Fara í efni

Dómstólaleit

Leit í dómum íslenskra dómstóla

Leita í öllum dómstólum...

Niðurstöður

424 dómar fundust

Lykilorð: Vörslur

Héraðsdómur Reykjavíkur birt 28. maí 2026 kl. 14:37

S-2224/2026

Lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu (Karen Lárusdóttir saksóknarfulltrúi) gegn Eggert Frey Rúnarssyni (Guðmundur Ómar Hafsteinsson lögmaður)
Málaflokkur: Umferðarlagabrot

Ákærði var sakfelldur fyrir umferðar- og fíkniefnalagabrot og brot gegn lögreglulögum. Var honum gert að sæta fangelsi í 4 másnuði ásamt því að vera sviptur ökuréttindum ævilangt.

Héraðsdómur Reykjavíkur birt 26. maí 2026 kl. 14:06

S-2344/2026

Lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu (Baldvin Einarsson aðstoðarsaksóknari) gegn Emil Rafni Breiðfjörð Jónssyni
Málaflokkur: Umferðarlagabrot

Ákærði var sakfelldur fyrir umferðar- og fíkniefnilagabrot. Var honum gert að sæta fangelsi í 30 daga ásamt því að vera sviptur ökuréttindum ævilangt.

Hæstiréttur birt 11. mars 2026

58/2025

Ákæruvaldið (Anna Barbara Andradóttir saksóknari) gegn Elíasi Shamsudin (Leifur Runólfsson lögmaður), Jónasi Shamsudin (Jón Magnússon lögmaður) og Samúel Jóa Björgvinssyni (Jón Egilsson lögmaður)
Málaflokkur: Fíkniefnamál

X, Y og Z voru sakfelldir fyrir stórfellt fíkniefnalagabrot samkvæmt 173. gr. a almennra hegningarlaga nr. 19/1940 með því að hafa haft í vörslum sínum í sölu- og dreifingarskyni 2943,38 grömm af MDMA-kristöllum. Z var til viðbótar sakfelldur fyrir brot gegn sama ákvæði með því að hafa haft í vörslum sínum í sölu- og dreifingarskyni 1.781 töflu af MDMA, fyrir fíkniefnalagabrot með því að hafa haft í vörslum sínum ýmis önnur fíkniefni í sölu- og dreifingarskyni sem og fyrir umferðarlagabrot. Þá var Y einnig sakfelldur fyrir fíkniefnalagabrot með því að hafa haft í vörslum sínum nánar tilgreind fíkniefni og vopnalagabrot. Í málinu var annars vegar deilt um sýknukröfu Y vegna fyrrgreinds brots gegn 173. gr. a almennra hegningarlaga og hins vegar ákvörðun refsingar. Með nánar tilgreindum athugasemdum staðfesti Hæstiréttur niðurstöðu hins áfrýjaða dóms um sakfellingu Y. Við ákvörðun refsingar leit Hæstiréttur meðal annars til þess að úr MDMA-kristöllunum hefði mátt framleiða ríflega 23.000 MDMA-töflur og því um að ræða verulegt magn efnis sem og til nýlegra dóma réttarins í sambærilegum málum. Með hliðsjón af því var refsing allra ákærðu þyngd frá því sem ákveðið hefði verið í hinum áfrýjaða dómi og refsing ákærðu X og Y ákveðin fangelsi í þrjú ár en Z fangelsi í þrjú og hálft ár.

Héraðsdómur Reykjavíkur birt 11. mars 2026

S-7366/2025

Lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu (Elín Hrafnsdóttir aðstoðarsaksóknari) gegn Davíð Þór Rúnarssyni (Orri Sigurðsson lögmaður)
Málaflokkur: Umferðarlagabrot

Ákærði var sakfelldur fyrir umferðar- og fíkniefnalagabrot. Var honum dæmdur hegningarauki og gert að sæta fangelsi í 5 mánuði ásamt því að áréttuð var ævilöng svipting ökuréttinda ákærða.

Landsréttur birt 16. desember 2025

152/2025

Ákæruvaldið (Hulda María Stefánsdóttir saksóknari) gegn Judy Medith Achieng Owuor (Sigmundur Guðmundsson lögmaður)
Málaflokkur: Umferðarlagabrot

J voru gefin að sök umferðarlagabrot með því að hafa 4. júlí 2023 ekið bifreið ófær um að stjórna henni örugglega vegna töku slævandi lyfja og fíkniefnalagabrot með því að hafa 14. janúar 2024 verið með 1,38 g af kókaíni í vörslum sínum. Með dómi Landsréttar var staðfest niðurstaða hins áfrýjaða dóms um sakfellingu J og heimfærslu háttsemi hennar til refsiákvæða. Var J gert að greiða sekt samtals að fjárhæð 200.000 króna fyrir bæði brotin og þá var hún svipt ökurétti í sex mánuði.

