Fara í efni

Dómstólaleit

Leit í dómum íslenskra dómstóla

Héraðsdómur Reykjaness

Mál nr. E-599/2016:

Björn Vilhelmsson

(Gísli Guðni Hall hrl)

gegn

Sveitarfélaginu Garði

Mál

þetta var höfðað 8. júní 2016 og dómtekið 13. desember s.á. Stefnandi er

Björn Vilhelmsson,

Lyngbraut 15, Garði. Stefndi er Sveitarfélagið Garður, Sunnubraut 4, Garði.

Stefnandi

höfðar mál þetta annars vegar til greiðslu biðlauna vegna niðurlagningar starfs

deildarstjóra við Gerðaskóla og hins vegar til greiðslu miskabóta vegna brots

við ráðningu í stöðu skólastjóra við sama skóla. Annars vegar krefst hann

700.000 króna miskabóta vegna meints brots stefnda gegn stefnanda í tengslum

við ráðningu í stöðu skólastjóra við Gerðaskóla á árinu 2012. Hins vegar krefst

stefnandi biðlauna að fjárhæð 4.961.064 krónur vegna niðurlagningar á starfi

hans sem deildarstjóri við sama skóla, á árinu 2015.

Endanlegar dómkröfur

stefnanda eru nánar tiltekið þær að stefndi verði dæmdur til að greiða honum

5.661.064 krónur ásamt dráttarvöxtum samkvæmt 1. mgr. 6. gr. laga nr. 38/2001

um vexti og verðtryggingu, af 542.896 krónum frá 1. ágúst 2015, af 542.896

krónum frá 1. september 2015, af 542.896 krónum frá 1. október 2015, af 542.896

krónum frá 1. nóvember 2015, af 617.896 krónum frá 1. desember 2015, af 542.896

krónum frá 1. janúar 2016, af 542.896 krónum frá 1. febrúar 2016, af 542.896

krónum frá 1. mars 2016, af 542.896 krónum frá 1. apríl 2016 og af 700.000

krónum frá 15. júní 2016, til greiðsludags hverju sinni. Þá gerir stefnandi

kröfu um málskostnað.

S

tefndi krefst

þess aðallega að hann verði sýknaður af kröfum stefnanda og honum dæmdur

málskostnaður úr hendi stefnanda. Til vara krefst stefndi þess að kröfur

stefnanda verði lækkaðar verulega og málskostnaður látinn niður falla.

I.

Málsatvik

eru þau að stefnandi var ráðinn við grunnskólann Gerðaskóla í ágúst 1995,

upphaflega sem kennari en síðar að hluta til sem deildarstjóri. S

tefnandi

starfar enn við Gerðaskóla, sem kennari í 100% starfi.

Stefndi

auglýsti hinn 4. apríl 2012 laust til umsóknar starf skólastjóra við

Gerðaskóla. Í auglýsingunni voru settar fram

menntunarkröfur. Nánar tiltekið um kennaramenntun og réttindi til

kennslu í grunnskóla og framhaldsmenntun á sviði stjórnunar eða uppeldis- og

menntunarfræða var æskileg. Hæfniskröfur voru eftirfarandi: Frumkvæði og

samstarfsvilji, góðir skipulagshæfileikar, hæfni í mannlegum samskiptum, að

vera reiðubúinn til að leita nýrra leiða í skólastarfi, áhugi og reynsla til að

leiða þróunarstarf, sveigjanleiki og víðsýni í starfi og samskiptum, reynsla af

störfum á sviði stjórnunar og reksturs væri æskileg, fjölbreytt reynsla af

kennslu og vinnu með börnum og unglingum og leiðtogahæfni.

Aðdragandi þess að starf skólastjóra við

Gerðaskóla var auglýst var sá að h

austið 2011 fól mennta- og

menningarmálaráðuneytið fyrirtækinu Attentus að gera úttekt á skólanum á

grundvelli 38. gr. laga nr. 91/2008 um grunnskóla. Á meðan á úttektinni stóð

var skólastjóra skólans sagt upp störfum og annar skólastjóri ráðinn tímabundið

í stöðuna frá byrjun janúar 2012 og út skólaárið.

Í skýrslu

Attentus, dags. 30. mars 2012, kemur fram að undanfarin ár hafi ekki verið

tekið á erfiðum málum í stjórnun skólans og aðhald og eftirfylgni stjórnenda

skort. Einnig var bent á að skólinn hefði ekki komið vel út í samanburði

samræmdra prófa, í PISA-könnunum og lestrarskimunum. Þá kemur fram í skýrslunni

(Áslaug Árnadóttir hdl)

Biðlaun. Jafnræðisregla. Miskabætur. Uppsögn. Vinnulaunamál.

Stefnandi höfðaði mál annars vegar til greiðslu biðlauna vegna niðurlagningar starfs hans sem deildarstjóri og hins vegar til greiðslu miskabóta vegna brots við ráðningu í stöðu skólastjóra. Stefnandi fékk dæmdar miskabætur en kröfu hans um biðlaun var hafnað.

Mál þetta var höfðað 8. júní 2016 og dómtekið 13. desember s.á. Stefnandi er   Björn  Vilhelmsson,   Lyngbraut   15,   Garði.   Stefndi   er   Sveitarfélagið   Garður, Sunnubraut 4, Garði. Stefnandi   höfðar   mál   þetta   annars   vegar   til   greiðslu   biðlauna   vegna niðurlagningar   starfs   deildarstjóra   við   Gerðaskóla   og   hins   vegar   til   greiðslu miskabóta vegna brots við ráðningu í stöðu skólastjóra við sama skóla. Annars vegar   krefst   hann   700.000   króna   miskabóta   vegna   meints   brots   stefnda   gegn stefnanda í tengslum við ráðningu í stöðu skólastjóra við Gerðaskóla á árinu 2012. Hins   vegar   krefst   stefnandi   biðlauna   að   fjárhæð   4.961.064   krónur   vegna niðurlagningar á starfi hans sem deildarstjóri við sama skóla, á árinu 2015.

Endanlegar dómkröfur stefnanda eru nánar tiltekið þær að stefndi verði dæmdur til að greiða honum 5.661.064 krónur ásamt dráttarvöxtum samkvæmt 1. mgr. 6. gr. laga nr. 38/2001 um vexti og verðtryggingu, af 542.896 krónum frá 1. ágúst 2015, af 542.896 krónum frá 1. september 2015, af 542.896 krónum frá 1. október 2015, af 542.896 krónum frá 1. nóvember 2015, af 617.896 krónum frá 1. desember 2015, af 542.896 krónum frá 1. janúar 2016, af 542.896 krónum frá 1. febrúar 2016, af 542.896 krónum frá 1. mars 2016, af 542.896 krónum frá 1. apríl 2016 og af 700.000 krónum frá 15. júní 2016, til greiðsludags hverju sinni. Þá gerir stefnandi kröfu um málskostnað.

Stefndi krefst þess aðallega að hann verði sýknaður af kröfum stefnanda og honum dæmdur málskostnaður úr hendi stefnanda. Til vara krefst stefndi þess að kröfur stefnanda verði lækkaðar verulega og málskostnaður látinn niður falla.

I.

Málsatvik eru þau að stefnandi var ráðinn við grunnskólann Gerðaskóla í ágúst   1995,   upphaflega   sem   kennari   en   síðar   að   hluta   til   sem   deildarstjóri. Stefnandi starfar enn við Gerðaskóla, sem kennari í 100% starfi.

