Fara í efni

Dómstólaleit

Leit í dómum íslenskra dómstóla

Héraðsdómur Reykjavíkur

Mál nr. S-750/2026:

Héraðssaksóknari

(Sigurður Ólafsson saksóknari)

gegn

Árna Khanh Minh Dao,

(Friðrik Smárason lögmaður)

Daníel Ramadhan Sigurgeirssyni,

(Sveinn Andri Sveinsson lögmaður)

Davíð Viet Quoc Davíðssyni og

(Vilhjálmur Hans Vilhjálmsson lögmaður)

John Minh Tuan Dang

(Snorri Sturluson lögmaður)

Ákæra. Fíkniefnalagabrot. Frávísunarkröfu hafnað. Refsiákvörðun. Skilorðsbundnir dómar. Skipulögð glæpastarfsemi.

Fjórir menn sakfelldir fyrir skipulagða brotastarfsemi og stórfellt fíkniefnalagabrot með því að hafa í ótilgreindan tíma selt óþekkt magn af fíkniefnum af tilteknum tegundum og fyrir að hafa haft þær tegundir fíkniefna í vörslum sínum við handtöku. Voru allir dæmdir til fangelsisvistar en fullnustu refsingar tveggja þeirra frestað skilorðsbundið að hluta. Frávísunarkröfum ákærðu, sem byggðu á því að ákæru málsins væri ábótavant, var hafnað.

Dómur

  1. Mál þetta, sem dómtekið var 14. apríl 2026, var höfðað með ákæru, útgefinni af héraðssaksóknara 5. febrúar 2026, á hendur Árna Khanh Minh Dao, kt. […], […], Daníel Ramadhan Sigurgeirssyni, kt. […], […], Davíð Viet Quoc Davíðssyni, kt.[…], […], John Minh Tuan Dang, kt. […], […], og X, fd. […], ríkisborgara […]: „I. Á hendur þeim Árna [Khanh], Daníel, Davíð Viet og John [Minh Tuan] fyrir skipulagða brotastarfsemi og stórfellt fíkniefnalagabrot, sem ákærðu sammæltust um að fremja, með því að hafa í félagi í ótilgreindan tíma og fram til 22. júlí 2024, útvegað, tekið á móti, varðveitt, pakkað, dreift og selt fíkniefni af óþekktu magni af eftirfarandi tegundum, og fyrir að hafa þann dag í sölu- og dreifingarskyni, í bifreiðinni […] og húsnæði í Reykjavík og Kópavogi að A, B, C, D, E og F sem voru á vegum ákærðu, haft í vörslum sínum samtals 212,76 g af amfetamíni, 1,5 ml af amfetamínvökva, 119,14 g af hassi, 164,26 g af ketamíni, 15.918,27 g af maríhúana, 1.454,15 ml af kannabisblönduðum vökva, 8,26 g af kókaíni, 61,44 g af MDMA kristöllum, 77 stk. af MDMA töflum, 122 stk. af súkkulaði er innihélt kannabisefni (samtals 6.980,24 g), 468 stk. af brjóstsykri sem innihéldu kannabisefni (samtals 1.472,96 g), 70,84 g af brjóstsykursmulning er innihélt kannabisefni, 12 stk. gúmmíbangsa er innihéldu kannabisefni (samtals 20,33 g), 77,51 g af [brjóstsykri] og gúmmíböngsum föstum saman er innihéldu kannabisefni, 239 stk. af lyfjahylkjum með kannabisefni (samtals 67,33 g), 1,92 g af MDMA, 124 stk. af LSD skömmtum, 9,71 g af metamfetamínkristöllum, 25,01 g af kannabisblönduðu óþekktu brúnu efni, 50 stk. af 5 mg Stesolid töflum (virkt efni Diazepam), 124,51 g af óþekktum sveppum og 90 stykki af óþekktum töflum, allt sem lögregla fann við leit og lagði hald á. Telst þetta varða við 173. gr. a og 1. mgr. 175. gr. a almennra hegningarlaga nr. 19/1940.

II.

Á hendur X, fyrir stórfellt fíkniefnalagabrot, með því að hafa sunnudaginn 7. júlí 2024 staðið að innflutningi á 10.684,43 g og allt að 20.000 g af maríhúana ætluðu til söludreifingar hér á landi í ágóðaskyni en fíkniefnin voru flutt hingað til lands falin í fjórum ferðatöskum sem ákærði bar úr komusal farþega á Keflavíkurflugvelli og, eftir að hann kom út af flugvellinum, afhenti meðákærðu Árna og Davíð Viet töskurnar sem síðan komu fíkniefnunum í geymslu að D í Kópavogi þar sem lögregla þann 22. júlí s.á. fann 10.684,43 g og lagði hald á, sbr. ákærulið nr. I. Telst þetta varða við 173. gr. a almennra hegningarlaga nr. 19/1940. Þess er krafist að ákærðu verði dæmdir til refsingar og til greiðslu alls sakarkostnaðar. Jafnframt er krafist upptöku á framangreindum fíkniefnum auk 1.523.500 króna, 108 dollara, 9.710 evra, 27.490 [víetnamskra] Dong (VND), Iphone 14 pro Max, tveggja límmiðaarka, límmiðavél[ar], Brother prentara, pökkunarvél[ar] fyrir lofttæmdar umbúðir, dagbók[ar] með skuldalista, Iphone 15 pro max, Iphone pro max, Iphone 13, einnota sprautu, smelluláspoka, svartr[ar] grammavog[ar], [mulningsáhalds] (e. grinder), límmið[a] merktum Kannabis Inc, álfötu með kannabisle[i]fum, bók[ar] með skuldalista og heildsölum, suðutæki[s] fyrir kannabisvökva, lykl[a], límmið[a] með mynd af kannabisefni, smelluláspok[a] merkt[um] Caliberfarms, umbúð[a] utan um rafsígarettur, hólk[a] utan um kannabisvindlinga, [þriggja blandara] með kannabisle[i]fum, [tveggja kassa] af hylkjum, kassa til að vefja kannabisvindlinga, kassa með stórum pokum merktum Caliberfarms, CN fartölvu, umbúð[a] utan um kannabisvindlinga, vél[ar] til að vefja kannabisvindlinga, vél[ar] til að innsigla, peningaskáp[s], límmið[a] utan um fíkniefni, [fjögurra] ferða[taska], öryggismyndavélakerfi[s] og Canon ljósmyndavél[ar], sbr. 6. mgr. 5. gr. laga um ávana- og fíkniefni nr. 65/1974 og 1. mgr. 69. gr. a og 1. mgr. 69. gr. b almennra hegningarlaga nr. 19/1940.“

  1. Ákærði Árni Khanh Minh Dao gerir þær kröfur aðallega að málinu verði vísað frá dómi í heild eða að hluta til. Til vara er þess krafist að ákærði verði sýknaður af öllum sakargiftum samkvæmt ákæru. Til þrautavara er krafist vægustu refsingar sem lög framast leyfa og að gæsluvarðhaldsvist ákærða frá 24.–31. júlí 2024 komi til frádráttar dæmdri refsingu. Kröfu ákæruvaldsins um upptöku á iPhone Pro Max síma er mótmælt. Þá krefst verjandi ákærða hæfilegra málsvarnarlauna að mati dómsins sem greiðist úr ríkissjóði.
  2. Ákærði Daníel Ramadhan Sigurgeirsson gerir þær kröfur aðallega að ákæru málsins verði vísað frá dómi í heild eða að hluta, til vara að ákærða verði gerð vægasta refsing sem lög framast leyfa og að gæsluvarðhaldsvist ákærða frá 23.–31. júlí 2024 komi til frádráttar dæmdri refsingu. Byggir varakrafan meðal annars á þeim forsendum að ákærði verði aðeins sakfelldur vegna þeirrar háttsemi sem hann hefur gengist við fyrir dómi en sýknaður að öðru leyti. Þá krefst verjandi ákærða hæfilegra málsvarnarlauna að mati dómsins sem greiðist úr ríkissjóði.
  3. Ákærði Davíð Viet Quoc Davíðsson gerir þær kröfur aðallega að ákæru málsins verði vísað frá dómi í heild sinni, en til vara að ákærunni verði vísað frá að hluta. Til þrautavara krefst hann vægustu refsingar sem lög framast leyfa og að gæsluvarðhaldsvist ákærða frá 23.–31. júlí 2024 komi til frádráttar dæmdri refsingu. Byggir krafan meðal annars á þeim forsendum að ákærði verði aðeins sakfelldur vegna þeirrar háttsemi sem hann hefur gengist við fyrir dómi en sýknaður að öðru leyti. Loks krefst verjandi ákærða hæfilegra málsvarnarlauna að mati dómsins sem greiðist úr ríkissjóði.
  4. Ákærði John Minh Tuan Dang gerir þær kröfur aðallega að málinu verði vísað frá dómi í heild eða að hluta til. Til vara er þess krafist að ákærði verði dæmdur til vægustu refsingar sem lög framast leyfa og að gæsluvarðhaldsvist ákærða frá 23.–31. júlí 2024 komi til frádráttar dæmdri refsingu. Byggir sú krafa meðal annars á þeim forsendum að ákærði verði aðeins sakfelldur vegna þeirrar háttsemi sem hann hefur gengist við en sýknaður að öðru leyti. Þá krefst verjandi ákærða hæfilegra málsvarnarlauna að mati dómsins sem greiðist úr ríkissjóði.
  5. Dómari tók þá ákvörðun í þinghaldi 7. apríl 2026, með vísan til 2. mgr. 169. gr. laga nr. 88/2008 um meðferð sakamála, að skilja málið í sundur og dæma þátt ákærða X sérstaklega, en broti hans er lýst í ákærulið II í ákæru, þar sem ekki tókst að birta fyrirkall og ákæru fyrir ákærða. Sætti það ekki andmælum af hálfu sækjanda eða verjenda annarra ákærðu. Fékk mál ákærða X nýtt málanúmer […] og verður hér eftir rekið undir því númeri og dæmt sérstaklega. Eftir stendur hins vegar ákæruliður I, en ákærðu Árni Khanh, Daníel, Davíð Viet og John Minh Tuan eru allir ákærðir fyrir þau brot sem þar eru lýst.

I

Málsatvik

  1. Upphaf málsins má rekja til þess að lögregla komst á snoðir um auglýsingu á samskiptaforritinu Telegram, nánar tiltekið á rásinni (e. Channel) Cannabiz Inc. Bar auglýsingin yfirskriftina Lager hreinsun Cannabiz Inc., en samkvæmt henni bauðst kaupendum að kaupa ákveðið magn tiltekinna fíkniefna fyrir tilgreint verð. Afhending efnanna væri frí. Voru þrjú símanúmer sömuleiðis tilgreind í auglýsingunni. Lögregla hafði þann 22. júlí 2024 samband við eitt þeirra símanúmera sem tilgreint var og óskaði eftir kaupum á 5 g af grasi og 5 g af amfetamíni. Var það gert á grundvelli reglugerðar nr. 516/2011 um sérstakar aðferðir og aðgerðir lögreglu við rannsókn sakamála. Stuttu síðar fékk lögregla skilaboð úr öðru símanúmeri, sem einnig var tilgreint í auglýsingunni, um að hittast við […] í Reykjavík.
  2. Er lögregla kom á þann stað sem gefinn hafði verið upp í nefndum skilaboðum hitti hún þar fyrir mann sem reyndist vera ákærði John Minh Tuan Dang. Var hann handtekinn og leitað í bifreið sem hann var á, sem skráð var eign meðákærða Daníels Ramadhan Sigurgeirssonar. Við leit í bifreiðinni fundust töskur sem innihéldu fíkniefni af ýmsum gerðum, sem hafði ýmist verið pakkað í smelluláspoka, dunka merkta viðeigandi fíkniefni eða kannabis-rafrettukassa.
  3. Lögregla fékk að skoða farsíma ákærða John Minh Tuan á vettvangi. Fundust þar upplýsingar sem bentu til þess að hann væri meðlimur í söluhópi á samskiptaforritinu Signal, sem kallaði sig ABC og stofnaður hafði verið af ákærða Davíð Viet Quoc Davíðssyni undir aðgangsnafninu G. Meðlimir í þeim hópi voru Tommy, sem síðar kom í ljós að var ákærði John Minh Tuan, G, sem var sem fyrr segir ákærði Davíð Viet, D, sem síðar kom í ljós að var ákærði Daníel, KK, sem ákærðu segja að hafi verið ákærði Árni Khanh (en hann kannast sjálfur ekki við), og TEEMO – Cannabiz Inc., sem ákærði Davíð Viet segir að hafi verið hann sjálfur. Voru tiltekin símanúmer að baki hverju og einu aðgangsnafni. Ákærði Tommy, þ.e. ákærði John Minh Tuan, hafði það númer sem lögregla setti sig upphaflega í samband við en KK, þ.e. ákærði Árni Khanh, það númer sem lögregla fékk skilaboð frá með staðsetningu þess staðar þar sem afhenda átti fíkniefnin.
  4. Lögregla taldi sig sjá gögn í síma ákærða John Minh Tuan um samskipti um skipulagða fíkniefnasölu á spjallþræði ABC-hópsins. Í símanum fundust einnig myndir af margvíslegum fíkniefnum og upplýsingar um samskipti við viðskiptavini, upplýsingar um viðskipti, viðskiptavini, lánastöðu o.fl. Þá var þar einnig að finna skjal undir heitinu VIP Pricelist, sem virtist innihalda verðlista yfir margvísleg fíkniefni undir heitinu og skjal undir heitinu K Lager, sem virtist geyma lagartalningu vegna mismunandi fíkniefna.
  5. Í síma John Minh Tuan var enn fremur að finna upplýsingar sem bentu til þess að síminn tengdist A í Reykjavík, sem var heimili ákærða Davíðs Viet. Við það féll grunur á ákærða Davíð Viet. Lögregla hélt þangað og handtók Davíð Viet þar. Við húsleit í íbúðinni fundust fíkniefni, reiðufé (íslenskar krónur, dollarar og evrur), alls um 3.000.000 króna, og tvær peningatalningarvélar. Við skoðun á síma Davíðs Viet fundust meðal annars myndir af ætluðum fíkniefnum. Davíð Viet greindi lögreglu einnig frá því að hann væri með verkstæði að B í Reykjavík.
  6. Við leit á B, í iðnaðarbili merktu […], fundust margvísleg fíkniefni, áþekk þeim sem ákærði John Minh Tuan hafði verið tekinn með. Þótti lögreglu einnig eins og innsta herberginu í umræddu iðnaðarbili hefði verið breytt í aðstöðu til að pakka fíkniefnum. Var þar að finna umbúðir og pakkningar, meðal annars merktar Cannabiz Inc., svo og margs konar áhöld og tæki sem gátu tengst meðhöndlun með fíkniefni, peningatalningarvél, peningahólf, vigt og læstur öryggisskápur sem innihélt fíkniefni.
  7. Lögregla fann einnig bifreið innandyra að B, sem skráð var á ákærða Daníel, líkt og bifreiðin sem ákærði John Minh Tuan var á er hann var handtekinn. Lögreglan fór þá á heimili ákærða Daníels að C í Kópavogi. Mættu lögreglumenn þar manni í anddyri hússins, sem þeir þekktu ekki á þeirri stundu en reyndist vera ákærði X, sbr. ákærulið II. Var honum leyft að fara sína leið en ákærði Daníel handtekinn í íbúð sinni. Viðurkenndi hann að vera í nefndum söluhópi, ABC-hópnum, og að hann væri D í samskiptum innan hópsins. Þá kvaðst hann vera leigjandi húsnæðisins að B í Reykjavík. Við húsleit hjá Daníel fundust margvísleg fíkniefni, inni í íbúðinni og í skjalatösku á svölum íbúðarinnar, sem þóttu áþekk þeim sem fundist höfðu hjá ákærða John Minh Tuan og að B.
  8. Frá ákærða Daníel hélt lögreglan að D í Kópavogi þar sem grunur var um að ABC- hópurinn geymdi þar fíkniefni í geymslu sem ákærði Davíð Viet var með á leigu. Við leit þar fundust ætluð fíkniefni, meðal annars mikið magn af kannabisefnum í 22 lofttæmdum pakkningum.
  9. Við rannsókn málsins komu einnig í ljós fleiri ætlaðir geymslustaðir og fundust meðal annars fíkniefni í tveimur bílskúrum sem ákærði Davíð Viet hafði á leigu að E og að F í Reykjavík. Á E fundust einnig ýmis áhöld, smelluláspokar, límmiðar merktir Cannabiz Inc., bók með ætluðum skuldalista, heildsölum og fleira. Þá fundust þar einnig ferðatöskur, sem og í bifreið þar fyrir utan.
  10. Rannsókn málsins leiddi enn fremur í ljós að fyrrnefndur X, hafði komið til Íslands með flugi 7. júlí 2024, sbr. ákærulið II. Hafði hann meðferðis ferðatöskur, en í það minnsta hluti þeirra fannst sem fyrr segir við leit lögreglu að E í Reykjavík, sem ákærðu Davíð Viet og Daníel höfðu umráð yfir. Ákærðu Árni Khanh og Davíð Viet sóttu X til Keflavíkur við komu hans hingað til lands umræddan dag og var ákærði Árni Khanh samferða honum til Reykjavíkur í leigubifreið. Fóru þeir fyrst að E, þar sem þeir hittu ákærða Davíð Viet, en svo í C í Kópavogi, þar sem ákærði Daníel bjó. Vaknaði grunur um að X hefði haft meðferðis allt að 20 kg af maríhúana, sbr. ákærulið II, og að þau fíkniefni sem fundust við leit að D í Kópavogi, sbr. hér að framan, hafi verið hluti þeirra efna.
  11. Ákærðu voru allir handteknir og úrskurðaðir í gæsluvarðhald. Ákærðu Daníel, Davíð Viet og John Minh Tuan sátu í gæsluvarðhaldi á tímabilinu 23.–31. júlí 2024, en ákærði Árni Khanh á tímabilinu 24.–31. júlí 2024. Voru ákærðu allir yfirheyrðir ítrekað á meðan þeir sátu í gæsluvarðhaldi. Þeir gáfu sömuleiðis allir skýrslu við aðalmeðferð málsins fyrir dómi. Gerð verður grein fyrir framburðum þeirra hér á eftir, sem og framburðum vitna sem gáfu skýrslu fyrir dómi, að því marki sem framburðir þeirra þykja skipta máli varðandi úrlausn málsins.

