Fara í efni

Dómstólaleit

Leit í dómum íslenskra dómstóla

Landsréttur

Mál nr. 783/2025:

Ákæruvaldið

(Óli Ingi Ólason saksóknari)

gegn

Robertu Maciel De Góes og

(Stefán Karl Kristjánsson lögmaður)

Spyridon Chinopoulos

(Unnsteinn Örn Elvarsson lögmaður)

Ávana- og fíkniefni. Fíkniefnalagabrot. Samverknaður. Sönnun. Upptaka.

R og S var gefið að sök stórfellt fíkniefnalagabrot með því að hafa í félagi staðið að innflutningi á samtals 2.503,73 grömmum af kókaíni með 77-85% styrkleika ætluðu til söludreifingar í ágóðaskyni. Fíkniefnin fluttu þau til landsins sem farþegar í flugi frá Alicante á Spáni til Keflavíkur. R var með 1.124,45 grömm og S með 1.379,26 grömm falin innanklæða við komu þeirra til landsins. Þau gengust við þeim hluta sakargifta sem varðaði innflutning fíkniefna, en neituðu að hafa staðið saman að innflutningnum. Þá taldi R að háttsemi hennar fæli einungis í sér hlutdeild í broti þeirra sem hefðu fengið sig til verksins. Landsréttur staðfesti niðurstöðu hins áfrýjaða dóms um að R og S hefðu í sameiningu flutt samtals 2.503,73 grömm af kókaíni til landsins og að á því bæru þau refsiábyrgð sem aðalmenn. Þá var niðurstaða hins áfrýjaða dóms um viðurlög staðfest, þar sem R og S var gert að sæta fangelsi í þrjú ár og upptöku á fíkniefnum.

Dómur Landsréttar

Mál þetta dæma landsréttardómararnir Ásgerður Ragnarsdóttir, Ásmundur Helgason og Símon Sigvaldason.

Málsmeðferð og dómkröfur aðila

  1. Ríkissaksóknari skaut málinu til Landsréttar 10. nóvember 2025 í samræmi við yfirlýsingu ákærðu um áfrýjun. Málsgögn bárust réttinum 8. apríl 2026. Áfrýjað er dómi Héraðsdóms Reykjaness 24. október 2025 í málinu nr. S-1727/2025.
  2. Ákæruvaldið krefst þess að refsing ákærðu verði þyngd.
  3. Ákærða Roberta krefst þess að hún verði sýknuð af samverknaðarbroti og að refsing hennar verði milduð. Til vara krefst ákærða vægustu refsingar sem lög leyfa og að refsing verði bundin skilorði að öllu leyti eða hluta.
  4. Ákærði Spyridon krefst þess að hann verði sýknaður af samverknaðarbroti og að refsing hans verði milduð. Til vara krefst ákærði vægustu refsingar sem lög leyfa og að refsing verði bundin skilorði að öllu leyti eða hluta.

Málsatvik og sönnunarfærsla

  1. Um málavexti og framburð ákærðu og vitna er vísað til hins áfrýjaða dóms. Við aðalmeðferð málsins fyrir Landsrétti voru spilaðar í heild upptökur af framburðum beggja ákærðu fyrir héraðsdómi.

Niðurstaða

  1. Með hliðsjón af dómi Landsréttar 20. nóvember 2025 í máli nr. 363/2025 og með vísan til forsendna hins áfrýjaða dóms er staðfest niðurstaða hans um að sakfella beri ákærðu fyrir að hafa í sameiningu flutt samtals 2.503,73 grömm af kókaíni með 77% til 85% styrkleika til landsins, sem þau báru á sér innan klæða við komuna til landsins, ákærða Roberta 1.124,47 grömm og ákærði Spyridon 1.379,26 grömm. Með því er hafnað málsvörn ákærðu Robertu um að háttsemi hennar hafi einungis falið í sér hlutdeild í broti óþekktra manna, sem hafi fengið hana til að flytja fíkniefnin til Íslands, og málsvörn þeirra beggja um að þau eigi aðeins að bera refsiábyrgð á innflutningi þess magns fíkniefna sem hvort þeirra bar á sér.
  2. Með vísan til forsendna hins áfrýjaða dóms er einnig staðfest ákvæði hans um refsingu ákærðu, þar með talið um frádrátt vegna gæsluvarðhalds sem þau hafa sætt frá 14. mars 2025, um upptöku fíkniefna og um greiðslu sakarkostnaðar, þar á meðal greiðslu málsvarnarlauna.
  3. Ákærðu verður gert að greiða allan áfrýjunarkostnað málsins, þar með talin málsvarnarlaun skipaðra verjenda sinna, sem ákveðin eru að meðtöldum virðisaukaskatti, eins og í dómsorði greinir.