Stefndi auglýsti hinn 4. apríl 2012 laust til umsóknar starf skólastjóra við Gerðaskóla. Í auglýsingunni voru settar fram menntunarkröfur. Nánar tiltekið um kennaramenntun og réttindi til kennslu í grunnskóla og framhaldsmenntun á sviði stjórnunar   eða   uppeldis-   og   menntunarfræða   var   æskileg.   Hæfniskröfur   voru eftirfarandi:   Frumkvæði   og   samstarfsvilji,   góðir   skipulagshæfileikar,   hæfni   í mannlegum samskiptum, að vera reiðubúinn til að leita nýrra leiða í skólastarfi, áhugi og reynsla til að leiða þróunarstarf, sveigjanleiki og víðsýni í starfi og samskiptum,   reynsla   af   störfum   á   sviði   stjórnunar   og   reksturs   væri   æskileg, fjölbreytt reynsla af kennslu og vinnu með börnum og unglingum og leiðtogahæfni.

Aðdragandi þess að starf skólastjóra við Gerðaskóla var auglýst var sá að haustið 2011 fól mennta- og menningarmálaráðuneytið fyrirtækinu Attentus að gera úttekt á skólanum á grundvelli 38. gr. laga nr. 91/2008 um grunnskóla. Á meðan á úttektinni stóð var skólastjóra skólans sagt upp störfum og annar skólastjóri ráðinn tímabundið í stöðuna frá byrjun janúar 2012 og út skólaárið.

Í skýrslu Attentus, dags. 30. mars 2012, kemur fram að undanfarin ár hafi ekki verið tekið á erfiðum málum í stjórnun skólans og aðhald og eftirfylgni stjórnenda skort. Einnig var bent á að skólinn hefði ekki komið vel út í samanburði samræmdra   prófa,   í   PISA-könnunum   og   lestrarskimunum.   Þá   kemur   fram   í skýrslunni að í sveitarfélaginu hafi verið miklar pólitískar deilur um skólastarfið og starfsfólk skólans væri óöruggt vegna þessa. Það var mat úttektaraðila að afar mikilvægt væri, svo að auka mætti árangur skólans og ánægju starfsmanna, að ráðið   yrði   nýtt   stjórnendateymi   að   skólanum.   Í   því   yrði   skólastjóri   og   tveir millistjórnendur. Faglegt og stjórnunarlegt ábyrgðarsvið hvers stjórnanda yrði skýrt vel í starfslýsingu og tryggt að stjórnun í skólanum væri skilvirk og samræmi yrði í skólastarfi. Þá segir í skýrslunni að mikilvægt væri að stjórnendateymið tengdist ekki pólitískum fylkingum innan sveitarfélagsins og að ráðningar tækju mið af sýn á uppbyggingu skólastarfs, leiðtoga- og stjórnunarhæfni og faglegri þekkingu. Var lagt til að hæfismat umsækjenda yrði unnið af fagaðilum fyrir hönd sveitarfélagsins.

Stefnandi sótti um stöðu skólastjóra við Gerðaskóla hinn 30. apríl 2012, en alls voru 11 umsækjendur um starfið.

Með bréfi bæjarstjóra stefnda, dags. 8. júní 2012, var stefnanda tilkynnt að ákveðið hefði verið að ráða annan í starfið, Skarphéðin Jónsson. Bréfinu fylgdi skýrsla   um   þau   sjónarmið   sem   höfð   voru   til   hliðsjónar   við   ráðningarferlið.  Í skýrslunni kemur fram að bæjarstjórn stefnda leitaði til Gylfa Jóns Gylfasonar fræðslustjóra um að leggja faglegt mat á hæfni umsækjenda. Til að aðstoða við matið voru tveir sérfræðingar, Helga Jónsdóttir, ráðgjafi hjá Capacent, og Ingvar Sigurgeirsson, prófessor við Kennaradeild Háskóla Íslands. Við mat á umsóknum hafi   verið   litið   m.a.   til   menntunar   umsækjenda,   framhaldsmenntunar   á   sviði stjórnunar,   annars   framhaldsnáms,   annars   náms   á   háskólastigi,   námsárangurs, námskeiða og endurmenntunar, starfsreynslu innan og utan skólakerfis, kennslu- og stjórnunarreynslu og reynslu af skólaþróun. Þá hafi verið leitast við að leggja mat á eftirfarandi færniþætti (einkum út frá viðtölum við umsagnaraðila): Hæfni í að starfa með öðrum, skipulags- og verkstjórnarhæfileika, framkomu og framgöngu, vinnusemi, frumkvæði og leiðtogahæfileika. Í skýrslunni segir jafnframt að við mat á   umsóknum   hafi   einnig   verið   hafðar   til   hliðsjónar   niðurstöður   skýrslu   sem fyrirtækið Attentus - mannauður & ráðgjöf gerði fyrir mennta- og menningarmálaráðuneytið, en þar hafi m.a. verið lögð áhersla á að nýr skólastjóri tengdist ekki pólitískum fylkingum innan sveitarfélagsins. Í bréfinu segir að gengið hefði verið úr skugga um vilja sveitarfélagsins til að fara að þessum ábendingum. Með hliðsjón af því og eftir mat á umsóknum og frekari upplýsingaöflun hefðu sex umsækjendur verið boðaðir í viðtöl. Stefnandi var ekki í þeim hópi.

Með tölvuskeyti stefnanda til Gylfa Jóns Gylfasonar fræðslustjóra 12. júní 2012 leitaði hann eftir svörum við því af hverju hann hefði ekki verið í hópi þeirra sem voru boðaðir í viðtal. Vildi stefnandi fá svör við því hvort tengsl hans við pólitík hafi haft úrslitaáhrif á að hann var ekki metinn hæfur umsækjandi og hvort átt   væri   við   vilja   fyrrverandi   eða   núverandi   meirihluta   varðandi   ábendingar   í skýrslunni.

Í   svari   fræðslustjóra   19.   júní   2012   kemur   fram   að   hann   hafi   verið   í sambandi bæði við oddvita fyrrverandi og núverandi meirihluta og hann hefði „fengið þau svör að fyrirmælin sem við hefðum fengið varðandi það að fara eftir ráðleggingum sem kæmu fram í Attentus skýrslunni væru óbreyttar“.

Stefnandi ritaði umboðsmanni Alþingis erindi 23. júlí 2012 þar sem hann kvartaði undan málsmeðferðinni. Í áliti umboðsmanns Alþingis frá 25. september 2013, í máli nr. 7100/2012, var komist að þeirri niðurstöðu að það hafi ekki verið í samræmi   við   lögbundið   hlutverk   bæjarstjórnar   stefnda   og   almennar   reglur stjórnsýsluréttar að ákvörðunarvald um hvaða umsækjendur yrðu boðaðir í viðtal væri alfarið í höndum ráðningarhóps, sem skipaður hafi verið af utanaðkomandi aðilum, án nokkurrar aðkomu bæjarstjórnarinnar. Málsmeðferð stefnda væri að þessu   leyti   haldin   verulegum   annmörkum.   Að   virtri   dómaframkvæmd   taldi umboðsmaður hins vegar ólíklegt að annmarki á málsmeðferðinni gæti leitt til ógildingar   á   ákvörðun   hennar   um   að   ráða   Skarphéðin   Jónsson   í   starfið. Umboðsmaður lét því við það sitja að beina þeim tilmælum til stefnda að leitað yrði leiða til að rétta hlut stefnanda. Jafnframt var mælst til þess að sveitarfélagið gætti þess framvegis að hafa til hliðsjónar þau sjónarmið sem umboðsmaður rakti.

