Fara í efni

Dómstólaleit

Leit í dómum íslenskra dómstóla

Leita í öllum dómstólum...

Niðurstöður

313 dómar fundust

Lykilorð: Vinnulaunamál

Héraðsdómur Reykjaness birt 11. maí 2026 kl. 9:21

E-3034/2025

Maryuri Andreina Edwards Quero (Daníel Isebarn Ágústsson lögmaður) gegn Ræstitækni ehf (Harpa Rún Glad lögmaður)
Lykilorð: Vinnulaunamál.

Stefnandi höfðaði mál vegna vangoldinna launa og kröfu um miskabætur. Stefndi greiddi kröfu um vangoldin laun eftir að málið var höfðað. Þá voru stefnanda dæmdar miskabætur en fallist var að mjög takmörkuðu leyti á kröfu hennar.

Héraðsdómur Vesturlands birt 25. febrúar 2026

E-234/2025

Njáll Gíslason (Daníel Isebarn Ágústsson lögmaður) gegn Hval hf (Stefán A. Svensson lögmaður)

Launakrafa gerð á hendur Hval hf. vegna þess að ekki varð úr hvalvertíð sumarið 2023 vegna ákvörðunar stjórnvalda. Stefnandi var í föstu ráðningarsambandi við stefnda Hval hf. og sá samningur raskaðist ekki vegna þessa. Ekki talinn hafa eignast sérstaka kröfu á grundvelli þess að hvalvertíð hófst ekki í júní 2023 þar sem hann áttii að gegna stöðu skipstjóra, einkum á grundvelli þess að honum var kunnugt um ákvæði í ráðningarsamningi þess efnis að ef að af hvalvertíð yrði ekki vegna ákvörðunar stjórnvalds þá félli samningurinn niður. Lög um hópuppsagnir voru ekki talin breyta þeirri niðurstöðu.

Héraðsdómur Vesturlands birt 12. febrúar 2026

E-320/2025

Dagur Ari Kristjánsson (Daníel Isebarn Ágústsson lögmaður) gegn Hval hf (Stefán A. Svensson lögmaður)

Launakrafa gerð á hendur Hval hf. vegna þess að ekki varð úr hvalvertíð sumarið 2023 vegna ákvörðunar stjórnvalda. Ráðningarsamningur talinn hafa komist á um vinnu á vertíð í Hvalfirði. Kröfu um laun eins og af vertíðinni hefði orðið hins vegar hafnað og Hvalur hf. sýknaður vegna þess að launþegi átti ekki heldur rétt til launa á uppsagnarfresti. Lög um hópuppsagnir voru ekki talin breyta þeirri niðurstöðu.

Héraðsdómur Vesturlands birt 12. febrúar 2026

E-319/2025

Birkir Reynisson (Daníel Isebarn Ágústsson lögmaður) gegn Hval hf (Stefán A. Svensson lögmaður)

Launakrafa gerð á hendur Hval hf. vegna þess að ekki varð úr hvalvertíð sumarið 2023 vegna ákvörðunar stjórnvalda. Ráðningarsamningur talinn hafa komist á um vinnu á vertíð í Hvalfirði. Kröfu um laun eins og af vertíðinni hefði orðið hins vegar hafnað og Hvalur hf. sýknaður vegna þess að launþegi átti ekki heldur rétt til launa á uppsagnarfresti. Lög um hópuppsagnir voru ekki talin breyta þeirri niðurstöðu.

Héraðsdómur Vesturlands birt 12. febrúar 2026

E-318/2025

Patrekur Ísak Ólafsson (Daníel Isebarn Ágústsson lögmaður) gegn Hval hf (Stefán A. Svensson lögmaður)

Launakrafa gerð á hendur Hval hf. vegna þess að ekki varð úr hvalvertíð sumarið 2023 vegna ákvörðunar stjórnvalda. Stefnandi var í föstu ráðningarsambandi við stefnda Hval hf. og sá samningur raskaðist ekki vegna þessa. Ekki talinn hafa eignast sérstaka kröfu á grundvelli þess að hvalvertíð hófst ekki í júní 2023 þrátt fyrir að ágreiningslaust væri að hann hefði hækkað til muna í launum ef af vertíð hefði orðið. Sú launhækkun hefði þá byggst á auknu vinnuframlagi hans en á grundvelli sama ráðningarsamnings og sömu launakjara. Lög um hópuppsagnir voru ekki talin breyta þeirri niðurstöðu.

