Með úrskurði kærunefndar jafnréttismála var komist að þeirri niðurstöðu að B hefði brotið á rétti A samkvæmt 1. mgr. 26. gr. þágildandi laga nr. 10/2008 um jafna stöðu og jafnan rétt kvenna og karla með því að ráða tiltekna konu í starf í stað A. Í féllst á að skilyrði bótaréttar A væru fyrir hendi og snerist deila aðila því eingöngu um fjárhæð bóta og vexti. Með dómi Landsréttar var staðfest niðurstaða héraðsdóms um greiðslu bóta að álitum 5.000.000 króna vegna fjártjóns og 700.000 króna miskabóta, auk vaxta.
Fyrirtæki var sýknað af launakröfu fyrrum starfsmanns.
A höfðaði mál gegn B og Í og krafðist þess að úrskurður kærunefndar jafnréttismála í máli nr. 13/2020 yrði felldur úr gildi. Jafnframt krafðist hann miskabóta úr hendi Í og viðurkenningar á skaðabótaskyldu þess vegna ákvörðunar B um að synja umsókn hans um starf sérfræðings við stofnunina. A taldi úrskurð kærunefndar jafnréttismála rangan og ólögmætan og að kærunefndin hefði brotið gegn fyrirmælum laga nr. 10/2008 um jafna stöðu og jafnan rétt kvenna og karla með þeirri niðurstöðu sinni að konan sem ráðin var hefði staðið honum framar. Í hinum áfrýjaða dómi, sem Landsréttur staðfesti með vísan til forsendna, var komist að þeirri niðurstöðu að A hefði ekki sýnt fram á að B hefði haft ómálefnaleg sjónarmið að leiðarljósi við ráðningu í starfið og hann því ekki sýnt fram á að val á milli umsækjenda hefði skýrst af kyni þeirra. Þá þótti kærunefnd jafnréttismála ekki hafa lagt ómálefnaleg sjónarmið til grundvallar niðurstöðu sinni eða hafa brotið gegn málsmeðferðarreglum stjórnsýsluréttar við málsmeðferðina. Var A því hvorki talinn hafa fært sönnur á að ákvörðun B hefði verið haldin verulegum annmörkum né að annarmarkar hefðu verið á efnislegri niðurstöðu eða málsmeðferð kærunefndar jafnréttismála. Var því ekki fallist á kröfu A um að úrskurður nefndarinnar yrði felldur úr gildi. Leiddi framangreind niðurstaða til þess að A var ekki talin hafa fært sönnur á að B og Í hefðu valdið honum tjóni með ólögmætum hætti þannig að bótaábyrgð varði. Var því miska- og skaðabótakröfum A hafnað og B og Í sýknuð af kröfum hans í málinu.
Fallist var á kröfu stefnanda um bætur vegna fjártjóns og miska vegna kynbundins launamunar sem stefnandi sætti þegar hún starfaði hjá stefnda.
Reifun: Hafnað var kröfu stefnanda um ógildingu úrskurðar kærunefndar jafnréttismála.
Hafnað var kröfu stefnanda um að viðurkennt yrði að sá munur sem væri á launum hennar og annars forstöðumanns væri andstæð 2. mgr. 65. gr. stjórnarskráinnar og fæli í sér brot á lögum nr. 10/2008, um jafna stöðu og jafnan rétt kvenna og karla. Einnig var hafnað kröfu stefnanda um að greiðslu skaða- og miskabóta.
Stefnandi krafðist miskabóta með vísan til þess að brotið hefðu verið gegn lögum nr. 10/2008 o.fl. við ákvörðun um ráðningu í sumarstörf hjá sýslumanninum á höfuðborgarsvæðinu í maí 2016. Lagt var til grundvallar að úrskurður kærunefndar jafnréttismála um að brotið hefði verið gegn lögunum væri bindandi. Aftur á móti var kröfu stefnanda um miskabætur samkvæmt samkvæmt 31. gr. laganna hafnað þar sem skilyrðið um verulegt gáleysi var ekki talið uppfyllt. Að sama skapi fékk krafan ekki stoð í b-lið 1. mgr. 26. gr. skaðabótalaga, enda ólögmætri meingerð gagnvart stefnanda ekki til að dreifa.
