Héraðsdómur Reykjavíkur
Dómur 20. maí 2026.
Mál nr. S-2344/2026:
Lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu
(Baldvin Einarsson aðstoðarsaksóknari)
gegn
Emil Rafni Breiðfjörð Jónssyni
Lykilorð
Akstur undir áhrifum ávana- og fíkniefna. Fangelsi. Fíkniefnalagabrot. Játningarmál. Svipting ökuréttar. Umferðarlagabrot. Vörslur.
Útdráttur
Ákærði var sakfelldur fyrir umferðar- og fíkniefnilagabrot. Var honum gert að sæta fangelsi í 30 daga ásamt því að vera sviptur ökuréttindum ævilangt.
Dómur
Mál þetta, sem dómtekið var í dag, var höfðað með ákæru, útgefinni af lögreglustjóranum á höfuðborgarsvæðinu 5. maí 2026, á hendur Emil Rafni Breiðfjörð Jónssyni, kt. […], […], Reykjavík,
I.
fyrir umferðarlagabrot með því að hafa, fimmtudaginn 13. júní 2024, ekið bifreiðinni […] óhæfur til að stjórna henni örugglega vegna áhrifa ávana- og fíkniefna (í blóðsýni mældist tetrahýdrókannabínól 28 ng/ml) um Fiskislóð, Reykjavík, þar sem lögregla stöðvaði aksturinn.
Telst háttsemi þessi varða við 1., sbr. 2. mgr. 50. gr. og 1. mgr. 58. gr., sbr. 1. mgr. 95. gr. umferðarlaga nr. 77/2019.
II.
Fyrir umferðarlagabrot með því að hafa, á sama stað og tíma og vísað er til í ákærulið 1, ekið vörubifreiðinni […], um Fiskislóð í Reykjavík, á móts við verslun Krónunnar, án þess að nota ökumannskort í ökurita bifreiðarinnar við aksturinn.
Telst þetta varða við d. og j. lið 2. mgr. 54. gr. sbr. 1. mgr. 94. gr. umferðarlaga nr. 77/2019, með síðari breytingum, sbr. 3. mgr. 29. gr. reglugerðar nr. 605/2010.
III.
Fyrir fíkniefnalagabrot með því að hafa, á sama stað og tíma og vísað er til í ákærulið 1, haft í vörslum sínum 1,61 g af maríhúana, sem lögreglan fann við leit í bakpoka ákærða sem var í bifreiðinni […].
Telst þetta varða við 2. gr. sbr. 5. og 6. gr. laga um ávana- og fíkniefni nr. 65/1974 og 2. gr. sbr. 1. mgr. 14. gr. reglugerðar nr. 233/2001 um ávana- og fíkniefni og önnur eftirlitsskyld efni, með síðari breytingum.
Þess er krafist að ákærði verði dæmdur til refsingar, til greiðslu alls sakarkostnaðar og til að sæta sviptingu ökuréttar skv. 99. gr. og 101. gr. laga nr. 77/2019. Þá er krafist upptöku á framangreindum 1,61 g af maríhúana sem hald var lagt á samkvæmt 6. mgr. 5. gr. laga nr. 65/1974 og 2. mgr. 14. gr. reglugerðar nr. 233/2001, með síðari breytingum.
Við þingfestingu málsins upplýsti ákæruvaldið að það félli frá heimfærslu til 1. mgr. 58. gr. umferðarlaga nr. 77/2019 í I. ákærulið.
Farið var með mál þetta samkvæmt 164. gr. laga nr. 88/2008 um meðferð sakamála og var það tekið til dóms án frekari sönnunarfærslu þegar sækjanda og ákærða hafði verið gefinn kostur á að tjá sig um lagaatriði og ákvörðun viðurlaga.
Ákærði hefur skýlaust játað brot sín. Sannað er með játningu ákærða og öðrum gögnum málsins að ákærði er sekur um þá háttsemi sem honum er gefin að sök og eru brot hans rétt heimfærð til refsiákvæða í ákæru líkt og hún er eftir breytingu. Ákærði krefst vægustu refsingar sem lög leyfa.
Ákærði er fæddur í […]. Samkvæmt framlögðu sakavottorði, dagsettu 29. apríl 2026, gekkst ákærði undir greiðslu fésektar og að sæta sviptingu ökuréttinda með sátt Lögreglustjórans á höfuðborgarsvæðinu 21. júlí 2020 fyrir akstur undir áhrifum áfengis. Með sátt Lögreglustjórans á höfuðborgarsvæðinu 10. desember 2021 gekkst ákærði undir greiðslu fésektar og að sæta sviptingu ökuréttinda í 5 ár, meðal annars fyrir akstur undir áhrifum áfengis. Nú síðast gekkst ákærði undir greiðslu fésektar með sátt Lögreglustjórans á höfuðborgarsvæðinu 4. júlí 2023, meðal annars fyrir akstur sviptur ökurétti.
Við ákvörðun refsingar í máli þessu verður því lagt til grundvallar að ákærði hafi nú í þriðja sinn eftir að hann varð fullra 18 ára og innan ítrekunartíma í skilningi 71. gr. almennra hegningarlaga, gerst sekur um akstur undir áhrifum áfengis og/ ávana- og fíkniefna og í annað sinn gerst sekur um akstur sviptur ökurétti.
Undir meðferð málsins játaði ákærði brot sín skýlaust. Horfir það honum til málsbóta, sbr. 8. tölul. 1. mgr. 70. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940.
Með hliðsjón af framangreindu, sakarefni þessa máls, dómvenju og 77. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940 þykir refsing ákærða hæfilega ákveðin 30 daga fangelsi.
Með vísan til sakaferils ákærða þykir ekki efni til að skilorðsbinda refsinguna.
Með vísan til lagaákvæða í ákæru er ákærði sviptur ökurétti ævilangt frá uppkvaðningu dómsins að telja.
Þá er með vísan til lagaákvæða í ákæru gerð upptæk 1, 61 g af maríhúana.
Ákærði greiði 103.710 krónur í sakarkostnað.
Af hálfu ákæruvaldsins flutti málið Eva Lind Ingadóttir saksóknarfulltrúi.
Rut Hrafns Elvarsdóttir aðstoðarmaður dómara kveður upp dóm þennan.
Dómsorð:
Ákærði, Emil Rafn Breiðfjörð Jónsson, sæti fangelsi í 30 daga.
Ákærði er sviptur ökurétti ævilangt frá uppkvaðningu dómsins að telja.
Ákærði sæti upptöku á 1,61 g af maríhúana.
Ákærði greiði 103.710 krónur í sakarkostnað.
Rut Hrafns Elvarsdóttir