Fara í efni

Dómstólaleit

Leit í dómum íslenskra dómstóla

Héraðsdómur Suðurlands

Mál nr. S-123/2026:

Héraðssaksóknari

(Friðrik Smári Björgvinsson aðstoðarsaksóknari)

gegn

Suphaphon Tangwairam

(Aníta Rögnvaldsdóttir lögmaður)

Brot gegn valdstjórninni.

Ákærða var sakfelld fyrir brot gegn 1. mgr. 106. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940. Hún játaði skýlaust sök. Var ákærðu gert að sæta fangelsi í 90 daga, skilorðsbundið til tveggja ára.

Dómur

Mál þetta, sem dómtekið var í dag, var höfðað með ákæru, útgefinni af héraðssaksóknara 12. mars 2026, á hendur Suphaphon Tangwairam, […] „fyrir brot gegn valdstjórninni með því að hafa, þriðjudaginn 17. nóvember 2024 á heimili sínu að A, veist með ofbeldi að lögreglumönnum nr. H1819 (nú N2468) og H1674 (nú 2526), sem voru við skyldustörf, sparkað og slegið ítrekað í höfuð þeirra og búk, slegið í höfuð beggja með vasaljósi og klórað lögreglumann nr. H1819, allt með þeim afleiðingum að lögreglumaður H1819 hlaut höfuðverk, bólgu á hægra kinnbeini og klórför á hægri hendi og lögreglumaður H1674 hlaut höfuðverk, rispu á nef og 1,5 sentímetra langt og djúpt sár á enni sem þurfti að sauma.

Telst þetta varða við 1. mgr. 106. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940.

Þess er krafist að ákærða verði dæmd til refsingar og greiðslu alls sakarkostnaðar.“

Farið var með mál þetta samkvæmt 164. gr. laga nr. 88/2008 um meðferð sakamála og var það tekið til dóms án frekari sönnunarfærslu þegar sækjanda og verjanda ákærðu hafði verið gefinn kostur á að tjá sig um lagaatriði og ákvörðun viðurlaga.

Ákærða hefur skýlaust játað brot sín. Sannað er með játningu ákærðu og öðrum gögnum málsins að ákærða er sek um þá háttsemi sem henni er gefin að sök og eru brot hennar rétt heimfærð til refsiákvæða í ákæru. Verjandi ákærðu krefst vægustu refsingar sem lög leyfa og hæfilegrar málsvarnarþóknunar sér til handa.

Ákærða er fædd í október 1979. Samkvæmt framlögðu sakavottorði, dagsettu 10. mars 2026, hefur ákærða ekki áður sætt refsingu vegna refsiverðrar háttsemi.

Undir meðferð málsins játaði ákærða brot sín skýlaust. Horfir það henni til málsbóta, sbr. 8. tölul. 1. mgr. 70. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940. Á hinn bóginn er til þess að líta að atlaga ákærðu beindist að tveimur lögreglumönnum er þeir voru við skyldustörf, en ákærða beitti barefli við verkið og beindist atlagan m.a. að höfði, með þeim afleiðingum að sauma þurfti sár á enni annars brotaþola. Þykir þetta vega ákærðu til refsiþyngingar, sbr. 1. tölul. og 3. tölul. sama ákvæðis.

Með hliðsjón af framangreindu, sakarefni þessa máls og dómvenju þykir refsing ákærðu hæfilega ákveðin 90 daga fangelsi en fullnustu refsingarinnar er frestað og falli hún niður að liðnum tveimur árum frá uppkvaðningu dóms þessa haldi ákærða almennt skilorð 57. gr. laga nr. 19/1940, sbr. 4. gr. laga nr. 22/1955.

Ákærða greiði málsvarnarþóknun skipaðs verjanda síns, Anítu Rögnvaldsdóttur lögmanns, 353.400 krónur að meðtöldum virðisaukaskatti, og 73.463 krónur í annan sakarkostnað.

Af hálfu ákæruvaldsins flutti málið Friðrik Smári Björgvinsson aðstoðarsaksóknari.

Karitas Rán Garðarsdóttir aðstoðarmaður dómara kveður upp dóm þennan.

Dómsorð:

Ákærða, Suphaphon Tangwairam, sæti fangelsi í 90 daga en fullnustu refsingarinnar er frestað og falli hún niður að liðnum tveimur árum frá uppkvaðningu dóms þessa haldi ákærða almennt skilorð 57. gr. laga nr. 19/1940, sbr. 4. gr. laga nr. 22/1955.

Ákærða greiði málsvarnarþóknun skipaðs verjanda síns, Anítu Rögnvaldsdóttur lögmanns, 353.400 krónur að meðtöldum virðisaukaskatti, og 73.463 krónur í annan sakarkostnað.

Karitas Rán Garðarsdóttir

Heimildaskrá

Lagaskrá

Lög nr. 19/1940 Almenn hegningarlög 57. gr.1. mgr. 70. gr.1. mgr. 106. gr.
Lög nr. 22/1955 4. gr.
Lög nr. 88/2008 Lög um meðferð sakamála 164. gr.