H, einn þriggja umsækjenda um starf yfirlæknis á L, höfðaði mál á hendur Í og krafðist miskabóta á þeim grundvelli að með ráðningu annars umsækjanda í starfið hefði hann verið beittur misrétti, sbr. 26. gr. laga nr. 10/2008 um jafna stöðu og jafnan rétt kvenna og karla. Þriðji umsækjandinn, sem ekki fékk starfið, kærði ákvörðun L til kærunefndar jafnréttismála sem komst að þeirri niðurstöðu að spítalinn hefði með ráðningunni brotið gegn lögum nr. 10/2008. Höfðaði L í framhaldinu mál á hendur þeim umsækjanda og krafðist þess að úrskurður kærunefndarinnar yrði felldur úr gildi en með dómi Hæstaréttar í máli nr. 364/2014 var hann sýknaður af þeirri kröfu. Í dómi Hæstaréttar kom fram að þrátt fyrir að líta yrði svo á, miðað við forsögu 31. laga nr. 10/2008 og lögskýringargögn, að um sérákvæði um miskabætur væri að ræða vegna mismununar á grundvelli kynferðis þyrfti að vera uppfyllt það almenna skilyrði til greiðslu miskabóta að gáleysi væri verulegt. Hefði stöðunefnd landlæknis samkvæmt 1. mgr. 35. gr. laga nr. 40/2007 um heilbrigðisþjónustu lagt faglegt mat á hæfni umsækjenda um starfið, metið þá alla þrjá hæfa til að gegna starfinu og ekki talið ástæðu til að gera upp á milli þeirra. Var því ekki talið að H hefði sýnt fram á að þrátt fyrir annmarka á ráðningu í starfið hefði honum fremur borið starfið en þriðja umsækjandanum sem ekki hlaut það og fjallað var um í fyrrnefndum dómi. Að því virtu og með því að H hefði ekki sýnt fram á að skilyrðinu um verulegt gáleysi væri fullnægt var ekki talið að efni væru til að dæma honum miskabætur. Var Í því sýknað af kröfu H.
Stefnandi krafðist miskabóta með vísan til þess að sér hefði verið mismunað við ráðningu í starf yfirlæknis á grundvelli kynferðis. Stefndi var sýknaður með þeim rökum að ekki lægi fyrir að stefnandi hefði orðið fyrir miska við ráðninguna.
Stefnandi höfðaði mál gegn íslenska ríkinu þar sem hann taldi fram hjá sér gengið við stöðuveitingu hjá ríkinu. Var íslenska ríkið sýknað.
Stefnandi krafðist skaðabóta úr hendi ríkisins vegna brota gegn jafnréttislögum við setningu í stöður aðstoðaryfirlögregluþjóna hjá Lögreglustjóranum á höfuðborgarsvæðinu í maí 2014.
Í málinu krafðist H ohf. þess að ógiltur yrði úrskurður yfirfasteignamatsnefndar frá maí 2012 þar sem staðfest var ákvörðun Þ frá ágúst 2011 um að fasteignamat tónlistar- og ráðstefnuhússins H fyrir árið 2011 væri 17.014.750.000 krónur og að R yrði gert að þola dóm þess efnis. Reisti H ohf. kröfu sína á því að beita ætti svonefndri tekjumatsaðferð við útreikning á fasteignamatinu, þar sem lagt væri mat á tekjur sem hafa mætti af eigninni, í stað kostnaðaraðferðar sem Þ hafði stuðst við, en sú aðferð grundvallaðist að meginstefnu á byggingarkostnaði fasteignarinnar. Í dómi Hæstaréttar kom fram að ekki hefði verið gerð grein fyrir ástæðu þess að R hefði einnig verið stefnt. Var kröfu H ohf. á hendur R því vísað sjálfkrafa frá héraðsdómi vegna vanreifunar á aðild hans að málinu. Tekið var fram að sú regla að miða skuli matsverð fasteignar við það verð, sem ætla má að eignin hefði í kaupum og sölu á markaði, hefur gilt um ákvörðun fasteignamats eftir lögum þess efnis. Samkvæmt 2. mgr. 27. gr. laga nr. 6/2001 um skráningu og mat fasteigna, sem aðilar voru sammála um að líta bæri til við úrlausn málsins, skal við ákvörðun matsverðs fasteignar líta til sjónarmiðanna, sem þar eru upp talin, eftir því hvert eða hver þeirra gefa gleggsta mynd af raunvirði eignarinnar. Talið var að Þ hefði ekki við ákvörðun fasteignamats horft einungis til tekna af öðrum fasteignum, sem sambærilegar mætti telja, heldur einnig til tekna af eigninni sjálfri. Þótt heimilt væri á grundvelli laganna að setja reglur til viðmiðunar um það hvernig matsverð tiltekinna tegunda