Fara í efni

Dómstólaleit

Leit í dómum íslenskra dómstóla

Leita í öllum dómstólum...

Niðurstöður

43 dómar fundust

Lykilorð: Biðlaun

Landsréttur birt 11. nóvember 2022

458/2021

Gunnlaugur Auðunn Júlíusson (Jón Sigurðsson lögmaður) gegn Borgarbyggð (Eva Bryndís Helgadóttir lögmaður)

G og B greindi á um það hvort G hefði verið sagt upp starfi sveitarstjóra með lögmætum hætti og um uppgjör launa í kjölfar starfsloka. Í dómi Landsréttar kom fram að uppsögnin hefði verið heimil samkvæmt 54. gr. sveitarstjórnarlaga nr. 138/2011 og að baki henni hefðu legið málefnalegar ástæður í skilningi ákvæðisins. Jafnframt var því hafnað að brotið hefði verið gegn kjarasamningi er G starfaði eftir. Þá hefði hvorki verið brotið gegn ákvæðum stjórnsýslulaga nr. 37/1993 né meginreglum stjórnsýsluréttar með uppsögninni. Ætti G því hvorki rétt til bóta vegna fjártjóns né miskabóta á þeim grundvelli að staðið hefði verið að uppsögninni með ólögmætum hætti. Jafnframt var G ekki talinn hafa átt skilyrðislausan rétt til tiltekinna launahækkana samkvæmt ráðningarsamningi. Landsréttur féllst á hinn bóginn á það með G að hann hefði átt rétt á launum á uppsagnarfresti í þrjá mánuði og biðlaunum í sex mánuði að loknum uppsagnarfresti, enda væri það sú túlkun ráðningarsamningsins sem best samræmdist orðalagi hans og meginreglum vinnuréttar. Loks var B gert að greiða G orlofslaun á þriggja mánaða uppsagnarfresti.

Landsréttur birt 27. október 2022

302/2021

Kristín Björg Kristjánsdóttir (Gestur Jónsson lögmaður) gegn Íslandspósti ohf (Andri Andrason lögmaður)

K starfaði hjá Póst- og símamálastofnun til 1997 er hún tók við starfi hjá P hf. við hlutafélagvæðingu stofnunarinnar. Við skiptingu P hf. ári síðar varð hún starfsmaður Í ohf. K var sagt upp störfum hjá Í ohf. 21. október 2019 vegna skipulagsbreytinga. Hún höfðaði mál til innheimtu biðlauna eða bóta úr hendi Í ohf. vegna starfsloka sinna. Um rétt sinn til biðlauna vísaði K til 1. mgr. 8. gr. laga nr. 103/1996 um stofnun hlutafélags um rekstur Póst- og símamálastofnunar og 5. mgr. ákvæðis til bráðabirgða í lögum nr. 70/1996 um réttindi og skyldur starfsmanna ríkisins og einnig til ráðningarsamnings sem tók gildi 1. janúar 1997 þar sem fram kom að áunnin bótaréttur (biðlaunaréttur) hennar væri 6 mánuðir. Í ohf. var sýknað af kröfum K í héraði. Í dómi Landsréttar var vísað til þess að 8. gr. laga nr. 103/1996 hafi átt að tryggja að þeir starfsmenn Póst- og símamálastofnunar, sem ráðnir yrðu til starfa hjá Pósti og síma hf., héldu áunnum réttindum í starfi sínu hjá hlutafélaginu, þar á meðal biðlaunaréttinum. Þó bar að fara eftir nýsamþykktum lögum nr. 70/1996 um inntak og nánari skilmála biðlaunaréttinda þeirra hjá félaginu, en ekki eldri lögum um sama efni. Hlutu ráðningarsamningar sem gerðir voru við starfsmennina um störf þeirra hjá hlutafélaginu að taka mið af efni og tilgangi 8. gr. laga nr. 103/1996. Þótt lögin hefðu verið felld úr gildi með lögum nr. 75/2001 haggaði það ekki skuldbindingum stefnda samkvæmt samningum og fyrrgreindu lagaákvæði. Var því lagt til grundvallar að K ætti á grundvelli ráðningarskilmála sinna hjá Í ohf. rétt til greiðslu bóta samkvæmt 5. mgr. ákvæðis til bráðabirgða í lögum nr. 70/1996, að því gefnu að skilyrði ákvæðisins væru fyrir hendi. Mótbárum Í ohf. við því að þeim skilyrðum væri fullnægt var hafnað. Aftur á móti var talið að K hefði ekki áunnið sér meiri bótarétt en hún hafði öðlast í gildistíð eldri laga nr. 38/1954 um réttindi og skyldur starfsmanna ríkisins. Því var fallist á þrautavarakröfu K sem tók mið af því að hún ætti rétt til bóta vegna niðurlagningar á starfi sínu hjá Í ohf. er næmi óbreyttum launum í 6 mánuði frá starfslokum að frádregnum launatekjum hennar á þeim tíma.

Landsréttur birt 7. október 2022

296/2021

Pétur Einarsson (Sveinn Guðmundsson lögmaður, Leó Daðason lögmaður, 1. prófmál) gegn Íslandspósti ohf (Andri Andrason lögmaður)

PE starfaði hjá Póst- og símamálastofnun til 1997 er hann tók við starfi hjá P hf. við hlutafélagavæðingu stofnunarinnar. Við skiptingu P hf. ári síðar varð hann starfsmaður Í ohf. PE var sagt upp störfum hjá Í ohf. 16. október 2019 vegna hagræðingaraðgerða. Hann höfðaði mál til innheimtu biðlauna eða bóta úr hendi Í ohf. vegna starfsloka sinna. Fyrir héraðsdómi byggði PE á því að hann ætti rétt á biðlaunum samkvæmt ráðningarkjörum og samfelldum starfsferli frá árinu 1980. Til stuðnings kröfunni vísaði hann til 5. mgr. ákvæðis til bráðabirgða í lögum nr. 70/1996 um réttindi og skyldur starfsmanna ríkisins, sbr. 34. gr. laganna og 8. gr. laga nr. 103/1996 um stofnun hlutafélags um rekstur Póst- og símamálastofnunar. Í ohf. var sýknað af kröfum PE í héraði. Í dómi Landsréttar var vísað til þess að 8. gr. laga nr. 103/1996 hafi átt að tryggja að þeir starfsmenn Póst- og símamálastofnunar, sem ráðnir yrðu til starfa hjá Pósti og síma hf., héldu áunnum réttindum í starfi sínu hjá hlutafélaginu, þar á meðal biðlaunaréttinum. Þó bar að fara eftir nýsamþykktum lögum nr. 70/1996 um inntak og nánari skilmála biðlaunaréttinda þeirra hjá félaginu, en ekki eldri lögum um sama efni. Hlutu ráðningarsamningar sem gerðir voru við starfsmennina um störf þeirra hjá hlutafélaginu að taka mið af efni og tilgangi 8. gr. laga nr. 103/1996. Þótt lögin hefðu verið felld úr gildi með lögum nr. 75/2001 haggaði það ekki skuldbindingum stefnda samkvæmt samningum og fyrrgreindu lagaákvæði. Talið var í ljós leitt að uppsögn PE yrði rakin til þess að starf hans hafi verið lagt niður í skilningi 5. mgr. fyrrgreinds ákvæðis til bráðabirgða. Þá var talið að hann ætti rétt á bótum á grundvelli ráðningarsamnings við Í ohf. vegna starfsloka hans, enda yrði að leggja til grundvallar að skilyrðum bótaréttar samkvæmt 5. mgr. væri fullnægt. Í samræmi við ráðningarsamning PE og fyrrgreint lagaákvæði næmi bótaréttur hans þeim launum sem fylgdu starfi hans hjá Í ohf. í tólf mánuði eftir starfslok.

