Fara í efni

Dómstólaleit

Leit í dómum íslenskra dómstóla

Leita í öllum dómstólum...

Niðurstöður

5 dómar fundust

Lykilorð: Mismunun

Héraðsdómur Reykjavíkur birt 23. maí 2026 kl. 9:27

E-5415/2025

A (Jón Gunnar Ásbjörnsson lögmaður) gegn Menntasjóði námsmanna (Ingvi Snær Einarsson lögmaður)

Ekki var fallist á ógildi úrskurðar kærunefndar jafnréttismála í máli fatlaðs umsækjanda um starf. Ekki var talið að sýnt væri fram á að matsforsendur væru ómálefnalegar eða að jafnræðis hafi ekki verið gætt. Þar sem stefnandi hafði ekki verið einn þeirra umsækjenda sem valinn var til starfsviðtals úr hópi heildarumsækjenda var ekki talið að stefnandi hefði hlotið starfið eða verið valinn til viðtals þó svo að annar þeirra sem starf hlaut hafi skilað umsókn of seint og því hafi ekki mátt taka þá umsókn til efnislegrar meðferðar. Með því hafi aðeins öðrum þeim sem boðið var í starfsviðtal verið mismunað en ekki stefnanda. Þó svo að rökstuðningi kærunefndar um þetta atriði væri áfátt þá væri um formágalla að ræða sem ekki væri verulegur og nægði ekki til ógildingar úrskurðar kærunefndar.

Héraðsdómur Reykjavíkur birt 25. mars 2025

E-1263/2024

A (Guðrún Ásta Lúðvíksdóttir lögmaður) gegn Isavia ANS ehf (Stefán Geir Þórisson lögmaður)
Lykilorð: Aldur. Mismunun. Starfslok. Uppsögn.

Stefnandi krafði stefnda um skaðabætur og miskabætur á þeim grundvelli að í starfslokum hennar hjá stefnda, í kjölfar þess að hún náði 67 ára aldri, hefði falist ólögmæt mismunun vegna aldurs. Stefndi var sýknaður af kröfum stefnanda m.a. þar sem uppsögnin var talin samrýmast undantekningarreglu laga um jafna meðferð á vinnumarkaði.

Héraðsdómur Reykjavíkur birt 28. mars 2023

E-2475/2022

A (Eva Hauksdóttir lögmaður) gegn íslenska ríkinu (Soffía Jónsdóttir lögmaður)

Stefnandi krafðist í málinu skaðabóta vegna fjártjóns sem hann kvaðst hafa orðið fyrir við það að verða af starfi kennara við menntaskólann M auk miskabóta vegna framgöngu skólans við ráðningu í starfið. Fyrir lá úrskurður kærunefndar jafnréttismála þar sem komist hafði verið að þeirri niðurstöðu að stefnanda hefði við málsmeðferð skólans verið mismunað á grundvelli aldurs. Í málinu féllst dómurinn á kröfu stefnanda um miskabætur en hafnaði kröfu hans um skaðabætur vegna fjártjóns þar sem sönnur hefðu ekki tekist um að hann hefði átt lögvarinn rétt til starfsins.

Héraðsdómur Reykjavíkur birt 13. september 2022

E-5834/2021

A (Hilmar Gunnarsson lögmaður) gegn Strætó bs (Anton Björn Markússon lögmaður)

Stefnanda voru dæmdar bætur að álitum vegna ólögmætrar uppsagnar og mismununar við starfslok, en lagðir voru til grundvallar úrskurður kærunefndar jafnréttismála og úrskurður sveitarstjórnar- og samgönguráðuneytisins þess efnis þar sem stefndi hafði ekki leitað eftir ógildingu þeirra eða hlutast til um aðild úrskurðaraðilanna að málinu. Skilyrði voru talin fyrir hendi til að dæma stefnda til greiðslu bæði skaðabóta og miskabóta, enda bar hann ábyrgð á því hvernig staðið var að starfslokum stefnanda.