Héraðsdómur Reykjavíkur
Dómur 15. maí 2026.
Mál nr. S-719/2026:
Héraðssaksóknari
(Karl Ingi Vilbergsson saksóknari)
gegn
Rytis Barkauskas
(Guðmundur St. Ragnarsson lögmaður)
Lykilorð
Brot gegn valdstjórninni. Játningarmál. Miskabætur. Skilorðsbundnir dómar.
Útdráttur
Sakborningur, sem játaði brot sitt, var sakfelldur fyrir brot gegn valdstjórninni og dæmdur til að sæta fangelsi í 60 daga skilorðsbundið í tvö ár. Sakborningur var einnig dæmdur til að greiða brotaþola 400.000 krónur í miskabætur með vöxtum og málskostnaði.
Dómur
- Mál þetta, sem dómtekið var 20. apríl 2026, var höfðað með ákæru, útgefinni af héraðssaksóknara 29. janúar 2026, á hendur Rytis Barkauskas, kennitala […], […], „fyrir brot gegn valdstjórninni, með því að hafa laugardaginn 30. nóvember 2024, í fangageymslu á lögreglustöðinni við […] í Reykjavík, ráðist með ofbeldi gegn fangaverðinum A, kt. […], sem þar var við skyldustörf, og slegið hana hnefahöggi í andlitið, með þeim afleiðingum að hún hlaut bólgu vinstra megin á efri og neðri vör, sár innanvert á efri og neðri vör og þreifieymsli yfir vinstra kinnbeini. Telst þetta varða við 1. mgr. 106. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940. Þess er krafist að ákærði verði dæmdur til refsingar og greiðslu alls sakarkostnaðar.
Einkaréttarkröfur:
Fyrir hönd A eru gerðar þær kröfur að ákærði verði dæmdur til að greiða henni kr. 800.000,- í skaða- og miskabætur með vöxtum samkvæmt 1. mgr. 8. gr. laga nr. 38/2001 um vexti og verðtryggingu frá 30. nóvember 2024 til þess dags er mánuður er liðinn frá því er bótakrafan var birt ákærða en með dráttarvöxtum samkvæmt 1. mgr. 6. gr., sbr. 9. gr., sömu laga til greiðsludags. Þá er krafist að ákærði verði dæmdur til að greiða A kostnað vegna lögmannsaðstoðar að fjárhæð kr. 250.000,- auk virðisaukaskatts, ellegar að mati dómsins ef til málsmeðferðar kemur fyrir dómi.“
- Verjandi ákærða krefst fyrir hans hönd vægustu refsingar sem lög leyfa og hæfilegrar málsvarnarþóknunar sér til handa. Ákærði mótmælir ekki skaðabótaskyldu sinni en krefst lækkunar á bótafjárhæð. Niðurstaða varðandi sekt ákærða o.fl.
- Farið var með mál þetta samkvæmt 164. gr. laga nr. 88/2008 um meðferð sakamála og var það tekið til dóms án frekari sönnunarfærslu þegar sækjanda, verjanda ákærða og lögmanni bótakrefjanda hafði verið gefinn kostur á að tjá sig um lagaatriði og ákvörðun viðurlaga.
- Ákærði hefur skýlaust játað brot sín. Sannað er með játningu ákærða og öðrum gögnum málsins að ákærði er sekur um þá háttsemi sem honum er gefin að sök og eru brot hans rétt heimfærð til refsiákvæða í ákæru.
Niðurstaða varðandi refsingu ákærða og önnur atriði
- Ákærði er fæddur í […]. Samkvæmt framlögðu sakavottorði hans, dagsettu 29. janúar 2026, hefur ákærði ekki áður verið fundinn sekur um refsiverðan verknað hér á landi. Verður það virt honum til málsbóta við ákvörðun refsingar í málinu, sbr. 5. tölulið 1. mgr. 70. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940. Undir meðferð málsins játaði ákærði brot sitt sömuleiðis skýlaust. Verður það einnig virt honum til málsbóta, sbr. 8. tölulið sömu greinar.
- Með hliðsjón af framangreindu, sakarefni þessa máls og dómvenju þykir refsing ákærða hæfilega ákveðin fangelsi í 60 daga en fresta skal fullnustu refsingarinnar og falli hún niður að liðnum tveimur árum frá birtingu dóms þessa, haldi ákærði almennt skilorð 57. gr. almennra hegningarlaga.
- Með broti sínu hefur ákærði bakað sér skaðabótaskyldu gagnvart brotaþola, A, sbr. 26. gr. skaðabótalaga nr. 50/1993. Ber honum að greiða brotaþola miskabætur að álitum, í samræmi við dómvenju, sem þykja hæfilega ákveðnar 400.000 krónur. Skulu miskabæturnar bera vexti eins og nánar greinir í dómsorði. Þá ber ákærða að bæta brotaþola þann kostnað sem hún hefur haft af því að fylgja eftir kröfu sinni. Þykir hæfilegt að ákærði greiði brotaþola 248.000 krónur í málskostnað, að meðtöldum virðisaukaskatti.
- Ákærði greiði málsvarnarþóknun skipaðs verjanda síns, Guðmundar St. Ragnarssonar lögmanns, sem þykir hæfilega ákveðin 282.720 krónur að meðtöldum virðisaukaskatti, sbr. 1. mgr. 235. gr., sbr. 1. mgr. 233. gr., laga nr. 88/2008. Annan sakarkostnað leiddi ekki af máli þessu.
- Af hálfu ákæruvaldsins flutti málið Karl Ingi Vilbergsson, settur varahéraðssaksóknari.
- Jóhannes Rúnar Jóhannsson héraðsdómari kveður upp dóm þennan.
Dómsorð:
Ákærði, Rytis Barkauskas, sæti fangelsi í 60 daga en fresta skal fullnustu refsingarinnar og falli hún niður að liðnum tveimur árum frá birtingu dóms þessa, haldi ákærði almennt skilorð 57. gr. almennra hegningarlaga.
Ákærði greiði A 400.000 krónur í miskabætur með vöxtum samkvæmt 8. gr. laga nr. 38/2001 um vexti og verðtryggingu, frá 30. nóvember 2024 til 20. maí 2026, en með dráttarvöxtum samkvæmt 1. mgr. 6. gr., sbr. 9. gr., sömu laga frá þeim degi til greiðsludags. Ákærði greiði A einnig 248.000 krónur í málskostnað.
Ákærði greiði málsvarnarþóknun skipaðs verjanda síns, Guðmundar St. Ragnarssonar lögmanns, 282.720 krónur að meðtöldum virðisaukaskatti.
Jóhannes Rúnar Jóhannsson