Héraðsdómur Vestfjarða birt 7. apríl 2022

E-136/2021

A (Halldór Kr. Þorsteinsson lögmaður) gegn sveitarfélaginu B (Björn Jóhannesson lögmaður)

Sveitarstjóra var sagt upp störfum en ágreiningur var um hvort honum bæri, samkvæmt ráðningarsamningi réttur til biðlauna, auk réttar til greiðslu launa á uppsagnarfrestli. Dómurinn taldi að ráðningarsamningur fæli ekki í sér rétt til biðlauna eins og atvik voru í málinu.Á hinn bóginn taldi dómurinn að staðið hefði verið að uppsögninni með þeim hætti að varðaði sveitarfélagið skyldu til greiðslu miskabóta, á grundvelli b. liðar 1. mgr. 26. gr. skaðabótalaga nr. 50/1993.

Hæstiréttur birt 1. mars 2018

185/2017

Guðbrandur E. Þorkelsson (Hulda Rós Rúriksdóttir lögmaður) gegn íslenska ríkinu (Eiríkur Áki Eggertsson lögmaður)

Á árinu 2015 var starf G sem yfirlæknir á heilsugæslustöð lagt niður. Ágreiningslaust var að G ætti rétt til biðlauna í tólf mánuði samkvæmt 5. mgr. ákvæðis til bráðabirgða við lög nr. 70/1996 um réttindi og skyldur starfsmanna ríkisins og að þau ættu samkvæmt 1. mgr. 34. gr. laganna að samsvara óbreyttum launakjörum meðan hann starfaði sem yfirlæknir. Á hinn bóginn deildu aðilar um hvaða launaliðir féllu undir óbreytt launakjör í skilningi ákvæðisins. Í fyrsta lagi hélt G því fram að réttur hans til biðlauna næði til greiðslna vegna gæsluvakta. Mælt var fyrir um fyrirkomulag slíkra greiðslna í kjarasamningi. Var ekki talið að Í hefði fært fyrir því haldbær rök að skipan gæsluvakta G hefði verið breytt á því tímabili sem krafa hans tók til ef starf hans hefði ekki verið lagt niður. Hefðu greiðslur vegna gæsluvakta ekki verið háðar vinnuframlagi og yrðu því lagðar að jöfnu við samninga um fastar yfirvinnugreiðslur óháð vinnuframlagi. Í dómaframkvæmd Hæstaréttar hefðu slíkar greiðslur verið taldar falla undir biðlaun. Var sá kröfuliður því tekinn til greina. Í öðru lagi krafðist G greiðslna fyrir unnin verk á gæsluvöktum en greitt var fyrir þau samkvæmt gjaldskrá. Talið var að þótt fjárhæð greiðslna fyrir slík verk hefðu hverju sinni ráðist af fjölda sjúklinga og fjölda læknisverka yrði á grundvelli þess fyrirkomulags sem gilti um greiðslur fyrir verkin að leggja það að jöfnu við samning um fastar yfirvinnugreiðslur sem féllu undir biðlaun. Hefði Í ekki fært fyrir því haldbær rök að G hefði ekki notið þessara greiðslna ef starf hans hefði ekki verið lagt niður. Var sá kröfuliður G því tekinn til greina. Í þriðja lagi deildu aðilar um hvort launaliðurinn vottorðagreiðslur á launaseðli G ætti að teljast til biðlauna. Talið var að fjárhæð greiðslna til heilsugæslulækna fyrir ritun læknisvottorða réðust af fjölda vottorða og umfangi þeirra hverju sinni og gæti fjárhæðin þannig verið mismunandi frá einum tíma til annars. Hins vegar yrði ekki fram hjá því litið að ritun læknisvottorða væri hluti af aðalstarfi heilsugæslulækna og þannig órjúfanlegur þáttur starfsskyldna þeirra sem greitt væri sérstaklega fyrir eftir nánar tilgreindu fyrirkomulagi. Það fyrirkomulag yrði að leggja að jöfnu við samning um föst viðbótarlaun sem hefðu í dómaframkvæmd Hæstaréttar verið talin falla undir biðlaun. Var ekki talið að Í hefði fært fyrir því haldbær rök að G hefði ekki notið þessara greiðslna ef starf hans hefði ekki verið lagt niður. Var sá kröfuliður því einnig tekinn til greina. Var Í því gert að greiða G umkrafða fjárhæð.

Hæstiréttur birt 8. febrúar 2018

77/2017

Björn Vilhelmsson (Gísli Guðni Hall lögmaður) gegn sveitarfélaginu Garði (Áslaug Árnadóttir lögmaður)

B krafði S annars vegar um biðlaun vegna niðurlagningar stöðu hans sem deildarstjóra við Gerðaskóla á árinu 2015 og hins vegar miskabætur vegna ætlaðs brots S við ráðningu í stöðu skólastjóra við skólann á árinu 2012 en B var meðal ellefu umsækjenda um starfið. Gerður var skriflegur tímabundinn ráðningarsamningur við B um starf við skólann árið 2003 en eftir að hann rann sitt skeið á enda var ekki gerður nýr skriflegur samningur við hann. Hélt B engu að síður áfram starfi við skólann með starfsheitinu deildarstjóri og tók samkvæmt vinnuskýrslum laun sem slíkur í samræmi við ákvæði kjarasamnings. Í dómi Hæstaréttar kom fram að S yrði að bera hallann af því að ekki hefði verið gengið frá nýjum tímabundnum samningi við B eftir að gildistíma samningsins frá 2003 lauk. Yrði því lagt til grundvallar að komist hefði á ótímabundinn samningur um ráðningu hans í starfið. Í grein 14.12 þess kjarasamnings sem gilti þegar uppsögnin kom til framkvæmda var mælt fyrir um að starfsmaður sem hafið hefði störf sem kennari, námsráðgjafi eða stjórnandi grunnskóla í tíð laga nr. 72/1996 um réttindi og skyldur kennara og skólastjórnenda grunnskóla eða fyrir gildistöku þeirra og hefði starfað óslitið síðan, enda væri um stöðu í skilningi 14. gr. laganna að ræða, ætti rétt á biðlaunum yrði starf hans lagt niður. Var talið að B hefði í skilningi 14. gr. laga nr. 72/1996 gengt stöðu deildarstjóra við skólann. Með uppsagnabréfi til B á árinu 2015 hefði sú staða hans verið lögð niður í skilningi kjarasamningsins. Væri ekki unnt að líta svo á að rof hefði orðið á ráðningu B með launalausu leyfi sem hann tók skólaárið 2008 til 2009 enda hefði leyfið verið tekið í samráði við skólayfirvöld. Þar sem B hefði átt að baki 19 ára starfsaldur þegar honum var sagt upp stöðunni var talið að hann ætti rétt til biðlauna í tólf mánuði. Hins vegar var ekki talið að B hefði hnekkt því mati S að þeir sex umsækjendur sem boðaðir voru í viðtöl vegna skólastjórastöðunnar hefðu staðið honum framar samkvæmt þeim menntunar- og hæfniskröfum sem gerðar voru í auglýsingu um stöðuna. Þegar af þeirri ástæðu voru ekki talin skilyrði til að fallast á kröfu hans um miskabætur.