Héraðsdómur Vesturlands birt 12. febrúar 2026

E-233/2025

Úlfur Örn Maríuson (Daníel Isebarn Ágústsson lögmaður) gegn Hval hf (Stefán A. Svensson lögmaður)

Launakrafa gerð á hendur Hval hf. vegna þess að ekki varð úr hvalvertíð sumarið 2023 vegna ákvörðunar stjórnvalda. Ráðningarsamningur talinn hafa komist á um vinnu á vertíð í Hvalfirði. Kröfu um laun eins og af vertíðinni hefði orðið hins vegar hafnað, en samþykkt krafa um laun á uppsagnarfresti.

Héraðsdómur Vesturlands birt 12. febrúar 2026

E-231/2025

Jóhann Úlfar Thoroddsen (Daníel Isebarn Ágústsson lögmaður) gegn Hval hf (Stefán A. Svensson lögmaður)

Launakrafa gerð á hendur Hval hf. vegna þess að ekki varð úr hvalvertíð sumarið 2023 vegna ákvörðunar stjórnvalda. Ráðningarsamningur talinn hafa komist á um vinnu á vertíð í Hvalfirði. Kröfu um laun eins og af vertíðinni hefði orðið hins vegar hafnað, en samþykkt krafa um laun á uppsagnarfresti.

Héraðsdómur Suðurlands birt 3. nóvember 2025

E-491/2024

G (Leifur Valentín Gunnarsson lögmaður) gegn B (Halldór Kr. Þorsteinsson lögmaður)

Stefnda var gert að greiða stefnanda skaðabætur vegna uppsagnar á starfi. Sýnt þótti að uppsögnin hafi verið í brýnni andstöðu við ákvæði kjarasamnings og þannig hafi stefndi bakað sér bótaskyldu gagnvart stefnanda.

Héraðsdómur Suðurlands birt 3. nóvember 2025

E-490/2024

A (Leifur Valentín Gunnarsson lögmaður) gegn B […] (Halldór Kr. Þorsteinsson lögmaður)

Stefndi var dæmdur til að greiða stefnanda bætur vegna ólögmætrar uppsagnar en öðrum kröfum hans var hafnað. Við mat á fjárhæð bóta var litið til þess að stefnandi bar sönnunarbyrði fyrir tjóni sínu en hann varð ekki við áskorun um að leggja fram upplýsingar um laun sín hjá nýjum vinnuveitanda eða aðrar tekjur samkvæmt staðgreiðsluskrá ríkisskattstjóra. Var litið til þess að stefnandi fékk annað starf skömmu eftir að honum var sagt upp en þó álitið sem svo að ætla mætti að hann hafi orðið fyrir einhverju tjóni vegna starfsmissis auk þess sem óljóst var hvort hann naut launa eða hvort honum voru greidd laun í orlofi um sumarið.

Héraðsdómur Reykjavíkur birt 29. október 2025

E-7784/2024

A (Jón Sigurðsson lögmaður) gegn Landspítala – Háskólasjúkrahúsi íslenska ríkinu (Gunnlaugur Úlfsson lögmaður)

Fallist var á launakröfu stefnanda að hluta, með vísan til þess að þrátt fyrir ákvæði kjarasamninga og ráðningarsamninga um fasta yfirvinnu stefnanda, þá hafi þó sannanlega um nokkurn tíma komist á það fyrirkomulag, með vilja og vitund næsta yfirmanns stefnanda, sem hélt utan um vinnu stefnanda af hálfu stefndu, að stefnandi gat nýtt sér skráða umframtíma til frítöku með samþykki yfirmannsins og taldist stefnandi því hafa haft réttmætar væntingar til þess að fá þá uppsöfnuðu umframvinnu þannig greidda. Var þó fallist á röksemdir stefndu varðandi það hvernig reikna bæri út launakröfuna, m.t.t. þess að umræddir umframtímar stefnanda voru þá jafnan einungis notaðir þannig í frítöku á móti dagvinnutímum og féllu auk þess til á mismunandi tímabilum m.t.t. launataflna.

