Fara í efni

Dómstólaleit

Leit í dómum íslenskra dómstóla

Héraðsdómur Reykjavíkur

Mál nr. S-1842/2026:

Lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu

(Júlí Karlsson aðstoðarsaksóknari)

gegn

X

(Ingi Freyr Ágústsson lögmaður)

Fíkniefnalagabrot. Játningarmál. Líkamsmeiðing af gáleysi. Skilorðsbundnir dómar. Umferðarlagabrot.

Ákærði var sakfelldur fyrir fíkniefnalagabrot, líkamsmeiðingar af gáleysi og umferðarlagabrot. Var honum gert að sæta 60 daga fangelsi skilorðsbundið til tveggja ára.

Dómur

Mál þetta, sem dómtekið var 20. maí sl., er höfðað með ákæru, útgefinni af lögreglustjóranum á höfuðborgarsvæðinu 14. apríl 2026, á hendur X, kt. […], […], Reykjavík,

I.

fyrir líkamsmeiðingar af gáleysi og umferðarlagabrot með því að hafa, fimmtudaginn 21. nóvember 2024, ekið bifreiðinni […] gegn rauðu umferðarljósi vestur um gatnamót Sæbrautar við Snorrabraut í Reykjavík, með þeim afleiðingum að hann ók á A, kt. […], sem ók rafhlaupahjóli sínu suður yfir gatnamótin á grænu gönguljósi, en við áreksturinn hlaut A nefbeinabrot, áverkaloftbrjóst, mörg rifbrot, áverka á milta, brot á hlutum lendahryggs og mjaðmagrindar, opið sár á vör og munnholi, opið sár á nefi og áverka á hjarta.

Telst þetta varða við 219. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940 og 1. mgr. 7. gr., sbr. 1. mgr. 94. gr., umferðarlaga nr. 77/2019.

II.

fyrir fíkniefnalagabrot með því að hafa, sunnudaginn 9. mars 2025, haft í vörslum sínum í sölu- og dreifingarskyni samtals 216,52 g af kannabisblönduðu efni, 0,82 g af kókaíni, samtals 23 millilítra af kannabisblönduðum vökva, sex stykki af Alprazolam krka, 62,36 g af Alprazolam krka, 16,40 g af ketamíni, 21,65 g af marijúana, 78 stykki af kannabisblönduðu efni, 141 stykki af LSD og 50 stykki af Sildenafil Actavis, sem lögreglumenn fundu við leit í bifreiðinni […], er höfð voru afskipti af ákærða við Sæbraut í Reykjavík. Telst þetta varða við 2. gr. og 3. gr., sbr. 5. gr. og 6. gr., laga um ávana- og fíkniefni nr. 65/1974 og 2. gr., sbr. 14. gr., reglugerðar um ávana- og fíkniefni og önnur eftirlitsskyld efni nr. 233/2001, með síðari breytingum.

Þess er krafist að ákærði verði dæmdur til refsingar og til greiðslu alls sakarkostnaðar. Þá er krafist upptöku á samtals 23 millilítrum af kannabisblönduðum vökva, sex stykkjum af Alprazolam krka, 62,36 g af Alprazolam krka, 16,40 g af ketamíni, 21,65 g af marijúana, 78 stykkjum af kannabisblönduðu efni, 141 stykki af LSD og 50 stykkjum af Sildenafil Actavis, sem hald var lagt á, samkvæmt 6. mgr. 5. gr. laga nr. 65/1974 og 14. gr. reglugerðar nr. 233/2001, með síðari breytingum. Jafnframt er krafist upptöku á Apple iPhone farsíma (munur nr. 662771) og þremur farsímum af gerðinni Zebra (munur nr. 662772), sem hald var lagt á, samkvæmt 7. mgr. 5. gr. sömu laga og 14. gr. reglugerðar nr. 233/2001, með síðari breytingum, en símarnir voru notaðir við sölu fíkniefna. Að lokum er krafist upptöku á kr. 203.000, sem hald var lagt á, skv. 7. mgr. 5. gr. laga nr. 65/1974 og 1. mgr. 69. gr. b almennra hegningarlaga nr. 19/1940, en reiðuféð eru ætlaður ágóði af sölu fíkniefna.

Einkaréttarkrafa:

Þess er krafist að ofangreindum X verði gert að greiða umbjóðanda Aþenu Valýjar Orradóttur, lögmanns, skaða- og miskabætur samtals að fjárhæð kr. 3.000.000 með vöxtum skv. 8. gr. vaxtalaga nr. 38/2001 frá 23. nóvember 2024, en síðan með dráttarvöxtum skv. 9. gr., sbr. 1. mgr. 6. gr., vaxtalaga frá þeim degi er mánuður er liðinn frá því að krafan er birt honum til greiðsludags. Þá er þess jafnframt krafist að X verði gert að greiða umbjóðanda hennar málskostnað að skaðlausu, skv. síðar framlögðum málskostnaðarreikningi eða að mati réttarins, að viðbættum 24% virðisaukaskatti, fyrir að halda fram bótakröfu í málinu.

Við fyrirtöku málsins 20. maí sl. féll sækjandi frá kröfum um upptöku þriggja farsíma af gerðinni Zebra. Í sama þinghaldi játaði ákærði sök, féllst á upptökukröfur en mótmælti bótakröfu.

