Héraðsdómur Reykjaness
Dómur 12. desember 2023.
Mál nr. S-3222/2023:
Ákæruvaldið
(Ásmundur Jónsson aðstoðarsaksóknari)
gegn
Oscar Campos Roca
(Guðmundur Njáll Guðmundsson lögmaður)
Lykilorð
Eignaupptaka. Fangelsi. Hegningarlagabrot. Játningarmál.
Útdráttur
Ákærðu var dæmdur til þriggja ára fangelsisvistar fyrir innflutning á rúmum 2 kílóum af kókaíni
Dómur
Mál þetta, sem dómtekið var í dag, höfðaði Lögreglustjórinn á Suðurnesjum með ákæru útgefinni 30. nóvember 2023, á hendur Oscar Campos Roca, f.d. […], ríkisborgara […]; „fyrir stórfellt fíkniefnalagabrot, með því að hafa laugardaginn 14. október 2023, staðið að innflutningi á samtals 2.279,73 g af kókaíni, með styrkleika 61-77%, ætluðu til söludreifingar hér á landi í ágóðaskyni en fíkniefnin flutti ákærði til Íslands sem farþegi með flugi […], frá […] á […] til […], falin í farangurstösku.
Telst brot þetta varða við 173. gr. a. almennra hegningarlaga nr. 19/1940.
Þess er krafist að ákærði verði dæmdur til refsingar og til greiðslu alls sakarkostnaðar.
Krafist er upptöku á samtals 2.279,73 g af kókaíni með vísan til 6. mgr. 5. gr. laga um ávana- og fíkniefni nr. 65/1974 og 2. mgr. 14. gr. reglugerðar nr. 233/2001.“
Ákærði mætti við þingfestingu málsins 12. desember 2023, játaði brot sitt án undandráttar og samþykkti upptökukröfu. Var því farið með mál þetta samkvæmt 164. gr. laga nr. 88/2008 um meðferð sakamála og var það tekið til dóms án frekari sönnunarfærslu er sækjanda og verjanda ákærða hafði verið gefinn kostur á að tjá sig um lagaatriði máls og ákvörðun viðurlaga.
Ákærði krefst þess í málinu að honum verði gerð sú vægasta refsing sem lög leyfa og að gæsluvarðhaldsvist ákærða verði dregin frá dæmdri refsingu að fullri dagatölu. Þá krefst verjandi hæfilegrar þóknunar sér til handa.
Með skýlausri játningu ákærða, sem fær stoð í framlögðum gögnum, þykir sannað að ákærði hafi gerst sekur um þá háttsemi sem honum er gefin að sök í ákæru og þar er réttilega heimfærð til refsiákvæða.
Ákærði er fæddur í árið […]. Sakavottorð ákærða sem er […] ríkisborgari liggur ekki frammi í málinu. Engra gagna nýtur um að ákærði hafi áður gerst sekur um refsiverða háttsemi.
Af rannsóknargögnum málsins verður ekki séð að ákærði hafi verið eigandi fíkniefnanna eða skipuleggjandi innflutningsins en hefur hann samþykkt að flytja efnin til landsins gegn greiðslu. Verður litið til þessara atriða við ákvörðun refsingar sem og skýlausrar játningar ákærða á rannsóknarstigi og fyrir dómi. Á hinn bóginn verður ekki fram hjá því litið að ákærði flutti talsvert magn af sterku fíkniefni til landsins, ætluðu til söludreifingar hér á landi í ágóðaskyni. Aðkoma hans er ómissandi liður í því ferli að koma efnunum í dreifingu hér á landi. Við ákvörðun refsingar er höfð hliðsjón af dómi Hæstaréttar Íslands í máli nr. 209/2017 sem kveðinn var upp 11. maí 2017. Frá uppkvaðningu hans hefur sú eina breyting orðið í þessum málaflokki að tíðni og alvarleiki brota af þessu tagi hefur aukist. Að öllu framangreindu virtu þykir refsing ákærðu hæfilega ákveðin fangelsi í 3 ár. Til frádráttar þeirri refsingu komi gæsluvarðhald sem ákærði hefur sætt frá 14. október 2023 að fullri dagatölu, sbr. 76. gr. almennra hegningarlaga.
Þá sæti ákærði upptöku fíkniefna sem haldlögð voru af lögreglu við rannsókn málsins líkt og nánar greinir í dómsorði.
Samkvæmt 1. mgr. 235. gr. laga nr. 88/2008 ber að dæma ákærða til að greiða allan sakarkostnað, sem einskorðast við þóknun skipaðs verjanda ákærða á rannsóknarstigi og fyrir dómi, Guðmundar Njáls Guðmundssonar lögmanns sem þykir hæfilega ákveðin með hliðsjón af eðli og umfangi málsins og tímaskýrslu lögmannsins 1.032.322 krónur að meðtöldum virðisaukaskatti.
Af hálfu ákæruvaldsins fór Ásmundur Jónsson aðstoðarsaksóknari með málið.
Hrefna Björk Rafnsdóttir, aðstoðarmaður dómara, kveður upp dóm þennan.
DÓMSORÐ:
Ákærði, Oscar Campos Roca, sæti fangelsi í 3 ár. Til frádráttar þeirri refsingu komi gæsluvarðhald ákærða frá 14. október 2023 að fullri dagatölu.
Ákærði sæti upptöku á 2.279,73 g af kókaíni.
Ákærði greiði 1.032.322 króna þóknun skipaðs verjanda síns, Guðmundar Njáls Guðmundssonar lögmanns.
Hrefna Björk Rafnsdóttir