Fara í efni

Dómstólaleit

Leit í dómum íslenskra dómstóla

Héraðsdómur Austurlands

Mál nr. E-108/2020:

A

(Helgi Birgisson lögmaður)

gegn

B.

Dómur.

I.

(Jón Jónsson lögmaður)

Skaðabótamál. Vinnulaunamál.

Vinnulaunamál. Skaðabætur.

  1. Mál þetta, sem dómtekið var 24. janúar 2023, en endurflutt 13. júní sl. og dómtekið sama dag, er höfðað með stefnu, útgefinni 28. maí 2020, birtri 30. maí 2020, en þingfestri 4. júní sama ár.

    Stefnandi er A, kt. […].

    Stefndi er B, kt. […].

  2. Með gagnstefnu, útgefinni 30. júní 2020, sem birt var 1. júlí sama ár, höfðaði stefndi gagnsök, og var gagnstefnan þingfest 3. september nefnt ár.

II.

  1. Dómkröfur stefnanda í aðalsök eru þær að stefndi verði dæmdur til að greiða honum 28.737.782 krónur með dráttarvöxtum samkvæmt 1. mgr. 6. gr. laga nr. 38/2001 um vexti og verðtryggingu af 20.859.226 krónum frá 1. nóvember 2019 til 1. desember 2019, en af 22.382.704 krónum frá þeim degi til 1. janúar 2020, en af 24.022.032 krónum frá þeim degi til 1. febrúar 2020, en af 25.545.510 krónum frá þeim degi til 1. mars 2020, en af 28.737.782 krónum frá þeim degi til greiðsludags.

    Þá krefst stefnandi þess að stefndi verði dæmdur til að greiða honum málskostnað að mati dómsins.

    Stefndi krefst í aðalsök sýknu, en til vara að krafa stefnanda verði lækkuð. Þá krefst hann málskostnaðar.

  2. Í gagnsök gerir gagnstefnandi, hér eftir nefndur stefndi, endanlegar þær kröfur, og þá í ljósi niðurstöðu um frávísun á hluta krafna hans, að gagnstefndi, þ.e. stefnandi, greiði honum 17.864.846 krónur, ásamt dráttarvöxtum samkvæmt 1. mgr. 6. gr. vaxtalaga nr. 38/2001 af fjárhæðinni, frá því að einn mánuður er liðinn frá birtingu stefnunnar til greiðsludags.

    Þá krefst stefndi málskostnaðar úr hendi stefnanda að mati dómsins.

    Stefnandi krefst þess í endanlegri kröfugerð í gagnsök að hann verði sýknaður af kröfum stefnda samkvæmt gagnstefnu, en að auki krefst hann málskostnaðar.

  3. Stefnandi skilaði greinargerð í gagnsök þann 5. nóvember 2020, en þar krafðist hann þess aðallega að gagnsök stefnda yrði alfarið vísað frá dómi. Að loknum flutningi var í úrskurði dómsins, þann 19. ágúst 2021, fallist á frávísunarkröfur stefnanda að hluta, að því er varðaði viðurkenningarkröfu stefnda um skaðabótaábyrgð stefnanda; „á tjóni stefnda, sem felst í kostnaði hans við endurvinnu áætlanagerðar og verkhönnunar um ljósleiðaralagningu í dreifbýli […]sem stefnandi hafði áður unnið að og á fjármagnskostnaði af innkaupum stefnanda á ljósleiðaraefni fyrir verkefnið sumarið 2019, vegna þeirrar háttsemi stefnanda síðsumars 2019 að eyða tölvugögnum í eigu stefnda og veita ekki upplýsingar um verkefnið og efniskaup vegna þess.

III.

  1. Mál þetta snýst í grunninn um starfslok stefnanda A hjá stefnda B. (skammstafað […]eða […]) sumarið 2019 og eftirmál þess.

    Stefnandi reisir mál sitt á því að hann eigi rétt á skaðabótum úr hendi stefnda. Stefndi krefur stefnanda aftur á móti um skaðabætur vegna ætlaðs tjóns sem hann telur að stefnandi hafi valdið með vanrækslu á hækkun gjaldskrár, en einnig vegna ætlaðra óheimilla/ósamþykktra úttekta og einkaneyslu í starfi sem framkvæmdastjóri B, en jafnframt krefst hann endurgreiðslu vegna kaupa stefnanda á líftryggingu hjá tryggingafélagi og úttekta stefnanda á vörum með VISA-viðskiptakorti frá stefnda í eigin þágu.

    Málsaðilar rekja málavexti og málsástæður í stefnu og gagnstefnu, en einnig í greinargerðum sínum, með nokkuð ólíkum hætti, og verður tekið mið af því hér á eftir.

    Við aðalmeðferð málsins gáfu aðilaskýrslur stefnandi A og C, […] stefnda. Vitnaskýrslur gáfu D, […] stjórnar B, E, […] B, F, […] stjórnar B, G, […] B, H, […] B, I, […] B, J, fyrrverandi tæknistjóri hjá […], K, hópstjóri veitulausna hjá […], og L hjá […].

  2. Stefndi, B, er einkahlutafélag í eigu […], nú […]eftir staðfestingu ráðherra á sameiningu nokkurra sveitarfélaga á […], hinn […].

    Um starfsemi, stjórn og rekstur stefnda fer samkvæmt reglugerð nr. 564/2008, settri með heimild í orkulögum nr. 58/1967. Samkvæmt 4. gr. reglugerðarinnar fer sérstök stjórn, kosin af […], með stjórn stefnda og ræður hún m.a. framkvæmdastjóra sem annast daglegan rekstur, sbr. ákvæði 6. gr. Um verkefni stjórnarinnar er fjallað í 5. gr. reglugerðarinnar, en á meðal þeirra eru stefnumótun um uppbyggingu, áætlanagerð um dreifingu vatns, gerð gjaldskrár og fjárhagsáætlana og gerð meiriháttar samninga.

    Upphaflega var stefndi stofnaður um […], en starfsemin tók einnig til vatns- og fráveitu í sveitarfélaginu. Í mars 2019 stofnaði stefndi sérstaka gagnaveitu og hefur stefndi frá þeim tíma haft með höndum alhliða rekstur á veitukerfum, hvað varðar öflun og dreifingu á heitu og köldu vatni, fráveitu og gagnaveitu.

    Starfsemi stefnda vegna sölu á heitu vatni hvílir m.a. á fyrrnefndri reglugerð settri á grundvelli orkulaga nr. 58/1967, og skal m.a. gjaldskrá staðfest af ráðherra, sbr. 3. mgr. 32. gr. laganna.

  3. Stefnandi, sem er vélvirkjameistari og véla- og rekstrarverkfræðingur, var ráðinn framkvæmdastjóri hjá stefnda B þann 8. mars 2018, á grundvelli auglýsingar ráðningarskrifstofu. Í auglýsingunni eru tíundaðar tilteknar menntunar- og hæfniskröfur, en þar segir m.a. um starfssviðið: ,,Daglegur rekstur og stjórnun fyrirtækisins. Ábyrgð á fjármálum, áætlanagerð og eftirfylgni áætlana. Stjórnun starfsmanna. Umsjón með tæknibúnaði og hugbúnaði honum tengdum. Umsjón með útboðum framkvæmda. Umsjón með eignum og búnaði. Tilboðs- og samningagerð.

Samskipti og samstarf við hagsmunaaðila.“

  1. Stefnandi og þáverandi stjórnarformaður stefnda gerðu ráðningarsamning um framkvæmdastjórastarfið þann 8. mars 2018, og var samningurinn m.a. vottfestur af þáverandi framkvæmdastjóra B.

    Í 1. gr. ráðningarsamningsins segir að framkvæmdastjóri annist daglegan rekstur stefnda og önnur verkefni í samræmi við samþykktir hans og það sem stjórnin felur honum hverju sinni, og er þar um vísað til starfslýsingar.

    Í 3. og 8. gr. samningsins er kveðið á um þagnarskyldu framkvæmdastjóra og samkeppnishömlur.

    Í 4. gr. samningsins er kveðið á um laun, þ. á m. föst laun, bakvaktir og yfirvinnu. Þá er í 5 gr. fjallað um bifreiðahlunnindi og segir þar: B leggur framkvæmdastjóra til bifreið til afnota tengda vinnunni, merktri með logoi B og greiðir allan viðhalds- og rekstrarkostnað bifreiðarinnar.

    Í 6. gr. samningsins er kveðið á um ferðakostnað, uppihald og risnu og segir þar um: Allar ferðir og uppihald á vegum B ehf. greiðir B. samkvæmt reikningi.

    Framkvæmdastjóri skal árita kostnaðarfylgiskjöl vegna risnu í þágu B. vegna starfsemi þess. Sé um meiriháttar risnu að ræða skal leita samþykkis stjórnarformanns.

    Í 7. gr. samningsins er kveðið á um orlofsrétt stefnanda o.fl., en þar segir m.a.:

Framkvæmdastjóri ákveður orlofstíma með tilliti til hagsmuna B. og veitir

stjórnarformanni upplýsingar þar að lútandi. Framkvæmdastjóra ber við lok hvers mánaðar að gera grein fyrir teknum orlofsdögum þess mánaðar ef við á. Orlofsréttur framkvæmdastjóra er 30 virkir dagar á ári. Framkvæmdastjóri skal í samráði við stjórnarformann ákveða hvenær hann tekur orlof. Framkvæmdastjóra er óheimilt að færa meira en 10 daga orlof milli orlofstímabila. Eigi framkvæmdastjóri ótekna fleiri en 10 orlofsdaga víð lok orlofstímabils fyrnist það sem umfram er. Ef framkvæmdastjóri getur ekki sökum anna tekið sitt orlof á orlofstímabili, 1. maí til og með 15. september, skal reikna hvern orlofsdag sem 0,75 af heilum degi vegna orlofs sem tekið er utan orlofstímabils. Þó skal aldrei reikna slíkt álag á fleiri daga en 10.

Orlofsdagafjöldi getur því að hámarki orðið 32,5 miðað við heilt ár.

Í 9. gr. samningsins er kveðið á um uppsögn og breytingar í starfi, en þar segir:

Ráðningarsamningnum getur stjórn B ehf. sagt upp skriflega með 6 mánaða fyrirvara í mánaðarlok og framkvæmdastjóri sömuleiðis með sama fyrirvara. Óski stjórn B. að framkvæmdastjóri láti af störfum innan umsamins uppsagnartíma skal greiða honum full laun samkvæmt samningi út uppsagnartímann, óháð því hvað hann tekur sér fyrir hendur í millitíðinni. Brjóti framkvæmdastjóri ákvæði 3. greinar og/eða 8. greinar hefur B. rétt til þess að segja honum upp án fyrirvara. Ef framkvæmdastjóri missir fjárræði vegna gjaldþrots má segja samningnum upp án fyrirvara.

Loks segir í 12. gr. ráðningarsamningsins: Hvað önnur réttindi og skyldur samningsaðila varðar, sem ekki er getið um í samningi þessum, skal farið eftir kjarasamningi milli FOSA annars vegar og Launanefndar sveitarfélaga hins vegar.

Í málatilbúnaði sínum vísa málsaðilar ítrekað til fyrrnefnds kjarasamnings, sem gerður var á milli Sambands íslenskra sveitarfélaga, f.h. þeirra sveitarfélaga og annarra aðila sem það hefur samningsumboð fyrir og samflots nokkurra bæjarstarfsmannafélaga, en á meðal þeirra stéttarfélaga sem þar eru undir er Félag opinberra starfsmanna á Austurlandi (FOSA). Vísar málsaðilar einkum til kafla 11.1.6, en þar segir:

Óheimilt er að segja starfsmanni upp án málefnalegra ástæðna. Uppsögn skal

vera skrifleg og miðast við mánaðarmót. Óski starfsmaður þess skal veita honum skriflegan rökstuðning ...

Starfsmanni skal og víkja úr starfi fyrirvaralaust ef hann hefur játað að hafa

gerst sekur um refsiverða háttsemi, sem ætla má að hefði í för með sér sviptingu réttinda skv. 68. gr. almennra hegningarlaga.

Starfsmanni skal víkja úr starfi fyrirvaralaust verði hann uppvís að grófu broti í starfi enda valdi viðvera hans á vinnustað áframhaldandi skaða fyrir starfsemina, aðra starfsmenn eða viðskiptavini. Fulltrúa stéttarfélags starfsmanns skal veittur kostur á að kynna sér slík mál áður en ákvörðun er tekin.

Við þær aðstæður þegar frávikning úr starfi er til skoðunar þarf að gæta að

andmælarétti starfsmanns áður en endanleg ákvörðun er tekin. Á meðan á slíkri málsmeðferð stendur er heimilt að afþakka vinnuframlag starfsmanns en starfsmaður heldur þó launum sínum.

Samhliða gerð ráðningarsamningsins ritaði stefnandi, ásamt stjórnarmönnum B, undir starfslýsingu um hið nýja starf sitt, sem framkvæmdastjóri félagsins, B. Er þar m.a. kveðið á um stjórnskipulega stöðu stefnanda, meginviðfangsefni og um ábyrgð og starfssvið. Segir m.a. í a-, b- og c-lið að stefnandi annist sem framkvæmdastjóri daglegan rekstur og beri m.a. ábyrgð á starfsemi félagsins gagnvart stjórninni, en beri einnig ábyrgð á rekstrar- og fjárhagsáætlun og bókhaldi, annist eftirlit og viðhald eigna, þ. á m. djúpdælubúnaði, lagerhúsnæði, tölvuhugbúnaði veitunnar ásamt gagnasöfnunarbúnaði. Þá segir í d-lið að stefnanda beri sem framkvæmdastjóra að upplýsa stjórnina reglulega um afkomu félagsins, og í e-lið segir að hann beri ábyrgð gagnvart stjórn á að starfsemi félagsins sé í samræmi við stefnu stjórnarinnar, hefðir og landslög. Þá segir einnig í hinum síðast nefnda staflið að öll málefni sem teljist meiriháttar og varði hag félagsins beri stefnanda, sem framkvæmdastjóra, að leggja fyrir stjórn eða stjórnarformann áður en ákvörðun er tekin. Loks segir í lýsingunni að stefnanda beri að undirbúa stjórnarfundi í samráði við stjórnarformann, en tekið er fram að fundi beri að halda eftir þörfum, en þó eigi sjaldnar en á mánaðar fresti.

  1. Samkvæmt gögnum hóf stefnandi störf hjá stefnda, B, þann 1. maí 2018. Fyrstu tvo mánuðina gegndi […] félagsins, vitnið E, áfram þeirri stöðu, en eftir það tók stefnandi einn við stjórnunarstöðunni, og lét forveri hans alfarið af störfum hjá B þá um haustið.

    Óumdeilt er að á meðal helstu verkefna stefnanda, sem framkvæmdastjóra B, voru þau sem tíunduð höfðu verið í fyrrgreindri auglýsingu um starf hans. Óumdeilt er að einnig og ekki síst fólust verkefni hans í því að hrinda í framkvæmd áformum um stofnun gagnaveitu og lagningu ljósleiðara um […]og þá ekki síst í hinum dreifðu byggðum.

  2. Á stjórnarfundi stefnda B, þann 6. desember 2018, samþykkti stjórnin nýja gjaldskrá. Er um rökstuðning fyrir þeirri ákvörðun helst vísað til þróunar byggingarvísitölu. Eins og hér að framan var rakið hvílir starfsemi stefnda á reglugerð nr. 564/2008, settri á grundvelli orkulaga nr. 58/1967. Segir í þessum réttarheimildum að vegna sölu á heitu vatni skuli gjaldskrá B staðfest af ráðherra, sbr. 3. mgr. 32. gr. orkulaganna. Þegar stefnandi tók við störfum var gjaldskrá stefnda frá júní 2016 í gildi nr. 567/2016.

    Óumdeilt er að hinni fyrirhuguðu gjaldskrárhækkun var, samkvæmt áætlun stjórnar B, ætlað að taka gildi þann 1. janúar 2019, en með henni var m.a. ætlunin að hækka alla liði hinnar fyrri gjaldskrá […], en jafnframt gjaldskrárliði […]. Bótakrafa stefnda í gagnstefnu er þó einungis bundin við […].

    Stefndi vísar til þess í málavaxtalýsingu sinni að þegar liðið hafi á árið 2019 hafi stjórn stefnda fengið upplýsingar um að hin nýja gjaldskrá hefði ekki verið staðfest af ráðherra og birt með tíðkanlegum hætti. Við nánari athugun hefði komið í ljós að stefnandi hafði eftir fyrrgreindan stjórnarfund sent fyrirspurn um framkvæmd staðfestingar gjaldskrárinnar til Orkustofnunar í desember 2018 og hafi starfsmaður þar á bæ brugðist við, þann 12. desember nefnt ár, og veitt skriflegar leiðbeiningar um viðtekið verklag. Þrátt fyrir þetta hafi fyrst verið brugðist við með viðeigandi hætti þann 5. og 16. apríl 2019, en í framhaldi af því og eftir tíðkanlega yfirferð Orkustofnunar hafi stefnda borist tilkynning þess efnis að eigi væru skilyrði til þess að staðfesta hina nýju gjaldskrá stefnda vegna svonefndra lífskjarasamninga, sem íslenska ríkið hafði verið aðili að, svo og öll sveitarfélög landsins. Hafi sveitarfélögin þannig afráðið að hækka ekki gjaldskrár sínar á árinu 2019 umfram það sem þá þegar hafði verið komið til framkvæmdar og þá ekki umfram 2,5% á árinu 2020. Stefnandi andmælir þessari lýsingu að nokkru.

    Stefndi vísar til þess að þann 14. nóvember 2019 hafi stjórn stefnda enn samþykkt á stjórnarfundi sínum nýja gjaldskrá og þá vegna ársins 2020. Hafi hækkun veitugjalda numið 2,5%, en gildistakan hafi verið fyrirhuguð þann 1. janúar 2020. Hin nýja gjaldskrá hafi verið staðfest af ráðherra þann 18. desember 2019, eftir yfirferð Orkustofnunar, og hún birt í framhaldi af því þann 30. sama mánaðar í B-deild Stjórnartíðinda undir númerinu 1262/2019, og þá með gildistöku þann 1. janúar 2020.

  3. Ágreiningslaust er að á árunum 2018 og 2019 var á meðal verkefna sem sveitarfélagið […], eigandi B, hugðist hrinda í framkvæmd var að stofna gagnaveitu ásamt því að leggja ljósleiðara um […] og þá ekki síst í dreifbýlinu. Var verkefninu m.a. ætlað að hafa tengsl við framkvæmdir B á fyrri árum og þá þannig að veitukerfið sem fyrir var yrði nýtt með því að leggja ljósleiðarastrengi eða ídráttarrör í jörðu. Óumdeilt er að stefnandi hafði aðstoðað sveitarfélagið við að fjármagna verkefnið með því að sækja um styrk til Fjarskiptasjóðs, en þannig höfðu fengist 213 milljónir króna í verkefnið. Þessu til viðbótar var veittur 20 milljóna króna byggðastyrkur til verkefnisins, en þeir fjármunir voru sérstaklega ætlaðir til framkvæmda við að tengja dreifbýlið í sveitarfélaginu. Samkvæmt gögnum var áætlaður kostnaður við að tengja dreifbýlið við ljósleiðarakerfið um hálfur milljarður króna.

    Á fundi stefnda, B, þann 1. mars 2019 var bókað að stjórnin hafi samþykkt að gerast samstarfsaðili sveitarfélagsins […] um lagningu ljósleiðara á grundvelli umsóknar sveitarfélagsins til Fjarskiptasjóðs og þeirrar kostnaðarskiptingar sem þar hafði verið tíunduð. Var stefnanda falið að funda með bæjarráði sveitarfélagsins og greina frá niðurstöðu stjórnarinnar.

    Á fundi stjórnar stefnda þann 21. mars sama ár var lögð fram gróf kostnaðar- og tekjuáætlun fyrir árin 2019–2022 vegna gagnaveitu, en jafnframt voru þá lögð fram drög að samstarfssamningi milli sveitarfélagsins […] og

B

vegna ljósleiðaraverkefnisins, þar sem gert var ráð fyrir að B myndi annast framkvæmd ljósleiðaravæðingar í dreifbýli sveitarfélagsins. Þegar þetta gerðist hafði kjörin stjórn sveitarfélagsins þegar ákveðið að leggja fyrrgreinda fjármuni, þ. á m. byggðastyrkinn, í verkefnið. Á fundi stjórnar stefnda, B, viku síðar, þann 28. mars, var tekin ákvörðun um stofnun sérstakrar gagnaveitu, en jafnframt var ákveðið að fela stefnanda að rita undir samstarfssamning við sveitarfélagið um verkefnið, og gekk það eftir.

Í málavaxtalýsingu sinni vísar stefnandi til þess að þegar hér hafi verið komið sögu hafi hann fyrst getað byrjað á umræddu ljósleiðaraverkefni, þó svo að þá hafi ekki legið fyrir eiginlegar framkvæmdaáætlanir, aðeins grófar hugmyndir þar um og þá helst um skiptingu verkefnisins í þrjá til fjóra áfanga.

Samkvæmt fundargerð stjórnar B var m.a. fjallað um ljósleiðaraverkefnið á fundi þann 11. apríl 2019, og var m.a. bókað að stjórnarmaður hefði spurst fyrir um stöðu útboða vegna verkefnisins, og að stefnandi hefði svarað fyrirspurninni þannig; „að vinna við það væri í gangi og að upplýsinga væri að vænta á næsta fundi stjórnar“. Á þessum fundi var m.a. einnig bókað um að stefnandi hefði gert grein fyrir helstu yfirstandandi verkefnum stefnda, þ. á m.; „vinnu við áfanga 2 […], sem nú er langt komin.“

Á næsta fundi stjórnar B, þann 9. maí, er bókað að gert hafi verið ráð fyrir að verðkönnun á meðal verktaka, og þá vegna ljósleiðaraverkefnisins, lægi fyrir á næstu tveimur vikum. Þá er í fundargerðinni skráð að stjórnarmaður hafi áréttað óánægju með hversu seint fundargögn bærust, þrátt fyrir samþykkt stjórnar og ítrekaðar umræður þar um, og væri um ótækt ástand að ræða.

Á fundi stjórnar stefnda þann 27. júní nefnt ár er skráð, undir liðnum skýrsla framkvæmdastjóra, að stefnandi hafi m.a. lagt fram bréf um lánaskilyrði tiltekinnar lánastofnunar og að hann hafi lýst því að vinna B varðandi verkefnið […]væri á lokastigi.