Þá mætti lögmaður af hálfu tryggingafélagsins Varðar og mótmælti bótakröfu málsins. Ákveðið var, með vísan til 1. mgr. 175. gr. laga nr. 88/2008 um meðferð sakamála, að skilja hana frá öðrum þáttum málsins og víkja henni til meðferðar fyrir dómi í sérstöku einkamáli, en málsaðilar voru samþykkir þeirri málsmeðferð.

Farið var með mál þetta samkvæmt 164. gr. laga nr. 88/2008 um meðferð sakamála og var það tekið til dóms án frekari sönnunarfærslu þegar sækjanda og verjanda ákærða hafði verið gefinn kostur á að tjá sig um lagaatriði og ákvörðun viðurlaga.

Ákærði hefur skýlaust játað brot sín. Sannað er með játningu ákærða og öðrum gögnum málsins að hann er sekur um þá háttsemi sem honum er gefin að sök og eru brot hans rétt heimfærð til refsiákvæða í ákæru.

Verjandi ákærða krefst vægustu refsingar sem lög leyfa og hæfilegra málsvarnarlauna sér til handa.

Ákærði er fæddur í […] og var því einungis 17 ára er hann framdi brot sín. Samkvæmt framlögðu sakavottorði, dags. 30. mars 2026, hefur hann ekki áður gerst sekur um refsivert brot. Við meðferð málsins játaði ákærði brot sín skýlaust. Horfir það honum til málsbóta, sbr. 8. tl. 1. mgr. 70. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940. Þá verður litið til ungs aldurs hans, sbr. 4. tl. sama ákvæðis og 2. tl. 1. mgr. 74. gr. Með hliðsjón af framangreindu, sakarefni þessa máls, afleiðingum brotsins í ákærulið I og 77. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940 þykir refsing ákærða hæfilega ákveðin fangelsi í 60 daga en fullnustu refsingarinnar er frestað og falli hún niður að liðnum tveimur árum frá uppkvaðningu dóms þessa haldi ákærði almennt skilorð 57. gr. laga nr. 19/1940, sbr. 4. gr. laga nr. 22/1955.

Með vísan til lagaákvæða í ákæru eru gerðir upptækir 23 millilítrar af kannabisblönduðum vökva, sex stykki af Alprazolam krka, 62,36 g af Alprazolam krka, 16,40 g af ketamíni, 21,65 g af marijúana, 78 stykki af kannabisblönduðu efni, 141 stykki af LSD, 50 stykki af Sildenafil Actavis, Apple iPhone farsími og 203.000 krónur sem hald var lagt á við rannsókn málsins.

Bótakrafa fer til meðferðar í sérstöku einkamáli, sbr. 1. mgr. 175. gr. laga nr. 88/2008 um meðferð sakamála.

Ákærði greiði málsvarnarþóknun skipaðs verjanda síns, Inga Freys Ágústssonar lögmanns, 918.840 krónur að meðtöldum virðisaukaskatti, og 73.463 krónur í annan sakarkostnað.

Af hálfu ákæruvaldsins flutti málið Kamilla Kjerúlf aðstoðarsaksóknari fyrir Júlí Karlsson aðstoðarsaksóknara. Barbara Björnsdóttir héraðsdómari kveður upp dóm þennan.

D Ó M S O R Ð:

Ákærði, X, sæti fangelsi í 60 daga en fullnustu refsingarinnar er frestað og falli hún niður að liðnum tveimur árum frá uppkvaðningu dóms þessa haldi ákærði almennt skilorð 57. gr. laga nr. 19/1940, sbr. 4. gr. laga nr. 22/1955.

Ákærði sæti upptöku á 23 millilítrum af kannabisblönduðum vökva, sex stykkjum af Alprazolam krka, 62,36 g af Alprazolam krka, 16,40 g af ketamíni, 21,65 g af marijúana, 78 stykkjum af kannabisblönduðu efni, 141 stykki af LSD og 50 stykkjum af Sildenafil Actavis, Apple iPhone farsíma og 203.000 krónum. Ákærði greiði málsvarnarþóknun skipaðs verjanda síns, Inga Freys Ágústssonar lögmanns, 918.840 krónur, og 73.463 krónur í annan sakarkostnað.

Barbara Björnsdóttir

Heimildaskrá

Lagaskrá

Lög nr. 19/1940 Almenn hegningarlög 57. gr.1. mgr. 69. gr. b1. mgr. 70. gr.1. mgr. 74. gr.77. gr.219. gr.
Lög nr. 22/1955 4. gr.
Lög nr. 65/1974 Lög um ávana- og fíkniefni 2. gr.3. gr.5. gr.6. mgr. 5. gr.7. mgr. 5. gr.6. gr.
Lög nr. 38/2001 Lög um vexti og verðtryggingu 1. mgr. 6. gr.8. gr.9. gr.
Lög nr. 233/2001 7. mgr. 5. gr.
Lög nr. 88/2008 Lög um meðferð sakamála 164. gr.1. mgr. 175. gr.
Lög nr. 77/2019 Umferðarlög 1. mgr. 7. gr.1. mgr. 94. gr.