Fara í efni

Dómstólaleit

Leit í dómum íslenskra dómstóla

Landsréttur

Mál nr. 77/2026:

Ákæruvaldið

(Anna Barbara Andradóttir saksóknari)

gegn

Elmari Erni Eiríkssyni

(Guðmundur St. Ragnarsson lögmaður)

Játningarmál. Ávana- og fíkniefni. Fíkniefnalagabrot. Upptaka. Refsiákvörðun.

E var í héraði sakfelldur fyrir stórfellt fíkniefnalagabrot með því að hafa staðið að innflutningi á 2.217 töflum af oxycontin 80 mg ætluðum til söludreifingar hér á landi í ágóðaskyni. Fíkniefnin flutti hann til landsins sem farþegi í flugi frá Varsjá í Póllandi til Keflavíkur. E játaði sök við þingfestingu málsins í héraði og var farið með málið sem játningarmál. Var E gert að sæta fangelsi í 3 ár að frádregnu gæsluvarðhaldi sem hann hafði sætt, auk þess sem fíkniefnin voru gerð upptæk. Fyrir Landsrétti var eingöngu ágreiningur um ákvörðun refsingar. Við ákvörðun refsingar leit Landsréttur til þess að E hefði flutt til landsins mikil magna af sterkum fíkniefnum sem ætluð voru til söludreifingar hér á landi. Á hinn bóginn horfði það til mildunar refsingar E að hann játaði brot sitt greiðlega bæði á rannsóknarstigi málsins og fyrir dómi. Þá var tekið tillit til þess að ekki lá annað fyrir en að hlutverk E hefði einvörðungu verið í því fólgið að koma efnunum hingað til lands og fá þau öðrum í hendur. Með hliðsjón af þessu var refsing E ákveðin fangelsi í tvö ár og sex mánuði.

Dómur Landsréttar

Mál þetta dæma landsréttardómararnir Ásmundur Helgason, Eyvindur G. Gunnarsson og Símon Sigvaldason.

Málsmeðferð og dómkröfur aðila

  1. Ríkissaksóknari skaut málinu til Landsréttar 20. janúar 2026 í samræmi við yfirlýsingu ákærða um áfrýjun. Málsgögn bárust réttinum 20. mars 2026. Áfrýjað er dómi Héraðsdóms Reykjaness 17. desember 2025 í málinu nr. S-3269/2025.
  2. Ákæruvaldið krefst þess að hinn áfrýjaði dómur verði staðfestur.
  3. Ákærði krefst þess að refsing samkvæmt hinum áfrýjaða dómi verði lækkuð og að gæsluvarðhald er ákærði sætti komi til frádráttar tildæmdri refsingu.

Niðurstaða

  1. Málsatvik eru rakin í hinum áfrýjaða dómi. Í málinu eins og það liggur fyrir Landsrétti er eingöngu ágreiningur um ákvörðun refsingar, sbr. a-lið 1. mgr. 196. gr. laga nr. 88/2008 um meðferð sakamála.
  2. Við ákvörðun refsingar ákærða verður fyrst að líta til þess að hann flutti til landsins mikið magn af sterkum fíkniefnum sem ætluð voru til söludreifingar hér á landi. Á hinn bóginn horfir til mildunar refsingar að ákærði játaði brot sitt greiðlega bæði á rannsóknarstigi málsins og fyrir dómi. Einnig verður að horfa til þess að ekki liggur annað fyrir en að hlutverk ákærða hafi einvörðungu verið í því fólgið að koma efnunum hingað til lands og fá þau öðrum í hendur. Með hliðsjón af öllu framangreindu, sbr. og 1. og 6. tölulið 1. mgr. 70. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940, og dómaframkvæmd á réttarsviðinu, þykir refsing ákærða hæfilega ákveðin fangelsi í tvö ár og sex mánuði. Ekki eru efni til að gera ákærða sekt samhliða fangelsisrefsingu, sbr. 2. mgr. 49. gr. almennra hegningarlaga. Til frádráttar refsingu kemur gæsluvarðhald sem ákærði hefur sætt, sbr. 76. gr. almennra hegningarlaga.
  3. Ákvæði hins áfrýjaða dóms um upptöku fíkniefna og sakarkostnað eru staðfest.
  4. Með vísan til 1. mgr. 237. gr. laga nr. 88/2008 verður áfrýjunarkostnaður málsins felldur á ríkissjóð, þar með talin málsvarnarlaun skipaðs verjanda ákærða fyrir Landsrétti, sem þykja hæfilega ákveðin að meðtöldum virðisaukaskatti eins og í dómsorði greinir.