Stefndi staðhæfir að á stjórnarfundi B þann 17. júní nefnt ár hafi ekki verið fjallað um ljósleiðaraverkefnið að öðru leyti en því að stjórnarmaður hafi spurst fyrir um það undir liðnum önnur mál.

  1. Ágreiningslaust er að á fundi stjórnar stefnda, B, þann 31. júlí 2019, hafi sú ákvörðun verið tekin að segja stefnanda upp störfum sem framkvæmdastjóra félagsins. Greindi stjórnarformaður stefnda stefnanda frá ákvörðuninni síðdegis þennan sama dag með þeim orðum að hann nyti ekki lengur trausts stjórnarinnar. Liggur fyrir að af þessu tilefni hafi verið ritað í trúnaðarbók stjórnarinnar nánar um forsendur uppsagnarinnar, en endurrit þar um var lagt fram eftir höfðun þessa dómsmáls. Í trúnaðarbókinni er m.a. skráð að stjórnarformaðurinn hafi lýst áhyggjum sínum varðandi framgang verkefna B, að verkefni væru komin langt á eftir upphaflegum áætlunum og að erfitt hafi reynst að fá svör frá stefnanda, sem framkvæmdastjóra, um gang mála. Jafnframt er skráð að stjórnarmenn hafi lýst óánægju sinni með störf stefnanda og er vísað til þess að hann hafi ítrekað hundsað beiðnir um eðlilegan undirbúning stjórnarfunda. Einnig er skráð að óánægja hafi verið með að stefnandi hafi ekki klárað að ganga frá þeirri verðhækkun á gjaldskrá B, sem samþykkt hafði verið á fyrrnefndum fundi þann 6. desember 2018 og að erfiðleikar hafi komið til vegna þeirrar seinkunar og þá vegna tilmæla stjórnvalda um að takmarka verðhækkanir í kjölfar „svokallaðra lífskjarasamninga“. Þá er skráð í trúnaðarbókina að stjórnarmenn hafi lýst áhyggjum sínum sökum þess að stefnanda hafi almennt gengið illa að vinna áætlanir, sem stjórnin hafi ítrekað gengið eftir að fá, þ. á m. varðandi undirbúning ljósleiðaraverkefnisins, en einnig vegna átta mánaða uppgjörs fjárhagsáætlunar. Þá er skráð að stjórnarmenn hefðu lýst áhyggjum sínum sökum þess að tvö af stórum framkvæmdaverkefnum ársins hafi verið skammt á veg komin, en þar um er vísað til lagningar ljósleiðara um tvö tilgreind dreifbýlissvæði, en einnig varðandi tiltekið fráveituverkefni. Þá er skráð að óánægja hafi verið með að ekki hefði verið gengið frá breytingum á lánasamningi við tilgreinda bankastofnun þrátt fyrir að það verkefni hafi verið á lokastigi í maímánuði. Skráð er að áhyggjur hafi komið fram sökum þess að fulltrúar stjórnarinnar hafi þurft að verja töluverðum tíma með stefnanda til þess að tryggja eðlilegan framgang verkefna B. Þá er skráð að áhyggjur hafi verið með verðkönnun sem framkvæmd hafði verið vegna ljósleiðaraverkefnisins þar sem hún hefði verið illa unnin og að verktakar hefðu lýst yfir óánægju af þeim sökum. Loks er bókað að óánægja hafi verið með starfshætti stefnanda þar sem hann hafi ekki sinnt því að upplýsa stjórnina um „framúrkeyrslu verkefna“ og að hann hafi dregið að selja tiltekna lagerhúseign félagsins; „án þess að óska eftir endurupptöku málsins hjá stjórn“.
  2. Samkvæmt þeim fundargerðum sem málsaðilar vísa til, í málavaxtalýsingum og við flutning málsins, sbr. einnig efni fyrrgreindrar trúnaðarbókar, hélt stjórn stefnda, B, nokkra fundi í ágústmánuði 2019. Á stjórnarfundi 7. ágúst er skráð undir liðnum skýrsla stjórnar að stefnandi hafi greint frá ýmsum verkefnum sem unnið hafi verið að, þ. á m. varðandi […], en einnig varðandi viðhaldsvinnu við kyndistöð, á heitavatnstanki og á regnvatnslögnum, en einnig vegna lagningar ljósleiðara í dreifbýli. Þá er skráð í fundargerðinni að stjórnin hafi hafið viðtal við núverandi framkvæmdastjóra B um ráðningu hans sem viðtakandi framkvæmdastjóra. Einnig er skráð að stjórnin hafi haldið fund með stefnanda á skrifstofu hans þann 12. ágúst, þ. á m. um tímabundið orlof hans frá 19. ágúst til 2. september, en jafnframt liggur fyrir að stjórnarmenn stefnda höfðu þegar þetta gerðist hafnað þeim tilmælum stefnanda að hann fengi að starfa tímabundið og þá þannig að hann myndi ljúka margnefndu ljósleiðaraverkefni. Samhliða þessu hafi stjórn stefnda ákveðið að leita til tiltekins ráðgjafa utan félagsins um ljósleiðaraverkefnið og þá þannig að sá aðili myndi mæta á fund stjórnarinnar 22. sama mánaðar. Liggur fyrir að lagt var fyrir stefnanda að mæta til þessa síðast greinda fundar, en að hann hafi hafnað því, og samkvæmt gögnum lagðist hann einnig gegn því að hróflað yrði við gögnum hans tengdu margnefndu ljósleiðaraverkefni.
  3. Samkvæmt gögnum sendi formaður FOSA stefnda erindi þann 18. ágúst 2019 þar sem gerðar voru alvarlegar athugasemdir við hvernig stjórn stefnda hefði staðið að uppsögn stefnanda þar sem skort hefði á rökstuðning fyrir þeirri ákvörðun, og þá m.a. í ljósi þess að á sama tíma hefði stjórn B ætlast til þess að stefnandi kynnti viðtakandi framkvæmdastjóra starfsemi félagsins og þau verkefni sem félagið hefði verið að vinna að.
  4. Hinn 19. ágúst 2019 sendi stjórnarformaður stefnda stefnanda formlegt uppsagnarbréf, en þar kom m.a. fram að um uppsögn hans gilti hinn sex mánaða frestur, að hún miðaðist við lok nefnds mánaðar, en að starfslok hans yrðu 1. mars 2020. Í bréfinu er tekið fram að stefnandi hafi starfsskyldur gagnvart stefnda á tímabili uppsagnarfrestsins, og þ. á m. vegna fundar stjórnar B með ráðgjafa, þann 22. sama mánaðar.

    Samkvæmt gögnum svaraði lögmaður stefnda erindi formanns FOSA með bréfi, dagsettu 19. ágúst nefnt ár, m.a. á þann veg að áðurrakið kjarasamningsákvæði FOSA gilti ekki um réttarsamband málsaðila. Í bréfinu er áréttað að ástæða uppsagnar stefnanda hafi verið skortur á trausti. Þá er tekið fram að stjórn B hafi verið reiðubúin að gera nánari grein fyrir ástæðum uppsagnarinnar á sérstökum fundi yrði eftir því leitað. Loks er í bréfinu áréttað að stefnanda beri að sinna starfsskyldum sínum á uppsagnarfresti.

  5. Samkvæmt læknisvottorði, dagsettu 21. ágúst 2019, var stefnandi „veikindaskrifaður“ frá 16. ágúst að telja. Liggur fyrir að þegar þetta gerðist var stefnandi á heimili sínu á höfuðborgarsvæðinu, en óumdeilt er að hann hélt einnig heimili á […], í húseign sem hann hafði keypt.
  6. Samkvæmt gögnum hélt stjórn stefnda fundi dagana 22. og 23. ágúst 2019 ásamt nýráðnum framkvæmdastjóra félagsins, bæjarstjóra sveitarfélagsins svo og L, […]. Samkvæmt fundargerðum var afráðið að stjórnin myndi vinna ramma að samkomulagi við […] ehf., um að starfsmenn félagsins myndu annast undirbúning og hafa umsjón með lagningu ljósleiðara í dreifbýli sveitarfélagsins og um kaup á ráðgjöf.

    Í málavaxtalýsingu greinir stefndi frá því að á nefndum fundum hafi legið fyrir mjög takmarkaðar upplýsingar um stöðu ljósleiðaraverkefnisins þar sem stefnandi hefði ekki tekið saman gögn þar um og kynnt stjórninni. Stefndi staðhæfir að á þessu tímabili hafi starfsfólk […]orðið þess vart að stefnandi hefði verið í samskiptum við ýmsa aðila vegna starfsemi stefnda, þrátt fyrir fyrrgreinda veikindaskráningu.

  7. Með bréfi lögmanns stefnda, dagsettu 26. ágúst 2019, var stefnanda tilkynnt að stjórn stefnda, B, hefði tekið ákvörðun um að óska ekki eftir vinnuframlagi hans á tímabili uppsagnarfrestsins, að öðru leyti en því að ætlast væri til þess að hann myndi eiga fund með formanni stjórnar félagsins, hann myndi þá gera grein fyrir þeim verkefnum sem hann hefði unnið að, og gætti þannig að hagsmunum stefnda og virti trúnað.

    Í nefndu bréfi var þess krafist að stefnandi skilaði öllum gögnum sem vörðuðu starf hans, óháð því hvort þau væru fullunnin eða ekki og hvort sem þau væru aðgengileg á skrifstofu hans. Jafnframt er tekið fram í bréfinu að stefnanda væri óheimilt að eyða gögnum úr tölvu, öðrum en einkagögnum. Þá er í bréfinu þess krafist að stefnandi afhenti bifreið og lykla sem hann hefði haft afnot af, en einnig fartölvu.

    Í nefndu bréfi er vikið að því að á skrifstofu stefnanda hjá B hafi fundist útbúnaður, sem nota hafi mátt til upptöku hljóðs og mynda og er sagt að tilvist þessa búnaðar geti mögulega flokkast sem „öryggisbrestur“ og þannig stangast á við lög um persónuvernd.

    Í margnefndu bréfi er tekið fram að stefnanda gefist sjö daga frestur til andsvara, þ.e. til 2. september nefnt ár, en jafnframt er sagt að stefndi ætli að kanna hvort að fyrrnefndur hljóð- og upptökubúnaður geti verið forsenda þess að rifta ráðningarsamningi við stefnanda.

    Fyrir liggur að tveimur dögum áður en hið síðast greinda bréf var ritað hafði stefndi sent Persónuvernd erindi um lýst málefni. Samkvæmt gögnum tilkynnti Persónuvernd stjórn stefnda skömmu síðar, í septembermánuði, að ekki væri ástæða til aðgerða.

    Í svarbréfi stefnanda, dagsettu 27. ágúst nefnt ár, við síðastgreindu bréfi stefnda vísar hann til áðurlýstra eigin veikinda, og segir að af þeim sökum þurfi hann að fresta öllum fundum um stund, en vonist til þess að geta komið á starfssvæði stefnda um miðjan september. Í bréfinu greinir stefnandi frá því að hann líti svo á að stefndi hafi borið á hann alvarlegar ásakanir, sem ekki eigi við nein rök að styðjast. Þannig hafi enginn upptökubúnaður verið til staðar á starfsstöð hans hjá B. Aftur á móti hafi verið þar á glámbekk, í gluggakistu á skrifstofunni, myndavél sem hann og starfsmenn B hafi verið að skoða og prufa í þeim tilgangi að athuga hvort búnaðurinn hentaði til notkunar á dælustöðvum félagsins.

    Með bréfi lögmanns stefnda, dagsettu 30. ágúst 2019, eru m.a. áréttaðar fyrrgreindar skyldur stefnanda, en jafnframt er stefnanda tilkynnt að honum sé óheimilt að koma fram sem framkvæmdastjóri stefnda. Þá er í bréfinu ítrekaður fyrrgreindur tímafrestur, þ.e. til 2. september. Tekið er fram að stefnanda standi til boða aðstoð við að afhenda fyrrgreinda lausafjármuni, enda hafi verið gert ráð fyrir að nýr framkvæmdastjóri tæki við skrifstofu hans daginn eftir og er tekið fram að gætt verði að innihaldi tölvu og að stefnanda sé heimilt að vera á vettvangi ellegar senda fulltrúa stéttarfélags. Loks er í bréfinu tekið fram að trúnaðarlækni stefnda, B, hafi verið falið að staðreyna veikindi stefnanda.

    Í bréfi stefnanda til lögmanns stefnda, dagsettu 3. september 2019, segir frá því að hann hafi sent nýráðnum framkvæmdastjóra B fartölvu í pósti, en einnig lykla að fyrrnefndri bifreið. Einnig upplýsir stefnandi í bréfi þessu að á skrifstofu hans hjá B séu persónulegir munir hans, þ. á m. í tölvu framkvæmdastjóra, og eftir atvikum persónuleg trúnaðargögn. Í bréfinu gefur stefnandi lögmanni stefnda það ráð að stefndi ráðfæri sig við sérfræðinga hjá […]hf., sem tölvuþjónustuaðila félagsins, varðandi þau gögn sem; „vistist hér og þar í tölvunni“. Einnig beinir stefnandi þeim tilmælum til stefnda að fulltrúi frá FOSA verði viðstaddur þegar farið verði á skrifstofu hans hjá B, þ.e. þegar nefnd tölva verði ræst.

    Í málavaxtalýsingu sinni staðfestir stefndi að starfsmenn hans hafi tekið við áðurgreindum lausafjármunum, en jafnframt að hinar fyrrnefndu ráðstafanir hafi gengið eftir. Þannig hafi m.a. formaður FOSA verið viðstaddur þegar farið hafi verið á skrifstofu stefnanda á starfsstöð B.

    Óumdeilt er að trúnaðarlæknir stefnda hitti stefnanda þann 13. september 2019. Staðfestir hann í vottorði veikindi stefnanda, en tekur jafnframt fram að rétt sé að endurmeta vinnufærni hans að þremur til fjórum vikum liðnum. Í málinu liggur einnig fyrir vottorð frá heilsugæslulækni, dagsett 28. nóvember 2019, en þar kemur fram að stefnandi hafi verið óvinnufær á tímabilinu frá 16. ágúst 2019 til 29. febrúar 2020.

  8. Í bréfi stefnda til stefnanda, dagsettu 18. september 2019, er m.a. fullyrt að við yfirferð á fyrrnefndri fartölvu, en einnig í tölvunni á skrifstofu framkvæmdastjóra, hafi ekki komið fram öll þau gögn sem; „ætla má að fyrirliggjandi séu vegna vinnuframlags varðandi starfsemi veitunnar, s.s. hönnunargögn og áætlanir vegna ljósleiðaraverkefnis B“. Þá segir í bréfinu að stjórn stefnda hafi fengið upplýsingar um reikninga vegna innkaupa á efni að fjárhæð rúmlega 50 milljónir króna, sem stefnandi hafi staðið fyrir, og er staðhæft að hann hafi eigi virt fjárheimildir vegna ljósleiðaraverkefnisins fyrir árið 2019, sem hafi numið rúmum 75 milljónum króna; „… en þær gerðu ráð fyrir að kostnaður vegna framkvæmda og annarra þátta en efniskostnaðar yrðu verulegir. Í ljósi þessa verða forsendur innkaupanna skoðaðar út frá starfsskyldum þínum. Þessu tengt er að B getur ekki séð forsendur fyrir innkaupunum. Því er áskorun um afhendingu allra gagna sem þú hefur unnið í þágu B ítrekuð, sbr. áðurnefnt bréf dags.

    26. ágúst. Í ljósi stöðu ljósleiðaraverkefnisins hefur dráttur á afhendingu gagnanna þegar raskað verkefninu og frekara tjón B er fyrirsjáanlegt. Það er grundvallaratriði að þér ber að afhenda gögn sem eru eign B. Lokafrestur til að gera öll gögn sem þú hefur unnið fyrir B aðgengileg fyrir B er til 24. september n.k.

    Þá er í nefndu bréfi stefnda þess m.a. krafist að stefnandi geri grein fyrir samningum vegna framkvæmda á vegum B, og þ. á m. tengdu félaginu […], og varðandi stöðu einstakra verkþátta, en einnig er óskað eftir upplýsingum vegna kaupa á diskum/drifum sem tengst hafi upptökum úr eftirlitsmyndavélum. Loks er ítrekað að samkvæmt starfsskyldum sé stefnanda skylt að funda með formanni stjórnar stefnda eins fljótt sem verða megi.

  9. Stefnandi svaraði hinu síðast greinda bréfi stefnda með bréfi, dagsettu 24. september 2019. Í bréfinu bendir stefnandi á hvar finna megi umbeðin gögn á starfsstöð B, þ.e.; „ýmist í tölvu framkvæmdastjóra sem staðsett er þar og/eða í pappírsformi á skrifstofu framkvæmdastjóra …“ Þá greinir stefnandi frá stöðu verks hjá hinu nafngreinda fyrirtæki, en segir að frekari upplýsinga þar um megi afla hjá tiltekinni verkfræðistofu, sem unnið hafi að verkefninu. Í bréfinu andmælir stefnandi staðhæfingum stefnda, þ. á m. um að skuldbindingar B hafi farið fram úr fjárheimildum. Þar um vísar hann m.a. til samnings við Fjarskiptasjóð og að fjárheimildin hafi þannig verið tæpar 140 milljónir. Þá tekur stefnandi fram að allt efni og diskar sem hafi tengst eftirlitsmyndavélum hafi verið geymt á skrifstofum tiltekinna starfsmanna B, en hafi að auki verið aðgengilegt öllum starfsmönnum og verktökum B frá árinu 2018.
  10. Á stjórnarfundi stefnda, þann 17. október 2019, var ákveðið af stjórnarmönnum B að rifta ráðningarsamningi við stefnanda. Um tilefnið segir að ástæðan hafi verið veruleg brot stefnanda á starfs- og trúnaðarskyldum, sem þá þegar hefði verið upplýst um, þ. á m. eftir starfslok hans. Gerð var nánari grein fyrir ástæðu riftunarinnar í bréfi, dagsettu 28. október 2019, sbr. dskj. nr. 44.
  11. Með bréfi stefnda, dagsettu 28. október 2019, sem ritað var af varaformanni B og sent stefnanda var honum formlega tilkynnt að stjórn B hefði tekið fyrrnefnda ákvörðun um að rifta ráðningarsamningi hans með þeim réttaráhrifum, að réttur hans til launa á uppsagnarfresti (þ.m.t. veikindalauna) félli niður frá riftuninni. Í bréfi þessu er um nánari forsendur ákvörðunarinnar vísað til svohljóðandi bókunar stjórnarinnar frá 17. október nefnt ár: „Stjórn samþykkir að rifta ráðningarsamningi við A, fráfarandi framkvæmdastjóra vegna verulegra brota á starfs- og trúnaðarskyldum hans gagnvart

B. samkvæmt skyldum framkvæmdastjóra skv. lögum um einkahlutafélög og

ráðningarsamningi, sem komið hafa fram eftir starfslok, einkum varðandi skil á gögnum og eignum

B

og upplýsingagjöf um starfsemi félagsins, stöðu ljósleiðaraverkefnis, m.a. varðandi óforsvaranlega ákvarðanatöku, skipulag og undirbúning sem valda mun B verulegu fjártjóni, og með öflun persónulegra hagsmuna og fjármuna í andstöðu við ráðningarsamning.

Í bréfinu er m.a. farið fram á að stefnandi veiti nánari upplýsingar um eigin orlofstöku allt frá 1. október 2018, þannig að uppgjör launa geti réttilega farið fram þar um, en einnig um laun vegna októbermánaðar 2019 og er lýst yfir skuldajöfnuði vegna óheimillar innheimtu stefnanda á dagpeningum að fjárhæð 1.794.350 krónur.

Í bréfinu segir einnig að stjórn stefnda hafi byggt ákvörðun sína um riftun ráðningarsamningsins á 11 tilgreindum atriðum, og er þar að nokkru ítrekað efni áðurrakinna bréfasamskipta. Þannig er fullyrt að stefnandi hafi ekki skilað nánar tilgreindum lausafjármunum eftir starfslok sín; „s.s. viðskiptakortum, aukalykli bifreiðar, sjónauka, dokku (tengistöð fartölvu, tölvuskjá og tölvutösku), en að auki hafi tölvudiskar v/öryggismyndavélar ekki fundist“. Einnig er fullyrt að við skoðun fartölvu og borðtölvu hafi komið í ljós að gögnum í eigu B hefði verið eytt, sem m.a. hafi varðað ljósleiðaraverkefnið og hafi þau eigi verið aðgengileg og/eða vistuð á fjarvinnsludrifum. Áréttað er að nefnd gögn hafi varðað ljósleiðaraverkefnið, sem hafi verið á meðal þeirra verka, sem stefnandi hafi stýrt, þ.e. verkhönnun, verkáætlunum og gögnum um fyrirhugaða efnisnotkun.

Í riftunarbréfinu er auk ofangreindra atriða staðhæft að stefnandi hafi stefnt fjárhagslegum hagsmunum stefnda í hættu með innkaupum vegna ljósleiðaraverkefnisins, að fjárhæð rúmlega 50 milljónir króna, og hafi þessi háttsemi verið í „ósamræmi við heimildir þar um og þá bæði gagnvart stjórn B og innkaupareglum samkvæmt samningum um verkefnið og lögum um opinber innkaup. Með tilliti til skorts á verkáætlunum og hönnun eru innkaupin algjörlega óforsvaranleg og bersýnilegt að með þeim hafi fjárhagslegum hagsmunum B verið stofnað í hættu. B verður fyrir fjártjóni vegna þess en fjárhæð liggur ekki fyrir.“

Þá er meðal annarra atriða sem tíunduð eru í riftunarbréfi stjórnar B, að stefnandi hafi eigi veitt lágmarksupplýsingar um stöðu einstakra og yfirstandandi verkefna og samskipta við verktaka, sem hafi skapað óvissu í starfseminni, að hann hafi oftekið í andstöðu við ráðningarsamning fyrrgreinda ferðadagpeninga að fjárhæð 1.794.350 krónur frá upphafi starf síns, sem hafi verið í andstöðu við efni samningsins, að hann hafi án heimildar í ráðningarsamningi keypt í eigin þágu, en á kostnað B, líftryggingu, að hann hafi eftir veikindatilkynningu margsinnis nýtt sér afsláttarkjör B á viðskiptareikningi Húsasmiðjunnar og Ískrafts samkvæmt eigin reikningi vegna kaupa á ýmiss konar byggingarvörum, en enn fremur hafi hann samkvæmt eldri reikningum B hjá Húsasmiðjunni og samkvæmt VISA-greiðslum B látið stefnda greiða persónuleg eigin útgjöld fyrir sig vegna úttekta og með því viðhaft óforsvaranlega hegðun og mögulega sýnt af sér refsiverða háttsemi. Tekið er fram að með hinu síðast greinda athæfi hafi stefnandi farið gegn ákvæðum ráðningarsamnings, en tekið er fram að athugun á athæfinu standi enn yfir. Loks er í bréfinu fullyrt að áðurnefnd myndavél í glugga á skrifstofu B hafi verið svokallað öryggisrof og hafi sú háttsemi verið tilkynnt til Persónuverndar.