Héraðsdómur Norðurlands eystra birt 29. október 2025

E-377/2024

Aron Nökkvi Erlendsson (Guðrún Ásta Lúðvíksdóttir lögmaður) gegn K6 veitingum ehf (Ásgeir Örn Blöndal Jóhannsson lögmaður)
Lykilorð: Sýkna. Vinnulaunamál.

Stefnandi, sem var nemi í matreiðslu, krafðist leiðréttingar launa á þeirri forsendu að hann hefði í reynd gegnt stöðu vaktstjóra. Þeirri kröfu var hafnað, sem og kröfu hans um sérstaka greiðslu vegna vinnuferðar erlendis.

Héraðsdómur Reykjavíkur birt 14. október 2025

E-1985/2025

A (Guðmundur Birgir Ólafsson lögmaður) gegn B ehf (Jónatan Hróbjartsson lögmaður)

Fallist var á kröfu stefnanda um greiðslu launa vegna starfsloka hennar hjá stefnda á grundvelli vottorðs um óvinnufærni. Krafa stefnanda sætti lækkun vegna útreiknings veikinda- og orlofsréttar hennar.

Héraðsdómur Reykjavíkur birt 7. október 2025

E-2596/2024

A (Elías Karl Guðmundsson lögmaður) gegn íslenska ríkinu (Gunnlaugur Úlfsson lögmaður)

Stefndi, íslenska ríkið, var sýknað af skaðabótakröfu stefnanda, fyrrum ríkisstarfsmanns, vegna meints fjártjóns vegna uppsagnar, en bótakrafan byggði á ætluðum launamun. Þótti ekki sýnt fram á tjón, þar sem gögn málsins gáfu til kynna að ekki hafi verið um slíkt tjón að ræða, er leiddi til sýknu.

Héraðsdómur Reykjavíkur birt 23. apríl 2025

E-5752/2024

A (Marlena Piekarska lögmaður) gegn B (Hulda Rós Rúriksdóttir lögmaður)

Hið stefnda félag var dæmt til að að greiða stefnanda vangoldin laun, laun í veikindum og laun á uppsagnarfresti, en félagið var sýknað af kröfu hans um vangoldna kjarasamningsbundna launahækkun. Málsástæðu um tómlæti var hafnað. Þá var stefnda gert að greiða stefnanda málskostnað.

Héraðsdómur Reykjavíkur birt 11. mars 2025

E-985/2024

Guðni Eðvarðsson (Leifur Valentín Gunnarsson lögmaður) gegn Vegagerðinni (Sonja H. Berndsen lögmaður)
Lykilorð: Sýkna. Vinnulaunamál.

Vegagerðin var sýknuð af kröfum starfsmanns um greiðslu vegna vakvaktafrís sem hann hafði hvorki tekið út né fengið greitt. Byggði dómurinn á því að samkvæmt orðanna hljóðan bæri að skilja tilgreint kjarasamningsákvæði á þá leið að starfsmenn Vegagerðarinnar sem sinntu bakvöktum sem skipulagðar væru allt árið öðluðust rétt til bakvaktafrís. Ákvæðið ætti á hinn bóginn ekki við um þá sem sinntu bakvöktum sem skipulagðar væru hluta úr ári.

Héraðsdómur Suðurlands birt 15. janúar 2025

E-652/2023

Hið stefnda félag var dæmt til að að greiða stefnanda vangoldin laun og orlof. Ekki var fallist á kröfu stefnda um skuldajöfnuð þar sem stefnda þótti ekki hafa sýnt fram á tjón af völdum stefnanda né heldur að hún hafi bakað sér bótaábyrgð gagnvart stefnda með saknæmri háttsemi. Þá var stefnda gert að greiða stefnanda málskostnað.

Héraðsdómur Norðurlands vestra birt 28. maí 2024

E-84/2021

Einar Þorvaldsson (Gísli Guðni Hall lögmaður) gegn Skagafirði (Björn Jóhannesson lögmaður)

Stefnandi þurfti vegna starfs síns sem tónlistarkennari að aka á milli starfsstöðva í sama sveitarfélagi. Ágreiningur málsins snérist um það hvort stefnandi ætti rétt á launum vegna þess tíma sem fór í aksturinn eða hvort sá tími rúmaðist innan árlegrar vinnuskyldu hans.

