Fara í efni

Dómstólaleit

Leit í dómum íslenskra dómstóla

Leita í öllum dómstólum...

Niðurstöður

147 dómar fundust

Lykilorð: Eignaupptaka

Héraðsdómur Vesturlands birt 10. október 2025

S-146/2025

Lögreglustjórinn á Vesturlandi (Jón Haukur Hauksson aðstoðarsaksóknari) gegn X (Elimar Hauksson lögmaður)
Lykilorð: Eignaupptaka. Líkamsárás.
Málaflokkur: Ofbeldisbrot

Stúlka sakfelld fyrir tvær líkamsárásir og eignaupptöku. 30 daga fangelsi skilorðsbundið í tvö ár.

Héraðsdómur Reykjavíkur birt 24. júní 2025

S-969/2025

Lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu (Kamilla Kjerúlf aðstoðarsaksóknari) gegn Davíð Þór Rúnarssyni (Orri Sigurðsson lögmaður)
Málaflokkur: Umferðarlagabrot

Ákærði var dæmdur í 90 daga fangelsi vegna ítrekaðs ölvunaraksturs. Hins vegar var ekki fallist á kröfu um upptöku bifreiðar þar sem talið var sýnt fram á að verulegur vafi léki á því að hann væri eigandi hennar.

Héraðsdómur Norðurlands eystra birt 21. júní 2024

S-168/2024

Ákæruvaldið (Eyþór Þorbergsson aðstoðarsaksóknari) gegn Antoni Þór Arnarssyni (Guðmundur St. Ragnarsson lögmaður) og X (Friðrik Smárason lögmaður)
Málaflokkur: Fíkniefnamál

Ákærðu sakfelldir fyrir vörslur ávana- og fíkniefna og dæmdir til að sæta upptöku haldlagðra efna. Ákærði Anton einnig sakfelldur fyrir sölu ávana- og fíkniefna og peningaþvætti, Ákærði Anton var auk þess dæmdur til að sæta upptöku á haldlögðum ávinningi.

Héraðsdómur Norðurlands eystra birt 13. júní 2024

S-113/2024

Ákæruvaldið (Agnes Björk Blöndal aðstoðarsaksóknari) gegn Helga Rafni Helgasyni (Jón Stefán Hjaltalín Einarsson lögmaður)
Málaflokkur: Ofbeldisbrot

Ákærði sakfelldur fyrir kynferðisbrot með því að hafa aflað sér og haft í sínum vörslum efni sem sýndi börn á kynferðislegan og klámfenginn hátt, auk brots gegn vopnalögum. Dæmdur í fimmtán mánaða fangelsi skilorðsbundið til þriggja ára og til upptöku á haldlögðum munum.

Héraðsdómur Reykjaness birt 23. maí 2024

S-501/2024

Ákæruvaldið (Ásmundur Jónsson aðstoðarsaksóknari) gegn Michael Magnússyni (Elías Kristjánsson lögmaður)
Málaflokkur: Umferðarlagabrot

Ákærða var gerð skilorðsbundin fangelsisrefsing fyrir fíkniefnalagabrot, auk þess sem hann þurfti að þola eignaupptöku. Honum var einnig gerð sekt og ökuréttarsvipting fyrir umferðarlagabrot. Játningarmál.

Héraðsdómur Reykjaness birt 2. apríl 2024

S-282/2024

Ákæruvaldið (Kamilla Kjerúlf saksóknarfulltrúi) gegn Páli Þór Rúnarssyni
Málaflokkur: Umferðarlagabrot

Ákærða var gerð sekt fyrir umferðar- og fíkniefnalagabrot. Hann var einnig sviptur ökurétti tímabundið og þurfti hann að þola upptöku fíkniefna. Útivistarmál.

Héraðsdómur Reykjaness birt 13. mars 2024

S-614/2024

Ákæruvaldið (Ásmundur Jónsson aðstoðarsaksóknari) gegn Shaun Alan McCartney (Eva Dóra Kolbrúnardóttir lögmaður)
Málaflokkur: Önnur sakamál

Ákærða var gerð fangelsisrefsing sem var að hluta skilorðsbundin fyrir að hafa staðið að innflutningi á 9.900 g af maríhúana

Héraðsdómur Reykjavíkur birt 6. desember 2023

S-6744/2023

Lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu (Agnes Ýr Stefánsdóttir saksóknarfulltrúi) gegn Marcin Pawel Zielinski
Málaflokkur: Umferðarlagabrot

Dómfellda var gert að sæta fangelsí í 6 mánuði og upptöku bifreiðar fyrir ítrekuð umferðarlagabrot.

Héraðsdómur Reykjaness birt 21. nóvember 2023

S-3003/2023

Málið nr. S-3003/2023 Ákæruvaldið (Alda Hrönn Jóhannsdóttir aðstoðarsaksóknari) gegn Zayyane Hichame (Gísli M. Auðbergsson lögmaður)
Málaflokkur: Fíkniefnamál

Ákærði var sakfelldur fyrir innflutning á ríflega 800 gömmum af sterku kókaíni og tæplega 500 grömmum af hassi, ætluðu til söludreifingar hér á landi og dæmdur í 17 mánaða fangelsi.