  1. Óumdeilt er að í kjölfar ofangreindra atburða og tilkynningar stefnda um riftun ráðningarsamnings hafi stefnandi, þann 1. nóvember 2019, lagt leið sína á skrifstofu B og afhent lausafjármuni og viðskiptakort. Segir í tölvubréfi núverandi framkvæmdastjóra B að þarna hafi verið um að ræða; „sennilega flest af því sem við höfum saknað, ef undan er skilið byggingarefni sem tengist úttektum í Húsasmiðjunni“, sbr. efni áðurrakins riftunarbréfs þáverandi varaformanns B í október nefnt ár. Óumdeilt er að stefnandi lagði leið sína á ný á starfsstöð B 7. nóvember sama ár og skilaði fleiri lausafjármunum, þ. á m. verkfærum.
  2. Í málavaxtalýsingu sinni staðhæfir stefndi að samhliða og í kjölfar ofangreindra atburða hafi starfsmenn hans unnið að því að fá frekari yfirsýn yfir málefni stefnanda hjá B, og þá m.a. í tölvubúnaði félagsins.
  3. Stefndi staðhæfir að við skoðun starfsmanna hans á þeirri fartölvu B sem stefnandi hafði skilað þann 3. september 2019 hafi fá gögn sem varðað hafi starfsemi félagsins komið fram. Vegna þessa hafi stefndi leitað eftir aðstoð hjá hugbúnaðar- og upplýsingafélaginu […] hf., sem hafi annast rekstur tölvukerfa B. Hafi starfsmenn […] hf. í framhaldi af því gert yfirlit yfir gögn sem nýlega hafði verið eytt úr fartölvunni, en þeim tekist að endurheimta. Hafi starfsmenn þessir gert yfirlit yfir umrædd gögn, svonefnda Restore-skrá. Stefndi greinir frá því að í kjölfarið hafi starfsmaður hans borið gögnin í Restore-skránni saman við gögn sem hafi verið fyrir á fjarvinnsludrifi B, á svokölluðu S:fjarvinnsludrifi. Staðhæfir stefndi að vegna þessarar vinnu liggi það fyrir að mörgum möppum (folders) hafði verið eytt, sem varðað hafi starfsemi stefnda, þ.e. möppum sem einungis hafi verið til í fyrrgreindri Restore-skrá, en ekki á S:fjarvinnsludrifinu, sem aðrir starfsmenn hafi einnig haft aðgang að. Stefndi staðhæfir að á meðal hinna eyddu gagna hafi verið fjöldi mappa (folders), sem varðað hafi ljósleiðara-/gagnaveituverkefni hans, en að eðli máls samkvæmt hafi verið óvissa um hvort og þá hvaða gögn hafi tekist að endurheimta.

    Stefndi greinir frá því að starfsmönnum […] hf. hafi verið heimilað að endurskrifa harðan disk fartölvunnar, samkvæmt verkbeiðni, en að auki hafi stefndi óskað eftir frekari yfirferð þeirra á fjarvinnsludrifum B.

    Stefndi bendir á að til viðbótar ofangreindum verkefnum hafi verið leitað að gögnum í borðtölvu stefnanda, og staðhæfir að þar hafi lítið fundist af nýlegum gögnum um starfsemi B. Í því samhengi staðhæfir stefndi að stefnandi hafi í starfi sínu hjá stefnda aðallega notað fyrrgreinda fartölvu, en að starfsmönnum hafi verið ætlað að vista gögn sín á S:- eða N:fjarvinnsludrifum, sem hafi verið vistuð hjá […] hf. þar sem tekin hafi verið öryggisafrit.

    Stefndi bendir á að í kjölfar skoðunar á þeirri fartölvu sem stefnandi hefði haft í vörslum sínum en skilað hafi starfsmönnum […] hf. verið falið að gæta þar að N:fjarvinnsludrifinu, enda hafi starfsmönnum B verið ætlað að nota það fyrir gögn sem þeir hafi verið með í vinnslu og/eða fyrir gögn sem ekki hafi átt erindi á S:fjarvinnsludrifið. Stefndi bendir á að í svari […] hf. í tölvupósti, dagsettum 9. desember 2019, hafi m.a. komið komið fram staðfesting á því að stefnandi hafi notað umrætt drif í vinnu sinni hjá B, en jafnframt að hann hefði eytt meiri hluta þeirra gagna sem hann hafði verið að vinna með, og þ. á m. möppum sem hafi verið merktar; „Ljós […]“. Vegna þess hafi þurft að endurheimta möppurnar úr fyrrgreindum afritum, enda hafi þau hvergi fundist annars staðar í netkerfinu eða í öðrum möppum. Stefndi staðhæfir að því hafi gögnin á N:fjarvinnsludrifinu að líkindum verið frumrit, sem eigi hafi verið til afrit af annars staðar í netkerfi B. Stefndi áréttar að með fyrrnefndum samanburði gagna, þ.e. þeirra sem eytt hafði verið úr fartölvunni og af gögnum í S:fjarvinnsludrifinu, hafi komið í ljós að þau gögn sem hafði verið eytt hefðu ekki verið til staðar í netkerfinu.

  4. Stefndi bendir á að vegna þessa dómsmáls sem síðar var höfðað, og hér er til umfjöllunar, hafi hann þann 1. september 2020 óskað eftir samantektargreiningu starfsmanna […] hf., á gögnum varðandi þau ljósleiðaraverkefni, sem unnin hefðu verið í þeim tölvubúnaði sem stefnandi hafði haft til umráða hjá B. Greining þessi hafi tekið til tímabilsins frá 20. júlí til 15. ágúst 2019, en hún hafi verið svohljóðandi, sbr. dskj. nr. 90: „[…] getur staðfest að gögnum var eytt á N: drifi og á útstöð viðkomandi starfsmanns og að þau gögn voru að hluta til ekki til á öðrum miðlum hjá B. […] fékk ekki að vita fyrr en í júní 2020 að um mögulegt dómsmál væri að ræða þannig að nánari dagbækur (e. Log) voru ekki varðveittar og ekki var farið í „Forensics“ vinnu á viðkomandi útstöð til að greina nánar þegar gögnunum var eytt.

Ekki er hægt að svara nákvæmlega fyrir hvenær gögnum var eytt út frá

dagbókum (e. Log) á afritunarmiðli þar sem að sú vinna átti sér ekki stað þegar að gögn voru endurheimt og þegar beiðni kom í júní 2020 var búið að yfirskrifa viðkomandi dagbækur (e. Log) sem eru ekki geymdar í lengri tíma, t.d vegna persónuverndarsjónarmiða. Þó er hægt að staðfesta að gögnunum var eytt á því tímabili sem óskað var eftir að yrði skoðað.

Skrá sem […] afhendi B (HEV_FileList.csv) er nákvæmasta samantekin á gögnunum - […] lagði ekki mikla vinnu í að bera gögnin saman og hvort eitthvað vantaði heldur fór sú vinna fram af starfsmönnum B. Líklegt er að einhver gögn hafi ekki verið endurheimt þar sem að þegar var byrjað að yfirskrifa einhver gögn þegar að endurheimt átti sér stað í desember 2019. […] vill taka fram að ekki er hægt að vakta eða fylgjast með breytingum á stærðum netdrifa þar sem að stærðir þeirra geta breyst allverulega milli daga þegar notendur bæta við eða eyða gögnum. Jafnframt eru N: drif almennt læst og hafa starfsmenn […] ekki aðgang að þeim dagsdaglega og ekki er farið í vinnu að greina slík svæði nema með staðfestri ósk framkvæmdastjóra viðkomandi fyrirtækis sem tekur þá á sig ábyrgð út frá persónuvernd.

  1. Í málavaxtalýsingu sinni staðhæfir stefndi, B, að við yfirferð á bókhaldi hans hafi komið fram að stefnandi hafi á starfstíma sínum áskilið sér dagpeninga án þess að stjórn hans hefði haft vitneskju um það. Hafi sú staða komið á óvart í ljósi ákvæða ráðningarsamnings þeirra, þ.e. að ferðakostnaður yrði greiddur samkvæmt reikningi, en einnig sökum þess að stjórn B hefði talið sig hafa komið til móts við stefnanda með því að hann fengi að sinna starfi sínu frá höfuðborgarsvæðinu og þá umfram brýnustu þörf til dvalar þar vegna fundahalda. Hafi þannig ekki verið gerð krafa um að stefnandi skipulegði fundartíma þannig að ferðir yrðu sem stystar eða að hann sleppti ferðum vegna erinda sem unnt hefði verið að sinna án ferðalaga. Að auki hafi stjórn stefnda verið kunnugt um að fjölskylda stefnanda byggi í Reykjavík. Þessu til viðbótar hafi legið fyrir vitneskja um að stefnandi hefði keypt húseign á […]og að hann hefði verið að endurbæta þá eign sína. Í ljósi þess hafi stjórnarmenn stefnda ætlað að mikil ferðalög stefnanda væru tímabundið ástand.

    Stefndi vísar til þess og áréttar að samkvæmt yfirliti um dagpeningareikninga hefði stefnandi látið greiða sér dagpeninga að fjárhæð 1.794.350 krónur, sbr. yfirlit á dskj. nr. 91 og 92. Bendir stefndi á að einstakar ferða- og dagpeningaskýrslur stefnanda séu tíundaðar í síðara yfirlitinu, en að auki hafi verið tekið saman yfirlit yfir ferðir, ferðakostnað og dagpeninga hans, en með því móti hafi verið unnt að fá yfirlit yfir fráveru stefnanda í samhengi við virka daga, sbr. dskj. nr. 93. Stefndi bendir að samantekt þessi sýni að stefnandi hafi látið reikna sér dagpeninga vegna u.þ.b. 60 daga á 15 mánaða starfstíma, og að í ýmsum tilvikum hafi fjöldi dagpeningadaga verið fleiri en virkir dagar í viðkomandi ferð m.t.t. upplýsinga um flugtíma, en í öðrum tilvikum hafi þeir verið færri.

  2. Í málavaxtalýsingu sinni staðhæfir og áréttar stefndi að við yfirferð á bókhaldsgögnum hafi komið fram að stefnandi hefði án heimildar keypt líftryggingu í eigin þágu, sbr. dskj. nr. 69. Jafnframt þessu hefði stefnandi notað VISA-viðskiptakort stefnda til fæðiskaupa og úttekta sem ekki hafi verið forsvaranlegt að áliti stefnda, sbr. m.a. dskj. nr. 70 og 71. Að þessu leyti vísar stefndi einnig til eigin umfjöllunar í gagnstefnu.

    Stefndi staðhæfir og áréttar að auk ofangreindra atriða hafi samkvæmt yfirliti úr viðskiptareikningi hans hjá Húsasmiðjunni komið fram úttektir á vegum stefnanda, sem ekki verði séð að hafi verið gerðar í þágu stefnda. Þetta atriði hafi m.a. verið skoðað með samanburði á yfirliti vegna úttekta hjá Húsasmiðjunni, sem skráðar hafi verið á nafn stefnanda, og á verkfærum og lager stefnda. Hafi nýráðinn framkvæmdastjóri stefnda farið yfir þessi atriði með öðrum starfsmönnum stefnda, en í framhaldi af því hafi verið skráðar athugasemdir við einstaka liði þann 23. október 2019, sbr. yfirlitið þar um á dskj. nr. 94 og samkvæmt reikningum á dskj. nr. 95. Stefndi staðhæfir að einkum hafi verið um að ræða ýmiss konar verkfæri og byggingarvörur. Þannig hafi eigi verið kannast við vörur að fjárhæð 223.075 krónur.

    Stefndi tekur fram að eftir að stefnandi hafði látið af störfum og eftir að honum hafði verið tilkynnt að honum væri óheimilt að koma fram sem starfsmaður stefnda hefðu komið fram í fylgiskjölum vöruúttektir, sem fram hafi farið í gegnum viðskiptareikning stefnda hjá Húsasmiðjunni í Reykjavík, sbr. afrit nokkurra reikninga á dskj. nr. 95, og þá á tímabilinu 12.–20. september 2019. Vörur þessar hafi verið staðgreiddar af stefnanda, en vöruverðið hafi tekið mið af afsláttarkjörum stefnda.

  3. Stefndi áréttar að á stjórnarfundi stefnda, þann 17. október 2019, hafi verið ákveðið að rifta margnefndum ráðningarsamningi B við stefnanda og þá vegna þeirra verulegu brota hans á starfs- og trúnaðarskyldum, sem þá þegar hefðu verið komin fram eða upplýsingar hefðu legið fyrir um, þ.e. eftir fyrrgreind starfslok hans, sbr. efni riftunarbréfs frá 28. október 2019.

    Stefndi bendir á að áhrif riftunar hans hafi verið þau að stefnandi hafi ekki átt rétt á launagreiðslum það sem eftir hafi verið af uppsagnarfrestinum. Hann bendir á að við uppgjör launanna hefði stefnandi engu að síður fengið að fullu greitt fyrir októbermánuð 2019, en að auki hafi orlof hans verið gert upp, þrátt fyrir að engin gögn hefðu fundust um orlofstökuna, en af þeim sökum hefði verið hafður sérstakur fyrirvari þar á. Aftur á móti hafi stefndi skuldajafnað á móti nefndum launum fjárhæð vegna hinna óheimilu úttekta stefnanda á dagpeningum, sbr. umfjöllun þar um hér á eftir, sbr. að því leyti einnig framlagðan launaseðil á dskj. nr. 97, auk launaseðla vegna fyrri mánaða.

  4. Með bréfi lögmanns stefnanda til stefnda, B, dagsettu 5. mars 2020, var uppsögninni á ráðningarsambandinu og síðar riftun harðlega mótmælt. Lýsti stefnandi yfir ábyrgð stefnda á því tjóni sem af þessu athæfi hefði hlotist og er m.a. staðhæft að þær ásakanir, sem fram hafi komið af hálfu varaformanns stefnda í áðurröktu bréf frá 28. október 2019, hafi verið órökstuddar og tilhæfulausar. Skorar stefnandi á stefnda að ganga til uppgjörs við hann á vangoldnum launum og skaðabótum vegna hinna ólögmætu ráðningarslita.

    Í svarbréfi lögmanns stefnda, dagsettu 20. mars 2020, er kröfum stefnanda alfarið hafnað, en að auki boðar hann gagnkröfur láti stefnandi ekki af kröfugerð sinni.

    Í kjölfar ofangreindra atburða og samskipta hafa málsaðilar lýst kröfum sínum í stefnu og gagnstefnu, en einnig greinargerðum, sbr. kafla I hér að framan.

IV.

Málsástæður og lagarök stefnanda og stefnda í aðalsök.

A

  1. Stefnandi bendir á, í stefnu og við flutning málsins, að samkvæmt ráðningarsamningi málsaðila, frá 8. mars 2018, hafi verið kveðið á um heimild til þess að segja samningnum upp með sex mánaða fyrirvara. Með þágildandi kjarasamningi, sem aðilar hafi verið bundnir af, hafi hins vegar verið sett þau skilyrði að ástæður uppsagnar stefnanda þyrftu að vera málefnalegar og rökstuddar og þá enn fremur þannig að andmælaréttar væri gætt. Stefnandi byggir á því að jafnframt þessum atriðum beri atvinnurekanda, fyrir uppsögn, að áminna starfsmann, en að auki þurfi hann að sanna að ávirðingar hafi verið til staðar. Stefnandi byggir á því að lýst uppsögn stefnda hafi verið órökstudd, en jafnframt hafi hin fyrirvaralausa uppsögn verið ólögmæt.
  2. Stefnandi byggir á því að þær ávirðingar sem stefndi hafi tínt til gegn honum hafi verið síðari tíma tilbúningur og til þess gerðar að réttlæta hina ólögmætu riftun á ráðningarsamningi þeirra.
  3. Stefnandi bendir á og áréttar að hann hafi í raun fyrst getað hafið margnefnt ljósleiðaraverkefni stefnda, B, eftir að ákvörðunin um stofnun sérstakrar gagnaveitu var tekin á hluthafafundi þann 28. mars 2019, og eftir að honum hafði verið falið að undirrita formlegan samstarfssamning þar um við […], nú […], um lagningu ljósleiðara í dreifbýli sveitarfélagsins. Hann bendir á að þegar þetta gerðist hafi ekki legið fyrir eiginlegar framkvæmdaáætlanir eða hönnun, aðeins grófar hugmyndir þar um og þá helst um skiptingu verkefnisins í þrjá til fjóra áfanga.

    Stefnandi byggir á því þær ávirðingar sem stefndi hafi tíundað í máli þessu eigi ekki við nein rök að styðjast, t.d. um hinar ætluðu óheimilu/ósamþykktu úttektir hans og einkaneyslu, varðandi innleiðingu nýrrar gjaldskrár eða um ónógan undirbúning ljósleiðaraverkefnis, vegna innkaupa á ljósleiðaraefni eða varðandi eyðingu gagna. Um nefnd atriði vísar stefnandi m.a. til greinargerðar sinnar í gagnsakarmáli stefnda, sbr. kafla B 1, og staðhæfir, m.a. við flutning, að í aðalatriðum hafi verið um hreinan hugarburð að ræða af hálfu stjórnarfólks stefnda.

    Stefnandi tekur fram að eflaust hafi mátt finna eitthvað að störfum hans þann tíma sem hann gegndi starfi framkvæmdastjóra hjá B en að aðfinnslur sem af slíku hafi sprottið hafi ekki heimilað riftun á ráðningarsamningi málsaðila. Til þess hefði þurft að koma til brot hans á áðurgreindum starfsskyldum, og að þau hefðu þurft að hafa verið veruleg, og vegna ásetnings hans eða stórkostlegs gáleysis, og að hin fyrirvaralausa brottvísun stefnda hefði komið til af þeim sökum. Svo hafi hins vegar ekki verið, enda hafi stefndi hallað réttu máli í lýsingum sínum á atvikum máls.

    Stefnandi staðhæfir og byggir á að hann hafi í starfi sínu hjá B engum gögnum eytt sem máli hafi skipt og þ. á m. ekki vegna margnefnds ljósleiðaraverkefnis. Stefndi byggir einnig á því að efniskaup hans vegna verkefnisins hafi verið nauðsynleg fyrir framgang þess, en að auki hafi þau verið gerð í sérstöku samráði við stjórnarfólk B. Efniskaupin hafi því ekki verið í andstöðu við stefnu eða ákvarðanir stjórnarinnar, en að því leyti hafi og verið fylgt gildandi reglugerð um ábyrgð stjórnarfólksins. Þá hafi nefnd innkaup ekki verið í andstöðu við gildandi lög.

    Stefnandi bendir á að fjárhæð fyrrgreinds styrks úr Fjarskiptasjóði til ljósleiðaraverkefnisins vegna ársins 2019 hafi verið 71.025.096 krónur. Stefnandi staðhæfir að til þess að eiga rétt á þessum styrk hafi sveitarfélagið þurft að tengja ákveðinn fjölda staða sem fyrrgreindur samningur hafi tekið til, en tekur fram að hefðu áformin um uppbyggingu ljósleiðarans á árinu 2019 ekki gengið eftir hefði verið hugsanlegt að flytja hluta af styrknum, sem hefði verið óráðstafaður, yfir á næsta ár, sbr. dskj. nr. 74.

    Stefnandi staðhæfir að við upphaf ljósleiðaraverksins vorið 2019 hafi ýmis ljón verið í veginum, enda hefði ákvörðunin um að ráðast í það verk verið tekin seint. Þá hefði ekki bætt úr skák að stjórnarformaður B hafi í upphafi staðið í vegi fyrir ráðningu tiltekins hönnuðar, en af þeim sökum hefði verkið einnig tafist. Þetta hefði þó eigi komið mikið að sök þar sem verkefnið hefði í sjálfu sér ekki verið flókið. Þá hefði stefnandi verið sérfræðingur við slík verk, en að auki búið yfir þekkingu á net-, tölvu-, gagnaveitu- og fjarskiptakerfum, en einnig á fjarskiptainnviðum og á fleiri sviðum. Á hinn bóginn hefðu jarðvegsverktakar ekki verið á lausu umrætt vor, enda hefðu þeir almennt verið bundnir í verkefnum langt fram á haustið. Bendir stefnandi á að til þess að tryggja aðgang að verktökum hefði þurft að semja við þá í byrjun ársins 2019. Stefnandi staðhæfir að þessu til viðbótar hafi einnig verið erfiðleikar með efnisöflun á nægu ljósleiðaraefni, enda hefðu birgjar almennt tekið við pöntunum með margra mánaða fyrirvara. Af þessum sökum hefði stefnandi þurft að leita allra leiða við efnisöflunina, ásamt því að finna verktaka til þess að hefja verkið og þannig að tryggja greiðslur samkvæmt fyrrgreindri styrkveitingu, og hafi það á endanum tekist. Að þessu leyti bendir stefnandi á efni áðurrakinnar fundargerðar frá 9. maí 2019 þar sem m.a. hafi verið tekið fram að hann hafi upplýst stjórnarfólk B um gang mála. Stefnandi staðhæfir að áætlun hans, þ. á m. nefnd efnisöflun og jarðvegsvinna jarðvegsverktaka, hafi í raun öll gengið eftir, og af þeim sökum hefði ekkert verið að vanbúnaði að hefja verkið og tengja nægjanlega mörg staðföng þannig að standa mætti við gerða samninga og áætlanir, en heildarverkið hefði átt að vara í þrjú til fjögur ár.

  4. Stefnandi bendir á að stefndi hafi tekið þá ákvörðun að segja honum upp störfum með uppsagnarfresti. Um hafi verið að ræða svonefnda ákvaðaryfirlýsingu í skilningi samningaréttar og hafi stefndi verið bundinn af þeirri ákvörðun sinni.

    Stefndi byggir á því að réttaráhrif uppsagnar séu almennt þau að ráðningarsamningur haldi gildi sínu með öllum þeim réttaráhrifum sem hann hafi haft. Stefndi hafi því í tilviki stefnanda verið bundinn af uppsögninni og réttaráhrifum hennar og hafi eigi getað komið sér undan þeim skyldum með því að rifta ráðningarsambandi þeirra síðar.