Dómsorð:

Hinn áfrýjaði dómur skal vera óraskaður.

Ákærða, Roberta Maciel De Góes, greiði málsvarnarlaun skipaðs verjanda síns fyrir Landsrétti, Stefáns Karls Kristjánssonar lögmanns, 1.060.200 krónur.

Ákærði, Spyridon Chinopoulos, greiði málsvarnarlaun skipaðs verjanda síns fyrir Landsrétti, Unnsteins Arnar Elvarssonar lögmanns, 1.060.200 krónur.

Annan áfrýjunarkostnað málsins að fjárhæð 71.413 krónur greiði ákærðu óskipt.

Dómur Héraðsdóms Reykjaness 24. október 2025

Mál þetta, sem dómtekið var að lokinni aðalmeðferð 10. september 2025, er höfðað með ákæru héraðssaksóknara, útgefinni 2. júní 2025, á hendur Roberta Maciel De Góes, fæddri […], ríkisborgara […], og Spyridon Chinopoulos, fæddum […], ríkisborgara […], „fyrir stórfellt fíkniefnalagabrot, með því að hafa föstudaginn 14. mars 2025, í félagi, staðið að innflutningi á samtals 2.503,73 g af kókaíni með 77- 85% styrkleika ætluðu til söludreifingar hér á landi í ágóðaskyni en fíkniefnin fluttu ákærðu falin innan klæða til Íslands sem farþegar með flugi […] frá Alecante á Spáni til Keflavíkurflugvallar. Var Roberta með falin innanklæða 1.124,47 g að styrkleika 80-84% og Spyridon með falin innanklæða 1.379,26 að styrkleika 77-85%. Telst þetta varða við 173. gr. a. almennra hegningarlaga nr. 19/1940.

Þess er krafist að ákærðu verði [dæmd] til refsingar og til greiðslu alls sakarkostnaðar. Jafnframt er krafist er upptöku á 2.503,73 g af kókaíni með vísan til 6. og 7. mgr. 5. gr. laga um ávana- og fíkniefni nr. 65/1974, sbr. 2. mgr. 14. gr. reglugerðar um ávana- og fíkniefni og önnur eftirlitsskyld efni nr. 233/2001, með áorðnum breytingum.“

Ákærða Roberta Maciel neitar sök samkvæmt ákæru en viðurkennir að hafa ein og sér staðið að innflutningi á 1.124,47 g af kókaíni. Aðkoma ákærða Spyridon að máli ákærðu sé engin.

Ákærði Spyridon neitar sök samkvæmt ákæru en viðurkennir að hafa einn og sér staðið að innflutningi á 1.379,26 g af kókaíni en hafnar því að það hafi verið gert í félagi við meðákærðu.

Málavextir Samkvæmt tollskýrslu, sem tollvörður 1 ritar undir, kom Roberta Maciel De Góes, farþegi frá Alicante, „á grænt tollhlið“ hinn 14. 3. 2025. Í skýrslunni segir að með henni í för hafi verið Spyridon Chinopulos. Í skýrslunni segir jafnframt: „Roberta og Spyridon sögðust hafa kynnst fyrir um það bil 20 dögum og ákveðið að fara til Íslands í ferðalag. Roberta og Spyridon voru spurð hvort þau neyttu fíkniefna. Þau sögðust bæði reykja gras.“ Í skýrslunni segir að grunur hafi vaknað um að Roberta væri með fíkniefni innan klæða og í framhaldinu hafi komið í ljós „pakkningar af meintu kókaíni“ límdar á fætur hennar.