Hæstiréttur birt 21. september 2017

650/2016

Örn Erlendur Ingason (Hulda Rós Rúriksdóttir hrl) gegn íslenska ríkinu (Einar Karl Hallvarðsson hrl)

Ö starfaði sem yfirlæknir heilsugæslunnar hjá HV. Í kjölfar sameiningar HV og HP undir heiti hinnar fyrrnefndu var Ö tilkynnt að að ákveðið hefði verið að leggja niður starf hans frá og með 1. janúar 2015. Naut Ö biðlauna frá þeim degi til 31. desember sama ár. Í málinu krafðist Ö í fyrsta lagi að viðurkennt yrði að niðurlagning starfs hans hefði verið ólögmæt. Í öðru lagi krafðist hann greiðslu vegna svokallaðra gæsluvakta sem hann taldi sig eiga rétt til á biðlaunatímanum. Í þriðja lagi krafðist hann miskabóta vegna ólögmætrar niðurlagningar starfsins. Hæstiréttur vísaði viðurkenningarkröfu Ö frá héraðsdómi með vísan til þess að Ö hefði ekki lögmæta hagsmuni af því að fá sérstaka úrlausn um kröfuna, enda yrði að leggja mat á ólögmæti niðurlagningarinnar kæmi til þess að taka þyrfti afstöðu til kröfu hans um miskabætur. Að því er varðaði rétt Ö til greiðslu fyrir gæsluvaktir vísaði Hæstiréttur meðal annars til þess að samkvæmt 1. mgr. 34. gr. laga nr. 70/1996 um réttindi og skyldur starfsmanna ríkisins skyldi Ö halda „óbreyttum launakjörum“ á biðlaunatímanum. Gæsluvaktir hefðu verið óháðar vinnuframlagi Ö og yrðu þær því lagðar að jöfnu við samninga um fastar yfirvinnugreiðslur óháð vinnuframlagi sem í dómaframkvæmd Hæstaréttar hefðu verið taldar falla undir biðlaun. Var því fallist á kröfu Ö um greiðslu vegna þeirra. Kröfu Ö um miskabætur var á hinn bóginn vísað frá héraðsdómi með vísan til þess að hún væri í þversögn við kröfu hans um leiðréttingu á biðlaunum.

Héraðsdómur Reykjaness birt 4. janúar 2017

E-599/2016

Björn Vilhelmsson (Gísli Guðni Hall hrl) gegn Sveitarfélaginu Garði (Áslaug Árnadóttir hdl)

Stefnandi höfðaði mál annars vegar til greiðslu biðlauna vegna niðurlagningar starfs hans sem deildarstjóri og hins vegar til greiðslu miskabóta vegna brots við ráðningu í stöðu skólastjóra. Stefnandi fékk dæmdar miskabætur en kröfu hans um biðlaun var hafnað.

Hæstiréttur birt 3. október 2013

231/2013

Margrét Ólöf Ívarsdóttir (Guðni Ásþór Haraldsson hrl) gegn Reykjavíkurborg (Kristbjörg Stephensen hrl)

M höfðaði mál gegn sveitarfélaginu R og krafðist greiðslu biðlauna sem hún taldi sig eiga að fá óskert greidd í kjölfar þess að henni hafði verið sagt upp störfum og deildarstjórastaða hennar við grunnskóla R verið lögð niður. Í kjarasamningi var kveðið á um að starfsmaður með eins langan starfsaldur og M skyldi jafnan frá föst laun er starfi fylgdi í tólf mánuði frá því að látið væri af starfi, enda hefði starfsmaðurinn ekki hafnað annarri sambærilegri stöðu hjá sveitarfélögum. Hélt M því fram að R hefði verið óheimilt að draga frá biðlaunum hennar laun sem hún fékk á meðan hún starfaði út þriggja mánaða uppsagnarfrest. Talið var að efnislegt inntak umrædds kjarasamningsákvæðis ætti rót sína að rekja til ákvæðis í brottföllnum lögum nr. 38/1954 um réttindi og skyldur starfsmanna ríkisins. Með vísan til dómafordæma Hæstaréttar um beitingu þess ákvæðis var talið að telja bæri uppsagnarfrest til biðlaunatíma. Var R því sýknað af kröfum M.

Hæstiréttur birt 6. júní 2013

131/2013

Íslenska ríkið (Einar Karl Hallvarðsson hrl) gegn Halldóru Kristinsdóttur (Bergþóra Ingólfsdóttir hrl)

H starfaði sem deildarstjóri meðgönguverndar hjá HS og fékkst að mestu við mæðravernd. Vegna skipulagsbreytinga hjá stofnuninni var H tilkynnt um breytingar á starfi sínu og verksviði, en breytingarnar fólu m.a. í sér að deild meðgönguverndar var sameinuð fæðingardeild stofnunarinnar. Deildu aðilar um það hvort ákvörðun HS um breytingu á störfum og verksviði H rúmaðist innan heimilda 19. laga nr. 70/1996 um réttindi og skyldur starfsmanna ríkisins eða hvort H, sem taldi breytingarnar fela í sér niðurlagningu á stöðu hennar, ætti rétt til skaðabóta á grundvelli 5. mgr. ákvæðis til bráðabirgða við lögin. Ekki var um það deilt að málefnalegar ástæður hefðu búið að baki breytingum á skipulagi HS sem leiddu til breytinga á starfi og verksviði H. Í niðurstöðu Hæstaréttar sagði m.a. að störf við mæðravernd hefðu ekki verið lögð af við HS með skipulagsbreytingunum heldur færð ásamt starfsmanni við mæðravernd í nýja deild. Málefnaleg sjónarmið hafi búið að baki breytingunum, sem hefðu ekki varðað persónu H. Þótt lagt yrði til grundvallar að H hefði mátt líta svo á að henni hefði verið ætlað að ganga til almennra starfa sem ljósmóðir eftir breytingarnar yrði að líta til þess að H væri menntuð til slíkra starfa, sem hún hefði gegnt um árabil og hefði henni borið að halda við þekkingu sinni á þeim og faglegri færni. Þá var talið rúmast innan heimilda 19. gr. laga nr. 70/1996 að H var með breytingunum svipt mannaforráðum, enda hefðu þau verið óveruleg. Loks var vísað til þess að mánaðarlaun í þeim launaflokki sem hún hefði átt að færast í hefðu verið hærri en laun í þeim flokki sem henni var áður skipað í. Með vísan til þessa var ekki fallist á með H að í breytingunum hefði falist að starf hennar hefði verið lagt niður eða að þær stönguðust með öðrum hætti á við 19. gr. laga. nr. 70/1996. Var Í því sýknað af kröfu H.