  5. Stefnandi byggir á því að í 9. gr. ráðningarsamnings málsaðila segir að stefnda beri, óski hann þess að stefnandi láti af störfum innan umsamins uppsagnartíma, að greiða honum full laun út uppsagnartímann, óháð því hvað hann taki sér fyrir hendur í millitíðinni. Í þremur tilvikum sé hins vegar unnt að segja samningnum upp án fyrirvara, þ.e. ef stefnandi brýtur gegn ákvæði 3. gr. um þagnarskyldu, 8. gr. um samkeppnishömlur eða ef hann hafi verið tekinn til gjaldþrotaskipta. Þessi tilvik hafi ekki átt við um stefnanda, enda hafi því ekki verið haldið fram af hálfu stefnda. Stefnandi áréttar að meðan uppsagnarfresturinn varir beri starfsmanni að njóta fullra launa og annarra réttinda og hlunninda sem starfinu hafi fylgt.
  6. Stefnandi bendir á að uppsögn hans hafi tekið gildi frá og með 1. september 2019. Hafi hann samkvæmt framansögðu á uppsagnarfrestinum átt rétt til launa og annarra réttinda og hlunninda sem starfinu hafi fylgt, þ. á m. bifreiðahlunninda. Stefndi hafi greitt stefnanda laun hinn fyrsta mánuð uppsagnarfrestsins, en skuldi honum aftur á móti laun fyrir mánuðina október, nóvember og desember 2019 og janúar og febrúar 2020, að viðbættu 11,5% mótframlagi í lífeyrissjóð og 2% í séreignarsjóð. Þá hafi stefnandi átt inni 20 orlofsdaga vegna orlofsársins maí 2018 til maí 2019, en að auki allt orlofið vegna orlofsársins maí 2019 til starfsloka í mars 2020, þ.e. 25 daga. Dagkaup stefnanda vegna orlofskröfu hafi verið 57.331 króna, en sú fjárhæð sé fundin með því að deila tölunni 21,67 í hin föstu mánaðarlaun. Þá skuldi stefndi stefnanda persónuuppbót vegna desember 2019 og hlutfallslega vegna maí 2020. Loks hafi stefnandi átt rétt á að hafa umráð bifreiðar á uppsagnarfrestinum. Kaupverð bifreiðarinnar hafi verið rúmlega 6 milljónir króna og hlunnindamatið 113.400 krónur á mánuði samkvæmt matsreglum RSK.

    Stefnandi bendir á að þó svo að riftun stefnda á ráðningarsambandi þeirra hafi ekki átt sér stað fyrr en í lok október 2019 hafi stefndi neitað að greiða honum laun fyrir þann mánuð. Hafi stefndi borið fyrir sig að laununum og orlofinu hafi verið skuldajafnað við meinta gagnkröfu, þ.e. óheimilar dagpeningagreiðslur. Þessum málatilbúnaði hafi stefnandi alfarið hafnað, enda hafi ekki verið til staðar heimild til skuldajafnaðar. Þá hafi skuldajöfnuður þessi beinlínis verið óheimill samkvæmt lögum nr. 28/1930 um greiðslu verkkaups, en þar sé lagt bann við því að vinnuveitandi haldi eftir launum starfsmanns með þeim hætti sem stefndi hafi gert. Stefnandi byggir á því að stefndi hafi í raun aldrei hirt um að útlista eða rökstyðja fjárhæð hinnar óheimilu gagnkröfu sinnar.

  7. Stefnandi byggir á því að auk launa á uppsagnarfresti vegna hinnar ólögmætu riftunar eigi hann einnig skaðabótakröfu á hendur stefnda sökum þess hvernig staðið hafi verið að uppsögninni.

    Stefnandi byggir á því að ráðningarsamningur málsaðila sé skýr um að önnur tilgreind kjaraatriði hans, sem ekki hafi sérstaklega verið kveðið á um, fari eftir kjarasamningi FOSA og beri því að leggja ákvæði þess samnings til grundvallar um réttarstöðu aðila. Að þessu leyti bendir stefnandi á áðurrakið ákvæði úr kafla 11.1.6 í kjarasamningi FOSA þar sem segir að óheimilt sé að segja starfsmanni upp án málefnalegra ástæðna og óski starfsmaður þess skuli veita honum skriflegan rökstuðning. Stefnandi byggir á því að engar ástæður hafi verið gefnar fyrir uppsögn hans, hvorki á fundinum með formanni stjórnar þann 31. júlí 2019, þar sem stefnanda hafi verið boðið að segja upp en hann synjaði, né þann 19. ágúst 2019 þegar formleg uppsögn hafi verið send. Þá hafi kröfu stefnanda um skriflegan rökstuðning beinlínis verið hafnað þrátt fyrir fyrirmæli kjarasamningsins þar um.

    Stefnandi bendir á það hlutverk stefnda, að fara með og gæta opinberra hagsmuna í sveitarfélaginu, og beri honum sem slíkum að gæta að trúnaðarskyldum gagnvart íbúum. Stefnandi byggir á því að þegar slíkar aðstæður ráði sé gerð sú krafa til stjórnar stefnda, eins og til sveitarfélagsins, að hún taki ekki hreinar geðþóttaákvarðanir um atriði eins og uppsagnir starfsfólks. Stefnandi byggir á því að uppsögn hans hafi verið meiðandi, en þó hafi steininn tekið úr þegar hann hafi ranglega verið borinn sökum um ýmsar ávirðingar eftir að hann hafi verið orðinn óvinnufær vegna veikinda. Stefnandi byggir á því að af þessu megi ljóst vera að uppsögnin og hvernig að henni hafi verið staðið hafi valdið mikilli röskun á lífi hans, og hafi hún verið alvarlegur hnekkir fyrir orðspor og til þess fallin að stórskaða atvinnumöguleika hans.

  8. Stefnandi byggir á því, auk ofangreinds, að stefndi hafi ekki hirt um að gæta að fyrrnefndum andmælarétti áður en ákvörðunin um uppsögnina var tekin, líkt og mælt sé fyrir um í kjarasamningi FOSA.

    Stefnandi byggir einnig á því að horfa beri til þess að stefndi sé fyrirtæki í eigu og undir stjórn […], nú […], og segir að í þessu ljósi verði að gera þá kröfu til stefnda að hann gæti almennra stjórnsýslureglna í samskiptum við starfsmenn. Stefnandi byggir á því að bæði hafi verið brotið gegn honum samkvæmt rannsóknarreglunni og andmælareglunni við uppsögn hans.

  9. Stefnandi byggir á því að stefndi beri ábyrgð á því tjóni sem framangreind háttsemi hafi valdið honum samkvæmt hinni almennu skaðabótareglu, líkt og henni hafi verið beitt í fjölda mála vegna ólögmætra uppsagna starfsmanna, sbr. t.d. dóm Hæstaréttar í máli nr. 192/1999. Meta beri tjón hans að álitum, en fjárhæð tjónsins jafngildi 12 mánaða launum sem hann hafi haft í starfi sínu hjá stefnda samkvæmt launaseðli fyrir septembermánuð 2019, að viðbættu mótframlagi í lífeyrissjóð. Við ákvörðun bóta beri enn fremur að líta til þess að stefnandi sé liðlega sextugur og að möguleikar hans á sambærilegu starfi með samskonar tekjum séu hverfandi. Stefnandi hafi haft réttmætar væntingar til þess að gegna starfinu út starfsævina, en hann hafi tekið sig upp og flutt út á land þar sem hann hafi fjárfest í fasteign. Vegna þess hafi uppsögn stefnda valdið stefnanda miklu fjártjóni.
  10. Stefnandi byggir á því að krafa hans um miskabætur að fjárhæð 1 milljón króna sé réttmæt vegna þeirra atvika sem hér að framan hafi verið rakin, þ.e. hinnar ólögmætu uppsagnar og aðdraganda hennar. Þá hafi framganga stefnda við slit ráðningarsamningsins verið meiðandi í garð stefnanda og hafi hún falið í sér ólögmæta meingerð gegn honum. Stefnandi eigi því rétt til miskabóta samkvæmt b-lið 1. mgr. 26. gr. skaðabótalaga nr. 50/1993, þar sem segir að heimilt sé að láta þann sem ber ábyrgð á ólögmætri meingerð gegn frelsi, friði, æru og persónu annars manns greiða miskabætur til þess sem misgert hafi verið við.
  11. Stefnandi lýsir kröfugerð sinni nánar á þá leið að hún sé þríþætt.

    Í fyrsta lagi krefst stefnandi skaðabóta að fjárhæð 10.774.805 krónur, sem nemur ógreiddum launum á uppsagnarfresti hans.

    Í öðru lagi krefst hann til viðbótar skaðabóta að fjárhæð 16.920.936 krónur, sem nemur launum í 12 mánuði, vegna þess hvernig staðið hafi verið að uppsögninni, þ.e. með ólögmætum hætti, en meta verði það tjón að álitum samkvæmt dómvenju.

    Loks í þriðja lagi krefst stefnandi miskabóta að fjárhæð 1 milljón króna vegna sömu atvika, þ.e. uppsagnarinnar og aðdraganda hennar. Krafan sundurliðast þannig: A.

    Krafa um laun á uppsagnarfresti:

1 Laun, 5 mánuðir x 1.242.360 kr. 6.211.800
2 Lífeyrissjóður mótframlag almennur 11,5% kr. 714.800
3 Lífeyrissjóður mótframlag séreign 2% kr. 124.236
4 Ótekið orlof orlofsárið 1. maí 2018 til 31. apríl 2019. Dagkaup 57.331 kr. x (11,5% + 2%)=
65.070 x 20 dagar. Kr. 1.301.412
  1. Orlof orlofsárið 1. maí 2019 til 29. febrúar 2020 30 dagar x 10/12=25 dagar x 65.070 kr. kr. 1.626.750
  2. Desemberuppbót 2019 kr. 115.850
  3. Persónuuppbót maí 2020 50.450 x 10/12 kr. 42.041
  4. Bifreiðahlunnindi, 6 mánuðir x 113.400 kr. 680.400 Kr.10.816.846 B. Krafa um skaðabætur vegna ólögmætrar uppsagnar Krafan svarar til launa í 12 mánuði að viðbættu mótframlagi í lífeyrissjóð 1.242.360 x (11,5% + 2%)= 1.410.078 kr. x 12 kr. 16.920.936 C.

    Miskabótakrafa kr. 1.000.000 Samtals stefnukrafa A+B+C = kr. 28.737.782 Af kröfulið A er krafist dráttarvaxta frá gjalddaga hvers vangreidds launamánaðar og af kröfum samkvæmt B og C frá 1. nóvember 2019.

  5. Til stuðnings kröfum sínum vísar stefnandi til meginreglna vinnu-, kröfu- og samningaréttar um efndir samningsskuldbindinga, efndabætur, réttaráhrif kjara- og ráðningarsamninga og uppsagnir ráðningarsamninga. Þá vísar stefnandi sérstaklega til skyldu vinnuveitanda til að greiða umsamin laun og aðrar greiðslur, um skilyrði riftunar, takmarkanir á uppsagnarrétti og meginreglna kröfu- og skaðabótaréttar, einkum um lögfylgjur ólögmætra uppsagna, riftana og skaðabóta. Um óréttmæti skuldajafnaðar stefnda vísar stefnandi til 1. mgr. 1. gr. laga nr. 28/1930 um greiðslu verkkaups. Um dráttarvexti vísar stefnandi til 1. mgr. 6. gr. laga nr. 38/2001 um vexti og verðtryggingu, en um málskostnað vísar hann til XXI. kafla laga nr. 91/1991.

B.

  1. Stefndi andmælir, í greinargerð, gagnstefnu og við flutning málsins, öllum málsástæðum og fjárkröfum stefnanda, m.a. að því er varðar uppsögn og riftun ráðningarsamnings. Jafnframt andmælir stefndi staðhæfingum stefnanda þess efnis að riftun ráðningarsamnings þeirra hafi verið gerð til þess að komast hjá því að greiða honum laun á uppsagnarfresti.

    Stefndi byggir á því að atvik þessa máls beri með sér að hugað hafi verið að hagsmunum stefnanda vegna uppsagnar hans. Eðli máls samkvæmt hafi stjórn stefnanda borið að gera kröfur um að fá upplýsingar um starfsemi félagsins og sinna því hlutverki sínu að gæta hagsmuna þess. Riftun ráðningarsamnings hafi því ekki komið til fyrr en eftir ítrekaðar óskir um að stefnandi afhenti og gerði gögn félagsins aðgengileg og skilaði eignum þess. Þá hafi alvarleiki brota stefnanda á eigin starfsskyldum fyrst komið fram eftir að hann hafði látið af störfum og hafi stefnda verið heimilt að bregðast við þeirri stöðu.

  2. Stefndi bendir á að B sé einkahlutafélag og að um réttindi og skyldur framkvæmdastjóra félagsins hafi því farið eftir ákvæðum laga nr. 138/1994 um einkahlutafélög. Stefndi bendir á að stefnandi hafi verið framkvæmdastjóri og trúnaðarmaður stjórnar B og hafi ráðningarsamningur málsaðila tekið mið af því.

    Stefndi byggir á því að í ráðningarsamningi málsaðila sé sérstaklega fjallað um heimild stjórnar til að segja framkvæmdastjóra upp störfum, sbr. 9. gr., en yfirskrift greinarinnar sé: Uppsögn eða breytingar á starfi. Stefndi bendir á að í þessu ákvæði sé sérstaklega áréttað að brot á tilteknum skyldum geti leitt til fyrirvaralausrar uppsagnar og vægi þeirra skyldu þar með aukið frá því sem annars gilti.

    Stefndi bendir á að í 12. gr. ráðningarsamningsins sé vísað til þess að kjarasamningurinn gildi um önnur réttindi og skyldur en getið sé um í samningnum. Ákvæði kjarasamningsins um uppsögn, t.d. greinar 11.1.6.1 og 11.1.6.2, gildi því ekki um réttarsamband málsaðila, enda sé fjallað um málefni varðandi uppsögn í sérstöku ákvæði ráðningarsamnings þeirra. Fyrrnefndar greinar kjarasamningsins séu undirgreinar ákvæðis hans nr. 11.1.6 varðandi uppsögn. Þá sé ákvæði 11.1.4 ætlað að taka til breytinga á störfum, en grein 11.1.4.1 sé undirgrein hennar. Stefndi byggir á því að ráðningarsamningur málsaðila fjalli sérstaklega um réttindi og skyldur vegna beggja þessara atriða og því hafi kjarasamningnum ekki verið ætlað að gilda um þau.

    Stefndi byggir á því og áréttar að af fyrrgreindri 9. gr. ráðningarsamnings málsaðila verði ráðið að ákvæði umrædds kjarasamnings sé hvorki ætlað að gilda um réttarsamband aðila varðandi uppsögn né atriði varðandi breytingar á starfi. Sjónarmið um annað standist enga skoðun, enda taki reglur kjarasamningsins mið af stöðu vinnuveitanda þegar stjórnvöld eigi í hlut, þar sem ákvarðanir varðandi ráðningu og uppsögn séu stjórnvaldsákvarðanir sem um gildi sérstakar reglur, m.a. ákvæði stjórnsýslulaga nr. 37/1993. Ákvarðanir um ráðningu og önnur starfsmannamálefni séu þar stjórnvaldsákvarðanir sem geri sérstakar formbundnar kröfur varðandi andmælarétt o.fl. Stefndi byggir á því að ofangreind réttarstaða ráðist einnig af því að stefnandi hafi sótt um starf og í framhaldi af því ráðið sig sem framkvæmdastjóri einkahlutafélags, sbr. áðurrakta starfsauglýsingu. Hafi stefnandi fengið hagstæð launakjör og ýmis sérákvæði sem vikið hafi frá ákvæðum kjarasamnings. Þar á meðal hafi sérstakt ákvæði gilt um uppsögn, og að því leyti séu ákvæði ráðningarsamningsins sérákvæði. Vegna þessa hafi hvorki gilt efnisné formreglur fyrrnefnds kjarasamnings um stöðu stefnanda vegna uppsagnarinnar. Um þýðingu tilvísunar til kjarasamnings að þessu leyti bendir stefndi í dæmaskyni á dóm Hæstaréttar í máli nr. 678/2012.

  3. Stefndi byggir á því að í 9. gr. ráðningarsamnings málsaðila sé skýrlega kveðið á um heimild stjórnar til að segja upp framkvæmdastjóra, og væri það ákvæði þýðingarlaust ef annar skilningur gilti. Þannig stæðist það enga skoðun að tilgreina „heimild stjórnar“ til uppsagnar ef reglur um áminningu og aðrir hlutar kjarasamningsákvæðis giltu um uppsögnina. Þannig sé ráðningarsamningur einkahlutafélags við framkvæmdastjóra gerður á grundvelli meginreglna sem gilda á almennum vinnumarkaði og ákvörðun um uppsögn verði þannig aldrei talin stjórnvaldsákvörðun eða ígildi slíkrar ákvörðunar.

    Stefndi byggir á því að umrædd ákvörðun hans um uppsögn stefnanda hafi verið tekin á forsvaranlegum grundvelli og teljist málefnaleg m.t.t. heimilda ráðningarvaldshafa í skilningi bæði almenns og opinbers vinnuréttar. Uppsögnin hafi hvílt á þáttum sem athugasemdir hafi verið gerðar við vegna starfa stefnanda og honum hafi verið kunnugt um. Við töku uppsagnarákvörðunarinnar hafi verið byggt á því að stefnandi nyti ekki trausts stjórnar, en með því hafi einkum verið vísað til þess að vinnubrögð hans hafi verið ófullnægjandi, og þá m.a. í ljósi þeirra krafna sem gerðar verði til framkvæmdastjóra þannig að stjórnin geti sinnt því hlutverki sínu að fylgjast með starfsemi félagsins. Það sé þannig trúnaðarbrestur þegar menn hætta að treysta aðila sem áður hafi verið treyst. Stefndi byggir á því að stefnanda hafi sérstaklega verið gerð grein fyrir ástæðum uppsagnarinnar, en honum hafi m.a. verið boðið að mæta til fundar ásamt fulltrúa stéttarfélagsins til frekari umfjöllunar. Því boði hafi stefnandi hafnað.

    Stefndi byggir á því, og þá í ljósi framangreinds, að hafna beri fjárkröfu stefnanda varðandi skaðabætur vegna ólögmætrar uppsagnar, sbr. þá fjárkröfu stefnanda sem varði útreikninga hans vegna 12 mánaða launa, að fjárhæð 16.920.936 krónur.

  4. Að því er varðar riftun á samningi málsaðila áréttar stefndi framangreinda um- fjöllun að því er varðar gildi 9. gr. ráðningarsamningsins, en af þeim sökum beri að taka mið af almennum meginreglum vinnuréttar, þ. á m. varðandi riftun. Veruleg vanefnd á ráðningarsamningi geti þannig heimilað riftun ráðningarsamnings, þ.e. fyrirvaralausa uppsögn. Eðli máls samkvæmt gildi jafnframt almennar reglur um meiriháttar brot á starfsskyldum. Geti því slík brot heimilað riftun ráðningarsamnings, en ekki einungis brot vegna þeirra tveggja atriða sem nefnd eru í ráðningarsamningi málsaðila, enda séu þau atriði nefnd til áréttingar, en að öðru leyti geti brot á grundvallarskyldum sem fylgja framkvæmdastjórastarfi einnig talist meiriháttar brot.
  5. Stefndi byggir á því að eftir uppsögn stefnanda hafi stefnandi áfram þurft að hlíta almennum starfsskyldum, m.a. trúnaðarskyldum og skyldunni til þess að gæta að hagsmunum stefnda samkvæmt meginreglum starfsmannaréttar, ákvæða laga um einkahlutafélög og efni starfslýsingar hans sem framkvæmdastjóra, sbr. kafla III, lið 3 in fine hér að framan. Með ákvörðun stjórnar stefnda um að stefnandi þyrfti ekki að skila vinnuframlagi, nema vegna takmarkaðra þátta, hafi þessar skyldur hans ekki fallið niður, og þá ekki heldur vegna veikinda hans, og þar með ekki skyldan til þess að veita stjórn B upplýsingar og aðgang að gögnum um starfsemi félagsins þannig að ekki yrði óþarfa röskun á rekstrinum. Hið sama hafi átt við um skyldur stefnanda til þess að afhenda eignir stefnda, sem hafi verið í hans vörslum eftir að búið hafði verið að leysa hann undan vinnuskyldunni.

    Að því er varðar afhendingu gagna vegna ljósleiðaraverkefnisins byggir stefndi sérstaklega á því að stefnandi hafi hafnað því að veita stjórn B aðgang að fyrirliggjandi gögnum um verkefnið, en það hefði hann gert áður en tilkynningin um veikindi hans bárust stjórninni, þann 21. ágúst 2019, sem miðað hafi við 16. sama mánaðar. Þá hafi stefnandi verið í samskiptum við stjórnarformann stefnda á því tímabili og allt fram til 19. ágúst án þess að minnast á veikindi sín. Um tilgreindar skyldur stefnanda til þess að afhenda umrædd gögn bendir stefndi einnig á að eftir 21. ágúst nefnt ár hafi stefnandi verið í samskiptum í nafni B þrátt fyrir veikindaskráninguna. Því til viðbótar byggir stefndi á því að af tölvupósti stefnanda, dagsettum mánudaginn 26. ágúst 2019, verði ráðið að hann hafi ætlað að mæta á vinnustaðinn laugardaginn 24. sama mánaðar.

