Héraðsdómur Reykjavíkur
Dómur 21. maí 2026.
Mál nr. S-716/2026:
Héraðssaksóknari
(Karl Ingi Vilbergsson settur héraðssaksóknari)
gegn
Elísabetu S. Guðmundsdóttur
(Unnsteinn Örn Elvarsson lögmaður)
Lykilorð
Brot gegn valdstjórninni. Játningarmál.
Útdráttur
Sakborningur, sem játaði brot sitt, sakfelldur fyrir brot gegn valdstjórninni og dæmdur til að sæta fangelsi í 30 daga, skilorðsbundið til tveggja ára.
Dómur
- Mál þetta, sem dómtekið var 15. maí 2026, var höfðað með ákæru, útgefinni af héraðssaksóknara 29. janúar 2026, á hendur Elísabetu S. Guðmundsdóttur, kt. […], […], „fyrir brot gegn valdstjórninni, með því að hafa mánudaginn 2. desember 2024, að […] í Reykjavík, lokað útidyrahurð á fingur lögreglumanns nr. A, sem var við skyldustörf, og hrækt á hann, með þeim afleiðingum að lögreglumaðurinn hlaut mar á fingri og fékk hráka á kinn.
Telst þetta varða við 106. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940.
Þess er krafist að ákærða verði dæmd til refsingar og greiðslu alls sakarkostnaðar.“
- Verjandi ákærðu krefst fyrir hennar hönd vægustu refsingar sem lög leyfa og hæfilegrar málsvarnarþóknunar sér til handa.
- Ákærða neitaði í upphafi sök, en eftir að ákæru málsins var breytt við fyrirtöku málsins 15. maí 2026 breytti ákærða afstöðu sinni og játaði sök. Sú breyting ákærunnar, sem bókuð var í þingbók, fólst í því að ákæruvaldið féll frá þeim hluta ákærunnar sem varðar það að ákærða hafi lokað útidyrahurð á fingur lögreglumanns nr. A með þeim afleiðingum að lögreglumaðurinn hlaut mar á fingri. Eftir stendur að ákærða hafi hrækt á lögreglumanninn og hann fengið hráka á kinn, sem hún hefur nú játað, eins og áður segir.
Niðurstaða varðandi sekt ákærðu o.fl.
- Farið var með mál þetta samkvæmt 164. gr. laga nr. 88/2008 um meðferð sakamála og var það tekið til dóms án frekari sönnunarfærslu þegar sækjanda og verjanda ákærðu hafði verið gefinn kostur á að tjá sig um lagaatriði og ákvörðun viðurlaga.
- Ákærða hefur skýlaust játað brot sitt, að teknu tilliti til þeirra breytinga sem gerðar voru á ákærunni, sbr. 2. mgr. 153. gr. laga nr. 88/2008 um meðferð sakamála. Sannað er með játningu ákærðu og öðrum gögnum málsins að ákærða er sek um þá háttsemi sem henni er gefin að sök og er brot hennar rétt heimfært til refsiákvæða í ákæru.
Niðurstaða varðandi refsingu ákærðu og önnur atriði
- Ákærða er fædd í […]. Samkvæmt framlögðu sakavottorði, dagsettu 28. janúar 2026, á ákærða stuttan sakaferil að baki. Með dómi Héraðsdóms Reykjaness frá […] 2021 var ákærða dæmd til að sæta fangelsi í 30 daga, skilorðsbundið í tvö ár, vegna brots gegn valdstjórninni. Hún gekkst einnig undir lögreglustjórasáttir 15. nóvember 2021 og 21. apríl 2023 vegna brota gegn umferðarlögum. Það er þó einungis fyrr nefndur
dómur Héraðsdóms Reykjaness frá […] 2021 sem þykir hafa áhrif við refsingu
ákærðu í þessu máli, sbr. 5. tölulið 1. mgr. 70. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940, en þar var um samskonar brot að ræða og ákærða er nú dæmd fyrir. Að því virtu þykir sektarrefsing ekki koma til álita í málinu.
- Undir meðferð málsins játaði ákærða brot sitt skýlaust og lýsti yfir iðrun. Horfir það henni til málsbóta, sbr. 8. tölulið 1. mgr. 70. gr. almennra hegningarlaga.
- Með hliðsjón af framangreindu, sakarefni þessa máls og dómvenju þykir refsing ákærðu hæfilega ákveðin 30 daga fangelsi en fresta skal fullnustu refsingarinnar og falli hún niður að liðnum tveimur árum frá birtingu dóms þessa, haldi ákærða almennt skilorð 57. gr. almennra hegningarlaga.
- Ákærða greiði með vísan til 1. mgr. 235. gr., sbr. 1. mgr. 233. gr., laga nr. 88/2008 málsvarnarþóknun skipaðs verjanda síns, Unnsteins Arnar Elvarssonar lögmanns, sem þykir hæfilega ákveðin 424.080 krónur, að teknu tilliti til tímayfirlits lögmannsins og að meðtöldum virðisaukaskatti, og 50.859 krónur í annan sakarkostnað.
- Af hálfu ákæruvaldsins flutti málið Karl Ingi Vilbergsson settur héraðssaksóknari.
- Jóhannes Rúnar Jóhannsson héraðsdómari kveður upp dóm þennan.
Dómsorð:
Ákærða, Elísabet S. Guðmundsdóttir, sæti fangelsi í 30 daga en fresta skal fullnustu refsingarinnar og falli hún niður að liðnum tveimur árum frá birtingu dóms þessa, haldi ákærða almennt skilorð 57. gr. almennra hegningarlaga.
Ákærða greiði málsvarnarþóknun skipaðs verjanda síns, Unnsteins Arnar Elvarssonar lögmanns, 424.080 krónur að meðtöldum virðisaukaskatti, og 50.859 krónur í annan sakarkostnað.
Jóhannes Rúnar Jóhannsson