Héraðsdómur Reykjaness birt 11. október 2023

S-1614/2023

Ákæruvaldið (Elín Hrafnsdóttir aðstoðarsaksóknari) gegn Sigurði Smára Ólafssyni (Snorri Sturluson lögmaður)
Málaflokkur: Fíkniefnamál

Ákærða var gerð fangelsisrefsing fyrir vörslur vopna og vörslur ávana-fíkniefna og lyfja í sölu- og dreifingarskyni. Vegna tafa á málsmeðferð var refsingin skilorðsbundin í heild. Ákærði þurfti að þola eignaupptöku og var gert að greiða sakarkostnað.

Héraðsdómur Norðurlands eystra birt 10. október 2022

S-481/2021

Lögreglustjórinn á Norðurlandi eystra (Agnes Björk Blöndal saksóknarfulltrúi) gegn Árni Logi Sigurbjörnsson (Ingólfur Vignir Guðmundsson lögmaður)
Málaflokkur: Ofbeldisbrot

Ákærði sakfelldur fyrir stórfellt vopnalagabrot, m.a. með því að tryggja ekki á fullnægjandi hátt viðeigandi og áskilda geymslu mikils fjölda vopna, vopnahluta og skotfæra í hans eigu. Ákærða gert að sæta 10 mánaða skilorðsbundnu fangelsi. Kröfu um upptöku vopnanna hafnað, þar sem lagaheimild skorti.

Héraðsdómur Reykjavíkur birt 29. apríl 2022

S-2857/2020

Ákæruvaldið (Finnur Þór Vilhjálmsson saksóknari) gegn Rosio Bertu Calvi Lozano (Sigurður G. Guðjónsson lögmaður)
Málaflokkur: Auðgunarbrot

Sakfellt fyrir umboðssvik en sýknað af ákæru varðandi meintan fjárdrátt/umboðssvik, misneytingu og gripdeild. Sakartæming gagnvart peningaþvætti. Skilorðsbundin refsing, fjármunir gerðir upptækir og fallist á skaðabótakröfur. Sakarkostnaður að hluta felldur á ríkissjóð.

Héraðsdómur Norðurlands eystra birt 6. apríl 2022

S-448/2020

Ákæruvaldið (Fanney Björk Frostadóttir aðstoðarsaksóknari) gegn Elmari Þór Sveinarssyni (Guðmundur St. Ragnarsson lögmaður), Ara Rúnarssyni, X (Vilhjálmur Hans Vilhjálmsson lögmaður), Hákoni Geirfinnssyni (Sigmundur Guðmundsson lögmaður), Z (Friðrik Smárason lögmaður), Þórði Má Sigurjónssyni (Stefán Karl Kristjánsson lögmaður) og og Aroni Vigni Erlendssyni (Þorgils Þorgilsson lögmaður) (Gísli M. Auðbergsson réttargæslumaður brotaþola)
Málaflokkur: Ofbeldisbrot

Ákærðu sakfelld fyrir ýmis brot samkvæmt fimm ákærum, þ. á m. tvær frelsissviptingar, stórfellda líkamsárás, rán, hótanir, ólögmæta nauðung, fjársvik, brot á vopnalögum, fíkniefnalögum og áfengislögum. Tvö hinna ákærðu voru sýknuð. Hin sakfelldu voru dæmd til fangelsisvistar frá einu og upp í fjögur ár. Þá var ákærðu gert að greiða brotaþola miskabætur að fjárhæð 3.500.000 krónur og öðrum brotaþola 1.750.000 krónur. Loks var ákærðu gert að greiða þriðja brotaþola 3.716.454 krónur í skaðabætur.

Héraðsdómur Suðurlands birt 27. maí 2021

S-41/2021

Lögreglustjórinn á Suðurlandi (Margrét Harpa Garðarsdóttir fulltrúi) gegn X (Ingi Freyr Ágústsson lögmaður)
Málaflokkur: Umferðarlagabrot

Ákærði var fundinn sekur um fjársvik, þjófnað og ítrekaðan akstur án þess að hafa öðlast ökuréttindi auk annarra umferðarlagabrota. Var honum gert að sæta fangelsi í þrjá mánuði, auk sektar. Þá var hann sviptur ökurétti sem og réttinum til að öðlast ökuskírteini. Auk þess voru gerðar upptækar þrjár bifreiðar í eigu ákærða.

Héraðsdómur Suðurlands birt 26. maí 2021

S-163/2021

Lögreglustjórinn á Suðurlandi (Ólafur Hallgrímsson fulltrúi) gegn Indriða Ingimundarsyni (enginn)
Málaflokkur: Umferðarlagabrot

Ákærði var fundinn sekur um margítrekaðan akstur undir áhrifum áfengis sem og fíkniefna, akstur sviptur ökurétti og fíkniefnalagabrot. Var ákærði dæmdur til að sæta fangelsi í sex mánuði og áréttuð ævilöng svipting ökuréttar hans. Ennfremur var gerð upptæk bifreið í eigu ákærða, sem og fíkniefni.

Héraðsdómur Reykjavíkur birt 10. maí 2021

S-8467/2020

Ákæruvaldið (Sigrún Inga Guðnadóttir aðstoðarsaksóknari) gegn Ólafi Inga Kristjánssyni (Stefán Karl Kristjánsson lögmaður)
Málaflokkur: Umferðarlagabrot

Sakfellt fyrir þjófnað, nytjastuld, umferðar-, fíkniefna- og vopnalagabrot.

Hleð fleiri dómum…