Héraðsdómur Norðurlands vestra birt 28. maí 2024

E-83/2021

Guðbrandur J Guðbrandsson (Gísli Guðni Hall lögmaður) gegn Skagafirði (Björn Jóhannesson lögmaður)

Stefnandi þurfti vegna starfs síns sem tónlistarkennari að aka á milli starfsstöðva í sama sveitarfélagi. Ágreiningur málsins snérist um það hvort stefnandi ætti rétt á launum vegna þess tíma sem fór í aksturinn eða hvort sá tími rúmaðist innan árlegrar vinnuskyldu hans.

Héraðsdómur Norðurlands vestra birt 28. maí 2024

E-82/2021

Anna María Guðmundsdóttir (Gísli Guðni Hall lögmaður) gegn Skagafirði (Björn Jóhannesson lögmaður)

Stefnandi þurfti vegna starfs síns sem tónlistarkennari að aka á milli starfsstöðva í sama sveitarfélagi. Ágreiningur málsins snérist um það hvort stefnandi ætti rétt á launum vegna þess tíma sem fór í aksturinn eða hvort sá tími rúmaðist innan árlegrar vinnuskyldu hans.

Héraðsdómur Norðurlands eystra birt 14. maí 2024

E-662/2023

Arnar Grétarsson (Heiðar Ásberg Atlason lögmaður) gegn Knattspyrnufélagi Akureyrar (Ásgeir Örn Blöndal Jóhannsson lögmaður)

Fallist var á kröfu stefnanda um árangurstengda greiðslu sem hann taldi sig eiga rétt á úr hendi stefnda vegna starfa hans sem knattspyrnuþjálfari meistaraflokks karla hjá stefnda. Ennfremur var fallist á að krafan væri launakrafa sem greiða bæri orlofslaun af í samræmi við 1. gr. laga nr. 30/1987. Kröfu stefnanda um greiðslu lífeyrisiðgjalda af kröfunni var aftur á móti vísað frá dómi. Þá féllst dómurinn á kröfu stefnda um frádrátt ferðakostnaðar frá árangurstengdu greiðslunni til stefnanda.

Héraðsdómur Vestfjarða birt 19. apríl 2024

E-71/2023

A (Leifur Valentín Gunnarsson lögmaður) gegn B hf (Björn Jóhannesson lögmaður)
Lykilorð: Vinnulaunamál.

Fallist var á með stefnanda að stefndi hefði vangreitt vinnulaun á nánar tilgreindum starfstíma. Var krafa stefnanda þó lækkuð úr 1.755. 1.755.963 krónum í 1.067.566 krónur. Fyrir lá að stefndi hafði ekki gert ráð fyrir kjarasamningsbundnum reglum um styttingu vinnutíma og einnig að stefnandi hafði ekki notið hagvaxtarauka sem leiða átti til launahækkunar 1. apríl 2022. Ekki var fallist á með stefnanda að miða bæri laun hennar við að kaffitímar hefðu ekki verið teknir á vinnustaðnum, en fallist á með stefnda að svo hefði verið.

Héraðsdómur Reykjavíkur birt 5. desember 2023

E-2495/2023

Sigurlín Margrét Sigurðardóttir (Sævar Þór Jónsson lögmaður) gegn Ríkisútvarpinu ohf og Leó ehf (Stefán A. Svensson lögmaður)
Lykilorð: Vinnulaunamál.

Kröfu stefnanda um viðurkenningu á að hún hafi verið launamaður í starfi hjá stefnda Ríkisútvarpinu ohf. síðustu fjögur ár starfstíma hennar við flutning táknmálsfrétta var hafnað þar sem í gildi voru verksamningar á því tímabili sem og á öllum starfstíma hennar.

Héraðsdómur Reykjavíkur birt 2. nóvember 2023

E-734/2023

Hugrún Jórunn Halldórsdóttir (Sigrún Ingibjörg Gísladóttir lögmaður) gegn Baldri Hrafnkatli Jónssyni (Sjálfur)
Lykilorð: Vinnulaunamál.

Stefndi dæmdur til að greiða stefnanda þóknun fyrir vinnu við gerð sjónvarpsþátta þar sem sannað þótti að komist hefði á munnlegur samningur milli aðila um greiðslu tiltekinnar fjárhæðar fyrir hvern þátt.

