Héraðsdómur Reykjavíkur
Dómur 27. maí 2026.
Mál nr. S-2224/2026:
Lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu
(Karen Lárusdóttir saksóknarfulltrúi)
gegn
Eggert Frey Rúnarssyni
(Guðmundur Ómar Hafsteinsson lögmaður)
Lykilorð
Akstur sviptur ökurétti. Akstur undir áhrifum ávana- og fíkniefna. Brot gegn lögreglulögum. Fangelsi. Fíkniefnalagabrot. Játningarmál. Svipting ökuréttar. Umferðarlagabrot. Vörslur.
Útdráttur
Ákærði var sakfelldur fyrir umferðar- og fíkniefnalagabrot og brot gegn lögreglulögum. Var honum gert að sæta fangelsi í 4 másnuði ásamt því að vera sviptur ökuréttindum ævilangt.
Dómur
Mál þetta, sem dómtekið var í dag, var höfðað með ákæru, útgefinni af lögreglustjóranum á höfuðborgarsvæðinu 30. apríl 2026, á hendur Eggert Frey Rúnarssyni, kt. […], […], Kópavogi, Fyrir umferðar- og fíkniefnalagabrot og brot gegn lögreglulögum með því að hafa, fimmtudaginn 7. ágúst 2025 ekið bifreiðinni […] sviptur ökurétti og óhæfur til að stjórna henni örugglega vegna áhrifa ávana- og fíkniefna (í blóðsýni mældist tetrahýdrókannabínól 2,1 ng/ml) um Elliðavatnsveg við Golfklúbb Odds í Garðabæ, þar sem lögregla stöðvaði aksturinn og með því að hafa hlaupið undan lögreglunni er lögreglan hafði afskipti af ákærða og ekki hlýtt fyrirmælum lögreglu um að stöðva för. Svo og með því að hafa haft í vörslum sínum 0,46 grömm af maríhúana sem lögreglumenn fundu við leit í bifreiðinni.
Telst háttsemi þessi varða við 1., sbr. 2. mgr. 50. gr. og 1. mgr. 58. gr., sbr. 1. mgr. 95. gr. umferðarlaga nr. 77/2019, 19. gr., sbr. 44. gr. lögreglulaga nr. 90/1996 og 2. gr. sbr. 5. og 6. gr. laga um ávana- og fíkniefni nr. 65/1974 og 2. gr., 14. gr., reglugerðar um ávana- og fíkniefni og önnur eftirlitsskyld efni nr. 233/2001, með síðari breytingum.
Þess er krafist að ákærði verði dæmdur til refsingar, til greiðslu alls sakarkostnaðar og til að sæta sviptingu ökuréttar skv. 99. gr. laga nr. 77/2019.
Jafnframt er krafist upptöku á 0,46 grömmum af maríhúana sem hald var lagt á samkvæmt 6. mgr. 5. gr. laga nr. 65/1974.
Farið var með mál þetta samkvæmt 164. gr. laga nr. 88/2008 um meðferð sakamála og var það tekið til dóms án frekari sönnunarfærslu þegar sækjanda og verjanda ákærða hafði verið gefinn kostur á að tjá sig um lagaatriði og ákvörðun viðurlaga.
Ákærði hefur skýlaust játað brot sín. Sannað er með játningu ákærða og öðrum gögnum málsins að ákærði er sekur um þá háttsemi sem honum er gefin að sök og eru brot hans rétt heimfærð til refsiákvæða í ákæru. Verjandi ákærða krefst vægustu refsingar sem lög leyfa og hæfilegrar málsvarnarþóknunar sér til handa.
Ákærði er fæddur í […]. Samkvæmt framlögðu sakavottorði, dagsettu 29. apríl 2026, gekkst ákærði undir greiðslu sektar og sviptingu ökuréttinda með sátt Lögreglustjórans á höfuðborgarsvæðinu 15. febrúar 2022, fyrir akstur undir áhrifum ávana- og fíkniefna. Þá gekkst ákærði undir viðurlagaákvörðun Héraðsdóms Reykjavíkur 5. apríl 2023, þar sem ákærða var gert að greiða fésekt og sæta sviptingu ökuréttinda fyrir akstur undir áhrifum ávana- og fíkniefna og akstur sviptur ökurétti. Með sátt Lögreglustjórans á höfuðborgarsvæðinu 31. ágúst 2023 gekkst ákærði undir greiðslu fésektar fyrir akstur sviptur ökurétti. Með dómi Héraðsdóms Reykjaness 7. febrúar 2024 var ákærða gert að greiða fésekt og sæta fangelsi í 30 daga auk þess að sæta sviptingu ökuréttinda fyrir akstur sviptur ökurétti og akstur undir áhrifum ávana- og fíkniefna. Dómurinn var hegningarauki við ofangreinda sátt Lögreglustjórans á höfuðborgarsvæðinu frá 31. ágúst 2023. Nú síðast var ákærða með dómi Héraðsdóms Reykjaness gert að sæta fangelsi í 60 daga og sæta sviptingu ökuréttar ævilangt, meðal annars fyrir akstur undir áhrifum ávana- og fíkniefna.
Við ákvörðun refsingar í máli þessu verður því lagt til grundvallar að ákærði hafi nú í fimmta sinn, eftir að hann varð fullra 18 ára og innan ítrekunartíma í skilningi 71. gr. almennra hegningarlaga gerst sekur um akstur undir áhrifum ávana- og fíkniefna og í þriðja sinn gerst sekur um akstur sviptur ökurétti.
Undir meðferð málsins játaði ákærði brot sín skýlaust. Horfir það honum til málsbóta, sbr. 8. tölul. 1. mgr. 70. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940.
Með hliðsjón af framangreindu, sakarefni þessa máls, dómvenju og 77. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940 þykir refsing ákærða hæfilega ákveðin fangelsi í fjóra mánuði.
Með vísan til sakaferils ákærða þykir ekki efni til að skilorðsbinda refsinguna.
Með vísan til lagaákvæða í ákæru er ævilöng svipting ökuréttar ákærða áréttuð.
Með vísan til lagaákvæða í ákæru eru gerð upptæk 0,46 grömm af maríhúana.
Ákærði greiði málsvarnarþóknun skipaðs verjanda síns, Guðmundar Ómars Hafsteinssonar lögmanns, 176.700 krónur að meðtöldum virðisaukaskatti, og 103.136 krónur í annan sakarkostnað.
Af hálfu ákæruvaldsins flutti málið Elín Hrafnsdóttir aðstoðarsaksóknari.
Rut Hrafns Elvarsdóttir aðstoðarmaður dómara kveður upp dóm þennan.
Dómsorð:
Ákærði, Eggert Freyr Rúnarsson, sæti fangelsi í fjóra mánuði.
Áréttuð er ævilöng svipting ökuréttar ákærða.
Ákærði sæti upptöku á 0,46 grömmum af maríhúana.
Ákærði greiði málsvarnarþóknun skipaðs verjanda síns, Guðmundar Ómars Hafsteinssonar lögmanns, 176.700 krónur að meðtöldum virðisaukaskatti, og 103.136 krónur í annan sakarkostnað.
Rut Hrafns Elvarsdóttir