II

Framburður ákærðu og vitna fyrir dómi

  1. Ákærði Árni Khanh Minh Dao neitaði því að hafa átt aðild að skipulagðri brotastarfsemi. Hann greindi frá því fyrir dómi að hann og meðákærðu Daníel, Davíð Viet og John Minh Tuan hefðu verið vinir. Hann kannaðist hins vegar hvorki við að hafa verið hluti af hópi sem seldi og dreifði fíkniefnum né við að hafa verið aðili að hópi sem nefndur var ABC á samskiptaforritinu Signal.
  2. Ákærði kannaðist aftur á móti við að hafa farið með öðrum ákærðu að B í Reykjavík til að gera við bíla og til að þvo bíla. Þá kannaðist ákærði við að hafa farið í geymslu að D í Kópavogi í eitt skipti, að beiðni meðákærða Davíðs Viet, sem hafi beðið hann um að fara með hluti í geymsluna. Ákærði kvaðst þó ekki muna hvaða dót það hafi verið en það hafi verið flutt frá B. Ákærði mundi ekki til að hafa farið síðar í geymsluna.
  3. Ákærði Árni Khanh kvaðst hafa farið með meðákærða Davíð Viet til Keflavíkur 7. júlí 2024 þar sem hann hafi þurft að sækja mann þangað. Davíð Viet hafi ekki verið með ökuskírteini á sér og því beðið ákærða um að skutla sér. Davíð Viet hafi hins vegar sjálfur keyrt heim. Ákærði kvaðst hafa þurft að koma sér heim og því farið með manninum sem þeir hafi verið að taka á móti til baka í leigubifreið. Frá Keflavík hafi þeir haldið í geymslu, sem ákærði kvaðst ekki muna hvar hefði verið, en geymslan hafi verið í bílskúr rétt hjá Skeifunni, þ.e. í hverfi 108.
  4. Ákærði sagði að Davíð Viet hefði sjálfur ákveðið að aka til Reykjavíkur, eftir að hann hafði tekið á móti manninum í Keflavík, en Davíð Viet hafi átt bílinn, sem hafi verið af Teslu-gerð. Davíð Viet hafi sagt að hann þyrfti að fara eitthvað og ákærði því ekki getað farið með honum. Ákærði hafi þess vegna tekið leigubíl með manninum sem Davíð Viet var að sækja, enda þurft að koma sér aftur til Reykjavíkur, eins og áður segir. Davíð Viet hafi beðið hann um að skutla manninum til nafngreinds manns, sem hann hafi gert, en svo farið heim.
  5. Nánar aðspurður um gögn málsins neitaði ákærði því sem fyrr að vera KK í Signalsamskiptum ABC-hópsins. Spurður út í myndbandsupptökur, þar sem ákærði sést sækja bláa poka í B, kvaðst ákærði ekki muna eftir því en er honum voru sýndar ljósmyndir kvaðst hann hafa farið með poka til meðákærða Davíðs Viet. Ákærði kvaðst ekki vita hvað hafi verið í nefndum pokum en hann hefði ekki tekið þá ef fíkniefni hefðu verið í pokunum. Ákærði kvaðst hafa unnið að beiðni meðákærða Davíðs Viet við að gera við bíla, þrífa bíla og fara með þá í olíuskipti. Hann hafi ekki fengið neitt greitt fyrir vinnuna. Meðákærði Davíð Viet hafi beðið hann um greiða þar sem hann hafi ekki verið með gilt ökuskírteini. Það hafi þó ekki gerst oft eða verið mikið.
  6. Ákærði Árni Khanh staðfesti að hann væri á sumum þeirra ljósmynda sem frammi liggja í málinu, en kvaðst ekki geta staðfest að hann væri á öðrum myndum. Nánar aðspurður kvaðst Árni Khanh ekki eiga fasteign, en hann ætti [fjölskylduhagir]. Ákærði mundi ekki til að hafa verið boðin aðstoð túlks er hann gaf skýrslu hjá lögreglu.
  7. Ákærði Daníel Ramadhan Sigurgeirsson kvaðst ekki vera með hlutina á hreinu er hann gaf skýrslu fyrir dómi. Hans aðild hefði verið mjög lítil og bundin við sölu á maríhúana í skamman tíma. Ákærði kvaðst hafa séð tækifæri, vantað pening og stokkið á tækifærið, en verið nýlega byrjaður. Hann hafi ætlað að græða pening. Ákærði sagði að ákærðu, Árni Khanh, Davíð og John Minh Tuan hefðu talað saman sem vinir, þ. á m. innan ABC- hópsins á Signal, en ekki rætt um sölu fíkniefna. Þá kannaðist hann við að vera hluti af Cannabiz Inc.-hópnum.
  8. Daníel kannaðist við húsnæði að B í Reykjavík og að D í Kópavogi. Kvaðst hann oftar en einu sinni hafa farið í B til að laga bifreið en aðeins einu sinni til að sækja þangað fíkniefni, sem hafi verið þau fíkniefni sem fundist hafi heima hjá honum og hafi bæði verið ætluð til eigin neyslu og til dreifingar og sölu. Sagði ákærði að hann hefði kannski einu sinni komið á D. Ákærði kannaðist hins vegar ekki við að hafa vitað um fíkniefni á B eða á D. Ákærði mundi ekki til að hafa hitt meðákærðu á B.
  9. Ákærði kvaðst oft hafa „chillað“ og reykt að E í Reykjavík. Þá svaraði hann með orðinu „kannski“ er hann var spurður um það hvort hann hefði verið nefndur D í ABC-hópnum á Signal. Ákærði kvaðst hafa verið í fráhvörfum er hann hafi gefið skýrslu hjá lögreglu og kvaðst ekki muna eftir framburði sínum þar. Ákærðu hafi hins vegar ekki rætt sölu fíkniefna í ABC-hópnum.
  10. Ákærði Davíð Viet Quoc Davíðsson neitaði því að hann og meðákærðu hefðu verið saman í því að selja fíkniefni. Hann neitaði einnig að hann hefði selt fíkniefni, en kvaðst ekki vita um aðra. Hann hafi ekki skipt sér af því hvað aðrir hafi verið að gera, en hann og meðákærðu væru vinir. Ákærði kannaðist við húsnæðið að B og E í Reykjavík, sem og að D í Kópavogi. Kvaðst ákærði aðallega hafa verið að vinna í bílum á B en geymt hluti á D. Ákærði kvað meðákærða Daníel hafa greitt leiguna ásamt honum. Ákærði kvaðst ekki vilja tjá sig um það hver hafi átt fíkniefnin sem fundist hafi á B.
  11. Ákærði Davíð Viet vildi ekki tjá sig um það hvort hann hefði vitað að fíkniefni væru í kössum að D, en kvaðst síðar vita hvernig þau fíkniefni hefðu komist þangað. Hann hefði vitað af því að fíkniefni væru á leið til landsins, átt að sækja aðilann til Keflavíkur og átt að geyma fíkniefnin. Ákærði kannaðist við að hafa farið og sótt þann sem flutti fíkniefnin hingað til lands á flugvöllinn í Keflavík, ásamt meðákærða Árna Khanh, en þeir hafi ekki þekkt manninn. Árni Khanh og maðurinn hafi farið saman til Reykjavíkur í leigubíl þar sem ekki hafi verið pláss í bifreið ákærða. Davíð Viet kvaðst hafa komið við á E á leiðinni til baka og hann, meðákærði Árni Khanh og maðurinn hist þar. Árni Khanh og maðurinn hafi svo yfirgefið staðinn. Ákærði sagði fíkniefnin hafa verið falin í ferðatöskum. Þau hafi verið flutt af E á D en ákærði mundi ekki hvort þau hefðu fyrst verið flutt á B.
  12. Davíð Viet kvaðst hafa verið meðlimur í ABC-spjallhópnum á Signal, með meðákærðu, sem hafi verið spjallhópur vina. Þeir hefðu rætt um bíla en ekki um sölu fíkniefna svo hann myndi. Þá kannaðist hann ekki við excel-skjal, sem fannst í síma sem tekinn var af meðákærða John Minh Tuan.
  13. Ákærði Davíð Viet sagðist hafa verið í miklum fráhvörfum eftir bullandi neyslu á þeim tíma er hann hafi gefið skýrslur sínar hjá lögreglu, í bæði skiptin. Kvaðst hann muna lítið eftir framburði sínum hjá lögreglu og kvaðst á þeim tíma hafa verið til í að segja hvað sem var til að losna úr þeim aðstæðum sem hann var í.
  14. Davíð Viet kvað það rangt að meðákærðu Daníel og John Minh Tuan hefðu verið að selja fíkniefni fyrir hann, sem og að þeir hafi staðið saman að sölu fíkniefna. Þá kannaðist ákærði ekki við að hafa sagt að haldlagðir peningar væru ágóði af sölu fíkniefna, það hafi ekki verið þannig. Ákærði kvaðst hafa fengið peningatalningarvél gefins og átt hana.
  15. Ákærði Davíð Viet greindi frá því að hann og meðákærðu hefðu saman leigt húsnæðið á B og hann verið í bílaviðgerðum. Hann viti ekki um aðra, því hann hafi ekki skipt sér af hinum. Ákærði kvaðst hafa þurft að borga sinn hluta í leigunni en ekki geta sagt um annað. Aðspurður um framburð sinn hjá lögreglu um að meðákærði Árni Khanh hefði séð um pökkunaraðstöðuna í B, þá kvaðst ákærði hafa vitað af pökkunaraðstöðunni að hluta til en hann kysi að tjá sig ekki um það sem aðrir gerðu. Hann kannaðist hins vegar ekki við framburð sinn hjá lögreglu um að hann hefði komið að verðlagningu fíkniefna. Hann hefði hins vegar sett upp myndavélakerfi í B.
  16. Ákærði Davíð Viet kvaðst í fyrstu ekki muna hvort hann hefði farið með það sem X hefði komið með frá útlöndum á D. Hann hefði vitað að eitthvað væri geymt þar en ekki hvað. Þá kvaðst hann ekki hafa vitað hvort meðákærði Árni Khanh væri umsjónarmaður geymslunnar. Ákærði sagði að hann og meðákærði Árni Khanh hefðu farið með efnin, sem maðurinn sem þeir sóttu til Keflavíkur hefði komið með, á D þar sem geyma hafi átt efnin. Kvaðst ákærði sömuleiðis ekki vita um magn þeirra efna. Hann hafi sem fyrr segir einungis átt að sækja manninn og geyma efnin, að beiðni erlends aðila. Maðurinn hafi ekki komið með efni sem hann hafi átt að selja.
  17. Ákærði Davíð Viet kvaðst kannast við auðkenni meðákærðu í umræðum innan ABC- hópsins á Signal. Meðákærði Árni Khanh hefði verið KK, meðákærði Daníel hefði verið D, en meðákærði John Minh Tuan hefði verið Tommy. Sjálfur kvaðst hann ekki muna hvort hann hefði verið G eða TEEMO. Ákærði neitaði því að hafa séð um móttöku pantana frá viðskiptavinum hópsins og séð um útdeilingu til meðákærðu. Þá neitaði hann að hópurinn hefði verið starfandi í nokkra mánuði. Ákærði kannaðist auk þess ekki við fyrri framburð sinn hjá lögreglu um að meðákærði Árni Khanh hefði séð um pökkun og stundum afhent fíkniefni en meðákærðu Daníel og John Minh Tuan um smásölu.
  18. Ákærði neitaði því að meðlimir ABC-hópsins hefðu skipt hagnaði af fíkniefnasölu með sér. Þá kannaðist hann ekki við að ABC-hópurinn hefði áður heitið New Order og mundi ekki hvort nafninu hefði verið breytt. Mundi ekki hvað hann hefði heitið, nöfnin hefðu breyst. Hann kvaðst ekki muna eftir einstökum samskiptum. Ákærði kvaðst ekki kannast við excel-skjal eða samskipti innan ABC-hópsins, sem fundust í síma meðákærða John Minh Tuan.
  19. Nánar aðspurður um stöðu sína og hagi sagði ákærði að orka hans færi aðallega í að halda sér edrú, en hann ætti [fjölskylduhagir]. Ákærði kvaðst hafa [persónulegar upplýsingar].
  20. Ákærði John Minh Tuan Dang kvaðst hafa átt þau fíkniefni sem fundist hafi í bifreið sem hann ók er hann var handtekinn við […] og að þau efni hafi verið ætluð til dreifingar. Hann kvaðst einnig hafa verið handtekinn við sölu fíkniefna sem hann hafi fengið úr geymslunni í B. Hópurinn, þ.e. meðákærðu, hafi undirbúið efnin til dreifingar og það eina sem hann hafi gert hafi verið að sækja efnin. Ákærði kvað alla ákærðu hafa haft aðgang að B.
  21. Ákærði kvaðst mest hafa verið í samskiptum við meðákærðu Davíð Viet eða Árna Khanh en hann hafi byrjað að selja fíkniefni um mánuði áður. Meðákærðu hafi fengið pantanir og látið ákærða vita, í gegnum síma sem meðákærði Davíð Viet hafi látið hann hafa. Ákærði kvaðst hafa fengið pantanir í gegnum símann og farið með efni til viðskiptavina í litlum pakkningum, 1–5 grömm. Ákærði kvaðst hafa séð sjálfur um litlar pantanir.
  22. Ákærði kvað alla ákærðu hafa átt samskipti í gegnum Signal-hópinn ABC. Þar hafi þeir fjórir rætt saman um söluna. Ákærði kannaðist við excel-skjal í síma sem hann hafði sem fyrr segir fengið hjá meðákærða Davíð Viet en kvaðst ekki þekkja skjalið vel. Þegar hann hafi verið búinn að fara með pöntun til viðskiptavinar hafi hann átt að færa afgreitt inn í skjalið, með því að merkja við tiltekinn reit (tikka í box). Hlutverk annarra kvaðst ákærði ekki þekkja.
  23. Ákærði kvaðst hafa verið nýlega byrjaður er hann hafi verið handtekinn en hann hafi fengið greitt frá meðákærða Davíð Viet fyrir vinnuna. Greitt hefði verið vikulega en ákærði vissi ekki hvernig það hefði verið reiknað út. Hann hefði fengið um 100.000 krónur á viku, en salan hefði ekki verið mikil. Ákærði kvaðst hafa byrjað í hópnum þar sem hann hafi þekkt strákana, þeir hafi verið kunningjar til margra ára.
  24. Ákærði John Minh Tuan sagði meðákærða Davíð Viet hafa verið meira í því að stjórna starfseminni en meðákærðu Daníel og Árni hafi verið í sölu. Ákærði kvaðst ekki hafa vitað hvernig hinir í hópnum útveguðu þau fíkniefni sem hann seldi, en hann hefði aðeins komið á B, þar sem hann hefði haft lykil. Ákærði kvaðst hafa unnið áður með meðákærða Árna Khanh. Ákærði kvaðst hafa látið meðákærða Davíð Viet hafa það sem hann hafi fengið fyrir selt efni eða sett það í svart box á geymslustaðnum að B.
  25. Ákærði kvaðst ekkert hafa tengst Cannabiz Inc. en meðákærðu hafi sett hans númer inn þannig að hann gæti afhent lítið magn. Salan hafi farið þannig fram að hringt hafi verið í Davíð Viet en ef hann hafi ekki svarað hafi símtalið flust yfir í símann hjá ákærða. Vörur í bláum pokum, sem sjá mætti á ljósmyndum í málinu, hafi verið vörur sem búið hafi verið að taka til fyrir hann. Það kom einnig fyrir að hann tæki vörur til sjálfur, eftir að hann hafði fengið lykla að B. Ákærði staðfestu að allir ákærðu hefðu rætt saman um sölu á fíkniefnum í Signal-hópnum ABC og að hann hefði verið meðvitaður um að þeir væru fjórir sem stæðu í þessu. Aðspurður um persónulega hagi sína í dag kvaðst ákærði vera [einkalíf] í dag. Hann ynni hjá H og notaði ekki fíkniefni. Hann kvaðst eiga [fjölskylduhagir].
  26. Vitnið C, verkefnastjóri hjá Rannsóknastofu Háskóla Íslands í lyfja- og eiturefnafræði, staðfesti matsgerðir sínar í málinu.
  27. Lögreglumaður nr. I greindi frá því fyrir dómi að upphaf málsins mætti rekja til þess að lögregla hafi orðið vör við auglýsingu á Telegram þar sem lagersala á fíkniefnum hafi verið auglýst. Lögregla hefði sett sig í samband við hópinn, hitt sölumanninn og leitað hjá honum. Upplýsingar um ABC-hópinn hafi fundist í síma sem hann hafi haft á sér. Lögregla hafi fundið út að síminn hafi áður tilheyrt ákærða Davíð Viet og handtekið hann. Davíð Viet hafi bent lögreglu á fleiri staði.
  28. Lögreglumaðurinn sagði alla ákærðu hafa verið samvinnuþýða og kurteisa. Davíð Viet hafi brugðist mjög illa við í fyrstu en róast og verið þægilegur til viðræðna. Lögregla hafi ekki metið hvort þeir væru undir áhrifum, en það hafi alla vega ekki verið áberandi. Ákærðu hafi að minnsta kosti verið viðræðu- og skýrsluhæfir þegar skýrslur voru teknar af þeim. Lögreglumaðurinn kvaðst einnig hafa gert greinargerð rannsakara. Þá staðfesti vitnið skýrslur sínar og greinargerð.
  29. Nánar aðspurður kvað lögreglumaðurinn það vel geta verið rétt að ákærði John Minh Tuan hafi verið í hópnum í um mánuð. Yfirlitið yfir ABC-hópinn hafi verið aðgengilegt í símanum, sem John Minh Tuan hafi fengið hjá meðákærða Davíð Viet og augljóst verið að John Minh Tuan hafi ekki verið fremstur í hópnum. Skýr skipting hafi verið í hópnum um það hver hafi verið fyrir ofan hvern. Davíð Viet og Daníel hafi verið ofarlega, John Minh Tuan frekar neðarlega.
  30. Lögreglumaðurinn sagði umferð hafa verið nokkra á verkstæðinu við B. Ákærðu hafi sótt þar poka til að selja. Svört skjalataska hafi fundist við leit heima hjá Daníel, full af efnum. Þannig hafi teiknast upp skýr mynd af samsetningu hópsins, sem hafi einnig sést í síma ákærða John Minh Tuan, sem hafi sýnt samskipti um sölu fíkniefna, excel-skjal yfir viðskiptavini og helstu sölur og samskipti. Ákærði Davíð Viet hafi gefið fyrirskipanir um að færa upplýsingar inn í skjalið. Davíð Viet hafi sagt að meðákærði Árni Khanh væri í hópnum en hann hefði aðallega sinnt pökkun. Dulnefni Árna Khanh hafi verið KK. Eins hafi Árni Khanh farið með meðákærða Davíð Viet upp á flugvöll til að sækja X, haldið utan um fíkniefnin og séð um pökkun þeirra.
  31. Lögreglumaður nr. J staðfesti þær skýrslur sem frá honum stafa í málinu.