Héraðsdómur Suðurlands birt 22. september 2023

E-207/2022

A (Leifur Valentín Gunnarsson lögmaður) gegn B (Hjalti Geir Erlendsson lögmaður)

Stefndi var dæmdur til að greiða stefnanda skaðabætur vegna ólögmætrar uppsagnar, þar sem stefndi sýndi ekki fram á að uppsögn stefnanda hafi byggst á forsendum sem unnt væri að sannreyna sem málefnalegar á þann hátt sem ákvæði kjarasamnings áskilja. Ekki var þó fallist á kröfu stefnanda um miskabætur.

Héraðsdómur Reykjaness birt 14. apríl 2023

E-1891/2022

Málið nr. E-1891/2022 Ahmed M.a. Alsdudi (Elfa Antonsdóttir lögmaður) gegn Ölmu FJ ehf (Vilhjálmur Hans Vilhjálmsson lögmaður)

Atvinnurekandi var sýknaður af kröfum fyrrum starfsmanns um ógreidd laun vegna yfirvinnu, orlofs, sviptingar frítökuréttar o.fl. Var einkum tekist á um hvort leggja ætti til grundvallar vinnustundaskráningu sem stafaði frá starfsmanninum eða vinnustundaskráningu atvinnurekandans. Þótti sú fyrri afar ótraust og var hin seinni því lögð til grundvallar dómi.

Héraðsdómur Suðurlands birt 31. október 2022

E-580/2021

Hreiðar Jónsson (Sigrún Ísleifsdóttir lögmaður) gegn Selfossveitum bs (Sigurður Ágústsson lögmaður)

Stefndi var sýknaður af kröfu stefnanda, sem taldi sig eiga ógreidd laun hjá stefnda vegna útkalla á bakvakt er stefnandi sinnti í vinnu sinni hjá stefnda. Ekki var talið að stefnandi hefði sýnt fram á að leggja mætti að jöfnu útköll á bakvakt er sinna mætti í fjarvinnu heiman frá við útköll þar sem starfsmaður yrði að sinna verkefni á vinnustað. Þá var málsástæða stefnanda um að krafa hans byggði á venju talin of seint fram komin. Var stefndi því sýknaður og stefnanda gert að greiða honum málskostnað.

Héraðsdómur Norðurlands eystra birt 23. september 2022

E-459/2021

Helga Sigurðardóttir (Gísli Guðni Hall lögmaður) gegn Akureyrarbær (Inga Þöll Þórgnýsdóttir lögmaður)

Akureyrarbær sýknaður af kröfu kennara um greiðslu launa eins og hún hefði verið ráðin í föstu starfshlutfalli, en ekki sem stundakennari í tímavinnu, en kennarinn var á eftirlaunum að hluta. Talið var að fyrirkomlag ráðningar stefnanda samræmdist lögum, kjarasamningi og meginreglum vinnumarkaðsréttar.

Héraðsdómur Norðurlands eystra birt 15. júní 2022

E-460/2021

A (Gísli Guðni Hall lögmaður) gegn Akureyrarbæ (Inga Þöll Þórgnýsdóttir lögmaður)
Lykilorð: Vinnulaunamál.

Stefnanda var sagt upp störfum í veikindaleyfi. Þar sem um var að ræða uppsögn á reynslutíma var því hafnað að uppsögnin hefði verið ólögmæt. Hins vegar var fallist á það með stefnanda að uppsögnin hefði ekki haft áhrif á rétt hennar til greiðslu forfallalauna á meðan hún væri óvinnufær. Var stefnda gert að greiða stefnanda forfallalaun á umsömdum ráðningartíma.

Héraðsdómur Vestfjarða birt 7. apríl 2022

E-136/2021

A (Halldór Kr. Þorsteinsson lögmaður) gegn sveitarfélaginu B (Björn Jóhannesson lögmaður)

Sveitarstjóra var sagt upp störfum en ágreiningur var um hvort honum bæri, samkvæmt ráðningarsamningi réttur til biðlauna, auk réttar til greiðslu launa á uppsagnarfrestli. Dómurinn taldi að ráðningarsamningur fæli ekki í sér rétt til biðlauna eins og atvik voru í málinu.Á hinn bóginn taldi dómurinn að staðið hefði verið að uppsögninni með þeim hætti að varðaði sveitarfélagið skyldu til greiðslu miskabóta, á grundvelli b. liðar 1. mgr. 26. gr. skaðabótalaga nr. 50/1993.

Hleð fleiri dómum…