Samkvæmt tollskýrslu, sem tollvörður 1 ritar undir, kom Spyridon Chinopulos, farþegi frá Alicante, „á grænt tollhlið“ hinn 14. 3. 2025. Í skýrslunni segir að með honum í för hafi verið Roberta Maciel De Góes. Í skýrslunni segir jafnframt: „Spyridon og Roberta sögðust hafa kynnst fyrir um það bil 20 dögum og ákveðið að fara til Íslands í ferðalag. Spyridon og Roberta voru spurð hvort þau neyttu fíkniefna. Þau sögðust bæði reykja gras.“ Í skýrslunni segir að grunur hafi vaknað um að Spyridon væri með fíkniefni innan klæða og í framhaldinu hafi komið í ljós „pakkningar af meintu kókaíni“ límdar á fætur hans. Samkvæmt efnaskýrslu var ákærða Roberta með alls 1.124,47 g af kókaíni límd á líkama sinn. Samkvæmt efnaskýrslu var ákærði Spyridon með alls 1.379,26 g af kókaíni límd á líkama sinn.

Samkvæmt matsgerð rannsóknarstofu Háskóla Íslands í lyfja- og eiturefnafræði, dags. 25. 3. 2025, sem A verkefnastjóri og B sérfræðingur skrifa undir, voru rannsökuð þrjú sýni þess efnis sem haldlagt var hjá ákærðu Roberta. Í matsgerðinni segir að styrkur kókaíns í fyrsta sýni hafi verið 84%, styrkur kókaíns í öðru sýni hafi verið 80% og styrkur kókaíns í þriðja sýni hafi verið 84%.

Samkvæmt matsgerð rannsóknarstofu Háskóla Íslands í lyfja- og eiturefnafræði, dags. 15. 4. 2025, sem A verkefnastjóri skrifar undir, mætti búa til 1.228 g af efni með 76% styrkleika úr 1.124,47 g af dufti sem inniheldur 83% kókaín. Miðað væri við meðaltalið 83% styrk úr þeim sýnum sem rannsökuð hefðu verið úr því efni sem haldlagt var hjá ákærðu Roberta.

Samkvæmt matsgerð rannsóknarstofu Háskóla Íslands í lyfja- og eiturefnafræði, dags. 25. 3. 2025, sem A verkefnastjóri og B sérfræðingur skrifa undir, voru rannsökuð fjögur sýni þess efnis sem haldlagt var hjá ákærða Spyridon. Í matsgerðinni segir að styrkur kókaíns í fyrsta sýni hafi verið 80%, styrkur kókaíns í öðru sýni hafi verið 85%, styrkur kókaíns í þriðja sýni hafi verið 84% og styrkur kókaíns í fjórða sýni hafi verið 77%.

Samkvæmt matsgerð rannsóknarstofu Háskóla Íslands í lyfja- og eiturefnafræði, dags. 15. 4. 2025, sem A verkefnastjóri skrifar undir, mætti búa til 1.470 g af efni með 76% styrkleika úr 1.379,26 g af dufti sem inniheldur 81% kókaín. Miðað væri við meðaltalið 81% styrk úr þeim sýnum sem rannsökuð hefðu verið úr því efni sem haldlagt var hjá ákærða Spyridon. Skýrslur fyrir dómi Ákærða Roberta sagðist hafa verið í Barcelona og þar hefði „manneskja sem ég var að vinna fyrir“ sagt sér að fara með sendingu til Íslands. Ákærðu hefði verið sagt að þetta yrði eftir einhverja daga, verið væri að fá karlmann til að fara með henni, en þau ættu að fara eins og „hjón að ferðast saman“. Fáum dögum síðar hefði hún verið kynnt fyrir þeim sem ferðast skyldi með henni. Þetta hefði verið um tveimur dögum fyrir brottför. Ákærða sagði aðspurð að hún og meðákærði hefðu farið saman í íþróttavörubúð og keypt þar fatnað til ferðarinnar. Ákærða sagði einhvern mann hafa ekið þeim frá Barcelona til Alicante og á hótelherbergi þar hefði ákærða fengið fíkniefnin afhent. Fíkniefni hefðu verið límd á ákærðu með límbandi og ákærða farið í þrennar buxur utan yfir. Ákærðu hefðu verið saman á herberginu og fíkniefni verið límd á meðákærða með sama hætti. Ákærða sagðist ekki vita hvort meðákærði hefði fengið sama magn efna.

Ákærða sagðist ekki draga í efa að í málinu væri um að ræða þá tegund og það magn efna sem í ákæru greindi. Sjálf hefði hún ekki vitað hvaða efni hún flytti en hefði hugsað að það gæti verið kókaín.

