Fara í efni

Dómstólaleit

Leit í dómum íslenskra dómstóla

Héraðsdómur Reykjaness

Mál nr. S-1374/2026:

Ákæruvaldið

(Silja Rán Arnarsdóttir saksóknarfulltrúi)

gegn

Adrian Sebastian Wajs

(Halldóra Aðalsteinsdóttir lögmaður)

Ákærði dæmdur í 10 mánaða fangelsi fyrir innflutning á amfetamínbasa.

Dómur

Mál þetta var þingfest og dómtekið 20. maí 2026. Málið er höfðað með ákæru Héraðssaksóknara 8. maí 2026 á hendur ákærða, Adrian Sebastian Wajs, pólkskum ríkisborgara, fæddum […] 2000, fyrir stórfellt fíkniefnalagabrot, með því að hafa staðið að innflutningi á 970 ml af vökva sem innihélt amfetamínbasa sem hafði 40-41% styrkleika, ætlaðan til söludreifingar hér á landi í ágóðaskyni, en fíkniefnin flutti ákærði til Íslands miðvikudaginn 18. febrúar 2026, sem farþegi með flugi […] frá Osló í Noregi til Keflavíkurflugvallar, en tollverðir fundu fíkniefnin falin í áfengisflöskum í farangri ákærða við komu hans til landsins. Er háttsemin talin varða við 173. gr. a almennra hegningarlaga nr. 19/1940. Þá er þess krafist að ákærði verði dæmdur til refsingar og greiðslu alls sakarkostnaðar. Krafist er upptöku á framangreindum fíkniefnum, þ.e. 970 ml af vökva sem innihélt amfetamínbasa (efni 1 og 2 í efnaskrá […]), með vísan til 6. mgr. 5. gr. laga um ávana- og fíkniefni nr. 65/1974 og 1. tl. 1. mgr. 69. gr. a almennra hegningarlaga nr. 19/1940 ásamt ferðatösku (munanúmer […]) og Samsung farsíma ([…]) með vísan til 1. tl. 1. mgr. 69. gr. a almennra hegningarlaga nr. 19/1940.

Við þingfestingu máls játaði ákærði sök samkvæmt ákæru og gekkst greiðlega við því að hafa greint sinn og með tilgreindum hætti staðið að innflutningi til Íslands á amfetamínbasa með tilgreindum styrkleika. Var því farið með málið að hætti 164. gr. laga nr. 88/2008 um meðferð sakamála og málið dómtekið án frekari sönnunarfærslu eftir að sækjandi og verjandi höfðu tjáð sig um lagaatriði máls og ákvörðun viðurlaga. Af hálfu ákærða er krafist vægustu refsingar sem lög leyfa og að til frádráttar dæmdri refsingu komi að fullri dagatölu gæsluvarðhald frá 19. febrúar 2026. Verjandi krefst þóknunar samkvæmt tímaskýrslu.

Með játningu ákærða fyrir dómi, sem samrýmist framburði hans hjá lögreglu og öðrum rannsóknargögnum, er sannað að hann hafi gerst sekur um þá háttsemi sem hann er borinn í ákæru og þar þykir rétt heimfærð til refsiákvæða.

Ákærði hefur ekki áður orðið uppvís að refsiverðri háttsemi. Af fyrirliggjandi gögnum verður ekki ráðið að ákærði hafi verið eigandi nefndra fíkniefna eða tekið þátt í skipulagningu á kaupum og innflutningi þeirra til Íslands með öðrum hætti en þeim að samþykkja að flytja efnin til landsins gegn greiðslu. Verður litið til þessara atriða við ákvörðun refsingar, greiðrar játningar ákærða hjá lögreglu og fyrir dómi, sem og til þeirrar samvinnu og upplýsinga sem ákærði veitti við rannsókn málsins. Á hinn bóginn verður ekki horft fram hjá því að ákærði flutti til landsins talsvert magn af amfetamínbasa, ætluðu til söludreifingar hér á landi í ágóðaskyni. Með hliðsjón af framansögðu, aldri ákærða og dómaframkvæmd þykir refsing ákærða hæfilega ákveðin fangelsi í tíu mánuði. Til frádráttar þeirri refsingu komi að fullri dagatölu gæsluvarðhald ákærða frá 19. febrúar 2026, sbr. 76. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940.

Samkvæmt greindri niðurstöðu er fallist á upptökukröfu ákæruvaldsins, samkvæmt síðari breytingu. Þá ber að dæma ákærða til greiðslu alls sakarkostnaðar, en til hans telst 537.810 króna útlagður kostnaður ákæruvaldsins, þóknun Halldóru Aðalsteinsdóttur verjanda ákærða á rannsóknarstigi máls og hér fyrir dómi. Með hliðsjón af eðli og umfangi máls og að teknu tilliti til tímaskýrslu verjanda og viðmiðunarreglna Dómstólasýslunnar nr. 1/2026 þykir þóknun verjanda hæfilega ákveðin 1.272.240 krónur að meðtöldum virðisaukaskatti og aksturkostnaður hennar 162.432 krónur.

Dómurinn er kveðinn upp af Sóleyju Ólöfu Rún Guðmarsdóttur aðstoðarmanni dómara.

Dómsorð:

Ákærði, Adrian Sebastian Wajs, sæti fangelsi í tíu mánuði. Til frádráttar þeirri refsingu komi að fullri dagatölu gæsluvarðhald ákærða frá 19. febrúar 2026.

Ákærði sæti upptöku á 970 ml af amfetamínbasa og ferðatösku.

Ákærði greiði 1.972.482 krónur í sakarkostnað, þar með talda 1.272.240 króna þóknun Halldóru Aðalsteinsdóttur verjanda síns, sem og 162.432 króna aksturskostnað hennar.

Sóley Ólöf Rún Guðmarsdóttir

Heimildaskrá