Í kjölfar álits umboðsmanns leitaði stéttarfélag stefnanda, Kennarasamband Íslands, eftir samkomulagi við stefnda um að hlutur stefnanda yrði réttur en því erindi virðist ekki hafa verið svarað af stefnda.

Með bréfi skólastjóra Gerðaskóla, dags. 14. apríl 2015, var stefnanda sagt upp 50% starfi deildarstjóra við skólann, vegna hagræðingaraðgerða. Uppsögnin var með þriggja mánaða fyrirvara og var síðasti starfsdagur stefnanda í starfi deildarstjóra 31. júlí 2015.

Stefnandi krafðist biðlauna en því var hafnað þar sem stefnandi hefði ekki gegnt stöðu í skilningi 14. gr. laga nr. 71/1996 óslitið frá því fyrir 31. júní 2008. Hann uppfyllt því ekki skilyrði greinar 14.12 í kjarasamningi um biðlaun.

Lögfræðingur Kennarasambands Íslands ritaði skólastjóra bréf, dags. 29. maí 2015, þar sem því var haldið fram að stefnandi ætti rétt á biðlaunum, enda hefði hann starfað óslitið lengur en í 15 ár og ætti því rétt til biðlauna í tólf mánuði. Þá sagði í bréfinu að þó svo að stefnandi hefði fengið launalaust leyfi í eitt ár þá valdi launalaust leyfi ekki rofi á ráðningu.

Með bréfi skólastjóra Gerðaskóla, dags. 4. júní 2015, var áréttað að kröfu stefnanda um biðlaun væri hafnað þar sem hann hefði verið í launalausu leyfi á tímabilinu 1. ágúst 2008 til 31. júlí 2009 og hann hefði því ekki starfað óslitið í tilskilinn tíma.

II.

Stefnandi byggir miskabótakröfu sína á því að ráðning í stöðu skólastjóra Gerðaskóla hafi verið stjórnvaldsákvörðun á ábyrgð sveitarfélagsins sem veitingarvaldshafa. Stefnandi vísar til álits umboðsmanns Alþingis þess efnis að bæjarstjórn hafi framselt til ráðningarhóps vald til að velja úr hópi umsækjenda umfram það sem heimilt sé samkvæmt óskráðum meginreglum stjórnsýsluréttar. Það leiði af lögbundnu hlutverki veitingarvaldshafa, að hann verði almennt sjálfur að leggja mat á innkomnar umsóknir, og eftir atvikum önnur gögn sem aflað hefur verið   um   umsækjendur,   til   dæmis   með   atbeina   utanaðkomandi   aðila,   og   taka ákvarðanir um framgang einstakra umsækjenda í ráðningarferlinu. Þótt ákvörðun um að boða einstakan umsækjanda ekki í viðtal feli ekki í sér efnislegar lyktir ráðningarferlisins hafi hún að jafnaði í reynd þá þýðingu fyrir þann umsækjanda að ákvörðun   um   umsókn   hans   komi   ekki   til   frekara   mats.   Í   ljósi   þessa   verði veitingarvaldshafi almennt sjálfur, nema mælt sé fyrir um annað í lögum, að leggja mat á það hvaða umsækjendur skuli kallaðir í viðtal og hverjir ekki, enda sé um að ræða meiri háttar ákvörðun um réttarstöðu umsækjandans sem á í hlut, stefnanda í þessu   tilviki.   Stefnandi   byggir   á   því   að   með   því   að   stefndi   hafi   framselt ákvörðunarvaldið   um   þetta   til   ráðningarhóps   hafi   verið   framið   brot   gegn grundvallarreglum stjórnsýsluréttar.

Stefnandi byggir einnig á því að hann hafi verið útilokaður í umsagnarferli um stöðuna á þeim grundvelli að hann hefði pólitískar tengingar. Stefnandi vísar því á bug að hann hafi ekki uppfyllt almenn hæfisskilyrði í starfið. Það sé hrein fásinna, sem stefndi beri fyrir sig, að hann hafi ekki haft áhuga og reynslu af þróunarstarfi. Það hvað falli undir „áhuga og reynslu af þróunarstarfi“ sé opið og matskennt og sjálfsagt unnt að túlka á ýmsa vegu, eins og aðrar hæfniskröfur sem nefndar hafi verið í auglýsingu um stöðuna. Í þessu tilviki væri eðlilegt að túlka þetta með hliðsjón af því hvers kyns störf geti talist mikilvægur undirbúningur fyrir stöðuna sem var til umsóknar. Að mati stefnanda sé augljóst að bakgrunnur hans hafi hentað afar vel í starfið frá faglegum sjónarhóli séð. Stefnandi vísar í þessu sambandi m.a. til þess að hann hafi í starfi hjá Gerðaskóla sinnt: Þróun á starfi deildarstjóra í Gerðaskóla; Umsjón, skipulagi og áætlanagerð í eineltismálum; Skipulagningu   og   innleiðingu   á   nýju   kerfi   í   frímínútnagæslu;   Vinnu   með stjórnendum að getuskiptu ferðakerfi á unglingastigi; Vinnu og þróun á aukinni fjölbreytni valgreina á unglingastigi; Umsjón með öllu skipulagi óhefðbundinna skóladaga;   Stjórnun   árgangafunda,   innleiðingu   og   þróun   nýrra   hugmynda   í skólastarfi   og   eftirfylgni;   Þróun   og   innleiðingu   nýrra   reglna   um   ástundun   og agamál; Innleiðingu nýrrar aðalnámskrár; Fjölmörgum fleiri verkefnum sem unnin voru sjálfstætt og í samvinnu við stjórnendur og kennara sem varða þróun og umbætur í skólastarfi. Önnur störf/verkefni stefnanda hafi verið knattspyrnuþjálfun, en stefnandi hafi þjálfað bæði meistaraflokk og yngri flokka. Í þeim störfum hafi falist skipulagning, markmiðssetning, uppbygging og þróun. Fá störf séu meira krefjandi en einmitt þetta, þar sem reyni á metnað, útgeislun, hæfileika til að fá hóp fólks   til   að   vinna   saman   að   settu   marki   o.s.frv.   Þá   hafi   stefnandi   unnið þróunarverkefni   í   tengslum   við   sameiningu   knattspyrnuliða   á   Vestfjörðum   og Suðurnesjum, bæði í meistaraflokki og yngri flokkum. Stefnandi hafi setið í stjórn Knattspyrnufélagsins Víðis og unnið að uppbyggingu félagsins til fjölda ára, sinnt formennsku   í   Sjálfstæðisfélagi   Garðs   og   þátttöku   í   stefnumótun   og   stofnun, uppbyggingu og þróun nýs framboðslista fyrir sveitarstjórnarkosningar. Þá hafi stefnandi verið formaður æskulýðsnefndar Sveitarfélagsins Garðs, þar sem unnið hafi verið að nýjum áherslum í æskulýðsstarfi. Stefnandi hafi einnig sinnt ýmsum öðrum nefndarstörfum og hugmyndavinnu á fjölbreyttum vettvangi.