  6. Stefndi byggir á því að ákvörðunin um riftun ráðningarsamningsins hafi verið tekin eftir að starfsskyldur stefnanda höfðu ítrekað verið áréttaðar og eftir að stefnanda hafði verið gerð grein fyrir því að brot á þeim gætu leitt til þess að hann fyrirgerði rétti til launa á uppsagnarfresti og að ráðningarsamningi hans yrði rift, sbr. áðurrakin bréf lögmanns stefnda, dagsett 19. og 26. ágúst 2019. Stefnandi byggir á því að stefnandi hafi ekki brugðist við þessum áskorunum. Segir stefndi að þetta viðbragðsleysi stefnanda geti leitt líkur að því að hann hafi viljað forðast að upplýst yrði um hina raunverulegu stöðu í starfsemi stefnda, sem hafi verið á ábyrgðarsviði hans, ellegar hafi hann gert það til þess að knýja á um að fallist yrði á óskir hans um afturköllun uppsagnar hans eða að stjórn stefnda myndi fallast á beiðni hans um tímabundna ráðningu og þá til þess að vinna áfram að ljósleiðaraverkefninu, sbr. umfjöllunarefni á stjórnarfundum stefnda þann 7. og 12. ágúst 2019.
  7. Stefndi byggir á því að það sé almenn meginregla starfsmannaréttar að veruleg brot á starfsskyldum leiði til þess að heimilt sé að rifta ráðningarsamningi, og geti slíkt átt við þótt almenn uppsögn hafi átt sér stað áður, og brot eigi sér þannig stað eftir uppsögn eða vegna atvika sem síðar hafi verið upplýst um. Stefndi byggir á því og áréttar að háttsemi stefnanda falli undir veruleg brot á starfsskyldum og nefnir hann í því sambandi eftirfarandi atriði:

    a) Brot á almennri trúnaðarskyldu stefnanda, einkum um að gæta almennt að hagsmunum stefnda, skaða ekki starfsemina eða stofna hagsmunum stefnda hættu.

    b) Brot er varða öflun eigin hagsmuna í ósamræmi við ráðningarkjör og aðrar heimildir og/eða á kostnað stefnda.

    c) Brot á ákvæðum ráðningarsamnings og starfslýsingar sem verða talin meiriháttar í ljósi viðvarana/ítrekana, samhengis við trúnaðarskyldur framkvæmdastjórastarfsins og annarra aðstæðna.

    Stefndi byggir á því að hvert og eitt þeirra atriða sem tilgreind hafi verið í áðurröktu riftunarbréfi hans frá 28. október 2019 hafi verið þess eðlis að réttlætt hafi riftun ráðningarsamnings framkvæmdastjóra einkahlutafélags. Stefndi byggir á því að jafnframt megi líta heildstætt til þessara atriða og brota, en hann byggir á því að þau tengist innbyrðis. Að þessu leyti vísar stefndi til þess sem hann hafi hér að framan rakið, en hann fjallar nánar um einstök atriði og liði riftunarbréfsins, þannig: a. Að stefnandi hafi, þrátt fyrir ítrekanir, eigi skilað eignum stefnda, og þá helst gögnum félagsins sem varðað hafi ljósleiðaraverkefnið, um verkhönnun, verkáætlanir og fyrirhugaða efnisnotkun og framkvæmdir. Slík gögn hafi heldur ekki fundist við skoðun á far- og borðtölvu framkvæmdastjóra eða í fjarvinnsludrifum. Stefndi byggir á því að þetta hafi varðað verulega hagsmuni stefnda síðsumars 2019, þ.e. að fá aðgang að þessum gögnum, og áréttar hann að beiðnir um að stefnandi upplýsti um þau hafi verið ítrekaðar við stefnanda munnlega og með bréfum, sbr. dskj. nr. 25, 31, 34 og 39. Stefndi byggir á því að hagsmunir hans af málinu og vitneskju stefnanda að þessu leyti megi setja í það samhengi að stefnandi hafði þá þegar staðið fyrir innkaupum á efni upp á um 38 milljónir vegna ljósleiðaraverkefnisins, sbr. yfirlit á dskj. nr. 77 og e-liðinn hér á eftir. Að þessu leyti vísar stefndi til hliðsjónar til dóms Landsréttar í máli nr. 250/2018. b. Stefndi bendir á að við skoðun fartölvunnar hafi komið í ljós að stefnandi hafði eytt gögnum í eigu stefnda. Þá hafi tölvugögn ekki verið aðgengileg og/eða vistuð á fjarvinnsludrifum, en þ. á m. hafi verið gögn varðandi ljósleiðaraverkefnið. Um nefnd atriði vísar stefndi til þess sem áður hafi verið rakið í málavaxtalýsingu og um aðkomu sérfræðinga hjá hugbúnaðarfélaginu […] hf., sbr. dskj. nr. 79, 89 og 90. Stefndi bendir á að þrátt fyrir að tekist hafi að endurheimta eitthvað af þessum gögnum hafi verið óvissa um það atriði. Stefndi byggir á því að verulegt tjón og röskun hafi orðið á starfsemi stefnda vegna alls þessa, m.a. vegna aðkeyptrar vinnu og tíma starfsmanna við að reyna að fá yfirsýn yfir gögnin og að reyna að endurheimta þau. Þá hafi verkefni stefnda tafist og viðbótarkostnaður skapast, sbr. umfjöllun hans í gagnstefnu. c. Stefndi byggir á því að stefnandi hafi ekki skilað nokkrum eignum félagsins, s.s. viðskiptakortum, aukalykli bifreiðar, sjónauka, dokku, tölvuskjá og tölvutösku. Þá hafi tölvudiskar vegna öryggismyndavélakerfis ekki fundist, þrátt fyrir ítrekaða leit. Stefndi byggir á því að brot stefnanda á starfsskyldum að þessu leyti hafi verið til staðar við riftun ráðningarsamningsins. Brotin hafi verið veruleg í ljósi þess að vinnuframlag stefnanda hafði verið afþakkað mánuði fyrr og hafi legið fyrir krafa um að hann skilaði eignunum, en það hafi hann fyrst gert í byrjun nóvember, auk þess sem hann hafi þá skilað fleiri eignum sem hann hafi haft vörslur á á heimili sínu. d. Stefndi byggir á því að stefnandi hafi ekki veitt lágmarksupplýsingar um stöðu yfirstandandi verkefna félagsins eða um eigin samskipti við verktaka, sbr. það sem áður hafi verið rakið í málavaxtalýsingu, en af þeim sökum hafi verið óvissa um stöðu þeirra. Í þessu sambandi byggir stefndi á að stefnandi hafi verið trúnaðarmaður stjórnar B og hann því borið ábyrgð á starfsemi félagsins gagnvart stjórninni. Stefndi bendir á að stefnandi hafi aðeins í tölvupósti, dagsettum 28. september 2019, vikið að þessum verkefnum, en þá með því að vísa á aðra aðila um skýringar á stöðu þeirra, þrátt fyrir að verkin hafi verið yfirstandandi og hætta hafi verið á að verulegir hagsmunir færu forgörðum. e. Stefndi byggir á því að upplýst hafi verið að innkaup á efni vegna ljósleiðaraverkefnisins hafi numið rúmlega 50 milljónum króna. Stefndi byggir á því að kaup þessi hafi verið í ósamræmi við heimildir þar um, bæði gagnvart stjórn stefnda og innkaupareglum samkvæmt samningum um verkefnið og lögum um opinber innkaup. Stefndi byggir jafnframt á því að m.t.t. skorts á verkáætlunum og hönnun hafi þessi innkaup verið algjörlega óforsvaranleg. Hann byggir á því að bersýnilega megi telja að með þessum innkaupum hafi fjárhagslegum hagsmunum stefnda verið stofnað í hættu. Stefndi verði þannig fyrir fjártjóni vegna þessarar háttsemi þrátt fyrir að endanleg fjárhæð hafi eigi legið fyrir. Að þessu leyti bendir stefndi á að samkvæmt framlögðu yfirliti um nefnd innkaup hafi komið í ljós að endanleg fjárhæð þeirra hafi verið um 38 milljónir, sbr. dskj. nr. 77. Stefndi bendir á að sú fjárhæð sem nefnd hafi verið í riftunarbréfinu hafi vissulega verið hærri, en það skýrist af yfirtöku stefnda á skyldum […] samkvæmt samningi um ljósleiðara í […], dagsettum 9. apríl 2018, sbr. dskj. nr. 102, en sá kostnaður hafi þannig verið færður á ljósleiðaraverkefnið. Hið sama hafi þó átt við um yfirtökuna og um efniskaupin, þ.e. stjórn stefnda hefði ekki verið upplýst um hana og hafi upplýsingar um þann gjörning fyrst komið fram eftir ritun riftunarbréfsins.

    Stefndi byggir á og áréttar að nefnd efnisinnkaup vegna ljósleiðaraverkefnisins hafi verið í ósamræmi við starfslýsingu stefnanda, m.a. e-liðinn. Þar hafi verið kveðið á um að stefnanda hafi borið að leggja öll meiriháttar málefni fyrir stjórn eða stjórnarformann áður en slíkar ákvarðanir væru teknar, sbr. kafla III, lið 4 in fine hér að framan. Stefndi byggir á því að umræddar gjörðir stefnanda hafi einnig verið óforsvaranlegar vegna skyldu stefnanda til að starfa samkvæmt efni laga nr. 120/2016, um opinber innkaup, og bendir hann á að vörukaup umfram 15,5 milljónir eigi að fara eftir viðurkenndu innkaupaferli, sbr. 23. gr. laganna. Stefndi bendir á að þetta atriði hafi verið sérstaklega brýnt þar sem ljósleiðaraverkefnið hafi hvílt á samningum við stjórnvöld ríkisins og skyldur þessar verið ítrekaðar, sbr. t.d. 4. gr. áðurnefnds samnings við stjórnvöld, ,,Ísland ljóstengt,“ dagsetts 22. mars 2019, sbr. dskj. nr. 74. Stefndi áréttar jafnframt að umfjöllun um málið hafi farið fram á stjórnarfundi B þann 9. maí 2019, og byggir hann á því að þar hafi m.a. komið fram að ákvörðun um innkaup vegna ljósleiðaraverkefnisins yrði kynnt stjórninni. Þá hafi með bókunum á stjórnarfundum um verkefnið ítrekað verið kallað eftir upplýsingum og hafi þannig legið fyrir að málefnið, samningar og ákvarðanir um það kæmu á borð stjórnarinnar, þ.e. þegar gögn um verkhönnun o.þ.h. lægju fyrir. Stefndi byggir á og áréttar að innkaup stefnanda, en einnig staða verkefnisins, hafi síðar leitt til tjóns fyrir hann, sbr. nánari umfjöllun í gagnstefnu. Þá hafi þessi kaup verið ótímabær miðað við þau gögn sem hafa fundist eða verið endurheimt. Í því sambandi bendir stefndi á að ekki hafi fundist hönnunargögn vegna fyrstu áfanga ljósleiðaraverkefnisins og þá þannig að unnt hefði verið að fá framkvæmdaleyfi, enda hafi nauðsynleg undirgögn slíks leyfis skort, og í raun hafi komið í ljós að lítt hafi verið hugað þeim. Það hafi m.a. átt við um fornleifarannsóknir en þær hafi staðið yfir sumarið 2020. Við flutning andmælti stefndi umfjöllun stefnanda um þetta atriði og þ. á m. andstöðu stjórnarmanna við ráðningu tiltekins nafngreinds aðila. f. Stefndi byggir á því að við skoðun stjórnar stefnda á hækkun ferðakostnaðarliða í rekstraryfirliti vegna fyrstu átta mánaða ársins 2019 hafi komið í ljós að stefnandi hefði áskilið sér 1.794.350 krónur í dagpeninga frá upphafi starfs síns. Stefndi byggir á því að þetta hafi verið í andstöðu við ákvæði ráðningarsamnings um greiðslur ferðakostnaðar samkvæmt reikningi, sbr. enn fremur að því leyti ákvæði áðurrakinnar starfslýsingar varðandi ábyrgð stefnanda á starfsemi og bókhaldi stefnda. Stefndi byggir á því að það sjónarmið stefnanda að umræddar greiðslur til hans hafi hvílt á framkvæmd samnings fyrri framkvæmdastjóra B standist enga skoðun enda hafi ákvæðin um ferðakostnað þessara tveggja samninga ekki verið samhljóða. Stefndi byggir á því að stefnanda hafi borið að upplýsa stjórnarmenn um þessa tilhögun sína, enda hafi hann a.m.k. verið í vikulegu sambandi við formann stjórnarinnar. Í þessu sambandi nefnir stefndi að brot stefnanda að þessu leyti beri að skoða í því ljósi að með þessu móti hafi hann verið að fénýta umburðarlyndi fyrir lengri dvöl hans fjarri starfssvæði stefnda en nauðsyn vegna fundarhalda krafði. Fyrir hafi legið að stefnandi hafi jafnan dvalið á heimili fjölskyldu sinnar á höfuðborgarsvæðinu, en honum hafi mátt vera ljóst að ráðningarsamningur hafi fjallað um kjör hans og honum væri því óheimilt að áskilja sér þessar greiðslur frá stefnda án heimildar stjórnar. g. Stefndi byggir á því að stefnandi hafi keypt líftryggingu í eigin þágu, en á kostnað stefnda, sbr. dskj. nr. 69. Þetta hafi verið í ósamræmi við ráðningarsamning hans og hafi kaupin ekki verið gerð með vitneskju stjórnar B. Stefnandi hafi því nýtt aðstöðu sína til að stofna til kostnaðar stefnda í eigin þágu. h. Stefndi byggir á því að eftir starfslok stefnanda og á því tímabili sem hann hafði tilkynnt um eigin veikindi hafi hann margsinnis nýtt afsláttarkjör stefnda á viðskiptareikningi hjá Húsasmiðjunni og hjá Ískrafti vegna kaupa á ýmiss konar byggingarvörum, sbr. reikningsyfirlit á dskj. nr. 96. Stefndi byggir á því að þetta hafi verið verulegt brot af hálfu stefnanda, enda hafi honum sérstaklega verið tilkynnt að honum væri óheimilt að koma fram sem starfsmaður stefnda, sbr. dskj. nr. 34. Stefndi byggir á því að með þessari háttsemi hafi stefnandi nýtt aðstöðu sína til þess að njóta afsláttarkjara í eigin þágu. i. Stefndi bendir á að við athugun eldri reikninga stefnda hjá Húsasmiðjunni hafi komið fram vöruúttektir á vegum stefnanda, sem hvorki hafi fallið að almennri efnisnotkun stefnda né að tilteknum verkum á tímabili þeirra efniskaupa. Stefndi byggir á því að þessar úttektir stefnanda hafi því verið óforsvaranlegar og verulegar vanefndir á margnefndum ráðningarsamningi, og einnig eftir atvikum refsiverð háttsemi. Stefndi bendir á að hluta umræddra muna og verkfæra hafi stefnandi skilað í nóvember 2019, eftir riftun ráðningarsamningsins. Stefndi segir að ætla megi að stefnandi hafi haft vörslur á öðrum munum sem tíundaðir hafi verið á yfirliti á dskj. nr. 94 og í þeim athugasemdum sem fram hefðu komið. Segir stefndi að svo virðist sem stefnandi hafi geymt og nýtt verkfæri á heimili sínu þar sem hann hafi staðið í viðhaldsframkvæmdum. Að þessu leyti bendir stefndi á ákvæði 3. mgr. 259. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940. j. Stefndi bendir á að í bókhaldi stefnda hafi komið fram færslur á VISA-korti stefnda, sem varðað hafi persónuleg útgjöld stefnanda, sbr. samantektaryfirlit á dskj. nr. 71. Stefndi byggir á því að um sé að ræða samantekt óútskýrðra fæðis- og vörukaupa í þágu persónulegra hagsmuna stefnanda, sem hafi verið í andstöðu við ráðningarsamning aðila. Því hafi verið um að ræða verulegt brot á starfsskyldum í ljósi starfslýsingar og ábyrgðar stefnanda sem framkvæmdastjóra, enda liggi engin gögn fyrir um forsendur fæðiskaupanna. Stefndi byggir á því að fæðiskaup í eigin þágu eða vegna ótilgreindra tilefna verði ekki talin risna, sbr. reglugerð nr. 483/1994, t.d. d-lið 6. gr. reglugerðarinnar. k. Stefndi byggir á því að upplýst hafi verið um myndavéla- og hljóðupptökubúnað í glugga á skrifstofu stefnda á starfsstöð hans hjá B, og hafi það verið tilefni til tilkynningar til Persónuverndar um öryggisrof. Stefndi byggir á því að framkvæmd slíkrar rafrænnar vöktunar hafi ekki verið í samræmi við löggjöf um persónuvernd, sbr. tilkynningu þar um til Persónuverndar. Stefndi staðhæfir að myndavélin hafi verið tengd við nettengt myndavélakerfi stefnda, sem að auki hafi verið með hljóðupptöku. Engar skráningar eða upplýsingar liggja fyrir sem réttlætt hafi notkun myndavélarinnar, sbr. t.d. ákvæði 14. gr. laga nr. 90/2018. Þá hafi engar merkingar verið til staðar eins og áskilið sé þegar vöktun fari fram á vinnustað. Um alvarleika þessa brots bendir stefndi m.a. á ábyrgð stefnanda sem framkvæmdastjóra vegna daglegs reksturs, og þá gagnvart stjórn og starfsfólki stefnda.

  8. Stefndi byggir á því og áréttar að riftun margnefnds ráðningarsamnings hafi verið heimil og því fallist hann ekki á fjárkröfu stefnanda um greiðslu launa á tímabili sem eftir hafi verið af uppsagnarfresti hans, sbr. nánari umfjöllun um fjárkröfu stefnanda hér á eftir, í liðum 9–15.
  9. Stefndi mótmælir kröfu stefnanda um greiðslu launa á uppsagnarfresti, en þar um vísar hann m.a. til eigin skuldajöfnunarréttar vegna fyrrgreindra ofgreiddra dagpeninga. Stefndi bendir á að stefnandi krefjist þess að fá greidd launa vegna fimm mánaða tímabils og að óheimilt hafi verið að skuldajafna hinum ofgreiddu dagpeningum. Stefndi vísar jafnframt til þess að svo virðist sem umrætt fimm mánaða tímabil sé byggt á misskilningi stefnanda. Stefndi byggir á því að við riftun ráðningarsamnings og uppgjör launa, þ.m.t. orlofs, vegna október 2019, hafi fjórir mánuðir verið eftir af uppsagnarfrestinum. Við riftunina hafi fallið niður réttur til frekari launa á uppsagnarfresti. Stefndi vísar til þess að samkvæmt riftunarbréfinu og launaseðli stefnanda vegna október 2019 hafi hinum ofgreiddu dagpeningum að fjárhæð 1.794.350 krónur verið skuldajafnað á móti þeirri tilgreindu launafjárhæð sem eftir hafi staðið þegar gerð hafi verið skil á staðgreiðslu og launatengdum gjöldum. Til útborgunar hafi því komið 2.455 krónur.

    Stefndi byggir á því að hafna beri sjónarmiðum stefnanda um að óheimilt hafi verið að skuldajafna ofangreindri endurgreiðslukröfu hans á móti launum, með vísan til ákvæða laga nr. 28/1930 um greiðslu verkkaups. Stefndi byggir á því að ákvæði 1. gr. nefndra laga sem takmarki skuldajöfnun gildi aðeins um nánar tilgreinda starfsmenn, m.a. daglaunamenn við verslanir, verksmiðjur o.fl. Stefndi tekur fram að hann dragi ekki í efa að á grundvelli lögjöfnunar verði reglan látin ná yfir almenna starfsmenn og að sú lagaframkvæmd geti talist meginregla. Stefndi byggir á því að hvorki ákvæði laganna né tilgreind meginregla gildi hins vegar um stöðu stefnanda, sem hafi verið framkvæmdastjóri einkahlutafélags, sbr. að því leyti skýrt dómafordæmi Hæstaréttar í málinu nr. 379/2012.

  10. Stefndi bendir á að í kjölfar riftunar ráðningarsamnings stefnanda hafi hann fengið greidd laun vegna október 2019, en einnig hafi verið gert upp við hann orlof eins og hann hafi átt rétt til, sbr. framlagðan launaseðil. Stefndi byggir á því að vegna orlofsuppgjörsins hafi verið tekið fram að útreikningur þess og greiðsla hefði verið til bráðabirgða og með fyrirvara um frekari upplýsingar um orlofstöku stefnanda. Orlofsgreiðslan hafi hins vegar verið rífleg og því hafi verið áskilinn réttur til endurkröfu. Stefndi bendir á að í margnefndu riftunarbréfi frá 28. október 2019 hafi verið skorað á stefnanda að veita upplýsingar um orlofstökur sínar, enda hafi orlofsskráning hans ekki fundist í gögnum stefnda. Þeirri áskorun hafi stefnandi ekki sinnt, en að því leyti bendir stefndi á að í ráðningarsamningi aðila hafi stefnanda verið gert skylt að gera grein fyrir orlofsdögum sínum, sbr. 7. gr. Það hafi stefnandi ekki gert og ber hann því sönnunarbyrði um að orlofsstaða hans hafi ekki verið gerð upp að fullu til loka október 2019. Í þessu sambandi bendir stefndi einnig á að í nefndri 7. gr. ráðningarsamningsins hafi verið takmarkað hvernig stefnandi hafi mátt flytja orlof sitt á milli ára, en við uppgjör orlofsins hafi þó ekki verið tekið tillit til þess. Í þessu samhengi bendir stefndi á að samkvæmt samanburðaryfirliti, sbr. dskj. nr. 93, varðandi skýrslur vegna ferða og ferðakostnaðar stefnanda m.t.t. virkra daga hafi það komið fram að hann hafi dvalið fjarri vinnustað án þess að byggja á því að um vinnuferð hefði verið að ræða, sbr. að því leyti færslu hans um fjarveru frá vinnustað frá 17. desember 2018 til 7. janúar 2019, þar sem hann hafi reiknað sér dagpeninga vegna fimm daga á tímabilinu, en þannig hafi sjö dagar að líkindum verið orlof. Stefndi bendir á að á tilgreindu tímabili hafi stefnandi m.a. vanhirt að fylgja því eftir að ný gjaldskrá stefnda tæki gildi, sbr. umfjöllun í gagnstefnu.

    Stefndi byggir á því að hafna beri því að orlof sé að nokkru ógreitt vegna greiddra launatímabila.