Landsréttur birt 11. desember 2025

103/2025

Ákæruvaldið (Dröfn Kærnested saksóknari) gegn Sigurbjörgu Sjöfn Rafnsdóttur (Vilhjálmur Hans Vilhjálmsson lögmaður)
Málaflokkur: Fíkniefnamál

S var ásamt meðákærðu í héraði gefið að sök stórfellt fíkniefnalagabrot með því að hafa þann 20. maí 2022 haft í vörslum sínum í sölu- og dreifingarskyni 3.445 grömm af kannabislaufum, 91 kannabisplöntu og 1.403,48 grömm af marijúana og hafa um nokkurt skeið ræktað greindar plöntur, sem lögregla lagði hald á við leit á landareign S, og 9.660 grömm af marijúana sem fundust við leit í nánar tilgreindu sumarhúsi og 780 grömm sem meðákærði X hafði afhent meðákærða Y til dreifingar. Í dómi Landsréttar kom meðal annars fram að útilokað væri að S hefði umræddan dag haft í vörslum sínum þau 780 grömm af marijúana sem afhent höfðu verið meðákærða Y 4. maí 2022 og hann síðar afhent þriðja aðila. Einnig lægi ekkert fyrir um að S hefði haft aðgang að þeim 9.660 grömmum af marijúana sem fundust í umræddu sumarhúsi, yrði S því ekki sakfelld fyrir þá háttsemi. Landsréttur féllst hins vegar á að S hefði haft í vörslum sínum í sölu- og dreifingarskyni þær kannabisplöntur og -lauf auk þess magns marijúana sem lögregla lagði hald á við leit á landareign S. Enn fremur var fallist á að S hefði um nokkurt skeið litið til með ræktun þeirra kannabisplantna sem haldlagðar voru á landareign hennar og þeirra plantna sem notaðar voru, að öllu eða langmestu leyti, til framleiðslu á umræddum 9.660 og 780 grömmum af marijúana. Ekki var talin komin fram nægjanleg sönnun að S hafi af ásetningi sýnt af sér háttsemi sem varðaði við 173. gr. a almennra hegningarlaga nr. 19/1940 og var háttsemi S því heimfærð undir 2. gr., sbr. 5., og 6. gr., laga nr. 65/1974 um ávana- og fíkniefni. Loks staðfesti Landsréttur sakfellingu S fyrir brot gegn lögum nr. 65/1974 með því að hafa haft í vörslum sínum 86,52 grömm af marijúana og 40 millilítra af kannabisblönduðum vökva sem fundust á heimili hennar. Var refsing S ákveðin fangelsi í sex mánuði en fullnustu refsingarinnar frestað í tvö ár skilorðsbundið.

Héraðsdómur Norðurlands eystra birt 10. desember 2025

S-441/2025

Ákæruvaldið (Eyþór Þorbergsson aðstoðarsaksóknari) gegn Genci Zylyftari
Málaflokkur: Fíkniefnamál

Ákærði sakfelldur fyrir vörslur fíkniefna í söluskyni og peningaþvætti.

Landsréttur birt 20. nóvember 2025

132/2025

Ákæruvaldið (Anna Barbara Andradóttir saksóknari) gegn Jóni Inga Sveinssyni (Björgvin Jónsson lögmaður), Pétri Þór Elíassyni (Ólafur V. Thordersen lögmaður), Árna Stefáni Ásgeirssyni (Unnsteinn Örn Elvarsson lögmaður), Hauki Ægi Haukssyni (Oddgeir Einarsson lögmaður), Gunnlaugi J. Skarphéðinssyni (Áslaug Lára Lárusdóttir lögmaður), Valgerði Sif Sigurðardóttur (Þorgils Þorgilsson lögmaður), Tinnu Kristínu Gísladóttur (Ingi Freyr Ágústsson lögmaður), Thelmu Rún Ásgeirsdóttur (Elimar Hauksson lögmaður), Andra Þór Guðmundssyni (Almar Þór Möller lögmaður), Daníel Karim Mikaelssyni (Guðmundur Njáll Guðmundsson lögmaður) og Gunnari Karli Pálmasyni (Erlendur Þór Gunnarsson lögmaður)
Málaflokkur: Fíkniefnamál