Stefnandi telur að ástæða hafi verið til að kalla hann í viðtal eins og flesta aðra umsækjendur og gefa honum kost á að útskýra sjónarmið sín og fá hjá honum upplýsingar, m.a. með tilliti til þess hvort hann uppfyllti hæfisskilyrði. Stefnandi telur að brotið hafi verið gegn rannsóknarreglu og andmælarétti hans, sbr. 10. og 13. gr. stjórnsýslulaga nr. 37/1993. Ákvörðun um að hafna umsókn stefnanda hafi því ekki verið undirbúin og undirbyggð eins og mælt sé fyrir um í þessum lögum, þótt segja megi að það hafi verið ástæðulaust fyrst það hafi verið fyrirfram ákveðið að ráða ekki mann með flokkspólitísk tengsl í sveitarfélaginu, sem stefnandi hafði.

Stefnandi kveðst leggja mesta áherslu á að honum hafi verið hafnað í ráðningarferlinu af pólitískum ástæðum. Stefnandi telur að með því hafi verið brotin á honum mannréttindi, sem felist í því að vera ekki mismunað á grundvelli pólitískra starfa og skoðana. Með því hafi verið brotið gegn jafnræðisreglu 65. gr. og   tjáningarfrelsisákvæði   73.   gr.   stjórnarskrárinnar   nr.   33/1944   með   áorðnum breytingum.

Stefnandi   byggir   á   því   að   þó   svo   að   ákvarðanir   sem   hér   hafi   verið gagnrýndar   hafi   verið   teknar   af   ráðningarhópi,   þá   beri   stefndi,   sem   fór   með ráðningarvaldið, hina formlegu ábyrgð og beini hann því kröfunni að honum. Stefnandi byggir á því að brotið hafi falið í sér ólögmæta meingerð gegn persónu hans, í skilningi b-liðar 1. mgr. 26. gr. skaðabótalaga nr. 50/1993.

Miski stefnanda felist í því að brotið hafi verið gegn starfsheiðri hans og mannréttindum að ófyrirsynju. Hann hafi um árabil gegnt starfi deildarstjóra á efra aldursstigi við Gerðaskóla. Hann hafi um lengri tíma lagt metnað sinn í að verða sem best hæfur til að gegna stöðu skólastjóra þegar eða ef tækifærið byðist. Hann hafi sótt um stöðuna á þeim grundvelli að hann hefði til þess afar góðan bakgrunn og nú hefði verið rétti tíminn. Vissulega hafi hann ekkert fyrirfram tilkall átt til stöðunnar fremur en aðrir, en höfnunin á framangreindum forsendum hafi verið ólögmæt og einstaklega meiðandi eins og á stóð. Þá taki það hann sárt að hafa verið látinn gjalda fyrir þátttöku í pólitísku starfi en það eigi ekki að geta talist neikvætt þegar opinber störf séu annars vegar. Það taki stefnanda sárt að hafa verið hafnað fyrir slíka sök. Stefnandi telur að líta beri til þessara atriða við ákvörðun um fjárhæð miskabóta.

Stefnandi gerir kröfu um dráttarvexti frá og með þingfestingardegi, sbr. 4. mgr. 5. gr. laga nr. 38/2001 um vexti og verðtryggingu.

Krafa stefnanda um greiðslu biðlauna vegna niðurlagningar starfs deildarstjóra við Gerðaskóla er byggð á grein 14.12 í kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga og KÍ vegna Skólastjórafélags Íslands. Þar segi í 1. og 2. málsgrein:

Sé starf lagt niður gildir eftirfarandi um starfsmann sem hóf störf sín sem kennari, námsráðgjafi eða stjórnandi grunnskóla í tíð eldri laga um réttindi og skyldur kennara og skólastjórnenda grunnskóla nr. 72/1996 (sem giltu til og með 31. júlí 2008) eða fyrir gildistöku þeirra og hefur starfað óslitið síðan, enda sé um stöðu í skilningi 14. gr. nefndar laga að ræða:

Nú er staða lögð niður og skal þá starfsmaður jafnan fá föst laun, er starfanum fylgdu, greidd í sex mánuði frá því að hann lét af starfi ef hann hefur verið í þjónustu sveitarfélaga skemur en 15 ár, en í tólf mánuði eigi hann að baki lengri þjónustualdur, enda hafi hann þá ekki hafnað annarri sambærilegri stöðu hjá sveitarfélögum.

Stefnandi kveður að það sé óumdeilt að starf stefnanda hafi verið lagt niður frá og með 1. ágúst 2015. Þjónustualdur stefnanda hjá stefnda hafi þá verið rúm   19   ár.   Hann   eigi   því   rétt   til   biðlauna   í   12   mánuði   samkvæmt   nefndri kjarasamningsgrein.

Stefnandi mótmælir því, sem stefndi heldur fram, að eins árs launalaust leyfi stefnanda á tímabilinu 1. ágúst 2008 til 31. júlí 2009 hafi falið í sér rof á ráðningu hans og hann hafi ekki getað átt biðlaunarétt eftir það. Um launalaus leyfi sé ákvæði í grein 10.3 kjarasamningsins. Hljóði það svo: „Starfsmaður skal eiga rétt á launalausu leyfi í hæfilegan tíma, ef honum býðst tækifæri og/eða styrkur til að vinna að tilteknu verkefni tengdu starfi hans. Slíkt leyfi skal tekið í samráði við skólayfirvöld.“

Tímabundið   launalaust   leyfi   feli   í   sér   réttindi   starfsmannsins,   sem vinnuveitandi hafi samþykkt að veita. Starfsmaður í launalausu leyfi teljist eftir sem áður vera starfsmaður og njóti réttinda og beri skyldur sem slíkur. Honum sé rétt og skylt að mæta aftur til starfa að leyfi loknu, sbr. til hliðsjónar dóm Félagsdóms   í   máli   nr.   12/1992   og   dóm   Hæstaréttar   í   máli   nr.   587/2014.   Í launalausu leyfi felist því ekki ráðningarrof.

Stefnandi segir að krafa hans svari til þeirra föstu launa sem hann hefði haft á þeim tíma  sem af sé biðlaunatíma, þ.e. frá 1. ágúst 2015 til 1. apríl 2016, en gjalddagi launanna sé fyrsti hvers mánaðar fyrirfram. Stefnandi áskilji sér rétt til að gera kröfu um biðlaun með ókomnum gjalddögum síðar, eftir að efndatími verður kominn. Stefnukrafan sundurliðast þannig eftir gjalddögum:

Gjalddagi fjárhæð 1. ágúst 2015                           kr.    542.896 1. sept. 2015                            kr.    542.896 1. okt. 2015                             kr.    542.896 1. nóv. 2015                            kr.    542.896 1. des. 2015                             kr.    617.896 1. jan. 2016                             kr.    542.896 1. feb. 2016                             kr.    542.896 1. mars 2016                            kr.    542.896 1. apríl 2016                            kr.    542.896 samtals            :           kr. 4.961.064 Fjárhæð launa hvers mánaðar samanstandi af föstum mánaðarlaunum eingöngu,   miðað   við   launaflokk   416-5   sem   stefnandi   raðist   í,   samkvæmt núgildandi launatöflu kjarasamnings. Hærri fjárhæð í desember 2015 skýrist af 75.000 króna desemberuppbót sem teljist hluti fastra launa og sé til útgreiðslu í þeim mánuði.