eigna skyldi ákveðið yrði að víkja frá þeim reglum ef sýnt væri að beiting þeirra við mat á einstökum eignum gengi þvert gegn hinu lögmælta markmiði sem að framan greinir. Fasteignamat væri meðal annars stofn til álagningar fasteignaskatts samkvæmt 2. mgr. 3. gr. laga nr. 4/1995 um tekjustofna sveitarfélaga. Af þeim sökum hvíldi sú skylda á Þ að sjá til þess að allar upplýsingar, sem við ættu og máli skiptu, lægju fyrir áður en ákvörðunin væri tekin, sbr. 10. gr. stjórnsýslulaga nr. 37/1993, svo og að gæta samræmis og jafnræðis í lagalegu tilliti við þá úrlausn, sbr. 11. gr. sömu laga. Samkvæmt matsgerð, sem H ohf. hafði aflað, var talið að líklegt söluverð tónlistar- og ráðstefnuhússins hefði verið 10.000.000.000 krónur á árinu 2014. Talið var að þótt mati hinna dómkvöddu manna yrði ekki jafnað til ákvörðunar um fasteignamat hefði matsgerð þeirra engu að síður sönnunargildi um það hvert gæti hafa verið sennilegt gangverð tónlistar- og ráðstefnuhússins á markaði árið 2011. Með matsgerðinni hefði H ohf. fært nægar líkur fyrir að gangverð hússins hefði verið svo verulega lægra en matsverð þess samkvæmt ákvörðun Þ að ekki hefði verið fylgt því markmiði sem mælt væri fyrir um í 27. gr. laga nr. 6/2001. Ekki yrði framhjá því litið að tónlistar- og ráðstefnuhúsið H væri að stærstum hluta leigt út, auk þess sem gengið væri út frá því af hálfu eigenda þess að tekjur af leigu og aðstöðu í húsinu ætti að standa undir rekstrarkostnaði þess. Að þessu leyti mætti líkja nýtingu hússins við skrifstofu- og verslunarhúsnæði, en fasteignamat af þeim eignum hefði í æ ríkara mæli verið ákveðið af Þ með svonefndri tekjuaðferð. Var því fallist á með H ohf. að með tekjuaðferðinni fengist gleggri mynd af líklegu gangverði tónlistar- og ráðstefnuhússins á markaði en með kostnaðaraðferð. Talið var að þar sem um væri að ræða einstaka byggingu að allri gerð og búnaði væri óhjákvæmilegt að virða hana sérstaklega til fasteignamats þar sem litið yrði eftir föngum til þess, sem húsið ætti sameiginlegt með öðrum eignum og nýtingu þeirra, auk þess sem höfð yrði hliðsjón af rauntekjum af því sjálfu. Þá yrði við mat á tekjumöguleikum hússins að taka tillit til þess að á því hvíldi sú kvöð að þar skyldi ávallt starfrækt tónlistarhús og ráðstefnumiðstöð. Loks var talið að óheimilt væri, með hliðsjón af 11. gr. stjórnsýslulaga, að telja til tekna framlög eigenda til hússins, sem ekki fælu í sér endurgjald fyrir afnot af því. Samkvæmt framansögðu var tekin til greina krafa H ohf. um að úrskurður yfirfasteignamatsnefndar yrði ógiltur.
L höfðaði mál á hendur S og krafðist þess að felldur yrði úr gildi úrskurður kærunefndar jafnréttismála, þar sem komist var að niðurstöðu um að brotið hefði verið gegn ákvæðum laga nr. 10/2008 um jafna stöðu og jafnan rétt kvenna og karla við ráðningu í starf yfirlæknis æðaskurðlækninga með því að S, sem var á meðal umsækjenda um stöðuna, var talinn hæfari til að gegna starfinu en sá umsækjenda sem ráðinn var. S var sýknaður af kröfu L með skírskotun til þess að kærunefnd jafnréttismála hefði beitt lögmætum aðferðum í úrlausn sinni og ekki farið út fyrir valdsvið sitt eða verksvið.
Stefndi dæmdur til að greiða stefnanda skaðabætur vegna brots gegn lögum nr. 10/2008 um jafna stöðu og jafnan rétt kvenna og karla.
Deilt var um hvort við slit varnaraðila bæri að viðurkenna skaðabótakröfu sóknaraðila á hendur varnaraðila vegna brots gegn jafnréttislögum og þá hverrar stöðu í réttindaröð krafan nyti. Fallist á að viðurkenna bæri skaðabótakröfu sóknaraðila, þó að lægri fjárhæð en krafist var. Hafnað að krafan nyti stöðu sem forgangskrafa, sbr. 1. tölul. 1. mgr. 112. gr. laga nr. 21/1991 en viðurkennt að hún nyti stöðu sem almenn krafa sbr. 113. gr. sömu laga.