III

Niðurstaða um það hvort vísa beri ákæru málsins frá í heild eða að hluta

  1. Ákærðu gera allir kröfu um að ákæru málsins verði vísað frá í heild sinni eða að hluta þar sem hún uppfylli ekki kröfur c-liðar 1. mgr. 152. gr. laga nr. 88/2008 um meðferð sakamála, en krafa þessi kom fyrst fram við aðalmeðferð málsins. Samkvæmt því ákvæði laganna skal í ákæru greina svo glöggt sem verða má hver sú háttsemi er sem ákært er út af, hvar og hvenær brotið er talið framið, heiti þess að lögum og aðra skilgreiningu og loks heimfærslu brotsins til laga og stjórnvaldsfyrirmæla ef því er að skipta.
  2. Verjendur ákærðu hafa meðal annars í þessu samhengi vísað til dóms Hæstaréttar Íslands frá 28. maí 2015 í máli nr. 21/2015 en þar sagði orðrétt: Í dómaframkvæmd Hæstaréttar hafa [framangreind fyrirmæli c-liðar 1. mgr. 152. gr. laga nr. 88/2008] verið skýrð þannig að lýsing á þeirri háttsemi sem ákærða er gefin að sök í ákæru verði að vera svo greinargóð og skýr að hann geti ráðið af henni einni hvaða háttsemi hann er sakaður um og hvaða ákvæði refsilaga hann er talinn hafa gerst brotlegur við. Mega ekki vera slík tvímæli um hverjar sakargiftir eru að ákærða verði torvelt að taka afstöðu til þeirra og halda uppi vörnum. Að þessu leyti verður ákæra að vera svo skýr að dómara sé kleift af henni einni að gera sér grein fyrir hvað ákærði er sakaður um og hvernig sú háttsemi verði talin refsiverð. Samkvæmt þessu verður ákæra að leggja viðhlítandi grundvöll að saksókn svo dómur verði lagður á mál í samræmi við ákæru, enda verður ákærði ekki sakfelldur fyrir aðra hegðun en þar greinir, sbr. 1. mgr. 180. gr. laga nr. 88/2008.
  3. Frávísunarkröfur ákærðu eru meðal annars byggðar á þeim forsendum að þeim verði ekki refsað fyrir brotastarfsemi á ótilgreindu tímabili eða fyrir að hafa útvegað, tekið á móti, varðveitt, pakkað, dreift eða selt fíkniefni af óþekktu magni. Þá er fundið að því að ekki sé sundurgreint í ákærulið I hvaða fíkniefni hafi fundist hvar og í hve miklu magni, heldur tiltekið heildarmagn þeirra fíkniefna sem fundust í málinu. Eins séu tengsl hvers og eins ákærða við fundarstaði fíkniefna í málinu ekki útskýrð í ákæru. Þá er enn fremur á því byggt að þætti hvers og eins ákærðu sé ekki lýst sérstaklega í ákærunni. Telja ákærðu að af þessu leiði að ákæran sé ekki nægilega skýr, sbr. framangreint lagaákvæði, sem komi niður á möguleikum þeirra til varna í málinu.
  4. Samkvæmt ákvæðum laga um meðferð sakamála er það ákæruvaldsins að ákveða hvernig það leggur mál upp fyrir dómi, en ákæra skal uppfylla þau lágmarksskilyrði sem talin eru upp í 1. mgr. 152. gr. laga nr. 88/2008, þar með talin fyrirmæli stafliðar c sem rakinn var hér að framan. Ákæruvaldið leggur sömuleiðis fram skjöl og önnur sýnileg sönnunargögn sem aflað hefur verið við rannsókn málsins og sönnunargildi þykja hafa, sbr. til að mynda 2. mgr. 134. gr. laga nr. 88/2008. Ákæruvaldið ber enn fremur halla af því takist því ekki að sanna sekt ákærða, sem og um önnur atriði sem ákærða eru í óhag, sbr. 108. gr. sömu laga.
  5. Verknaðarlýsing á meintri refsiverðri háttsemi samkvæmt ákærulið I í ákærunni er að mestu leyti byggð á framburðum ákærðu Daníels, Davíðs Viet og John Minh Tuan, sem og á öðrum gögnum málsins, en framburður ákærðu hjá lögreglu verður ekki skilinn á annan veg en þann, eins og síðar verður nánar komið að, en að þeir hafi sammælst um að útvega, taka á móti, varðveita, pakka, dreifa og selja fíkniefni af óþekktu magni á ótilgreindu tímabili. Þá eru í ákærunni tilgreind þau fíkniefni sem fundust í bifreið sem John Minh Tuan hafði til umráða en skráð var á ákærða Daníel, á heimilum ákærða Daníels og Davíðs Viet, og í húsnæði sem ákærðu höfðu, ýmist allir eða hluti þeirra, aðgang að á B, E og F í Reykjavík og að D í Kópavogi. Er á því byggt að þau efni hafi öll verið í vörslum ákærðu, í sameiningu, þann dag sem fíkniefnin voru haldlögð, án tillits til þess hvar þau hafi fundist. Loks er byggt á því samkvæmt þessum ákærulið að þau fíkniefni sem ákærðu er gefið að sök að hafa sammælst um að útvega, taka á móti, varðveita, pakka, dreifa og selja, af óþekktu magni og á ótilgreindu tímabili, hafi verið af sömu tegund og þau fíkniefni sem fundust við húsleitir í málinu og talin eru upp í ákærunni. Eru aðstæður í þessu máli að því leyti ólíkar aðstæðum í þeim dómi Hæstaréttar sem vísað var til hér að framan.
  6. Ákæruvaldið hefur samkvæmt framansögðu lagt þetta mál upp með þeim hætti að byggt er á því að ákærðu hafi, í sameiningu, stundað skipulagða brotastarfsemi og gerst sekir um stórfellt fíkniefnalagabrot. Er því síðan nánar lýst í ákærulið I með hvaða hætti brot þeirra eru talin hafa verið framin. Verður að líta svo á að sú lýsing sem þar er sett fram eigi við um ákærða hvern og einn og um þá alla í sameiningu. Verður einnig að líta svo á að byggt sé á því af hálfu ákæruvaldsins að ákærðu beri allir ábyrgð á þeirri brotastarfsemi sem lýst er í þessum ákærulið ákærunnar, þ.m.t. á þeim fíkniefnum sem talin eru upp í ákæruliðnum, án tillits til þess hvar þau hafi fundist og hald lagt á þau.
  7. Að framangreindu virtu og þar sem byggt er á því að þau fíkniefni sem ákærðu hafi selt fyrir handtöku hafi verið af sömu tegund og þau fíkniefni sem fundust við húsleitir í málinu verður hvorki séð að verknaðarlýsing ákæruliðar I í ákærunni sé ófullnægjandi, þar sem hún standist ekki áskilnað c-liðar 1. mgr. 152. gr. laga nr. 88/2008, né að það geri ákærðu torvelt fyrir að verjast sakargiftum í málinu sökum þess hvernig ákæran er úr garði gerð. Verður þvert á móti að ætla að ákærðu megi vera það fullljóst fyrir hvað þeir eru ákærðir, enda er það sem fyrr segir meðal annars byggt á framburðum þriggja þeirra við skýrslutökur hjá lögreglu. Eins verður með hliðsjón af framangreindu ekki séð að það komi að sök þótt ekki sé sundurgreint nákvæmlega í ákærunni hvaða fíkniefni fundust á hvaða stað og í hve miklu magni, en það er sundurgreint með ítarlegum hætti í gögnum málsins. Þá er á því byggt, eins og áður segir, að ákærðu beri allir jafna ábyrgð bæði á háttseminni og þeim fíkniefnum sem haldlögð voru. Er kröfum ákærðu um að ákærunni verði vísað frá dómi í heild eða að hluta þar af leiðandi hafnað.

IV

Niðurstaða varðandi sekt eða sýknu og heimfærslu brota til refsiákvæða

  1. Samkvæmt 109. gr. laga nr. 88/2008 um meðferð sakamála metur dómari hverju sinni hvort nægileg sönnun, sem ekki verði vefengd með skynsamlegum rökum, sé fram komin um hvert það atriði sem varðar sekt og ákvörðun viðurlaga við broti, þar á meðal hvaða sönnunargildi skýrslur ákærða og vitna hafi, sem og skjöl og önnur sýnileg sönnunargögn. Samkvæmt 108. gr. sömu laga hvílir sönnunarbyrði um sekt ákærða og atvik, sem telja má honum í óhag, á ákæruvaldinu. Í því felst að telji dómari skynsamlegan vafa leika á um að ákærði hafi framið þann verknað sem honum er gefinn að sök í máli, þá leiðir það til sýknu ákærða. Samkvæmt 1. mgr. 111. gr. nefndra laga skal dómur reistur á sönnunargögnum sem færð eru fram við meðferð máls fyrir dómi.
  2. Samkvæmt 115. gr. laga nr. 88/2008 skal dómari meta sönnunargildi framburðar ákærða, þar á meðal trúverðugleika hans, við úrlausn máls. Í því samhengi skal meðal annars hugað að ástandi og hegðun ákærða við skýrslugjöf og stöðugleika í frásögn hans. Samkvæmt 126. gr. sömu laga ber dóminum einnig að huga að sönnunargildi vitnisburða við úrlausn máls. Ber dóminum í því samhengi meðal annars að líta til afstöðu vitnis til ákærða og eftir atvikum brotaþola, hagsmuna vitnis af málsúrslitum, áreiðanleika skynjunar þess á atvikum, minnis, ástands og hegðunar þess við skýrslugjöf og síðast en ekki síst öryggis vitnis og skýrleika í svörum, sem og samræmis í frásögn þess.