Héraðsdómur Reykjavíkur birt 20. febrúar 2013

E-2286/2012

Róbert Grétar Gunnarsson (Guðni Ásþór Haraldsson hrl) gegn Reykjavíkurborg (Kristbjörg Stephensen hrl)
Lykilorð: Biðlaun. Sýkna.

Stefnandi krafðist greiðslu á vangreiddum biðlaunum. Stefndi var sýknaður af dómkröfum stefnanda þar sem stefnda var talið hafa verið heimilt að draga laun stefnanda í 3ja mánaða uppsagngarfresti frá biðlaunum hans sem talin voru nema 6 mánuðum.

Hæstiréttur birt 14. júní 2012

655/2011

Íslenska ríkið (Einar Karl Hallvarðsson hrl) gegn Vilhjálmi Skarphéðinssyni (Gestur Jónsson hrl)

Aðilar deildu um hvort Í bæri að greiða V tiltekna fjárhæð til efnda á samningi um starfslok sem V gerði við embætti Lögreglustjórans á Suðurnesjum í tilefni af því að deild sú er hann starfaði á innan embættisins skyldi lögð niður. Hæstiréttur vísaði meðal annars til þess að við niðurlagningu starfs V hjá embættinu hefði honum, samkvæmt lögum, ekki verið ætlað að flytjast til nýs hlutafélags er tók við starfseminni og hefði hann því átt rétt til biðlauna á grundvelli laga nr. 70/1996. Þá hefði forstöðumaður embættisins verið bær að lögum til þess að gera samning við V um starfslok og Í ekki sýnt fram á að honum hefði verið skylt að leita sérstakrar heimildar á fjárlögum til þess að gera samninginn. Var niðurstaða héraðsdóms um greiðsluskyldu Í staðfest.

Hæstiréttur birt 9. desember 2010

76/2010

Íslenska ríkið (Guðrún Margrét Árnadóttir hrl) gegn Brynjari Erni Ragnarssyni (Gísli Guðni Hall hrl)

Áfrýjandi skaut málinu til Hæstaréttar 11. febrúar 2010. Hann krefst aðallega sýknu af kröfum stefnda og málskostnaðar í héraði og fyrir Hæstarétti, en til vara að málskostnaðar á báðum dómstigum verði felldur niður. Stefndi krefst staðfestingar héraðsdóms og málskostnaðar fyrir Hæstarétti.

Hæstiréttur birt 28. október 2010

34/2010

Skógarbær, hjúkrunarheimili (Andri Árnason hrl) gegn Kristínu Blöndal (Karl Axelsson hrl)
Lykilorð: Biðlaun.

K gegndi ýmsum störfum hjá íslenska ríkinu fyrir og eftir gildistöku laga nr. 70/1996, um réttindi og skyldur starfsmanna ríkisins, fram til ársins 2001 er hún réði sig til starfa hjá sjálfseignarstofnuninni H, þaðan sem hún að endingu réði sig til starfa hjá S á árinu 2003. K gegndi starfi hjúkrunarstjóra hjá sjálfseignarstofnuninni S frá árinu 2003 allt fram til þess er staða hennar var lögð niður á árinu 2009. K höfðaði mál þetta gegn S til heimtu biðlauna með vísan til 5. mgr. bráðabirgðaákvæðis laga nr. 70/1996. Upplýst var í málinu að um starfskjör K gilti kjarasamningur S við Félag íslenskra hjúkrunarfræðinga, þar sem mælt var fyrir um að starfsmenn skyldu njóta hliðstæðra réttinda og bera hliðstæðar skyldur og gert væri ráð fyrir í lögum nr. 70/1996. Í dómi Hæstaréttar segir meðal annars að samkvæmt 5. mgr. bráðabirgðaákvæðis laga nr. 70/1996 skyldu þeir ríkisstarfsmenn sem höfðu rétt til biðlauna eftir eldri lögum halda sínum rétti. Á hinn bóginn yrði að líta svo á að með orðinu starf í skilningi ákvæðisins væri átt við það starf sem viðkomandi starfsmaður gegndi í gildistíð eldri laga nr. 38/1954. Kröfu K um greiðslu biðlauna var því hafnað.

Héraðsdómur Reykjavíkur birt 21. desember 2009

E-8577/2009

Kristín Blöndal (Heimir Örn Herbertsson hrl) gegn Skógarbæ,hjúkrunarheimili (Stefán A. Svensson hdl)
Lykilorð: Biðlaun. Vinnulaunamál.

Staða stefnanda hjá stefnda var lögð niður og krafðist stefnandi biðlauna. Samkvæmt ráðningarsamningi stefnanda við stefnda var réttarstaða hennar að öllu leyti hliðstæð réttindum og skyldum ríkisstarfsmanna samkvæmt ákvæðum laga nr. 70/1996. Stefndi taldi að stefnandi uppfyllti ekki skilyrði 5. mgr. bráðabirgðaákvæðis laganna til að eiga rétt til biðlauna þar sem hún hefði ekki starfað samfellt hjá ríkinu frá gildistöku laganna þar til staða hennar var lögð niður. Niðurstaðan var sú að stefnandi þótti eiga rétt til biðlauna úr hendi stefnda.

Hæstiréttur birt 20. maí 2009

443/2008

Valur Steinn Þorvaldsson (Jón Höskuldsson hrl) gegn Búnaðarsambandi Kjalarnesþings (Sigmundur Hannesson hrl)

V starfaði sem héraðsráðunautur og framkvæmdastjóri hjá B frá árinu 1987 til 1. maí 2006. Greindi aðila á um rétt V til biðlauna eftir starfslok hans, hvor aðilanna ætti að greiða reikning lögmanns vegna ráðgjafar við endurskoðun ráðningarsamnings V og hvort V hefði við aðalmeðferð málsins samþykkt skuld að tiltekinni fjárhæð. Óumdeilt var að starfssamningur V hafði ekki verið endurskoðaður eins og til stóð samkvæmt upphaflegum samningi aðila. Var þriggja manna framkvæmdastjórn falið að uppfæra samninginn. Lögmaður var fenginn til aðstoðar að frumkvæði V og var B dæmdur til að greiða reikning hans. Framkvæmdastjórnin og V undirrituðu breytingu á starfssamningi við V 7. nóvember 2005. Í málinu þótti nægilega upplýst að starf V hefði verið lagt niður er hann hætti störfum. Með vísan til samningsins 7. nóvember 2005 og annarra málsgagna var staðfestur biðlaunaréttur V. V hafði látið gjaldfæra ýmsar úttektir hjá B sem ekki fundust fylgiskjöl fyrir, staðfesti V að stærstur hluti þeirra væru persónulegar úttektir en taldi hluta þeirra hafa verið í þágu B. Hæstiréttur hafnaði því að V hefði samþykkt við skýrslugjöf í héraði að hann skuldaði alla fjárhæðina, en engu að síður var talið að B þyrfti ekki við svo búið að bera þennan kostnað.