Stefndi var dæmdur til að greiða stefnanda miskabætur vegna brots gegn lögum nr. 10/2008 um jafna stöðu og jafnan rétt kvenna og karla.
Fyrrverandi bæjarstjóri krafðist skaða- og miskabóta vegna mismunar á launakjörum hennar og eftirmanns.
Rift var tiltekinni greiðslus City Star Airlines ehf. til stefnda, GÞG endurskoðun og ráðgjöf slf. og stefndi dæmdur til að endurgreiða þrotabúi City Star Airlines ehf., fjárhæðina á grundvelli þess að talið var að eigandi stefnda hafi mátt vita að greiðslan var til hagsbóta stefnda á kostnað annarra.
A var ein fjögurra umsækjenda um starf lektors eða dósents í tölvunarfræði við tölvunarfræðiskor í verkfræðideild H sem auglýst var laust til umsóknar í október 2004. Að áliti dómnefndar voru tveir umsækjendur, A og K, taldir hæfir til að gegna stöðu dósents. Verkfræðideild H fékk dómnefndarálitið til umfjöllunar og var það tekið fyrir á deildarfundi 8. júní 2005. Á fundinum var samþykkt að mæla með því að K yrði ráðinn í stöðuna og óskað eftir því að það yrði gert í bréfi deildarforseta til rektors 23. júní sama ár. Í bréfinu kom fram að mat meirihluta fundarmanna hefði verið að það sjónarmið sem vægi þyngst við ákvörðun um ráðstöfun starfsins væri þörf verkfræðideildar fyrir kennslu í grunnnámi, en að teknu tilliti til þess væri K hæfasti umsækjandinn í starfið. Af hálfu rektors var óskað eftir ítarlegri rökstuðningi fyrir þessu og var hann veittur á grundvelli samþykktar deildarfundar 14. október 2005. Að þessum rökstuðningi fengnum féllst rektor á tillögu deildarinnar. J höfðaði síðar mál fyrir hönd A og krafðist þess að viðurkennt yrði að H hefði með því að ganga fram hjá A við ráðningu í stöðuna brotið gegn ákvæðum laga nr. 96/2000. Þá var krafist viðurkenningar á skaðabótaskyldu H vegna fyrrgreindrar ráðningar og greiðslu miskabóta. Talið var að við mat á því hver af hæfum umsækjendum teldist hæfastur til að gegna starfi dósents yrði að teljast lögmætt sjónarmið að leggja mesta áherslu á kennsluþáttinn, eins og gert hafi verið af hálfu verkfræðideildar. Deildarfundur hefði á þessum grunni metið K hæfari en A og bæri að hafna því að matið byggðist á ómálefnalegum forsendum eða væri bersýnilega rangt. Var hvorki fallist á að brotnar hefðu verið reglur stjórnsýslulaga né að leiddar hefðu verið líkur að því að beinni eða óbeinni mismunun hefði verið beitt vegna kynferðis við ráðningu í starfið. Var því hafnað að brotið hefði verið gegn þágildandi lögum nr. 96/2000 og H sýknaður af kröfum J.
I var meðal 14 umsækjenda um stöðu rektors L sem auglýst var laus til umsóknar í júlí 2004. Háskólaráð L veitti umsögn um það hverjir af umsækjendunum uppfylltu skilyrði laga til að gegna stöðu rektors og í kjölfarið voru allir umsækjendur boðaðir til starfsviðtals í landbúnaðarráðuneytinu. Landbúnaðarráðherra skipaði Á í stöðu rektors í ágúst sama ár og óskaði I eftir rökstuðningi ráðuneytisins. Kom þar meðal annars fram að Á hefði haft sterka sýn um framtíð íslensks landbúnaðar og stöðu L innan hans. I sendi kvörtun vegna stöðuveitingarinnar til umboðsmanns Alþingis og vísaði málinu jafnframt til kærunefndar jafnréttismála. I höfðaði síðan mál og krafðist þess að viðurkennt yrði að með ráðningu í stöðu rektors L hefði landbúnaðarráðherra brotið gegn ákvæðum laga nr. 96/2000 um jafna stöðu og jafnan rétt kvenna og karla. Þá krafðist hún jafnframt viðurkenningar á skaðabótaskyldu stefnda gagnvart sér. Byggði L meðal annars á því að vegna menntunar sinnar og starfsreynslu hefði hún verið hæfari til að gegna starfi L en sá sem ráðinn var. Taldi hún að kynjasjónarmið lægju að baki stöðuveitingunni, þar sem ekki hefði verið hægt að útskýra með fullnægjandi hætti hvers vegna gengið hefði verið framhjá henni. Þá taldi hún að ef ekki yrði fallist á að hún hefði verið hæfari en sá sem ráðinn var yrði að