  11. Stefndi byggir á því að kröfugerð stefnanda um að hann eigi rétt til greiðslu bifreiðahlunninda vegna sex mánaða sé verulega vanreifuð. Af þeim sökum hafni stefndi þeirri kröfu hans. Stefndi byggir á því að afnot bifreiðar hafi hvílt á því að hann legði; „framkvæmdastjóra til bifreið til afnota tengda vinnunni“, sbr. 5. gr. ráðningarsamnings, en þegar vinnuframlag stefnanda hafi verið afþakkað hafi jafnframt fallið niður þessi réttur, enda hafi þá ekki getað verið um frekari afnot bifreiðar tengdri vinnu að ræða.
  12. Stefndi byggir á því að skilyrði fyrir bótakröfu stefnanda samkvæmt öllu framansögðu séu ekki fyrir hendi, en þar fyrir utan sé hún vanreifuð og eigi í samræmi við dómaframkvæmd um bætur vegna ólögmætra uppsagna.
  13. Stefndi hafnar miskabótakröfu stefnanda. Stefndi byggir á því að allar ákvarðanir hans varðandi málefni stefnanda hafi byggst á því lögmæta markmiði að gæta að hagsmunum stefnda samkvæmt heimildum og skyldum stjórnar B. Stjórnin hafi þannig byggt ákvarðanatökur sínar á þeim upplýsingum og gögnum sem hafi verið tiltækar hverju sinni, en þá við þær aðstæður að upplýsingagjöfinni hafi ekki aðeins verið ábótavant á starfstíma stefnanda heldur hafi upplýsingum beinlínis verið haldið frá stjórninni. Stefndi byggir á því að hinar síðari ákvarðanir stjórnar hans hafi byggst á tímafrekri vinnu við að fá yfirsýn yfir reksturinn, tölvugögnin og eignir B. Í ákvörðunum stefnda og samskiptunum við stefnanda hafi því ekki falist ólögmæt meingerð í hans garð. Þá hafi verið gætt að hagsmunum stefnanda og trúnaði haldið um málið eins og við hafi átt.
  14. Um varakröfu sína vísar stefndi til eigin málsástæðna varðandi aðalkröfuna hér að framan, og þá um lækkun stefnufjárhæðar.
  15. Varðandi lagarök vísar stefndi til laganna um einkahlutafélög nr. 138/1994, einkum 44. gr., og til meginreglna vinnuréttar, m.a. um heimild til riftunar ráðningarsamnings. Varðandi kröfuna um málskostnað vísar stefndi til 129. og 130. gr. laga nr. 91/1991 um meðferð einkamála.

V.

Málsástæður og lagarök stefnda og stefnanda í gagnsök.

A.

  1. Stefndi, B, bendir á og áréttar í gagnsök, að stefnandi hafi verið framkvæmdastjóri einkahlutafélags hans. Stefndi byggir á því að starfsskyldur stefnanda hafi grundvallast á þessari stöðu hans, sbr. ákvæði laga nr. 138/1994 um einkahlutafélög, sbr. einkum 2. mgr. 44. gr., sem orðast svo:

Framkvæmdastjóri annast daglegan rekstur félagsins og skal í þeim efnum fara

eftir þeirri stefnu og fyrirmælum sem félagsstjórn hefur gefið. Hinn daglegi rekstur tekur ekki til ráðstafana sem eru óvenjulegar eða mikils háttar. Slíkar ráðstafanir getur framkvæmdastjóri aðeins gert samkvæmt sérstakri heimild frá félagsstjórn nema ekki sé unnt að bíða ákvarðana félagsstjórnar án verulegs óhagræðis fyrir starfsemi félagsins.

Í slíkum tilvikum skal félagsstjórn tafarlaust tilkynnt um ráðstöfunina.

Stefndi byggir á því að starfsskyldur stefnanda hafi einnig ráðist af ákvæðum þeirra laga sem um starfsemina hafi gilt og reglugerðinni um hann, en því til viðbótar hafi þann tíma sem stefnandi starfaði sem framkvæmdastjóri gilt þær starfsskyldur, sem fram hafi komið í ráðningarsamningi málsaðila og í áðurrakinni starfslýsingu, sem undirrituð hafi verið sama dag. Þessu öllu til viðbótar hafi gilt um réttindi og starfsskyldur stefnanda almennar meginreglur starfsmannaréttar, þ. á m. um trúnaðarskyldur starfsmanns gagnvart vinnuveitanda. Þá hafi komið til einstakar stjórnarákvarðanir og fyrirmæli stefnda vegna afmarkaðra verkefna sem stefnanda, sem framkvæmdastjóra, hafi borið að hlíta og koma til framkvæmdar í samræmi við almennar starfsskyldur.

  1. Stefndi byggir á því að stefnandi hafi brotið þær starfsskyldur sem á honum hafi hvílt og með því hafi hann valdið tjóni sem honum beri að bæta, sbr. umfjöllunina hér á eftir.
  2. Stefndi byggir á því að skaðabótaábyrgð stefnanda hvíli á 1. mgr. 108. gr. einkahlutafélagalaganna, þar sem segir að framkvæmdastjóri einkahlutafélags sé skyldur að bæta félagi það tjón er hann hafi valdið því í störfum sínum hvort sem það hafi komið til af ásetningi eða gáleysi. Stefndi bendir á að í 3. mgr. lagagreinarinnar sé kveðið á um að færa megi niður bótafjárhæð með hæfilegu tilliti til þess hve mikil sökin og tjónið hafi verið og tjónið, og þá vegna efnahags tjónvalds og annarra atvika. Stefndi byggir bótakröfuna einnig á hinni almennu sakarreglu.
  3. Stefndi byggir á því að sú atburðarás sem hafi orðið í kjölfar samþykktar stjórnar hans um hækkun gjaldskrár þann 6. desember 2018, sbr. það sem rakið var í kafla III, lið 6 hér að framan, og skortur á staðfestingu og birtingu hennar, hafi leitt til þess að stefndi hafi orðið af tekjum og þá miðað við hina fyrirhuguðu gjaldskrárhækkun á árinu 2019, en einnig vegna ársins 2020.
  4. Stefndi byggir á því að stefnandi hafi með eigin aðgerðarleysi um að fylgja ekki umræddri stjórnarákvörðun eftir valdið stefnda tjóni sem hann beri skaðabótaábyrgð á, enda hafi vanrækslan verið saknæm, og beri að meta hana til almenns gáleysis hans. Stefndi bendir á í þessu samhengi að með afgreiðslu stjórnar hans hafi augljóslega verið byggt á því að gjaldskrárhækkun yrði virk á árinu 2019. Stefndi byggir á því að aðgerðarleysi stefnanda hafi varað í 2–3 mánuði, sem verði að meta honum til sakar í ljósi mikilvægis málefnisins og augljóss samhengis við grundvöllinn í rekstri B. Aðgerðarleysi stefnanda hafi falið í sér beint brot á 2. mgr. 44. gr. einkahlutafélagalagana, þ.e. að framkvæmdastjóri eigi að fara eftir þeirri stefnu og fyrirmælum sem félagsstjórn hafi gefið. Jafnframt vísar stefndi til 1. gr. ráðningarsamnings málsaðila um starfssvið stefnanda sem framkvæmdastjóra og ákvæðanna í starfslýsingu hans um meginviðfangsefni. Stefndi byggir á því að allar forsendur hafi verið til þess að gjaldskráin hefði verið staðfest fyrir lok desember 2018, líkt og dæmi hafi verið um hjá öðrum […] í landinu, sbr. framlögð gögn þar um.
  5. Stefndi vísar um tjón sitt vegna aðgerðarleysis stefnanda til eigin útreikninga, byggðra á bókhaldi og ársreikningi B. Hann staðhæfir að tjón hans á árinu 2019 hafi þannig verið 13.793.940 krónur, miðað við að gjaldskráin hefði gilt allt árið. En m.t.t. þess að stefndi hafi náð að hækka gjaldskrána um 2,5% vegna ársins 2020 hefði tjón hans á því ári, frá janúar til og með maí, verið 3.797.780 krónur. Máli sínu til stuðnings vísar stefndi til framlagðs yfirlits úr eigin sölukerfi og þá með samanburði á tekjum miðað við ætlaða gjaldskrárbreytingu frá 6. desember 2018.

    Stefndi bendir á verði talið að málsmeðferðartíminn á afgreiðslu Orkustofnunar/ráðherra, og þá á grundvelli eðlilegra starfshátta stefnanda um staðfestingu gjaldskrárinnar hefði leitt til staðfestingar á gjaldskránni miðað við upphaf febrúar, mars eða apríl 2019, beri eftir atvikum að lækka bótafjárhæðina sem nemi 1/12 af tjóni hans vegna ársins 2019, og þá vegna hvers mánaðar. Í þessu viðfangi getur stefndi þess að samkvæmt rekstrarreikningi ársreiknings vegna ársins 2019 hafi heildartekjur af sölu heits vatns, „vatnssölu“, verið 180.743.001 króna, og því hafi áðurnefnd tjónsfjárhæð verið 8% af tekjum.

  6. Stefndi byggir á því að ráðningarkjör stefnanda hafi verið ákveðin með ráðningarsamningi og hafi honum verið óheimilt að áskilja sér greiðslur eða hlunnindi umfram það sem þar hafi verið kveðið á um eða samkvæmt öðrum heimildum. Að þessu leyti vísar stefndi til 247. gr. hegningarlaganna nr. 19/1940, um ólögmæti þess að stefnandi hafi nýtt fjármuni B til að kaupa á líftryggingu í eigin þágu og vegna fæðis án þess að það samræmdist kröfum sem gerðar séu til frádráttarbærs rekstrarkostnaðar og vara. Að þessu leyti vísar stefndi til IV. kafla, B, 7. liðar, stafliða g og j, og til margnefndrar starfslýsingar stefnanda varðandi bókhald og reikningsskil gagnvart stjórn B. Stefndi vísar einnig til reglugerðar nr. 483/1994 um frádrátt frá tekjum af atvinnurekstri eða sjálfstæðri starfsemi, m.a. ákvæðis 3. gr. um starfsmannakostnað.
  7. Að því er varðar fæðiskaup stefnanda byggir stefndi á því að ekki hafi verið forsendur til þess að skilgreina þau sem risnu vegna atvinnurekstrar, sbr. d-lið 6. gr. fyrrgreindrar reglugerðar nr. 483/1994 um frádrátt frá tekjum af atvinnurekstri eða sjálfstæðri starfsemi, enda virðist þau viðskipti hafa verið vegna stefnanda sjálfs í einhverjum tilvikum og engar upplýsingar liggi fyrir um að þær hafi verið í þágu annarra aðila. Stefndi byggir kröfu sína að þessu leyti á almennu skaðabótareglunni, en til vara á því að endurgreiða beri oftekna fjármuni á grundvelli almennra meginreglna kröfuréttar um endurgreiðslu fjármuna sem aðili eigi ekki rétt til.
  8. Stefndi byggir á því að kaup stefnanda á hinni persónulegu líftryggingu frá tryggingafélagi, að fjárhæð 113.400 krónur, sem B hafi borið kostnað af, sbr. líftryggingarskírteini, dagsett 6. desember 2018, hafi verið óheimil útgjöld og í einkaþágu stefnanda.
  9. Stefndi byggir á því að stefnanda beri að greiða honum 159.746 krónur vegna óheimillar notkunar VISA-viðskiptakorts, sem stefnandi hefði fengið hjá B.

    Hið sama hafi gilt um reikninga/nótur vegna nánar tilgreindra útgjalda á tímabilinu frá 15. júní 2018 til 24. júlí 2019, samtals að fjárhæð 115.533 krónur.

    Nánar um lagarök vísar stefndi þess sem vikið var að í 7 lið hér að fram.

  10. Stefndi byggir á því að hann eigi kröfu á andvirði raftækja, annars vegar „Costco_Marley BT speaker, Duracell“, sbr. reikning, dagsettan 2. nóvember 2018, og hins vegar „Tölvulistinn - Expansion 4TB“, dagsettan 30. maí 2018, sem ekki hafi fundist á skrifstofu stefnanda. Samtals hafi fjárhæð þessara kaupareikninga verið 44.193 krónur, en nefnd raftæki hafi ekki verið á meðal þeirra eigna og búnaðar sem stefnandi hafi skilað á starfsstöð B þann 1. nóvember 2019, eftir að ráðningarsamningi hans hafði verið rift.
  11. Stefndi bendir á að sundurliðuð fjárkrafa hans gegn stefnanda sé samkvæmt ofansögðu eftirfarandi:

    a) Skaðabætur vegna gjaldskrármálefna 2019 – maí 2020 kr. 17.591.720

    b) Skaðabætur/endurgreiðsla vegna kaupa á líftryggingu kr. 113.400

    c) Skaðabætur/endurgreiðsla vegna fæðiskostnaðar kr. 115.533

    d) Skaðabætur/endurgreiðsla vegna raftækja kr. 44.193 Samtals: kr. 17.864.846

  12. Stefndi vísar um lagarök til laga um einkahlutafélög, einkum 44. gr. og 108. gr. Um eigin málskostnaðarkröfu vísar hann til 130. gr. laga nr. 91/1991, en um vexti til laga nr. 38/2001 um vexti og verðtryggingu, og um dráttarvexti til 1. mgr. 6. gr. sömu laga, og þá þannig að þeir miðist við einn mánuð frá birtingu gagnstefnu, en þá hafi verið liðinn mánuður frá því að hann kynnti kröfuna fyrir stefnanda, sbr. 9. gr. laganna.

B

Stefnandi andmælir í greinargerð, en einnig við flutning málsins, öllum kröfum og málsástæðum stefnda í gagnsök, þ. á m. grundvelli þeirra og fjárhæðum.

  1. Stefnandi mótmælir skaðabótakröfu stefnda að fjárhæð 17.591.720 krónur og þá einnig því að hann hafi valdið stefnda tjóni með því að fylgja ekki eftir ákvörðun stjórnar B frá 6. desember 2018 um hækkun gjaldskrár frá og með 1. janúar 2019, með þeim afleiðingum að B hafi orðið af tekjum á árunum 2019 og 2020. Stefnandi byggir á því að krafa þessi sé röng, bæði efnislega og tölulega, en að auki sé hún ódómtæk líkt og henni hafi verið teflt fram. Stefnandi bendir m.a. á að stefndi rökstyðji kröfu sína aðeins með eigin útreikningi, en ekki með matsgerð dómkvadds matsmanns líkt og hann hafi þó boðað í málarekstri sínum fyrir dómi.
  2. Stefnandi bendir á að samkvæmt 5. gr. reglugerðar nr. 564/2008 um stefnda B, sbr. ákvæði orkulaga nr. 58/1967, sé það í verkahring stjórnar B að gera gjaldskrá fyrir eigin […], en einnig vegna allra meiriháttar samninga um sölu á heitu vatni. Stefnandi byggir á því að það sé því á ábyrgð stjórnar stefnda að annast gjaldskrármál félagsins. Það sé síðan í verkahring ráðherra að staðfesta gjaldskrána, sbr. ákvæði 32. gr. orkulaganna.

    Stefnandi bendir á að Orkustofnun gefi út sérstakt gagnaframtal sem […] í landinu þurfi að fylla út vegna boðaðra gjaldskrárhækkana eða breytinga. Gagnaframtalinu þurfi að fylgja hin nýja gjaldskrá, en einnig ársreikningur síðasta árs. Stefnandi bendir á að í leiðbeiningu gagnaframtalsins sé tekið fram að gera verði að lágmarki ráð fyrir fimm vikum eftir að fullnægjandi skil hafi verið gerð hjá viðkomandi […]félagi þar til gjaldskrá fáist staðfest og hún birt í Stjórnartíðindum. Stefnandi bendir á að í ljósi þessarar reglu hefði boðuð gjaldskrá stefnda í lok árs 2018, sbr. samþykkt stjórnar þann 6. desember nefnt ár, aldrei öðlast gildi hinn 1. janúar 2019. Ákvörðun stjórnarinnar hafi einfaldlega verið tekin of seint og hafi stjórnarmönnum mátt vera það ljóst. Í því samhengi bendir stefnandi á að ársreikningur B vegna ársins 2018 hafi fyrst verið staðfestur á stjórnarfundi, og þá m.a. af honum, þann 25. febrúar 2019, en samhliða hafi honum verið falið að undirbúa aðalfund félagsins þann 21. mars nefnt ár, en þar hafi ársreikningurinn verið lagður fram til endanlegrar samþykktar. Stefnandi bendir á að í framhaldi af þessu hafi starfsmanni á skrifstofu stefnda verið falið að ganga frá nýrri gjaldskrá B og senda hana ásamt fullnægjandi fylgiskjölum til Orkustofnunar, þannig að hún yrði staðfest af ráðherra. Stefnandi staðhæfir að hið síðast greinda ferli hafi allt verið gert með samþykki hans, en einnig stjórnarformanns B, enda hefðu þeir tíðum haldið fundi vikulega. Stefnandi bendir á að þegar þarna hafi verið komið sögu hafi verið komin fram andstaða í þjóðfélaginu við almennar gjaldskrárhækkanir, m.a. sveitarfélaga, og hafi stjórnvöld, þ. á m. í héraði, komið með tilmæli um ýtrasta aðhald vegna nýgerðra kjarasamninga. Hafi stjórn einkahlutafélagsins B í framhaldi af þessu ákveðið að draga hina nýju gjaldskrá sína til baka. Þetta hafi verið gert af pólitískum ástæðum og hafi stefnandi enga ábyrgð borið á því.

    Stefnandi byggir á því að í ljósi alls ofangreinds geti hann eigi með réttu verið gerður ábyrgur fyrir hinu ætlaða fjártjóni stefnda vegna aðgerðarleysis við að fylgja eftir stjórnarákvörðuninni frá 6. desember 2018 um hækkun gjaldskrár og að hann hafi með þeim hætti brotið starfsskyldur sínar. Stefnandi áréttar andmæli sín við málsástæðu stefnda að þessu leyti og byggir á því að stefndi beri sönnunarbyrðina, m.a. varðandi sök, ólögmæti, tjón, sennilega afleiðingu, orsakatengsl o.fl. Stefnandi byggir á því að ekkert liggi fyrir um þessi atriði og þá í ljósi ofangreindrar atburðarásar. Stefnandi byggir jafnframt á því að stefndi hafi ekki sannað að hann hafi orðið fyrir tjóni vegna þess að ekki hafi komið til hækkunarinnar í samræmi við gjaldskrá hans á árinu 2019. Vísar stefnandi til þess að það blasi við að frestun gjaldskrárhækkana hafi ekki valdið fjártjóni enda hafi stefnda verið í lófa lagið að vinna upp þá tekjulækkun sem hann telji sig hafa orðið fyrir með leiðréttingu á gjaldskránni síðar, sbr. alþekkt dæmi þar um.

  3. Stefnandi byggir á því og áréttar að auk augljósra ágalla á tölulegum grundvelli fyrrgreindrar fjárkröfu stefnda séu þeir annmarkar á málatilbúnaði hans að helsta krafa hans byggi eingöngu á útreikningum hans sjálfs á tjóni sem hann ætli að hafi hlotist af því að margnefnd gjaldskrárhækkun hafi ekki tekið gildi 1. janúar 2019 og aðeins hækkað um 2,5% á árinu 2020. Stefnandi byggir á því að þvílík „sönnunarfærsla“ dugi ekki fyrir dómi og því sé krafan stórlega vanreifuð. Þar sem málatilbúnaður stefnda fari að þessu leyti í bága við grunnreglur einkamálaréttarfars um skýran og glöggan málflutning, sbr. m.a. ákvæði 80. gr. laga nr. 91/1991, byggir stefnandi á því að óhjákvæmilegt sé að vísa þessari fjárkröfu stefnda frá dómi. Í öllu falli hafi stefndi ekki sannað tjónið eða að öðru leyti sýnt fram á að skilyrði skaðabóta sé fyrir hendi og því beri að sýkna stefnanda.
  4. Stefnandi byggir á því að krafa stefnda og röksemdir um að hann eigi endurgreiðslu- eða skaðabótakröfu á hendur honum vegna kaupa á líftryggingu, vegna óheimillar notkunar VISA-viðskiptakorts eða vegna fæðiskostnaðar standist ekki, enda sé rökstuðningurinn og lagarökin óljós.

    Stefnandi byggir á því að almennt sé vinnuveitanda óheimilt að endurkrefja starfsmann vegna ofgreiddra launa eða hlunninda nema starfsmaður hafi haft í frammi sviksamlega háttsemi. Það eigi ekki við í þessu máli og því sé tilvísun stefnda til 247. gr. hegningarlaganna í senn ómakleg og meiðandi.

    Stefnandi byggir á því að honum verði eigi gefið að sök að hafa áskilið sér greiðslur eða hlunnindi með ólögmætum og saknæmum hætti. Hann byggir á því að þær úttektir sem hér um ræðir svo og vátryggingakaupin hefðu ekki sætt athugasemdum nema sökum þess að til riftunar ráðningarsamnings hafi komið og að hann hafði uppi bótakröfur af þeim ástæðum. Hafi stefndi af þessu tilefni farið að grandskoða fylgiskjöl úr bókhaldi yfir starfstíma stefnanda í þeim tilgangi að reyna að finna höggstað á honum. Þessi rannsóknarvinna stefnda hafi aðeins skilað athugasemdum við endurnýjun líftryggingar og vegna óverulegra úttekta vegna risnu og stafsmannakostnaðar. Þó hafi stefndi áður lagt blessun sína yfir allar þessar úttektir og greiðslur með því að samþykkja athugasemdalaust endurskoðaða ársreikninga B. Stefnandi byggir á því að með þessu samþykki og tómlæti séu lýstar endurgreiðslukröfur stefnda ótækar.

  5. Stefnandi bendir á, að því er varðar fyrrnefnda líftryggingu, að þar hafi atvik verið með þeim hætti að B hafi síðla árs 2018 borist erindi frá nafngreindu tryggingafélagi um framlengingu á líftryggingu framkvæmdastjóra. Hafi í raun verið um nafnabreytingu að ræða vegna þeirra framkvæmdastjóraskipta sem orðið hefðu. Stefnandi hafi ætlað að hann ætti að njóta sama réttar hvað þessa tryggingu varðaði og fyrirrennari hans, enda hafi hann átt að njóta sömu starfskjara og hann. Þannig virðist umræddri tryggingu ekki hafa verið sagt upp þótt fyrirrennari stefnanda hefði látið af störfum. Stefnandi byggir einnig á því að ekki hafi komið fram athugasemdir vegna þessarar endurnýjunar, og hafi það fyrst gerst eftir að hann hafði látið af störfum, en af þeim sökum beri að líta svo á að tryggingin hafi verið hluti þeirra ráðningarkjara, sem hann hafi haft, a.m.k. verði að líta svo á að stefndi hafi raun samþykkt útgjöldin.
  6. Stefnandi bendir á að krafa stefnda vegna úttekta á VISA-viðskiptakortinu sé vegna fæðiskostnaður á veitingastöðum sem hafi ýmist verið tilkominn vegna viðskiptavina, samstarfsaðila eða starfsmanna. Stefnandi bendir enn fremur á að um hafi verið að ræða kaup á veitingum í 22 tilvikum, sem náð hafi yfir rúmlega 13 mánaða tímabil. Hann byggir á því að í öllum tilvikum hafi verið um óverulegar fjárhæðir að ræða, sem hann tíundar nánar þannig: a. Þrjár úttektir vegna funda með K hjá R-félagi, en hann hafi annast lagningu ljósleiðara (2xNl og Salt). b. Úttektir í Skálanum vegna funda með G, starfsmanni ljósleiðarafyrirtækisins R. c. Úttekt vegna fundar með H, starfsmanni jarðvegsverktakans Á. d. Þrjár úttektir vegna tveggja nafngreindra starfsmanna stefnda, B. e. Úttektir vegna fundar með A, persónuverndarfulltrúa […] ([…]) og G, starfsmanni […] ([…]). f. Úttekt 17. nóvember 2018 vegna vinnuferðar til Ísafjarðar, flug og akstur. g. Tilfallandi fæðiskostnaður vegna vinnu utan venjulegs vinnutíma, um kvöld eða helgar, sbr. t.d. […]laugardaginn 27. október 2018 (4.790 kr.), […]sunnudaginn 28. október 2018 (5.770 kr.), […]laugardaginn 15. júní 2019 (5.085 kr.), […] laugardaginn 22. júní 2019 (2.490 kr.), […]laugardaginn 13. júlí 2019 (4.390 kr.) og […]mánudagskvöldið 22. júlí 2019 (4.950 kr.).