Stefnandi   áréttar   að   krafa   hans   miðist   við   100%   laun,   þó   svo   að   í uppsagnarbréfi 14. apríl 2015 hafi verið tiltekið að 50% staða stefnanda sem deildarstjóra hafi verið lögð niður. Það er að mati stefnanda ekki allskostar nákvæmt því að stefnandi hafi verið ráðinn og titlaður deildarstjóri og fengið greidd laun sem deildarstjóri í fullu starfi samkvæmt kjarasamningi. Þáttur í deildarstjórastarfinu hafi verið 50% kennsluskylda, en gert sé ráð fyrir slíku fyrirkomulagi í grein 1.2 í kjarasamningi Skólastjórafélags Íslands.

Krafa um dráttarvexti er gerð með stoð í ákvæðum III. kafla laga nr. 38/2001 um vexti og verðtryggingu. Krafist er dráttarvaxta frá gjalddaga launa hverju sinni, sbr. 1. mgr. 5. gr. laganna.

Krafa um málskostnað er gerð með vísan til 130. gr. laga nr. 91/1991 um meðferð einkamála. Gerð sé krafa um að við ákvörðun málskostnaðar verði tekið tillit til skyldu stefnanda til að greiða virðisaukaskatt.

III.

Stefndi byggir á því að þrátt fyrir að ýmsar málsástæður hafi verið hafðar uppi   fyrir   umboðsmanni   Alþingis   hafi   hann   ekki   talið   ástæðu   til   að   gera athugasemd við fleiri atriði er varða ráðningarferlið en að það hefði átt að vera í höndum bæjarstjórnar að ákveða hverjir yrðu boðaðir í viðtal vegna starfsins, enda hafi ákvörðun um ráðningu í stöðuna verið byggð á hlutlausu, málefnalegu og faglegu mati.

Varðandi þá ákvörðun bæjarstjórnar að fela utanaðkomandi sérfræðingum að sjá um ráðningarferlið bendir stefndi á að um sé að ræða lítið sveitarfélag sem ekki   hafi   á   sínum   snærum   fjölda   sérfræðinga   eins   og   algengt   sé   hjá   stærri sveitarfélögum.   Það   hafi   verið   ákveðið   að   fara   að   tillögum   sérfræðinga   sem mennta- og menningarmálaráðuneytið hafi fengið til að gera úttekt á skólanum, en þeir hafi lagt til að utanaðkomandi sérfræðingar yrðu fengnir til að leggja faglegt mat á hæfni umsækjenda um stöðu skólastjóra. Annar ráðgjafanna sem hafi unnið skýrsluna fyrir ráðuneytið sé lögmaður. Sveitarfélagið hafi því talið sig vera að fara að lögum þegar þetta fyrirkomulag var ákveðið.

Stefndi mótmælir því að brotið hafi verið gegn rannsóknarreglu 10. gr. stjórnsýslulaga og andmælarétti, sbr. 13. gr. stjórnsýslulaga. Öll atriði, sem máli skiptu, hafi verið nægjanlega upplýst áður en tekin var ákvörðun um veitingu stöðu skólastjóra, en stefndi hafi þekkt vel til stefnanda og hans starfa, enda hafi hann starfað hjá sveitarfélaginu í fjölda ára þegar hann sótti um starfið.

Ekki hafi verið ástæða til að veita stefnanda rétt til að koma að andmælum áður en ákveðið var að boða hann ekki í starfsviðtal, enda sé talið óþarfi að veita aðila færi á að tjá sig frekar um málsefni þegar hann hefur sótt um starf hjá stjórnvöldum og umsókn hans liggur fyrir.

Auglýsingin um starfið hafi verið mjög skýr og glögg og það hafi mátt auðveldlega   ráða   af   lestri   hennar   hvaða   lágmarks   hæfis-   og   hæfniskröfur umsækjendur þyrftu að uppfylla og hvaða meginsjónarmiðum ætti að byggja á við ákvörðun um ráðningu í starfið. Því hafi stefnanda og öðrum umsækjendum verið í lófa lagið að leggja fram með umsókn sinni þær upplýsingar og gögn sem þeir töldu að gætu skipt máli við mat á umsókn þeirra.

Stefndi mótmælir því að stefnanda hafi verið hafnað í ráðningarferlinu af pólitískum ástæðum. Stefnandi hafi einfaldlega ekki uppfyllt hæfisskilyrði þau sem gerð voru til umsækjenda og umsókn hans því ekki komið til frekari skoðunar. Þá byggir stefndi á því að stefnandi hafi ekki á neinn hátt sýnt fram á það að hæfasti umsækjandinn hafi ekki verið ráðinn í stöðuna. Því liggi ekki fyrir að sú aðferð sem beitt var við ráðningarferlið hafi haft nokkur áhrif á niðurstöðu þess.

Stefndi mótmælir því að um ólögmæta meingerð í garð stefnanda hafi verið að ræða, þannig að ákvæði 26. gr. skaðabótalaga nr. 50/1993 um miskabætur geti komið til álita.

Ekkert sem stefndi gerði í ráðningarferlinu hafi verið til þess fallið að vega að æru, starfsheiðri eða persónu stefnanda og verði ekki séð að ráðningin hafi bitnað á orðspori hans eða orðið honum að meini enda geti umsækjandi um starf, sem margir sækist eftir, ekki gefið sér, eins og stefnandi virðist gera, að hann einn skari fram úr og eigi að fá starfið.

Samkvæmt meginreglum einkamálaréttarfars beri aðilar sönnunarbyrði fyrir málsástæðum sínum og kröfum byggðum á þeim. Stefnandi hafi ekki axlað þá ábyrgð í þessu máli, enda hafi hann ekki sýnt fram á að hann hafi orðið fyrir miska sem stefnda beri að bæta á grundvelli ákvæða skaðabótalaga.

Stefndi bendir jafnframt á að í skilyrðinu um ólögmæta meingerð í 26. gr. skaðabótalaga felist að um saknæma hegðun þurfi að vera að ræða. Þá þurfi gáleysi að   vera   verulegt   til   að   tjónsatvik   verði   talið   ólögmæt   meingerð,   en   í réttarframkvæmd hafi verið miðað við að lægstu stig gáleysis fullnægi ekki kröfum ákvæðisins um ólögmæta meingerð. Bæjarstjórn sveitarfélagsins hafi verið í góðri trú   um   að   sá   faglegi   grunnur   sem   lagður   hafi   verið   að   ráðningunni   væri málefnalegur og í samræmi við lög. Verði því ekki séð að framkoma stefnda við ráðninguna hafi verið saknæm. Gögn málsins sýni fram á hið gagnstæða og umsókn stefnanda fengið sömu málsmeðferð og umsóknir annarra umsækjenda. Því eigi stefnandi ekki rétt til miskabóta og beri því að sýkna stefnda af kröfu hans þar um.

Komist dómurinn allt að einu að þeirri niðurstöðu að stefnandi hafi átt rétt á greiðslu miskabóta er þess krafist að stefndi verði engu að síður sýknaður með vísan til tómlætis stefnanda.