miða við að hún hefði að minnsta kosti verið jafnhæf viðkomandi aðila og því hefði borið að skipa hana sem konu í stöðuna vegna þess lága hlutfalls kvenna sem væru í stjórnunarstöðum á vegum ráðuneytisins. Var talið að þegar litið væri til þeirra gagna sem fyrir lægju í málinu um störf og stjórnunarreynslu I og Á yrði að telja að samanburður á milli þeirra væri I óhagstæður. Þá lá fyrir að frammistaða Á í starfsviðtali hefði verið mun betri en I. Þótt starfsviðtölin hefðu haft verulegt vægi við mat á hæfni umsækjenda og þeirra hefði ekki verið getið sérstaklega í auglýsingu um stöðu rektors yrði ekki á það fallist að leiða mætti líkur að því að forsendur ráðherra við ráðninguna væru byggðar á ómálefnalegum ástæðum. Þá var ekki talið að sá annmarki, að þess hefði ekki verið gætt að skrá meginatriðin í svörum umsækjenda í starfsviðtali, hefði skipt máli varðandi skipun ráðherra í embættið. Var fallist á það með Í að Á hefði verið hæfari til að gegna starfinu en I og ekki hefðu verið leiddar líkur að því að um mismunun vegna kynferðis hefði verið að ræða. Var kröfum I hafnað. Staðfesti Hæstiréttur héraðsdóm með vísan til forsendna.
Stefnandi krafðist viðurkenningar á því að með því að ganga fram hjá konu sem sótti um dósentstarf hjá stefnda hefði verið brotið gegn lögum um jafna stöðu og jafnan rétt kvenna og karla. Einnig var krafist viðurkenningar á skaðabótaskyldu stefnda og miskabóta að fjárhæð 1.000.000 króna vegna brota á lögunum. Á kröfurnar var ekki fallist.
Stefndi, landbúnaðarráðherra f.h. ríkissjóðs, var sýknaður af kröfu stefnanda um það að landbúnaðarráðherra hefði brotið gegn ákvæðum laga nr. 96/2000 um jafna stöðu og jafnan rétt kvenna og karla með ráðningu í stöðu rektors Landbúnaðarháskóla Íslands 26. ágúst 2004. Stefndi var einnig sýknaður af kröfu stefnanda um viðurkenningu á bótaskyldu.
Í júní 2003 var embætti sendiráðsprests í London auglýst, en embættið er samstarfsverkefni Í, U og TR. Skipuð var sérstök hæfisnefnd með fulltrúum fyrrnefndra aðila og tekið fram að álit hennar væri bindandi. Nefndin mælti með því að SA, sem er tengdasonur biskups, yrði skipaður til að gegna embættinu og var það gert. SG, sem hafði einnig sótt um embættið, krafðist viðurkenningar á því að Í væri skaðabótaskyld vegna skipunarinnar. Ekki var talið neitt því til fyrirstöðu að biskup hefði í samráði við þá sem tilnefndu fulltrúa í hæfisnefndina mátt ákveða að niðurstaða hennar yrði bindandi, enda hélt hann formlegu skipunarvaldi sínu og bar áfram ábyrgð á því að skipun í embættið væri lögmæt. Þá var ekki fallist á að brotið hefði verið gegn vanhæfisreglum stjórnsýsluréttar með afskiptum biskups af skipuninni eða að fulltrúi U hefði verið vanhæfur til setu í nefndinni. Þá var ekki talið að formgalli hefði verið á málsmeðferð nefndarinnar þar sem einn nefndarmanna hefði setið hjá við afgreiðslu málsins eða að brotið hefði verið gegn rannsóknarreglu stjórnsýsluréttar þar sem ákvörðun hefði verið tekin án þess að tiltekin meðmæli hefðu borist nefndinni. Hins vegar var komist að þeirri niðurstöðu að nefndin hefði ekki gætt málefnalegra sjónarmiða við mat á starfsreynslu og framhaldsmenntun umsækjenda. Var talið að SG hefði sýnt fram á að starfsreynsla hennar og menntun hefðu nýst henni þannig að hún hafi verið SA jafnhæf eða hæfari til að gegna umræddu embætti. Fram var komið að engin kona gegndi prestsembætti erlendis og hafði Í ekki sýnt fram á að aðrar ástæður en kynferði hefðu legið til grundvallar þeirri ákvörðun að skipa SA í embættið. Var því talið að brotið hefði verið gegn 1. mgr. 24. gr. laga nr. 96/2000 um jafna stöðu og jafnan rétt karla og kvenna með skipuninni. Að þessu virtu og þar sem leiddar höfðu verið nægilegar líkur að því að SG hefði orðið fyrir fjárhagstjóni sem Í bæri ábyrgð á var fallist á kröfu hennar.
