Fara í efni

Dómstólaleit

Leit í dómum íslenskra dómstóla

Héraðsdómur Vestfjarða

Mál nr. S-8/2026:

Héraðssaksóknari

(Klara Dögg Thorarensen aðstoðarsaksóknari)

gegn

Jóni Benedikt Georgssyni

Brot gegn valdstjórninni.

Ákærði, sem sótti ekki þing við þingfestingu málsins, var sakfelldur fyrir brot gegn valdstjórninni. Um var að ræða hegningarauka við eldri dóm sem var jafnframt tekinn upp og ákærða gerð refsing í einu lagi sem þótti hæfilega ákveðin 60 daga fangelsi.

Dómur

Mál þetta, sem var dómtekið 1. apríl sl., er höfðað með ákæru héraðssaksóknara 29. janúar sl. á hendur Jóni Benedikt Georgssyni, kt. […], […] „fyrir brot gegn valdstjórninni, með því að hafa aðfaranótt laugardagsins 17. júní 2023, á tjaldsvæði við Hlíðarfjallsveg á Akureyri, hrækt á lögreglumann nr. 2201 sem var þar við skyldustörf, með þeim afleiðingum að hrákinn lenti á vinstri vanga og fatnaði lögreglumannsins.“

Telst þetta varða við 1. mgr. 106. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940.

Þess er krafist að ákærði verði dæmdur til refsingar og til greiðslu alls sakarkostnaðar.

Fyrirkall var birt fyrir ákærða ásamt ákæru í Lögbirtingablaði 20. febrúar sl. Kom þar fram að sækti ákærði ekki þing við þingfestingu málsins eða á síðari stigum mætti hann búast við því að fjarvist hans yrði metin til jafns við það að hann viðurkenndi að hafa framið brot það sem hann er ákærður fyrir og dómur yrði lagður á málið að honum fjarstöddum. Ákærði mætti ekki við þingfestinguna og var málið tekið til dóms á grundvelli a-liðar 1. mgr. 161. gr. laga nr. 88/2008, sbr. 1. mgr. 155. gr. sömu laga, eftir að sækjanda var gefinn kostur á því að tjá sig um lagaatriði og ákvörðun viðurlaga.

Háttsemi ákærða náðist að hluta á myndbandsupptöku með búkmyndavélum lögreglumanna. Þá kom líkt og áður greinir fram í fyrirkalli, sem birt var löglega fyrir ákærða, að hann mætti búast við því að fjarvist hans yrði metin til jafns við það að hann viðurkenndi að hafa framið það brot sem hann er ákærður fyrir. Að framangreindu virtu verður ákærði sakfelldur fyrir brotið sem honum er gefið að sök í máli þessu og er það rétt heimfært til refsiákvæða í ákæru.

Ákærði er fæddur árið […]. Samkvæmt framlögðu sakavottorði 3. febrúar 2026 á ákærði nokkurn sakaferil að baki. Með dómi Héraðsdóms Norðurlands eystra 25. janúar 2024 var ákærði dæmdur til að sæta fangelsi í 60 daga fyrir akstur sviptur ökurétti og með dómi Héraðsdóms Vesturlands 13. janúar 2025 var hann dæmdur í 90 daga fangelsi fyrir sama brot og líkamsárás að auki. Var um að ræða hegningarauka við fyrrnefnda dóminn. Loks var ákærði með dómi Héraðsdóms Reykjaness 11. september 2025 dæmdur til að sæta 30 daga fangelsi fyrir vörslu fíkniefna en fullnustu refsingarinnar frestað skilorðsbundið í tvö ár. Jafnframt var um hegningarauka að ræða. Eldri brot sem fram koma á sakavottorði ákærða koma ekki til skoðunar við ákvörðun refsingar í máli þessu.

Brotið sem ákærði er nú sakfelldur fyrir var framið áður en síðastnefndi dómurinn var kveðinn upp. Ber því að gera ákærða hegningarauka, sbr. 78. gr. almennra hegningarlaga. Verður dómurinn jafnframt tekinn upp og ákærða gerð refsing í einu lagi, sbr. 60. gr. sömu laga. Með hliðsjón af framangreindu, sakarefni málsins og dómvenju þykir refsing ákærða hæfilega ákveðin 60 daga fangelsi en í ljósi sakaferils hans þykja ekki vera fyrir hendi skilyrði til að fresta henni að neinu leyti.

Sakarkostnaður féll ekki til við meðferð málsins.

Af hálfu ákæruvaldsins fór með málið Klara Dögg Thorarensen aðstoðarsaksóknari.

Oddur Þorri Viðarsson héraðsdómari kveður upp dóm þennan.

Dómsorð:

Ákærði, Jón Benedikt Georgsson, sæti fangelsi í 60 daga.

Oddur Þorri Viðarsson

Heimildaskrá

Lagaskrá

Lög nr. 19/1940 Almenn hegningarlög 60. gr.78. gr.1. mgr. 106. gr.
Lög nr. 88/2008 Lög um meðferð sakamála 1. mgr. 155. gr.1. mgr. 161. gr.