Ákærðu J, P, Á, H, G, V, Th, TK og AÞ var meðal annars gefin að sök skipulögð brotastarfsemi og stórfelld fíkniefnalagabrot sem þau hafi sammælst um að fremja á árinu 2023 og fram til 11. apríl 2024. Hafi framkvæmd brotanna verið liður í starfsemi skipulagðra brotasamtaka, en þau hafi í félagi staðið að sölu og dreifingu fíkniefna hér á landi, meðvituð um tiltekna verkaskiptingu við geymslu, pökkun, sölu og dreifingu efnanna, meðal annars í fjórum nánar tilgreindum tilvikum 21. og 22. september 2023, sem varðaði vörslur ávana- og fíkniefna í sölu og dreifingarskyni á þremur stöðum í Reykjavík og einum í Mosfellsbæ. Komst Landsréttur að þeirri niðurstöðu að af 1. mgr. 180. gr. laga nr. 88/2008 um meðferð sakamála leiddi að einungis væri unnt að taka afstöðu til síðastnefndra fjögurra tilvika varðandi þennan hluta málsins. Af framsetningu ákæru leiddi að ekki væri unnt, svo sem gert var í hinum áfrýjaða dómi, að taka afstöðu til þess hvort ákærðu hefðu í öðrum tilvikum árið 2023 og fram til 11. apríl 2024 gerst sek um ávana- og fíkniefnalagabrot. Voru ákærðu J, P, G, V, og TK sakfelld samkvæmt þessum hluta ákærunnar fyrir stórfellt fíkniefnalagabrot samkvæmt 173. gr. a almennra hegningarlaga nr. 19/1940 en auk þess taldi Landsréttur sannað að brotin hefðu verið framkvæmd sem liður í skipulagðri brotastarfsemi samkvæmt 175. gr. a almennra hegningarlaga. Ákærðu Á, H, Th og AÞ voru hins vegar sýknuð af þessum hluta ákærunnar. Auk framangreinds voru J, P, Á, D og G sakfelldir fyrir nánar tilgreind peningaþvættisbrot og fíkniefnalagabrot og J, G og H fyrir innflutning ávana- og fíkniefna sem liðar í skipulagðri brotastarfsemi. Þá voru Th og AÞ sakfelld fyrir nánar tilgreind fíkniefnalagabrot. Loks voru J, P, TK, H og D sakfelld fyrir nánar tilgreind vopnalagabrot.

Landsréttur birt 20. nóvember 2025

106/2025

Ákæruvaldið (Dagmar Ösp Vésteinsdóttir saksóknari) gegn Mohamed Hicham Rahmi (Leifur Runólfsson lögmaður)
Málaflokkur: Fíkniefnamál

M var sakfelldur fyrir brot gegn 173. gr. a almennra hegningarlaga nr. 19/1940 með því að hafa í sameiningu með öðrum staðið að því að flytja inn 1.988,99 grömm af kókaíni af tilteknum styrkleika, ætluðum til söludreifingar hér á landi í ágóðaskyni. Þá var hann einnig sakfelldur fyrir að hafa átt samtals 226,55 grömm af kókaíni sem ætlað var til sölu og dreifingar sem meðákærði í héraði hafði í vörslum sínum og fundust við leit í bifreið. Auk þessa var hann jafnframt sakfelldur fyrir brot gegn lyfjalögum nr. 100/2020 og lögum nr. 84/2018 um bann við tilteknum frammistöðubætandi efnum og lyfjum með því að hafa haft í vörslum sínum, í sölu- og dreifingarskyni, samtals 234,45 grömm af kókaíni, 498,33 grömm af hassi, 4,75 grömm af metamfetamíni, 555 stykki af alprazolam Krka 1 milligramms töflum og 4 millilítra af testósteroni. Við ákvörðun refsingar var litið til þess að brot ákærða lutu að innflutningi á miklu magni sterkra fíkniefna í samverknaði við aðra. Þá hefðu brot ákærða verið framin í ágóðaskyni og einkennst af sterkum brotavilja auk þess sem hann hafði skipulagt innflutninginn. Þá var jafnframt horft til þess að hann hafði áður verið dæmdur í þriggja ára fangelsi fyrir brot á 173. gr. a almennra hegningarlaga auk þess sem hann hafði hlotið eins og hálfs árs fangelsisdóm í Svíþjóð fyrir fíkniefnasmygl sem einnig hefur ítrekunaráhrif hér á landi. Refsing M var ákveðin fangelsi í fjögur ár og sex mánuði en til frádráttar refsingunni kæmi gæsluvarðhald sem hann hefði sætt.