Um trúverðugleika framburðar ákærða Árna Khanh

  1. Ákærði Árni Khanh sagði í fyrstu skýrslu sinni hjá lögreglu, sem gefin var 23. júlí 2024, að hann og meðákærði Daníel hefðu þekkst frá æsku og að þeir væru vinir, ásamt meðákærða Davíð Viet. Árni Khanh kvað hann og John Minh Tuan hafa unnið saman. Ákærði neitaði því staðfastlega að vera hluti af hinum svonefnda ABC-hópi á samskiptaforritinu Signal. Hann sagðist hafa komið að B í Reykjavík til að þrífa bíla þar fyrir utan. Hann kannaðist hins vegar ekki við geymslu að D í Kópavogi en sagði svo að tengdapabbi sinn væri þar. Árni Khanh kvaðst hins vegar ekki hafa aðgang að geymslu á þeim stað. Hann hefði þó fyrir löngu komið þangað með kassa. Gögn málsins sýna hins vegar að ákærði kom ítrekað í þá geymslu í júlí 2024, þ. á m. tveimur dögum áður en hann gaf skýrslu sína hjá lögreglu. Árni Khanh sagðist sömuleiðis ekki hafa verið í bílskúr að E í Reykjavík, en sá framburður hans átti eftir að breytast, auk þess sem fram kom hjá meðákærðu Daníel og Davíð Viet fyrir lögreglu að Árni Khanh hefði haft aðgang að E, líkt og þeir.
  2. Í annarri skýrslu sinni fyrir lögreglu, sem gefin var 30. júlí 2024, ítrekaði Árni Khanh að hann væri ekki í neinum hóp, en að hann hefði haft gælunafnið KK í smátíma. Þá kvaðst hann hafa verið að gera við bíla að B í Reykjavík. Árni Khanh kannaðist við að hafa farið til Keflavíkur 7. júlí 2024 með meðákærða Davíð Viet, sem væri ekki með bílpróf og hann því þurft að keyra bifreið hans upp á flugvöll. Davíð Viet hefði hins vegar sjálfur keyrt til baka. Árni Khanh kvaðst hafa tekið leigubifreið með manni sem hann þekkti ekki. Kvaðst hann hafa gert það samkvæmt fyrirmælum Davíðs Viet þar sem maðurinn talaði ekki íslensku. Þeir hafi fyrst farið í bílskúr í hverfi 108 og hitt Davíð Viet þar, en ákærði og maðurinn hafi svo farið heim til meðákærða Daníels. Árni Khanh kvaðst hafa komið áður í bílskúrinn til að henda rusli, en hann hafði sem fyrr segir neitað því í fyrri skýrslu að hafa komið þangað. Þá kvaðst hann stundum fara í geymsluna að D og þá með Davíð Viet og samkvæmt hans fyrirmælum. Eins kvaðst Árni Khanh eiga í samskiptum við aðra innan ABC-hópsins, ef það tengdist bílum. Kvaðst ákærði ekki vera að selja fíkniefni og ekki vita hvað hafi verið í pokum eða kössum sem hann hafi flutt á milli staða.
  3. Fyrir dómi kannaðist Árni Khanh sem fyrr segir hvorki við það að hafa verið hluti af hópi sem seldi fíkniefni né við að hafa verið aðili að hópi sem nefndur var ABC á samskiptaforritinu Signal. Þá neitaði hann því að vera KK í Signal-samskiptum ABC- hópsins, en hann hafði sem fyrr segir greint lögreglu frá því að hann hefði gengið undir því gælunafni um tíma. Ákærði kannaðist líkt og áður við að hafa farið með öðrum ákærðu að B til að gera við bíla og til að þvo bíla. Þá kannaðist hann við að hafa farið í geymslu að D í Kópavogi í eitt skipti, að beiðni meðákærða Davíðs Viet, sem hafi beðið hann um að fara með hluti í geymsluna. Ákærði kvaðst þó ekki muna hvaða dót það hafi verið, né hvað hafi verið í þeim kössum. Það er ekki í samræmi við önnur gögn málsins.
  4. Ákærði Árni Khanh kvaðst sem fyrr hafa farið með meðákærða Davíð Viet til Keflavíkur 7. júlí 2024 til að sækja þangað mann. Davíð Viet hafi ekki verið með ökuskírteini á sér og því beðið ákærða um að skutla sér. Davíð Viet hafi hins vegar sjálfur keyrt heim. Ákærði kvaðst hafa þurft að koma sér heim og því farið með manninum sem þeir hafi verið að taka á móti til baka í leigubifreið. Frá Keflavík hafi þeir haldið í geymslu, sem ákærði kvaðst ekki muna hvar hefði verið, en geymslan hafi verið í bílskúr rétt hjá Skeifunni, þ.e. í hverfi 108.
  5. Eins og ráða má af framansögðu hefur framburður ákærða Árna Khanh, sem hefur staðfastlega neitað sök, verið tiltölulega stöðugur frá upphafi máls þessa, þrátt fyrir minniháttar ósamræmi, svo sem varðandi það hversu oft ákærði hafi farið í geymsluna að D í Kópavogi eða hvort hann hafi komið í bílskúrinn að E í Reykjavík fyrir 7. júlí 2024. Framburður Árna Khanh er hins vegar að verulegu leyti í ósamræmi við önnur gögn málsins, þ.m.t. framburð meðákærða John Minh Tuan fyrir dómi og framburði meðákærðu Daníels og Davíðs Viet fyrir lögreglu, en allir lýstu meðákærðu því að Árni Khanh væri hluti af ABC-hópnum á Signal og jafn hinum þremur innan hópsins. Báru Davíð Viet og Daníel sömuleiðis að Árni Khanh hafi að mestu séð um pökkun að B og ákærði Davíð Viet að auki að hann hefði verið umsjónarmaður geymslunnar að D í Kópavogi. Þá báru bæði Daníel og Davíð Viet sem fyrr segir hjá lögreglu að Árni Khanh hefði haft aðgang að E. Eru framburðir Davíðs Viet og Daníels, sem gefnir voru þegar þeir voru í haldi lögreglu, studdir öðrum gögnum málsins, þ.m.t. skjáskotum úr myndböndum öryggismyndavéla að B og að D, sem þykja auka trúverðugleika framburða þeirra. Eins kom fram hjá ákærða John Minh Tuan að hann hefði verið í samskiptum við ákærða Árna Khanh og sótt til hans fíkniefni.
  6. Ákærði Árni Khanh þykir sömuleiðis hafa gefið ótrúverðugar skýringar á för sinni til Keflavíkur 7. júlí 2024 og þá einkum hvernig það kom til að hann varð samferða manni sem hann þekkti ekki og hafði aldrei hitt áður frá Keflavík að E í Reykjavík, þar sem hann hitti eins og áður segir meðákærða Davíð Viet, og áfram að heimili meðákærða Daníels. Þá er einnig ótrúverðugt, að virtum öðrum gögnum málsins, að ákærði hafi ekki vitað hvað var í þeim kössum sem hann flutti ásamt fleirum í geymsluna að D í Kópavogi, í framhaldi af komu X hingað til lands 7. júlí 2024, enda að nokkru leyti hægt að rekja feril þeirra efna í gögnum málsins frá Keflavík til Kópavogs og aðkomu Árna Khanh að þeim flutningum, líkt og síðar verður nánar komið að.
  7. Að öllu framangreindu virtu og þá ekki síst framburðum meðákærðu, sem studdir eru af öðrum gögnum málsins, verður að telja að framburður ákærða Árna Khanh í málinu sé ótrúverðugur, sbr. 115. gr. laga nr. 88/2008. Þykir af þeim sökum ekki annað hægt en að líta framhjá framburði þessa ákærða í málinu og í þess stað byggja dóm á öðrum gögnum málsins, þ.m.t. framburðum meðákærðu og sýnilegum sönnunargögnum.

Um trúverðugleika framburðar ákærða Daníels

  1. Ákærði Daníel sagði í fyrri skýrslu sinni hjá lögreglu, sem tekin var 23. júlí 2024, að hluta þeirra fíkniefna sem fundist hafi á heimili hans hafi hann ætlað að selja en neyta hluta þeirra sjálfur. Þau fíkniefni sem hafi fundist í skjalatösku á svölum íbúðarinnar hafi verið ætluð til sölu en önnur fíkniefni væru ætluð til eigin neyslu. Hann kvaðst hins vegar ekki reykja mjög oft.
  2. Daníel sagði að Cannabiz Inc. væri hópur fólks sem væri að kaupa og selja fíkniefni og að hann tilheyrði þeim hópi, ásamt meðákærðu Árna Khanh, Davíð Viet og John Minh Tuan. Daníel sagði ABC-hópinn á Signal vera hóp vina sem væri að selja fíkniefni. Í hópnum væru framangreindir fjórir einstaklingar, en hópurinn seldi fíkniefni til viðskiptavina. Daníel neitaði því að hópurinn hefði stofnað Cannabiz Inc., en þeir væru hluti þeirrar starfsemi, sem fleiri væru aðilar að. Ákærði færðist hins vegar undan spurningum um það hver TEEMO-Cannabiz Inc. væri í spjalli hópsins.
  3. Aðspurður um B í Reykjavík sagði Daníel það vera pökkunarmiðstöð þeirra fjögurra, hans sjálfs, Árna Khanh, Davíðs Viet og John Minh Tuan. Kvaðst hann sjálfur hafa pakkað þar kannabisefnum og amfetamíni en hélt að meðákærði Árni Khanh hefði að mestu séð um pökkunina þar sem hann hefði ekki verið í annarri vinnu. Fyrrnefndir fjórir einstaklingar, þ.e. ákærðu samkvæmt ákærulið I, væru með aðgang að húsnæðinu og allir með lykla. Þeir væru allir saman í því að selja fíkniefni og þeir skiptu hagnaðinum á milli sín. Salan færi fram í gegnum síma, viðskiptavinir svöruðu auglýsingu á Telegram og pöntuðu efni. Ef sá sem tæki á móti símtalinu eða skilaboðunum væri ekki laus til að afgreiða þau fíkniefni sem um væri beðið væri pöntunin sett inn á ABC-hópinn, sem þeir væru með á Signal. Allir ákærðu væru sölumenn og gætu allir afhent viðskiptavini það sem um væri beðið hverju sinni. Ef einhver gæti hins vegar ekki brugðist við pöntunum léti hann hina í ABC-hópnum vita þannig að þeir gætu brugðist við.
  4. Ákærði Daníel kannaðist í fyrstu við að maður hefði gist heima hjá honum, en einhver frændi aðila sem hann þekkti hefði spurt hann hvort maður mætti gista hjá honum í tvær vikur. Maðurinn hafi birst í gættinni hjá honum, en hann væri í fríi á Íslandi. Daníel kvaðst ekki vita hvers vegna ferðataska umrædds manns hefði fundist í bifreið hans fyrir utan bílskúr við E í Reykjavík. Aðspurður um geymslu að D í Kópavogi sagði Daníel að fíkniefnin sem þar hefðu fundist væru þar til geymslu. Sagðist Daníel stundum fara í geymsluna en stundum einhver annar, en hann, Árni Khanh og Davíð Viet hefðu aðgang að geymslunni. Daníel sagði einnig að hann, Davíð Viet og Árni Khanh hefðu aðgang að bílskúrum að E í Reykjavík. Sú aðstaða hefði verið nýtt til að pakka og geyma fíkniefni, en aðstaðan væri minni en í B. Þá neitaði hann því að stéttaskipting væri í ABC-hópnum.
  5. Daníel breytti í sömu skýrslu framburði sínum varðandi framangreindan mann og sagðist hafa hjálpað honum að koma með gras til Íslands. Hann hefði tekið á móti honum á heimili sínu. Hann vissi ekki hver af ABC-hópnum hefði sótt hann á flugvöllinn, en hélt að það hefði mögulega verið Árni Khanh. Sagði Daníel manninn hafa flutt 25 kg af fíkniefnum hingað til lands en hann vissi ekki í hve mörgum töskum. Maðurinn hafi komið með litla handtösku til hans. Sagði Daníel að mögulega væri búið að selja hluta þeirra efna sem maðurinn hefði komið með.
  6. Í annarri skýrslu sinni hjá lögreglu, 26. júlí 2024, sagði Daníel ABC-hópinn vera vini að tala saman um fíkniefnasölu. Þeir töluðu allir saman og ef einhvern vantaði eitthvað væri annar fenginn til að hjálpa til. Ítrekaði Daníel að í hópnum væru, auk hans sjálfs, Davíð Viet, Árni Khanh og John Minh Tuan, KK væri Árni Khanh, G væri Davíð Viet, Tommy væri John Minh Tuan og hann sjálfur væri D. Sagði hann þá alla vera jafna og alla eiga samskipti við viðskiptavini. Áður hefði verið til annar hópur á Signal með sömu meðlimum, en það væri alltaf verið að eyða út hópum og búa til nýja. Það væri aðallega Davíð Viet sem sæi um það. Cannabiz Inc. væri hins vegar annar hópur og fleiri í honum en í ABC-hópnum. Honum væri stýrt af TEEMO-Cannabiz Inc. en ákærði vildi ekki greina frá því hver það væri.
  7. Aðspurður um það hvernig salan færi fram sagði Daníel að viðskiptavinir hringdu eða sendu skilaboð í tiltekið símanúmer sem tilgreint væri í auglýsingu en ef sá sem tæki á móti pöntun gæti ekki sinnt henni sendi hann skilaboð á hina. Þeir hefðu allir efni sem þeir gætu afhent viðskiptavinum. Daníel sagðist stundum pakka fíkniefnum að B en húsnæðið hefði verið tekið á leigu til að pakka þar fíkniefnum. Þeir hefðu allir lykla að húsnæðinu en Árni Khanh væri mest á verkstæðinu og oftast að pakka, því hann væri sá eini sem ekki væri í vinnu. Hópurinn hefði uppfært sig frá E en þeir væru enn með þann stað og Daníel, Davíð Viet og Árni Khanh hefðu aðgang að því rými, sem og að geymslunni að D í Kópavogi, sem ætluð væri til að geyma fíkniefni.
  8. Daníel sagði ABC-hópinn fá fíkniefni frá útlöndum en einnig innan lands. Maðurinn sem dveldi í íbúðinni hjá honum hefði flutt fíkniefni hingað til lands í ferðatösku. Þá hefði það ekki verið þannig að einhver hefði beðið hann um að hýsa manninn heldur hefði hann vantað herbergi og Daníel haft aukaherbergi. Annað hvort Davíð Viet eða Árni Khanh hefði séð um komu mannsins hingað til lands og hann fyrst hitt hann er hann birtist hjá honum, með litla tösku með fötum í. Hélt Daníel sömuleiðis að meðákærði Árni Khanh hefði séð um umpökkun þeirra efna sem maðurinn kom með og að hluti þeirra efna hefði verið geymdur að D en hluti seldur til viðskiptavina.
  9. Daníel kvaðst afhenda Davíð Viet þá peninga sem hann fengi fyrir sölu fíkniefna, en hann sæi um að greiða fyrir fíkniefnin. Þá sagði hann fíkniefni hafa verið í bláum pokum sem hann hafi sést fara með frá B, sem ætluð hafi verið til sölu.
  10. Ákærði Daníel dró verulega í land frá fyrri framburði er hann gaf skýrslu fyrir dómi. Þar greindi hann frá því að aðild hans að málinu hefði verið mjög lítil og bundin við sölu á maríhúana í skamman tíma. Hann sjálfur og meðákærðu Árni Khanh, Davíð Viet og John Minh Tuan hefðu allir verið aðilar að ABC-samskiptahópnum á Signal og rætt þar saman, en ekki um sölu fíkniefna. Ákærði kannaðist við húsnæði að B í Reykjavík og að D í Kópavogi og kvaðst hafa haft aðgang að þeim. Hann hefði haft lykla að B þar sem hann hefði verið að laga bifreið. Daníel kannaðist ekki við að hafa vitað um fíkniefni á þessum stöðum. Ákærði sagðist þó hafa farið einu sinni á B og sótt þau fíkniefni sem hafi fundist við húsleit heima hjá honum. Þau efni hefðu verið ætluð til sölu og eigin neyslu. Það hefði verið eina skiptið sem hann hefði komið í B í þessum tilgangi.
  11. Daníel mundi ekki hvort hann hefði komið í geymslu að D í Kópavogi, en kvað það kannski hafa gerst einu sinni. Kvaðst ákærði oft hafa „chillað“ og reykt á E í Reykjavík. Eins kvað hann mögulegt að hann hefði verið nefndur D í ABC-hópnum á Signal, en hann svaraði spurningu þar að lútandi með „kannski“, eins og áður segir. Hann kannaðist einnig við að hafa átt aðild að Cannabiz Inc., ásamt fleirum. Ákærði kvaðst hafa verið í fráhvörfum er hann hefði gefið skýrslu hjá lögreglu.
  12. Eins og sjá má hér að framan var verulegt ósamræmi á milli framburðar ákærða Daníels fyrir lögreglu og fyrir dómi. Framburður ákærða hjá lögreglu var gefinn á meðan hann var enn í haldi lögreglu og án þess að hann hefði haft tækifæri til að bera sig saman við meðákærðu. Verjandi ákærða var viðstaddur fyrri skýrslu ákærða og fylgdist með síðari skýrslu hans í gegnum síma. Myndbandsupptökur af skýrslum ákærða gefa auk þess ekki tilefni til að ætla annað en að faglega og eðlilega hafi verið staðið að skýrslutökunum. Þá verður ekki annað séð en að ákærði hafi verið í góðu standi er hann gaf skýrslur sínar og hann svaraði flestum spurningum rannsakara greiðlega, líkt og fram kom í vitnaskýrslu lögreglumanns nr. I fyrir dómi.
  13. Framburður Daníels hefur samkvæmt framansögðu verið óstöðugur. Það er mat dómsins að ákærði hafi ekki gefið trúverðugar skýringar á breyttum framburði sínum fyrir dómi. Greinargóður og ítarlegur framburður ákærða hjá lögreglu 23. og 26. júlí 2024, sem var sem fyrr segir tekinn upp á myndband, þykir hins vegar vera trúverðugur, sbr. 115. gr. laga nr. 88/2008, enda fær hann stoð í öðrum gögnum málsins, þ.m.t. framburði Davíðs Viet hjá lögreglu og framburði John Minh Tuan fyrir dómi, ljósmyndum og öðrum gögnum málsins.
  14. Lýsti ákærði Daníel á greinargóðan og ítarlegan hátt hjá lögreglu brotastarfsemi ABC- hópsins. Voru lýsingar hans sömuleiðis í samræmi við lýsingar meðákærðu Davíðs Viet og John Minh Tuan, án þess að þeir hefðu haft tækifæri til að bera saman bækur sínar. Verður framburður Daníels fyrir lögreglu, sem gefinn var að viðstöddum verjanda hans, þar af leiðandi lagður til grundvallar dómi í málinu, að því marki sem misræmi er á milli framburðar hans hjá lögreglu og fyrir dómi, fremur en framburður hans fyrir dómi, sem er að mati dómsins fjarstæðukenndur að því marki sem hann víkur frá framburði ákærða hjá lögreglu.

