Héraðsdómur Reykjavíkur
Dómur 20. apríl 2026.
Mál nr. S-710/2026:
Héraðssaksóknari
(Karl Ingi Vilbergsson saksóknari)
gegn
Tomas Sachniukas
(Sjálfur)
Lykilorð
Brot gegn valdstjórninni. Játningarmál.
Útdráttur
Sakborningur, sem játaði sök, sakfelldur fyrir brot gegn valdstjórninni og dæmdur til tveggja mánaða skilorðsbundinnar fangelsisrefsingar.
Dómur
- Mál þetta, sem dómtekið var 9. apríl sl., var höfðað með ákæru, útgefinni af héraðssaksóknara 29. janúar 2026, á hendur Tomas Sachniukas, kt. […], […] „fyrir brot gegn valdstjórninni, með því að hafa laugardaginn 18. janúar 2025, í bifreiðakjallara að […], tekið lögreglumann nr. A hengingartaki og reynt að þrengja að öndunarvegi hans og fyrir að hafa sparkað í kvið og læri lögreglumanns nr. B, þar sem þeir voru við skyldustörf, með þeim afleiðingum að lögreglumaður nr. A hlaut mar á nefni og mar og yfirborðsáverka á vör.
Telst þetta varða við 1. mgr. 106. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940.
Þess er krafist að ákærði verði dæmdur til refsingar og greiðslu alls sakarkostnaðar.“
- Ákærði krefst vægustu refsingar sem lög leyfa.
Niðurstaða varðandi sekt ákærða o.fl.
- Farið var með mál þetta samkvæmt 164. gr. laga nr. 88/2008 um meðferð sakamála og var það tekið til dóms án frekari sönnunarfærslu þegar sækjanda og ákærða hafði verið gefinn kostur á að tjá sig um lagaatriði og ákvörðun viðurlaga.
- Ákærði hefur skýlaust játað brot sitt. Sannað er með játningu ákærða og öðrum gögnum málsins að ákærði er sekur um þá háttsemi sem honum er gefin að sök í ákæru og er brot hans rétt heimfært til refsiákvæða í ákæru.
Niðurstaða varðandi refsingu ákærða og önnur atriði
- Ákærði er fæddur í […]. Samkvæmt framlögðu sakavottorði, dagsettu 2. febrúar 2026, hefur ákærði ekki áður gerst sekur um refsiverða háttsemi sem hefur þýðingu við úrlausn máls þessa.
- Undir meðferð málsins játaði ákærði brot sín skýlaust. Horfir það honum til málsbóta, sbr. 8. tölulið 1. mgr. 70. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940.
- Með hliðsjón af framangreindu, sakarefni þessa máls og dómvenju þykir refsing ákærða hæfilega ákveðin fangelsi í tvo mánuði en fresta skal fullnustu refsingarinnar og falli hún niður að liðnum tveimur árum frá birtingu dóms þessa, haldi ákærði almennt skilorð 57. gr. almennra hegningarlaga.
- Ákærði greiði 45.208 krónur í sakarkostnað, sbr. 1. mgr. 235. gr. laga nr. 88/2008 um meðferð sakamála.
- Af hálfu ákæruvaldsins flutti málið Karl Ingi Vilbergsson settur varahéraðssaksóknari.
- Jóhannes Rúnar Jóhannsson héraðsdómari kveður upp dóm þennan.
Dómsorð:
Ákærði, Tomas Sachniukas, sæti fangelsi í tvo mánuði en fresta skal fullnustu refsingarinnar og falli hún niður að liðnum tveimur árum frá birtingu dóms þessa, haldi ákærði almennt skilorð 57. gr. almennra hegningarlaga.
Ákærði greiði 45.208 krónur í sakarkostnað.
Jóhannes Rúnar Jóhannsson