Fara í efni

Dómstólaleit

Leit í dómum íslenskra dómstóla

Héraðsdómur Reykjavíkur

Mál nr. S-723/2026:

Héraðssaksóknari

(Karl Ingi Vilbergsson saksóknari)

gegn

Ewelina Liberacka

(Ómar R. Valdimarsson lögmaður)

Brot gegn valdstjórninni. Játningarmál.

Ákærða, sem játaði sök, var sakfelld fyrir brot gegn valdstjórninni og dæmd til 30 daga skilorðsbundinnar fangelsisrefsingar.

Dómur

Mál þetta, sem dómtekið var 9. apríl sl., var höfðað með ákæru, útgefinni af lögreglustjóranum á höfuðborgarsvæðinu 29. janúar 2026, á hendur Ewelina Liberacka, kennitala […], […], Reykjavík, fyrir brot gegn valdstjórninni með því að hafa, að kvöldi 23. mars 2024 í aftursæti lögreglubifreiðar sem var ekið um Hverfisgötu í Reykjavík, ráðist með ofbeldi á og hrækt í andlit lögreglumanns nr. A, sem var við skyldustörf, með þeim afleiðingum að hráki fór m.a. í munn og hægra auga hans.

Telst þetta varða við 1. mgr. 106. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940.

Þess er krafist að ákærða verði dæmd til refsingar og greiðslu alls sakarkostnaðar.

Farið var með mál þetta samkvæmt 164. gr. laga nr. 88/2008 um meðferð sakamála og var það tekið til dóms án frekari sönnunarfærslu þegar sækjanda og verjanda ákærðu hafði verið gefinn kostur á að tjá sig um lagaatriði og ákvörðun viðurlaga.

Ákærða hefur skýlaust játað brot sín. Sannað er með játningu ákærðu og öðrum gögnum málsins að ákærða er sek um þá háttsemi sem henni er gefin að sök og eru brot hennar rétt heimfærð til refsiákvæða í ákæru. Verjandi ákærðu krefst vægustu refsingar sem lög leyfa og hæfilegrar málsvarnarþóknunar sér til handa úr ríkissjóði.

Ákærða er fædd í […]. Samkvæmt framlögðu sakavottorði, dagsettu 30. janúar 2026, á ákærða nokkurn sakaferil að baki, sem þó ekki hefur þýðingu við úrlausn máls þessa.

Undir meðferð málsins játaði ákærða brot sín skýlaust. Horfir það henni til málsbóta, sbr. 8. tölul. 1. mgr. 70. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940.

Með hliðsjón af framangreindu og sakarefni þessa máls þykir refsing ákærðu hæfilega ákveðin 30 daga fangelsi en fullnustu refsingarinnar er frestað og falli hún niður að liðnum tveimur árum frá birtingu dóms þessa haldi ákærða almennt skilorð 57. gr. laga nr. 19/1940.

Með vísan til 1. mgr. 235. gr. laga nr. 88/2008 um meðferð sakamála ber að dæma ákærðu til greiðslu alls sakarkostnaðar, sem er málsvarnarþóknun skipaðs verjanda ákærðu, Ómars R. Valdimarssonar lögmanns, sem þykir með hliðsjón af eðli og umfangi máls hæfileg ákveðin 212.040 krónur að meðtöldum virðisaukaskatti, og 49.617 krónur í annan sakarkostnað.

Af hálfu ákæruvaldsins flutti málið Karl Ingi Vilbergsson settur varahéraðssaksóknari.

Sigurbjörg Birta Berndsen, aðstoðarmaður dómara, kveður upp dóm þennan.

Dómsorð:

Ákærða, Ewelina Liberacka, sæti fangelsi í 30 daga, en fullnustu refsingarinnar er frestað og falli hún niður að liðnum tveimur árum frá birtingu dóms þessa haldi ákærða almennt skilorð 57. gr. laga nr. 19/1940.

Ákærða greiði málsvarnarþóknun skipaðs verjanda síns, Ómars

R.

Valdimarssonar lögmanns, 212.040 krónur að meðtöldum virðisaukaskatti, og 49.617 krónur í annan sakarkostnað.

Sigurbjörg Birta Berndsen

Heimildaskrá

Lagaskrá

Lög nr. 19/1940 Almenn hegningarlög 57. gr.1. mgr. 70. gr.1. mgr. 106. gr.
Lög nr. 88/2008 Lög um meðferð sakamála 164. gr.1. mgr. 235. gr.