Um trúverðugleika framburðar ákærða Davíðs Viet

  1. Ákærði Davíð Viet kvaðst í skýrslu sinni fyrir lögreglu, sem gefin var 23. júlí 2024, hafa byrjað að selja fíkniefni sem smásali í gegnum Telegram undir heitinu Cannabiz Inc. og þá aðeins gras. Hann hafi síðan ákveðið að fá aðstoð frá félögum sínum, Daníel, Árna Khanh og John Minh Tuan, eftir að hafa sjálfur fengið dóm, en þeir hafi fengið hluta af hagnaðinum. Davíð Viet sagði þá vinna þetta í aukavinnu. Hann sagði að viðskiptavinir sendu skilaboð á hann eða í símanúmer sem gefið væri upp á Telegram, í gegnum Cannabiz Inc. Hann sendi skilaboð áfram á hina, en hann sæi aðallega um Telegram. Þetta væri hins vegar allt Cannabiz Inc., þ.e. öll númerin, en símtal flyttust sjálfkrafa yfir til meðákærðu.
  2. Sagði Davíð Viet að þeir byðu upp á kannabis, penna, ketamín, spítt, e-töflur, LSD og af og til kókaín. Í upphafi hafi þeim verið boðin efni í gegnum Telegram, en þeir væru aðallega í því að selja gras. Annað væri auka. Kvaðst Davíð Viet vera með þrjá sölumenn undir sér, Daníel, Árna Khanh og John Minh Tuan. Þeir ynnu þetta saman en hann stjórnaði ekki hinum. Davíð Viet kvaðst hafa stofnað ABC-hópinn á Signal. Hann væri sjálfur með aðganginn G, D væri Daníel, KK væri Árni Khanh, TEEMO-Cannabiz Inc. væri hann sjálfur og Tommy væri John Minh Tuan, en þeir hefðu allir þekkst.
  3. Davíð Viet kvað alla muni og efni sem haldlögð hefðu verið á heimili hans vera hans eign og að reiðufé sem þar hafi fundist væri afrakstur fíkniefnasölu, að undanskildum 300.000 krónum, sem fundist hefðu í náttborðskúffu. Davíð Viet kvað hópinn mest vera í smásölu en fyrir kæmi að þeir seldu í heildsölu ef þeir fengju gott boð. Hópurinn tæki ákvarðanir saman og ágóðinn skiptist jafnt á milli þeirra.
  4. Aðspurður um B í Reykjavík svaraði Davíð Viet því til að sá staður væri aðallega notaður við pökkun. Hann hefði tekið húsnæðið á leigu í upphafi, um þremur mánuðum fyrr, en svo deilt því með Daníel. Leigan skiptist þó á milli allra í hópnum eins og allur kostnaður og hagnaður í hópnum. Greiðslan væri 320.000 krónur á mánuði sem greidd væri í reiðufé til leigusalans.
  5. Davíð Viet sagði að Árni Khanh sæi aðallega um pökkunaraðstöðuna í B en hann væri þar einnig. Þeir hefðu þó allir aðgang að húsnæðinu, hann sjálfur, Árni Khanh, Daníel og John Minh Tuan. Hann sæi sjálfur um mest sem tengdist Telegram og innkaup fyrir hópinn, svo og samtöl við fólk og þess háttar. Kvað hann stráka sem seldu þeim penna útvega þeim umbúðir en þeir gerðu sjálfir límmiða á þær, en þeir keyptu einnig muni frá veipbúð. Davíð Viet kvaðst sjálfur ákveða söluverð fíkniefnanna og þá bera sig saman við hina. Þá bæri hann sig saman við aðra á Telegram. Davíð Viet kvaðst stýra myndavélum á verkstæðinu við B, en þeir væru allir fjórir með lykil að húsnæðinu. Þá kvaðst hann hafa aðgang að Teslu-bifreið.
  6. Davíð Viet kvaðst ekki sjálfur sjá um geymsluna að D í Kópavogi en hann hefði tekið hana á leigu á sínu nafni. Árni Khanh væri hins vegar umsjónarmaður geymslunnar. Hann og Árni Khanh væru með aðgang að geymslunni en þeir hefðu bara einn lykil. Davíð Viet kvaðst vita hvað þar væri að finna en ekki geta sagt til um nákvæmt magn efnanna. Fíkniefnin hefðu verið fengin að láni en Víetnami frá Kanada hefði látið þá fá efnin. Sagði Davíð Viet að hópurinn hefði fengið 16–17 kg af efnum fyrir um 2–3 vikum, en eiginlega allt hefði farið í geymsluna að D. Annað hefði verið selt eða pakkað til sölu. Davíð Viet sagði hópinn hafa aðgang að bílskúr í F.
  7. Sagðist Davíð Viet ekki vita hvernig fíkniefnin væru flutt til landsins en þeir sæju um að selja efnin og kæmu peningum til tilgreinds manns. Samskiptin væru meðal annars rafræn en margir aðilar flyttu efni inn. Sumir hefðu samband við hann beint en stundum væri haft samband við hann í gegnum aðra. Um 2–3 vikum fyrr hefði erlendur eldri maður haft samband við hann og boðið honum fíkniefni. Davíð Viet kvaðst hafa beðið um að fá öll efnin. Þeir hefðu móttekið efnin á hóteli í Keflavík frá aðila sem hann hélt að hefði flutt efnin hingað til lands í ferðatösku. Kvaðst Davíð Viet hafa tekið við töskunum þar og verið í sambandi við milligöngumanninn á Facetime.
  8. Við aðra skýrslutöku af Davíð Viet 29. júlí 2024 staðfesti hann að KK í ABC-hópnum væri Árni Khanh, Davíð Viet sjálfur væri G eða TEEMO, Tommy væri John Minh Tuan og D væri Daníel. Hann lýsti hlutverki sínu þannig að hann sæi um að setja inn pöntun þegar einhver pantaði fíkniefni hjá hópnum á Telegram en meðákærðu afhentu pantanir einnig sjálfir. Hann tæki á móti skilaboðum og útdeildi til þess innan hópsins sem væri laus til að afhenda efnin. Sagði Davíð Viet að hópurinn hefði verið starfræktur í nokkra mánuði og allir hefðu verið jafn lengi í hópnum. Davíð Viet sagði hlutverk Árna Khanh vera að pakka efnum, kannabisefnum og öðrum efnum, svo sem á B, en hann færi einnig stundum með efni til viðskiptavinar. John Minh Tuan og Daníel væru að mestu leyti í smásölu, en þeir sæju um allar litlu pantanirnar.
  9. Davíð Viet sagði að afrakstur fíkniefnasölu hópsins kæmi alltaf fyrst til hans. Hann sæi um að borga fyrir efnin, sem væru yfirleitt greidd eftir á. Efnin væru keypt frá mörgum aðilum. Mest af peningnum færi í að kaupa efni. Davíð Viet sagði þá alla fá greitt einu sinni til tvisvar í viku og að þeir skiptu ágóðanum jafnt á milli sín eftir að kostnaður hefði verið greiddur. Það væri misjafnt hversu mikið þeir seldu, það gæti verið á bilinu 3.000.000–4.000.000 króna á viku og stundum 10.000.000 króna á viku. Hagnaðurinn væri 10% og stundum meira. Davíð Viet sagðist hafa búið Cannabiz Inc.-rásina (e. Channel) til á Telegram, en hann væri með marga fylgjendur og mikið af gerviaðgöngum (bottum).
  10. Staðfesti Davíð Viet að þeir hefðu allir fjórir aðgang að B og að þar væri pökkunaraðstaða fyrir fíkniefni. E, sem hann, Árni Khanh og Daníel hefðu aðgang að, væri einnig nýttur til pökkunar, en til hafi staðið að skila því húsnæði. D í Kópavogi hafi átt að vera geymsla, en hann haft það húsnæði á leigu í um það bil eitt ár. Það hafi átt að vera geymsla fyrir hann sjálfan.
  11. Sagði Davíð Viet að Árni Khanh hafi farið með fíkniefni í geymsluna á D, en um 10 kg af kannabis hefðu komið frá Kanada, að hann hélt í júní 2024, með ungri stelpu, burðardýri. Kvaðst Davíð Viet hafa sótt efnin á hótel í Keflavík og þar tekið á móti efnunum frá stelpunni, en um eina tösku hafi verið að ræða. Þau tæpu 11 kg af kannabis sem lögregla hefði lagt hald á í geymslunni á D hefðu verið flutt inn af áðurnefndri stelpu og X stuttu áður, en hann væri eitt af burðardýrunum. X hefði komið með um það bil 15– 20 kg af kannabis til landsins. Árni Khanh ætti að þekkja nákvæma tölu þess. Fíkniefnin væru flutt inn á vegum erlendra aðila og þeim væri dreift hér til söluhópa. Hlutverk ABC- hópsins væri að sækja efnin og selja, en peningarnir væru afhentir Víetnömskum hjónum hér á landi að lokinni sölu, allt að 20.000.000 króna, en hjónin sæju um að koma peningunum út til seljenda efnanna.
  12. Davíð Viet kannaðist við að hafa sótt X til Keflavíkur 7. júlí 2024. Hann hafi hins vegar ekki farið með fíkniefnin til Reykjavíkur heldur hafi Árni Khanh farið með manninn og fíkniefnin í leigubifreið. Þar hafi efnin verið tekin af, en maðurinn hafi komið með fjórar ferðatöskur. Davíð Viet kannaðist við sjálfan sig og Árna Khanh á myndum þar sem þeir sáust flytja kassa í geymsluna á D í Kópavogi 7. júlí 2024 og staðfesti að fíkniefni hefðu verið í öllum kössunum. Um hefði verið að ræða sendinguna sem X hefði komið með til landsins. Árni Khanh hefði örugglega pakkað efnunum í kassa, mjög líklega á E í Reykjavík. Kassarnir hefðu ekki farið á B.
  13. Ákærði Davíð Viet bar á annan veg fyrir dómi en kvaðst hafa vitað af því að fíkniefni væru á leið til landsins 7. júlí 2024. Hann hafi átt að sækja aðilann til Keflavíkur og geyma fíkniefnin. Hann kannaðist einnig við að hafa farið, ásamt meðákærða Árna Khanh, á flugvöllinn í Keflavík og sótt X sem flutti fíkniefnin hingað til lands. Árni Khanh og maðurinn hafi farið saman til Reykjavíkur í leigubifreið, þar sem ekki hafi verið pláss í bifreið ákærða. Ákærði kvaðst hafa komið við á E og hann og meðákærði Árni Khanh og maðurinn hist þar. Árni Khanh og maðurinn hafi svo yfirgefið staðinn. Ákærði sagði fíkniefnin hafa verið falin í ferðatöskum. Þau hafi verið flutt af E á D en ákærði mundi ekki hvort þau hefðu fyrst verið flutt á B.
  14. Davíð Viet neitaði aðild að sölu fíkniefna, en kvaðst hafa verið í ABC-hópnum með öðrum ákærðu, sem hafi verið spjallhópur vina. Hann mundi ekki til þess að þeir hefðu rætt sölu fíkniefna. Þá kannaðist hann ekki við excel-skjal, sem fannst í síma sem tekinn var af meðákærða John Minh Tuan. Ákærði mundi ekki hvernig peningar sem þar fundust hefðu verið til komnir.
  15. Ákærði Davíð Viet kvaðst hafa verið í bullandi neyslu og í miklum fráhvörfum á þeim tíma er hann hafi gefið skýrslur sínar hjá lögreglu. Kvaðst hann muna lítið eftir framburði sínum þar og kvaðst á þeim tíma hafa verið til í að segja hvað sem væri til að losna úr þeim aðstæðum sem hann hafi verið í.
  16. Ákærði kvað það vera rangt að meðákærðu Daníel og John Minh Tuan hefðu verið að selja fíkniefni fyrir hann, sem og að þeir hefðu staðið saman að sölu fíkniefna. Þá kannaðist ákærði ekki við að hafa sagt að haldlagðir peningar væru ágóði af sölu fíkniefna, það hefði ekki verið þannig. Ákærði kvaðst hafa fengið peningatalningarvél gefins og átt hana.
  17. Ákærði Davíð Viet greindi einnig frá því fyrir dómi að ákærðu hefðu í sameiningu leigt húsnæðið á B og hann verið í bílaviðgerðum. Hann viti ekki um aðra. Ákærði kvaðst hafa þurft að borga sinn hluta leigunnar en ekki geta svarað varðandi aðra. Aðspurður um framburð sinn hjá lögreglu um að meðákærði Árni Khanh hefði séð um pökkunaraðstöðuna í B kvaðst ákærði hafa vitað af henni að hluta til en ekki vitað hvað aðrir gerðu. Hann kannaðist hins vegar ekki við framburð sinn hjá lögreglu um að hann hefði komið að verðlagningu fíkniefna. Hann hefði hins vegar sett upp myndavélakerfi í B.
  18. Ákærði Davíð Viet kvaðst ekki hafa vitað hvort meðákærði Árni Khanh væri umsjónarmaður geymslunnar að D í Kópavogi. Ákærði kannaðist hins vegar við auðkenni meðákærðu í umræðum innan ABC-hópsins á Signal. Meðákærði Árni Khanh hafi verið KK, meðákærði Daníel hafi verið D en meðákærði John Minh Tuan hafi verið Tommy. Sjálfur kvaðst hann ekki muna hvort hann hefði verið G eða TEEMO. Ákærði neitaði því einnig að hafa séð um móttöku pantana frá viðskiptavinum hópsins og séð um útdeilingu til meðákærðu. Ákærði kannaðist auk þess ekki við fyrri framburð sinn hjá lögreglu um að meðákærði Árni Khanh hafi séð um pökkun en meðákærðu Daníel og John Minh Tuan um smásölu.
  19. Ákærði sagði að þeir meðákærði Árni Khanh hefðu farið með efnin, sem maðurinn sem þeir sóttu til Keflavíkur hefði komið með, á D þar sem geyma hafi átt efnin. Kvaðst ákærði hins vegar ekki vita um magn þeirra efna. Hann hafi einungis átt að sækja manninn og geyma efnin. Erlendur aðili hafi beðið hann um það. Maðurinn hafi ekki komið með efni sem hann hafi átt að selja.
  20. Eins og sjá má hér að framan hefur ákærði Davíð Viet að miklu leyti horfið frá framburði sínum hjá lögreglu, sem hann gaf 23. og 29. júlí 2024 er hann var enn í haldi lögreglu og án þess að hann hefði haft tök á því að bera sig saman við meðákærðu. Þáverandi verjandi hans var viðstaddur þær skýrslutökur og gerði engar athugasemdir við þær, ástand ákærða eða annað sem skýrslutökunum tengdist. Myndbandsupptökur af skýrslum ákærða gefa auk þess ekki tilefni til að ætla annað en að faglega og eðlilega hafi verið staðið að skýrslutökunum. Þá verður ekki annað séð en að ákærði hafi verið í góðu standi er hann gaf skýrslur sínar og hann svaraði flestum spurningum rannsakara greiðlega, sbr. vitnisburð lögreglumanns nr. I fyrir dómi.
  21. Framburður Davíðs Viet hefur samkvæmt framansögðu verið óstöðugur. Það er mat dómsins að ákærði hafi ekki gefið trúverðugar skýringar á breyttum framburði sínum fyrir dómi. Greinargóður og ítarlegur framburður ákærða hjá lögreglu 23. og 29. júlí 2024, sem eins og áður segir var tekinn upp á myndband, þykir hins vegar vera trúverðugur, sbr. 115. gr. laga nr. 88/2008, enda fær hann stoð í öðrum gögnum málsins, þ.m.t. framburði meðákærða Daníels fyrir lögreglu og framburði meðákærða John Minh Tuan fyrir dómi, ljósmyndum og öðrum gögnum málsins.
  22. Ákærði lýsti sem fyrr segir á greinargóðan og ítarlegan hátt hjá lögreglu brotastarfsemi ABC-hópsins. Voru lýsingar hans í samræmi við lýsingar meðákærðu Daníels og John Minh Tuan, án þess að þeir hefðu haft tækifæri til að bera saman bækur sínar. Verður framburður Davíðs Viet fyrir lögreglu þar af leiðandi lagður til grundvallar dómi í málinu, að því marki sem misræmi er á milli framburðar hans hjá lögreglu og fyrir dómi, fremur en framburður hans fyrir dómi. Er framburður ákærða fyrir dómi að mörgu leyti fjarstæðukenndur að mati dómsins, í ljósi annarra gagna málsins og fyrri framburðar ákærða sjálfs. Þáverandi verjandi ákærða var sömuleiðis viðstaddur er hann gaf framburð sinn hjá lögreglu, eins og áður segir, til að gæta hagsmuna ákærða.