Hæstiréttur birt 19. febrúar 2009

320/2008

Hjartavernd (Hrafnhildur Stefánsdóttir hrl) gegn Guðfinnu Jónu Eggertsdóttur (Gísli Guðni Hall hrl)
Lykilorð: Biðlaun.

Áfrýjandi skaut málinu til Hæstaréttar 10. júní 2008 að fengnu áfrýjunarleyfi. Hann krefst sýknu af kröfum stefndu og málskostnaðar í héraði og fyrir Hæstarétti. Stefnda krefst staðfestingar hins áfrýjaða dóms og málskostnaðar fyrir Hæstarétti. Með vísan til forsendna hins áfrýjaða dóms verður hann staðfestur. Áfrýjanda verður gert að greiða málskostnað fyrir Hæstarétti, sem er ákveðinn eins og í dómsorði greinir.

Héraðsdómur Reykjavíkur birt 14. júlí 2008

E-2082/2007

Búnaðarsamband Kjalarnesþings (Sigmundur Hannesson hrl) gegn Vali Steini Þorvaldssyni (Jón Höskuldsson hrl)

Stefnandi krafði stefnda um greiðslu skuldar vegna úttekta af bankareikningi stefnanda. Stefndi höfðaði gagnsök vegna vangoldinna launa, þ.á m. biðlauna. Hafnað var að gagnstefnandi ætti rétt til biðlauna. Stefndi í aðalsök dæmdur til greiðslu þess mismunar sem var á skuld hans við stefnanda og vangoldnum launum hans hjá stefnanda.

Héraðsdómur Reykjavíkur birt 10. janúar 2008

E-938/2007

Bjarni Ólafur Bjarnason (Guðni Ásþór Haraldsson hrl) gegn Þjóðleikhúsinu (Óskar Thorarensen hrl)
Lykilorð: Biðlaun. Orlof.

Stefnanda var sagt upp störfum með fjögurra mánaða uppsagnarfresti. Hann átti inni tveggja mánaða orlof við upphaf orlofsfrests og tók hann orlofið á uppsagnartímanum. Hann krafði stefnda um greiðslu orlofs, til vara laun og til þrautavara skaðabætur vegna þeirra tveggja mánaða, sem orlofið féll inn í uppsagnarfrestinn. Byggði hann m.a. á því, að um réttindi hans og skyldur hefði farið eftir lögum um opinbera starfsmenn. Stefndi var sýknaður

Hæstiréttur birt 22. nóvember 2007

127/2007

Kolbrún S. Hjaltadóttir (Guðni Ásþór Haraldsson hrl) gegn Reykjavíkurborg (Vilhjálmur Hans Vilhjálmsson hrl)

K var skipuð kennari við grunnskóla R árið 1990. Á árunum 2001 til 2005 voru árlega gerðir við hana tímabundnir ráðningarsamningar í skólanum B þar sem K skyldi sinna starfi deildarstjóra tölvumála. Var hlutfall deildarstjórastarfs hennar í fyrstu 32,5% en síðustu tvö árin sinnti hún starfi deildarstjóra sem 100% starfi. Árið 2006 var ákveðið að leggja niður verkefni deildarstjóra tölvumála vegna endurskipulagningar. Í kjölfarið krafðist K biðlauna samkvæmt 14. gr. laga nr. 72/1996 um réttindi og skyldur kennara og skólastjórnenda. Af hálfu skólans var kröfu hennar hafnað á þeim forsendum að verkefnið hefði verið tímabundið og hún ráðin í það frá ári til árs. Höfðaði K því mál þetta á hendur R. Í niðurstöðu Hæstaréttar segir að tímabundin ráðning hennar hefði ekki fellt úr gildi ótímabundna skipun í kennarastöðu sem K naut. Sú málsástæða K að líta ætti svo á að hún hefði samtímis gegnt tveimur opinberum stöðum, sem hvor um sig hefði veitt henni rétt til biðlauna, yrði hún lögð niður, þótti haldlaus. Var R því sýknað af kröfu K.

Hæstiréttur birt 2. júní 2005

23/2005

Reykjanesbær (Lárentsínus Kristjánsson hrl) gegn Sigurði Gíslasyni Ólafssyni (Gestur Jónsson hrl)

S hafði starfað um árabil við vatnsveitu sveitarfélagsins R þegar honum var tilkynnt að verkefni vatnsveitunnar yrðu flutt yfir til hlutafélagsins H en félagið var í eigu íslenska ríkisins og sjö sveitarfélaga, þar á meðal R. Var honum jafnframt boðið starf hjá H, sem hann þáði. Tekið var fram að S myndi halda áunnum réttindum sínum í hinu nýja starfi. Með vísan til þess að viðurkennt var af hálfu R við munnlegan flutning málsins fyrir Hæstarétti að S hafi notið lakari lífeyriskjara eftir að hann hóf störf hjá H og þess að R hafði ekki sýnt fram á að S nyti sambærilegra ráðningarkjara og áður í núverandi starfi var talið að líta yrði svo á að starf hans hafi verið lagt niður og ætti hann því rétt til biðlauna í tólf mánuði eins og hann gerði kröfu um. Var réttur S til biðlauna leiddur af kjarasamningi, sem vísaði um þetta atriði til 14. gr. laga nr. 38/1954 um réttindi og skyldur opinberra starfsmanna. Ekki var talið skipta máli um túlkun hans þótt lagaákvæðið hafi verið fellt úr gildi með lögum nr. 70/1996 þar sem réttur starfsmanna ríkisins til biðlauna var þrengdur.

Hæstiréttur birt 12. febrúar 2004

338/2003

Landsbanki Íslands hf (Jakob R. Möller hrl) gegn Jensínu Jensdóttur (Sveinn Sveinsson hrl)

J hafði starfað um árabil hjá ríkisbankanum L. Með lögum nr. 50/1997 var ákveðið að leggja niður L og skyldi L hf. taka við rekstrinum 1. janúar 1998. Áttu allir starfsmenn L að eiga kost á sambærilegu starfi hjá L hf. og áttu þeir að njóta sömu réttinda og þeir áður höfðu notið samkvæmt kjarasamningum og ráðningarsamningum. J þáði starf hjá L hf. og gegndi því þar til henni var sagt upp frá 31. maí 2002, vegna lokunar eins af bankaútibúum L hf. Taldi J að hún ætti rétt til biðlauna í 12 mánuði á grundvelli laga nr. 70/1996 þar sem starf hennar hefði verið lagt niður. Talið var að eftir að J lét af störfum hjá L og tók við starfi hjá L hf. hafi lög 70/1996 ekki lengur átt við um réttarstöðu hennar. Yrði ekki af reglum laga nr. 50/1997 eða öðrum réttarheimildum ráðið að L hf. bæri sem einkaaðila um ókominn tíma skylda til að svara til biðlauna gagnvart þeim starfsmönnum sínum sem áður hefðu starfað hjá L. Var L hf. sýknað af kröfu J.