    Stefnandi byggir á því að í 6. gr. ráðningarsamnings aðila sé kveðið á um risnu. Hann bendir á að risna sé almennt skilgreind sem kostnaður sem lagt hafi verið í vegna viðskipta, öflunar nýrra viðskiptasambanda eða að halda þeim við. Bendir stefnandi á að þekkt dæmi um risnu séu laxveiðiferðir, veitingakostnaður og ýmsar gjafir, auk jólaafmælis- og tækifærisgjafa til eigenda, starfsmanna og viðskiptamanna.

    Stefnandi byggir á því að samkvæmt nefndu ákvæði ráðningarsamningsins hafi honum verið heimilt að stofna til kostnaðar vegna risnu og hafi honum borið að árita um samþykki sitt á fylgiskjöl. Þá hafi hann ekki þurft að bera slík atriði undir stjórn, enda hafi ekki verið um meiriháttar fjárhæðir að tefla. Þvert á móti hafi í öllum tilvikum verið um smávægilegar fjárhæðir að ræða.

    Stefnandi tekur fram að eftir atvikum geti málatilbúnaður stefnda verið réttur, að því leyti að í einhverjum tilvikum hafi ekki verið forsendur til að skilgreina um- ræddar úttektir sem risnu og þá sérstaklega þegar um hafi verið að ræða viðurgjörning við starfsmenn, sem hefði átt að færa í bókhaldinu sem starfsmannakostnað. Verði að ætla að svo hafi í raun verið gert. Stefnandi byggir á því að útgjöld vegna smávægilegs starfsmannakostnaður og lítils háttar risna falli hins vegar innan heimildar framkvæmdastjóra og því hafi ekki verið um brot á starfsskyldum hans að ræða. Aðalatriðið hafi þannig verið að umræddar úttektir hafi verið færðar í bókhaldi stefnda til frádráttar tekjum án nokkurra athugasemda skattayfirvalda. Mótbárur stefnda í máli þessu séu því haldlausar.

  7. Stefnandi byggir á því að krafa stefnda um skaðabætur/endurgreiðslu vegna tveggja fyrrgreindra raftækja sé vanreifuð, m.a. varðandi lagarök. Stefnandi bendir á að samkvæmt málatilbúnaði stefnda hafi tæki þessi ekki fundist á skrifstofu B. Stefnandi staðhæfir að tæki þessi hafi annars vegar verið keypt í maí 2018 og hins vegar nóvember sama ár, þ.e. ári áður en hann hafi látið af störfum. Um hafi verið að ræða lítið útvarpstæki fyrir starfsmenn og svokallaðan flakkara til að varðveita loftmyndir vegna lagnagrunna sem tiltekin verkfræðistofa hafi haldið utan um fyrir B. Stefnandi staðhæfir að þegar hann hafi látið af störfum haustið 2019 hafi bæði þessi tæki verið til staðar á skrifstofu B, en að öðru leyti geti hann ekki tjáð sig um málið.
  8. Stefnandi byggir á því að samkvæmt framansögðu eigi kröfur stefnda vegna ætlaðra ósamþykktra úttekta og einkaneyslu hans ekki við rök að styðjast og geti því ekki leitt til endurgreiðslu á grundvelli skaðabótareglna eða reglna kröfuréttar um endurgreiðslu fjármuna sem aðili hafi ekki átt rétt til. Stefnandi byggir á því að hið sama gildi í raun um málatilbúnað stefnda varðandi eyðingu gagna úr tölvum og að hann hafi haldið upplýsingum eða gögnum frá stjórn stefnda, sem tilheyrt hafi B.

    Stefnandi byggir á því að stjórn stefnda hafi verið upplýst um fyrrgreind innkaup hans á efni vegna ljósleiðaraverkefnisins sumarið 2019, en einnig um alla framkvæmd þess og sé andstæð frásögn og málatilbúnaður stefnda því hreinn hugarburður.

    Stefnandi áréttar og byggir á að gallar séu á málatilbúnaði stefnda og að meginkröfur hans séu því ekki dómtækar, þ. á m. krafan um skaðabætur vegna áðurlýsts gjaldskrármáls. Stefnandi byggir á því að þó svo að fjárkrafa stefnda að öðru leyti, þ.e. krafa hans um skaðabætur vegna úttekta af VISA-viðskiptakorti, kunni að vera dómtæk ein og sér, verði vegna tengsla hennar við hinn gallaða málatilbúnað að líta svo á að grundvöllur málsins sé í slíku ósamræmi við fyrirmæli e-liðar 1. mgr. 80. gr. laga nr. 91/1991 að vísa beri málinu í heild frá dómi.

    Verði í máli þessu fallist á að stefnandi hafi sýnt af sér saknæma vanrækslu í störfum sínum fyrir stefnda vegna gjaldskrármálsins, ljósleiðaraverkefnisins eða af öðrum ástæðum byggir hann á því að hann verði þrátt fyrir það ekki gerður skaðabótaábyrgur gagnvart stefnda sem vinnuveitanda vegna fyrirmæla 23. gr. skaðabótalaga nr. 50/1993. Vísar stefnandi að því leyti til sanngirnisraka varðandi sök, stöðu stefnda og atvik að öðru leyti. Stefnandi byggir einnig á því sjálfstætt að m.t.t. aðstæðna málsaðila og atvika að öðru leyti beri að fella skaðabótaábyrgð hans niður eða lækka bótafjárhæðina, sbr. 1. mgr. 24. gr. skaðabótalaga og 3. mgr. 108. gr. laga um einkahlutafélög.

VI.

Niðurstaða.

  1. Í máli þessu er ágreiningur vegna starfsloka stefnanda A hjá stefnda, B og eftirmála þess. Er m.a. deilt um lögmæti uppsagnar stefnda, þann 19. ágúst 2019, en einnig um riftun stefnda á ráðningarsamningi málsaðila, þann 28. október sama ár, og lögfylgjur þeirra gjörða, þ. á m. um greiðslu launa, en einnig um skuldajafnaðarkröfu stefnda.

    Stefnandi krefst skaða- og miskabóta í aðalsök vegna ætlaðrar ólögmætrar uppsagnar og síðar riftunar á ráðningarsamningi.

    Stefndi krefst aftur á móti í gagnsök skaðabóta vegna ætlaðrar vanrækslu stefnanda í starfi sem framkvæmdarstjóri B varðandi hækkun á gjaldskrá, en einnig vegna ætlaðra óheimilla/ósamþykktra úttekta og einkaneyslu hans í starfinu, þ. á m. vegna kaupa hans á líftryggingu og úttekta á vörum með VISA-viðskiptakorti frá stefnda, og sökum þessa að stefnandi hafði keypt og haft í eigin vörslum tiltekna lausafjármun eftir starfslokin. Einnig tiltekur stefndi tiltekinn öryggisbrest, sem stefnandi hafi verið ábyrgur fyrir.

    Hér fyrir dómi hafa málsaðilar hvor um sig lýst málsgrundvelli og atvikum frá sínum sjónarhóli, m.a. í aðilaskýrslum. Í því viðfangi er til þess að líta að við úrlausn einkamála hafa staðhæfingar aðila um atvik almennt ekki sönnunargildi fyrir dómi, nema um sé að ræða atriði sem honum er óhagstætt, sbr. 1. mgr. 50. gr. laga nr. 91/1991 um meðferð einkamála. Við úrlausn um sönnun atvika verður í þessu máli því m.a. að taka afstöðu til þess hvort staðhæfingar málsaðila fái nægjanlega stoð í sönnunargögnum sem aflað hefur verið við rekstur þess. Að öðru leyti verður skorið úr ágreiningi eftir mati á þeim gögnum sem fram hafa komið í málinu samkvæmt almennum reglum VI. kafla einkamálalaganna, en einnig að virtum öðrum gildandi lagareglum, þ. á m. 59. gr. sömu laga, að því er varðar vitni og þá m.a. í ljósi tengsla þeirra við málsaðila.

  2. Eins og fram er komið fer um starfsemi, stjórn og rekstur stefnda, B veitna ehf. samkvæmt reglugerð nr. 564/2008, með síðari breytingum, sbr. heimild í orkulögum nr. 58/1967.

    Samkvæmt 1. gr. reglugerðarinnar nr. 564/2008 er stefndi einkahlutafélag í eigu sveitarfélagsins […], og er rekið sem sjálfstætt fyrirtæki með sjálfstæðan fjárhag og reikningshald. Fer því um starfsemi stefnda einnig eftir lögum um einkahlutafélög nr. 138/1994.

    Megintilgangur stefnda samkvæmt nefndum réttarheimildum er að virkja jarðhita svo og aðra orkugjafa og rekstur […] sem selur vatn í heildsölu og í smásölu eftir því sem ákveðið er og hagkvæmt þykir. Í þessu skyni skal B leita eftir samningum um borunar- og virkjunarrétt, bora eftir vatni og virkja þegar hagkvæmt þykir, leggja veitukerfi og annast sölu á vatni og varma til notenda. Til viðbótar þessum verkefnum hefur B hin allra síðustu ár rekið gagnaveitu, um ljósleiðarakerfi. Að starfseminni, og þar á meðal verkefnum stjórnar, er nánar vikið í kafla III, lið 2 hér að framan.

  3. Þegar atvik máls gerðust hafði stefnandi gegnt stöðu framkvæmdastjóra hjá stefnda um rúmlega eins árs skeið samkvæmt ráðningarsamningi, sem hann og þáverandi formaður stefnda höfðu undirritað þann 8. mars 2018. Samhliða gerð samnings þessa ritaði stefnandi undir starfslýsingu um framkvæmdastjórastarfið. Í gerningum þessum er kveðið á um réttindi og skyldur málsaðila, þ. á m. varðandi laun og hlunnindi, orlofsréttindi, en einnig um greiðslurétt stefnanda vegna ferðalaga samkvæmt reikningi og risnu samkvæmt fylgiskjölum.

    Starfssviði og ábyrgð stefnanda er lýst í nefndum gerningum, sbr. það sem rakið var í kafla III, lið 4, hér að framan. Er m.a. tekið fram að um sé að ræða daglegan rekstur og önnur verkefni í samræmi við samþykktir og það sem stjórn stefnda felur honum hverju sinni. Þá er í starfslýsingunni tekið fram að stefnandi beri ábyrgð á rekstrar- og fjárhagsáætlun og bókhaldi stefnda og að hann eigi að annast eftirlit og viðhald eigna. Loks er tekið fram að stefnanda beri að upplýsa stjórnina reglulega um afkomu stefnda, og að hann eigi, áður en ákvörðun er tekin, að leggja fyrir stjórnina eða stjórnarformann öll málefni sem teljist meiriháttar og varðar hag félagsins.

  4. Í 12. gr. nefnds ráðningarsamnings málsaðila er vísað til þágildandi kjarasamnings, sem Samband íslenskra sveitarfélaga hafði gert, m.a. við Félag opinberra starfsmanna á Austurlandi (FOSA). Í greininni segir m.a. ,,Hvað önnur réttindi og skyldur samningsaðila varðar, sem ekki er getið um í samningi þessum, skal farið eftir kjarasamningi milli FOSA annars vegar og Launanefndar sveitarfélaga hins vegar.“
  5. Í 9. gr ráðningarsamningsins er m.a. kveðið á um gagnkvæman uppsagnarrétt og er tekið fram að þar um gildi m.a. sex mánaða uppsagnarfrestur. Einnig er þar kveðið á um heimild stefnda, sem vinnuveitanda, til þess að segja stefnanda upp starfi án fyrirvara, en um skilyrði þess er nánar tíundað.

    Stefnandi byggir m.a. á því að hann hafi sem framkvæmdastjóri hjá stefnda notið réttarstöðu samkvæmt ákvæðum nefnds kjarasamnings, einkum kafla 11.1.6. líkt rakið er hér að framan í kafla III, lið 4.

  6. Fyrir liggur að stjórn stefnda, B, ákvað á fundi sínum þann 31. júlí 2019 að segja stefnanda upp störfum. Óumdeilt er að stefnanda var tilkynnt ákvörðunin samdægurs af þáverandi formanni stjórnarinnar.

    Stefndi hefur í málatilbúnaði sínum greint frá því að meginástæða uppsagnarinnar hafi verið trúnaðarbrestur stjórnar B gagnvart stefnanda. Um nánari forsendur hefur stefndi vísað til trúnaðarbókar, sbr. kafla III, lið 8 hér að framan.

    Stefnanda var send skrifleg tilkynning um uppsögnina þann 19. ágúst sama ár. Þar kom m.a. fram að um uppsögn hans gilti fyrrnefndur sex mánaða frestur, að hún miðaðist við lok mánaðar, og að starfslok hans yrðu um mánaðamótin febrúar/mars 2020, og þá þannig að stefnandi fengi á því tímabili umsamdar launagreiðslur.

    Í uppsagnarbréfinu er tekið fram að stefnandi hafi starfsskyldur á tímabili uppsagnarfrestsins, þ. á m. vegna fyrirhugaðs fundar stjórnar stefnda með ráðgjafa, 22. sama mánaðar. Einnig er tekið fram að verði misbrestur á því að stefnandi sinni fundarsetunni geti það leitt til þess að hann fyrirgeri rétti sínum til launa á uppsagnarfrestinum.

    Í ofangreindu viðfangi verður að áliti dómsins ekki fram hjá því horft að stefnandi skilaði fullgildum læknisvottorðum, sem giltu frá 16. ágúst nefnt ár og allt fram á árið 2020.

  7. Óumdeilt er að stefndi greiddi stefnanda hin samningsbundnu laun fyrir septembermánuð 2019. Vegna launa fyrir októbermánuð nefnt ár bar stefndi aftur á móti fyrir sig ætlaðan skuldajöfnunarrétt vegna óheimillar töku stefnanda á dagpeningargreiðslum allann þann tíma sem hann gegndi framkvæmdastjórastöðunni, samtals að fjárhæð 1.794.350 krónur. Stefnandi hefur andmælt þessari síðastgreindu gjörð stefnda og krefst skaðabóta, og þar með ígildi launa í samræmi við ákvæði margnefnds ráðningarsamnings.
  8. Í vinnurétti hefur sú meginregla gilt á hinum almenna vinnumarkaði að gagnkvæmur frjáls uppsagnarréttur er hjá starfsmönnum og vinnuveitendum, að því gefnu að rétt hafi verið staðið að uppsögn.

    Eins og áður er lýst er stefndi einkahlutafélag. Af þeim sökum gilda að áliti dómsins meginreglur hins almenna vinnumarkaðar.

    Það er niðurstaða dómsins, að þessu virtu, en einnig skýrum ákvæðum áðurgreindra samninga, að uppsögn stefnda á ráðningarsamningi málsaðila hafi verið honum heimil eins og á stóð. Verður því málsástæðum stefnanda hafnað að því er varðar ólögmæti uppsagnarinnar.

  9. Þann 26. ágúst 2019 tilkynnti stefndi stefnanda að stjórn B hefði ákveðið að óska ekki eftir frekara vinnuframlagi hans á tímabili uppsagnarfrests, að öðru leyti en því að ætlast væri til af honum að hann myndi eiga fund með þáverandi formanni stjórnar og að hann gerði grein fyrir þeim verkefnum sem hann hefði verið að vinna að, og gætti þannig að hagsmunum stefnda og virti trúnað.

    Dómurinn lítur svo á að með þessari tilkynningu stefnda hafi stefnandi ekki verið leystur undan vinnuskyldu sinni, sbr. ákvæði ráðningarsamnings málsaðila.

  10. Að ofangreindu virtu þykir sýnt að þau réttindi og kröfur sem stefnandi hefur uppi í máli þessu ráðast að öllu verulegu af því hvort síðari ákvörðun stefnda, þ.e. riftun á ráðningarsamningi málsaðila, hafi verið lögmæt eða ekki, og þá hvort riftunaratriðin eða ástæðurnar hafi verið slíkar að um hafi verið að ræða verulega vanefnd af hálfu stefnanda á samningi málsaðila.
  11. Með skriflegri tilkynningu, dagsettri 28. október 2019, rifti stefndi nefndum ráðningarsamningi og felldi í kjölfarið niður allar launagreiðslur til handa stefnanda á hinum samningsbundna uppsagnarfresti. Stefndi byggði riftunina á 11 tilgreindum atriðum, sbr. það sem rakið var í kafla III, liðum 17 og 18 hér að framan. Ber við það að miða við úrlausn málsins. Stefndi hefur rökstutt riftunarákvörðunina frekar síðar með framlagningu gagna, en að auki í málatilbúnaði sínum hér fyrir dómi, líkt og stefnandi hefur gert í andmælum að sínu leyti.
  12. Ágreiningslaust er að nokkur samskipti voru með stefnanda og stefnda í kjölfar uppsagnarinnar í ágústmánuði 2019, m.a. á tímabilinu 26. ágúst til 24. september. Samskipti þessi voru m.a. bréfleg, sbr. það sem rakið var í kafla III, liðum 14-18.

    Efni þessara gagna er í aðalatriðum í samræmi við skýrslur málsaðila og vitna hér fyrir dómi, um að þau hafi í fyrstu varðað tilmæli og fyrirskipanir stefnda um að stefnandi léti af hendi og varðveitti vinnugögn, að hann upplýsti um þau verkefni sem hann hefði verið að vinna að hin síðustu misserin fyrir uppsögnina, og þá ekki síst að hann gerði grein fyrir gögnum í fartölvu og borðtölvu, sem hann hafði haft umráð yfir, en voru í eigu stefnda. Jafnframt fyrirskipaði stefndi stefnanda að skila tilteknum lausafjármunum.

    Það er mat dómsins, að virtum framlögðum gögnum og skýrslum fyrir dómi, að stefnandi hafi í aðalatriðum brugðist við kröfum stefnda varðandi skil á lausafjármunum, a.m.k. hafi hann gert það um síðir. Þar á meðal hafi hann skilað fartölvu og margvíslegum verkfærum. Þessu til viðbótar hafi stefnandi gefið skýringar vegna athugasemda stefnda, a.m.k. að hluta til, þ. á m. á ætluðum upptökubúnað á fyrrum skrifstofu hans á starfsstöð B.

    Þá er til þess að líta að í hinum bréflegu samskiptum málsaðila ráðlagði stefnandi fyrirsvarmönnum stefnda að þiggja aðstoð sérfræðinga hugbúnaðarfélagsins […] hf. við leit að þeim tilteknu tölvugögnum, sem stefndi hafði einkum kallað eftir. Í því samhengi upplýsti stefnandi að gögnin gætu eftir atvikum verið á víð og dreif í þeim tölvum sem hann hafði haft not af, ásamt einkagögnum hans, en einnig í skjallegu formi á fyrrum skrifstofu hans. Liggur fyrir að er þetta gerðist var stefnandi í veikindaleyfi.

    Ágreiningslaust er að þau gögn sem fyrirsvarsmenn stefnda voru einkum með í huga tengdust því verkefni sem mesti þunginn virðist hafa verið á í starfi B á þessum tíma, þ.e. gögn um hönnun og áætlanagerð ljósleiðaraverkefnisins, sem félagið hafði tekið að sér samkvæmt sérstökum samningi við sveitarfélagið […] síðla vetrar 2019. Er í því samhengi til þess að líta að samkvæmt vætti þáverandi formanns og varaformanns stefnda fyrir dómi verður ráðið að þau hafi bæði tímabundið sumarið 2019 lagt fram krafta sína við að aðstoða stefnanda á skrifstofu B, og hafi við það tækifæri séð í svip slík gögn í fórum hans.

    Óumdeilt er með málsaðilum að sértæk gögn um ljósleiðaraverkefnið fundust aðeins í mjög takmörkuðum mæli við yfirferð starfsmanna […] hf. í fyrrnefndum tölvubúnaði. Samkvæmt vætti sérfræðings […] hf. fyrir dómi var yfirferðin því marki brennd að þegar hún fór fram, seinni hluta árs 2019, hafði þá þegar verið búið að skrifa yfir hluta þeirra forrita, sem við átti.

    Í þessu samhengi verður að mati dómsins ekki fram hjá því horft að stefnandi hefur í aðilaskýrslu fyrir dómi staðhæft að mjög lítið hafi verið um hin sértæku gögn í tölvubúnaði hans, og þá ekki um verkhönnun, verkáætlun eða gögn um fyrirhugaða efnisnotkun varðandi umrætt ljósleiðaraverkefni. Hefur stefnandi jafnframt vísað til þess að ljósleiðaraverkefnið hafi í raun aðeins verið nýhafið þegar hann lét af stöfum vegna uppsagnarákvörðunar stefnda. Gögnin hafi því einfaldlega ekki verið tilbúin af hans hálfu þegar þeir atburðir gerðust.

    Stefnandi hefur í aðilaskýrslu einnig borið að þau einu gögn sem hann hafi haft í fórum sínum um ljósleiðarverkaefnið við starfslokin hafi verið ljósmyndir með árituðum og ófullgerðum gagnaleiðum. Gögn þessi hafi hann útbúið þegar hann hafi aðstoðað sveitarfélagið […], síðar […], við umsóknarferlið varðandi styrkveitingarbeiðni til Fjarskiptasjóðs vegna ljósleiðaraverkefnisins, sem um síðir hafi gengið eftir.

    Samkvæmt málatilbúnaði stefnanda er því alfarið hafnað að hann hafi eytt tölvugögnum um margnefnt ljósleiðaraverkefni. Þá hefur hann í aðalatriðum hafnað öllum málsástæðum stefnda, þ. á m. að hann hafi í ljósi aðstæðna eigi veitt viðeigandi upplýsingar um rekstur stefnda, m.a. varðandi yfirstandandi verklegar framkvæmdir. Í því sambandi hefur hann bent á að slíkum verkefnum hafi að mestu verið útvistað til verkfræðisstofa, m.a. verkefninu sem varðað hefði félagið […].