Ákærðu hefðu svo flogið til Íslands. Þar hefði þeim verið ætlað að fara með leigubifreið á „eitthvað hótel“ og bíða þar fyrirmæla. Ákærða sagðist ekki muna nafn hótelsins. Ákærða sagðist hafa pantað gistinguna en sá sem hefði fengið þau í ferðina hefði sent henni peninga og hún farið eftir fyrirmælum hans. Hún sagðist ekki vita rétt nafn hans.

Ákærða sagði þau hafa átt bókað flug til baka. Sér hefði verið sagt að bóka vikuferð eða svo. Einnig hefði sér verið sagt að hún gæti farið fyrr heim að verki loknu. Sjálf hefði hún ekki ætlað að vera lengi á Íslandi. Þeir sem sent hefðu efnin hefðu ætlað að taka við þeim á Íslandi.

Ákærða var spurð hvort rætt hefði verið hvað þau ættu að segja við lögreglu ef þau yrðu stöðvuð. Hún sagði að sá sem hefði fengið þau í ferðina hefði sagt að þau ættu „vera eins og hjón“ og segjast vera komin sem ferðamenn.

Ákærða sagðist ekki hafa ráð á því að kaupa fíkniefni til að flytja milli landa. Hún hefði ekki komið að því að taka neinar ákvarðanir um innflutninginn. Hún hefði ekki fengið meðákærða með sér í ferðina og hefði hitt hann fyrst einum eða tveimur dögum fyrir ferðalagið. Sömu aðilar hefðu fengið sig og meðákærða til ferðarinnar. Þau meðákærði hefðu ekki rætt saman um hvernig þau myndu standa að ferðinni, þau hefðu eingöngu fengið fyrirmæli.

Borið var undir ákærðu að hún hefði áður flutt efni frá Brasilíu til […]. Hún sagðist hafa gert það fyrir sömu aðila og það verið gert með sama hætti.

Ákærði Spyridon Chinopoulos sagðist hafa farið í leyfi til Spánar. Þegar hann hefði verið staddur á skemmtistað í Barcelona og að reykja kannabis hefðu tveir menn komið að máli við ákærða og spurt hvort hann væri reiðubúinn að flytja fíkniefni til Íslands gegn fimm þúsund evra greiðslu. Ákærði hefði tekið sér tveggja frest til að hugsa málið, en hefði svo að honum liðnum samþykkt að gera þetta af því að hann hefði verið skuldugur. Hann hefði þá hitt meðákærðu en hefði aldrei hitt hana áður. Hvort þeirra um sig hefði átt „að taka ákveðið magn“. Ákærði hefði látið vita að hann gæti ekki notað eigið greiðslukort til að greiða fyrir flugmiðann af því að hann væri „í vandræðum gagnvart ríkinu“ og „þess vegna létu þeir stúlkuna fá pening til þess og það var hún sem bókaði miðana.“ Fram að þessu hefði hann haldið að hann yrði einn á ferð en hefði þarna fengið að vita að þau færu tvö i ferðina.

Ákærði sagðist hafa vitað að efnin yrðu límd á hann og hefði því, áður en hann hefði farið frá Barcelona, farið og keypt buxur til að klæðast undir öðrum buxum sínum, svo efnin yrðu ekki límd beint á húðina. Meðákærða hefði farið með í búðina. Ákærði sagði þau meðákærðu hafa farið saman með bifreið frá Barcelona til Alicante.

Ákærði sagði þau meðákærðu hafa fengið fíkniefnin á hóteli á Alicante. Þau hefðu verið þar hvort á sínu herbergi, en verið í sama herbergi þegar fíkniefnin hefðu verið afhent. Einn maður hefði komið með efnin og límt efnin á þau. Hann hefði stýrt því hve mikið hvort hefði fengið. Ákærði hefði ekki vitað hve mikið hann hefði verið með. Hann sagðist ekki hafa vitað hvaða efni hann hefði verið með en hafa gert ráð fyrir að um kókaín væri að ræða. Ákærði sagðist ekkert hafa komið að skipulagningu ferðarinnar, „það var allt hjá þessum manni“.

Ákærði sagðist ekki hafa verið í neinum samskiptum við skipuleggjendur ferðarinnar eftir að hann hefði farið frá Spáni.