Héraðsdómur Suðurlands birt 17. nóvember 2025

S-547/2025

Lögreglustjórinn á Suðurlandi (Ólafur Hallgrímsson fulltrúi) gegn Páli Þorsteinssyni (sjálfur)
Málaflokkur: Fíkniefnamál

Ákærði var fundinn sekur um fíkniefnalagabrot, þar með talið ræktun fíkniefna, og honum gert að sæta fangelsi í 60 daga, en fullnustu refsingarinnar var frestað skilorðsbundið til tveggja ára.

Landsréttur birt 13. nóvember 2025

987/2024

Ákæruvaldið (Hulda María Stefánsdóttir saksóknari) gegn Mikkael Ingiberg Gunnlaugssyni (Þorgils Þorgilsson lögmaður)
Málaflokkur: Fíkniefnamál

M var sakfelldur fyrir stórfellt fíkniefnalagabrot með því að hafa haft í vörslum sínum og flutt inn til landsins í þrjátíu pakkningum rúm 32 kg af efni sem hafði að geyma fíkniefnið DMT með 1,8% til 2,1% styrkleika, 51,98 grömm af DMT í formi grænna laufa og 392,17 grömm af Kratom. Þá var M sakfelldur fyrir umferðarlagabrot og sviptur ökurétti í tvö ár. Var M gert að sæta fangelsi í átján mánuði, sem bundið var skilorði til tveggja ára og upptöku á nánar tilgreindum fíkniefnum.

Héraðsdómur Norðurlands eystra birt 4. nóvember 2025

S-425/2025

Ákæruvaldið (Eyþór Þorbergsson aðstoðarsaksóknari) gegn Alexander Svani Guðmundssyni (Páll Kristjánsson lögmaður)
Málaflokkur: Fíkniefnamál

Ákærði sakfelldur fyrir vörslur fíkniefna í söluskyni, vopnalagabrot og peningaþvætti. Hegningarauki. Skilorðsdómur dæmdur upp.

Héraðsdómur Norðurlands eystra birt 17. september 2025

S-319/2025

Ákæruvaldið (Eyþór Þorbergsson aðstoðarsaksóknari) gegn Marinó Jónssyni
Málaflokkur: Fíkniefnamál

Ákærði sakfelldur fyrir vörslur fíkniefna.

Landsréttur birt 11. september 2025

200/2025

Ákæruvaldið (Anna Barbara Andradóttir saksóknari) gegn Elíasi Shamsudin (Leifur Runólfsson lögmaður), Jónasi Shamsudin (Sveinn Andri Sveinsson lögmaður) og Samúel Jóa Björgvinssyni (Jón Egilsson lögmaður)
Málaflokkur: Fíkniefnamál

E, J og S voru ákærðir fyrir stórfellt fíkniefnalagabrot, sbr. 173. gr. a almennra hegningarlaga nr. 19/1940, með því að hafa haft í vörslum sínum í sölu- og dreifingarskyni 2943,38 grömm af MDMA kristölum og 1.781 MDMA töflu. Þá var S einnig ákærður fyrir að hafa í vörslum sínum í sölu- og dreifingarskyni 153,29 grömm af kókaíni, 5,10 grömm af MDMA, 223,58 grömm af metamfetamíni í kristalsformi, 22 MDMA töflur og 788 töflur sem innihéldu fíknilyfið brómazólam ásamt því að vera gefin að sök nánar tilgreind umferðarlagabrot. Loks var J ákærður fyrir að hafa haft í vörslum sínum 4,60 grömm af kókaíni, tvö stunguvopn og tvö höggvopn. Með dómi héraðsdóms voru ákærðu sakfelldir samkvæmt ákæru, að því frátöldu að E og J voru sýknaðir af því að hafa haft MDMA töflurnar í vörslum sínum. Var refsing E og J ákveðin fangelsi í tvö ár og sex mánuði en refsing S ákveðin fangelsi í þrjú ár og sex mánuði. Á undi héraðsdómi að því leyti sem E og J voru sýknaðir en áfrýjaði málinu til refsiþyngingar. Kröfur E og S fyrir Landsrétti lutu einungis að ákvörðun refsingar en J krafðist sýknu af I. kafla ákæru. Um þátttöku J kom meðal annars fram í dómi Landsréttar að hún skæri sig á engan hátt frá þátttöku meðákærðu og var niðurstaða hins áfrýjaða dóms um sakfellingu J staðfest. Þá var niðurstaða hins áfrýjaða dóms staðfest um refsingu E og J en refsing S ákveðin fangelsi í þrjú ár.

