Fara í efni

Dómstólaleit

Leit í dómum íslenskra dómstóla

Héraðsdómur Reykjaness

Mál nr. S-335/2024:

Ákæruvaldið

(Ásmundur Jónsson aðstoðarsaksóknari)

gegn

Mustafa Rada

(Halldóra Aðalsteinsdóttir lögmaður)

Eignaupptaka. Fangelsi. Fíkniefnalagabrot. Játningarmál.

Ákærða var gerð fangelsisrefsing fyrir innflutning fíkniefna.

Dómur

Mál þetta, sem dómtekið var í dag, höfðaði Lögreglustjórinn á Suðurnesjum með ákæru útgefinni 7. febrúar 2024, á hendur Mustafa Rada, fæðingadagur: […], ríkisborgara […]; „fyrir stórfellt fíkniefnalagabrot, með því að hafa fimmtudaginn 7. desember 2023, staðið að innflutningi á samtals 2.039,96 g af kókaíni, með styrkleika 61-63%, ætluðu til söludreifingar hér á landi í ágóðaskyni en fíkniefnin flutti ákærði til Íslands sem farþegi með flugi […], frá Brussel, Belgíu, til Keflavíkurflugvallar, falin í farangurstösku.

Telst brot þetta varða við 173. gr. a. almennra hegningarlaga nr. 19/1940.

Þess er krafist að ákærði verði dæmdur til refsingar og til greiðslu alls sakarkostnaðar.

Krafist er upptöku á samtals 2.039,96 g af kókaíni með vísan til 6. mgr. 5. gr. laga um ávana- og fíkniefni nr. 65/1974 og 2. mgr. 14. gr. reglugerðar nr. 233/2001.“

Ákærði mætti við þingfestingu málsins í dag, játaði brot sitt án undandráttar og samþykkti upptökukröfu. Var því farið með mál þetta samkvæmt 164. gr. laga nr. 88/2008 um meðferð sakamála og var það tekið til dóms án frekari sönnunarfærslu er sækjanda og verjanda ákærða hafði verið gefinn kostur á að tjá sig um lagaatriði máls og ákvörðun viðurlaga.

Ákærði krefst þess í málinu að honum verði gerð sú vægasta refsing sem lög leyfa og að gæsluvarðhaldsvist ákærða verði dregin frá dæmdri refsingu að fullri dagatölu. Þá krefst verjandi hæfilegrar þóknunar sér til handa.

Með skýlausri játningu ákærða, sem fær stoð í framlögðum gögnum, þykir sannað að ákærði hafi gerst sekur um þá háttsemi sem honum er gefin að sök í ákæru og þar er réttilega heimfærð til refsiákvæða.

Ákærði er fæddur í árið […]. Af rannsóknargögnum má leiða að ákærði hafi ekki gerst sekur um refsiverðan verknað áður. Af rannsóknargögnum málsins verður ekki séð að ákærði hafi verið eigandi fíkniefnanna eða skipuleggjandi innflutningsins en hefur hann samþykkt að flytja efnin til landsins gegn greiðslu. Verður litið til þessara atriða við ákvörðun refsingar sem og þeirrar samvinnu sem ákærði hefur sýnt, auk skýlausrar játningar ákærða á rannsóknarstigi og fyrir dómi. Jafnframt kom fram við meðferð málsins að hegðun ákærða í gæsluvarðhaldsvistinni hefði verið góð. Á hinn bóginn verður ekki fram hjá því litið að ákærði flutti talsvert magn af sterku fíkniefni til landsins, ætluðu til söludreifingar hér á landi í ágóðaskyni. Aðkoma hans er ómissandi liður í því ferli að koma efnunum í dreifingu hér á landi. Við ákvörðun refsingar er höfð hliðsjón af dómi Hæstaréttar Íslands í máli nr. 209/2017 sem kveðinn var upp 11. maí 2017. Að öllu framangreindu virtu þykir refsing ákærða hæfilega ákveðin fangelsi í 2 ár og 8 mánuði. Til frádráttar þeirri refsingu komi gæsluvarðhald sem ákærði hefur sætt frá 8. desember 2023 að fullri dagatölu, sbr. 76. gr. almennra hegningarlaga.

Þá sæti ákærði upptöku fíkniefna sem haldlögð voru af lögreglu við rannsókn málsins líkt og nánar greinir í dómsorði.

Samkvæmt 1. mgr. 235. gr. laga nr. 88/2008 ber að dæma ákærða til að greiða allan sakarkostnað, alls 2.029.471 krónur. Um er að ræða kostnað vegna magngreiningar og matsgerðar rannsóknarstofu Háskóla Íslands auk þóknunar skipaðs verjanda ákærða á rannsóknarstigi og fyrir dómi, Halldóru Aðalsteinsdóttur lögmanns sem þykir hæfilega ákveðin með hliðsjón af eðli og umfangi málsins og tímaskýrslu lögmannsins 1.563.640 krónur að meðtöldum virðisaukaskatti og 116.312 krónur í aksturskostnað lögmannsins.

Af hálfu ákæruvaldsins fór Ásmundur Jónsson aðstoðarsaksóknari með málið.

Hrefna Björk Rafnsdóttir, aðstoðarmaður dómara, kveður upp dóm þennan.

DÓMSORÐ:

Ákærði, Mustafa Rada, sæti fangelsi í 2 ár og 8 mánuði. Til frádráttar þeirri refsingu kemur gæsluvarðhald ákærða frá 8. desember 2023 að fullri dagatölu.

Ákærði sæti upptöku á 2.039,96 g af kókaíni.

Ákærði greiði 2.029.471 krónur í sakarkostnað, þar með talda 1.563.640 króna þóknun skipaðs verjanda síns, Halldóru Aðalsteinsdóttur lögmanns og 116.312 krónur í aksturskostnað lögmannsins.

Hrefna Björk Rafnsdóttir

Heimildaskrá

Dómaskrá