Íslenska ríkið sýknað af bótakröfu vegna ráðningar í starf.
Þ starfaði hjá Garðyrkjuskóla ríkisins að rannsóknarverkefni, sem hún hugðist fá viðurkennt til doktorsprófs við landbúnaðarháskóla í Svíþjóð. Var um að ræða hálft starf með tímabundnum samningum. Endir var bundinn á ráðningu Þ með vísan til þess að ekki hefðu fengist styrkir til verkefnisins. Á sama tíma sótti Þ um starf hjá garðyrkjuskólanum ásamt karlmanni sem fékk starfið. Hélt hún því fram að garðyrkjuskólinn hefði vanefnt samning hennar um doktorsverkefnið auk þess sem henni hefði verið mismunað eftir kynferði við stöðuveitinguna og krafðist skaðabóta af því tilefni. Í Hæstarétti var tekið fram Þ hefði aldrei fengið bindandi fyrirheit frá sænska skólanum um að verða tekin í doktorsnámið auk þess sem hún hefði aldrei verið formlega skráð til þess. Gæti íslenska ríkið ekki borið ábyrgð gagnvart Þ á því að hún varð ekki innrituð í doktorsnám. Þá var fallist á með héraðsdómi að Þ hefði ekki leitt líkur að því að henni hefði verið mismunað eftir kynferði við umrædda stöðuveitingu. Var ríkið sýknað af kröfum Þ.
G, sem gegndi starfi deildarstjóra á félagsmálastofnun sveitarfélagsins A, höfðaði mál gegn A til greiðslu skaðabóta vegna brota A á jafnréttislögum. Taldi G starf sitt og starf deildartæknifræðings hjá A jafnverðmæt, en í starfsmati sem fram fór á nokkrum störfum hjá A árið 1996, þar á meðal á framangreindum tveimur störfum, voru störfin metin til sama stigafjölda. Var krafa G reist á því að hún ætti að njóta sömu kjara og deildartæknifræðingur. G var talin hafa leitt verulegar líkur að því, að starf hennar og deildartæknifræðings hafi verið svo sambærileg að inntaki og ytri búnaði, að henni hafi verið mismunað í kjörum hjá A í skilningi ákvæða jafnréttislaga. A yrði að sýna fram á, að svo hafi ekki verið gert á grundvelli kynferðis. A var ekki talinn hafa fært haldbær rök að því, að markaðssjónarmið hafi átt að leiða til svo mismunandi kjara þegar litið væri til stöðu þessara starfa í stjórnkerfi A. Tókst A ekki að sanna, að hlutlægar og málefnalegar ástæður hafi ráðið kjaramuninum, en mismunandi kjarasamningar gætu ekki réttlætt mismun starfskjara kvenna og karla í skilningi jafnréttislaga. Var því fallist á kröfu G, sem hún var ekki talin hafa glatað fyrir fyrningu eða tómlæti.
N gerðist brotlegt við 1. mgr. 24. gr. laga nr. 96/2000 um jafna stöðu og jafnan rétt kvenna og karla, þegar gengið var fram hjá E við ráðningu í tiltekið starf. Þótti helst mega ráða að framkvæmdastjórar N hefðu ekkert hugað að ákvæðum laganna við ráðninguna, svo sem þeim bar að gera. Af málsatvikum var talið ljóst að E hafði í raun orðið fyrir fjártjóni og með vísan til 24. gr., sbr. 28. gr. laga nr. 96/2000 var nægjanlega fram komið að það stafaði að því hvernig staðið var að umræddri ráðningu. N var því dæmt til greiðslu skaðabóta, sem metnar voru að álitum.
