Fara í efni

Dómstólaleit

Leit í dómum íslenskra dómstóla

Héraðsdómur Suðurlands

Mál nr. S-58/2026:

Ákæruvaldið

(Karl Ingi Vilbergsson saksóknari)

gegn

Birgi Magnúsi Sveinssyni

Brot gegn valdstjórninni.

Ákærði var sakfelldur fyrir brot gegn 1. mgr. 106. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940, en útivist varð af hálfu ákærða í málinu og var því farið með það eftir a-lið 1. mgr. 161. gr. laga nr. 88/2008 um meðferð sakamála. Var ákærða gert að sæta fangelsi í 30 daga, skilorðsbundið til tveggja ára.

Dómur

Mál þetta, sem dómtekið var 12. mars sl., var höfðað með ákæru, útgefinni af embætti héraðssaksóknara 29. janúar 2026, á hendur Birgi Magnúsi Sveinssyni, […], fyrir brot gegn valdstjórninni, með því að hafa miðvikudaginn 20. ágúst 2025 bæði innandyra og fyrir utan A Vestmannaeyjum, veist með ofbeldi að lögreglumanni h1907 sem var þar við skyldustörf, en ákærði sló lögreglumanninn fyrirvaralaust í bringuna í tvö skipti.

Telst þetta varða við 1. mgr. 106. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940.

Þess er krafist að ákærði verði dæmdur til refsingar og greiðslu alls sakarkostnaðar.

Ákærði sótti ekki þing við þingfestingu málsins og hafði ekki boðað forföll en hafði verið birt ákæra og fyrirkall. Verður málið dæmt samkvæmt heimild í a-lið 1. mgr. 161. gr. laga nr. 88/2008 um meðferð sakamála enda var þess getið í fyrirkallinu að þannig gæti farið um meðferð málsins.

Með vísan til framanritaðs og til rannsóknargagna málsins telst framangreind háttsemi sönnuð og er hún rétt heimfærð til refsiákvæða í ákæru.

Ákærði er fæddur í […]. Samkvæmt framlögðu sakavottorði, dagsettu 30. janúar 2026, hefur sakarferill ákærða ekki þýðingu við úrlausn máls þessa.

Með hliðsjón af framangreindu og sakarefni þykir refsing ákærða hæfilega ákveðin 30 daga fangelsi, en fullnustu refsingarinnar er frestað og falli hún niður að liðnum tveimur árum haldi ákærði almennt skilorð 57. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940, sbr. 4. gr. laga nr. 22/1955.

Engan sakarkostnað leiddi af meðferð málsins.

Af hálfu ákæruvaldsins flutti málið Silja Rán Arnardóttir saksóknarfulltrúi.

Sigurður G. Gíslason dómstjóri kveður upp dóm þennan.

Dómsorð:

Ákærði, Birgir Magnús Sveinsson, sæti fangelsi í 30 daga en fullnustu refsingarinnar er frestað og falli hún niður að liðnum tveimur árum haldi ákærði almennt skilorð 57. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940, sbr. 4. gr. laga nr. 22/1955.

Sigurður G. Gíslason

Heimildaskrá