Ákærði sagði að einhver hefði átt að hitta þau á Íslandi en að hann vissi ekki hver það hefði verið. Ákærði sagðist ekki vita hvar þau hefðu átt að gista, en meðákærða hefði pantað gistingu „á einhverju hóteli“.

Ákærði sagðist sjá mjög eftir því að hafa flutt efnin hingað til lands. Þetta hefði verið skyndiákvörðun sem hefði verið röng. Hann hefði skuldað skatta í heimalandi sínu og fjárnám vofað yfir. Þarna hefði hann fengið „tækifæri til þess að lækka skuldina um fimm þúsund evrur og ég stökk á það tækifæri.“ Hann sagðist biðjast afsökunar á broti sínu.

Tollvörður 1 ([…]) staðfesti tollskýrslur sínar. Borið var undir vitnið það sem í skýrslunum er haft eftir báðum ákærðu, þess efnis að þau hefðu kynnzt fyrir tuttugu dögum. Vitnið sagðist ekki muna sérstaklega eftir þessu. Vitnið sagðist aðspurt hafa rætt við bæði ákærðu á ensku.

Lögregluþjónn 1 ([…]) staðfesti gögn sem frá vitninu stafa. Vitnið sagði að ákærðu hefðu veitt aðgang að símum sínum og bankareikningum og verið að mati vitnisins samvinnuþýð við rannsóknina. Vitnið var spurt hvort það teldi ákærðu Roberta hafa verið að einhverju leyti skipuleggjandi brotsins og svaraði að það hefði við rannsóknina fengið „á tilfinninguna þarna að hún allavega vissi meira heldur en félagi hennar, að hún væri meira í samskiptum við skipuleggjendur heldur en félagi hennar“. Þetta hefði vitnið byggt á samskiptum sem hún hefði átt við óþekkta aðila og sæjust í gögnum málsins, „þar sem verið er að tala um peninga, það er verið að tala um innlagnir“. Ekkert hefði hins vegar komið fram sem benti til að hún hefði fjármagnað innflutninginn.

Sérfræðingur lögreglu nr. […] staðfesti gögn sem frá vitninu stafa.

Vitnið A verkefnastjóri staðfesti matsgerðir rannsóknarstofu Háskóla Íslands í lyfja- og eiturefnafræðum.

Niðurstaða Hvort ákærðu um sig viðurkennir að hafa flutt til landsins það magn fíkniefna sem á því fannst við komu til landsins. Hvort um sig mótmælir þátttöku í annars broti. Niðurstöður mælinga eru ekki vefengdar. Játningar ákærðu fær stoð í gögnum málsins og ekki þykir ástæða til að efast um þær. Eru ákærðu sönn að sök að því leyti.

Fram kom hjá báðum ákærðu fyrir dómi að hvort vissi að hitt flytti fíkniefni til Íslands. Þau ferðuðust saman til landsins. Ákærða Roberta sagði fyrir dómi að í upphafi hefði sér verið sagt að fenginn yrði karlmaður til að fara með henni til landsins og þau yrðu eins og „hjón að ferðast saman“. Sá sem hefði fengið þau til fararinnar hefði sagt að ef lögregla spyrði ættu þau að segjast vera hér sem ferðamenn. Ákærði Spyridon sagði fyrir dómi að sjálfur hefði hann ekki getað notað eigin greiðslukort til að kaupa farmiða og ákærða Roberta því bókað fyrir hann. Hún hefði einnig pantað fyrir þau gistingu á hóteli sem hann sagðist ekki vita hvað héti. Ákærðu ferðuðust saman til landsins og samkvæmt tollskýrslu sem tollvörður staðfesti fyrir dómi kváðust þau hafa þekkt hvort annað í tuttugu daga og hafa ákveðið að fara til Íslands í ferðalag.

Þegar á framanritað er horft verður lagt til grundvallar að hvort um sig hafi vitað að hitt flytti fikniefni til landsins. Þau hafi komið til Íslands sem par á ferðalagi og þannig hvort um sig tekið þátt í þeirri gjörð hins að flytja fíkniefni til landsins.