Landsréttur birt 19. júní 2025

550/2024

Ákæruvaldið (Óli Ingi Ólason saksóknari) gegn Aleksander Breshanaj (Hrafnkell Oddi Guðjónsson lögmaður)
Málaflokkur: Fíkniefnamál

A var sakfelldur fyrir fíkniefnalagabrot með því að hafa haft í vörslum sínum 2.638,29 g af maríjúana. Var A gert að sæta fangelsi í 4 mánuði en fullnustu refsingarinnar frestað í tvö ár skilorðsbundið. Þá var A og meðákærða í héraði gert að sæta upptöku fíkniefnanna ásamt 12 farsímum, 2.143.000 krónum og tilgreindum minni upphæðum í erlendum gjaldmiðlum.

Landsréttur birt 10. apríl 2025

480/2024

Ákæruvaldið (Anna Barbara Andradóttir saksóknari) gegn Karli Brooke Herman Gunnarsyni (Hilmar Garðars Þorsteinsson lögmaður)
Málaflokkur: Fíkniefnamál

K var ákærður fyrir fíkniefnalagabrot í þremur ákæruliðum með því að hafa tilgreint magn fíkniefna í vörslum sínum í sölu- og dreifingarskyni. Með dómi Landsréttar var K sakfelldur fyrir vörslur tilgreindra fíkniefna í sölu- og dreifingarskyni samkvæmt fyrsta ákærulið. K var einnig sakfelldur fyrir vörslur fíkniefna sem um ræddi í öðrum og þriðja ákærulið. Þá var magn fíkniefnanna ekki slíkt að það gæfi eitt og sér tilefni til ályktunar um sölutilgang. Var K því sýknaður af því að hafa ætlað fíkniefnin samkvæmt öðrum og þriðja ákærulið til sölu og dreifingar. Var refsing K ákveðin fangelsi í 30 daga en fullnustu hennar frestað skilorðsbundið í tvö ár.

Landsréttur birt 10. apríl 2025

365/2024

Ákæruvaldið (Marín Ólafsdóttir saksóknari) gegn Ani Kadiu (Jóhann Fannar Guðjónsson lögmaður)
Málaflokkur: Fíkniefnamál

AK var sakfelldur fyrir fíkniefnalagabrot með því að hafa haft í vörslum sínum í þrjú tilgreind skipti nánar tilgreint magn af kókaíni, þar af í eitt sinn ætluðu til söludreifingar í ágóðaskyni. Þá var AK sakfelldur fyrir rangar sakargiftir með því að hafa í kjölfar afskipta lögreglu í eitt skiptið skýrt lögreglu rangt frá nafni sínu, hann kvaðst vera A og leitaðist þannig við að A yrði sakaður um fíkniefnalagabrot. Var AK gert að sæta þriggja mánaða fangelsi, sem bundið var skilorði til tveggja ára, upptöku á nánar tilgreindum fíkniefnum, fjórum farsímum og tilgreindum fjármunum.

Landsréttur birt 6. febrúar 2025

366/2024

Ákæruvaldið (Hulda María Stefánsdóttir saksóknari) gegn Eliner Duro (Jóhann Fannar Guðjónsson lögmaður, Grímur Már Þórólfsson lögmaður, 3. prófmál)
Málaflokkur: Fíkniefnamál

Staðfestur var dómur héraðsdóms þar sem E var sakfelldur fyrir brot gegn 2. gr., sbr. 5. og 6. gr., laga um ávana- og fíkniefni nr. 65/1974 með því að hafa haft í vörslum sínum í sölu- og dreifingarskyni nánar tilgreint magn fíkniefna og brot gegn 2. málslið 1. mgr. 49. gr. og 1. mgr. 50. gr., sbr. a-lið 1. mgr. 116. gr., laga um útlendinga nr. 80/2016 með því að dvelja hér á landi í heimildarleysi án dvalarleyfis auk brots gegn c-lið 1. mgr. 114. gr., sbr. a-lið 1. mgr. 116. gr., laga um útlendinga með því að sinna ekki tilkynningarskyldu sinni samkvæmt lögunum. Var E gert að sæta fangelsi í sex mánuði, þar af fimm mánuði skilorðsbundið, og upptöku á fíkniefnum, farsímum og reiðufé.

