Fara í efni

Dómstólaleit

Leit í dómum íslenskra dómstóla

Héraðsdómur Reykjaness

Mál nr. S-714/2026:

Ákæruvaldið

(Elín Hrafnsdóttir aðstoðarsaksóknari)

gegn

X

(Snorri Sturluson lögmaður)

Ákærði dæmdur í 60 daga fangelsi, skilorðsbundið í tvö ár, til greiðslu á 100.000 króna sekt til ríkissjóðs og gert að sæta upptöku á þar til greindum munum.

Dómur

Mál þetta var þingfest 5. maí 2026 og dómtekið 26. maí sama ár. Málið er höfðað með ákæru Lögreglustjórans á höfuðborgarsvæðinu 11. mars 2026 á hendur ákærða, X, kt. […], […],

I.

fyrir fíkniefna- og vopnalagabrot, með því að hafa föstudaginn 19. mars 2024 á heimili sínu að […] haft í vörslum sínum 171,63 g af maríhúana, 13 stykki af alprazolam krka, 40 stykki af alprazolam mylan, 60 stykki af diazepam, 126 stykki af læknislyfjum, 89 stykki af rivotril, 52 stykki af lexotan, 10 stykki af metadon abcur, 3 stykki af suboxone, fjaðurhníf með áföstu hnúajárni, fallhníf, raflostbyssu, tvo piparúðabrúsa og útdraganlega kylfu, sem lögreglumenn fundu við leit í íbúðinni. Er háttsemin talin varða við 2. og 3. gr., sbr. 5. og 6. gr. laga um ávana- og fíkniefni nr. 65/1974 og 2. gr., 14. gr., reglugerðar um ávana- og fíkniefni og önnur eftirlitsskyld efni nr. 233/2001, með síðari breytingum og b. og c. lið 2. mgr. og 4. mgr. 30. gr., sbr. 1. mgr. 36. gr. vopnalaga nr. 16/1998.

II.

Fyrir umferðarlagabrot, með því að hafa laugardaginn 20. apríl 2024 ekið bifreiðinni […] óhæfur til að stjórna henni örugglega vegna áhrifa ávana- og fíkniefna og slævandi lyfja (í blóðsýni mældist díazepam 250 ng/ml, nordíazepam 330 ng/ml, oxýkódon 270 ng/ml og temazepam 23 ng/ml) um Reykjanesbraut í Reykjavík, við Álfabakka, þar sem lögregla stöðvaði aksturinn. Er háttsemin talin varða við 1., sbr. 2. mgr. 48. gr. og 1., sbr. 2. mgr. 50. gr., sbr. 1. mgr. 95. gr. umferðarlaga nr. 77/2019.

III.

Fyrir vopnalagabrot, með því að hafa þriðjudaginn 10. september 2024 á heimili sínu að […] haft í vörslum sínum tvö stunguvopn, fjaðrahníf, hnúajárn, skotfæri, piparúða og rafmagnsvopn, sem lögreglumenn fundu við leit í íbúðinni. Er háttsemin talin varða við 1. mgr. 13. gr., b. og c. lið 2. mgr. og 4. mgr. 30. gr., sbr. 1. mgr. 36. gr. vopnalaga nr. 16/1998. Þá er þess krafist að ákærði verði dæmdur til refsingar, til greiðslu alls sakarkostnaðar og til að sæta sviptingu ökuréttar skv. 99. gr. og 101. gr. laga nr. 77/2019. Krafist er upptöku á 171,63 g af maríhúana, 13 stykkjum af alprazolam krka, 40 stykkjum af alprazolam mylan, 60 stykkjum af diazepam, 126 stykkjum af læknislyfjum, 89 stykkjum af rivotril, 52 stykkjum af lexotan, 10 stykkjum af metadon abcur og 3 stykkjum af suboxone, sem hald var lagt á, samkvæmt 6. mgr. 5. gr. laga nr. 65/1974. Þá er jafnframt krafist upptöku á fjaðurhníf með áföstu hnúajárni, fallhníf, raflostbyssu, þremur piparúðabrúsum, útdraganlegri kylfu, tveimur stunguvopnum, fjaðrahníf, hnúsajárni, skotfærum og rafmagnsvopni, sem lögregla lagði hald á, með vísan til 1. mgr. 37. gr. vopnalaga nr. 16/1998.