Um trúverðugleika framburðar ákærða John Minh Tuan

  1. Ákærði John Minh Tuan greindi frá því í skýrslu sinni hjá lögreglu 23. júlí 2024 að hann hefði tekið á móti pöntun fíkniefna í gegnum síma. Sá sem hafi pantaði efnin hafi verið lögreglumaður. John Minh Tuan sagðist ekki vera viss um skipulag ABC-hópsins heldur færi hann sjálfur á tiltekinn stað og fengi efni til að selja. Kvaðst hann fara að B í Reykjavík til að kaupa efni. Hann játaði því að hafa lykil að húsnæðinu þar sem þeir hefðu skilið lykil eftir handa honum til að hann gæti sótt efnin. Kvaðst John Minh Tuan sækja þangað hluti sem hann hefði pantað á netinu, en hann hefði aldrei hafa hitt aðra í ABC-hópnum.
  2. Í skýrslu sinni 26. júlí 2024 greindi ákærði John Minh Tuan frá því að KK gæti verið merki eða manneskja, en sagði svo að það væri einhver víetnamskur maður. Hann sagði G vera Davíð, en John Minh Tuan kvaðst ekki vita hvað Davíð héti fullu nafni. Sjálfur sagðist John Minh Tuan vera Tommy í spjalli ABC-hópsins á Signal og að sá sem seldi honum vöruna héti Danni, sem kallaður væri D í samskiptum hópsins. Kvaðst John Minh Tuan hafa stundað umrædda iðju í um það bil mánuð. Þegar hann hafi þurft að kaupa vöru hafi hann haft samband við þá og svo farið og sótt vöruna. Eftir að salan hafi farið fram hafi hann skilað peningunum til þeirra, í box að B, en Danni hafi látið hann hafa lykil að húsnæðinu.
  3. John Minh Tuan kvaðst hafa átt að fá lítinn hagnað af sölu efnanna, en hann tengdist ekki Cannabiz Inc. Kvað John Minh Tuan að hann hefði flutt fíkniefni frá B í bláum poka, en hann kvaðst sjálfur setja efnin í pokann. John Minh Tuan sagði gælunafn Árna Khanh vera KK. John Minh Tuan kvaðst ekki þekkja D í Kópavogi eða E í Reykjavík. Þá kvaðst hann hvorki vita hvaðan hópurinn hefði fengið fíkniefni né hver pakkaði efnunum. Eins kvaðst hann ekki kannast við X.
  4. Ákærði John Minh Tuan kvaðst sem fyrr segir fyrir dómi hafa átt þau fíkniefni sem fundust við handtöku hans á […] 22. júlí 2024. Þar hafi hann verið í þeim tilgangi að selja fíkniefni. Þau fíkniefni sem fundist hafi í bifreiðinni sem hann ók hafi hann fengið að B í Reykjavík og þau verið ætluð til dreifingar. John Minh Tuan sagði að hópurinn, þ.e. meðákærðu, hefði undirbúið efnin til dreifingar og það eina sem hann hefði gert hefði verið að sækja efnin. Ákærði kvað alla ákærðu hafa haft aðgang að B.
  5. Ákærði John Minh Tuan Dang kvaðst fyrir dómi mest hafa verið í samskiptum við meðákærðu Davíð Viet og Árna Khanh en hann hafi byrjað að selja fíkniefni um mánuði áður en hann hafi verið handtekinn. Meðákærðu hafi tekið á móti pöntunum og látið ákærða vita, í gegnum síma sem meðákærði Davíð Viet hafi látið hann hafa. Ákærði kvaðst hafa fengið pantanir í gegnum símann og farið með efni til viðskiptavina í litlum pakkningum, 1–5 grömm. Ákærði kvaðst hafa séð sjálfur um litlar pantanir.
  6. Ákærði John Minh Tuan kvað alla ákærðu hafa átt samskipti í gegnum Signal-hópinn ABC og rætt þar sölu fíkniefna. Þar hafi þeir fjórir, þ.e. hann og meðákærðu samkvæmt ákærulið I, rætt saman um fíkniefnasöluna og þeir hafi verið meðvitaðir um aðild hvers annars. Ákærði kannaðist við excel-skjal í síma sem hann hafði sem fyrr segir fengið hjá meðákærða Davíð Viet en kvaðst ekki þekkja skjalið vel. Þegar hann hafi verið búinn að fara með pöntun til viðskiptavinar hafi hann átt að færa afgreitt inn í skjalið, með því að merkja við tiltekinn reit (tikka í box).
  7. Ákærði John Minh Tuan kvaðst ekki þekkja skipulag ABC-hópsins vel en Davíð Viet hefði rætt um að hann fengi greitt vikulega. Hann hafi yfirleitt fengið um 100.000 krónur en salan hafi ekki verið mikil. Ákærði kvað þá fjóra hafa verið kunningja til margra ára, en hann hefði einnig unnið með meðákærða Árna Khanh. John Minh Tuan sagði meðákærða Davíð Viet hafa verið meira í því að stjórna starfseminni en meðákærðu Daníel og Árni Khanh hafi verið í sölu. Ákærði kvaðst ekki hafa vitað hvernig hinir í hópnum útveguðu þau fíkniefni sem hann seldi, en hann hefði aðeins komið á B, en meðákærði Daníel hefði látið hann hafa lykil.
  8. Ákærði kvaðst hafa látið meðákærða Davíð Viet hafa það sem hann hafi fengið fyrir seld efni eða sett það í svart box á geymslustaðnum við B. Salan hafi farið þannig fram að hringt hafi verið í Davíð Viet en ef hann hafi ekki svarað hafi símtalið flust yfir í símann hjá ákærða. Vörur í bláum pokum sem hann hafi sést ferja á milli á ljósmyndum hafi verið vörur sem búið hafi verið að taka til fyrir hann. Það hafi einnig gerst að hann tæki vörur til sjálfur.
  9. Framburður ákærða John Minh Tuan fyrir dómi fær stoð af því sem fram hefur komið við rannsókn málsins, sem hófst sem fyrr segir við handtöku ákærða sjálfs. Er framburður ákærða með öðrum orðum í samræmi við önnur gögn málsins og framburði meðákærðu Daníels og Davíðs Viet hjá lögreglu, sem þeir gáfu sem fyrr segir án þess að þeir hefðu haft tök á að samræma framburði sína og að viðstöddum verjendum sínum, sem eykur trúverðugleika þeirra framburða. Þykir framburður John Minh Tuan þar af leiðandi vera trúverðugur, sbr. 115. gr. laga nr. 88/2008. Verður hann samkvæmt því lagður til grundvallar dómi í málinu, ekki aðeins hvað hann sjálfan varðar heldur einnig varðandi meðákærðu.

Um trúverðugleika framburða vitna

  1. Framburðir þeirra vitna sem gáfu skýrslu fyrir dómi þykja trúverðugir svo langt sem þeir ná, sbr. 126. gr. laga nr. 88/2008.

Niðurstaða um sýknu eða sakfellingu ákærðu

  1. Ákærði Árni Khanh hefur sem fyrr segir staðfastlega neitað sök í málinu og kannast hvorki við að vera hluti ABC-hópsins á Signal né að hafa komið að pökkun eða dreifingu fíkniefna. Hinum meðákærðu ber þó öllum saman um að Árni Khanh hafi verið hluti af hópnum og tekið virkan þátt í starfsemi hans. Hafi hlutur hans og umbun verið jöfn hlutum annarra í hópnum. Árni Khanh hafi meðal annars séð um pökkun fíkniefna og sölu og dreifingu til viðskiptavina. Hann hafi að auki haft aðgang að húsnæðinu að B og E í Reykjavík og verið umsjónarmaður geymslunnar að D í Kópavogi, eins og áður segir.
  2. Árni Khanh hefur gengist við því að hafa farið með meðákærða Davíð Viet til Keflavíkur að morgni 7. júlí 2024 en sannað verður að telja að þangað hafi þeir farið til að sækja burðardýr, X, sem þeir þekktu ekkert. Skýringar ákærða Árna Khanh á þeirri ferð og hvers vegna hann fór einn með umræddum manni í leigubifreið til Reykjavíkur þykja fjarstæðukenndar. Þá kannaðist ákærði ekkert við það í fyrstu skýrslu sinni hjá lögreglu að hafa komið að E í Reykjavík, en sannað þykir að þangað hafi hann farið með leigubifreiðinni, ásamt umræddum manni, líkt og ákærði hefur viðurkennt á síðari stigum meðferðar málsins.
  3. Má einnig ráða af tímasetningu atvika, skjáskotum úr myndbandsupptökum úr öryggismyndavélakerfum frá Keflavík, B og D, frásögnum ákærðu sjálfra og öðrum gögnum málsins að Árni Khanh hafi ásamt meðákærða Davíð Viet sótt X til Keflavíkur að morgni 7. júlí 2024, farið með honum í leigubifreið að E í Reykjavík og hitt þar meðákærða Davíð Viet og svo fylgt honum til meðákærða Daníels að C í Kópavogi. Í það minnsta tvær af þeim ferðatöskum sem X kom með til landsins fundust sem fyrr segir að E. Samkvæmt framburðum Daníels og Davíðs Viet flutti X fíkniefni hingað til lands, allt að 25 kg af maríhúana.
  4. Af framangreindum gögnum, þ.m.t. myndbandsupptökum frá B, má einnig ráða að ákærði Árni Khanh hafi síðar þennan sama dag, 7. júlí 2024, laust eftir kl. 20, komið að B í Reykjavík og meðal annars hitt þar meðákærða Davíð Viet og fleira fólk. Sést ákærði Árni Khanh meðal annars á myndbandi færa kassa innan úr húsnæðinu að B og stafla þeim yfir í bifreið Davíðs Viet af Teslu-gerð. Samkvæmt skýrslu lögreglu ók ákærði Árni Khanh á brott á bifreiðinni, með kassana í farangursgeymslunni.
  5. Af ljósmyndum frá D frá þessu sama kvöldi má ráða að Árni Khanh og Davíð Viet hafi farið með kassana í geymsluna þar og skilið þá eftir þar, en Davíð Víet bar fyrir lögreglu að í þeim kössum hafi verið fíkniefni úr sendingunni sem X hafði komið með til landsins fyrr um daginn. Árni Khanh hafi svo snúið aftur á verkstæðið að B. Árni Khanh hefur borið að hann hafi flutt umrædda kassa að beiðni meðákærða Davíðs Viet og ekki vitað hvað í þeim hafi verið. Er sá framburður hans afar ótrúverðugur að mati dómsins, ekki síst í ljósi atburðarásarinnar og annars sem fram er komið í málinu.
  6. Þá eru einnig meðal gagna málsins skjáskot úr myndbandsupptökum úr öryggismyndavélum að D í Kópavogi, sem sýna ákærða Árna Khanh fara í geymsluna 8., 11., 15., 17., 20. og 21. júlí 2024 og ýmist sækja þangað bláa poka eða kassa sem líktust þeim kössum sem hann hafði sjálfur flutt þangað 7. sama mánaðar. Er það í ósamræmi við framburð ákærða sjálfs, sem kvaðst ýmist hafa komið í geymsluna einu sinni eða ekki muna hvort hann hefði farið þangað oftar. Davíð Viet sagði aftur á móti að Árni Khanh hefði verið umsjónarmaður geymslunnar. Síðast en ekki síst, þá fannst verulegt magn fíkniefna við húsleit í geymslunni þann 22. júlí 2024.
  7. Rennir þetta og fleira stoðum undir framburði ákærðu Daníels og Davíðs Viet um að X hafi flutt hingað til lands verulegt magn fíkniefna þann 7. júlí 2024, að ákærðu Árni Khanh og Davíð Viet hafi sótt X og fíkniefnin til Keflavíkur og að minnsta kosti að nokkru leyti komið þeim fyrir í geymslunni að D í Kópavogi. Þá styður þetta framburð Davíðs Viet og eftir atvikum annarra ákærðu um að Árni Khanh hafi borið ábyrgð á pökkun fíkniefna á vegum ABC-hópsins og verið umsjónaramaður umræddrar geymslu.
  8. Þykir með hliðsjón af öllu framangreindu ekki varhugavert að álykta, ekki síst með hliðsjón af framburðum ákærðu Daníels, Davíðs Viet og John Minh Tuan, myndbandsupptökum og skjáskotum úr myndbandsupptökum, þrátt fyrir staðfasta neitun ákærða sjálfs, að Árni Khanh hafi verið meðlimur ABC-hópsins á Signal og tekið bæði virkan og jafnan þátt í starfsemi hópsins, ásamt meðákærðu, líkt og þeir hafa haldið fram. Framburður ákærða Árna Khanh um hið gagnstæða þykir sem fyrr segir afar ótrúverðugur enda í andstöðu við gögn málsins og trúverðuga framburði annarra.
  9. Ákærðu Daníel, Davíð Viet og John Minh Tuan hafa allir gengist við því að hafa tilheyrt ABC-hópnum á Signal. Þeir hafa auk þess gefið greinargóðar, skilmerkilegar og nánast samhljóða lýsingar á starfsemi hópsins. Framburðir þeirra fá stoð í öðrum gögnum málsins, þ.m.t. gögnum sem fundust í síma John Minh Tuan við handtöku, fíkniefnum og munum sem fundust við húsleitir, meðal annars að B og E í Reykjavík og að D í Kópavogi, myndbandsupptökum frá öryggismyndavélum og skjáskotum úr myndbandsupptökum. Er ekki ástæða til að draga sannleiksgildi framburða þessara ákærðu í efa, enda studdir gögnum eins og áður segir, auk þess sem innra samræmi framburða þeirra er gott.