Héraðsdómur Norðurlands eystra birt 29. janúar 2025

S-333/2024

Ákæruvaldið (Eyþór Þorbergsson aðstoðarsaksóknari) gegn Albi Ismaili
Málaflokkur: Fíkniefnamál

Ákærði sakfelldur fyrir peningaþvætti og brot á ávana- og fíkniefnalögum.

Héraðsdómur Norðurlands eystra birt 30. desember 2024

S-217/2024

Ákæruvaldið (Eyþór Þorbergsson aðstoðarsaksóknari) gegn Sævari Má Bjarkasyni (Páll Kristjánsson lögmaður) og X (Svavar Daðason lögmaður)
Málaflokkur: Umferðarlagabrot

annar ákærðu sakfelldur fyrir umferðarlagabrot, vörslur fíkniefna í söluskyni og peningaþvætti. Hinn sakfelldur fyrir að hafa verið með fíkniefnin í sameiginlegum vörslum með meðákærða

Landsréttur birt 12. desember 2024

321/2024

Ákæruvaldið (Hulda María Stefánsdóttir saksóknari) gegn Sigurði Baldri Kolbrúnarsyni (Jónas Örn Jónasson lögmaður)
Málaflokkur: Fíkniefnamál

S var sakfelldur fyrir fíkniefnalagabrot með því að hafa haft í vörslum sínum í sölu- og dreifingarskyni 7.539,54 g af maríjúana, 109,37 g af kókaíni og 0,32 g af tóbaksblönduðu kannabisefni. Var S gert að sæta fangelsi í 12 mánuði og upptöku á fíkniefnunum ásamt upptöku á tveimur farsímum og reiðufé að fjárhæð 150.000 krónur.

Landsréttur birt 14. nóvember 2024

30/2024

Ákæruvaldið (Hulda María Stefánsdóttir saksóknari) gegn Henry Fleischer (Arnar Kormákur Friðriksson lögmaður)
Málaflokkur: Fíkniefnamál

H var sakfelldur fyrir stórfellt fíkniefnabrot með því að hafa, ásamt meðákærða X, í sameiningu, haft í vörslum sínum í tilgreindri skútu, úti fyrir Garðskagavita, 157.092 grömm af hassi og 40,52 grömm af maríhúana. Við ákvörðun refsingar H var litið til 1. og 6. töluliðar 1. mgr. 70. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940 og 2. mgr. sömu greinar og refsing H ákveðin fangelsi í fjögur ár. Þá var staðfest niðurstaða héraðsdóms um upptöku farsíma H.

Landsréttur birt 7. nóvember 2024

787/2023

Ákæruvaldið (Hulda María Stefánsdóttir saksóknari) gegn Guðmundi Þór Ármannssyni (Leifur Runólfsson lögmaður, Hilmar Garðars Þorsteinsson lögmaður, 2. prófmál) og Ernu Ósk Agnarsdóttur (Jón Bjarni Kristjánsson lögmaður)
Málaflokkur: Fíkniefnamál

G og E voru sakfelld fyrir tilraun til stórfellds fíkniefnalagabrots, sbr. 173. gr. a, sbr. 1. mgr. 20. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940, með því að hafa í félagi í póstafgreiðslu sótt og tekið á móti 342,15 grömmum af metamfetamíni, ætluðu til söludreifingar í ágóðaskyni. Fíkniefnin voru í umslagi sem kom hingað til landsins með póstsendingu erlendis frá. Skráður móttakandi sendingarinnar var A og byggðu G og E á því að þeim hafi verið ókunnugt um upphaflegt innihald póstsendingarinnar og hefðu þau verið í góðri trú um að þau væru að sækja og móttaka sendingu með lögmætu innihaldi í umboði A. Þá var E sakfelld fyrir fíkniefnalagabrot með því að hafa haft í vörslum sínum, á heimili sínu, nánar tilgreind fíkniefni og lyf. Í dómi Landsréttar var framburður G og E um að þau hafi ekkert um innihald sendingarinnar vitað metinn ótrúverðugur og jafnframt kom fram að engin rökrétt skýring væri á því að G og E ákváðu að sækja póstsendingu sem stíluð var á A, önnur en að þau hefðu vitað hvað í sendingunni var. Var dómur héraðsdóms staðfestur um sakfellingu G og E. Refsing G var ákveðin fangelsi í 12 mánuði og refsing E var ákveðin fangelsi í 14 mánuði. Þá var staðfest niðurstaða héraðsdóms um upptöku fíkniefna og lyfja.