Fyrir dómi játaði ákærði afdráttarlaust sök samkvæmt ákæru. Var því farið með málið að hætti 164. gr. laga nr. 88/2008 um meðferð sakamála og málið dómtekið án frekari sönnunarfærslu eftir að sækjandi og verjandi höfðu tjáð sig um lagaatriði máls og ákvörðun viðurlaga. Af hálfu ákærða er krafist vægustu refsingar sem lög leyfa og hún verði skilorðsbundin. Þá krefst verjandi þóknunar að mati dómsins.

Með skýlausri játningu ákærða fyrir dómi, sem samrýmist rannsóknargögnum máls, er sannað að hann hafi gerst sekur um þá háttsemi sem honum er gefið að sök í ákæru og þar þykir rétt heimfærð til refsiákvæða.

Sakaferill ákærða hefur ekki áhrif á ákvörðun refsingar í máli þessu. Með hliðsjón af framangreindu þykir refsing réttilega ákveðin 60 daga fangelsi. Fresta skal fullnustu refsingar og niður skal hún falla að liðnum tveimur árum haldi ákærði almennt skilorð, sbr. 57. gr. laga nr. 19/1940. Þá greiði ákærði 100.000 króna sekt til ríkissjóðs. Greiði ákærði ekki dæmda fésekt innan fjögurra vikna frá dómsbirtingu skal koma í hennar stað 8 daga fangelsi. Í ljósi framangreinds og með vísan til 99. og 101. gr. umferðarlaga nr. 77/2019, er ákærði sviptur ökurétti í sex mánuði frá birtingu dómsins að telja. Samkvæmt greindri niðurstöðu er fallist á upptökukröfu ákæruvaldsins eins og hún er sett fram í ákæru. Þá ber að dæma ákærða til greiðslu alls sakarkostnaðar, en til hans telst 220.209 króna útlagður kostnaður ákæruvaldsins, þóknun Snorra Sturlusonar verjanda ákærða hér fyrir dómi. Með hliðsjón af eðli og umfangi máls og að teknu tilliti til viðmiðunarreglna Dómstólasýslunnar nr. 1/2026 þykir þóknun verjanda hæfilega ákveðin 247.380 krónur að meðtöldum virðisaukaskatti.

Dómurinn er kveðinn upp af Sóleyju Ólöfu Rún Guðmarsdóttur aðstoðarmanni dómara.

Dómsorð:

Ákærði, X, sæti fangelsi í 60 daga. Fullnustu refsingarinnar skal frestað og niður skal hún falla að liðnum tveimur árum frá dómsuppsögu haldi ákærði almennt skilorð 57. gr. laga nr. 19/1940.

Ákærði greiði 100.000 krónur í sekt til ríkissjóðs innan fjögurra vikna frá dómsbirtingu en sæti ella 8 daga fangelsi.

Ákærði er sviptur ökurétti í 6 mánuði frá dómsbirtingu.

Ákærði sæti upptöku á 171,63 grömmum af 171,63 g af maríhúana, 13 stykkjum af alprazolam krka, 40 stykkjum af alprazolam mylan, 60 stykkjum af diazepam, 126 stykkjum af læknislyfjum, 89 stykkjum af rivotril, 52 stykkjum af lexotan, 10 stykkjum af metadon abcur og 3 stykkjum af suboxone, fjaðurhníf með áföstu hnúajárni, fallhníf, raflostbyssu, þremur piparúðabrúsum, útdraganlegri kylfu, tveimur stunguvopnum, fjaðrahníf, hnúsajárni, skotfærum og rafmagnsvopni.

Ákærði greiði 467.589 krónur í sakarkostnað, þar með talda 247.380 króna þóknun Snorra Sturlusonar verjanda síns.

Sóley Ólöf Rún Guðmarsdóttir

Heimildaskrá

Lagaskrá

Lög nr. 19/1940 Almenn hegningarlög 57. gr.
Lög nr. 65/1974 Lög um ávana- og fíkniefni 2. gr.3. gr.5. gr.6. mgr. 5. gr.6. gr.
Lög nr. 16/1998 Vopnalög 1. mgr. 13. gr.2. mgr. 30. gr.4. mgr. 30. gr.1. mgr. 36. gr.1. mgr. 37. gr.
Lög nr. 88/2008 Lög um meðferð sakamála 164. gr.
Lög nr. 77/2019 Umferðarlög 2. mgr. 48. gr.2. mgr. 50. gr.1. mgr. 95. gr.99. gr.101. gr.