Landsréttur
Dómur fimmtudaginn 18. júní 2026.
Mál nr. 115/2026:
Ákæruvaldið
(Hulda María Stefánsdóttir saksóknari)
gegn
Valentin Jemeljanov
(Einar Oddur Sigurðsson lögmaður)
Lykilorð
Fíkniefnalagabrot. Ávana- og fíkniefni. Játningarmál. Refsiákvörðun. Upptaka.
Útdráttur
V var ákærður fyrir stórfellt fíkniefnalagabrot, sbr. 173. gr. a almennra hegningarlaga nr. 19/1940, með því að hafa staðið að innflutningi á 3.000 ml af kókaíni á vökvaformi með styrkleika 53-56%, ætluðu til söludreifingar hér á landi í ágóðaskyni, en fíkniefnin flutti V til landsins sem farþegi með flugi falin í farangri V. V játaði sök samkvæmt ákæru fyrir dómi og var farið með málið sem játningarmál samkvæmt heimild í 1. mgr. 164. gr. laga nr. 88/2008 um meðferð sakamála. Var V gert að sæta fangelsi í 3 ár og 6 mánuði auk upptöku á haldlögðum fíkniefnum og farsíma. Fyrir Landsrétti var eingöngu til endurskoðunar ákvæði héraðsdóms um refsingu V. Var í dómi Landsréttar vísað til þess að V hefði gengist við þeirri háttsemi sem honum var gefin að sök samkvæmt ákæru og jafngilti magnið um 1.860 g af hreinu kókaíni. Með hliðsjón af þessu og með vísan til þeirra refsiákvörðunarsjónarmiða sem rakin voru í hinum áfrýjaða dómi var refsing V ákveðin fangelsi í 3 ár. Þá staðfesti Landsréttur niðurstöðu hins áfrýjaða dóms um upptöku.
Dómur Landsréttar
Mál þetta dæma landsréttardómararnir Ingibjörg Þorsteinsdóttir og Kristbjörg Stephensen og Eiríkur Elís Þorláksson settur landsréttardómari.
Málsmeðferð og dómkröfur aðila
- Ríkissaksóknari skaut málinu til Landsréttar 3. febrúar 2026 í samræmi við yfirlýsingu ákærða um áfrýjun. Málsgögn bárust réttinum 26. sama mánaðar. Áfrýjað er dómi Héraðsdóms Reykjaness 27. janúar 2026 í málinu nr. S-16/2026.
- Ákæruvaldið krefst þess að refsing ákærða verði þyngd.
- Ákærði krefst þess að refsing hans verði milduð og honum gerð vægasta refsing sem lög leyfa.
Niðurstaða
- Málsatvik eru rakin í hinum áfrýjaða dómi. Í málinu eins og það liggur fyrir Landsrétti er eingöngu ágreiningur um ákvörðun refsingar.
- Ákærði hefur gengist við því að hafa flutt inn 3.000 ml af kókaíni á vökvaformi með styrkleika 53-56%, ætluðu til söludreifingar hér á landi í ágóðaskyni, sem jafngildir um 1.860 g af hreinu kókaíni. Verður því staðfest niðurstaða hins áfrýjaða dóms um sakfellingu ákærða.
- Með hliðsjón af framangreindu og með vísan til þeirra refsiákvörðunarsjónarmiða sem rakin eru í hinum áfrýjaða dómi verður refsing ákærða ákveðin fangelsi í þrjú ár. Til frádráttar refsingu komi gæsluvarðhald sem ákærði hefur sætt vegna málsins frá 23. nóvember 2025 að telja.
- Ákvæði hins áfrýjaða dóms um upptöku og sakarkostnað eru staðfest.
- Með vísan til 1. mgr. 237. gr. laga nr. 88/2008 um meðferð sakamála verður áfrýjunarkostnaður felldur á ríkissjóð, þar með talin málsvarnarlaun verjanda ákærða, sem ákveðin eru að meðtöldum virðisaukaskatti eins og í dómsorði greinir.
Dómsorð:
Ákærði, Valentin Jemeljanov, sæti fangelsi í þrjú ár. Til frádráttar refsingu kemur gæsluvarðhald sem hann hefur sætt frá 23. nóvember 2025. Ákvæði héraðsdóms um upptöku og sakarkostnað skulu vera óröskuð. Allur áfrýjunarkostnaður málsins greiðist úr ríkissjóði, þar með talin málsvarnarlaun skipaðs verjanda ákærða fyrir Landsrétti, Einars Odds Sigurðssonar lögmanns, 812.820 krónur.
Dómur Héraðsdóms Reykjaness 27. janúar 2026
Mál þetta, sem dómtekið var 26. janúar 2026, höfðaði Lögreglustjórinn á Suðurnesjum með ákæru útgefinni 2. janúar 2026, á hendur Valentin Jemeljanov, litháískum ríkisborgara, fæddur […], fyrir stórfellt fíkniefnalagabrot, með því að hafa, laugardaginn 22. nóvember 2025, staðið að innflutningi á samtals 3000 ml af kókaíni á vökvaformi, með styrkleika 53-56%, ætluðu til söludreifingar hér á landi í ágóðaskyni en fíkniefnin flutti ákærði til Íslands sem farþegi með flugi […] frá Riga, Lettlandi, til Keflavíkurflugvallar, falið í fjórum flöskum í farangri ákærða. Er háttsemin talin varða við 173. gr. a almennra hegningarlaga nr. 19/1940 og þess krafist að ákærði verði dæmdur til refsingar og til greiðslu alls sakarkostnaðar. Þá er krafist upptöku á ofangreindum 3000 ml af kókaíni auk upptöku á haldlögðum Google farsíma, muni í munaskrá lögreglu nr. […], sbr. 6. og 7. mgr. 5. gr. laga nr. 65/1974.