Hæstiréttur birt 12. febrúar 2004

337/2003

Landsbanki Íslands hf (Jakob R. Möller hrl) gegn Sigurveigu S. Róbertsdóttur (Sveinn Sveinsson hrl)

S hafði starfað um árabil hjá ríkisbankanum L. Með lögum nr. 50/1997 var ákveðið að leggja niður L og skyldi L hf. taka við rekstrinum 1. janúar 1998. Áttu allir starfsmenn L að eiga kost á sambærilegu starfi hjá L hf. og áttu þeir að njóta sömu réttinda og þeir áður höfðu notið samkvæmt kjarasamningum og ráðningarsamningum. S þáði starf hjá L hf. og gegndi því þar til henni var sagt upp frá 31. maí 2002, vegna samdráttar í þjónustu eins af bankaútibúum L hf. Taldi S að hún ætti rétt til biðlauna í 12 mánuði á grundvelli laga nr. 70/1996 þar sem starf hennar hefði verið lagt niður. Talið var að eftir að S lét af störfum hjá L og tók við starfi hjá L hf. hafi lög 70/1996 ekki lengur átt við um réttarstöðu hennar. Yrði ekki af reglum laga nr. 50/1997 eða öðrum réttarheimildum ráðið að L hf. bæri sem einkaaðila um ókominn tíma skylda til að svara til biðlauna gagnvart þeim starfsmönnum sínum sem áður hefðu starfað hjá L. Var L hf. sýknað af kröfu S.

Hæstiréttur birt 19. desember 2000

156/2000

Ólöf Björg Einarsdóttir (Ragnar Halldór Hall hrl) gegn Reykjavíkurborg (Hjörleifur Kvaran hrl)

Hjúkrunarfræðingurinn Ó hafði verið fastráðin hjá R frá árinu 1973 samkvæmt 2. gr. reglna um réttindi og skyldur starfsmanna R og naut biðlaunaréttar samkvæmt 14. gr. reglnanna. Á árinu 1996 var ákveðið að starfsemi á deild þeirri, sem Ó var deildarstjóri á, yrði hætt og hluti sjúklinga flyttist á hjúkrunarheimilið S, sem er sjálfseignarstofnun. Ó ákvað að fylgja sjúklingunum er S opnaði í júní 1997 og varð hún deildarstjóri þar. Ó sagði upp starfi sínu á S í júní 1999 og starfar nú sem deildarstjóri hjá Félagsþjónustu R. Taldi hún að biðlaunaréttur sinn hefði orðið virkur þegar starfsemi deildarinnar hefði verið flutt og krafðist hún biðlauna í 12 mánuði. Í samkomulagi milli heilbrigðis- og tryggingamálaráðuneytis og borgarstjórans í Reykjavík, sem gert var í tilefni þessara flutninga, var tekið fram, að réttindi starfsfólks skyldu tryggð og ekki rýrð, þótt skipt væri um vinnuveitanda. Talið var að Ó hefði átt að njóta allra þeirra réttinda í starfi hjá S, sem hún hefði notið í fyrra starfi sínu hjá R, þar á meðal biðlaunaréttar og hafi réttarstaða Ó því verið óbreytt frá því sem áður var. Hafi hún því ekki átt rétt á biðlaunum. Var staðfest niðurstaða héraðsdóms um að sýkna R af kröfum Ó.

Hæstiréttur birt 8. júní 2000

16/2000

Friðrik Heiðar Georgsson (Lára Valgerður Júlíusdóttir hrl) gegn íslenska ríkinu (Guðrún Margrét Árnadóttir hrl)

F starfaði óslitið sem bifreiðarstjóri hjá varnarliðinu á Keflavíkurflugvelli frá 1971 til 1997 er starf hans var lagt niður. F taldi sig eiga rétt til biðlauna og vísaði til þess að samkvæmt yfirlýsingu starfsmannahalds varnarliðsins frá 1977 hefðu launakjör sín átt að miðast við samninga um kjör bifreiðarstjóra SVR, en þeir SVR hefðu notið biðlaunaréttar samkvæmt hliðstæðum reglum og greindi í 14. gr. laga nr. 38/1954 um réttindi og skyldur starfsmanna ríkisins. Talið var að fastráðning bifreiðarstjóra hjá varnarliðinu leiddi ekki sjálfkrafa til þess að biðlaunaréttur skapaðist þeim til handa, en slík réttindi gætu ekki stofnast nema samkvæmt lögum eða samningum og skýrum ákvörðunum atvinnurekenda. Hefði þurft að taka það fram í áðurnefndri yfirlýsingu, sem fulltrúar bifreiðarstjóra samþykktu, ef biðlaunaréttur hefði átt að vera meðal starfskjara þeirra. Var staðfest niðurstaða héraðsdóms um að sýkna íslenska ríkið af kröfu F um biðlaun, en F hafði beint kröfum sínum að ríkinu á grundvelli laga nr. 110/1951 um lagagildi varnarsamnings milli Íslands og Bandaríkjanna og um réttarstöðu liðs Bandaríkjanna og eignir þess.

Hæstiréttur birt 9. mars 2000

378/1999

Gunnbjörn Þór Ingvarsson (Sveinn Sveinsson hrl) gegn íslenska ríkinu (Jón G. Tómasson hrl)

G var starfsmaður Landsbanka Íslands (LÍ) þegar lög nr. 50/1997 um stofnun hlutafélaga um Landsbanka Íslands og Búnaðarbanka Íslands voru staðfest. Samkvæmt 8. gr. laganna skyldu allir starfsmenn LÍ eiga kost á sambærilegu starfi hjá LÍ hf. við yfirtöku hlutafélagsins á ríkisbankanum og njóta sömu réttinda og þeir höfðu samkvæmt kjarasamningi og/eða ráðningarsamningi. Tilkynnti LÍ starfsfólki að starfslok hjá LÍ yrðu 31. desember 1997. G hafnaði boði um starf hjá LÍ hf. Taldi hann að ekki væri um sambærilegt starf að ræða, þar sem hann myndi ekki lengur njóta réttinda ríkisstarfsmanna. Höfðaði hann mál gegn íslenska ríkinu og krafðist greiðslu biðlauna. Talið var að ákvæði laga nr. 38/1954 um réttindi og skyldur starfsmanna ríkisins hefði áður gilt um starfsmenn ríkisviðskiptabanka, nema öðruvísi hefði verið mælt í lögum og ákvörðunum settum af bankaráðum með heimild í lögum. Hefði biðlaunaréttur samkvæmt 14. gr. laganna því fylgt þeim störfum. Um biðlaunaréttinn giltu nú lög nr. 70/1996, og samkvæmt 34. gr. þeirra laga væri rétturinn háður því að viðkomandi hefði ekki hafnað sambærilegu starfi á vegum ríkisins eða annars staðar. Þar sem ríkissjóður hefði lagt allar eignir, réttindi, skuldir og skuldbindingar hvors ríkisviðskiptabanka um sig til hlutafélaganna, hefði LÍ hf. yfirtekið allar skuldbindingar LÍ. Því hefði G átt að beina kröfu sinni um biðlaunagreiðslu til LÍ hf. Þegar af þeirri ástæðu var íslenska ríkið því sýknað af kröfum G, með vísan til 2. mgr. 16. gr. laga nr. 91/1991 um meðferð einkamála.