Á árinu 2002 var Þ ráðinn leikhússtjóri L. H var meðal umsækjenda um starfið og taldi hún að henni hefði verið mismunað við ráðninguna á grundvelli kynferðis síns. Kærði hún ráðninguna til kærunefndar jafnréttismála og komst nefndin að þeirri niðurstöðu að L hefði brotið gegn 1. mgr. 24. gr. laga nr. 96/2000 um jafna stöðu og jafnan rétt kvenna og karla þegar það réð Þ til starfans en ekki H. Höfðaði J mál þetta vegna H með heimild í 5. mgr. 3. gr. sömu laga og var talið að J hefði verið þetta heimilt. Talið var að það væri meginregla vinnuréttar, að atvinnurekandi hefði um það frjálsar hendur, hvern hann veldi til starfa í sína þágu. Því vali væru þó settar skorður, sem leiddar yrðu af ákvæðum laga nr. 96/2000, þegar kona og karl sæktu um sama starfið. Þótt H hefði að baki lengra háskólanám en Þ hafi ekki verið gert líklegt að það nám eða önnur reynsla nýtist henni þannig, að hún yrði talin jafnhæf eða hæfari honum til að stjórna leikhúsi. Leikhúsráð L hafi metið það svo á grundvelli umsóknargagna og viðtala við umsækjendur að menntun og reynsla Þ, sem nær öll hafi verið á sviði leiklistar, auk sjónarmiða um listræn stefnumið í leikhúsinu og fjármál og rekstur þess, hafi skipaði honum framar H við ákvörðun um ráðninguna. H taldist ekki hafa sýnt fram á að þetta mat hafi verið ómálefnalegt og var því ekki fallist á að henni hefði verið mismunað eftir kynferði.
K sótti um embætti sýslumannsins á Keflavíkurflugvelli ásamt sex körlum en utanríkisráðherra skipaði einn þeirra, J, í embættið. Krafðist K þess að viðurkennt yrði að skipunin hefði brotið gegn lögum nr. 28/1991 um jafna stöðu og jafnan rétt kvenna og karla. Tekið var fram að við úrlausn málsins yrði að meta hvort ráðherra hefði reist ákvörðun sína á lögmætum sjónarmiðum. Var talið að auglýsing um embætti sýslumannsins hefði veitt ákveðna forsögn um það hvernig umsóknirnar yrðu metnar en þar var að finna lýsingu á meginverkefnum sýslumanns er brá ljósi á sérstætt eðli embættisins vegna staðsetningar þess á varnarsvæðinu og þátttöku Íslands í alþjóðlegu samstarfi um landamæraeftirlit. Var með þessu talið vera gefið til kynna að önnur reynsla og þekking en af hefðbundnum störfum sýslumanna, svo sem starfsreynsla á erlendum vettvangi, myndi geta haft töluvert vægi við mat umsókna. Þótti auglýsingin hafa verið eðlilega úr garði gerð enda ekki falið í sér ólögmæt hæfisskilyrði en við veitingu embættisins hefði ekki verið byggt á öðrum atriðum en ráða mátti af henni. Var fallist á að Í hefði fært fram gild rök um sérstöðu embættisins sem hlaut að skipta miklu máli við val milli umsækjenda. Drjúg reynsla J í alþjóðasamskiptum af ýmsum toga var talin til þess falin að treysta hæfni hans til að takast á við meginviðfangsefni embættisins. Þegar allt var virt var talið réttmætt að starfsreynsla hans hefði vegið þyngra en K við hæfnismat. Þá var K ekki talin hafa sýnt fram á að menntun hennar og starfsreynsla hefðu nýst henni þannig að hún yrði talin hafa verið J jafnhæf eða hæfari til að gegna starfinu. Voru sjónarmið utanríkisráherra við veitingu embættisins því talin eðlileg og málefnaleg og ekki fallist á að K hefði verið mismunað eftir kynferði. Var Í því sýknað af kröfum K.