Í málinu liggur fyrir matsgerð frá rannsóknarstofu Háskóla Íslands í lyfja- og eiturefnafræðum. Í matsgerð dags. 13.1.2026 segir meðal annars: „Beðið er um útreikning á því hversu mikið magn kókaíns í neyslustyrkleika megi vinna úr því efni, sem sýnin voru úr, nánar tiltekið 3000 ml af efnissýnum merktum […]. Í matsgerð rannsóknastofunnar nr. […], dags. 28.11.2025 kemur fram að efnissýni merkt […] nr. 1- 4 hafi innihaldið 53-56% kókaín. Reiknað verður með 53% hér að neðan. Eðlismassi vökvanna var 1,17 kg/l. Þyngd efnisins er því u.þ.b. 3510 g. Neyslustyrkleiki kókaíns hér á landi hefur ekki verið rannsakaður sérstaklega. Vitað er að neyslustyrkleiki fíkniefna getur verið breytilegur frá einu landi til annars, frá ári til árs og jafnvel milli borga í sama landi. Í útreikningunum hér á eftir verður gengið út frá tölum um neyslustyrkleika kókaíns í Danmörku, en hann var að meðaltali 53% á landsvísu árið 2024. Í þessu samhengi er rétt að benda á að mikill breytileiki hefur verið í neyslustyrkleika kókaíns í Danmörku frá aldamótum. Hæstur var hann 76% árið 2023 og lægstur 16% árið 2007. Sýnið samsvarar því 3510 g af efni, sem inniheldur 53% kókaín.“
Fyrir dómi játaði ákærði sök samkvæmt ákæru, samþykkti upptöku kröfu ákæruvaldsins á fíkniefnunum og Google farsíma, og gekkst greiðlega við því að hafa greint sinn og með tilgreindum hætti staðið að innflutningi til Íslands á tilgreindu kókaíni í vökvaformi og með tilgreindum styrkleika. Var því farið með málið að hætti 164. gr. laga nr. 88/2008 um meðferð sakamála og málið dómtekið án frekari sönnunarfærslu eftir að sækjandi og verjandi höfðu tjáð sig um lagaatriði máls og ákvörðun viðurlaga. Af hálfu ákærða er krafist vægustu refsingar sem lög leyfa og að til frádráttar dæmdri refsingu komi að fullri dagatölu gæsluvarðhald frá 23. nóvember 2025. Verjandi krefst þóknunar samkvæmt tímaskýrslu.
Með játningu ákærða fyrir dómi, sem samrýmist rannsóknargögnum, er sannað að hann hafi gerst sekur um þá háttsemi sem hann er borinn í ákæru og þar þykir rétt heimfærð til refsiákvæða.
Ákærði hefur ekki áður orðið uppvís að refsiverðri háttsemi svo vitað sé. Af fyrirliggjandi gögnum verður ekki ráðið að ákærði hafi verið eigandi nefndra fíkniefna eða tekið þátt í skipulagningu á kaupum og innflutningi þeirra til Íslands með öðrum hætti en þeim að samþykkja að flytja efnin til landsins gegn greiðslu. Verður litið til þessara atriða við ákvörðun refsingar, sem og til greiðrar játningar ákærða fyrir dómi. Á hinn bóginn verður ekki fram hjá því litið að ákærða flutti kókaíni í vökvaformi til landsins sem ætluðu til söludreifingar hér á landi í ágóðaskyni. Með hliðsjón af öllu framansögðu, aldri ákærða og dómaframkvæmd Hæstaréttar í máli 209/2017, þar sem sök var játuð, sbr. landsréttardómar nr. 874/2023 nr. 23/2024 nr. 226/2024 og nr. 228/2024, og til hliðsjónar héraðsdóma nr. 3273/2025 og 2754/2025 þar sem sök var játuð, þykir refsing ákærða hæfilega ákveðin fangelsi í 3 ár og 6 mánuði. Til frádráttar þeirri refsingu komi gæsluvarðhald sem ákærði hefur sætt frá 23. nóvember 2025 að fullri dagatölu, sbr. 76. gr. almennra hegningarlaga.
Samkvæmt greindri niðurstöðu er fallist á upptökukröfu ákæruvaldsins eins og hún er sett fram í ákæru. Jafnframt ber að dæma ákærða til greiðslu alls sakarkostnaðar, en til hans telst 394.959 króna útlagður kostnaður ákæruvaldsins, þóknun Einars Odds Sigurðssonar verjanda ákærða á rannsóknarstigi máls og hér fyrir dómi og 16.286 króna aksturskostnaður verjanda. Með hliðsjón af eðli og umfangi máls og að teknu tilliti til tímaskýrslu verjanda og viðmiðunarreglna Dómstólasýslunnar nr. 1/2026 þykir þóknun verjanda hæfilega ákveðin 1.060.200 krónur að meðtöldum virðisaukaskatti.
Jón Stefán Björnsson aðstoðarmaður dómara kveður upp dóm þennan.
DÓMSORÐ:
Ákærði, Valentin Jemeljanov, sæti fangelsi í 3 ár og 6 mánuði. Til frádráttar þeirri refsingu komi að fullri dagatölu gæsluvarðhald ákærða frá 23. nóvember 2025.
Ákærði sæti upptöku á 3000 millilítrum af haldlögðum kókaínvökva og Google farsíma, muni í munaskrá lögreglu nr. […]. Ákærði greiði 1.471.455 krónur í sakarkostnað, þar með talda 1.060.200 króna þóknun skipaðs verjanda síns Einars Odds Sigurðssonar, að meðtöldum virðisaukaskatti og aksturskostnað lögmannsins 16.286 krónur.