Fara í efni

Dómstólaleit

Leit í dómum íslenskra dómstóla

Héraðsdómur Reykjavíkur

Mál nr. S-715/2026:

Héraðssaksóknari

(Karl Ingi Vilbergsson settur varahéraðssaksóknari)

gegn

Írisi Þórarinsdóttur

(Arnar Kormákur Friðriksson lögmaður)

Brot gegn valdstjórninni. Játningarmál.

Ákærða, sem játaði sök, var sakfelld fyrir brot gegn valdstjórninni og dæmd til tveggja mánaða skilorðsbundinnar fangelsisrefsingar.

Dómur

Mál þetta, sem dómtekið var í dag, var höfðað með ákæru, útgefinni af héraðssaksóknara 29. janúar 2026 á hendur Írisi Þórarinsdóttur, kennitala […], […], Reykjavík, fyrir eftirtalin brot gegn valdstjórninni með því að hafa:

I

Mánudaginn 29. apríl 2024, á Snorrabraut aftan við lögreglustöðina á Hverfisgötu í Reykjavík, hrækt á vesti og í andlit lögreglumanns nr. A, þar sem hann var við skyldustörf, með þeim afleiðingum að lögreglumaðurinn fékk hráka í munn sinn.

II.

Sunnudaginn 4. maí 2025, við brottfararsal Flugstöðvar Leifs Eiríkssonar í Reykjanesbæ, hrækt í andlit lögreglumanns nr. B, þar sem hann var við skyldustörf, með þeim afleiðingum að lögreglumaðurinn fékk hráka í hægra augað og við munnvik.

Teljast brot í báðum ákæruliðum varða við 106. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940.

Þess er krafist að ákærða verði dæmd til refsingar og greiðslu alls sakarkostnaðar.

Farið var með mál þetta samkvæmt 164. gr. laga nr. 88/2008 um meðferð sakamála og var það tekið til dóms án frekari sönnunarfærslu þegar sækjanda og verjanda ákærðu hafði verið gefinn kostur á að tjá sig um lagaatriði og ákvörðun viðurlaga.

Ákærða hefur skýlaust játað brot sín. Sannað er með játningu ákærðu og öðrum gögnum málsins að ákærða er sek um þá háttsemi sem henni er gefin að sök og eru brot hennar rétt heimfærð til refsiákvæða í ákæru. Verjandi ákærðu krefst vægustu refsingar sem lög leyfa og hæfilegrar málsvarnarþóknunar sér til handa.

Ákærða er fædd í […]. Samkvæmt framlögðu sakavottorði, dagsettu 28. janúar 2026, var ákærða með dómi Héraðsdóms Reykjavíkur […] 2020 dæmd í fjögurra mánaða fangelsi, skilorðsbundið til tveggja ára fyrir brot gegn umferðarlögum nr. 77/2019, brot gegn vopnalögum nr. 16/1998, brot gegn lögum um ávana og fíkniefni nr. 65/1974 og brot gegn 244. gr. og 248. gr. almennra hegningarlaga.

Undir meðferð málsins játaði ákærða brot sín skýlaust. Horfir það henni til málsbóta, sbr. 8. tölul. 1. mgr. 70. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940.

Með hliðsjón af framangreindu, sakarefni þessa máls, dómvenju og 77. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940 þykir refsing ákærðu hæfilega ákveðin 60 daga fangelsi en fullnustu refsingarinnar er frestað og falli hún niður að liðnum tveimur árum frá uppkvaðningu dóms þessa haldi ákærða almennt skilorð 57. gr. laga nr. 19/1940, sbr. 4. gr. laga nr. 22/1955.

Ákærða greiði málsvarnarþóknun skipaðs verjanda síns, Arnars Kormáks Friðrikssonar lögmanns, 212.040 krónur að meðtöldum virðisaukaskatti.

Engan sakarkostnað leiddi af meðferð málsins.

Af hálfu ákæruvaldsins flutti málið Karl Ingi Vilbergsson settur varahéraðssaksóknari.

Rut Hrafns Elvarsdóttir aðstoðarmaður dómara kveður upp dóm þennan.

Dómsorð:

Ákærða, Íris Þórarinsdóttir, sæti fangelsi í 60 daga en fullnustu refsingarinnar er frestað og falli hún niður að liðnum tveimur árum frá uppkvaðningu dóms þessa haldi ákærða almennt skilorð 57. gr. laga nr. 19/1940, sbr. 4. gr. laga nr. 22/1955.

Ákærða greiði málsvarnarþóknun skipaðs verjanda síns, Arnars Kormáks Friðrikssonar lögmanns, 212.040 krónur að meðtöldum virðisaukaskatti.

Rut Hrafns Elvarsdóttir

Heimildaskrá