Héraðsdómur Reykjavíkur
Dómur 20. apríl 2026.
Mál nr. S-726/2026:
Héraðssaksóknari
(Karl Ingi Vilbergsson settur varahéraðssaksóknari)
gegn
Przemyslaw Jacek Kosiorowski
(Sigurður Gústavsson Hafstað lögmaður)
Lykilorð
Brot gegn valdstjórninni. Játningarmál.
Útdráttur
Ákærði, sem játaði sök, var sakfelldur fyrir brot gegn valdstjórninni og dæmdur til 45 daga skilorðsbundinnar fangelsisrefsingar.
Dómur
Mál þetta, sem dómtekið var 9. apríl sl., var höfðað með ákæru, útgefinni af lögreglustjóranum á höfuðborgarsvæðinu 29. janúar 2026, á hendur Przemyslaw Jacek Kosiorowski, kennitala […], […], Reykjavík, fyrir brot gegn valdstjórninni, með því að hafa að kvöldi laugardagsins 20. júlí 2024, í lögreglubifreið nr. […], hrækt á beran hægri framhandlegg lögreglumanns A og hótað honum lífláti en lögreglumaðurinn var þar við skyldustörf.
Telst þetta varða við 1. mgr. 106. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940.
Þess er krafist að ákærði verði dæmdur til refsingar og greiðslu alls sakarkostnaðar.
Farið var með mál þetta samkvæmt 164. gr. laga nr. 88/2008 um meðferð sakamála og var það tekið til dóms án frekari sönnunarfærslu þegar sækjanda og verjanda ákærða hafði verið gefinn kostur á að tjá sig um lagaatriði og ákvörðun viðurlaga.
Ákærði hefur skýlaust játað brot sín. Sannað er með játningu ákærða og öðrum gögnum málsins að ákærði er sekur um þá háttsemi sem honum er gefin að sök og eru brot hans rétt heimfærð til refsiákvæða í ákæru. Verjandi ákærða krefst vægustu refsingar sem lög leyfa og hæfilegrar málsvarnarþóknunar sér til handa.
Ákærði er fæddur í […]. Samkvæmt framlögðu sakavottorði, dagsettu 29. janúar 2026, hefur ákærði ekki áður gerst sekur um refsiverða háttsemi.
Undir meðferð málsins játaði ákærði brot sín skýlaust. Horfir það honum til málsbóta, sbr. 8. tölul. 1. mgr. 70. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940.
Með hliðsjón af framangreindu og sakarefni þessa máls þykir refsing ákærða hæfilega ákveðin 45 daga fangelsi en fullnustu refsingarinnar er frestað og falli hún niður að liðnum tveimur árum frá birtingu dóms þessa haldi ákærði almennt skilorð 57. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940.
Með vísan til 1. mgr. 235. gr. laga nr. 88/2008 um meðferð sakamála ber að dæma ákærða til greiðslu alls sakarkostnaðar, sem er málsvarnarþóknun skipaðs verjanda ákærða, Sigurðar Gústavssonar Hafstað lögmanns, sem þykir með hliðsjón af eðli og umfangi máls og að teknu tilliti til tímaskýrslu lögmanns, hæfilega ákveðin 247.380 krónur að meðtöldum virðisaukaskatti. Engan frekari sakarkostnað leiddi af meðferð málsins.
Af hálfu ákæruvaldsins flutti málið Karl Ingi Vilbergsson, settur varahéraðssaksóknari.
Sigurbjörg Birta Berndsen, aðstoðarmaður dómara, kveður upp dóm þennan.
Dómsorð:
Ákærði, Przemyslaw Jacek Kosiorowski, sæti fangelsi í 45 daga, en fullnustu refsingarinnar er frestað og falli hún niður að liðnum tveimur árum frá birtingu dóms þessa haldi ákærði almennt skilorð 57. gr. laga nr. 19/1940.
Ákærði greiði málsvarnarþóknun skipaðs verjanda síns, Sigurðar Gústavssonar Hafstað lögmanns, 247.380 krónur að meðtöldum virðisaukaskatti.
Sigurbjörg Birta Berndsen