Fara í efni

Dómstólaleit

Leit í dómum íslenskra dómstóla

Héraðsdómur Norðurlands eystra

Mál nr. S-746/2025:

Ákæruvaldið

(Eyþór Þorbergsson aðstoðarsaksóknari)

gegn

Dominik Adrian Kalfas og

Patrycja Klaudia Kosiec

(Karol Walejko lögmaður)

Ávana- og fíkniefni. Eignaupptaka. Fíkniefnalagabrot. Vörslur.

Ákærðu sakfelld fyrir fíkniefnalagabrot.

Dómur

Mál þetta, sem var dómtekið 9. apríl sl., var höfðað með ákæru lögreglustjórans á Norðurlandi eystra, dagsettri 23. desember 2025, á hendur Dominik Adrian Kalfas, kt. […] og Patrycja Klaudia Kosiec, kt. […], bæði til heimilis að […], […], „fyrir eftirtalin brot á ávana- og fíkniefnalögum:

I.

Gegn ákærðu báðum fyrir að hafa mánudaginn 23. september 2024, verið með í sameiginlegum vörslum sínum á þáverandi heimili sínu að […] á […], 221,72 grömm af maríhúana og 7,13 grömm af hassi.

Telst brot þetta varða við 2. gr., sbr. 5. gr. og 6. gr. laga um ávana- og fíkniefni nr. 65/1974, með síðari breytingum og 2. gr., sbr. 14 gr. reglugerðar um ávana- og fíkniefni og önnur eftirlitsskyld efni nr. 233/2001 með síðari breytingum. […].

II.

[…] Þess er krafist að ákærði verði dæmdur til refsingar, til greiðslu alls sakarkostnaðar og til að sæta upptöku á fíkniefnum sem lögreglan lagði hald á og tilgreind eru í efnaskrá nr. 55.843, 54.844 og 55.546 og tveimur ræktunartjöldum, tveimur loftsíum og bakpoka með ýmis konar munum til ræktunar, samkvæmt 6. mgr. og 7. mgr. 5. gr. laga nr. 65/1974 og 2. mgr. 14. gr. reglugerðar nr. 233/2001.“

Við fyrirtöku málsins féll ákæruvaldið frá ákærulið II.

Ákærðu hafa komið fyrir dóm og játað sök samkvæmt ákæru svo breyttri. Með játningu þeirra, sem ekki er ástæða til að efa að sé sannleikanum samkvæm, og gögnum málsins, er nægilega sannað að þau hafi gerst sek um þá háttsemi sem í ákæru er lýst og þar er réttilega heimfærð til refsiákvæða. Verður lagður dómur á málið án frekari sönnunarfærslu, sbr. heimildarákvæði 164. gr. laga nr. 88/2008.

Ákærðu hafa hreinan sakaferil. Þykir refsing ákærðu beggja hæfilega ákveðin fangelsi í 45 daga en fresta skal fullnustu refsingarinnar skilorðsbundið, eins og nánar greinir í dómsorði.

Að kröfu ákæruvalds, og með vísan til 5. gr. og 6. gr. laga um ávana- og fíkniefni nr. 65/1974 skulu ákærðu sæta upptöku á þeim efnum og munum er í dómsorði greinir.

Að kröfu ákæruvalds og með vísan til dómsniðurstöðu verða ákærðu dæmd til greiðslu sakarkostnaðar, þ.e. þóknun skipaðs verjanda síns, eins og hún ákveðst í dómsorði að virðisaukaskatti meðtöldum.

Berglind Harðardóttir aðstoðarmaður dómara kveður upp dóminn.

Dómsorð:

Ákærði, Dominik Adrian Kalfas, sæti fangelsi í 45 daga. Fresta ber fullnustu refsingarinnar og skal hún falla niður að liðnum tveimur árum frá uppsögu þessa dóms að telja, haldi ákærði almennt skilorð 57. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940.

Ákærða, Patrycja Klaudia Kosiec, sæti fangelsi í 45 daga. Fresta ber fullnustu refsingarinnar og skal hún falla niður að liðnum tveimur árum frá uppsögu þessa dóms að telja, haldi ákærða almennt skilorð 57. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940.

Gerð eru upptæk 221,72 grömm af marijúana, 7,13 grömm af hassi, tvö ræktunartjöld, tvær loftsíur og haldlagður bakpoki með ýmis konar munum til ræktunar.

Ákærði Dominik greiði 141.360 krónur í sakarkostnað, þ.e. þóknun skipaðs verjanda síns, Karol Walejko lögmanns.

Ákærða Patrycja greiði 141.360 krónur í sakarkostnað, þ.e. þóknun skipaðs verjanda síns, Karol Walejko lögmanns.

Heimildaskrá