    Það er álit dómsins að ofangreindri frásögn stefnanda hafi eigi verið hnekkt af hálfu stefnda. Er í því sambandi m.a. til þess að líta að frásögn stefnanda um hönnunargögn og verk- og efnisáætlanir um ljósleiðarverkefnið virðist vera í samræmi við áðurrakið bréfi hans til stefnda frá 24. september 2019, en einnig aðilaskýrslu núverandi framkvæmdastjóra stefnda fyrir dómi, þ.e. að um síðir og við nánari athugun hafi hin skjallegu gögn um verkefnið fundist á skrifstofu B. Aftur á móti staðhæfði nefndur framkvæmdastjóri að gögn þessi hefðu verið ónothæf þegar til hafi komið, þ.e. þegar framkvæmdir við ljósleiðaraverkefnið loks hófst á árinu 2020.

  13. Auk fyrrgreindra samskipta og bréfasendinga í ágústmánuði 2019 liggur fyrir í máli þessu, að stefndi tilkynnti stefnanda 30. ágúst, að honum væri eftirleiðis óheimilt að koma fram sem framkvæmdastjóri eða starfsmaður B. Þessu til viðbótar greindi stefndi stefnanda frá því í bréfi, dagsettu 18. september sama ár, að við athugun sérfræðings á þeim tölvum sem stefnandi hafði haft undir höndum hefðu eigi fundist öll þau gögn sem hann hefði vænst að þar væru til staðar. Liggur fyrir að þar var átt við fyrrgreind hönnunargögn og áætlanir vegna ljósleiðaraverkefnisins, en í því samhengi vísar stefndi til þess að fram hefðu komið reikningar um efniskaup vegna verkefnisins að fjárhæð yfir 75 milljónir króna. Liggur fyrir að stefnanda var að þessu sögðu tilkynnt að forsendur umræddra kaupa hans yrði að skoða nánar, en jafnframt var skorað á hann að veita frekari upplýsingar.

    Samkvæmt gögnum reyndust þau efniskaup sem stefnandi hafði staðið fyrir vegna ljósleiðaraverkefnisins vera frá fjórum nafngreindum seljendum. Fjárhæð reikninga vegna viðskiptanna, sem átt höfðu sér stað í júní- og júlímánuði 2019, reyndust á endanum vera að fjárhæð rúmlega 38 milljónir króna.

  14. Í riftunarbréfi stefnda frá 28. október 2019 er sérstaklega vikið að ofangreindum efniskaupum. Er m.a. staðhæft að kaupin hafi verið algjörlega óforsvaranleg og er það álit rökstutt nánar, sbr. það sem rakið var í kafla III, lið 18 hér að framan.

    Stefndi heldur því m.a. fram að umrædd efnisinnkaup stefnanda hafi verið í ósamræmi við starfslýsingu hans þar sem m.a. sé kveðið á um skyldur hans til þess að leggja öll meiriháttar málefni fyrir stjórn eða stjórnarformann áður en slíkar ákvarðanir séu teknar. Í þessu samhengi hefur stefndi bent á að umfjöllun um málefnið hafi farið fram á stjórnarfundum, þ. á m. 9. maí nefnt ár, og að þá hafi verið afráðið að ákvarðanir um innkaup vegna ljósleiðaraverkefnisins yrðu kynntar fyrir stjórninni. Stefndi bendir á að í kjölfarið hafi stefnandi ítrekað verið inntur eftir upplýsingum um málefnið, auk þess sem kallað hafi verið eftir gögnum um verkhönnun, en án árangurs, sbr. bókanir í fundargerðum stjórnarinnar, sbr. að því leyti skýrslur fyrir dómi. Stefndi byggir einnig á því að umrædd innkaup stefnanda hafi verið alls ótímabær miðað við stöðu ljósleiðaraverkefnsins, líkt og þau gögn sem þó hefðu síðar fundist á skrifstofu stefnanda á fyrrum starfsstöð hans hjá B hefðu ljóslega borið vitni um.

    Í aðilaskýrslu fyrir dómi staðhæfði stefnandi að hann hefði fyrir umrædd innkaup haft samráð við þáverandi stjórnarformann stefnda, D. Þá staðhæfði stefnandi að þessi innkaup hans hefðu m.a. komið til af því að erfiðleikar hefðu verið um alla efnisöflun, en að auki hefði legið á að hefjast handa við verkið. Frásögn fyrrum stjórnarformanns stefnda var ekki í samræmi við þennan framburð stefnanda, þ.e. um vitneskju hans um innkaup stefnanda umrætt sumar. Þá er frásögn […] stefnda, F, sem áður var […] stjórnar, ekki heldur í samræmi við þessa frásögn stefnanda, en hún hefur alfarið andmælt orðum hans um nefnd kaup.

    Fundargerðir stjórnar stefnda bera að áliti dómsins ekki með sér að stefnandi hafi aflað heimildar stjórnar um margnefnd innkaup á ljósleiðaraefni. Hallast bókanir fremur að því að gengið hafi verið eftir því að stjórnarmenn fengju í hendur viðhlítandi gögn um það verkefni. Að þessu virtu ber að áliti dómsins að hafna frásögn og skýringum stefnanda að þessu leyti.

    Eins og áður hefur komið fram, sbr. málavaxtalýsingu málsaðila hér að framan, var ljósleiðaravæðingin í sveitarfélaginu, og þá ekki síst í dreifbýlinu, nýbreytni í starfi stefnda. Liggur fyrir að af þessu tilefni var sérstök deild um gagnaveitu stofnuð síðla vetrar 2019. Að mati dómsins bera fundargerðir stjórnar B, en einnig vætti stjórnarmanna fyrir dómi, það með sér að verkefnið hafi verið mikilsvert og að það hafi tíðum verið til umfjöllunar og þá ekki síst með fyrirspurnum til stefnanda, m.a. um tilurð hönnunargagna.

    Að mati dómsins fól háttsemi stefnanda varðandi marggreind innkaup í ljósi alls ofangreinds og þar sem um verulega heildarfjárhæð var að ræða, í sér skýrt og stórfellt brot á trúnaðarskyldu hans, sem framkvæmdastjóra gagnavart stefnda, B, eins og þær leiddu af ráðningarsamningi hans og starflýsingu, en einnig almennum reglum vinnuréttar.

    Að ofangreindu virtu er fallist á þær röksemdir stefnda að brot stefnanda að þessu leyti hafi verið veruleg vanefnd af hans hálfu. Er það niðurstaða dómsins að stefnda hafi að svo búnu verið heimilt að rifta ráðningasamningi málsaðila, svo sem hann gerði með áðurgreindu bréfi 28. október 2019. Til þess er að líta tiltekin viðvörun er ekki skilyrði riftunar, og þá áður en ráðningarsamningi er slitið með þessum hætti og við viðlíka aðstæður.

  15. Það er niðurstaða dómsins að í ljósi fyrrgreindrar niðurstöðu hafi stefnandi átt rétt til óskertra launa til 1. nóvember 2019. Stefndi greidd stefnanda, eins og áður er komið fram óskert laun fyrir septembermánuði nefnt ár, en skerti hins vegar launagreiðslur til hans fyrir októbermánuð það ár, og voru útborguð laun hans þann mánuð 2.455 krónur.

    Stefndi hefur í málatilbúnaði sínum vísað til eigin réttar til skuldajafnaðar að fjárhæð 1.794.350 krónur og þá gagnvart skaðabótakröfu stefnanda í aðalsök, sem er ígildi launa hans fyrir októbermánuð. Þar um vísar stefndi til þess að stefnandi hafi eigi fylgt reglum ráðningarsamnings þeirra, sbr. enn fremur að því leyti ákvæði starfslýsingar varðandi ábyrgð hans á starfsemi og bókhaldi og þá um að leggja fram reikninga fyrir ferðadagpeningum. Stefndi byggir á því að um ofgreiðslu hafi verið að ræða, sem stefnandi hafi borið ábyrgð á.

    Stefnandi andmælir málsástæðum stefnda að þessu leyti, og um ólögmæti skuldajafnaðarkröfu stefnda vísar hann einkum til 1. mgr. 1. gr. laga nr. 28/1930 um greiðslu verkkaups.

    Af framlögðum gögnum verður ráðið að dagpeningagreiðslurnar til handa stefnanda hafi komið til vegna alls 18 ferðatilvísana hans á tímabilinu frá 31. maí 2018 til 1. ágúst 2019. Fyrsta tilvísunin er dagsett 31. maí 2018 og er þar um fæðisgreiðslu í einn dag að ræða. Getið er um tilgang þessarar farar/verkefnis, en ekki er skráð dagsetning. Staðfest var fyrir dómi að tilvísun þessi hefði verið samþykkt af […] B, E, líkt og önnur tilvísun, sem dagsett er sama dag, en hún er vegna gistingar og fæðis í tvo daga í byrjun maí sama ár. Aðrar framlagðar ferðatilvísanir eru allar samþykktar af stefnanda á fyrrgreindu tímabili. Á þær eru skráðar dagsetningar, en um tilefni ferða er yfirleitt skráð ,,fundir með ýmsum“ eða ,,fundur“ en án frekar skýringa, og í öllum tilvikum er um kröfu um gistingu og fæði að ræða. Þá er alltaf skráð að erindum hafi verið sinnt í Reykjavík, en fram kemur að ferðirnar hafi varað í 1-7 daga. Fyrir dómi staðfesti stefnandi umræddar tilvísanir, en bar að ein þeirra hefði í raun verið vegna vinnuferðar hans utan Reykjavíkur. Er það í samræmi við framlögð gögn stefnda, en hann hefur lagt fyrir dóminn yfirlit yfir ferðir þessar á fyrrnefndu tímabili og að þar hafi verið um ræða samtals 60 daga. Hefur því ekki verið andmælt af hálfu stefnanda. Í aðilaskýrslu greindi stefnandi frá því að hann hefði eigi gætt að ákvæðum eigin ráðningarsamnings og þá um að honum hafi borið að leggja fram eiginlega reikningar fyrir fyrrgreindum ferðalögum.

    Samkvæmt því sem fram kom í skýrslum fyrir dómi er af hálfu stefnda eigi vefengt að stefnandi hafi farið umræddar ferðir, að þær hafi a.m.k. að nokkru verið farnar í tengslum við verkefni fyrir B, þrátt fyrir að litið hafi verið með velvilja til fjarvista stefnanda frá aðalstarfstöð félagsins vegna aðstæðna hans.

    Dómurinn lítur svo á að samkvæmt framansögðu hafi verið um náin tengsl við vinnuréttarsamband málsaðila að ræða og að af þeim sökum beri að líta á þessar greiðslur sem uppgjör í tengslum við launakjör, sbr. til hliðsjónar dóma Hæstaréttar, m.a. í málum nr. 157/1977 og nr. 379/2012. Þá er fallist á með stefnda að reikningsgerð stefnanda hafi ekki verið í samræmi við skýr ákvæði ráðningasamnings málsaðila.

    Að ofangreindu virtu og þar sem dómurinn lítur svo á að um samrættar kröfu málsaðila hafi verið að ræða í þessum þætti málsins þykir rétt að fallast á skuldajafnaðarkröfu stefnda að hluta og þá gagnvart launakröfu stefnanda vegna októbermánaðar 2019, en þá að álitum að fjárhæð 600.000 krónur. Krafa stefnanda er því hærri en krafa stefnda, sem nemur 1.194.350 krónum. Stefndi verður því dæmdur til að greiða þessa kröfufjárhæð með dráttarvöxtum, eins og nánar segir í dómsorði, en þá eftir atvikum að virtri niðurstöðu í kafla VII hér á eftir.

    Engin efni eru til þess að dæma stefnanda miskabætur úr hendi stefnda, eins og atvikum var háttað, og er þeirri kröfu hans því hafnað.

  16. Með hliðsjóna af öllu framangreindu verður að mati dómsins ekki talið að aðrar framkomnar röksemdir eða málsástæður málsaðila í aðalsök hafi við svo búið sérstaka þýðingu í málinu eða að þær geti leitt til annarrar niðurstöðu, sbr. e-lið 114. gr. laga nr. 91/1991. Verður stefndi því sýknaður af öðrum kröfum stefnanda að því er varðar vangreidd laun frá og með 1. nóvember 2019, en um aðrar kröfur verður fjallað í gagnsök.

VII.

  1. Stefndi byggir á því í gagnsök að stefnandi hafi brotið þær starfsskyldur sem á honum hafi hvílt og með því hafi hann valdið tjóni sem honum beri að bæta. Stefnandi andmælir öllum málsástæðum stefnda í þessa veru, sbr. kafla V hér að framan. Málsaðilar rökstyðja kröfur sínar og málsástæður, líkt og áður hefur að nokkru verið rakið.
  2. Í gagnsök byggir stefndi á því að í kjölfar samþykktar stjórnar hans um hækkun gjaldskrár þann 6. desember 2018, en vegna skorts á staðfestingu og birtingu hennar, hafi komið til þess að hann hafi orðið af tekjum og þá miðað við hina fyrirhuguðu gjaldskrárhækkun á árinu 2019, en einnig vegna ársins 2020. Stefndi byggir á því að vegna athafnaleysis stefnanda, sem framkvæmdastjóra B, við að fylgja eftir nefndri stjórnarákvörðun hafi hann valdið tjóni sem hann beri skaðabótaábyrgð á, enda hafi vanrækslan verið saknæm, og beri að meta hana til almenns gáleysis.

    Um eigið tjón vegna ofangreinds vísar stefndi til eigin útreikninga, byggðra á bókhaldi og ársreikningi B. Hann staðhæfir að tjón hans á árinu 2019 hafi verið 13.793.940 krónur, miðað við að gjaldskráin hefði gilt allt árið, en á árinu 2020, frá janúar til maí, hafi tjónið verið 3.797.780 krónur. Til vara krefst stefndi lægri fjárhæðar, að gefnum tilgreindum forsendum, sbr. kafla V, lið 6 hér að framan. Máli sínu til stuðnings vísar stefndi helst til framlagðs yfirlits úr eigin sölukerfi og þá með samanburði á tekjum miðað við ætlaða gjaldskrárbreytingu frá 6. desember 2018.

    Stefndi rekur mál sitt gegn stefnanda á grundvelli sakarreglunnar og tilvitnaðra ákvæða laga um einkahlutafélög, einkum 2. mgr. 44. gr. og 1. mgr. 108. gr. Samkvæmt meginreglu skaðabótaréttar er það stefndi sem ber sönnunarbyrðina fyrir tjóni sínu af völdum stefnanda. Að mati dómsins verður ekki fram hjá því litið að stefndi hefur haft undir höndum öll gögn, ekki síst úr eigin bókhaldi, líkt og hann hefur að nokkru tíundað við meðferð þessa máls.

    Í ljósi andmæla stefnanda verður að ætla að stefnda hefði verið auðvelt að tryggja sér sönnun um hið ætlaða tjón sitt, og þá eftir atvikum með því að afla sér matsgerðar dómkvadds matsmanns eftir ákvæðum IX. kafla laga nr. 91/1991 um meðferð einkamála. Verður stefndi í ljósi atvika að bera hallann af þeim sönnunarskorti sem af þessu hlaust. Að þessu virtu og í ljósi rökstuddra andmæla stefnanda er það niðurstaða dómsins að stefnda hafi ekki nægjanlega tekist að sanna að hann hafi orðið fyrir tjóni vegna hinnar ætluðu háttsemi stefnanda. Verður stefnandi því sýknaður af kröfu stefnda í þessum þætti málsins.

  3. Stefndi reisir dómkröfu sína á því að stefnandi hafi samkvæmt ráðningarsamningi enga heimild haft til þess að kaupa á kostnað stefnda en í eigin þágu stefnanda líftryggingu að fjárhæð 113.400 krónur.

    Varðandi umrædda kröfu hefur stefnandi helst borið fyrir sig misskilning um þau kjör sem hann hafi ætlað að fyrrverandi framkvæmdastjóri hefði haft hjá stefnda. Því til viðbótar byggir stefnandi á því að lagarök stefnda séu harla óljós.

    Að áliti dómsins er ekkert hald í mótbárum stefnanda í þessum þætti málsins. Er því fallist á röksemdir stefnda, að með nefndum kaupum hafi stefnandi brotið gegn skyldum samkvæmt ráðningasamningi sínum gagnvart stefnda. Verður því fallist á skaðabótakröfu stefnda um þennan þátt og þá með nefndri fjárhæð.

  4. Stefndi reisir kröfu sína um óheimilar eða ósamþykktar úttektir stefnanda með VISA-viðskiptakorti, að fjárhæð 159.746 krónur, nánar tiltekið vegna vöruúttekta hans á verkfærum hjá tilteknum verslunum. Í aðilaskýrslum kom m.a. fram, þ. á m. hjá núverandi framkvæmdastjóra stefnda, að stefnandi hefði samkvæmt tilmælum og um síðir skilað fjölda verkfæra eftir starfslok sín. Að mati dómsins verður ekki horft fram hjá því að umrædd verkfæri virðast hafa verið á heimili stefnanda á […], og að hann hafi sökum tímabundinna veikinda ekki haft góð tök á því að koma þeim til skila. Þá hefur að mati dómsins þeirri frásögn stefnanda ekki verið hnekkt að hann hafi haft not af verkfærunum í starfi sínu fyrir B, m.a. vegna viðhalds- og viðgerðastarfa. Verður í því samhengi m.a. litið til iðnmenntunar stefnanda.

    Að ofangreindu virtu þykir ekki nægjanlegt hald í lýstri kröfu stefnda og er henni því hafnað.

  5. Stefndi reisir kröfu sína, að fjárhæð 115.533 krónur vegna óheimilla eigin fæðiskaupa stefnanda helst á því að þau viðskipti hafi verið í ósamræmi við ráðningarsamning þeirra, en einnig ákvæði d-liðar 6. gr. reglugerðar nr. 483/1994 um frádrátt frá tekjum af atvinnurekstri eða sjálfstæðri starfsemi. Stefndi byggir jafnframt á því að stefnandi hafi eigi veitt upplýsingar eða útskýrt forsendur fyrir þessum viðskiptum. Að þessu leyti hefur stefndi einnig lagt fram fylgiskjöl máli sínu til stuðnings.

    Að álit dómsins hefur stefnandi hér fyrir dómi gefið haldbærar skýringar á hluta umræddra viðskipta og fæðiskaupa, og þá að fjárhæð 27.475 krónur. Að öðru leyti hefur hann ekki gert það og verður því fallist á kröfu stefnda að þessu leyti, að fjárhæð 88.058 krónur.

  6. Loks reisir stefndi skaðabótakröfu, að fjárhæð 44.193 krónur, á því að stefnandi hafi valdið honum tjóni með því að vanrækja að skila honum tveimur tilgreindum raftækjum, sbr. kafla V, B, lið 11. Stefnandi hefur alfarið andmælt þessari kröfu.

    Að áliti dómsins hefur frásögn vitna fyrir dómi um tilgreind tæki ekki verið alveg afdráttarlaus, þ. á m. hvenær þau hafi horfið af skrifstofu framkvæmdastjóra, þ. e. stefnanda. Í því samhengi verður að mati dómsins ekki fram hjá því horft að skrifstofan virðist ekki alfarið hafi verið lokuð eftir að stefnandi hvarf úr þjónustu stefnda í ágústmánuði 2019. Að þessu virtu þykir stefndi ekki hafa sannað að stefnandi hafi valdið honum tjóni með hvarfi þessara raftækja og er því kröfu hans hafnað .

VIII.

  1. Samkvæmt öllu ofangreindu hefur verið fallist á kröfur stefnanda að fjárhæð 992.892 krónur, að virtum áðurgreindum samþykktum kröfum stefnda, en einnig vegna kröfu hans um skuldajöfnun að hluta til. Dæma ber stefnda til að greiða dráttarvexti af nefndri fjárhæð, sem rétt þykir að verði frá þingfestingardegi stefnu, 4. júní 2020, sbr. 9. gr. laga nr. 38/2001.
  2. Í ljósi atvik og málsúrslita, en einnig með vísan til þess að hluti gagnstefnu stefnda var vísað frá dómi með úrskurði á fyrri stigum, þykir rétt að stefndi greiði hluta af málskostnaði stefnanda, að fjárhæða 900.000 krónur, sbr. 3. mgr. 130. gr. laga um meðferð einkamála nr. 91/1991.

    Af hálfu stefnanda flutti málið Helgi Birgisson lögmaður, en af hálfu stefnda flutti málið Jón Jónsson lögmaður.

    Gætt var ákvæða 1. mgr. 115. gr. laga nr. 91/1991 fyrir uppkvaðningu dómsins.

    Ólafur Ólafsson héraðsdómari kveður upp dóminn.

D Ó M S O R Ð

Stefndi, B greiði stefnanda, A, 992.892 krónur, með dráttarvöxtum samkvæmt 1. mgr. 6. gr. laga nr. 38/2001, frá þingfestingardegi stefnu 4. júní 2020 til greiðsludags.

Stefndi greiði stefnanda 900.000 krónur í málskostnað.

Heimildaskrá

Lagaskrá

Lög nr. 28/1930 Lög um greiðslu verkkaups 1. gr.1. mgr. 1. gr.
Lög nr. 19/1940 Almenn hegningarlög 68. gr.247. gr.3. mgr. 259. gr.
Lög nr. 58/1967 Orkulög 4. gr.5. gr.6. gr.32. gr.3. mgr. 32. gr.
Lög nr. 91/1991 Lög um meðferð einkamála 44. gr.1. mgr. 50. gr.59. gr.80. gr.1. mgr. 80. gr.108. gr.114. gr.1. mgr. 115. gr.129. gr.130. gr.3. mgr. 130. gr.XXI. kafli
Lög nr. 37/1993 Stjórnsýslulög
Lög nr. 50/1993 Skaðabótalög 23. gr.1. mgr. 24. gr.1. mgr. 26. gr.
Lög nr. 138/1994 Lög um einkahlutafélög 2. mgr. 44. gr.
Lög nr. 483/1994 3. gr.6. gr.
Lög nr. 38/2001 Lög um vexti og verðtryggingu 1. mgr. 6. gr.9. gr.
Lög nr. 120/2016 Lög um opinber innkaup 4. gr.23. gr.
Lög nr. 90/2018 Lög um persónuvernd og vinnslu persónuupplýsinga 14. gr.