Ráðningarferli   því   sem   deilt   sé   um   hafi   lokið   í   byrjun   júní   2012   og umfjöllun umboðsmanns Alþingis um málið lokið í september 2013. Í kjölfar þess virðist hafa verið sendur tölvupóstur til stefnda fyrir hönd stefnanda þar sem óskað hafi verið eftir tillögum um hvernig hlutur hans yrði réttur. Stefnandi hafi ekki gert kröfu um greiðslu miskabóta fyrr en við höfðun máls þessa, fjórum árum eftir að nýr skólastjóri var ráðinn.

Í þessu sambandi sé einnig rétt að hafa í huga að stefnandi hafi verið starfsmaður stefnda síðan nýr skólastjóri var ráðinn og hafi hann starfað undir stjórn umrædds skólastjóra, lengst af sem einn af stjórnendateymi skólans, og starfi hann enn sem kennari við skólann. Þar sem stefnandi hafi engan reka gert að því að hafa uppi kröfur á hendur stefnda allan þennan tíma verði að telja að hann hafi sýnt tómlæti sem leiða eigi til þess að stefndi verði sýknaður af kröfum hans um greiðslu miskabóta.

Stefndi   gerir   athugasemdir   við   upphafstíma   kröfu   um   dráttarvexti   af miskabótakröfu, en hann sé í stefnu tilgreindur 1. júní 2016 en ekki verði séð að rök séu fyrir því að miða við þann dag.

Ef ekki verður fallist á röksemdir stefnda um að stefnandi eigi ekki tilkall til miskabóta gerir stefndi kröfu um lækkun fjárhæðar miskabóta. Varðandi kröfu um lækkun vísar stefndi til sömu röksemda og gerð hefur verið grein fyrir hér að framan.

Stefndi mótmælir kröfu stefnanda um greiðslu biðlauna, en hann geri kröfu um greiðslu biðlauna sem miðist við 100% starf vegna uppsagnar hans úr 50% starfi deildarstjóra hjá Gerðaskóla.

Stefndi vísar til þess að stefnandi hafi hafið störf hjá Gerðaskóla 1. ágúst 1995, en þá hafi verið gerður við hann tímabundinn ráðningarsamningur sem kennari við skólann í 100% starfshlutfalli. Samningurinn hafi gilt til 31. júlí 1996. Hinn 1. ágúst 1996 hafi aftur verið gerður tímabundinn ráðningarsamningur við stefnanda til 31. júlí 1997, um 100% vinnu við Gerðaskóla. Hinn 1. ágúst 1997 hafi svo verið gerður ótímabundinn ráðningarsamningur við stefnanda í 100% starf sem kennari   við   skólann.   Hinn   1.   ágúst   2002   hafi   verið   gerður   tímabundinn ráðningarsamningur við stefnanda til 31. júlí 2003. Í ráðningarsamningnum hafi verið samið um að hann gegndi starfi deildarstjóra í 25% starfshlutfalli, en áfram hafi verið gert ráð fyrir að hann gegndi starfi kennara í 75% starfshlutfalli. Hinn 1. ágúst 2003 hafi aftur verið gerður tímabundinn ráðningarsamningur við stefnanda til 31. júlí 2004 um 25% starf deildarstjóra. Af samningnum megi ráða að áfram væri gert ráð fyrir að hann sinnti 75% starfi kennara við skólann.

Stefndi kveður að ekki hafi verið gerðir frekari ráðningarsamningar milli stefnanda og stefnda um deildarstjórastarfið, en samkvæmt vinnuskýrslum hafi stefnandi starfað við skólann sem kennari í 75% starfi og deildarstjóri í 25% starfi til 31. júlí 2005. Frá 1. ágúst 2005 til 31. júlí 2008 hafi hann starfað sem kennari í 50% starfi og sem deildarstjóri í 50% starfi.

Á   fundi   skólanefndar   stefnda   26.   maí   2008   hafi   verið   samþykkt   ósk stefnanda um launalaust leyfi frá störfum deildarstjóra og kennara við Gerðaskóla. Samkvæmt fundargerð skólanefndar hafi leyfið ekki verið bundið tímamörkum. Stefnandi hafi farið til starfa sem verkefnastjóri hjá Norðuráli, en virðist svo hafa hafið störf aftur hjá Gerðaskóla 1. ágúst 2009. Frá þeim tíma hafi hann sinnt 50% starfi kennara og 50% starfi deildarstjóra.

Á fjárhagsárinu 2015 hafi fjárhagsáætlun sveitarfélagsins Garðs gert ráð fyrir verulegri hagræðingu í rekstri Gerðaskóla og því hafi verið nauðsynlegt að gera breytingar á rekstri skólans. Ákveðið hafi verið að skera niður í stjórnun skólans og hafi tveimur deildarstjórum við skólann verið sagt upp, en stefnandi og annar aðili hafi starfað sem deildarstjórar í 50% starfshlutfalli. Stefnanda hafi því verið sagt upp 50% starfi sem deildarstjóri við skólann frá og með 31. júlí 2015. Í bréfi skólastjóra, dags. 21. maí 2015, komi fram að gert sé ráð fyrir að starfi stefnanda yrði breytt þannig að hann gegndi 100% starfi kennara frá 1. ágúst 2015. Hinn 1. ágúst 2015 hafi tekið gildi nýr ótímabundinn ráðningarsamningur stefnanda við   sveitarfélagið   Garð   og   gegni   hann   nú   starfi   kennara   við   skólann   og   sé starfshlutfall hans 100%.

Lög nr. 72/1996 hafi fallið úr gildi 31. júlí 2008 og eigi þeir kennarar sem hófu störf eftir þann tíma eða hafa starfað með hléum ekki rétt á greiðslu biðlauna. Talið hafi verið að túlka eigi ákvæði greinar 14.12 í umræddum kjarasamningi á sama hátt og ákvæði 14. gr. laga nr. 38/1954 um réttindi og skyldur starfsmanna ríkisins. Byggist það á því að ákvæði 14. gr. laga nr. 72/1996, sem vísað er til í kjarasamningnum, byggist á ákvæði 14. gr. laga nr. 38/1954 um réttindi og skyldur starfsmanna ríkisins. Megi skýrlega sjá þetta af greinargerð með frumvarpi því sem varð að lögum nr. 72/1996, bæði í athugasemdum við 14. gr. og í almennum athugasemdum, en þar segi m.a.: „Í nefndarálitinu var lagt til að sett yrðu lög um réttindi   og   skyldur   kennara   og   skólastjóra   grunnskóla   sem   reknir   verða   af sveitarfélögunum, sem yrðu fullkomlega hliðstæð lögum nr. 38/1954, um réttindi og skyldur starfsmanna ríkisins ... Frumvarpið er byggt á því samkomulagi sem náðist milli þessara aðila og birt er í skýrslu nefndarinnar. Frumvarpið felur því fyrst og fremst í sér endurspeglun á lögunum um réttindi og skyldur opinberra starfsmanna nr. 38/1954 ...“

Í þessu sambandi sé einnig rétt að benda á að við mat á lengd biðlaunaréttar sé einnig skilyrði að um samfellda þjónustu eftir 1. ágúst 2008 hafi verið að ræða, sbr. lokamálsgrein greinar 14.12. Það sé augljóst að skilyrði ákvæðisins sé ekki uppfyllt í þessu máli.