Dómsorð:

Ákærði, Elmar Örn Eiríksson, sæti fangelsi í tvö ár og sex mánuði. Til frádráttar refsingu kemur gæsluvarðhald sem hann sætti frá 14. til 20. september 2024. Ákvæði hins áfrýjaða dóms um upptöku fíkniefna og sakarkostnað skulu vera óröskuð. Allur áfrýjunarkostnaður málsins greiðist úr ríkissjóði, þar með talin málsvarnarlaun skipaðs verjanda ákærða fyrir Landsrétti, Guðmundar St. Ragnarssonar lögmanns, 424.080 krónur.

Dómur Héraðsdóms Reykjaness 17. desember 2025

Mál þetta var þingfest 24. nóvember 2025 og dómtekið 5. desember 2025. Málið er höfðað með ákæru Lögreglustjórans á Suðurnesjum 16. nóvember 2025 á hendur ákærða, Elmari Erni Eiríkssyni, kt. 000000-0000, […], […],

I.

fyrir stórfellt fíkniefnalagabrot, með því að hafa, föstudaginn 13. september 2024, staðið að innflutningi á samtals 2.217 töflum af oxycontin 80 mg (virkt efni: oxycodonum) ætluðu til söludreifingar hér á landi í ágóðaskyni en fíkniefnin flutti ákærði til Íslands sem farþegi með flugi […] frá Varsjá, Póllandi, til Keflavíkurflugvallar, falin í sælgætispokum í ferðatösku ákærða. Er háttsemin talin varða við 173. gr. a. almennra hegningarlaga nr. 19/1940.

II.

Fyrir brot gegn lögum um ávana- og fíkniefni, með því að hafa, fimmtudaginn 19. september 2025, á lögheimili sínu […], […], haft í vörslum sínum samtals 4 töflur af MDMA sem lögregla fann og haldlagði við húsleit. Er háttsemin talin varða við 2. gr., sbr. 5. og 6. gr. laga um ávana- og fíkniefni nr. 65/1974. Þá er þess krafist að ákærði verði dæmdur til refsingar og til greiðslu alls sakarkostnaðar. Þá er krafist upptöku á ofangreindum 2.217 töflum af oxycontin 80 mg, (ákæruliður nr. I) og 4 töflur af MDMA (ákæruliður nr. II.), með vísan til 6. mgr. 5. gr. laga nr. 65/1974, sbr. 2. mgr. 14. gr. reglugerðar nr. 233/2001.

III.

Af hálfu ákæruvaldsins er þess krafist að ákærði verði dæmdur til refsingar og til greiðslu alls sakarkostnaðar. Þá er krafist upptöku á ofangreindum oxycontin og MDMA töflum með vísan til 6. mgr. 5. gr. laga nr. 65/1974 um ávana- og fíkniefni og 2. mgr. 14. gr. reglugerðar nr. 233/2001 um ávana og fíkniefni og önnur eftirlitsskyld efni.