Niðurstaða varðandi heimfærslu brota ákærðu til refsiákvæða

  1. Ákærðu eru sem fyrr segir allir ákærðir fyrir skipulagða brotastarfsemi, sbr. 1. mgr. 175. gr. a almennra hegningarlaga. Samkvæmt því ákvæði skal sá er sammælist við annan mann um að fremja verknað, sem varðar að minnsta kosti fjögurra ára fangelsi og framkvæmd hans er liður í starfsemi skipulagðra brotasamtaka, sæta fangelsi allt að fjórum árum, nema brot hans varði þyngri refsingu samkvæmt öðrum ákvæðum laganna eða öðrum lögum. Ákvæði þetta var innleitt í lög með breytingum á almennum hegningarlögum, sbr. lög nr. 149/2009. Samkvæmt 2. mgr. sömu greinar er með skipulögðum brotasamtökum átt við félagsskap þriggja eða fleiri manna sem hefur það að meginmarkmiði, beint eða óbeint í ávinningsskyni, að fremja með skipulegum hætti refsiverðan verknað sem varðar að minnsta kosti fjögurra ára fangelsi, eða þegar verulegur þáttur í starfseminni felst í því að fremja slíkan verknað.
  2. Samkvæmt athugasemdum í því frumvarpi sem varð að lögum nr. 149/2009, sem breyttu sem fyrr segir almennum hegningarlögum, er það áskilið að tilvist og mótun félagsskaparins sé ekki tilviljunarkennd heldur sé um að ræða meðvitað samstarf á milli þriggja eða fleiri manna um skipulega framkvæmd refsiverðra verka sem fullnægja framangreindum skilyrðum eða að verulegur þáttur í starfseminni felist í því að fremja slíkan verknað. Þá verður framkvæmd refsiverðs verknaðar að vera beint eða óbeint í ávinningsskyni. Ekki er þar áskilið að ávinningurinn sé fjárhagslegur heldur getur hvers konar efnislegur ávinningur eftir atvikum fullnægt hlutrænum efnisskilyrðum ákvæðisins.
  3. Af framburðum ákærðu Daníels, Davíðs Viet og John Minh Tuan verður að mati dómsins glögglega ráðið að um skipulagða brotastarfsemi hafi verið að ræða hjá ákærðu fjórum og að þeir hafi allir átt þar jafna aðild að, þó svo að einhver verkaskipting hafi verið á milli ákærðu. Í síma John Minh Tuan og við húsleitir fundust einnig gögn sem styðja það að um skipulagða brotastarfsemi brotasamtaka hafi verið að ræða, þ.m.t. listar yfir viðskiptavini, verðlistar fíkniefna og fleira, sem bendir til þess að um verulega skipulagningu hafi verið að ræða. Ákærðu héldu einnig bókhald yfir viðskiptamenn sína og skuldastöðu þeirra þar sem þeim var meðal annars gefin einkunn. Brotastarfsemi ákærðu fór sömuleiðis fram á mörgum mismunandi stöðum og þeir höfðu aðgang að húsnæði víðsvegar. Var húsnæðið að B í Reykjavík og áður að E notað til pökkunar en D í Kópavogi sem geymsla, auk þess sem ákærðu höfðu hjá sér efni til dreifingar og sölu þannig að þeir gætu brugðist skjótt við ef pöntun bærist. Þá ræddu ákærðu saman, skiptu kostnaði og hagnaði og hjálpuðust að ef einhver þeirra var vant við látinn og ekki í aðstöðu til að bregðast við pöntun. Skilyrði um að refsiverður verknaður varði að minnsta kosti fjögurra ára fangelsi er einnig fullnægt. Þá verður einnig að fallast á að það hafi verið verulegur þáttur í starfseminni að fremja slíkan verknað.
  4. Að framangreindu virtu verður að fallast á það með ákæruvaldinu að um skipulagða brotastarfsemi hafi verið að ræða og að ákærðu hafi allir átt þar jafna aðild að. Þá verður sömuleiðis að fallast á að um stórfellt fíkniefnalagabrot sé að ræða, meðal annars með hliðsjón af umfangi brotastarfseminnar og magni þeirra fíkniefna sem fundust við húsleitir í málinu. Þykir sömuleiðis ekki skipta öllu máli, í ljósi framangreinds, hvar fíkniefnin fundust, hvert hafi verið magn þeirra fíkniefna sem fundust á hverjum stað eða hver hafi verið umráðamaður þess húsnæðis sem um ræddi hverju sinni, enda báru ákærðu að mati dómsins allir sameiginlega ábyrgð á þeim fíkniefnum sem hópurinn hafði til sölu. Eru því að mati dómsins skilyrði til að sakfella alla ákærðu fyrir vörslur þeirra fíkniefna sem talin eru upp í ákærulið I í ákærunni, óháð því hvar efnin fundust, hvert hafi verið magn efna á hverjum stað eða hver hafi verið umsjónarmaður þess húsnæðis þar sem efnin fundust. Þá verður einnig að fallast á það með hliðsjón af framansögðu og gögnum málsins og að virtu því úrvali og magni efna sem um ræðir að fíkniefnin hafi ákærðu haft í vörslum sínum í sölu- og dreifingarskyni, líkt og í ákæru greinir.
  5. Ákærðu eru sem fyrr segir einnig ákærðir fyrir að hafa í félagi, í ótilgreindan tíma og fram til 22. júlí 2024, útvegað, tekið á móti, varðveitt, pakkað, dreift og selt fíkniefni af óþekktu magni af þeim tegundum sem hald var lagt á þann 22. júlí 2024, sbr. framanritað. Er þessi liður ákærunnar byggður á framburðum ákærðu Daníels, Davíðs Viet og John Minh Tuan fyrir lögreglu. Þessi hluti ákærunnar fær einnig stoð af öðrum gögnum málsins, þ.m.t. af gögnum sem fundust í síma John Minh Tuan, efnum, munum, tækjum og tólum sem fundust við húsleitir að B og E í Reykjavík og að C og D í Kópavogi. Benda þessi gögn, efni, munir, tæki og tól til þess að ákærðu hafi útvegað, tekið á móti, varðveitt, pakkað, dreift og selt fíkniefni af þeim tegundum sem haldlögð voru, í ótilgreindan tíma og fram til 22. júlí 2024, líkt og ákærðu Daníel, Davíð Viet og John Minh Tuan hafa allir greint frá.
  6. Af framburðum ákærðu Daníels og Davíðs Viet hjá lögreglu má ráða að magn þeirra fíkniefna sem ákærðu útveguðu, tóku á móti, varðveittu, pökkuðu, dreifðu og seldu hafi verið umtalsvert, en Davíð Viet greindi meðal annars frá því að sölutekjur hópsins væru stundum 3.000.000–4.000.000 króna á viku og allt að 10.000.000 króna. Eins báru ákærðu um það að hópurinn hefði tekið á móti allt að 30 kg af maríhúana í júní og júlí 2024, en einungis hluti þess magns fannst við húsleitir í málinu. Á hinn bóginn ríkir veruleg óvissa um það hversu lengi hópurinn hafði stundað þá brotastarfsemi sem um ræðir sem og um það hvert hafi verið raunverulegt magn þeirra efna sem um hendur hópsins fóru, sem skýra verður ákærðu í hag, sbr. 108. gr. laga nr. 88/2008.
  7. Að öllu framangreindu virtu og með hliðsjón af gögnum og atvikum málsins þykir það hafið yfir allan skynsamlegan vafa að ákærðu hafi allir framið þann verknað sem þeim er gefinn að sök í ákærulið I í ákærunni, sbr. 108. og 109. gr. laga nr. 88/2008. Verða þeir því allir sakfelldir fyrir þau brot sem lýst er í verknaðarlýsingu ákæruliðar I í ákærunni. Brot ákærðu þykja sömuleiðis vera rétt heimfærð til refsiákvæða í ákærunni. Vafi um hversu lengi brotastarfsemi ákærðu hafi varað og um magn þeirra fíkniefna sem um hendur hópsins fóru verður hins vegar virtur ákærðu til hagsbóta við ákvörðun refsingar í málinu, sbr. 108. gr. laga nr. 88/2008.