Stefndi byggir á því að ekki hafi myndast réttur til biðlauna þar sem föst staða í skilningi 14. gr. laga nr. 72/1996 hafi ekki verið lögð niður. Stefnandi hafi verið ráðinn ótímabundið við skólann sem kennari í 100% starfi, en aðeins hafi verið gerðir við hann tímabundnir samningar um að sinna starfi deildarstjóra. Stefnanda hafi mátt vera fullkunnugt um að um tímabundið starf væri að ræða, bæði af ráðningarsamningnum og þeirri staðreynd að skólastarf taki breytingum í upphafi hvers skólaárs eftir þörfum, fjármagni og þeim áherslum sem gera eigi á skólaárinu. Í þessu sambandi vísar stefndi til vinnuskýrslna, en þær séu yfirlýsingar sem séu undirritaðar í upphafi hvers skólaárs af stefnanda og skólastjóra. Feli vinnuskýrslurnar í sér samkomulag um tilgreind samningsbundin kjör á tilteknu skólaári en breytingar á vinnuskýrslu á skólaárinu verði ekki gerðar nema til komi samþykki beggja eða með lögmætum uppsagnarfresti.

Stefndi   kveður   að   stefnandi   virðist   halda   því   fram   að   tímabundnir ráðningarsamningar um starf deildarstjóra hafi haft áhrif á gildi ótímabundins ráðningarsamnings í starf kennara. Verði ekki séð að nokkur stoð sé fyrir slíkri túlkun, en hún gangi þvert á dómaframkvæmd Hæstaréttar.

Við skipulagsbreytingar þær, sem skólinn hafi orðið að fara út í, hafi verið ákveðið að breyta skipuriti skólans og vegna þess hafi þurft að breyta starfi stefnanda þannig að hann gegndi 100% starfi kennara í samræmi við ákvæði ótímabundins ráðningarsamnings hans við skólann. Starfsumhverfi Gerðaskóla sé háð fjárhagsramma, en það sé hlutverk skólastjóra að skipuleggja skólastarfið út frá þeim fjárheimildum sem hann hafi fyrir hvert skólaár. Skólastjórar verði að hafa ákveðið svigrúm til að nýta sem best það fjármagn sem þeir hafi. Í þessu tilviki hafi það verið mat skólastjóra að ekki væri lengur þörf á að hafa deildarstjóra starfandi við skólann. Að öllu leyti hafi verið rétt staðið að ákvörðunum um lok starfs stefnanda sem deildarstjóra   og   hafi   verið   hæfilegur   fyrirvari   á   tilkynningu   til   stefnanda   um fyrirhugaða breytingu. Það segir sig sjálft að stefnandi geti ekki hafa gegnt tveimur störfum í einu hjá skólanum og átt þannig rétt til biðlauna vegna beggja starfanna. Um þetta sé vísað til dóms Hæstaréttar í máli nr. 127/2007.

Ef talið verður að stefnandi hafi gegnt stöðu í skilningi 14. gr. laga nr. 72/1996 byggir stefndi á því að stefnandi geti ekki átt rétt á biðlaunum þar sem hann hafi ekki starfað óslitið hjá stefnda frá því á gildistíma laga um réttindi og skyldur kennara og skólastjórnenda grunnskóla nr. 72/1996 í samræmi við þær kröfur   sem   gerðar   eru   í   grein   14.12   í   kjarasamningi   Sambands   íslenskra sveitarfélaga og KÍ vegna Skólastjórafélags Íslands.

Af gögnum málsins sé ljóst að stefnandi hafi ekki starfað við Gerðaskóla óslitið síðan fyrir 31. júlí 2008, en stefnandi hafi ekki starfað hjá skólanum eða sveitarfélaginu frá 1. ágúst 2008 til 31. júlí 2009 og engar launagreiðslur fengið frá sveitarfélaginu á þessu tímabili. Þess í stað hafi hann gegnt alls óskyldu starfi hjá Norðuráli. Því geti ákvæði greinar 10.3 í kjarasamningi ekki átt við í þessu tilviki, en það eigi aðeins við um þau tilvik þar sem starfsmaður fer í leyfi til að vinna að tilteknu verkefni tengdu starfi hans.

Í launalausum leyfum starfi launþegi ekki hjá vinnuveitanda og beri aðilar engar skyldur eða réttindi gagnvart hvor öðrum. Þannig falli allar launagreiðslur niður   og   starfsmaður   vinni   sér   ekki   inn   nein   réttindi   á   tímabilinu.   Því   leiði launalaust leyfi til þess að ráðningarsambandi sé tímabundið slitið. Sveitarfélög hafi túlkað og framkvæmt umrætt ákvæði kjarasamningsins á þennan hátt. Þá hafi dómstólar túlkað ákvæði 14. gr. laga nr. 38/1954 á sama veg, sbr. dóm Hæstaréttar í máli nr. 76/2010, en þar komi skýrlega fram að til að starfsmenn eigi rétt á biðlaunum þurfi þeir að hafa verið á föstum launum til að uppfylla kröfur 14. gr. laga nr. 38/1954.

Verði talið, þrátt fyrir framangreint, að stefnandi eigi rétt á biðlaunum er fjárhæð þeirra mótmælt, en stefndi telur fráleitt að gera kröfu til biðlauna sem nemi föstum launum hans miðað við 100% starf, enda aðeins verið að gera breytingar á starfinu að því er varði 50% starfshlutfall. Tilgangur biðlauna sé að veita réttþega svigrúm á biðlaunatímanum til að leita sér að öðru starfi og ef viðkomandi fær annað starf áður en biðlaunagreiðslum lýkur að bæta honum mismun sem kann að vera á launakjörum í eldra og nýju starfi. Megi skýrlega sjá þetta af ákvæðum 5. mgr. greinar 14.12 í kjarasamningi þeim sem stefnandi byggir kröfu sína á, en þar segi að ef maður sem nýtur biðlaunagreiðslna samkvæmt ákvæðinu tekur við starfi í þjónustu sveitarfélaga á biðlaunatíma skuli biðlaunagreiðslur falla niður ef laun sem fylgja nýja starfinu eru jöfn eða hærri en hann naut í fyrri stöðunni, en ef launin eru lægri ber að greiða starfsmanni launamismuninn til loka biðlaunatímans.

Í þessu tilviki hafi málsaðilar samið um það sín á milli að ef dómstólar kæmust að þeirri niðurstöðu að hann ætti rétt á biðlaunum myndi sveitarfélagið ekki nýta sér rétt sinn til að draga frá biðlaunagreiðslum þau laun sem hann fær fyrir kennarastarf sem hann gegnir nú í stað deildarstjórastarfsins. Það samkomulag hafi gert ráð fyrir því að aðeins væri um að ræða möguleg biðlaun fyrir 50% starf, enda hafi engin breyting orðið á því 50% starfi sem stefnandi gegndi við kennslu hjá Gerðaskóla og gegni hann því enn. Stefnandi geti því aldrei átt rétt á greiðslu biðlauna nema fyrir 50% starf deildarstjóra.

Varðandi varakröfu vísar stefndi til sömu röksemda og raktar eru hér að framan.

IV.

Í máli þessu krefst stefnandi í fyrsta lagi miskabóta vegna brots við ráðningu   í   stöðu   skólastjóra   við   Gerðaskóla   og   í   öðru   lagi   krefst   stefnandi biðlauna vegna niðurlagningar á starfi hans sem deildarstjóri við sama skóla.