Samverknaður hefur verið skilgreindur svo að tveir menn eða fleiri hafi samvinnu um framkvæmd brots og standi nokkurn veginn jafnt að vígi um ákvarðanir um framkvæmd. Ákærðu fluttu hingað fíkniefni með þeim hætti sem rakið var. Af lýsingum ákærðu fyrir dómi verður ráðið að hvort um sig hafi verið fengið til að fara í ferðina gegn greiðslu en hvorugt hafi skipulagt ferðina og hvorugt fjármagnað hana. Þau voru saman er efnin voru afhent og fest á hvort um sig. Ákærði Spyridon skýrði fyrir dómi að hann hefði ekki haft tök á að panta sjálfur flugmiða og gistingu og því hefði ákærða Roberta gert það. Þó hún hafi gert það og samkvæmt gögnum verið í sambandi við ætlaða skipuleggjendur þykir ekki verða af því dregin sú ályktun að sá munur hafi verið á hlutverki þeirra að máli geti skipt. Verður að leggja til grundvallar að þau hafi í félagi flutt inn það heildarmagn fíkniefna sem í ákæru greinir og því hafi við flutninginn verið skipt milli þeirra með þeim hætti sem í ákæru greinir. Eru þau sönn að sök samkvæmt ákæru og er háttsemi þeirra rétt færð til refsiheimildar.

Ekkert liggur fyrir um sakaferil þeirra. Verður lagt til grundvallar að hvorugu þeirra hafi áður verið gerð refsing. Þau játa sök að hluta. Lögregluþjónn sem rannsakaði málið sagði bæði hafa verið samvinnuþýð við rannsóknina. Þau flytja í sameiningu hættulegt fíkniefni til landsins í sölu- og dreifingarskyni. Þegar á allt er horft ákveðst refsing hvors um sig fangelsi í þrjú ár með frádrætti sem í dómsorði greinir. Fallast ber á gerða upptökukröfu. Hvoru ákærðu verður gert að greiða málflutningslaun skipaðs verjanda síns, ákærðu Roberta 1.674.000 króna málflutningslaun Stefáns Karls Kristjánssonar lögmanns og ákærða Spyridon 1.674.000 króna málflutningslaun Elisabeth Matthíasdóttur lögmanns og 128.733 króna aksturskostnað. Á rannsóknarstigi gætti Jóhannes Albert Kristbjörnsson lögmaður hagsmuna ákærða Spyridon og verður ákærði dæmdur til að greiða 309.690 króna þóknun hans. Á rannsóknarstigi gætti Elisabeth Matthíasdóttir lögmaður hagsmuna ákærðu Roberta og verður ákærðu gert að greiða 903.960 króna þóknun og 38.634 króna aksturskostnað verjandans. Virðisaukaskattur er innifalinn í dæmdum fjárhæðum. Loks verður ákærðu gert að greiða að óskiptu 725.043 króna annan sakarkostnað. Á sakarkostnaðaryfirliti ákæruvaldsins er einnig að finna kostnað vegna reikninga frá fjarskiptafyrirtækjum en ekki þykir ljóst að rétt sé að gera ákærðu að greiða þann kostnað og verður það ekki gert. Gætt var 1. mgr. 184. gr. laga nr. 88/2008. Af hálfu ákæruvaldsins fór Sigurður Ólafsson aðstoðarsaksóknari með málið.

Dómsorð:

Ákærða Roberta Maciel De Góes sæti fangelsi í þrjú ár. Ákærði Spyridon Chinopoulos sæti fangelsi í þrjú ár. Frá refsingu hvors um sig skal draga með fullri dagatölu gæzluvarðhald sem það hefur sætt frá 14. 3. 2025. Upptæk eru gerð 2.503,73 g af kókaíni.

Ákærða Roberta greiði 1.674.000 króna málsvarnarlaun skipaðs verjanda síns, Stefáns Karls Kristjánssonar lögmanns, 903.960 króna málsvarnarþóknun verjanda síns á rannsóknarstigi, Elisabeth Matthíasdóttur lögmanns og 38.634 króna aksturskostnað.

Ákærði Spyridon greiði 1.674.000 króna málsvarnarlaun skipaðs verjanda síns, Elisabeth Matthíasdóttur lögmanns, 128.733 króna aksturskostnað verjandans og 309.690 króna málsvarnarþóknun verjanda síns á rannsóknarstigi, Jóhannesar Alberts Kristbjörnssonar. Ákærðu greiði óskipt 725.043 króna annan sakarkostnað.

Heimildaskrá

Dómaskrá