Hæstiréttur birt 9. mars 2000

377/1999

Anna Ólafía Guðnadóttir (Sveinn Sveinsson hrl) gegn íslenska ríkinu (Jón G. Tómasson hrl)

A var starfsmaður Landsbanka Íslands (LÍ) þegar lög nr. 50/1997 um stofnun hlutafélaga um Landsbanka Íslands og Búnaðarbanka Íslands voru staðfest. Samkvæmt 8. gr. laganna skyldu allir starfsmenn LÍ eiga kost á sambærilegu starfi hjá LÍ hf. við yfirtöku hlutafélagsins á ríkisbankanum og njóta sömu réttinda og þeir höfðu samkvæmt kjarasamningi og/eða ráðningarsamningi. Tilkynnti LÍ starfsfólki að starfslok hjá LÍ yrðu 31. desember 1997. A hafnaði boði um starf hjá LÍ hf. Taldi hún að ekki væri um sambærilegt starf að ræða, þar sem hún myndi ekki lengur njóta réttinda ríkisstarfsmanna. Höfðaði hún mál gegn íslenska ríkinu og krafðist greiðslu biðlauna. Talið var að ákvæði laga nr. 38/1954 um réttindi og skyldur starfsmanna ríkisins hefði áður gilt um starfsmenn ríkisviðskiptabanka, nema öðruvísi hefði verið mælt í lögum og ákvörðunum settum af bankaráðum með heimild í lögum. Hefði biðlaunaréttur samkvæmt 14. gr. laganna því fylgt þeim störfum. Um biðlaunaréttinn giltu nú lög nr. 70/1996, og samkvæmt 34. gr. þeirra laga væri rétturinn háður því að viðkomandi hefði ekki hafnað sambærilegu starfi á vegum ríkisins eða annars staðar. Þar sem ríkissjóður hefði lagt allar eignir, réttindi, skuldir og skuldbindingar hvors ríkisviðskiptabanka um sig til hlutafélaganna, hefði LÍ hf. yfirtekið allar skuldbindingar LÍ. Því hefði A átt að beina kröfu sinni um biðlaunagreiðslu til LÍ hf. Þegar af þeirri ástæðu var íslenska ríkið því sýknað af kröfum A, með vísan til 2. mgr. 16. gr. laga nr. 91/1991 um meðferð einkamála.

Hæstiréttur birt 3. febrúar 2000

357/1999

Bjarni Magnússon (Árni Grétar Finnsson hrl) gegn Landsbanka Íslands hf (Jóhannes Sigurðsson hrl, Steingrímur Eiríksson hdl)

Í október 1997 var gerður starfslokasamnigur við B, sem hafði starfað hjá bankanum LÍ í 42 ár. Vinnuframlags hans var ekki krafist í þriggja mánaða uppsagnarfresti, en eftir það skyldi hann fá greidd í einu lagi 6 mánaða laun auk bifreiðahlunninda og 6/12 af orlofsframlagi og launum 13. mánaðar. Höfðaði B mál gegn LÍ hf. vegna uppsagnarinnar. Talið var að um uppsögn B ætti að fara eftir sérreglum kjarasamninga, sbr. lög nr. 34/1977 um kjarasamninga starfsmanna banka í eigu ríkisins. Hefði átt að segja B upp með sex mánaða fyrirvara og gefa honum kost á að tala máli sínu áður en lokaákvörðun um uppsögn tæki gildi. Var talið að réttar B til að tala máli sínu hefði verið gætt, en ekki var talið liggja fyrir að málið hefði verið rætt frá því sjónarmiði að um niðurlagningu stöðu væri að ræða. Talið var að staða B hefði verið lögð niður og að ákvæði 14. gr. laga nr. 38/1954 um réttindi og skyldur starfsmanna ríkisins ættu við um B og því gæti hann átt rétt til bóta er næmi launum í 12 mánuði væri starf hans lagt niður, sbr. 5. mgr. ákvæðis til bráðabirgða laga nr. 70/1996 um réttindi og skyldur starfsmanna ríkisins. Ekki var tekin til greina krafa B um rétt til sambærilegs starfs hjá LÍ hf. og hann gegndi hjá LÍ, enda hefði störfum B verið lokið þegar LÍ hf. tók við rekstri bankans. Ekki var talið að B hefði verið beittur ólögmætri nauðung við undirskrift samningsins, en talið var ósanngjarnt í skilningi 36. gr. laga nr. 7/1936 um samningsgerð, umboð og ógilda löggerninga að B skyldi vera bundinn af samningnum. Var honum því vikið til hliðar að hluta og LÍ hf. dæmdur til að greiða B bætur sem námu 6 mánaða launum.

Hæstiréttur birt 7. október 1999

85/1999

Pétur Bjarnason (Guðni Ásþór Haraldsson hrl) gegn íslenska ríkinu (Einar Karl Hallvarðsson hrl)

P var tilkynnt um að staða hans hjá Í yrði lögð niður samhliða því að ný lög um grunnskóla nr. 66/1995 gengju í gildi 1. ágúst 1996. Talið var að staða P hefði ekki verið lögð niður fyrr en 1. ágúst 1996 og bæri því að miða réttarstöðu hans, að því er biðlaun varðaði, við lög nr. 70/1996 um réttindi og skyldur starfsmanna ríkisins, sem gengu í gildi 1. júlí sama árs. Í málinu væri óumdeilt að P hafði tekið við nýju starfi 1. ágúst 1996 og notið hærri launa en í starfinu sem var lagt niður. Uppfyllti hann því ekki skilyrði 2. mgr. 34. gr. laga nr. 70/1996 til biðlauna. Ekki var talið að sú breyting á rétti til biðlaunagreiðslna sem leiddi af lögum nr. 70/1996, að réttur til biðlaunagreiðslna réðist af launamismun eldra og nýs starfs, án tillits til þess hvort það væri hjá ríki eða öðrum aðila, bryti gegn mannréttindaákvæðum stjórnarskrár lýðveldisins Íslands nr. 33/1944. Var staðfest niðurstaða héraðsdóms um að sýkna Í af kröfum P.