Héraðsdómur Reykjaness birt 2. júlí 2024

S-896/2024

Ákæruvaldið (Karl Ingi Vilbergsson saksóknari) gegn Adam Benito Pedie (Áslaug Lára Lárusdóttir lögmaður)
Málaflokkur: Fíkniefnamál

Ákærði sakfelldur fyrir stórfelld fíkniefnalagabrot vegna skipulagningar, fjármögnunar og innflutning fíkniefna til landsins í þrjú aðskilin skipti, í tvö skipti með sitt hvorum einstaklingnum sem aðeins fluttu efnin til landsins (burðardýr) en í eitt skipti með póstsendingu. Ákærði var einnig sakfelldur fyrir skjalabrot og vörslur ávana- og fíkniefna. Ákærði var dæmdur í þriggja ára fangelsi.

Héraðsdómur Norðurlands eystra birt 21. júní 2024

S-168/2024

Ákæruvaldið (Eyþór Þorbergsson aðstoðarsaksóknari) gegn Antoni Þór Arnarssyni (Guðmundur St. Ragnarsson lögmaður) og X (Friðrik Smárason lögmaður)
Málaflokkur: Fíkniefnamál

Ákærðu sakfelldir fyrir vörslur ávana- og fíkniefna og dæmdir til að sæta upptöku haldlagðra efna. Ákærði Anton einnig sakfelldur fyrir sölu ávana- og fíkniefna og peningaþvætti, Ákærði Anton var auk þess dæmdur til að sæta upptöku á haldlögðum ávinningi.

Héraðsdómur Reykjavíkur birt 15. maí 2024

S-1960/2024

Lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu (Agnes Ýr Stefánsdóttir saksóknarfulltrúi) gegn Daníel Vias Elvarssyni (Einar Oddur Sigurðsson lögmaður)
Málaflokkur: Umferðarlagabrot

Ákærði var sakfelldur fyrir akstur undir áhrifum ávana- og fíkniefna, akstur sviptur ökurétti og vörslur fíkniefna og gert að sæta fangelsi í 30 daga, hann sviptur ökurétti ævilangt og gert að sæta upptöku á haldlögðum efnum.

Héraðsdómur Reykjavíkur birt 3. apríl 2024

S-1121/2024

Lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu (Kamilla Kjerúlf saksóknarfulltrúi) gegn Agnari Þór Sigurðssyni
Málaflokkur: Umferðarlagabrot

Ákærði var sakfelldur fyrir umferðarlagabrot og gert að sæta fangelsi í 30 daga og hann sviptur ökurétti ævilangt.

Héraðsdómur Norðurlands eystra birt 22. mars 2024

S-261/2023

Ákæruvaldið (Eyþór Þorbergsson aðstoðarsaksóknari) gegn X
Málaflokkur: Fíkniefnamál

Ákærði sakfelldur fyrir vörslur fíkniefna en ekki gerð refsing þar sem um var að ræða hegningarauka og meðferð málsins hafði dregist verulega.

Héraðsdómur Reykjavíkur birt 13. mars 2024

S-160/2024

Lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu (Pétur Fannar Gíslason saksóknarfulltrúi) gegn Gunnari Jónssyni (Ingi Freyr Ágústsson lögmaður)
Málaflokkur: Fíkniefnamál

Ákærði var sakfelldur fyrir tvö fíkniefnalagabrot og eitt lyfjalagabrot og dæmdur í 4 mánaða fangelsi, skilorðsbundið til tveggja ára. Þá var honum gert að sæta upptöku á haldlögðum efnum og munum.

Héraðsdómur Reykjavíkur birt 13. mars 2024

S-7073/2023

Lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu (Kamilla Kjerúlf saksóknarfulltrúi) gegn Einari Braga Þorkelssyni (Guðmundur St. Ragnarsson lögmaður)
Málaflokkur: Umferðarlagabrot

Ákærði var sakfelldur fyrir þjófnað, fíkniefnalaga- og umferðarlagabrot og gert að sæta fangelsi í 90 daga, auk þess sem ævilöng svipting ökuréttar var áréttuð.