V

Niðurstaða varðandi refsingu ákærða og önnur atriði

  1. Ákærði, Árni Khanh Minh Dao, er fæddur í […]. Samkvæmt framlögðu sakavottorði hans, dagsettu 5. febrúar 2026, á ákærði nokkurn sakaferil að baki. Með dómi Héraðsdóms Reykjavíkur […] 2021 var ákærði dæmdur til að sæta fangelsi í 60 daga, skilorðsbundið í tvö ár, vegna brota gegn umferðarlögum, lögum um ávana- og fíkniefni og barnaverndarlögum, auk þess sem ákærði var sviptur ökurétti í tvö ár og sex mánuði. Með dómi Héraðsdóms Reykjaness frá […] 2023 var ákærði dæmdur til að sæta fangelsi í þrjú ár, skilorðsbundið í fimm ár, fyrir brot gegn 173. gr. a almennra hegningarlaga. Hefur ákærði rofið skilorð þess dóms með þeim brotum sem hann er sakfelldur fyrir í máli þessu. Verður það mál því tekið upp og dæmt í einu lagi fyrir það brot sem ákærði var sakfelldur fyrir í því máli og þau brot sem hann er sakfelldur fyrir í þessu máli, sbr. 60. gr. og 77. gr. almennra hegningarlaga.
  2. Ákærði, Daníel Ramadhan Sigurgeirsson, er fæddur í […]. Samkvæmt framlögðu sakavottorði ákærða, dagsettu 5. febrúar 2026, var ákærði dæmdur með dómi Héraðsdóms Reykjavíkur […] 2019 til að sæta fangelsi í fjóra mánuði, skilorðsbundið til tveggja ára, vegna brota gegn ákvæðum laga um ávana- og fíkniefni. Þar sem langt er um liðið frá því að sá dómur féll, skilorðstíminn er liðinn og ákærði hefur að auki ekki brotið af sér síðan þá, svo að séð verði, þykir sá dómur hafa takmörkuð áhrif við ákvörðun refsingar í þessu máli, sbr. 5. tölulið 1. mgr. 70. gr. almennra hegningarlaga.
  3. Ákærði, Davíð Viet Quoc Davíðsson, er fæddur í […]. Samkvæmt framlögðu sakavottorði ákærða, dagsettu 5. febrúar 2026, á hann nokkurn sakaferil að baki. Með dómi Héraðsdóms Reykjavíkur frá […] 2015 var ákærði dæmdur til að sæta fangelsi í þrjá mánuði, skilorðsbundið í þrjú ár, vegna brota gegn lögum um ávana- og fíkniefni. Með dómi Héraðsdóms Reykjavíkur […] 2019 var ákærði dæmdur til að sæta fangelsi í sex mánuði, skilorðsbundið í tvö ár, vegna brota gegn sömu lögum og fyrir brot gegn umferðarlögum. Var ákærða sömuleiðis gert að sæta sviptingu ökuréttar í 18 mánuði. Með dómi Héraðsdóms Norðurlands vestra […] 2021 var skilorðsdómurinn frá […] 2019 tekinn upp og ákærði dæmdur til að sæta fangelsi í sex mánuði, skilorðsbundið í tvö ár, vegna brota gegn lögum um ávana- og fíkniefni og brota gegn umferðarlögum. Hinn […] sama ár gekkst ákærði undir lögreglustjórasátt hjá lögreglustjóranum á höfuðborgarsvæðinu vegna umferðarlagabrota, þ.m.t. sviptingu ökuréttar í þrjú ár. Með dómi Héraðsdóms Reykjavíkur […] 2021 var ákærði dæmdur til að sæta fangelsi í 18 mánuði fyrir brot gegn 173. gr. a almennra hegningarlaga, sbr. 20. gr. sömu laga, en fullnustu 15 mánaða af þeirri refsingu var frestað skilorðsbundið í tvö ár. Voru skilorðsdómar frá […] 2015 og […] 2021 teknir upp. Samkvæmt sakavottorði ákærða lauk afplánun þess dóms 21. október 2024, þ.e. eftir að ákærði framdi þau brot sem honum eru gefin að sök í þessu máli. Með dómi Héraðsdóms Suðurlands frá […] 2022 var ákærði dæmdur til að sæta fangelsi í 16 mánuði fyrir brot gegn lögum um ávana- og fíkniefni og fyrir umferðarlagabrot, en fullnustu 15 mánaða af þeirri refsingu frestað skilorðsbundið í tvö ár. Ákærði var einnig sviptur ökurétti ævilangt og skilorðsdómur frá […] 2021 tekinn upp og dæmdur ásamt brotum hans í nefndu máli. Samkvæmt sakavottorði ákærða lauk afplánun þess dóms 20. nóvember 2024. Ákærði var enn á ný dæmdur með dómi Héraðsdóms Reykjavíkur […] 2024 til að sæta fangelsi í tvö ár og einn mánuði vegna brota gegn ákvæðum laga um ávana- og fíkniefni, og fyrir brot gegn umferðarlögum, en fullnustu 22 mánaða af þeirri refsingu var frestað skilorðsbundið í tvö ár. Ævilöng svipting ökuréttar var sömuleiðis áréttuð. Samkvæmt sakavottorði ákærða lauk ákærði fullnustu þess dóms 18. febrúar 2025. Verður litið til þessa sakaferils ákærða við ákvörðun refsingar í máli hans, sbr. 5. tölulið 1. mgr. 70. gr. almennra hegningarlaga, en með brotum sínum nú hefur ákærði rofið skilorð fyrrnefnds dóms Héraðsdóms Reykjavíkur frá […] 2024. Verður skilorðsbundinn hluti þess dóms tekinn upp og dæmdur að nýju samhliða þeim brotum sem ákærði hefur verið sakfelldur fyrir í þessu máli, sbr. 60. gr. og 77. gr. almennra hegningarlaga.
  4. Ákærði, John Minh Tuan Dang, er fæddur í […]. Samkvæmt framlögðu sakavottorði, dagsettu 5. febrúar 2026, á ákærði nokkurn sakaferil að baki. Var ákærði dæmdur í dómi Héraðsdóms Reykjaness […] 2020 til að sæta fangelsi í þrjá mánuði, skilorðsbundið í tvö ár, vegna líkamsárásar og brota gegn barnaverndarlögum og lögum um ávana- og fíkniefni. Ákærði var á ný dæmdur með dómi Héraðsdóms Reykjavíkur […] 2023 til að sæta fangelsi í sjö mánuði, skilorðsbundið í tvö ár, vegna brota gegn ákvæðum laga um ávana- og fíkniefni. Var skilorðsdómurinn frá […] 2020 tekinn upp og dæmdur að nýju. Með þeim brotum sem ákærði hefur verið sakfelldur fyrir í þessu máli hefur ákærði rofið skilorð fyrrnefnds dóms Héraðsdóms Reykjaness frá […] 2023. Verður sá dómur því tekinn upp og dæmdur að nýju samhliða brotum ákærða í þessu máli, sbr. 60. gr. og 77. gr. almennra hegningarlaga, auk þess sem litið verður til þessa sakaferils ákærða við ákvörðun refsingar í málinu, sbr. 5. tölulið 1. mgr. 70. gr. almennra hegningarlaga.
  5. Skýlaus játning ákærða John Minh Tuan fyrir dómi verður virt honum til málsbóta við ákvörðun refsingar hans í málinu, sbr. 8. tölulið 1. mgr. 70. gr. almennra hegningarlaga. Ákærðu Daníel og Davíð Viet breyttu hins vegar framburðum sínum fyrir dómi í verulegum atriðum, eftir að hafa játað brot sín skýlaust fyrir lögreglu. Féllu ákærðu með því frá játningu sinni fyrir lögreglu. Missa þeir því, ólíkt meðákærða John Minh Tuan, að verulegum hluta af þeim málsbótum sem alla jafna fylgja því að játa brot sín skýlaust fyrir dómi, sbr. 8. tölulið 1. mgr. 70. gr. almennra hegningarlaga.
  6. Við ákvörðun refsingar allra ákærðu er litið til þess eins og áður segir, ákærðu öllum til hagsbóta, að óvissa ríkir um það hversu lengi háttsemi þeirra hafði varað og um magn þeirra fíkniefna sem um hendur þeirra fóru. Þá er einnig horft til þess, ákærðu til hagsbóta, að nokkuð er um liðið síðan þeir frömdu brot sín. Á hinn bóginn fannst mikið magn af hættulegum fíkniefnum í þeirra vörslum, þ. á m. amfetamín, kókaín, MDMA og LSD. Fíkniefnin voru sömuleiðis ætluð til dreifingar til almennings. Brot sín frömdu ákærðu í ágóðaskyni. Brotavilji ákærðu var sömuleiðis styrkur og einbeittur. Verður litið til alls þessa til þyngingar refsingar ákærðu, sbr. 1., 3., 6. og 7. tölulið 1. mgr. 70. gr. almennra hegningarlaga.
  7. Ákærðu frömdu brot sín í félagi, sem horfir til refsiþyngingar, sbr. 2. mgr. 70. gr. al- mennra hegningarlaga. Þá hafa ákærðu Árni Khanh, Davíð Viet og John Minh Tuan áður verið dæmdir fyrir brot gegn lögum um meðferð ávana- og fíkniefna, Árni Khanh einnig fyrir brot gegn 173. gr. a almennra hegningarlaga og Davíð Viet fyrir brot gegn 173. gr. a almennra hegningarlaga, sbr. 20. gr. sömu laga. Þau brot hafa ítrekunaráhrif við ákvörðun refsingar þeirra, sbr. 71. gr. almennra hegningarlaga. Er litið til þess við ákvörðun refsingar þeirra í málinu, sbr. og 5. tölulið 1. mgr. 70. gr. almennra hegningarlaga, eins og áður segir.
  8. Með hliðsjón af framangreindu, sakarefni þessa máls og 60. gr. og 77. gr. almennra hegningarlaga þykir refsing ákærða Árna Khanh Minh Dao hæfilega ákveðin fangelsi í fjögur ár og sex mánuði. Frá refsingu ákærða dregst sjö daga gæsluvarðhaldsvist hans 24.– 31. júlí 2024, sbr. 76. gr. almennra hegningarlaga.
  9. Með hliðsjón af framangreindu, sakarefni þessa máls og 77. gr. almennra hegningarlaga þykir refsing ákærða Daníels Ramadhan Sigurgeirssonar hæfilega ákveðin fangelsi í 18 mánuði en fresta skal fullnustu 15 mánaða af þeirri refsingu og falli hún niður að liðnum þremur árum frá birtingu dóms þessa, haldi ákærði almennt skilorð 57. gr. almennra hegningarlaga. Frá óskilorðsbundnum hluta refsingar ákærða dregst átta daga gæsluvarðhaldsvist hans 23.–31. júlí 2024, sbr. 76. gr. almennra hegningarlaga.
  10. Með hliðsjón af framangreindu, sakarefni þessa máls og 60. gr. og 77. gr. almennra hegningarlaga þykir refsing ákærða Davíðs Viet Quoc Davíðssonar hæfilega ákveðin fangelsi í þrjú ár og fjóra mánuði. Frá refsingu ákærða dregst átta daga gæsluvarðhaldsvist hans 23.–31. júlí 2024, sbr. 76. gr. almennra hegningarlaga.
  11. Með hliðsjón af framangreindu, sakarefni þessa máls og 60. gr. og 77. gr. almennra hegningarlaga þykir refsing ákærða John Minh Tuan Dang hæfilega ákveðin fangelsi í 20 mánuði en fresta skal fullnustu 17 mánaða af þeirri refsingu og falli hún niður að liðnum þremur árum frá birtingu dóms þessa, haldi ákærði almennt skilorð 57. gr. almennra hegningarlaga. Frá óskilorðsbundnum hluta refsingar ákærða dregst átta daga gæsluvarðhaldsvist hans 23.–31. júlí 2024, sbr. 76. gr. almennra hegningarlaga.
  12. Vegna sakaferils ákærðu Árna Khanh Minh Dao og Davíðs Viets Quoc Davíðssonar kemur ekki til álita að skilorðsbinda refsingu þeirra, sbr. 5. tölulið 1. mgr. 70. gr. almennra hegningarlaga.
  13. Með vísan til lagaákvæða í ákæru eru gerð upptæk 212,76 g af amfetamíni, 1,5 ml af amfetamínvökva, 119,14 g af hassi, 164,26 g af ketamíni, 15.918,27 g af maríhúana, 1.454,15 ml af kannabisblönduðum vökva, 8,26 g af kókaíni, 61,44 g af MDMA-kristöllum, 77 stk. af MDMA-töflum, 122 stk. af súkkulaði er innihélt kannabisefni (samtals 6.980,24 g), 468 stk. af brjóstsykri sem innihéldu kannabisefni (samtals 1.472,96 g), 70,84 g af brjóstsykursmulningi er innihélt kannabisefni, 12 stk. gúmmíbangsar er innihéldu kannabisefni (samtals 20,33 g), 77,51 g af brjóstsykri og gúmmíböngsum föstum saman er innihéldu kannabisefni, 239 stk. af lyfjahylkjum með kannabisefni (samtals 67,33 g), 1,92 g af MDMA, 124 stk. af LSD-skömmtum, 9,71 g af metamfetamínkristöllum, 25,01 g af kannabisblönduðu óþekktu brúnu efni, 50 stk. af 5 mg Stesolid-töflum (virkt efni Diazepam), 124,51 g af óþekktum sveppum og 90 stk. af óþekktum töflum, 1.523.500 krónur, 108 dollarar, 9.710 evrur, 27.490 víetnömsk dong (VND), iPhone 14 pro Max, tvær límmiðaarkir, límmiðavél, Brother-prentari, pökkunarvél fyrir lofttæmdar umbúðir, dagbók með skuldalista, iPhone 15 pro max, iPhone pro max, iPhone 13, einnota sprauta, smelluláspoki, svört grammavog, mulningsáhald (e. grinder), límmiðar merktir Kannabis Inc, álfata með kannabisleifum, bók með skuldalista og heildsölum, suðutæki fyrir kannabisvökva, lyklar, límmiðar með mynd af kannabisefni, smelluláspokar merktir Caliberfarms, umbúðir utan um rafsígarettur, hólkar utan um kannabisvindlinga, þrír blandarar með kannabisleifum, tveir kassar af hylkjum, kassi til að vefja kannabisvindlinga, kassi með stórum pokum merktum Caliberfarms, CN- fartölva, umbúðir utan um kannabisvindlinga, vél til að vefja kannabisvindlinga, vél til að innsigla, peningaskápur, límmiðar utan um fíkniefni, fjórar ferðatöskur, öryggismyndavélakerfi og Canon-ljósmyndavél. Varsla framangreindra fíkniefna var andstæð lögum, auk þess sem telja verður að þeir munir sem taldir eru upp hér að framan hafi allir verið notaðir í brotastarfsemi ákærðu. Þá verður einnig að telja að þeir fjármunir sem nefndir eru að framan séu afrakstur af ólögmætri brotastarfsemi ákærðu.
  14. Ákærði, Árni Khanh Minh Dao, greiði málsvarnarlaun skipaðs verjanda síns, Friðriks Smárasonar lögmanns, 2.297.100 krónur að meðtöldum virðisaukaskatti, málsvarnarþóknun verjanda síns á rannsóknarstigi málsins, Birkis Más Árnasonar lögmanns, 777.480 krónur að meðtöldum virðisaukaskatti, og 63.570 krónur í annan sakarkostnað, sbr. 1. mgr. 235. gr., sbr. 1. mgr. 233. gr., laga nr. 88/2008.
  15. Ákærði, Daníel Ramadhan Sigurgeirsson, greiði málsvarnarlaun skipaðs verjanda síns, Sveins Andra Sveinssonar lögmanns, vegna starfa verjandans á rannsóknarstigi málsins og fyrir dómi, 2.305.935 krónur að meðtöldum virðisaukaskatti, sbr. 1. mgr. 235. gr., sbr. 1. mgr. 233. gr., laga nr. 88/2008.
  16. Ákærði, Davíð Viet Quoc Davíðsson, greiði málsvarnarlaun skipaðs verjanda síns, Vilhjálms H. Vilhjálmssonar lögmanns, 2.473.800 krónur að meðtöldum virðisaukaskatti, og málsvarnarþóknun verjanda síns á rannsóknarstigi málsins, Odds Valssonar lögmanns, 1.007.190 krónur að meðtöldum virðisaukaskatti, sbr. 1. mgr. 235. gr., sbr. 1. mgr. 233. gr., laga nr. 88/2008.
  17. Ákærði, John Minh Tuan Dang, greiði málsvarnarlaun skipaðs verjanda síns, Snorra St- urlusonar lögmanns, vegna starfa verjandans á rannsóknarstigi málsins og fyrir dómi, 3.074.580 krónur að meðtöldum virðisaukaskatti, sbr. 1. mgr. 235. gr., sbr. 1. mgr. 233. gr., laga nr. 88/2008.
  18. Ákærðu greiði annan sakarkostnað óskipt, samtals 1.012.617 krónur, sbr. 2. mgr. 236. gr. laga nr. 88/2008.
  19. Af hálfu ákæruvaldsins flutti málið Sigurður Ólafsson saksóknari.
  20. Jóhannes Rúnar Jóhannsson héraðsdómari kveður upp dóm þennan.

Dómsorð:

Frávísunarkröfum ákærðu Árna Khanh Minh Dao, Daníels Ramadhan Sigurgeirssonar, Davíðs Viet Quoc Davíðssonar og John Minh Tuan Dang, er hafnað.

Ákærði, Árni Khanh Minh Dao, sæti fangelsi í fjögur ár og sex mánuði. Frá refsingu ákærða dregst sjö daga gæsluvarðhaldsvist hans 24.–31. júlí 2024.

Ákærði Daníel Ramadhan Sigurgeirsson sæti fangelsi í 18 mánuði en fresta skal fullnustu 15 mánaða af þeirri refsingu og falli hún niður að liðnum þremur árum frá birtingu dóms þessa, haldi ákærði almennt skilorð 57. gr. almennra hegningarlaga. Frá óskilorðsbundnum hluta refsingar ákærða dregst átta daga gæsluvarðhaldsvist hans 23.–31. júlí 2024.

Ákærði Davíð Viet Quoc Davíðsson sæti fangelsi í þrjú ár og fjóra mánuði. Frá refsingu ákærða dregst átta daga gæsluvarðhaldsvist hans 23.–31. júlí 2024.

Ákærði John Minh Tuan Dang sæti fangelsi í 20 mánuði en fresta skal fullnustu 17 mánaða af þeirri refsingu og falli hún niður að liðnum þremur árum frá birtingu dóms þessa, haldi ákærði almennt skilorð 57. gr. almennra hegningarlaga. Frá óskilorðsbundnum hluta refsingar ákærða dregst átta daga gæsluvarðhaldsvist hans 23.–31. júlí 2024.

Upptæk eru gerð 212,76 g af amfetamíni, 1,5 ml af amfetamínvökva, 119,14 g af hassi, 164,26 g af ketamíni, 15.918,27 g af maríhúana, 1.454,15 ml af kannabisblönduðum vökva, 8,26 g af kókaíni, 61,44 g af MDMA-kristöllum, 77 stk. af MDMA-töflum, 122 stk. af súkkulaði er innihélt kannabisefni (samtals 6.980,24 g), 468 stk. af brjóstsykri sem innihéldu kannabisefni (samtals 1.472,96 g), 70,84 g af brjóstsykursmulningi er innihélt kannabisefni, 12 stk. gúmmíbangsar er innihéldu kannabisefni (samtals 20,33 g), 77,51 g af brjóstsykri og gúmmíböngsum föstum saman er innihéldu kannabisefni, 239 stk. af lyfjahylkjum með kannabisefni (samtals 67,33 g), 1,92 g af MDMA, 124 stk. af LSD-skömmtum, 9,71 g af metamfetamínkristöllum, 25,01 g af kannabisblönduðu óþekktu brúnu efni, 50 stk. af 5 mg Stesolid-töflum (virkt efni Diazepam), 124,51 g af óþekktum sveppum og 90 stk. af óþekktum töflum, 1.523.500 krónur, 108 dollarar, 9.710 evrur, 27.490 víetnömsk dong (VND), iPhone 14 pro Max, tvær límmiðaarkir, límmiðavél, Brother-prentari, pökkunarvél fyrir lofttæmdar umbúðir, dagbók með skuldalista, iPhone 15 pro max, iPhone pro max, iPhone 13, einnota sprauta, smelluláspoki, svört grammavog, mulningsáhald (e. grinder), límmiðar merktir Kannabis Inc, álfata með kannabisleifum, bók með skuldalista og heildsölum, suðutæki fyrir kannabisvökva, lyklar, límmiðar með mynd af kannabisefni, smelluláspokar merktir Caliberfarms, umbúðir utan um rafsígarettur, hólkar utan um kannabisvindlinga, þrír blandarar með kannabisleifum, tveir kassar af hylkjum, kassi til að vefja kannabisvindlinga, kassi með stórum pokum merktum Caliberfarms, CN-fartölva, umbúðir utan um kannabisvindlinga, vél til að vefja kannabisvindlinga, vél til að innsigla, peningaskápur, límmiðar utan um fíkniefni, fjórar ferðatöskur, öryggismyndavélakerfi og Canon-ljósmyndavél. Ákærði, Árni Khanh Minh Dao, greiði málsvarnarlaun skipaðs verjanda síns, Friðriks Smárasonar lögmanns, 2.297.100 krónur að meðtöldum virðisaukaskatti, málsvarnarþóknun verjanda síns á rannsóknarstigi málsins, Birkis Más Árnasonar lögmanns, 777.480 krónur að meðtöldum virðisaukaskatti, og 63.570 krónur í annan sakarkostnað Ákærði, Daníel Ramadhan Sigurgeirsson, greiði málsvarnarlaun skipaðs verjanda síns, Sveins Andra Sveinssonar lögmanns, 2.305.935 krónur að meðtöldum virðisaukaskatti.

Ákærði, Davíð Viet Quoc Davíðsson, greiði málsvarnarlaun skipaðs verjanda síns, Vilhjálms H Vilhjálmssonar lögmanns, 2.473.800 krónur að meðtöldum virðisaukaskatti, og málsvarnarþóknun verjanda síns á rannsóknarstigi málsins, Odds Valssonar lögmanns, 1.007.190 krónur að meðtöldum virðisaukaskatti.

Ákærði, John Minh Tuan Dang, greiði málsvarnarlaun skipaðs verjanda síns, Snorra Sturlusonar lögmanns, 3.074.580 krónur að meðtöldum virðisaukaskatti.

Ákærðu greiði annan sakarkostnað óskipt, samtals 1.012.617 krónur.

Jóhannes Rúnar Jóhannsson

Heimildaskrá

Lagaskrá

Lög nr. 19/1940 Almenn hegningarlög 20. gr.57. gr.60. gr.1. mgr. 69. gr. a1. mgr. 69. gr. b1. mgr. 70. gr.2. mgr. 70. gr.71. gr.76. gr.77. gr.173. gr. a1. mgr. 175. gr. a2. mgr. 175. gr. a
Lög nr. 65/1974 Lög um ávana- og fíkniefni 6. mgr. 5. gr.
Lög nr. 88/2008 Lög um meðferð sakamála 108. gr.109. gr.1. mgr. 111. gr.115. gr.126. gr.2. mgr. 134. gr.1. mgr. 152. gr.2. mgr. 169. gr.1. mgr. 180. gr.1. mgr. 233. gr.1. mgr. 235. gr.2. mgr. 236. gr.
Lög nr. 149/2009 Lög um breyting á almennum hegningarlögum, nr. 19 12. febrúar 1940, með síðari breytingum (upptaka, hryðjuverk, skipulögð brotastarfsemi, mansal og peningaþvætti).

Dómaskrá