Hæstiréttur birt 7. október 1999

53/1999

Ragnar S. Ragnarsson (Ragnar Halldór Hall hrl) gegn íslenska ríkinu (Einar Karl Hallvarðsson hrl)

R var tilkynnt um að staða hans hjá Í yrði lögð niður samhliða því að ný lög um grunnskóla nr. 66/1995 gengju í gildi 1. ágúst 1996. Talið var að staða R hefði ekki verið lögð niður fyrr en 1. ágúst 1996 og bæri því að miða réttarstöðu hans, að því er biðlaun varðaði, við lög nr. 70/1996 um réttindi og skyldur starfsmanna ríkisins, sem gengu í gildi 1. júlí sama árs. Í málinu væri óumdeilt að R hafði tekið við nýju starfi 1. ágúst 1996 og notið hærri launa en í starfinu sem var lagt niður. Uppfyllti hann því ekki skilyrði 2. mgr. 34. gr. laga nr. 70/1996 til biðlauna. Ekki var talið að sú breyting á rétti til biðlaunagreiðslna sem leiddi af lögum nr. 70/1996, að réttur til biðlaunagreiðslna réðist af launamismun eldra og nýs starfs, án tillits til þess hvort það væri hjá ríki eða öðrum aðila, bryti gegn mannréttindaákvæðum stjórnarskrár lýðveldisins Íslands nr. 33/1944. Var staðfest niðurstaða héraðsdóms um að sýkna Í af kröfum R.

Hæstiréttur birt 29. mars 1999

386/1998

Ólöf Markúsdóttir (Gunnar Jónsson hrl) gegn íslenska ríkinu (Jón G. Tómasson hrl)

Ó var í hópi starfsmanna Síldarverksmiðja ríkisins sem taldi sig eiga rétt á biðlaunum úr hendi ríkisins þegar hlutafélag tók við rekstri verksmiðjanna. Eftir að ríkið hafði í Hæstarétti verið dæmt til að greiða einum starfsmanni úr þessum hópi biðlaun, voru biðlaunin gerð upp ásamt dráttarvöxtum við aðra þá starfsmenn síldarverksmiðjanna sem nutu stöðu opinberra starfsmanna, þ.á m. Ó. Ó hafði leitað aðstoðar lögmanns vegna máls þessa. Eftir að ríkið hafði greitt biðlaunin, stefndi hún ríkinu til greiðslu þeirra. Var krafa hennar orðuð svo að krafist væri biðlauna, dráttarvaxta og málskostnaðar að frádreginni þeirri fjárhæð sem ríkið hafði þegar greitt. Talið var hugsanlegt að Ó ætti rétt á greiðslu innheimtulauna úr hendi ríkisins, en þar sem fyrrgreind kröfugerð þótti ekki endurspegla þann ágreining aðila sem leitað var lausnar á, né heldur voru sóknargögn við hann miðuð, var málinu vísað frá héraðsdómi.

Hæstiréttur birt 11. mars 1999

256/1998

Íslenska ríkið (Jón G. Tómasson hrl) gegn Páli A. Höskuldssyni (Lára Valgerður Júlíusdóttir hrl)
Lykilorð: Biðlaun. Sératkvæði.

P starfaði hjá Áburðarverksmiðju ríkisins og naut réttinda og bar skyldur samkvæmt lögum um réttindi og skyldur starfsmanna ríkisins. Með lögum nr. 89/1994 var ríkisfyrirtækið lagt niður og rekstur þess falinn hlutafélagi. Í lögunum var ákvæði þess efnis að starfsmönnum Áburðarverksmiðju ríkisins skyldi boðið sambærilegt starf hjá hlutafélaginu og þeir gegndu áður hjá ríkisfyrirtækinu. P tók við starfi hjá hlutafélaginu en stefndi ríkinu til greiðslu biðlauna á þeim grundvelli, að staða hans hjá ríkinu hefði verið lögð niður. Talið var, að skýr dómafordæmi leiddu til þeirrar niðurstöðu að nýja staðan yrði ekki talin sambærileg hinni fyrri, þar sem P hefði ekki notið hinna sérstöku réttinda starfsmanna ríkisins í hinu nýja starfi sínu, svo sem biðlaunaréttar. Ekki var fallist á að lengdur uppsagnarfrestur hjá hlutafélaginu gæti komið í stað biðlaunaréttarins. Þar sem ósannað var, að P hefði með samningum við hlutafélagið fallið frá biðlaunarétti sínum á hendur ríkinu var ríkið dæmt til að greiða P fjárhæð biðlauna í sex mánuði.

Hæstiréttur birt 11. mars 1999

255/1998

Íslenska ríkið (Jón G. Tómasson hrl) gegn Teiti Gunnarssyni (Gunnar Jónsson hrl)
Lykilorð: Biðlaun. Sératkvæði.

T starfaði hjá Áburðarverksmiðju ríkisins og naut réttinda og bar skyldur samkvæmt lögum um réttindi og skyldur starfsmanna ríkisins. Með lögum nr. 89/1994 var ríkisfyrirtækið lagt niður og rekstur þess falinn hlutafélagi. Í lögunum var ákvæði þess efnis að starfsmönnum Áburðarverksmiðju ríkisins skyldi boðið sambærilegt starf hjá hlutafélaginu og þeir gegndu áður hjá ríkisfyrirtækinu. T tók við starfi hjá hlutafélaginu en stefndi ríkinu til greiðslu biðlauna á þeim grundvelli, að staða hans hjá ríkinu hefði verið lögð niður. Talið var, að skýr dómafordæmi leiddu til þeirrar niðurstöðu að nýja staðan yrði ekki talin sambærileg hinni fyrri, þar sem T hefði ekki notið hinna sérstöku réttinda starfsmanna ríkisins í hinu nýja starfi sínu, svo sem biðlaunaréttar. Ekki var fallist á að lengdur uppsagnarfrestur hjá hlutafélaginu gæti komið í stað biðlaunaréttarins. Þar sem ósannað var, að T hefði með samningum við hlutafélagið fallið frá biðlaunarétti sínum á hendur ríkinu var ríkið dæmt til að greiða T fjárhæð biðlauna í sex mánuði.

Hæstiréttur birt 11. mars 1999

254/1998

Íslenska ríkið (Jón G. Tómasson hrl) gegn Hákoni Björnssyni (Gunnar Jónsson hrl)
Lykilorð: Biðlaun. Sératkvæði.

H starfaði sem framkvæmdastjóri Áburðarverksmiðju ríkisins og naut réttinda og bar skyldur samkvæmt lögum um réttindi og skyldur starfsmanna ríkisins. Með lögum nr. 89/1994 var ríkisfyrirtækið lagt niður og rekstur þess falinn hlutafélagi. Í lögunum var ákvæði þess efnis að starfsmönnum Áburðarverksmiðju ríkisins skyldi boðið sambærilegt starf hjá hlutafélaginu og þeir gegndu áður hjá ríkisfyrirtækinu. H tók við starfi framkvæmdastjóra hlutafélagsins en stefndi ríkinu til greiðslu biðlauna á þeim grundvelli, að staða hans hjá ríkinu hefði verið lögð niður. Talið var, að skýr dómafordæmi leiddu til þeirrar niðurstöðu að nýja staðan yrði ekki talin sambærileg hinni fyrri, þar sem H hefði ekki notið hinna sérstöku réttinda starfsmanna ríkisins í hinu nýja starfi sínu, svo sem biðlaunaréttar. Ekki var fallist á að lengdur uppsagnarfrestur hjá hlutafélaginu gæti komið í stað biðlaunaréttarins. Þar sem ósannað var, að H hefði með samningum við hlutafélagið fallið frá biðlaunarétti sínum á hendur ríkinu var ríkið dæmt til að greiða H fjárhæð biðlauna í sex mánuði.