Við þingfestingu máls játaði ákærði sök samkvæmt ákæru og gekkst greiðlega við því að hafa greint sinn og með tilgreindum hætti staðið að innflutningi til Íslands á téðum oxycontin töflum með tilgreindum styrkleika, sbr. ákæruliður I. Þá játaði hann vörslur á fjórum MDMA töflum, sbr. ákæruliður II. Var því farið með málið að hætti 164. gr. laga nr. 88/2008 um meðferð sakamála og málið dómtekið án frekari sönnunarfærslu eftir að sækjandi og verjandi höfðu tjáð sig um lagaatriði máls og ákvörðun viðurlaga. Af hálfu ákærða er krafist vægustu refsingar sem lög leyfa og að til frádráttar dæmdri refsingu komi að fullri dagatölu gæsluvarðhald frá 14. september til 20. september 2024. Verjandi krefst þóknunar samkvæmt tímaskýrslu.

Með játningu ákærða fyrir dómi, sem samrýmist framburði hans hjá lögreglu og öðrum rannsóknargögnum, er sannað að hann hafi gerst sekur um þá háttsemi sem hann er borinn í ákæru og þar þykir rétt heimfærð til refsiákvæða.

Samkvæmt sakavottorði á ákærði sakaferil sem nær frá 16. desember 2013 til 15. mars 2023. Á því tímabili hefur ákærði samanlagt verið dæmdur í 12 mánaða fangelsi og gert að greiða samanlagt 720.000 króna sekt til ríkissjóðs. Verður litið til greiðrar játningar ákærða hjá lögreglu og fyrir dómi. Á hinn bóginn verður ekki fram hjá því horft að ákærði flutti til landsins töluvert magn afar hættulegra lyfja. Liggur þó ekkert fyrir um að ákærði hafi staðið að skipulagningu eða fjármögnun brotsins. Með hliðsjón af framansögðu og dómaframkvæmd Landsréttar í máli nr. 187/2025 þykir refsing ákærða hæfilega ákveðin fangelsi í þrjú ár. Til frádráttar þeirri refsingu komi að fullri dagatölu gæsluvarðhald ákærða frá 14. september til 20. september 2024, sbr. 76. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940. Þá greiði ákærði 110.000 króna sekt til ríkissjóðs. Greiði ákærði ekki dæmda fésekt innan fjögurra vikna frá dómsbirtingu skal koma í hennar stað 8 daga fangelsi.

Samkvæmt greindri niðurstöðu er fallist á upptökukröfu ákæruvaldsins eins og hún er sett fram í ákæru. Þá ber að dæma ákærða til greiðslu alls sakarkostnaðar, en til hans telst 62.346 króna útlagður kostnaður ákæruvaldsins, þóknun Guðmundar St. Ragnarssonar verjanda ákærða á rannsóknarstigi máls og hér fyrir dómi. Með hliðsjón af eðli og umfangi máls og að teknu tilliti til tímaskýrslu verjanda og viðmiðunarreglna Dómstólasýslunnar nr. 1/2025 þykir þóknun hæfilega ákveðin 1.037.880 krónur að meðtöldum virðisaukaskatti. Sóley Ólöf Rún Guðmarsdóttir aðstoðarmaður dómara kveður upp dóm þennan.

Dómsorð:

Ákærði Elmar Ernir Eiríksson, sæti fangelsi í þrjú ár. Til frádráttar þeirri refsingu komi að fullri dagatölu gæsluvarðhald ákærða frá 14. september til 20. september 2024.

Ákærði greiði 110.000 króna sekt til ríkissjóðs innan fjögurra vikna frá dómsbirtingu en sæti ella 8 daga fangelsi. Ákærði sæti upptöku á 2.217 töflum af oxycontin og fjórum töflum af MDMA. Ákærði greiði 1.100.226 í sakarkostnað, þar með talda 1.037.880 króna þóknun Guðmundar St. Ragnarssonar verjanda síns.

Heimildaskrá

Lagaskrá

Lög nr. 19/1940 Almenn hegningarlög 2. mgr. 49. gr.1. mgr. 70. gr.76. gr.173. gr. a
Lög nr. 65/1974 Lög um ávana- og fíkniefni 2. gr.5. gr.6. mgr. 5. gr.6. gr.
Lög nr. 88/2008 Lög um meðferð sakamála 164. gr.1. mgr. 196. gr.1. mgr. 237. gr.

Dómaskrá