Héraðsdómur Suðurlands
Dómur 20. mars 2026.
Mál nr. S-59/2026:
Ákæruvaldið
(Silja Rán Arnarsdóttir saksóknarfulltrúi)
gegn
Sævari Þór Hallgrímssyni
Lykilorð
Útdráttur
Ákærði var sakfelldur fyrir brot gegn 1. mgr. 106. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940, en hann hafði játað brot sitt skýlaust undir meðferð málsins. Var honum gert að sæta fangelsi í 30 daga, skilorðsbundið til tveggja ára.
Dómur
Mál þetta, sem dómtekið var þann 12. mars sl., var höfðað með ákæru, útgefinni af embætti héraðssaksóknara 29. janúar 2026, á Sævari Þór Hallgrímssyni, […], fyrir brot gegn valdstjórninni, með því að hafa mánudaginn 14. febrúar 2025, í stigagangi að A í Vestmannaeyjum, ógnað lögreglumanni N2330 með hnífi og hótað honum lífláti, og á lögreglustöðinni við Faxastíg 42 í Vestmannaeyjum, ítrekað hótað lögreglumanni H1908 lífláti, en lögreglumennirnir voru við skyldustörf.
Telst þetta varða við 1. mgr. 106. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940.
Þess er krafist að ákærði verði dæmdur til refsingar og greiðslu alls sakarkostnaðar.
Farið var með mál þetta samkvæmt 164. gr. laga nr. 88/2008 um meðferð sakamála og var það tekið til dóms án frekari sönnunarfærslu þegar sækjanda og ákærða hafði verið gefinn kostur á að tjá sig um lagaatriði og ákvörðun viðurlaga.
Ákærði hefur skýlaust játað brot sín. Sannað er með játningu ákærða og öðrum gögnum málsins að ákærði er sekur um þá háttsemi sem honum er gefin að sök og eru brot hans rétt heimfærð til refsiákvæða í ákæru. Ákærði krefst vægustu refsingar sem lög leyfa.
Ákærði er fæddur í […]. Samkvæmt framlögðu sakavottorði, dagsettu 29. janúar 2026, hefur ákærði ekki áður gerst sekur um refsiverða háttsemi.
Undir meðferð málsins játaði ákærði brot sín skýlaust. Horfir það honum til málsbóta, sbr. 8. tölul. 1. mgr. 70. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940.
Með hliðsjón af framangreindu og sakarefni þessa máls þykir refsing ákærða hæfilega ákveðin 30 daga fangelsi en fresta skal fullnustu refsingarinnar og falli hún niður að liðnum tveimur árum haldi ákærði almennt skilorð 57. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940, sbr. 4. gr. laga nr. 22/1955.
Engan sakarkostnað leiddi af meðferð málsins.
Af hálfu ákæruvaldsins flutti málið Silja Rán Arnardóttir saksóknarfulltrúi.
Sigurður G. Gíslason dómstjóri kveður upp dóm þennan.
Dómsorð:
Ákærði, Sævar Þór Hallgrímsson, sæti fangelsi í 30 daga en fullnustu refsingarinnar er frestað og falli hún niður að liðnum tveimur árum haldi ákærði almennt skilorð 57. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940, sbr. 4. gr. laga nr. 22/1955.
Sigurður G. Gíslason