/2024:

Ákæruvaldið

(Daníel Reynisson aðstoðarsaksóknari)

gegn

Ali Enes Ciftci

(Guðbrandur Jóhannesson lögmaður)

Skjalabrot.

Ákærði dæmdur í fangelsi fyrir skjalafals.

Dómur

Mál þetta, sem dómtekið var 5. júní 2024, höfðaði lögreglustjórinn á Suðurnesjum með ákæru 18. apríl 2024 á hendur ákærða, Ali Enes Ciftci, f.d. [...], ríkisborgara [...]; „fyrir skjalafals, með því að hafa, miðvikudaginn 27. mars 2024, í flugstöð Leifs Eiríkssonar, í kjölfar komu hans til landsins með flugi nr. [...] frá Aþenu, Grikklandi, framvísað við lögreglu, í blekkingarskyni, breytifölsuðu vegabréfi frá [...], ánöfnuðu honum sjálfum, fd. [...] nr. [...], með gildistíma frá [...].

Telst háttsemi þessi varða við 1. mgr. 155. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940.

Þess er krafist að ákærði verði dæmdur til refsingar og til greiðslu alls sakarkostnaðar.“

Ákærði krefst þess aðallega í málinu að honum verði ekki gerð refsing en til vara að honum verði gerð sú vægasta refsing sem lög leyfa. Þá gerir skipaður verjandi ákærða kröfu um þóknun sér til handa.

Farið var með mál þetta samkvæmt 164. gr. laga nr. 88/2008 um meðferð sakamála og var það tekið til dóms án frekari sönnunarfærslu er sækjanda og verjanda ákærða hafði verið gefinn kostur á að tjá sig um lagaatriði máls og ákvörðun viðurlaga.

Ákærði mætti við fyrirtöku málsins 5. júní sl. og játaði brot sín án undandráttar. Játning hans fær stoð í framlögðum gögnum. Samkvæmt því þykir sannað að ákærði hafi gerst sekur um þá háttsemi sem honum er gefin að sök í ákæru og þar er réttilega heimfærð til refsiákvæða.

Ákærði gerir þá kröfu aðallega að honum verði ekki gerð refsing vegna málsins. Fyrir liggur að í skýrslutöku hjá lögreglu 27. mars 2024 kvaðst ákærði hafa flogið frá [...] til Grikklands þar sem hann dvaldist í rúma tuttugu daga. Hann kvaðst ekki hafa viljað vera í Grikklandi og þess vegna hafi hann farið til Íslands. Samkvæmt því var ákærði því ekki að koma til landsins beint frá landsvæði þar sem lífi hans, heilsu eða frelsi var ógnað, sbr. 32. gr laga nr. 80/2016 um útlendinga, þannig að leiða eigi til refsileysis. Hefur ákærði því unnið sér til refsingar sbr. dóm Hæstaréttar í máli nr. 220/2017.

Ákærði er fæddur í [...]. Sakavottorð ákærða, sem er [...] ríkisborgari, liggur ekki frammi í málinu. Engra gagna nýtur um að ákærði hafi áður gerst sekur um refsiverða háttsemi. Verður við ákvörðun refsingar tekið mið af þeirri staðreynd. Svo sem málið liggur fyrir þykja ekki vera efni til þess að víkja frá fastmótaðri dómvenju í málum sem þessu. Refsing ákærða þykir samkvæmt því réttilega ákveðin fangelsi í 30 daga. Með vísan til dómaframkvæmdar eru ekki efni til að skilorðsbinda dæmda refsingu.

Samkvæmt 1. mgr. 235. gr. laga nr. 88/2008 ber að dæma ákærða til að greiða allan sakarkostnað málsins sem er þóknun skipaðs verjanda hans fyrir dómi, Guðbrands Jóhannessonar lögmanns, 161.200 krónur að meðtöldum virðisaukaskatti.

Dóm þennan kveður upp Erna Björt Árnadóttir aðstoðarmaður dómara.

Dómsorð:

Ákærði Ali Enes Ciftci, sæti fangelsi í 30 daga.

Ákærði greiði þóknun skipaðs verjanda síns Guðbrands Jóhannessonar lögmanns 161.200 krónur að meðtöldum virðisaukaskatti.

Erna Björt Árnadóttir

Heimildaskrá

Dómaskrá