R gengdi starfi jafnréttis- og fræðslufulltrúa hjá sveitarfélaginu A frá september 1995 þar til í apríl 1998. Var hún ráðin samkvæmt kjarasamningi A við STAK, en við röðun í launaflokka hjá A samkvæmt umræddum kjarasamningi var tekið mið af starfsmati. Samkvæmt skipuriti A heyrði starf jafnréttis- og fræðslufulltrúa beint undir bæjarstjóra ásamt starfi atvinnumálafulltrúa og bæjarlögmanns. Við samanburð á starfi jafnréttis- og fræðslufulltrúa og atvinnumálafulltrúa við óformlegt starfsmat á árinu 1996 fékk staða jafnréttis- og fræðslufulltrúa 167 stig, en staða atvinnumálafulltrúa 170 stig. Í framhaldi af matinu óskaði R eftir leiðréttingu á kjörum sínum með hliðsjón af kjörum atvinnumálafulltrúa, sem tóku mið af kjarasamningi verkfræðinga, þótt verkfræðingar gegndu ekki alltaf þeirri stöðu. Á þessum tíma gegndi H, sem var verkfræðingur og karlmaður, stöðu atvinnumálafulltrúa. Var launakjörum svo háttað í mars 1997 að mánaðarlaun jafnréttis- og fræðslufulltrúa voru 172.895 krónur auk greiðslna fyrir 22 fasta yfirvinnutíma og akstur samkvæmt akstursbók, en mánaðarlaun atvinnumálafulltrúa voru 250.891 króna auk greiðslna fyrir 33 fasta yfirvinnutíma og 600 km akstur á mánuði. Kærunefnd jafnréttismála (K) komst að þeirri niðurstöðu í febrúar 1998, að kynferði hefði ráðið þeim verulega muni, sem verið hefði á launum og öðrum kjörum jafnréttis- og fræðslufulltrúa annars vegar og atvinnumálafulltrúa hins vegar og hafi A ekki fylgt ákvæðum jafnréttislaga við umræddar launaákvarðanir. Fór K þess á leit við A að R yrði bættur umræddur munur. Hafnaði A þeirri kröfu og höfðaði K þá mál á hendur A vegna R. Talið var að við úrlausn þess, hvort störf teldust jafnverðmæt og sambærileg í skilningi jafnréttislaga, yrði að byggja á heildstæðu mati og því gæti verið um slík störf að ræða þótt einstaka þættir þeirra kynnu að vera ólíkir. Þá næðist markmið jafnréttislaga ekki, ef launajöfnuður ætti einungis að ná til fólks innan sömu starfsstéttar, en óhjákvæmilegt væri, að samningsfrelsi á vinnumarkaði sætti þeim takmörkunum, er leiddi af ákvæðum jafnréttislaga þannig skýrðum. Talið var að K hefði leitt verulegar líkur að því, að störf jafnréttis- og fræðslufulltrúa og atvinnumálafulltrúa hjá A hefðu verið svo sambærileg að inntaki og ytri búnaði, að R hefði verið mismunað í kjörum hjá A. Nægðu þær til þess samkvæmt almennum sönnunarreglum, að A yrði að sýna fram á að svo hafi ekki verið gert á grundvelli kynferðis. Var A ekki talinn hafa sannað að hlutlægar og málefnalegar ástæður hefðu í hvívetna ráðið kjaramuninum og voru mismunandi kjarasamningar einir ekki taldir geta réttlætt mismun starfskjara kvenna og karla. Þá var fallist á niðurstöðu héraðsdóms um yfirvinnu- og akstursgreiðslur, en A var ekki talinn hafa sýnt fram á, að í þessu máli ættu við önnur sjónarmið um þá þætti starfskjaranna en föst laun. Var því fallist á kröfu K vegna R um að viðurkennt yrði með dómi að sá munur, sem var á launum og öðrum starfskjörum jafnréttis- og fræðslufulltrúa og atvinnumálafulltrúa A, hafi frá ráðningu R og fram í mars 1997, brotið gegn lögum nr. 28/1991 um jafna stöðu og jafnan rétt kvenna og karla. Ekki voru talin efni til að dæma R sérstakar miskabætur.
R hóf nám í Háskóla Íslands 1990 en hvarf frá því 1994. Hélt hún því fram að hún hefði ekki fengið þá aðstoð og aðstöðu sem fötlun hennar krafðist, en hún var blind. Talið að Háskólanum hafi borið skylda til að taka við R og gera almennar ráðstafanir sem fylgdu námi svo fatlaðs nemanda við skólann, til þess að hún fengi notið þeirrar þjónustu er almennir stúdentar nutu, við þá deild skólans sem hún kaus sér. Var þetta talið byggjast á lögum 41/1983 og 59/1992 um málefni fatlaðra, mannréttinda-sáttmála Evrópu og jafnræðisreglu 65. gr. stjórnarskrárinnar. Talið að þrátt fyrir að komið hefði verið til móts við ýmsar óskir R um undanþágur og aðstoð vegna fötlunar hennar, hefði skort á að gerðar væru almennar ráðstafanir eða heildarstefna mótuð um námsaðstoð við R, námsframvindu, aðstoð í prófum og próftíma, sem hún gat gengið að. Þessi skortur á almennum fyrirmælum hefði bæði leitt til þess að ýmislegt hefði farið úrskeiðis í viðleitni skólans til að mæta þörfum R og að hún hefði sjálf þurft að ganga eftir eðlilegum tilhliðrunum. Talið var að í þessu fælist meingerð gegn persónu R og frelsi hennar til menntunar og henni dæmdar bætur á grundvelli 26. gr. laga nr. 50/1993. Kröfu R um bætur vegna fjártjóns hafnað, þar sem R þótti ekki hafa sýnt nægilega fram á fjárhagslegt tjón.