Héraðsdómur Reykjavíkur birt 6. mars 2024

S-611/2024

Lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu (Gunnhildur Anna Alfonsdóttir aðstoðarsaksóknari) gegn Bien Duc Pham
Málaflokkur: Fíkniefnamál

Ákærði var sakfelldur fyrir fíkniefnalagabrot og dæmdur í 90 daga fangelsi, skilorðsbundið í 2 ár. Jafnframt var honum gert að sæta upptöku á haldlögðum efnum og munum.

Héraðsdómur Reykjavíkur birt 14. febrúar 2024

S-158/2024

Lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu (Kamilla Kjerúlf saksóknarfulltrúi) gegn Róberti Þór Ólafssyni (Rebekka Ósk Gunnarsdóttir lögmaður)
Málaflokkur: Umferðarlagabrot

Ákærði var sakfelldur fyrir lögreglu-, fíkniefna- og umferðarlagabrot og gert að sæta fangelsi í 30 daga, hann sviptur ökurétti ævilangt og honum gert að sæta upptöku á haldlögðum efnum.

Héraðsdómur Reykjavíkur birt 31. janúar 2024

S-7051/2023

Lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu (Pétur Fannar Gíslason saksóknarfulltrúi) gegn Daníel Arnari Guðjónssyni
Málaflokkur: Auðgunarbrot

Ákærði var sakfelldur fyrir hegningarlaga- og fíkniefnalagabrot og gert að sæta fangelsi í 60 daga og gert að sæta upptöku á haldlögðum fíkniefnum.

Héraðsdómur Reykjavíkur birt 8. janúar 2024

S-4272/2023

Lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu (Kamilla Kjerúlf saksóknarfulltrúi) gegn Agli Má Kolbeinssyni (Þorgils Þorgilsson lögmaður)
Málaflokkur: Umferðarlagabrot

Ákærði var sakfelldur fyrir umferðarlaga- og fíkniefnalagabrot og gert að sæta fangelsi í 7 mánuði, auk þess sem áréttuð var ævilöng svipting ökuréttar.

Landsréttur birt 15. desember 2023

484/2022

Ákæruvaldið (Hulda María Stefánsdóttir saksóknari) gegn Steingrími Þór Ólafssyni (Jón Magnússon lögmaður, Magnús Jónsson lögmaður, 1. prófmál)
Málaflokkur: Fíkniefnamál

S var ákærður ásamt tveimur öðrum fyrir brot gegn lögum nr. 65/1974 um ávana- og fíkniefni með því að hafa staðið að framleiðslu á amfetamíni í sumarhúsi. Þá var S gefið að sök stórfellt fíkniefnalagabrot samkvæmt 173. gr. a almennra hegningarlaga nr. 19/1940 með því að hafa á heimili nafngreinds aðila haft í vörslum sínum í sölu- og dreifingarskyni 5.000 ml af vökva sem innihélt amfetamínbasa. Með dómi héraðsdóms var S fundinn sekur samkvæmt báðum ákæruliðum og gerð refsing, auk þess sem tilgreind fíkniefni og ýmis búnaður voru gerð upptæk, þar á meðal Rolex- armbandsúr sem talið var í eigu S. Á skaut málinu til Landsréttar í samræmi við yfirlýsingu S um áfrýjun. Með dómi Landsréttar var hafnað málatilbúnaði S um að meðferð málsins í héraði hafi farið gegn 6. gr. mannréttindasáttmála Evrópu og 70. gr. stjórnarskrárinnar. Þá var staðfest niðurstaða héraðsdóms um að nægileg sönnun væri komin fram um að S hefði ásamt öðrum staðið að framleiðslu á amfetamíni í sumarhúsi. Á hinn bóginn var ekki fallist á það með Á að S hafi haft í vörslum sínum vökva sem innihélt amfetamínbasa og var S því sýknaður af þeim sakargiftum. Við ákvörðun refsingar S var litið til þess að með broti sínu rauf hann skilorð tveggja ára og sex mánaða refsidóms og var honum gerð refsing með vísan til 60. og 77. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940. Var refsing S ákveðin fangelsi í þrjú ár en gæsluvarðhald sem hann hafði sætt vegna rannsóknar málsins og annars máls sem dæmt var með dómi héraðsdóms í apríl 2017 skyldi koma til frádráttar refsingunni. Loks voru ákvæði héraðsdóms um upptöku staðfest.

Hleð fleiri dómum…