Eins og rakið hefur verið fól stefndi utanaðkomandi aðila að leggja mat á umsækjendur um starf skólastjóra í Gerðaskóla og ákveða hvaða umsækjendur yrðu boðaðir í viðtal, án nokkurrar aðkomu bæjarstjórnar stefnda. Þannig var málsmeðferð   stefnda   ekki   í   samræmi   við   almennar   reglur   stjórnsýsluréttar. Stefndi heldur því hins vegar fram að aðkoma þessara utanaðkomandi aðila að ráðningu í stöðu skólastjóra hafi ekki haft nein áhrif á það hver var ráðinn í starfið og að ástæða þess að stefnandi var ekki boðaður í viðtal hafi verið sú að hann hafi ekki uppfyllt hæfisskilyrði. Stefnandi heldur því aftur á móti fram að hann hafi verið útilokaður í umsagnarferlinu vegna þátttöku hans í pólitísku starfi, sem varabæjarfulltrúi í Garði.

Stefndi   byggir   nánar   tiltekið   á   því   að   stefnandi   hafi   ekki   uppfyllt hæfisskilyrðið um að hafa „áhuga og reynslu til að leiða þróunarstarf“. Um þetta segir í svari stefnda til umboðsmanns Alþingis að stefnandi hefði ekki uppfyllt skilyrðið: ... áhugi og reynsla af að leiða þróunarstarf. Hann hafði enga reynslu af þróunarstarfi.“   Í   auglýsingu   um   starf   skólastjóra   Gerðaskóla   var   ein   af hæfniskröfum reynsla „til að leiða þróunarstarf“ en ekki reynsla „af að leiða þróunarstarf“. Hvorn veginn sem litið er á það verður, með hliðsjón af menntun og   reynslu   stefnanda,   bæði   hjá   Gerðaskóla   og   í   félagsstarfi,   að   hafna   því sjónarmiði   stefnda   að   stefnandi   hafi   ekki   uppfyllt   þetta   hæfisskilyrði.   Í rökstuðningi fyrir ráðningu skólastjóra Gerðaskóla var sérstaklega vísað til þess að við mat á umsóknum hefði verið horft til skýrslu Attentus um úttekt á starfsemi Gerðaskóla en þar var lögð áhersla á að nýr skólastjóri tengdist ekki pólitískum fylkingum innan sveitarfélagsins. Þeir sem lögðu mat á umsækjendur gengu sérstaklega eftir því hvort það væri vilji sveitarfélagsins að fara að þessum ábendingum og reyndist svo vera. Af þessu verður ekki önnur ályktun dregin en að í ráðningarferlinu hafi verið litið til tengsla stefnanda við stjórnmálastarf í sveitarfélaginu. Það leiðir af jafnræðisreglu 2. mgr. 11. gr. stjórnsýslulaga nr. 37/1993, og tjáningarfrelsi 73. gr. stjórnarskrár lýðveldisins Íslands nr. 33/1944, að slíkt er almennt óheimilt við ráðningu í opinbert starf. Almenn skírskotun til þess að í sveitarfélaginu hafi verið miklar pólitískar deilur um skólastarfið getur ekki réttlætt slíkt sjónarmið. Í þessu fólst ólögmæt meingerð gegn stefnanda. Hann á því rétt til miskabóta samkvæmt b-lið 1. mgr. 26. gr. skaðabótalaga nr. 50/1993. Stefnandi fór fram á við stefnda í kjölfar álits umboðsmanns Alþingis, frá 25. september 2013, að hlutur hans yrði réttur en erindi hans var aldrei svarað af stefnda. Er því hafnað að stefnandi eigi ekki rétt til miskabóta vegna tómlætis. Þykja   miskabætur   hæfilega   ákveðnar   500.000   krónur   og   skulu   dráttarvextir reiknast frá dómsuppsögu, til greiðsludags. Stefnandi byggir kröfu sína um biðlaun á grein 14.12 í kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga og Kennarasambands Íslands vegna Skólastjórafélags Íslands, en þar er kveðið á um rétt til biðlauna ef starf er lagt niður og starfsmaður hóf störf sín sem kennari, námsráðgjafi eða stjórnandi grunnskóla í tíð eldri laga um réttindi og skyldur kennara og skólastjórnenda grunnskóla nr. 72/1996, sem giltu til og með 31. júlí 2008, eða fyrir gildistöku þeirra og hefur starfað óslitið síðan, enda sé um stöðu í skilningi 14. gr. nefndra laga að ræða.

Stefndi byggir sýknukröfu í fyrsta lagi á því að ráðning stefnanda í stöðu deildarstjóra hafi verið tímabundin og því eigi hann ekki rétt á biðlaunum þar sem „föst staða“ hafi ekki verið lögð niður í skilningi 14. gr. laga nr. 72/1996. Í öðru lagi byggir stefndi á því að stefnandi eigi ekki rétt á biðlaunum þar sem hann hafi ekki „starfað óslitið“ í tilskilinn tíma.

Stefnandi var fyrst ráðinn sem kennari í fullu starfi með tímabundnum ráðningarsamningi frá 1. ágúst 1995 til 31. júlí 1996 og aftur til eins árs eftir það. Með ráðningarsamningi, dags. 27. maí 1997, var stefnandi ráðinn ótímabundið sem kennari frá 1. ágúst 1997. Með ráðningarsamningi 15. ágúst 2002 var gerður tímabundinn ráðningarsamningur við stefnanda frá 1. ágúst 2002 til 31. júlí 2003 um 25% starf deildarstjóra og 75% sem kennari. Aftur var gerður tímabundinn samningur sama efnis frá 1. ágúst 2003 til 31. júlí 2004. Ekki var gerður nýr skriflegur ráðningarsamningur eftir það en stefnandi hélt áfram störfum að hluta til sem deildarstjóri, að því er virðist í 50% starfi. Stefnandi verður að bera hallann af því að hafa ekki gengið frá nýjum tímabundnum samningi og verður því litið svo á að stofnast hafi ótímabundinn samningur um starf stefnanda sem deildarstjóri. Fyrir liggur að stefnandi var í launalausu leyfi á tímabilinu 1. ágúst 2008 til 31. júlí 2009. Launagreiðslur féllu þá niður og starfaði stefnandi á þessum tíma sem verkefnastjóri hjá Norðuráli, í alls óskyldu starfi sem á engan hátt tengdist starfi hans sem kennari og deildarstjóri. Almennt er í vinnurétti litið svo á að á þeim tíma sem starfsmaður er í launalausu leyfi vinni hann sér ekki inn réttindi í starfi, hvorki veikindarétt, orlofsrétt, uppsagnarrétt né starfsaldurshækkanir.  Að   öllu   þessu   virtu   ber   að   hafna   kröfu   stefnanda   um greiðslu biðlauna. Málskostnaður verður ákveðinn með hliðsjón af því að stefnandi hefur unnið málið að nokkru og tapað því að nokkru. Verður stefndi dæmdur til að greiða stefnanda málskostnað sem þykir hæfilega ákveðinn 800.000 krónur. Dóm þennan kveður upp Sandra Baldvinsdóttir héraðsdómari.

D ó m s o r ð:

Stefndi,   sveitarfélagið   Garður,   greiði   stefnanda,   Birni   Vilhelmssyni, 500.000 krónur ásamt dráttarvöxtum samkvæmt 1. mgr. 6. gr. laga nr. 38/2001 um vexti og verðtryggingu, frá dómsuppsögu til greiðsludags. Stefndi greiði stefnanda 800.000 krónur í málskostnað.

Sandra Baldvinsdóttir

Heimildaskrá