Leita í öllum dómstólum...
Niðurstöður
5 dómar fundust
Lykilorð: Kaupauki
Stefnandi gegndi starfi framkvæmdastjóra hjá stefnda. Í kjölfar uppsagnar krafðist stefnandi vangreiddra launa á uppsagnarfresti, uppsafnaðs ótekins orlofs, greiðslu kaupauka og áfallins lögmannskostnaðar auk málskostnaðar. Fallist var á að stefnandi ætti inni ógreidd laun á uppsagnarfresti sem næmi einum mánuði. Þá var fallist á að stefnda bæri að greiða stefnanda ógreitt orlof en hafnað var að nægilega skýrt hafi verið leitt í ljós að orlof skyldi safnast upp og færast milli orlofsára. Stefndi var sýknaður af kröfu um greiðslu kaupauka þar sem sú krafa hafi niður fallið án endurgjalds samkvæmt ákvæðum ráðningarsamningsins við starfslok stefnanda hjá stefnda. Þá hefði stefnandi ekki gætt þess að slíkrar kröfu yrði getið í ársreikningum félagsins, sem hún skyldi undirrita lögum samkvæmt sem framkvæmdastjóri. Að auki var óupplýst hvernig farið hafi verið með skattskil vegna útgjalda stefnanda í eigin þágu en sem framkvæmdastjóri félagsins hafi stefnandi sjálf borið ábyrgð á því.
Fallist var á kröfu stefnanda um árangurstengda greiðslu sem hann taldi sig eiga rétt á úr hendi stefnda vegna starfa hans sem knattspyrnuþjálfari meistaraflokks karla hjá stefnda. Ennfremur var fallist á að krafan væri launakrafa sem greiða bæri orlofslaun af í samræmi við 1. gr. laga nr. 30/1987. Kröfu stefnanda um greiðslu lífeyrisiðgjalda af kröfunni var aftur á móti vísað frá dómi. Þá féllst dómurinn á kröfu stefnda um frádrátt ferðakostnaðar frá árangurstengdu greiðslunni til stefnanda.
Fallist var á kröfu stefnanda um greiðslu eftirstöðva frestaðrar kaupaukagreiðslu þar sem ekki var talið að stefndi hefði staðið réttilega að afturköllun hennar.
Fallist á kröfu stefnanda samkvæmt ráðningarsamningi um launauppbót er nam 12.5% hlutdeild í hagnaði stefnda.
Sigurður Guðmundsson Lúðvík Örn Steinarsson gegn
Borgun hf Stefán A Svensson
Deilt um rétt fjármálafyrirtækis til að fella niður frestaðan hluta kaupauka eða árangurstengdrar þóknunar fyrrum starfsmanns með vísan til reglna Fjármálaeftirlitsins um kaupaaukakerfi fjármálafyrirtækja.